{"id":2730,"date":"2021-12-01T17:52:28","date_gmt":"2021-12-01T17:52:28","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/12\/01\/minningarord-bjorg-ragnheidur-arnadottir-1931-2021\/"},"modified":"2021-12-01T17:52:28","modified_gmt":"2021-12-01T17:52:28","slug":"minningarord-bjorg-ragnheidur-arnadottir-1931-2021","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2730","title":{"rendered":"+Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir 1931-2021"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1931-2021<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1257\" height=\"756\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/12\/0ec865cc-564d-479e-b095-342c63b60b4e.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2742\" \/><figcaption>\u00c1rmann L\u00e1russon og Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir \u00e1 g\u00f3\u00f0ri stund<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stofnandi tr\u00faf\u00e9lagsins Kefas<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fr\u00edkirkjunni Kefas<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. desember 2021 kl.13:00<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa getur opna\u00f0 hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1na me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 virkja \u00fer\u00edhyrninginn h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og svo fylgst me\u00f0 textanum jafn\u00f3\u00f0um ef svo ber undir.S<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2021\/12\/bjocc88rg-ragnheidur-acc81rnadocc81ttir-1931-2021.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Inngangur &#8211; \u00f3skrifa\u00f0ur &#8211; \u00ed r\u00e6\u00f0unni eru nokkur innskot sem ekki eru \u00ed textanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0ventan er gengin \u00ed gar\u00f0 og borgin skartar hv\u00edtu \u00ed dag \u00feegar vi\u00f0 minnumst Bjargar \u00c1rnad\u00f3ttur og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hennar. Hv\u00edti liturinn er litur birtu og gle\u00f0i \u00ed okkar heimshluta en t.d. \u00ed K\u00edna er hann sorgarlitur. Oftar en ekki hv\u00edla l\u00e1tnir undir hv\u00edtri s\u00e6ng og yfir andliti\u00f0 er lag\u00f0ur hv\u00edtur d\u00fakur. Hann er t\u00e1kn sk\u00edrnarinnar, sk\u00edrnarkl\u00faturinn var h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr var\u00f0veittur og lag\u00f0ur yfir andlit l\u00e1tins f\u00f3lks vi\u00f0 \u00e6vilok. \u00deannig tengjast sk\u00edrnin og dau\u00f0inn, jar\u00f0l\u00edfi\u00f0 og himininn, t\u00edminn og eil\u00edf\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r konu sem lif\u00f0i langa \u00e6vi og f\u00e9kk drauma s\u00edna uppfyllta \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Drottinn er \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0, \u00ed senn stund gle\u00f0i og \u00feakkl\u00e6tis, sakna\u00f0ar og t\u00e1ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kynntist Bj\u00f6rgu og foreldrum hennar og b\u00f6rnum er \u00e9g starfa\u00f0i sem dj\u00e1kni \u00ed Grens\u00e1skirkju fyrir og upp\u00far 1979. \u00dea\u00f0 voru \u00e6vint\u00fdraleg \u00e1r \u00fear sem margir v\u00f6knu\u00f0u til n\u00fdrrar tr\u00faarvitundar og m\u00f6rg undur ger\u00f0ust \u00ed s\u00e1lu og jafnvel einnig \u00e1 l\u00edkama f\u00f3lks.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kraftaverk gerast hvern dag, m\u00e1li\u00f0 er a\u00f0 taka eftir \u00feeim og l\u00e6ra a\u00f0 \u00feakka fyrir \u00feau. \u00dea\u00f0 er kraftaverk a\u00f0 vera \u00e1 l\u00edfi og hafa fengi\u00f0 a\u00f0 draga l\u00edfsandann \u00e1rum saman, nj\u00f3ta fegur\u00f0ar l\u00edfs og heims, vera til og hafa m\u00f6guleikann til a\u00f0 elska n\u00e1ungann og svo einnig a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 tengjast annarri pers\u00f3nu \u00ed annarri v\u00eddd elskunnar. L\u00edfi er undur! L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f Gu\u00f0s og margir upplifa \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Gu\u00f0 a\u00f0 undur gerast \u00ed sm\u00e1u sem st\u00f3ru. Gu\u00f0 er a\u00f0 verki \u00ed ver\u00f6ldinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta vissi Bj\u00f6rg og skynja\u00f0i alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan setti upp gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustur \u00e1 Brimilsv\u00f6llum \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi sem barn og l\u00e9k \u00f6ll hlutverk sem \u00fear \u00feurfti til, m.a. prestinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;H\u00fan \u00fearf st\u00fdri fyri b\u00e1tinn sinn \u00feessi,&#8221; sag\u00f0i afi hennar er hann hossa\u00f0i henni \u00e1 hn\u00e9 s\u00e9r og skynja\u00f0i \u00ed henni b\u00e6\u00f0i stj\u00f3rnsemi og kraft.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan hafi \u00e6t\u00ed\u00f0 sterka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og var dugna\u00f0arstelpa. H\u00fan l\u00e9k s\u00e9r me\u00f0 str\u00e1kunum og \u00e6rsla\u00f0ist \u00fati \u00ed \u00f6llum ve\u00f0rum eins og b\u00f6rn ger\u00f0u almennt \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum. \u00de\u00e1 var ekki h\u00e6gt a\u00f0 liggja \u00e1 meltunni me\u00f0 spjaldt\u00f6lvu, en unnt var a\u00f0 lesa b\u00e6kur og \u00fea\u00f0 var gert. H\u00fan \u00e1tti g\u00f3\u00f0ar minningar fr\u00e1 uppeldi s\u00ednu \u00ed foreldrah\u00fasum \u00fear sem afi og amma komu a\u00f0 me\u00f0 s\u00edna elsku og l\u00edfsvisku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ung l\u00e6r\u00f0i h\u00fan \u00e1 orgel e\u00f0a harm\u00f3n\u00edum og haf\u00f0i strangan kennara. H\u00fan \u00e6f\u00f0i sig af kappi til \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a ekki slegin \u00e1 fingurnar me\u00f0 priki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg og systur hennar myndu\u00f0u s\u00f6ngh\u00f3pinn \u00c1rnad\u00e6tur, sem segja m\u00e1 a\u00f0 hafi veri\u00f0 tilbrig\u00f0i vi\u00f0 hinar fr\u00e6gu, amer\u00edsku, Andrews-systur. \u00de\u00e6r f\u00f3ru v\u00ed\u00f0a og skemmtu me\u00f0 r\u00f6ddu\u00f0um s\u00f6ng og hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleik.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Alla t\u00ed\u00f0 var t\u00f3nlist henni mikilv\u00e6gur gle\u00f0igjafi og h\u00fan er kv\u00f6dd hinstu kve\u00f0ju \u00e1 Fullveldisdegi \u00cdslands og sem \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 hefur einnig veri\u00f0 haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur sem dagur \u00edslenskrar t\u00f3nlistar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innskot . . . <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist og s\u00f6ngur vi\u00f0 \u00feessa ath\u00f6fn tekur mi\u00f0 af hennar \u00f3skum. H\u00e9r eru sungin hennar d\u00fdrm\u00e6tustu l\u00f6g og s\u00e1lmar sem opnu\u00f0u himininn sj\u00e1lfan fyrir henni \u00ed lofgj\u00f6r\u00f0 til Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hennar fluttu fr\u00e1 \u00d3lafsv\u00edk \u00ed K\u00f3pavoginn \u00feegar h\u00fan var 16 \u00e1ra. H\u00fan f\u00f3r \u00ed H\u00e9ra\u00f0ssk\u00f3lann \u00e1 Laugavatni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edtu n\u00fa \u00e1 helstu \u00e6vi\u00e1grip Bjargar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur f\u00e6ddist 24. j\u00fal\u00ed 1931 \u00ed b\u00e6num Hjallab\u00fa\u00f0 \u00ed Fr\u00f3\u00f0\u00e1rhreppi \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi. H\u00fan l\u00e9st 18. n\u00f3vember \u00e1 Hrafnistu \u00ed K\u00f3pavogi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hennar voru \u00c1rni Kr. Hansson, h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistari, f. 5. desember 1907, d. 24. \u00e1g\u00fast 2006 og Helga Krist\u00edn T\u00f3masd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir, f. 24. september 1908, d. 15. j\u00fan\u00ed 1990.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systur hennar voru Ingibj\u00f6rg, f. 26. september, d. 6. ma\u00ed 2018 og Ragnhei\u00f0ur D\u00f3r\u00f3thea, f. 1. september 1939, d. 23. ma\u00ed 2013.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg \u00f3lst upp \u00ed Fr\u00f3\u00f0\u00e1rhreppi til sex \u00e1ra aldurs. H\u00fan flutti me\u00f0 foreldrum s\u00ednum og systur, Ingibj\u00f6rgu, til Reykjav\u00edkur 1937 og svo til \u00d3lafsv\u00edkur 1940 en \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00feri\u00f0ja systirin, Ragnhei\u00f0ur D\u00f3r\u00f3thea, b\u00e6st \u00ed h\u00f3pinn. \u00dear bj\u00f3 fj\u00f6lskyldan til \u00e1rsins 1947 en \u00fe\u00e1 fluttu \u00feau til K\u00f3pavogs og voru me\u00f0al frumbyggja b\u00e6jarins. Bj\u00f6rg bj\u00f3 s\u00ed\u00f0an alla t\u00ed\u00f0 \u00ed K\u00f3pavogi og lengst af \u00e1 Digranesvegi 64, s\u00ed\u00f0ar \u00e1 sama vegi \u00ed h\u00fasi nr. 20, \u00fe\u00e1 hj\u00e1 syni s\u00ednum, Sverri, og lauk svo \u00e6vid\u00f6gum s\u00ednum \u00e1 Hrafnistu \u00ed K\u00f3pavogi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg stunda\u00f0i n\u00e1m vi\u00f0 H\u00e9ra\u00f0ssk\u00f3lann \u00e1 Laugarvatni og ger\u00f0ist s\u00ed\u00f0an verslunarstj\u00f3ri fram til \u00e1rsins 1969. \u00c1ri\u00f0 1971 f\u00e9kk h\u00fan l\u00f6ggildingu sem fiskimatsma\u00f0ur og h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 \u00datger\u00f0arf\u00e9laginu Bar\u00f0anum \u00ed K\u00f3pavogi og vann \u00fear sem sl\u00edk og sem verkstj\u00f3ri \u00ed 18 \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg giftist \u00c1rmanni J. L\u00e1russyni, gl\u00edmukappa og byggingaverkamanni, f. 15. mars 1932, d. 14. n\u00f3vember 2012. Foreldrar hans voru L\u00e1rus Sal\u00f3monsson, f. 11. september 1905, d. 24. mars 1987 og Krist\u00edn G\u00edslad\u00f3ttir, f. 18. j\u00fan\u00ed 1908, d. 20. apr\u00edl 1983.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Bjargar og \u00c1rmanns eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sverrir Gaukur, f. 9. febr\u00faar 1952<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Helga Ragna \u00c1rmannsd\u00f3ttir, f. 9. apr\u00edl 1955.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eiginma\u00f0ur Helgu var P\u00e1ll Eyvindsson, f. 4. J\u00fal\u00ed 1951, d. 29. Ma\u00ed 2015. B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur, f. 17. Mars 1977. Eiginma\u00f0ur hennar var Benjam\u00edn Ingi B\u00f6\u00f0varsson og \u00feeirra b\u00f6rn eru L\u00fakas P\u00e1ll og El\u00edas Logi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) \u00c1rmann Jakob, f. 28. Febr\u00faar 1980. Eiginkona hans er \u00c1slaug Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir og \u00feeirra b\u00f6rn eru Jakob Dagur, Arney Helga og Rakel Birta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3) Sverrir Gaukur, f. 5. apr\u00edl 1981, d. 5. n\u00f3v. 2018.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6mmubarn og nafna Bjargar rifjar upp \u00e6vi \u00f6mmu og segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00deegar \u00e9g var unglingur og vi\u00f0 m\u00f6rg hver \u00e1 ungd\u00f3ms\u00e1runum voru amma og afi einmitt \u00ed fararbroddi fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Kefas, sem var \u00fe\u00e1 \u00e1 Dalveginum \u00ed K\u00f3pavogi, leig\u00f0i l\u00edka ne\u00f0ri h\u00e6\u00f0ina \u00ed h\u00fasinu sem vi\u00f0 vorum \u00ed til a\u00f0 b\u00faa til a\u00f0st\u00f6\u00f0u fyrir okkur. \u00deetta var\u00f0 svo samkomusta\u00f0ur ungs f\u00f3lks v\u00ed\u00f0a a\u00f0 \u00far fr\u00edkirkjunum og \u00fearna voru alls konar teiti og upp\u00e1komur. H\u00fan ger\u00f0i \u00feetta, &#8211; skapa\u00f0i a\u00f0st\u00e6\u00f0ur fyrir f\u00f3lk til a\u00f0 dafna. Ger\u00f0i \u00feetta me\u00f0 t\u00f3nlistarstarfi\u00f0 \u00ed kirkjunni l\u00edka og margt fleira.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan stara\u00f0i um t\u00edma sem verkstj\u00f3ri \u00ed Bar\u00f0anum \u00ed K\u00f3pavogi sem var fiskvinnsla og svo var h\u00fan einnig verkstj\u00f3ri \u00ed unglingavinnunni \u00ed b\u00e6num. H\u00fan skipulag\u00f0i vinnu unga f\u00f3lksins og t\u00f3k vi\u00f0 p\u00f6ntunum f\u00f3lks sem vildi f\u00e1 \u00feau til a\u00f0 snyrta gar\u00f0inn hj\u00e1 s\u00e9r. Sj\u00e1lf var h\u00fan me\u00f0 st\u00f3ran gar\u00f0 og haf\u00f0i yndi af r\u00e6ktun en var au\u00f0vita\u00f0 \u00ed fullri vinnu. Eitt sinn spur\u00f0i einn unglingurinn hvort h\u00fan g\u00e6ti teki\u00f0 einn gar\u00f0 \u00ed vi\u00f0b\u00f3t \u00feann daginn og h\u00fan svara\u00f0i: &#8220;\u00c6tli \u00fea\u00f0 ekki.&#8221; Svo m\u00e6tti h\u00f3purinn heim til hennar og snyrti allt og pr\u00fdddi!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg og \u00c1rmann unnu oft saman \u00ed s\u00edld og t\u00f3ku \u00feeim st\u00f6rfum sem \u00ed bo\u00f0i voru til a\u00f0 sj\u00e1 s\u00e9r og s\u00ednum farbor\u00f0a. \u00deau voru \u00f3l\u00edk en \u00ferosku\u00f0ust saman og \u00feetta h\u00fas, \u00fear sem vi\u00f0 kve\u00f0jun hana \u00ed dag, er vitnisbur\u00f0ur um k\u00e6rleika \u00feeirra til hvors annars og til l\u00edfsins og samfer\u00f0af\u00f3lksins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innskot . . . um \u00c1rmann og kirkjubygginguna . . . <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlistin \u00ed \u00feessari ath\u00f6fn tekur \u00f6ll mi\u00f0 af upp\u00e1haldsl\u00f6gum Bjargar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lagi\u00f0 \u201eH\u00e9r \u00e1 \u00e9g heima\u201c e\u00f0a K\u00f3pavogslagi\u00f0 var henni k\u00e6rt. \u00deegar Bj\u00f6rg flutti til K\u00f3pavogs gr\u00e9t h\u00fan \u00fev\u00ed hana langa\u00f0i ekki fr\u00e1 \u00d3lafsv\u00edk og leist ekkert \u00e1 K\u00f3pavog. Sannari K\u00f3pavgsb\u00faa var s\u00ed\u00f0ar erfitt a\u00f0 finna \u00fe\u00f3 alltaf hugsa\u00f0i h\u00fan hl\u00fdlega vestur. \u00cd textanum segir \u00ed fyrsta erindinu: \u201e\u00dear sem grasi\u00f0 gr\u00e6na brei\u00f0ir s\u00edna sl\u00e6\u00f0u yfir fold. \u00dear sem r\u00e6tur spinna \u00fer\u00e6\u00f0i og hjarta tengist mold. \u00dear sem b\u00e6rinn skartar f\u00f6grum h\u00f3pi drengja\u00b4og flj\u00f3\u00f0a, &#8211; h\u00e9r \u00e1 \u00e9g heima, \u00ed voginum g\u00f3\u00f0a\u201c. Svo er tala\u00f0 s\u00ed\u00f0ar um g\u00f3\u00f0a granna sem gla\u00f0ir heilsa hver \u00f6\u00f0rum og t\u00f3nlistin hlj\u00f3mar. \u00dea\u00f0 \u00e1 algj\u00f6rlega vi\u00f0 Bj\u00f6rgu. H\u00fan vildi n\u00e1unganum hjartanlega vel og t\u00f3nlistin \u00f3ma\u00f0i \u00ed kringum hana og \u00ed hjarta hennar alla daga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nafna hennar og barnabarn minnist j\u00f3lah\u00fasanna sem eru til sta\u00f0ar h\u00e9r \u00e1 svi\u00f0inu. Amma hennar nota\u00f0i \u00feau til a\u00f0 skreyta fyrir j\u00f3lin heima hj\u00e1 s\u00e9r en svo \u00feegar h\u00fan minnka\u00f0i vi\u00f0 sig gaf h\u00fan kirkjunni litla safni\u00f0 sitt sem sett er upp hver j\u00f3l. B\u00f6rnin hafa gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 sko\u00f0a \u00feennan undraheim sem minnir \u00e1 komu Jes\u00fa \u00ed \u00feennan heim en \u00fea\u00f0 er einmitt merking or\u00f0ins &#8220;a\u00f0venta&#8221; &#8211; koma, koma Drottins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3lah\u00fasin l\u00fdsa \u00fev\u00ed hvernig Bj\u00f6rg hugsa\u00f0i til kirkjunnar og barna. H\u00fan og \u00c1rmann voru miklir stu\u00f0ningsmenn sunnudagask\u00f3lans sem var \u00ed kirkjunni \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. Gu\u00f0r\u00fan Hl\u00edn fr\u00e6nka, og fyrrverandi eiginma\u00f0ur hennar, f\u00f3ru fyrir honum og st\u00f3\u00f0u sig virkilega vel. Sunnudagask\u00f3linn var ann\u00e1la\u00f0ur fyrir g\u00e6\u00f0i og gaman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eins og gengur og gerist g\u00e1tu ekki allir veri\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag sem vildu fylgja Bj\u00f6rgu til grafar en hafa \u00feess \u00ed sta\u00f0 sent kve\u00f0jur s\u00ednar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0ja er h\u00e9r fr\u00e1 Einari Atla J\u00fal\u00edussyni sem er a\u00f0 st\u00f6rfum nor\u00f0ur \u00ed landi og Krist\u00ednu \u00d6ldu J\u00fal\u00edusd\u00f3ttur, sem er \u00ed \u00fatl\u00f6ndum og fr\u00e1 m\u00e1gi Bjargar, J\u00fal\u00edusi Einarssyni, sem ekki g\u00e1tu veri\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag me\u00f0 hjartans \u00feakkl\u00e6ti fyrir allt og fyrir hl\u00fdjar og g\u00f3\u00f0ar minningar um einstaka konu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ennfremur k\u00e6r kve\u00f0ja fr\u00e1 Kanada. \u00c1rmann Jakob P\u00e1lsson, \u00c1slaug Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir, Jakob Dagur \u00c1rmannsson, Arney Helga \u00c1rmannsd\u00f3ttir og Rakel Birta \u00c1rmannsd\u00f3ttir, bi\u00f0ja \u00f6ll k\u00e6rlega a\u00f0 heilsa. Amma Bj\u00f6rg var einst\u00f6k kona sem ver\u00f0ur s\u00e1rt sakna\u00f0 en \u00e1 sama t\u00edma \u00fe\u00e1 viljum vi\u00f0 gle\u00f0jast yfir fallegu l\u00edfi sem var vel lifa\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0ja hefur borist fr\u00e1 R\u00fanari Bragasyni sem gat \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki veri\u00f0 vi\u00f0staddur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg \u00c1rnad\u00f3ttir er h\u00e9r kv\u00f6dd af m\u00f6rgum sem minnast hennar me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti og af hl\u00fdju. H\u00fan var v\u00e6n manneskja og \u00e1tti einl\u00e6ga tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0 og hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg yngri skrifa\u00f0i m\u00e9r um pr\u00e9dikunarst\u00f3linn h\u00e9r og t\u00f3nlistina og \u00e9g deili \u00fev\u00ed me\u00f0 ykkur:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pr\u00e9dikunarst\u00f3linn h\u00e9r \u00ed kirkjunni l\u00e9t Bj\u00f6rg sm\u00ed\u00f0a \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00feegar fyrsti v\u00edsirinn a\u00f0 Kefas var kominn en h\u00f3purinn var \u00fe\u00e1 farinn a\u00f0 hittast heima hj\u00e1 Bj\u00f6rgu og \u00c1rmanni. Bj\u00f6rg f\u00e9kk \u00c1rmann til a\u00f0 bera hann upp og ni\u00f0ur milli h\u00e6\u00f0a, ni\u00f0ur \u00ed stofu \u00feegar h\u00f3purinn hittist og svo aftur upp a\u00f0 \u00fev\u00ed loknu. Henni fannst Gu\u00f0 tala til s\u00edn um a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta sm\u00ed\u00f0a st\u00f3linn og hann yr\u00f0i t\u00e1kn um n\u00e6rveru Gu\u00f0s. Einhvers sta\u00f0ar myndi \u00feessi pr\u00e9dikunarst\u00f3ll standa a\u00f0 lokum. H\u00fan valdi ritningarversi\u00f0 sem letra\u00f0 er framan \u00e1 st\u00f3linn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan h\u00e9lt upp\u00e1 J\u00f3lal\u00f6g fr\u00e1 Eyfa \u2013 sem er giftur fr\u00e6nku \u00c1rmanns. Fj\u00f6lskyldunni \u00feykir notalegt a\u00f0 heyra g\u00f6mul og g\u00f3\u00f0 j\u00f3lal\u00f6g<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Syrpa af samkomul\u00f6gum \u00far Kefas \u2013 Bj\u00f6rg h\u00e9lt upp \u00e1 \u00f6ll \u00feessi l\u00f6g. H\u00fan kenndi okkur \u00feessi l\u00f6g \u201e\u00c9g vil syngja \u00fe\u00e9r gle\u00f0is\u00f6ng\u201c fyrir r\u00famlega 30 \u00e1rum og ger\u00f0i fallegar hreyfingar me\u00f0 laginu. Vi\u00f0 sj\u00e1um hana \u00ed anda syngja me\u00f0 okkur og gera \u00feessar hreyfingar. \u201eA\u00f0eins \u00ed \u00fe\u00e9r f\u00e6 \u00e9g lifa\u00f0\u201c var nokkurs konar einkunnarlag hennar. \u201eM\u00edn heitasta b\u00e6n er a\u00f0 sm\u00e6kka svo Kristur \u00fe\u00fa st\u00e6kkir \u00ed m\u00e9r\u201c H\u00fan vildi bara lifa Kristi og vera \u00fej\u00f3nn hans. \u00cd g\u00f6mlu Kefas hlj\u00f3msveitinni eru: Bj\u00f6rg yngri, Gu\u00f0r\u00fan Hl\u00edn (systurd\u00f3ttir Bjargar eldri), Steinunn (d\u00f3ttir Lud\u00fdar og Steina fr\u00e1 \u00d3lafsv\u00edk og \u00far Ungu f\u00f3lki) og svo Lov\u00edsa sem kom \u00e1samt fj\u00f6lskyldu sinni \u00ed Kefas \u00feegar h\u00fan var stelpa. Svo voru fleiri \u00ed hlj\u00f3msveitinni (m.a. \u00c1rmann Jakob sem er \u00ed Kanada, Palli sem er fallinn fr\u00e1, Benni sem er a\u00f0 mixa \u00ed dag og fleiri)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eTil konungsins\u201c er fysta lagi\u00f0 \u00e1 samnefndum geisladiski sem t\u00f3nlistarh\u00f3pur Kefas gaf \u00fat \u00e1ri\u00f0 2000. Bj\u00f6rg var algj\u00f6r bakhjarl \u00feessa h\u00f3ps og frumkv\u00f6\u00f0ull. H\u00fan kom t\u00f3nlistinni \u00ed Kefas af sta\u00f0. Spila\u00f0i sj\u00e1lf \u00e1 g\u00edtar og f\u00e9kk a\u00f0ra til a\u00f0 spila me\u00f0. Svo bakka\u00f0i h\u00fan sj\u00e1lf \u00fat en fann f\u00f3lki sta\u00f0 \u00ed hlj\u00f3msveitinni, hvatti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 spila ef \u00fea\u00f0 kunni eitthva\u00f0, hvatti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 l\u00e6ra \u00e1 viss hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri. H\u00fan keypti p\u00edan\u00f3, &#8211; seldi sitt eigi\u00f0 til a\u00f0 kaupa p\u00edan\u00f3 fyrir kirkjuna. Svo keypti kirkjan a\u00f0 hennar frumkv\u00e6\u00f0i \u00f6ll hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri sem \u00feurfti, hlj\u00f3\u00f0kerfi og anna\u00f0 sem \u00fe\u00f6rf var fyrir. H\u00fan skapa\u00f0i algj\u00f6rlega \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem \u00feurfti fyrir t\u00f3nlistina til a\u00f0 dafna. S\u00ed\u00f0ar l\u00e9t h\u00fan t\u00f3nlistarstafi\u00f0 \u00ed hendur Bjargar yngri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Diskurinn fr\u00e1 \u00e1rinu 2000 hlj\u00f3ma\u00f0i s\u00ed og \u00e6 \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 hennar \u00e1 Hrafnistu. S\u00ed\u00f0ustu dagana hennar var hann \u00e1 s\u00edsn\u00faningi. Starfsf\u00f3lki var fari\u00f0 a\u00f0 \u00feykja n\u00f3g um. \u00deegar b\u00fai\u00f0 var um hana hlj\u00f3ma\u00f0i hann og hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingar h\u00f6f\u00f0u or\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed vi\u00f0 Steinunni og Gu\u00f0r\u00fanu Hl\u00edn, sem h\u00e9r spila \u00ed dag, a\u00f0 \u00feessi diskur hef\u00f0i ekki stoppa\u00f0, -en \u00fe\u00e6r Steinunn og Gu\u00f0r\u00fan bu\u00f0ust til a\u00f0 hj\u00e1lpa til vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa um Bj\u00f6rgu a\u00f0 lokum \u2013 og \u00fe\u00e6r brostu vi\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00deetta erum vi\u00f0\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00deannig t\u00fdnist t\u00edminn\u201c Emil\u00edana er ein af elstu og bestu vinkonum Bjargar yngri \u00far vesturb\u00e6 K\u00f3pavogs. H\u00fan var oft me\u00f0 Bj\u00f6rgu me\u00f0 \u00f6mmu Bj\u00f6rgu. Bj\u00f6rg eldri f\u00f3r me\u00f0 \u00fe\u00e6r hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 a\u00f0 syngja \u00feegar \u00fe\u00e6r voru litlar. T.d. \u00e1 skemmtanir sem h\u00fan stj\u00f3rna\u00f0i \u00ed Sunnuhl\u00ed\u00f0, \u00e1 samkomur og upp\u00e1komur hj\u00e1 Ungu f\u00f3lki me\u00f0 hlutverki \u00fear sem \u00fe\u00e6r sungu og v\u00ed\u00f0ar. S\u00ed\u00f0asta leiks\u00fdningin sem Bj\u00f6rg f\u00f3r \u00e1 var s\u00fdningin um Ell\u00fdnVilhj\u00e1lms \u00ed Borgarleikh\u00fasinu. Sverrir bau\u00f0 henni og Helgu systur sinni me\u00f0 s\u00e9r og \u00ed f\u00f6r voru l\u00edka Bj\u00f6rg yngri og \u00c1slaug, kona \u00c1rmanns. Bj\u00f6rg eldri naut s\u00edn virkilega, klappa\u00f0i me\u00f0 og s\u00f6ng enda mj\u00f6g hrifin af Ragga Bjarna, Ell\u00fdju og Villa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eHre\u00f0avatnsvalsinn\u201c \u2013 var lag \u00c1rmanns og Bjargar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eFram \u00ed hei\u00f0anna r\u00f3\u201c &#8211; bara gamalt og gott lag sem \u00f6llum \u00feykir v\u00e6nt um og var Bj\u00f6rgu og \u00c1rmanni k\u00e6rt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eAlpar\u00f3s\u201c \u2013 Bj\u00f6rg h\u00e9lt miki\u00f0 upp \u00e1 S\u00f6ngvasveig og Bj\u00f6rg yngri horf\u00f0i oft \u00e1 myndina me\u00f0 henni \u00feegar h\u00fan var l\u00edtil. Henni \u00fe\u00f3tti v\u00e6nt um \u00feetta fallega lag og \u00feetta er eitt af s\u00ed\u00f0ustu l\u00f6gunum sem h\u00fan s\u00f6ng me\u00f0 Bj\u00f6rgu yngri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 og var \u00e6t\u00ed\u00f0i virk svo lengi sem kraftar hennar leyf\u00f0u:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan g\u00e6tti barna, prj\u00f3na\u00f0i lopapeysur og sendi til Amer\u00edku. T\u00fdndi ma\u00f0ka, oft me\u00f0 \u00c1rmanni og stundum barnab\u00f6rnunum og seldi vei\u00f0im\u00f6nnum. Mj\u00f6g mikil atorka var \u00ed henni. Vildi alltaf bjarga s\u00e9r sj\u00e1lf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd a\u00f0draganda j\u00f3la skipulag\u00f0i h\u00fan j\u00f3labasarar \u00ed Kefas \u00ed anda ungmennaf\u00e9laganna for\u00f0um, bj\u00f3 til j\u00f3laskreytingar og gaf m\u00f6rgum. \u00de\u00e1 \u00fatbj\u00f3 h\u00fan greinar og skreytingar \u00e1 lei\u00f0i og seldi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margs er a\u00f0 minnast og margt er h\u00e9r a\u00f0 \u00feakka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1stvinir Bjargar vilja \u00feakka \u00f6llum sem komu a\u00f0 \u00fatf\u00f6rinni, &#8211; t\u00f3nlistarf\u00f3lki, t\u00e6knimanni, \u00feeim sem hj\u00e1lpu\u00f0u til vi\u00f0 undirb\u00faning og hvers konar verkefni. F\u00f3lk hefur s\u00fdnt mikinn hl\u00fdhug. Gu\u00f0 blessi ykkur \u00f6ll fyrir \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stj\u00f3rn kirkjunnar vill einnig f\u00e1 a\u00f0 senda \u00feakkl\u00e6tisor\u00f0 me\u00f0 vir\u00f0ingu og vegsemd til Bjargar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg \u00c1rnad\u00f3ttir \u00e1tti marga g\u00f3\u00f0a vini. H\u00fan naut elsku og vir\u00f0ingar fyrir st\u00f6rf s\u00edn og frumkv\u00f6\u00f0ulshlutverk \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um. H\u00fan var dugna\u00f0arkona sem \u00e1tti s\u00edna drauma og \u00fer\u00e1r sem h\u00fan lag\u00f0i fram fyrir Drottinn \u00ed b\u00e6n og Hann svara\u00f0i b\u00e6num hennar \u00e1 margv\u00edslegan h\u00e1tt. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0 sem lifa\u00f0 er \u00ed tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmum segir m.a.: Fel Drottni vegu \u00fe\u00edna og treyst honum, hann mun vel fyrir sj\u00e1. (37:5)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum Bj\u00f6rgu \u00ed dag h\u00e9r \u00ed kirkjunni sem kennd er vi\u00f0 Kefas, klettinn, en Jes\u00fas gaf S\u00edmoni l\u00e6risveini s\u00ednum nafni\u00f0 Kefas, klettur, P\u00e9tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 byggja l\u00edfs sitt \u00e1 bjargi er eitt af m\u00f6rgum g\u00f3\u00f0um r\u00e1\u00f0um sem Jes\u00fas gaf okkur, a\u00f0 lifa \u00e1 g\u00f3\u00f0ri undirst\u00f6\u00f0u &#8211; \u00e1 kletti, kefasi, bjargi, p\u00e9tri &#8211; er g\u00e6fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0ventan minnir okkur \u00e1 Jes\u00fa sem kom \u00e1 j\u00f3lum og kemur alla daga \u00feegar vi\u00f0 leitum til hans. Hann er kletturinn sj\u00e1lfur e\u00f0a eins og segir \u00ed f\u00f6grum lofgj\u00f6r\u00f0ars\u00e1lmi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jes\u00fas er bjargi\u00f0 sem byggja m\u00e1 \u00e1,<br>bjargi\u00f0 sem byggja m\u00e1 \u00e1,<br>borgin sem \u00f3vinir sigra\u00f0 ei f\u00e1,<br>\u00f3vinir sigra\u00f0 ei f\u00e1.<br>Hann er frelsarinn, hann er frelsarinn,<br>hann er frelsarinn,<br>frelsari minn og \u00feinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Matt 7.24-25, lag: Birgir Sveinsson)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg \u00e1tti s\u00edna bj\u00f6rg \u00ed Kristi, s\u00edna bj\u00f6rgun og framt\u00ed\u00f0arvon, eil\u00edf\u00f0arvon. Vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum l\u00edf hennar og st\u00f6rf og felum hana himni Gu\u00f0s, elsku hans og eil\u00edf\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi Bj\u00f6rgu Ragnhei\u00f0i \u00c1rnad\u00f3ttur um alla eil\u00edf\u00f0, hann g\u00e6ti hennar og var\u00f0veiti hana og megi hann l\u00edka blessa \u00feig sem enn ert \u00e1 l\u00edfsveginum og gefa \u00fe\u00e9r g\u00f3\u00f0a heimkomu \u00ed himinn sinn, \u00ed fyllingu t\u00edmans. Gu\u00f0 blessi okkur \u00f6ll. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2537\" height=\"1665\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/12\/screenshot-2021-12-01-at-19.51.34.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2734\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2544\" height=\"1646\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/12\/fw.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2735\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Bj\u00f6rg Ragnhei\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir 1931-2021 Stofnandi tr\u00faf\u00e9lagsins Kefas \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fr\u00edkirkjunni Kefas 1. desember 2021 kl.13:00<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,333,409,542,548,584,640],"class_list":["post-2730","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-jesus","tag-ljosid","tag-sannleikur","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2730","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2730"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2730\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2730"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2730"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2730"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}