{"id":2705,"date":"2021-11-01T18:18:33","date_gmt":"2021-11-01T18:18:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/11\/01\/heida-johannsdottir-1972-2021\/"},"modified":"2021-11-01T18:18:33","modified_gmt":"2021-11-01T18:18:33","slug":"heida-johannsdottir-1972-2021","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2705","title":{"rendered":"+Hei\u00f0a J\u00f3hannsd\u00f3ttir 1972-2021"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1235\" height=\"1687\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/img_0891.jpg?w=750\" alt=\"\" class=\"wp-image-2704\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Hei\u00f0a J\u00f3hannsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1972-2021<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00f3kmennta-, kvikmynda- og menningarfr\u00e6\u00f0ingur, Bergssta\u00f0astr\u00e6ti 43, Reykjav\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk m\u00e1nudaginn 1. n\u00f3vember 2021 kl. 13:00. Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1  er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2021\/11\/heida-jocc81hannsdocc81ttir-1972-2021.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfssaga \u00fe\u00edn og m\u00edn, hvernig mun h\u00fan rekja sig fram og henni lj\u00faka? Hvernig ver\u00f0ur okkar minnst \u00feegar vi\u00f0 ver\u00f0um kv\u00f6dd hinsta sinn? Vi\u00f0 vitum \u00fea\u00f0 ekki, sem betur fer, en vonandi ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 jafn\u00feakkl\u00e1tt f\u00f3lk sem kve\u00f0ur mig og \u00feig og \u00ed dag kve\u00f0ur Hei\u00f0u J\u00f3hannsd\u00f3ttur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan f\u00f3r allt of snemma, l\u00edfssaga hennar var\u00f0 alltof stutt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var vel af Gu\u00f0i ger\u00f0, h\u00e6fileikar\u00edk og heillandi, vel menntu\u00f0 \u00e1 svi\u00f0i b\u00f3kmennta, kvikmynda og menningar, g\u00f3\u00f0vilju\u00f0, greinandi og gagnr\u00fdnin \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1tti vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 m\u00f6rgum erlendum tungum\u00e1lum er menningin k\u00f6llu\u00f0 k\u00falt\u00far og v\u00edsar \u00fear me\u00f0 \u00ed latneska or\u00f0i\u00f0 r\u00e6ktun. En \u00cdslendingar eru engum l\u00edkir og nota \u00feess vegna or\u00f0i\u00f0 menning sem v\u00edsar til \u00feess sem ma\u00f0urinn, konur og karlar, setja saman innan \u00f3l\u00edkra listgreina og gefa svo af s\u00e9r svo a\u00f0rir nj\u00f3ti. S\u00e1 sem \u00feetta h\u00fas er helga\u00f0 og reist til d\u00fdr\u00f0ar var kalla\u00f0ur Mannssonurinn, og menningin \u00fev\u00ed a\u00f0 kristnum skilningi \u00e1 r\u00e6tur s\u00ednar \u00ed honum og \u00feeirri \u00e1st \u00e1 \u00f6llu l\u00edfi og mannf\u00f3lki, sem hann s\u00fdndi \u00e1 svo einstakan h\u00e1tt me\u00f0an hann lif\u00f0i og starfa\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann naut \u00feess a\u00f0 vera samvistum vi\u00f0 f\u00f3lk \u00ed gle\u00f0i og sorg, naut \u00feess a\u00f0 sitja veislur og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed gle\u00f0skap.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edf Hei\u00f0u var allt of stutt en h\u00fan kom m\u00f6rgu \u00ed verk og ef \u00e9g l\u00edki \u00fev\u00ed vi\u00f0 kvikmynd \u00fe\u00e1 var l\u00edf hennar alls engin stuttmynd heldur mynd \u00ed fullri lengd sem hef\u00f0i svo au\u00f0vita\u00f0 geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0 ser\u00eda me\u00f0 yfirskriftinni, Hei\u00f0a II og III.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n menningar. Mannkyni\u00f0 hefur um aldir elska\u00f0 a\u00f0 heyra s\u00f6gur og \u00fea\u00f0 vir\u00f0ist vera svo a\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0 haldi mest upp\u00e1 s\u00f6gur sem falla a\u00f0 tilteknu sni\u00f0m\u00e1ti sem inniheldur \u00ferj\u00e1 li\u00f0i \u00ed sinni einf\u00f6ldustu mynd sem l\u00fdsa m\u00e6tti me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211;<strong>Upphaf<\/strong> \u00fear sem allt leikur \u00ed lyndi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211;<strong>Fl\u00e6kjustig<\/strong> \u00fear sem allt vir\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 fara \u00ed vaskinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211;<strong>Lausnin<\/strong> sem s\u00f6guhetjan og a\u00f0rir \u00fe\u00e1ttakendur nj\u00f3ta eftir \u00e6vint\u00fdralega vegfer\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til eru fl\u00f3knari \u00fatlistanir \u00e1 \u00feessu sama ferli. M\u00e1 \u00ed \u00fev\u00ed sambandi nefna b\u00f3kina The Hero&#8217;s Journey \u00fear sem h\u00f6fundurinn Joseph Campbell setur fram s\u00f6guferli \u00ed 12 li\u00f0um sem r\u00edmar \u00fe\u00f3 algj\u00f6rlega vi\u00f0 fyrrnefnda \u00fer\u00edskiptingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edan sem vi\u00f0 leitum til h\u00e9r \u00ed dag eftir huggun og v\u00edsd\u00f3mi var ritu\u00f0 \u00e1 nokkrum \u00f6ldum en h\u00fan geymir samt \u00feessa \u00fer\u00edskiptingu sem \u00e1 m\u00e1li gu\u00f0fr\u00e6\u00f0innar heitir Sk\u00f6pun, Fall og Endurlausn e\u00f0a m.\u00f6.o. Sk\u00f6pun, Hrun og Upprisa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hei\u00f0a var andlegar \u00feenkjandi, var \u00fea\u00f0 sem kannsi m\u00e6tti kalla spiritual. Hin andlegu gildi voru mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed menningars\u00fdn hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef n\u00fdlega hlusta\u00f0 \u00e1 marga fyrirlestra me\u00f0 breskum pr\u00f3fessor og raunv\u00edsindamanni, Rupert Sheldrake, um \u00fea\u00f0 sem hann kallar <em>pan psychism<\/em> og v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 hi\u00f0 andlega finnst mun v\u00ed\u00f0ar en margur heldur. Er hugur okkar bara \u00ed h\u00f6f\u00f0inu, \u00ed heilanum, e\u00f0a getur hugur okkar haft \u00e1hrif utan l\u00edkamans? Vi\u00f0 getum t.d. einnig hugsa\u00f0 me\u00f0 hjartanu, a.m.k. segjum vi\u00f0 stundumt: \u00c9g finna \u00fea\u00f0 \u00ed hjarta m\u00ednu. \u00deegar Je\u00fas gekk um og fann til me\u00f0 f\u00f3lki e\u00f0a kenndi \u00ed brj\u00f3sti um \u00fe\u00e1 v\u00edsar or\u00f0i\u00f0 um \u00fe\u00e1 tilfinningu \u00ed frumtexta N\u00fdja testamentisins til magans, til kvi\u00f0arins, e\u00f0a \u00feess sem \u00e1 ensku m\u00e6tti kalla <em>gut feeling<\/em>. Vi\u00f0 erum ekki bara v\u00e9lar, vi\u00f0 erum andlegar verur me\u00f0 andlega h\u00e6fileika og skynjun sem kemur okkur oft \u00e1 \u00f3vart og birtir n\u00fdjar v\u00edddir og a\u00f0rar hli\u00f0ar \u00e1 tilverunni sem voru okkar \u00e1\u00f0ur \u00f3kunnar. Vi\u00f0 f\u00e6\u00f0umst, lifum og deyjum \u00f6ll \u00ed fyllingu t\u00edmans. Hva\u00f0 vita hv\u00edtvo\u00f0unar um l\u00edfi\u00f0 me\u00f0an \u00feeir eru enn \u00ed m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i og hva\u00f0 vitum vi\u00f0 um \u00fea\u00f0 sem tekur vi\u00f0 eftir dau\u00f0ann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hei\u00f0a f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 9. apr\u00edl 1972. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum vi\u00f0 Hringbraut 18. okt\u00f3ber 2021. Fa\u00f0ir Hei\u00f0u var J\u00f3hann Ragnarsson l\u00e6knir, f. 10.07.1942, d. 17.12.2007. M\u00f3\u00f0ir hennar er Hanna Gunnarsd\u00f3ttir innanh\u00fassh\u00f6nnu\u00f0ur og myndlistarma\u00f0ur, f. 21.08.1942; maki Sigur\u00f0ur Stein\u00fe\u00f3rsson.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini Hei\u00f0u eru<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) Anna, f. 1969, eiginma\u00f0ur \u00c1str\u00e1\u00f0ur Eysteinsson;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) Magn\u00fas, f. 1976.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sonur Hei\u00f0u og fyrrverandi eiginmanns hennar, Bj\u00f6rns \u00de\u00f3rs Vilhj\u00e1lmssonar, er Magn\u00fas Kolbj\u00f6rn Bj\u00f6rnsson, f. 23.10.2009.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri fluttist Hei\u00f0a \u00e1samt fj\u00f6lskyldu sinni til Bandar\u00edkjanna \u00fear sem \u00feau bjuggu n\u00e6stu fimm \u00e1rin, lengst af \u00ed Cleveland, Ohio. 1978 fluttist fj\u00f6lskyldan heim. Hei\u00f0a gekk \u00ed Austurb\u00e6jarsk\u00f3la, nam klass\u00edskan g\u00edtarleik vi\u00f0 T\u00f3nsk\u00f3la Sigursveins og lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum vi\u00f0 Hamrahl\u00ed\u00f0 1992. \u00c1ri\u00f0 1997 lauk Hei\u00f0a BA-pr\u00f3fi \u00ed almennri b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, me\u00f0 \u00edslensku sem aukagrein. \u00c1ri\u00f0 2004 lauk h\u00fan MA- gr\u00e1\u00f0u \u00ed almennri b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 sama sk\u00f3la me\u00f0 s\u00e9rh\u00e6fingu \u00e1 svi\u00f0i kvikmyndafr\u00e6\u00f0i og menningarfr\u00e6\u00f0i. Lokaritger\u00f0 hennar fjalla\u00f0i um margv\u00edsleg tengsl n\u00fat\u00edmast\u00f3rborgarinnar og kvikmynda. \u00c1 \u00e1runum 1998-2008 starfa\u00f0i h\u00fan sem kvikmyndagagnr\u00fdnandi og menningarbla\u00f0ama\u00f0ur \u00e1 Morgunbla\u00f0inu, en var auk \u00feess stundakennari \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lastigi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfsreynsla hennar og v\u00ed\u00f0ss\u00fdni m\u00f3ta\u00f0ist af n\u00e1ms- og starfsdv\u00f6lum erlendis m.a. \u00ed \u00de\u00fdskalandi, Danm\u00f6rku og Noregi, en einnig bjuggu \u00feau Bj\u00f6rn um nokkurt skei\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 2006 h\u00f3f Hei\u00f0a doktorsn\u00e1m \u00ed kvikmyndafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 University College London (UCL) \u00ed Lund\u00fanum \u00e1 doktorsn\u00e1msstyrk og Chevening-styrk, auk \u00feess sem h\u00fan hlaut tveggja \u00e1ra styrk UCL Graduate School til kvikmyndaranns\u00f3kna vi\u00f0 British Film Institute National Archive. H\u00fan sinnti einnig stundakennslu vi\u00f0 UCL me\u00f0fram n\u00e1minu, h\u00e9lt fyrirlestra \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnum og birti \u00fdmsar fr\u00e6\u00f0igreinar \u00ed t\u00edmaritum og b\u00f3kum. \u00cd n\u00e1minu s\u00e9rh\u00e6f\u00f0i h\u00fan sig \u00ed kvikmyndaranns\u00f3knum me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 menningarsagnfr\u00e6\u00f0ilega n\u00e1lgun og safnaranns\u00f3knir. \u00cd doktorsritger\u00f0inni \u201eWomen, Work and Urban Space in British Silent Cinema\u201c fjallar h\u00fan um breska kvikmyndager\u00f0 \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum, leiknar kvikmyndir sem og fr\u00e6\u00f0slumyndir, og hvernig \u00fe\u00e6r breg\u00f0ast vi\u00f0 togstreitu \u00ed tengslum vi\u00f0 aukin umsvif kvenna \u00ed almannar\u00fdminu og \u00ed vinnu- og neyslumenningu n\u00fat\u00edmans. Doktorsritger\u00f0in var langt komin en haf\u00f0i \u00fe\u00f3 ekki veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 fram til varnar \u00feegar Hei\u00f0a l\u00e9st.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ratug, eftir a\u00f0 Hei\u00f0a fluttist aftur til \u00cdslands, kenndi h\u00fan \u00fdmis n\u00e1mskei\u00f0 um kvikmyndir, menningarfr\u00e6\u00f0i og menningarmi\u00f0lun vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, m.a. sem a\u00f0j\u00fankt 2015-2016. \u00c1ri\u00f0 2013 greindist h\u00fan me\u00f0 brj\u00f3stakrabbamein. H\u00fan t\u00f3k veikindunum af \u00e6\u00f0ruleysi og miklum andlegum styrk; bj\u00f3 s\u00e9r og syni s\u00ednum hl\u00fdlegt heimili vi\u00f0 Bergsta\u00f0astr\u00e6ti \u00ed Reykjav\u00edk, naut \u00feess a\u00f0 fer\u00f0ast me\u00f0 fj\u00f6lskyldu sinni og vinum, og sinnti \u00fdmsum st\u00f6rfum eftir f\u00f6ngum. Auk kennslunnar og yfirfer\u00f0ar lokaritger\u00f0a m\u00e1 \u00fear geta kvikmyndagagnr\u00fdni \u00ed Sj\u00f3nvarpi og setu \u00ed d\u00f3mnefnd fyrir al\u00fej\u00f3\u00f0lega kvikmyndah\u00e1t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo var \u00feessu frj\u00f3a og vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edka l\u00edfi skyndileg loki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er ekki sanngjarnt a\u00f0 m\u00f3\u00f0ir deyi fr\u00e1 12 \u00e1ra syni s\u00ednum, a\u00f0 m\u00f3\u00f0ir kve\u00f0ji d\u00f3ttur, systkini systur. Nei, \u00fea\u00f0 er ekki sanngjarnt. F\u00f3lk \u00e6tti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 deyja \u00ed r\u00e9ttri r\u00f6\u00f0 en \u00feannig er l\u00edfi\u00f0 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki nema \u00ed sumum tilfellum. L\u00edfi\u00f0 er ekki alltaf r\u00e9ttl\u00e1tt. Vi\u00f0 f\u00e6ddumst me\u00f0 harmkv\u00e6lum og \u00ferautum og m\u00e6ttum svo sk\u00e6ru lj\u00f3si dagsins \u00feegar f\u00e6\u00f0ingarveginum sleppti og hittum flest fyrir konu me\u00f0 starfsheiti\u00f0 LJ\u00d3Sm\u00f3\u00f0ir. Vi\u00f0 lifum \u00ed heimi lj\u00f3ssins og l\u00edfi\u00f0 kenndi okkur flj\u00f3tt a\u00f0 \u00fear eru l\u00edka skuggar og m\u00f3tl\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g r\u00e6ddi vi\u00f0 Magn\u00fas Kolbj\u00f6rn um m\u00f3urmissinn og sorgina eftir a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00e1tt stund yfir kistu m\u00f6mmu hans \u00ed Fossvoginum \u00e1samt pabba hans, \u00f6mmu og m\u00f3\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur. \u00c9g \u00e1tti vi\u00f0 hann einkasamtal til a\u00f0 kynnast honum betur og til a\u00f0 finna fleti \u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti \u00e9g g\u00e6ti kannski undirb\u00fai\u00f0 hann \u00f6gn undir framt\u00ed\u00f0ina. Hann s\u00fdndi miki\u00f0 hugrekki og \u00e6\u00f0ruleysi og \u00e9g spur\u00f0i hann um vini hans og f\u00e9lagslegt umhverfi og komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann \u00e1 g\u00f3\u00f0a vini, hefur m\u00f6rg \u00e1hugam\u00e1l og svo veit hann a\u00f0 fj\u00f6lskyldan stendur me\u00f0 honum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann flytur n\u00fa til pabba og konu hans \u00e1samt hundinum Dropa og kisurnar Brandur og Lana ver\u00f0a \u00fear l\u00edka. \u00c9g tala\u00f0i um hve gott s\u00e9 a\u00f0 eiga g\u00e6lud\u00fdr til a\u00f0 kn\u00fasa og hjala vi\u00f0 og tala um \u00e1hyggjur s\u00ednar og sorgir. Hann rifja\u00f0i upp skemmitlegar fer\u00f0 me\u00f0 m\u00f6mmu til \u00fatlanda og \u00feegar \u00feau voru saman \u00fati \u00ed sveit fyrir 3 \u00e1rum \u00ed 2 vikur og horf\u00f0u 5 sinnum \u00e1 Abba-myndina Mamma Mia. Hann spur\u00f0i mig varf\u00e6rnislega hvort l\u00f6g \u00far \u00feeirri kvikmynd yr\u00f0u spilu\u00f0 vi\u00f0 ath\u00f6fnina og \u00e9g sag\u00f0ist mundu reyna a\u00f0 koma \u00fev\u00ed \u00ed kring. \u00deess vegna f\u00e9kk hann &#8211; og vi\u00f0 \u00f6ll &#8211; sm\u00e1 Abba-t\u00f3nleika \u00e1 undan ath\u00f6fninni \u00feegar Steingr\u00edmur l\u00e9k syrpu af \u00feessari fallegu t\u00f3nlist \u00e1 orgeli\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g r\u00e6ddi vi\u00f0 hann um a\u00f0 sorgin k\u00e6mi oft fyrirvaralaust. Hann g\u00e6ti t.d. veri\u00f0 \u00e1 gangi \u00ed hverfinu heima og lag \u00far Mamma Mia hlj\u00f3ma\u00f0i \u00fat um glugga \u00ed n\u00e6sta h\u00fasi og \u00fe\u00e1 f\u00e6ru t\u00e1rin allt \u00ed einu a\u00f0 trilla ni\u00f0ur kinnarnar me\u00f0 ekkasogi \u00ed brj\u00f3sti og h\u00e1lsi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sorgin vitjar okkar oft \u00ed gegnum t\u00f3nlist e\u00f0a atvik sem minna \u00e1 l\u00e1tinn \u00e1stvin og svo ver\u00f0a \u00e1hrifin af \u00feessum upplifunum mildari me\u00f0 \u00e1runum \u00fev\u00ed vi\u00f0 l\u00e6rum a\u00f0 lifa me\u00f0 s\u00e1rsaukanum. Sorgin hverfur aldrei, s\u00e1rin kunna a\u00f0 gr\u00f3a en \u00f6rin sitja eftir. Sorgin \u00fdfist upp \u00e1 st\u00f3rum stundum l\u00edfsins, \u00e1 afm\u00e6lum, um j\u00f3l og p\u00e1ska, vi\u00f0 \u00fatskriftir og merk t\u00edmam\u00f3t. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur mamma bara til sta\u00f0ar \u00ed minningunni. E\u00f0a kannski l\u00edka einhvern veginn \u00ed handanverunni, n\u00e1l\u00e6g \u00ed farl\u00e6g\u00f0inni. \u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki. Einhvernveginn h\u00e9rna inni og h\u00e9rna vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r og yfir og allt um kring.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6ri Magn\u00fas Kolbj\u00f6rn, \u00fe\u00fa \u00e1tt g\u00f3\u00f0 \u00e1hugam\u00e1l og framt\u00ed\u00f0ardrauma. Megi \u00feeir draumar r\u00e6tast me\u00f0 Gu\u00f0s hj\u00e1lp og g\u00f3\u00f0ra manna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lskyldan \u00f6ll er \u00ed sorg, vinir og vandamenn eru \u00fea\u00f0 l\u00edka. Dau\u00f0inn minnir \u00e1 sig og segir: <em>Memento mori<\/em>, mundu a\u00f0 \u00fe\u00fa ert dau\u00f0leg, dau\u00f0legur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g ba\u00f0 fj\u00f6lskylduna a\u00f0 rifja upp l\u00edf Hei\u00f0u er \u00e9g \u00e1tti fund me\u00f0 henni. Ekki st\u00f3\u00f0 \u00e1 g\u00f3\u00f0um einkunnum: H\u00fan var skemmtileg, gefandi og kl\u00e1r, yfirvegu\u00f0, r\u00e1\u00f0ag\u00f3\u00f0 &#8211; og fylgin s\u00e9r. H\u00fan var frj\u00e1ls andi, f\u00f3r s\u00ednar eigin lei\u00f0ir og kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0. H\u00fan vann t.d. \u00ed fiski \u00e1 Flateyri, s\u00f3tti s\u00e9r fj\u00f6r \u00e1 Hr\u00f3arskelduh\u00e1t\u00ed\u00f0um, var j\u00f3ga- og grasakona, f\u00f3r \u00ed MH, p\u00f6nka\u00f0ist \u00ed hlj\u00f3msveitinni Dritv\u00edk, sem var talin bjartasta vonin eitt \u00e1ri\u00f0 \u00ed DV. Hei\u00f0a var s\u00f6ngvari og l\u00e9k \u00e1 bassa og svo var h\u00fan l\u00edka klass\u00edskur g\u00edtarleikari eins og fyrr er komi\u00f0 fram. H\u00fan var n\u00e1tt\u00farutengd og lag\u00f0i miki\u00f0 upp \u00far n\u00e1tt\u00faruvernd. H\u00fan var skarpgreind, n\u00e6mur lesandi og greinandi fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, haf\u00f0i \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta sm\u00e1 skammt af fullkomunar\u00e1r\u00e1ttu og kannski einmitt \u00feess vegna var h\u00fan ekki b\u00fain a\u00f0 verja doktorsritger\u00f0ina s\u00edna en b\u00e6\u00f0i BA-pr\u00f3fi\u00f0 og meistararitger\u00f0ina kl\u00e1ra\u00f0i h\u00fan me\u00f0 miklum s\u00f3ma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var fj\u00f6lh\u00e6f, f\u00f3r \u00far b\u00f3kum yfir \u00ed sj\u00f3nlistir og svo sveif t\u00f3nlistin yfir \u00f6llu. H\u00fan gaf \u00f6\u00f0rum r\u00fdmi \u00ed kringum sig og gaf Birni \u00de\u00f3r svigr\u00fam \u00e1 s\u00ednum t\u00edma til a\u00f0 lj\u00faka s\u00ednu n\u00e1mi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lki \u00fe\u00f3tt gott a\u00f0 leita r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 henni. H\u00fan var lausnarmi\u00f0u\u00f0 og hj\u00e1lps\u00f6m. H\u00fan bar vir\u00f0ingu fyrir l\u00edfinu, var d\u00fdravinur og s\u00fdndi f\u00f3ki umhyggju \u00ed st\u00f3ru sem sm\u00e1u og var n\u00e1tt\u00faruverndarsinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g setti pl\u00f6tuna, <em>Blues, blues, blues<\/em>, \u00ed spilun me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 lj\u00faka \u00feessum minningaror\u00f0um, pl\u00f6tu sem fj\u00f6lskyldan \u00e1 Lauf\u00e1sveginum hefur m\u00e6tur \u00e1, en Hei\u00f0a var \u00fe\u00f3 meira fyrir n\u00fdbylgjurokk en mamma og fj\u00f6lskyldan. D\u00e1samleg upplifun. Bl\u00fasinn er tregat\u00f3nlist me\u00f0 \u00edvafi b\u00e6\u00f0i elsku og fryga\u00f0ar. Merkilegt a\u00f0 allar st\u00f3ru m\u00fasikktegundirnar sem einkennt hafa 20. \u00f6ldina og okkar \u00f6ld, fyrir utan klass\u00edkina, eru komnar fr\u00e1 Bandar\u00edkjam\u00f6nnum af afr\u00edskum uppruna: s\u00e1lmahef\u00f0 bl\u00f6kkumanna, bl\u00fasinn, jazzinn, swingi\u00f0, rokki\u00f0 &#8211; og rappi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n menningar, t\u00f3nlistar, svi\u00f0slista, kvikmynda, sj\u00f3nvarps, ritlistar, fr\u00e1sagna og uppistands. Og rau\u00f0i \u00fer\u00e1\u00f0urinn \u00ed m\u00f6rgum \u00feessara listgreina er fyrrnefnd \u00fer\u00edskipting sem einkennir allar g\u00f3\u00f0ar fr\u00e1sagnir og t\u00f3nlist. Og Punch-line ver\u00f0ur alltaf a\u00f0 vera \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristin tr\u00fa bo\u00f0ar upprisu, bo\u00f0ar a\u00f0 l\u00edfinu lj\u00faki ekki vi\u00f0 dau\u00f0ann heldur s\u00e9 hann a\u00f0eins \u00e1fangi. Og fyrrnefnd \u00fer\u00edskipting kemur sk\u00fdrt fram \u00ed or\u00f0unum \u00feegar presturinn kastar rekum e\u00f0a moldar og segir fyrst or\u00f0in \u00far Gamla tetamentinu: <em>Af j\u00f6r\u00f0u ertu klominn. A\u00f0 j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur ver\u00f0a.<\/em> En svo b\u00e6tir Kristind\u00f3murinn vi\u00f0 \u00feri\u00f0ju fullyr\u00f0ingunni: <em>Af j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur upp r\u00edsa.<\/em> S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0in eru bygg\u00f0 \u00e1 l\u00edfi, dau\u00f0a og upprisu Krists. H\u00e9r er komin \u00ferenningin: Sk\u00f6pu, Fall og Endurlausn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er l\u00edfi\u00f0 \u00ed s\u00ednu st\u00f3ra samhengi. \u00deetta er vonin \u00ed dimmum dal sorgar, vonin \u00ed vonlausun a\u00f0st\u00e6\u00f0um, lj\u00f3si\u00f0 \u00ed mirkrinu, vatnslindin \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, h\u00f6ndin sem gr\u00edpur \u00feann sem er a\u00f0 s\u00f6kkva og reisir hann upp \u00far dj\u00fapinu, r\u00f6ddin sem huggar og sty\u00f0ur \u00e1 l\u00edfsveginum, augun sem gr\u00e1ta, fa\u00f0murinn sem umvefur og r\u00f6ddin sem segir vi\u00f0 \u00feig:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6ra fj\u00f6lskylda Hei\u00f0u:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas Kolbj\u00f6rn, Hanna og Sigur\u00f0ur, Anna og \u00c1str\u00e1\u00f0ur, Magn\u00fas, vinir og vandamenn:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Hei\u00f0u og var\u00f0veiti hana \u00ed eil\u00edf\u00f0inni og megi hinn sami blessa ykkur og lei\u00f0a um l\u00edfsins veg. Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2509\" height=\"1779\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/img_0889.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2709\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2515\" height=\"1764\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/img_0890.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2710\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Hei\u00f0a J\u00f3hannsd\u00f3ttir 1972-2021 b\u00f3kmennta-, kvikmynda- og menningarfr\u00e6\u00f0ingur, Bergssta\u00f0astr\u00e6ti 43, Reykjav\u00edk. \u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk m\u00e1nudaginn 1. n\u00f3vember 2021 kl. 13:00. Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi. S\u00e1lmaskr\u00e1 er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,333,409,518,548,584,640],"class_list":["post-2705","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-rettlaeti","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2705","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2705"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2705\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2705"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2705"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2705"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}