{"id":2873,"date":"2021-12-15T00:27:53","date_gmt":"2021-12-15T00:27:53","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/12\/15\/saga-af-sundi-og-hjolreidum-og-blautum-manni-ad-austanverdu\/"},"modified":"2021-12-15T00:27:53","modified_gmt":"2021-12-15T00:27:53","slug":"saga-af-sundi-og-hjolreidum-og-blautum-manni-ad-austanverdu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2873","title":{"rendered":"Saga af sundi og hj\u00f3lrei\u00f0um &#8211;  og blautum manni a\u00f0 austanver\u00f0u"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1513\" height=\"1270\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/12\/img_1014.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2872\" \/><figcaption>Mynd af j\u00f3ladagatali fengin a\u00f0 l\u00e1ni af Vefnum!<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g vara \u00feig vi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feetta er montf\u00e6rsla \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0li.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd dag hj\u00f3la\u00f0i \u00e9g \u00far Mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur, vestur \u00ed Sundlaug Seltjarnarness. Synti \u00fear skri\u00f0sund og ger\u00f0i \u00e6fingar, f\u00f3r \u00ed heitan nuddpott og gufuba\u00f0, sem er reyndar anna\u00f0 en Sauna &#8211; Nota Bene!<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt af verkefnum dagins var a\u00f0 fara \u00ed verzlunina Litur og f\u00f6ndur \u00e1 Smi\u00f0juvegi \u00ed K\u00f3pavogi. \u00c9g st\u00f3\u00f0 eins og ungbarn, sem reyndar getur ekki sta\u00f0i\u00f0, en \u00e9g nota samt \u00fe\u00e1 l\u00edkingu, \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e9g var \u00ed lauginn, var sk\u00fdjafari\u00f0 svo st\u00f3rfenglegt og myndr\u00e6nt, a\u00f0 \u00fear sveif ungbarn, sem var me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed undirb\u00faningi a\u00f0 teygja vinstri h\u00f6ndina upp a\u00f0 munninum til a\u00f0 sj\u00faga puttann. Sk\u00fdin eru oft mikil listaverk og \u00e9g haf\u00f0i einmitt veri\u00f0 a\u00f0 st\u00fadera sk\u00fd \u00e1 netn\u00e1mskei\u00f0i fyrr um daginn! Tilviljun? Nei!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa ertu au\u00f0vita\u00f0 b\u00fain\/n a\u00f0 missa \u00fer\u00e1\u00f0inn: \u00c9g var semsagt n\u00fdba\u00f0a\u00f0ur sem ungabarn, &#8220;kl\u00e6ddur og kominn \u00e1 r\u00f3l&#8221; og r\u00f6kr\u00e6ddi vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig hvort \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 mig a\u00f0 hj\u00f3la su\u00f0ur \u00ed K\u00f3pavog, sem er heimsfr\u00e6gur fyrir skipulag &#8211; e\u00f0a \u00feannig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var svo l\u00e9ttur \u00e1 m\u00e9r eftir ba\u00f0 og sund a\u00f0 \u00e9g l\u00e9t mig hafa \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hj\u00f3la\u00f0i \u00c6gis\u00ed\u00f0una sem var falleg, eins og h\u00fan er \u00ed n\u00e6stum \u00fev\u00ed flestum ve\u00f0rum, en \u00fe\u00f3 ekki \u00f6llum, en sem \u00e9g er kominn su\u00f0ur fyrir flugv\u00f6llin og Fossvogurinn framundan \u00fe\u00e1 s\u00e9 \u00e9g dimm sk\u00fd yfir \u00c1lftanesi og Bessast\u00f6\u00f0um &#8211; og \u00e9g hugsa: &#8220;\u00c9g vona n\u00fa a\u00f0 allt s\u00e9 \u00ed lagi hj\u00e1 Gu\u00f0na forseta og El\u00edzu og b\u00f6rnunum. \u00deau \u00feurfa n\u00fa a\u00f0 vera \u00ed standi fyrir j\u00f3l og \u00e1ram\u00f3t, matarbo\u00f0 og veizlur og allt \u00fea\u00f0!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa var komi\u00f0 \u00e9l yfir K\u00f3pavogsh\u00e1lsinn og \u00e9g gaf bar \u00ed og l\u00e9t mig hafa \u00fea\u00f0 \u00ed b\u00f3mullarbuxum (gleymdi regnbuxunum heima) a\u00f0 hj\u00f3la\u00f0i \u00ed gegnum Fossvoginn en \u00fe\u00e1 gengu \u00e9l yfir mig og rengsk\u00farir \u00feannig a\u00f0 \u00e9g blotna\u00f0i d\u00e1l\u00edti\u00f0 a\u00f0 austanver\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feegar \u00e9g kom \u00ed Fossvogsdalinn, \u00fear sem \u00e9g m\u00e6tti, a\u00f0 mig minnir \u00feremur manneskjum, sem litu hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinsti, en hengdu haus og v\u00f6r\u00f0ust \u00feannig regni og vindum. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fe\u00e6r m\u00f3tt\u00f6kur hverfisb\u00faa gangvart \u201eaflraunamanni\u201c, sem var einn \u00e1 fer\u00f0 \u00e1 s\u00ednum rafhj\u00f3lf\u00e1ki og \u00fear \u00e1 ofan blautur \u00e1 austurhli\u00f0inni, h\u00e9lt \u00e9g \u00f3trau\u00f0ur \u00e1fram, beit \u00e1 jaxlinn (j\u00e1, \u00e9g er ekki me\u00f0 falskar) og h\u00e9lt \u00e1fram inn allan Fossvoginn og upp brattar brekkur og inn Smi\u00f0juveginn og komst loks \u00ed Liti og f\u00f6ndur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g tj\u00f3\u00f0ra\u00f0i rafhj\u00f3li\u00f0 vi\u00f0 rammgert st\u00e1lvirki og h\u00e9lt inn \u00ed minni m\u00fanderingu, \u00fe.e.a.s. bl\u00e1rri \u00falpu me\u00f0 sk\u00e6rgulu vesti yfir, me\u00f0 hj\u00e1lm, \u00feykka svigsk\u00ed\u00f0ahanska (en g\u00e6ti \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 fara ekki \u00ed svig og r\u00e1sa sem minnst), \u00ed b\u00f3mullarbuxur, d\u00f6kkbl\u00e1um, \u00f6gn of s\u00ed\u00f0um, n\u00fat\u00edmask\u00f3m (\u00fe\u00fa veist \u00feessum sem eru \u00far einhverju n\u00e6loni og halda hvorki vatni n\u00e9 vindi, eru \u00ed raun sem sokkar, eru t\u00f6ff og \u00feess vegna kaupir ma\u00f0ur svon sk\u00f3, enda danskir og minna \u00e1 or\u00f0i\u00f0 bergm\u00e1l).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, \u00e9g minntist \u00e1 buxurnar, sem h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur blotna\u00f0 a\u00f0 austanver\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feegar \u00e9g leita\u00f0i eftir fars\u00edmanum var hann hvergi a\u00f0 finna. Hvorki \u00ed buxnav\u00f6sum n\u00e9 \u00falpuv\u00f6sum sem eru \u00fat um alla fl\u00edkina svo \u00fea\u00f0 tekur t\u00edma a\u00f0 gera v\u00f6rutalningu. Um huga minn flugu or\u00f0in: &#8220;Hef \u00e9g t\u00fdnt 150 \u00fe\u00fasund kr\u00f3na s\u00edmanum m\u00ednum \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed K\u00f3pavog af \u00f6llum st\u00f6\u00f0um?!!!&#8221; (\u00deetta eru ekki ford\u00f3mar, \u00e9g tek \u00fea\u00f0 fram. \u00c9g hef\u00f0i alveg eins geta\u00f0 veri\u00f0 \u00e1 lei\u00f0ini \u00ed sama \u00e9ljagangi \u00ed Mosfellsb\u00e6 a\u00f0 \u00edhuga Gu\u00f0sjafar\u00feulu eftir sk\u00e1ldi\u00f0 g\u00f3\u00f0a \u00ed Dalnum).&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 miklu fremur geta\u00f0 t\u00fdnt s\u00edmanum \u00e1 lei\u00f0 til M\u00e6am\u00ed v.\u00fe.a. a\u00f0 hann hef\u00f0i veri\u00f0 tekinn af m\u00e9r eins og allt anna\u00f0 \u00ed eftirlitinu \u00ed Leifsst\u00f6\u00f0 og \u00fev\u00ed hef\u00f0i \u00e9g skili\u00f0 hann eftir \u00e1 f\u00e6ribandinu eins og \u00feunnildi sem sent er \u00ed afskur\u00f0 og refaf\u00f3\u00f0ur. En \u00e9g var bara ekki \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed s\u00f3l og sumaryl, \u00ed golf og spilav\u00edti hj\u00e1 Trump. Nei, \u00e9g var bara \u00e1 hj\u00f3li \u00ed lei\u00f0 \u00ed K\u00f3pavog og lenti \u00ed \u00e9li og blotna\u00f0i \u00e1 austurhli\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g st\u00f3\u00f0 sem sagt \u00fearna inn \u00ed Litum og f\u00f6ndri, skipti litum og velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 gera \u00fev\u00ed innkaupalistinn minn var au\u00f0vita\u00f0 \u00ed r\u00edm\u00e6nders \u00ed s\u00edmanum sem hvergi fannst. \u00c9g bar mig illa og spur\u00f0i hvort \u00e9g g\u00e6ti fengi a\u00f0 hringa \u00ed Sundlaug Seltjarnarness.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Afgrei\u00f0sluf\u00f3lk\u00f0 var \u00ed fyrstu spyrjandi: &#8220;H\u00f6fum vi\u00f0 einhverja \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 einhverjum g\u00f6mlum karli \u00ed bl\u00e1rri \u00falpu me\u00f0 neonvesti utanyfir sem er auk \u00feess blautur a\u00f0 austanver\u00f0u?&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00e9kk s\u00edma, svona \u00fer\u00e1\u00f0lausan fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld, sem er hvorki bor\u00f0s\u00edmi n\u00e9 fars\u00edmi. En mig vanta\u00f0i n\u00fameri\u00f0 \u00ed lauginni g\u00f3\u00f0u! Konurnar s\u00fdndu stillingu og flettu \u00fev\u00ed upp \u00ed fars\u00edma sta\u00f0arins og ein \u00feeirra kalla\u00f0i til m\u00edn h\u00e1tt \u00fat \u00ed b\u00fa\u00f0ina \u00fear sem \u00e9g st\u00f3\u00f0 me\u00f0 \u00fer\u00e1\u00f0lausa, gamaldags-s\u00edmakrifli\u00f0: fimmsexeinnfimmt\u00e1nfimt\u00eduogeinn. Ring, ring og svo svara\u00f0i \u00feessi elskulega kona af erlendum uppruna sem haf\u00f0i geymt s\u00edmann minn og \u00e9g spur\u00f0i hana \u00ed ofv\u00e6ni um s\u00edmann minn! H\u00fan var ekki viss en kalla\u00f0i \u00e1 a\u00f0sto\u00f0arkonu sem spur\u00f0i: &#8220;Hvernig er hann \u00ed \u00e1 litinn? \u00cd hvernig hulstri?&#8221; \u00c9g svara\u00f0i: &#8220;Br\u00fant e\u00f0a svona dimmfj\u00f3lubl\u00e1tt.&#8221; Og h\u00fan svara\u00f0i: &#8220;J\u00e1, hann er h\u00e9r.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00e1, hjarta\u00f0 t\u00f3k kipp eins og hj\u00e1 fj\u00e1rhir\u00f0unum for\u00f0um \u00ed Betlehem sem voru \u00fe\u00f3 algj\u00f6rlega s\u00edmalausir og algj\u00f6rlega \u00f3kunnugt um Alneti\u00f0 en samt \u00ed beinu sambandi vi\u00f0 Alheiminn og sj\u00e1lfan stj\u00f3rnandann \u00fear! Flottir str\u00e1kar sem vissu upp \u00e1 h\u00e1r hva\u00f0 var a\u00f0 gerast en \u00fe\u00f3 ekki vi\u00f0 fyrsta sjokki\u00f0 heldur bara eftir a\u00f0 englarnir hringdu me\u00f0 hringingu sem er hvergi h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 \u00ed dag, sama hva\u00f0 fars\u00edminn kostar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g sag\u00f0ist mundu s\u00e6kja s\u00edmann innan t\u00ed\u00f0ar. \u00dev\u00edl\u00edkur l\u00e9ttir. Hann var \u00fe\u00e1 til eftir allt saman og \u00e9g var \u00e1 lei\u00f0inni &#8211; e\u00f0a var hann kannski \u00e1 lei\u00f0inni til m\u00edn, hann sem stj\u00f3rnar l\u00edfi m\u00ednu og opnar m\u00e9r allar lei\u00f0ir og opnar m\u00e9r leyndard\u00f3ma, alla \u00feekking og fyllir hjarta\u00f0 einhverri \u00f3l\u00fdsanlegri kennd, sem gerir mann \u00f3eigingjarnan og svo tryllingslega v\u00edsan, a\u00f0 allar hagt\u00f6lur heimsins skipta engu, Bitkoin og allar myntir, hvort sem er \u00far m\u00e1lmi e\u00f0a papp\u00edr, rafurmagni, gulli e\u00f0a silfri, skipta bara engu og meira a\u00f0 segja Rafmyntar\u00e1\u00f0 \u00cdslands mundi bara kl\u00f3ra s\u00e9r \u00ed hausnum yfir og seja: \u00deessi kennd er \u00f6llu jar\u00f0neskum ver\u00f0m\u00e6tum \u00e6\u00f0ri!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En aftur a\u00f0 r\u00edm\u00e6nder-listanum sem var \u00ed s\u00edmanum. \u00c9g var\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 leyfi til a\u00f0 komast \u00ed t\u00f6lvuna \u00ed b\u00fa\u00f0inni til a\u00f0 leita eftir n\u00e1mskei\u00f0inu sem \u00e9g er \u00e1 \u00ed henni Amer\u00edku og finna litina sem kennarinn m\u00e6lti me\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ultramarine-bl\u00e1r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Cobalt-bl\u00e1r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Primary-bl\u00e1r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pthalo-bl\u00e1r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Permanent-gr\u00e6nn medium (\u00fe\u00f3 ekki fyrir h\u00e1r),<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viridian,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nap\u00f3l\u00ed-gulur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f6lur kadm\u00edum gulur (j\u00e1, l\u00edfi\u00f0 er ekki alltaf dans \u00e1 r\u00f3sum),<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Frumgulur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00edlabeinssvartur &#8211; \u00e9g hef alltaf haldi\u00f0 a\u00f0 f\u00edlabein v\u00e6ri hv\u00edtt. Liturinn er l\u00edklega nota\u00f0ur til a\u00f0 villa \u00e1 s\u00e9r heimildir sem \u00e1 \u00fe\u00f3 ekki vi\u00f0 um prestshempuna \u00fev\u00ed h\u00fan kemur \u00e6t\u00ed\u00f0 upp um mann. Minnir mig \u00e1 a\u00f0 Van Gogh var eitt sinn a\u00f0 rannsaka m\u00e1lverk eftir einn af hinum fr\u00e6gu, fl\u00e6msku m\u00e1lurum og \u00e1 m\u00e1lverkinu var kona \u00ed svartri hempu. Og Bing\u00f3! Viti menn: Van Gogh fann 27 mismunandi svarta liti \u00ed einni og s\u00f6mu hempunni. J\u00e1, hempurnar eru margslungnar, flottar og marglitar \u00ed raun, \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r vir\u00f0ist &#8211; bara &#8211; svartar! Van Gogh skar svo af s\u00e9r eyra\u00f0 vi\u00f0 anna\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri, en \u00fea\u00f0 er \u00f6nnur saga, enda gagna\u00f0ist \u00fea\u00f0 honum ekki \u00ed leit a\u00f0 litum. J\u00e1, \u00e9g var a\u00f0 tala um F\u00edlabeinssvartan! Svo kom Z\u00ednk-hv\u00edtur og af honum \u00fearf slatta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fe\u00e1 var \u00feetta au\u00f0vita\u00f0 gj\u00f6rsamlega framandi t\u00f6lva, einhver fornaldar gripur Micr\u00f3soft, Sm\u00e1mj\u00fakur. Er gaman a\u00f0 vera sm\u00e1mj\u00fakur?  (\u00deetta nafn \u00e1 fornaldart\u00f6lvu minnir mig \u00e1 nafni\u00f0 \u00e1 hinni f\u00f6gru Mjallhv\u00edt sem Vestur-\u00cdslenski teiknarinn, Thorson, hj\u00e1 Disney, teikna\u00f0i af konu fr\u00e1 Siglufir\u00f0i, sem hann var skotinn \u00ed.)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En  lyklabor\u00f0o\u00f0 og t\u00f6lvan voru af sama sau\u00f0ah\u00fasi og \u00e9g kunni ekki a\u00f0 sl\u00e1 inn att-merki\u00f0, \u00fe\u00fa veist, a-i\u00f0 me\u00f0 sveiflunni &#8211; sem er svona: @ &#8211; og opnar allar dyr eins og or\u00f0in &#8220;sesam, opnist \u00fe\u00fa!&#8221; sem Alibaba kunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta t\u00f3kst eftir nokkrar tilraunir. M\u00e9r f\u00f3r a\u00f0 l\u00ed\u00f0a betur og m\u00e9r var loksins fari\u00f0 a\u00f0 hl\u00fdna \u00e1 austurhli\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til vi\u00f0b\u00f3tar \u00e1tti \u00e9g a\u00f0 kaupa liti \u00e1star og hita: Feneyja-rau\u00f0an,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Al\u00edzar\u00edn crimson (ekkiert skyldur \u00feekktum manni sem ber eftirnafni Grimsson) og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Frumrau\u00f0an (en hann v\u00edsar ekki til hesta).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00f3g um litbrig\u00f0i l\u00edfsins \u00ed bili.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e6ja, \u00e9g komst \u00e1 st\u00edginn og loks ni\u00f0ur Fossvogsdalinn og \u00ed gegnum Vogahverfi\u00f0, me\u00f0fram Reykjansbrautinni og S\u00e6brautinni og loks a\u00f0 H\u00f6rpunni og n\u00fdbyggingunni sem geymir d\u00fdrustu \u00edb\u00fa\u00f0ir \u00cdslandss\u00f6gunnar, sem alvitrir fj\u00f6lmi\u00f0lar vita a\u00f0 kosta m\u00f6rghundru\u00f0 millj\u00f3nir og \u00fea\u00f0 tilb\u00fanar undir tr\u00e9verk, \u00fe.e.a.s. tilb\u00fanar en ekki timbra\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g fann loks gvassi\u00f0 og penslana, pallettuna og allt sem \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 kaupa, borga\u00f0i me\u00f0 korti, f\u00e9kk n\u00f3tu og allt \u00fea\u00f0, \u00feakka\u00f0i fyrir \u00fej\u00f3nustu og hj\u00e1lpsemi &#8211; og h\u00e9lt \u00fat \u00e1 Smi\u00f0juveginn \u00e1 n\u00fd, sem n\u00fa v\u00edsa\u00f0i ni\u00f0ur\u00edm\u00f3ti. En til a\u00f0 komast inn \u00e1 hj\u00f3last\u00edg ne\u00f0ar \u00ed g\u00f6tunni \u00feurfti \u00e9g a\u00f0 komast \u00e1 milli b\u00edla \u00e1 \u00feeim t\u00edma dags \u00feegar borgin okkar \u00fej\u00e1ist af l\u00famenskorti og var n\u00e6rri or\u00f0inn undir b\u00edl \u00fej\u00f3\u00f0\u00feekkts manns sem st\u00f6\u00f0va\u00f0i b\u00edlinn \u00f6gn of seint, svo \u00e9g komst ekki framhj\u00e1 honum \u00fear sem hann blokkera\u00f0i a\u00f0ganginn \u00e1 hj\u00f3last\u00edgnum. Hann haf\u00f0i fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 opna gluggann b\u00edlstj\u00f3ramegin enda me\u00f0 rafmagnsupphalara &#8211; og reyndar einnig ni\u00f0urhalara. Og \u00e9g spur\u00f0i: \u00c6tlar\u00f0ur ekki, nafni minn, a\u00f0 hleypa m\u00e9r inn \u00e1 hj\u00f3last\u00edginn? Hann brosti s\u00ednu brei\u00f0asta \u00ed gegnum krullurnar og sag\u00f0ist vera a\u00f0 reyna a\u00f0 rata \u00ed K\u00f3pavoginum og l\u00e9t sem hann hef\u00f0i ekki veri\u00f0 \u00ed s\u00edmanum a\u00f0 leita lei\u00f0sagnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e6ja, \u00e9g komst um hafnarsv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u00ed gegnum gamla Slippinn og \u00fat \u00e1 Seltjarnarnes \u00fear sem s\u00edminn minn k\u00e6ri, bei\u00f0 eins og \u00fe\u00e6gt barn eftir pabba, sem hafi gleymt honum. En hann var \u00fe\u00f3 ekki me\u00f0 handlegginn \u00e1 upplei\u00f0 til a\u00f0 sj\u00faga puttann eins og barni\u00f0 sem birtist m\u00e9r \u00e1 himninum er \u00e9g var rennblautur \u00ed sundi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3, s\u00fa gle\u00f0i og hamingja, a\u00f0 finna aftur s\u00edmann, sem t\u00fdndist! \u00dev\u00edl\u00edk gle\u00f0i og g\u00e6fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einu sinni t\u00fdndist sj\u00e1lft j\u00f3labarni\u00f0, en \u00fe\u00f3 ekki sem bleyjubarn, heldur me\u00f0 barnask\u00f3plapr\u00f3f, 12 \u00e1ra, og haf\u00f0i \u00fe\u00e1 slegi\u00f0 alla kennara landsins \u00fat af laginu. R\u00falla\u00f0i \u00feeim upp \u00ed Gettu betur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Duglegur str\u00e1kur, hann Jes\u00fas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa \u00e1tti \u00e9g bara eftir a\u00f0 hj\u00f3la aftur \u00ed 101, koma vi\u00f0 \u00ed einni b\u00fa\u00f0, sem ekki m\u00e1 nefna &#8211; og komast heim!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, a\u00f0ventan sn\u00fdst um komu, um Hann sem kemur, um Hann sem kom for\u00f0um, eins og barni\u00f0, sem \u00e9g s\u00e1 \u00ed sk\u00fdjum himinsins fyrr \u00ed dag, \u00fear sem \u00e9g var sj\u00e1lfur n\u00e1nast eins og barn \u00ed laug, n\u00e6stum fatalaus, en f\u00e9kk \u00fe\u00f3 a\u00f0 nj\u00f3ta hl\u00fdju og umhyggju, sem samf\u00e9lagi\u00f0 veitir m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3lin eru a\u00f0 koma. H\u00e1t\u00ed\u00f0in hans sem breytti heiminum og haf\u00f0i meiri \u00e1hrif en nokkur \u00f6nnur pers\u00f3na veraldars\u00f6gunnar. Hann heitir Jes\u00fas og er Kristur, frelsari allra manna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00e6ddist fyrir austan, \u00fea\u00f0an sem austan\u00e1ttin kemur, s\u00fa sem minnti mig \u00e1 sig \u00e1 austanver\u00f0um l\u00edkama m\u00ednum er \u00e9g f\u00f3r \u00ed gegnum Fossvoginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Regni\u00f0 hans, sk\u00edrnarvatni\u00f0, fossar \u00e1 mig og fossar enn, vatni\u00f0 \u00far lindinni einu sem l\u00edknar og blessar, hreinsar mig og \u00feig um alla eil\u00edf\u00f0 og segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g&nbsp; &#8211; elska&nbsp; &#8211; \u00feig!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; &#8211; &#8211; <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0ventu\u00feankar eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson, fyrrverandi s\u00f3knarprest, og n\u00faverandi sund- og hj\u00f3lrei\u00f0amann &#8211; og eil\u00edft barn Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundur \u00f3skar \u00fe\u00e9r fri\u00f0s\u00e6llar a\u00f0ventu og gle\u00f0ilegra j\u00f3la!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&nbsp; \u00c9g vara \u00feig vi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feetta er montf\u00e6rsla \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0li. \u00cd dag hj\u00f3la\u00f0i \u00e9g \u00far Mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur, vestur \u00ed Sundlaug Seltjarnarness. Synti \u00fear skri\u00f0sund og ger\u00f0i \u00e6fingar, f\u00f3r \u00ed heitan nuddpott og gufuba\u00f0, sem er reyndar anna\u00f0 en Sauna &#8211; Nota Bene!<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[243,246,333],"class_list":["post-2873","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2873","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2873"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2873\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2873"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2873"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2873"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}