{"id":2717,"date":"2021-11-24T15:41:20","date_gmt":"2021-11-24T15:41:20","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/11\/24\/birna-unnur-valdimarsdottir-1936-2021\/"},"modified":"2021-11-24T15:41:20","modified_gmt":"2021-11-24T15:41:20","slug":"birna-unnur-valdimarsdottir-1936-2021","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2717","title":{"rendered":"+Birna Unnur Valdimarsd\u00f3ttir 1936-2021"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Birna Unnur Valdimarsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1936-2021<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og bankastarfsma\u00f0ur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Grafarvogskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mi\u00f0vikudaginn 24. n\u00f3vember 2021 kl. 13:00<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jar\u00f0sett \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1128\" height=\"1651\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/screenshot-2021-11-24-at-15.39.07.png?w=700\" alt=\"\" class=\"wp-image-2716\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una og lesi\u00f0 hana um lei\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Smelltu fyrst \u00e1 hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1na.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2021\/11\/birna-unnur-valdimarsdocc81ttir-1936-2021.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deakka s\u00f6nginn um A\u00f0alv\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hitti hana Birnu h\u00e9r \u00ed \u00feessari kirkju 3. september s.l. er h\u00fan fylgdi g\u00f3\u00f0um \u00cdsfir\u00f0ingi til grafar og n\u00fa hefur h\u00fan sj\u00e1lf kvatt \u00feetta jar\u00f0l\u00edf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhver spur\u00f0i hana n\u00fdlega: &#8220;Ertu komin me\u00f0 krabbamein&#8221; og h\u00fan svara\u00f0i \u00e1 sinn hispurslausa og sn\u00f6gga h\u00e1tt: &#8220;J\u00e1, \u00far einhverju ver\u00f0ur ma\u00f0ur a\u00f0 deyja.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var \u00fe\u00e1, eins og alltaf, me\u00f0 blik \u00ed augum, bros \u00e1 v\u00f6r og fr\u00e1 henni stafa\u00f0 birtu, gle\u00f0i og senn ytri- og innri fegur\u00f0. H\u00fan var falleg manneskja og \u00ed henni traustur kjarni enda komin af sterkum stofnum, brei\u00f0firskum og vestfirskum. \u00deegar Valdimar kom me\u00f0 sitt brei\u00f0firska konuefni nor\u00f0u \u00ed Efri-Mi\u00f0v\u00edk \u00ed A\u00f0alv\u00edk var h\u00fan kl\u00e6dd eins og heimsdama \u00ed kj\u00f3l og k\u00e1pu og \u00e1 rau\u00f0um sk\u00f3m.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 voru vi\u00f0brig\u00f0i a\u00f0 koma \u00far Brei\u00f0afir\u00f0inum \u00fear sem f\u00f3lk haf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 f\u00e6\u00f0u \u00ed \u00fev\u00ed mikla matarb\u00fari sem fj\u00f6r\u00f0urinn allur er me\u00f0 s\u00ednum \u00f3tal eyjum og skerjum og Flatey sem &#8220;h\u00f6fu\u00f0borg&#8221; me\u00f0 tengsl vi\u00f0 \u00fatl\u00f6nd \u00fev\u00ed \u00feanga\u00f0 komu reglulega erlend skip \u00e1 fyrri hluta li\u00f0innar aldar me\u00f0 varning. En \u00fea\u00f0 var dansa\u00f0 \u00e1 rau\u00f0um sk\u00f3m \u00ed Efri-Mi\u00f0v\u00edk \u00fear sem Valdimar sneri br\u00fa\u00f0i sinni \u00ed sveit sem kennd er vi\u00f0 A\u00f0alv\u00edk. J\u00e1, \u00fea\u00f0 var engin minnim\u00e1ttarkennd \u00ed nafninu, <strong>A\u00f0al<\/strong>-v\u00edk. En n\u00e6sti kaupsta\u00f0ur sem haf\u00f0i tengsl vi\u00f0 umheiminn eins og Flatey, var \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur, nafli alheimsins \u00ed hugum okkar hverra r\u00e6tur teygja sig \u00feanga\u00f0 \u00ed mold og mar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau Valdimar og Ingibj\u00f6rg eignu\u00f0ust 3 b\u00f6rn, tvo syni og eina d\u00f3ttur. \u00c9g man \u00feau \u00f6ll fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g \u00f3lst upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og margt f\u00f3lk hef \u00e9g hitt \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni sem \u00e1 \u00e6ttir s\u00ednar a\u00f0 rekja \u00ed A\u00f0alv\u00edk og nyrstu v\u00edkur Vestfjar\u00f0a. Samnefnari \u00feessa f\u00f3lks finnst m\u00e9r vera, dugna\u00f0ur og reisn. L\u00edfsbar\u00e1ttan, \u00fearna vi\u00f0 ysta haf, var h\u00f6r\u00f0 og \u00f3v\u00e6gin og f\u00f3lk upplif\u00f0i jafnvel svo k\u00f6ld sumur a\u00f0 engin uppskera kom \u00far kart\u00f6flug\u00f6r\u00f0um. Margur sj\u00f3ma\u00f0urinn hlaut hv\u00edld \u00ed votri gr\u00f6f. Afabr\u00f3\u00f0ir minn, El\u00edas \u00ed Nesi, handan vi\u00f0 hei\u00f0ina fyrir sunnan A\u00f0alv\u00edk, synir hans og d\u00e6tur bj\u00f6rgu\u00f0u 18 manns \u00ed 3 skipssk\u00f6\u00f0um, og hl\u00fa\u00f0u a\u00f0 \u00feeim \u00e1samt konu hans Engilr\u00e1\u00f0. \u00cd 3ja skipti\u00f0 voru engir karlmenn heima en d\u00e6turnar t\u00f3ku til sinna r\u00e1\u00f0a. \u00cd Sj\u00f3mannabla\u00f0i Vestmanneyja 1957 segir svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00de\u00e6r settu fram l\u00edtinn b\u00e1t, er \u00fe\u00e6r s\u00e1u atbur\u00f0inn \u00e1 v\u00edkinni, enda enginn mannafli til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a vi\u00f0 hinn st\u00e6rri. Sigling var h\u00e6ttuleg \u00e1 v\u00edkinni vegna sviptivindanna, sem g\u00e1tu, ef ekki var vel a\u00f0 g\u00e1\u00f0, hvolft fleytunni, \u00e1 sama h\u00e1tt og f\u00f3r um hinn b\u00e1tinn. \u00de\u00e1 var ennfremur h\u00e6tta, a\u00f0 skipbrotsmenn misstu stj\u00f3rn \u00e1 s\u00e9r, yr\u00f0u ofsahr\u00e6ddir e\u00f0a t\u00f6pu\u00f0u d\u00f3mgreind sinni \u00e1 annan h\u00e1tt. En \u00fe\u00e1 er mikil h\u00e6tta \u00e1 fer\u00f0um, \u00ed \u00fev\u00ed ve\u00f0ri, sem \u00fe\u00e1 var \u00fearna, m\u00e1tti ekki halla b\u00e1tnum. Gripu \u00fe\u00e6r systur \u00fe\u00e1 til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 l\u00e1ta skipbrotsmenn hanga \u00e1 bor\u00f0stokkunum, tvo hvoru megin. R\u00e9ru \u00fe\u00e6r \u00feannig til lands og var \u00feeim \u00f6llum borgi\u00f0. Fengu \u00feeir hinar hl\u00fdlegustu vi\u00f0t\u00f6kur heima \u00ed Nesi.&#8221; . . . &#8220;\u00de\u00e6r systur, J\u00f3n\u00edna og El\u00edsa, voru s\u00e6mdar ver\u00f0launum \u00far hetjusj\u00f3\u00f0i Carnegies, a\u00f0 upph\u00e6\u00f0 300 kr\u00f3num, sem a\u00f0 v\u00edsu var talsvert f\u00e9 \u00e1 \u00e1runum fyrir str\u00ed\u00f0, en a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti hefur \u00feessari fj\u00f6lskyldu ekki veri\u00f0 s\u00fdnd nein vir\u00f0ing af opinberri h\u00e1lfu.&#8221; (http:\/\/www.heimaslod.is\/index.php\/Sj\u00f3mannadagsbla\u00f0_Vestmannaeyja_1957\/_\u00deau_bj\u00f6rgu\u00f0u_18_mannsl%C3%ADfum)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi l\u00fdsing g\u00e6ti eins \u00e1tt vi\u00f0 um f\u00f3lki\u00f0 \u00ed A\u00f0alv\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 El\u00edsa var kona S\u00edmonar Helgasonar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i sem \u00e9g tel, a\u00f0 m\u00f6rg ykkar muni\u00f0 sem \u00e1 mig hl\u00fd\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Li\u00f0in \u00f6ld var \u00f6ld breytinganna miklu. V\u00e9lar komu \u00ed b\u00e1ta \u00ed byrjun aldarinnar og s\u00fa fyrsta \u00ed \u00edsfirskan b\u00e1t. En t\u00e6knin var\u00f0 a\u00f0 hluta til \u00feess valdandi \u00e1samt n\u00fdjum atvinnut\u00e6kif\u00e6rum \u00ed kaupst\u00f6\u00f0um landsins, a\u00f0 f\u00f3lk yfirgaf har\u00f0b\u00fdlar v\u00edkur og voga \u00e1 nor\u00f0anver\u00f0um Vestfj\u00f6r\u00f0um og freista\u00f0i g\u00e6funnar \u00e1 \u00f6\u00f0rum mi\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um aldir hefur f\u00f3lk veri\u00f0 \u00e1 fer\u00f0 \u00ed leit a\u00f0 betri l\u00edfskj\u00f6rum. Ein \u00feekktasta sl\u00edk saga er sagan um \u00cdsraelsmenn er \u00feeir yfirg\u00e1fu Egyptaland. \u00deeir flutningar eru oftast kalla\u00f0ir Ex\u00f3dus, brottf\u00f6rin e\u00f0a \u00fatgangan. \u00dea\u00f0 \u00fearf sterk bein til a\u00f0 fara, til a\u00f0 ve\u00f0ja \u00e1 n\u00fdja tilveru. F\u00f3lki\u00f0 sem flutti til Vesturheims fyrir r\u00famum hundra\u00f0 \u00e1rum freista\u00f0i g\u00e6funnar og f\u00f3r, lag\u00f0i a\u00f0 baki land og umhverfi sem \u00fev\u00ed var k\u00e6rt. Fl\u00f3ttamenn, sem flust hafa til Evr\u00f3pu \u00e1 li\u00f0num \u00e1ratugum og eru enn \u00e1 lei\u00f0 til &#8220;fyrirheitnalandsins&#8221; eins og \u00cdsraelsmenn for\u00f0um, leitandi betri kjara, leitandi n\u00fdrra t\u00e6kif\u00e6ra. \u00deetta er saga mannkyns. Norsku v\u00edkingarnir, sem komu vi\u00f0 \u00e1 Bretlandseyjum og t\u00f3ku me\u00f0 s\u00e9r kvonfang, \u00fer\u00e6la og amb\u00e1ttir og settust a\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi, voru \u00ed s\u00f6mu erindagj\u00f6r\u00f0um og fl\u00f3ttamenn n\u00fat\u00edmans og \u00e6vint\u00fdraf\u00f3lk yfirleitt. Vi\u00f0 leitum \u00fat, lengra, h\u00e6rra og \u00fer\u00e1um betra l\u00edf. Og s\u00fa \u00fer\u00e1 n\u00e6r \u00fat yfir j\u00f6r\u00f0 og haf. H\u00fan n\u00e6r l\u00edka til himinsins \u00fev\u00ed vi\u00f0 s\u00e6ttum okkur ekki vi\u00f0 a\u00f0 jar\u00f0l\u00edfi s\u00e9 hi\u00f0 eina sem b\u00ed\u00f0ur okkar. Vonin um eil\u00edft l\u00edf b\u00fdr \u00ed brj\u00f3stum okkar. Hva\u00f0 tekur vi\u00f0? er spurn \u00ed s\u00e9rhverju mannsins hjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna Unnur Valdimarsd\u00f3ttir f\u00e6ddist 28. febr\u00faar 1936 \u00ed Efri-Mi\u00f0v\u00edk \u00ed A\u00f0alv\u00edk \u00ed Sl\u00e9ttuhreppi, Nor\u00f0ur \u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslu. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 L\u00edknardeild Landssp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi eftir stutta bar\u00e1ttu vi\u00f0 krabbamein. H\u00fan sag\u00f0i nokkrum d\u00f6gum fyrir anl\u00e1t sitt: &#8220;\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 deyja um helgina?&#8221; Og \u00fea\u00f0 var\u00f0. H\u00fan l\u00e9st sunnudaginn 14. n\u00f3vember 2021 \u00e1 f\u00e6\u00f0ingardegi f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. H\u00fan var v\u00f6n a\u00f0 segja hlutina umb\u00fa\u00f0alaust og me\u00f0 hugrekki \u00ed hjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hennar voru Valdimar \u00deorbergsson f. 1906 d. 2001 og Ingibj\u00f6rg Gu\u00f0r\u00fan Bjarnad\u00f3ttir f.1908 d.2002. \u00deau n\u00e1\u00f0u b\u00e6\u00f0i h\u00e1um aldri og \u00e1ttu saman gott l\u00edf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna var yngst \u00feriggja systkina. Br\u00e6\u00f0ur hennar eru H\u00e9\u00f0inn Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 f.1933 d.2008 og Birgir Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 f.1934. Stutt var \u00e1 milli \u00feeirra systkina. \u00d6ll f\u00e6dd \u00e1 4. \u00e1ratugi li\u00f0innar aldar. Valdimar var lengi sj\u00f3ma\u00f0ur og \u00f6ll fengu b\u00f6rnin millinafn tengt sj\u00f3num: synirnir Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og d\u00f3ttirin Unnur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekkert var sj\u00f3nvarpi\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 daga og \u00fatvarpi\u00f0 kom ekki fyrr en 1930 og \u00fatv\u00f6rpin voru me\u00f0 rafhl\u00f6\u00f0u sem var\u00f0 a\u00f0 senda \u00ed kaupsta\u00f0inn e\u00f0a alla lei\u00f0 til Reykjav\u00edkur til a\u00f0 l\u00e1ta hla\u00f0a \u00feau. \u00de\u00e1 gilti m\u00e1lt\u00e6ki\u00f0: &#8220;Ma\u00f0ur er manns gaman.&#8221; B\u00f6rnin \u00ed Efri-Mi\u00f0v\u00edk ur\u00f0u a\u00f0 hafa ofan af fyrir s\u00e9r sj\u00e1lf, syngja saman og segja s\u00f6gur og oft voru draugas\u00f6gur efst \u00e1 vins\u00e6ldalistanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00dea\u00f0 eru erfi\u00f0ir t\u00edmar, \u00fea\u00f0 er atvinnu\u00feref&#8221;, orti N\u00f3blessk\u00e1ldi\u00f0 s\u00ed\u00f0ar. \u00c1ri\u00f0 1929 skall kreppan \u00e1 \u00e1 \u00cdslandi og \u00e1ri\u00f0 1939 h\u00f3fst seinni heimsstyrj\u00f6ldin. \u00dea\u00f0 voru r\u00f3stur \u00ed Evr\u00f3pu og blikur \u00e1 lofti \u00feennan 4. \u00e1ratug aldarinnar \u00feegar Birna og br\u00e6\u00f0ur hennar f\u00e6ddust. En l\u00edfi\u00f0 heldur \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1fram. F\u00f3lk lifir og deyr \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum, ver\u00f0ur \u00e1stfangi\u00f0 og eignast b\u00f6rn. Og svo kom fri\u00f0art\u00edmi og \u00cdsland t\u00e6kif\u00e6ranna var\u00f0 til \u00e1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum og eftir \u00feau.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna var mikill og stoltur A\u00f0alv\u00edkingur\/Sl\u00e9ttuhreppingur og reyndi a\u00f0 komast \u00ed allar messufer\u00f0ir sem farnar voru \u00ed kirkjuna \u00e1 Sta\u00f0 \u00e1 S\u00e6b\u00f3li \u00ed j\u00fani\/j\u00fal\u00ed hvert \u00e1r. \u00dear s\u00f6ng h\u00fan me\u00f0 Sl\u00e6ttuhreppsk\u00f3rnum. Og ekki var gle\u00f0in minni e\u00f0a fj\u00f6ri\u00f0 \u00feegar sami k\u00f3r \u00e6f\u00f0i fyrir hi\u00f0 \u00e1rlega \u00feorrabl\u00f3t.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna giftist Hei\u00f0ari Gu\u00f0mundssyni fr\u00e1 Bolungarv\u00edk 1956. B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a) Gu\u00f0mundur R\u00fanar, sagnfr\u00e6\u00f0ingur, f. 1955, giftur Birnu Bj\u00f6rk Sigur\u00f0ard\u00f3ttur f. 1957. \u00deau eiga tv\u00f6 b\u00f6rn og \u00ferj\u00fa barnab\u00f6rn;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b) Ingibj\u00f6rg Gu\u00f0r\u00fan, leiksk\u00f3lakennari, f.1957, gift J\u00f3ni G. \u00c1rnasyni f.1962. H\u00fan \u00e1 eitt barn og \u00ferj\u00fa barnab\u00f6rn;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">c) \u00de\u00f3rn\u00fd Mar\u00eda, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur, f.1961, gift Halld\u00f3ri \u00de\u00f3r\u00f3lfssyni f.1957. \u00deau eiga fj\u00f6gur b\u00f6rn og tv\u00f6 barnab\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna \u00f3lst upp \u00ed A\u00f0alv\u00edk til \u00e1rsins 1947 \u00feegar fj\u00f6lskyldan fluttist til \u00cdsafjar\u00f0ar, \u00fe\u00e1 11 \u00e1ra. H\u00fan gekk \u00ed Barnask\u00f3la og Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la \u00cdsafjar\u00f0ar. H\u00fan vann \u00fdmis st\u00f6rf, svo sem \u00ed fiskvinnslu, var kaupakona \u00ed sveit og vi\u00f0 verslun. Lengst af starfa\u00f0i h\u00fan sem gjaldkeri vi\u00f0 \u00fatib\u00fa Landsbanka \u00cdslands \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og vi\u00f0 Vesturb\u00e6jar\u00fatib\u00fai\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Birna var or\u00f0in unglingur kom pabbi eitt sinn \u00far siglingu og haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r tv\u00e6r k\u00e1pur \u00e1 d\u00f3tturina. Einkad\u00f3ttirin var\u00f0 a\u00f0 vera f\u00edn og flott.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 rifja\u00f0ist upp fyrir m\u00e9r er b\u00f6rnin hennar s\u00f6g\u00f0u m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed er h\u00fan starfa\u00f0i \u00ed snyrtiv\u00f6rub\u00fa\u00f0inni Straumur \u00ed kjallara h\u00fassins hans El\u00edasar P\u00e1lssonar \u00fear sem Flugf\u00e9lagi\u00f0 var me\u00f0 afgrei\u00f0slu \u00e1 jar\u00f0h\u00e6\u00f0. \u00cd Straumi seldu \u00fe\u00e6r \u00daffa Konn, Birna og fleiri, franskar snyrtiv\u00f6rur sem sl\u00f3gu \u00ed gegn \u00e1 \u00cdslandi upp\u00far 1960. Um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a franskt v\u00f6rumerki (kannski Orlane) og \u00edsfirskar konur streymdu \u00ed b\u00fa\u00f0ina enda h\u00f6f\u00f0u afgrei\u00f0slukonurnar fengi\u00f0 s\u00e9rstaka \u00fej\u00e1lfun og tils\u00f6gn \u00ed s\u00f6lumennsku \u00feessarar undrav\u00f6ru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og konurnar keyptu og keyptu, fylltu snyrtisk\u00e1pinn heima me\u00f0 \u00f6llum litum af meiki, varalitum og naglalakki. Og vinkonur d\u00e6tra Birnu komu \u00ed heims\u00f3kn til a\u00f0 sj\u00e1 allar prufurnar \u00ed snyrtisk\u00e1pnum hennar. \u00cdsfirskar konur \u00e1ttu sumar meira litaval en m\u00e1lararnir g\u00e1tu blanda\u00f0 \u00ed M\u00e1lningav\u00f6ruverslun Gu\u00f0mundar S\u00e6mundssonar. B\u00e6rin beinl\u00ednis breytti um lit \u00feegar \u00edsfirskar konur h\u00f6f\u00f0u meika\u00f0 sig a\u00f0 morgni. Og franskur ilmur sveif yfir og inni \u00ed h\u00fasum, yfir fir\u00f0i og fj\u00f6llum. Og \u00feegar st\u00falkurnar vi\u00f0 beinhreinsibor\u00f0in \u00ed frystuh\u00fasunum t\u00f3ku af s\u00e9r g\u00famm\u00edhanskana a\u00f0 loknum vinnudegi settust \u00fe\u00e6r ni\u00f0ur, v\u00f6ldu lit, og l\u00f6kku\u00f0u neglurnar \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00e6r f\u00f3ru \u00e1 r\u00fantinn e\u00f0a helgarballi\u00f0 \u00e1 Upps\u00f6lum a\u00f0 dansa vi\u00f0 dynjandi t\u00f3nlist Villa Valla e\u00f0a BG. Haldin voru meik-n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed G\u00fatt\u00f3 og ein fr\u00fain sem tekin var upp \u00e1 svi\u00f0 og snyrt til s\u00fdnis svaf svo me\u00f0 allt meiki\u00f0 og dreymdi fallega enda miki\u00f0 fyrir allt sem var &#8220;smart og lekkert&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hringdi vestur \u00ed hana Geir\u00fer\u00fa\u00f0i Charlesd\u00f3ttur til a\u00f0 rifja upp \u00feessar minningar m\u00ednar og f\u00e1 \u00fe\u00e6r sta\u00f0festar. H\u00fan og Birna voru tryggar vinkonur og sendir h\u00fan sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0ju til fj\u00f6lskyldunnar og \u00feakkar Birnu \u00e1ralanga vin\u00e1ttu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna og Hei\u00f0ar skildu&nbsp;\u00e1ri\u00f0 1995 eftir um \u00fea\u00f0 bil 40 \u00e1ra hj\u00f3naband.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Snj\u00f3aveturinn 1994\/95 var Birna miki\u00f0 ein \u00e1 Hjallaveginum og \u00fea\u00f0 var n\u00e6stum fullt starf a\u00f0 moka snj\u00f3 og komast um, ve\u00f0ur voru h\u00f6r\u00f0 og skilna\u00f0urinn miki\u00f0 \u00e1fall. Snj\u00f3fl\u00f3\u00f0 f\u00e9ll \u00ed S\u00fa\u00f0av\u00edk \u00ed jan\u00faar 1995.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um hausti\u00f0 settist h\u00fan upp\u00ed Volv\u00f3inn sinn og \u00f3k su\u00f0ur. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00e9ll anna\u00f0 mannsk\u00e6tt snj\u00f3fl\u00f3\u00f0 \u00e1 Flateyri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan kom s\u00e9r fyrir \u00ed Vesturb\u00e6num og var \u00fear um \u00e1rabil og flutti svo \u00ed Hraunb\u00e6inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Flj\u00f3tlega eftir flutning til borgarinnar kynntist h\u00fan Mar\u00eds Gilsfj\u00f6r\u00f0 Mar\u00edssyni, fyrrverandi kaupmanni, sem reyndist henni&nbsp;traustur og&nbsp;g\u00f3\u00f0ur vinur \u00ed bl\u00ed\u00f0u og str\u00ed\u00f0u s\u00ed\u00f0ustu 25 \u00e1rin. \u00deau \u00e1ttu saman g\u00f3\u00f0a daga og fer\u00f0u\u00f0ust v\u00ed\u00f0a saman og nutu l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var hvers manns huglj\u00fafi og jafnan hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar, var glettin \u00ed tilsv\u00f6rum og flj\u00f3t a\u00f0 svara fyrir sig me\u00f0 sinni s\u00e9rst\u00f6ku k\u00edmni. Einu sinni var sagt vi\u00f0 hana \u00ed veislu: \u201cAf hverju er sonur ykkar svona \u00f3l\u00edkur ykkur hj\u00f3nunum\u201d &#8211; og \u00fe\u00e1 svara\u00f0i h\u00fan a\u00f0 brag\u00f0i: \u201c\u00dea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 hann er svo l\u00edkur f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum!\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem unglingur starfa\u00f0i h\u00fan \u00ed sk\u00e1tahreyfingunni. H\u00fan haf\u00f0i yndi af s\u00f6ng og dansi, fer\u00f0al\u00f6gum og lestri g\u00f3\u00f0ra b\u00f3ka. H\u00fan s\u00f6ng me\u00f0 Sunnuk\u00f3rnum og Kirkjuk\u00f3r \u00cdsafjar\u00f0arkirkju til fj\u00f6lda \u00e1ra, var \u00ed kvennf\u00e9laginu Hl\u00edf og var ein af stofnendum Oddfellowst\u00fakunnar \u00de\u00f3reyjar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og starfa\u00f0i einnig \u00ed st\u00fakunni Soff\u00edu \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan s\u00f6ng m.a. inn \u00e1 pl\u00f6tu me\u00f0 Sunnuk\u00f3rnum og f\u00f3r \u00ed s\u00f6ngfer\u00f0 til Noregs me\u00f0 Gullfossi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna var gl\u00e6sileg kona. \u00c9g man hana \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i en kynntist henni svo betur h\u00e9r sy\u00f0ra, \u00ed bankanum vi\u00f0 Hagatorg, r\u00e9tt hj\u00e1 Neskirkju \u00fear sem \u00e9g starfa\u00f0i \u00ed 15 \u00e1r. H\u00fan t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed dagskr\u00e1 safna\u00f0arins einkum starfi eldri borgara eftir a\u00f0 h\u00fan l\u00e9t af st\u00f6rfum. H\u00fan kom \u00ed \u00cdsfir\u00f0ingamessurnar og s\u00f6ng gjarnan \u00ed k\u00f3rnum sem leiddi messus\u00f6ngin og svo var h\u00fan um hr\u00ed\u00f0 \u00ed K\u00f3r eldri borgara \u00ed Neskirkju og svo hitti \u00e9g hana oft er h\u00fan fylgdi Vestfir\u00f0ingum til grafar h\u00e9r sy\u00f0ra. Og alltaf var h\u00fan eins, me\u00f0 brosi\u00f0 bl\u00edtt, hnarreist og fr\u00e1 henni stafa\u00f0i kraftur og gle\u00f0i. H\u00fan var \u00e6t\u00ed\u00f0 r\u00f6ggs\u00f6m og gekk hratt, &#8220;annars f\u00e6 \u00e9g \u00ed baki\u00f0!&#8221; sag\u00f0i h\u00fan. F\u00f3lki\u00f0 \u00far Efri-Mi\u00f0v\u00edk gekk alltaf hnarreist.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi veri\u00f0 svona sn\u00f6gg \u00ed tilsv\u00f6rum og hreinskiptin, var h\u00fan h\u00e6versk \u00e1 s\u00ednu heimili og \u00fear var jafnan allt \u00ed r\u00f6\u00f0 og reglu. H\u00fan vann fullan vinnudag en heimili\u00f0 galt \u00feess ekki. H\u00fan var skipul\u00f6g\u00f0 og henni f\u00e9ll aldrei verk \u00far hendi. H\u00fan hugsa\u00f0i vel um b\u00f6rnin s\u00edn og kenndi \u00feeim a\u00f0 lesa og l\u00e1na\u00f0i \u00feeim svo b\u00f3kasafnskorti\u00f0 sitt hj\u00e1 honum D\u00f3ra safnver\u00f0i svo \u00feau g\u00e6tu s\u00f3tt s\u00e9r lesefni a\u00f0 vild.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var traust og gla\u00f0lind, hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar og hamhleypa til allra verka. B\u00f6rnin minnast \u00feess er h\u00fan vann \u00ed bankanum a\u00f0 h\u00fan var b\u00fain a\u00f0 undirb\u00faa h\u00e1degismatinn n\u00e6sta dag kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur og allt var tilb\u00fai\u00f0 fyrir fj\u00f6lskylduna. S\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem fyrst kom heim \u00ed h\u00e1degi kveikti \u00e1 eldav\u00e9linni og Bing\u00f3! heitur matur \u00ed h\u00e1deginu ilma\u00f0i \u00ed eldh\u00fasinu. Heimili hennar var eins og 5-stj\u00f6rnu h\u00f3tel, s\u00f6g\u00f0u b\u00f6rnin. H\u00fan vann um hr\u00ed\u00f0 \u00ed snyrtiv\u00f6ruverslun eins og fyrr var geti\u00f0, svo hj\u00e1 Matth\u00edasi Bjarnasyni, \u00fe\u00e1 \u00ed Ess\u00f3 og loks \u00ed Landsbankanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 vakin og sofin yfir velfer\u00f0 barna sinna, barnabarna og \u00e6ttingja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birna setti sinn standard, var elegant, og lag\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 upp\u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 taka vel \u00e1 m\u00f3ti gestum. \u00d6mmubarn Birnu sag\u00f0i: &#8220;\u00dev\u00ed fleiri gestir, \u00feeim mun betur lei\u00f0 \u00f6mmu!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g flyt ykkur hl\u00fdjar kve\u00f0ju fr\u00e1 \u00f6mmustelpu, Stefan\u00edu Katr\u00ednu og Sharooz (sjaros) og sonum \u00feeira, Benjam\u00edn R\u00fanari og L\u00fakasi Vali, me\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir allt. Stefan\u00eda Katr\u00edn n\u00e1\u00f0i a\u00f0 heims\u00e6kja \u00f6mmu s\u00edna \u00e1 L\u00edknardeildinni n\u00fdlega til a\u00f0 kve\u00f0ja hana. Og amma sag\u00f0i vi\u00f0 hana: &#8220;\u00de\u00fa \u00e1tt a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins, mannsins \u00fe\u00edns og barnanna.&#8221; \u00dea\u00f0 voru s\u00ed\u00f0ustu or\u00f0 \u00f6mmu til hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gestrisni, elskulegheit, k\u00e6rleiksr\u00edkt vi\u00f0m\u00f3t, a\u00f0 m\u00e6ta samfer\u00f0af\u00f3lki s\u00ednu me\u00f0 gle\u00f0i \u00ed hjarta og ford\u00f3malaust, \u00e6tti a\u00f0 vera a\u00f0alsmerki allra manna, karla og kvenna. Vi\u00f0 erum eitt, sem mannkyn, og eigum okkur einn og sama uppruna. Og \u00ed okkur flestum b\u00fdr vitund og von um a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 st\u00e6rra og meira en vi\u00f0 upplifum h\u00e9r \u00ed okkar jar\u00f0nesku tilveru. Handanveran er okkur a\u00f0 mestu \u00f3kunn en \u00ed hjarta okkar b\u00fdr vitundin um hana. Hva\u00f0 tekur vi\u00f0? Gu\u00f0mundur sonur Birnu spur\u00f0i m\u00f6mmu s\u00edna \u00ed h\u00e1lfk\u00e6ringi: &#8220;Mamma, \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r \u00feegar \u00e9g kem yfir?&#8221; Og h\u00fan svara\u00f0i a\u00f0 brag\u00f0i: &#8220;J\u00e1, ef \u00e9g m\u00e1 vera a\u00f0 \u00fev\u00ed!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Biskup \u00cdslands, sem n\u00e1\u00f0i vel til \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld, var eitt sinn spur\u00f0ur \u00ed sj\u00f3varpsvi\u00f0tali: &#8220;Getur\u00f0u sagt okkur hva\u00f0 tekur vi\u00f0 eftir dau\u00f0ann?&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Nei,&#8221; svara\u00f0i biskupinn vitri, &#8220;\u00fea\u00f0 get \u00e9g ekki sagt, en \u00e9g get sagt \u00fe\u00e9r <em>hver<\/em> tekur vi\u00f0?&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heili okkar skilur ekki allt og hugsunin e\u00f0a skynjunin er v\u00ed\u00f0ar en \u00ed heilanum. Hjarta\u00f0 segir okkur \u00fdmislegt, \u00feessi vitund sem b\u00fdr \u00ed brj\u00f3sti okkar. Hjarta\u00f0 skilur k\u00e6rleikann en heilinn ekki, elskan ver\u00f0ur aldrei sett upp \u00ed Excel-skjali, en hjarta\u00f0 skynjar og skilur hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna, hjarta\u00f0 skilur og skynjar Gu\u00f0, sem er upphaf alls sem er og setti \u00feetta undragangverk af sta\u00f0 sem h\u00f3fst me\u00f0 Miklahvelli: &#8220;\u00de\u00e1 sag\u00f0i Gu\u00f0: Ver\u00f0i lj\u00f3s. Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 lj\u00f3s.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3si\u00f0 er upphaf alls l\u00edfs. L\u00edfi\u00f0 kvikna\u00f0i \u00e1 hafsbotni \u00fear sem eldur spratt \u00far sprungu og m\u00e6tti sj\u00f3 og frumefnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er undur og \u00fea\u00f0 er \u00ed hendi Gu\u00f0s. Hann er okkar &#8220;Efri-Mi\u00f0v\u00edk&#8221;, efsta mi\u00f0ja, kjarni og uppspretta alls sem er. Hann vakir yfir kaldri v\u00edk og hl\u00fdnandi j\u00f6r\u00f0 og mun gefa okkur vit og kjark til a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem \u00ed okkar valdi stendur til a\u00f0 b\u00e6ta l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0. Og svo b\u00ed\u00f0ur eil\u00edf\u00f0in okkar \u00ed skj\u00f3li hans sem allt elskar og engum bregst.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Birnu Unnar Valdimarsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig \u00e1 l\u00edfsins vegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2540\" height=\"1803\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/re-ucc81tfocc88r-birnu-fracc81-grafarvogskirkju-24.-nocc81vember-breyting-2.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2715\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2540\" height=\"1809\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/re-ucc81tfocc88r-birnu-fracc81-grafarvogskirkju-24.-nocc81vember-breyting.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2714\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Birna Unnur Valdimarsd\u00f3ttir 1936-2021 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og bankastarfsma\u00f0ur B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Grafarvogskirkju mi\u00f0vikudaginn 24. n\u00f3vember 2021 kl. 13:00 Jar\u00f0sett \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una og lesi\u00f0 hana um lei\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Smelltu fyrst \u00e1 hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1na. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,333,409,584,640],"class_list":["post-2717","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2717","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2717"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2717\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2717"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2717"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2717"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}