{"id":2629,"date":"2021-05-31T18:42:04","date_gmt":"2021-05-31T18:42:04","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/05\/31\/petur-geir-helgason-1932-2021\/"},"modified":"2021-05-31T18:42:04","modified_gmt":"2021-05-31T18:42:04","slug":"petur-geir-helgason-1932-2021","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2629","title":{"rendered":"+P\u00e9tur Geir Helgason 1932-2021"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+P\u00e9tur Geir Helgason<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1932-2021<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. skipstj\u00f3ri og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1851\" height=\"2181\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/img_0628-1.jpg?w=869\" alt=\"\" class=\"wp-image-2628\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2021\/05\/pecc81tur-geir-helgason-1932-2021.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g horfi \u00fat \u00e1 Sundin bl\u00e1 \u00fati fyrir h\u00f6fu\u00f0borginni \u00far gluggunum heima. Sj\u00f3r hefur veri\u00f0 sl\u00e9ttur og kyrr s\u00ed\u00f0ustu daga en fyrir helgina hv\u00edtna\u00f0i \u00ed b\u00e1ru og s\u00e6gr\u00e6nir litafl\u00e1kar skreyttu yfirbor\u00f0i\u00f0. Fiskib\u00e1tar og seglsk\u00fatur sigldu \u00fat eins og sj\u00f3menn hafa gert um aldir h\u00e9r \u00e1 landi. &#8220;F\u00f6\u00f0urland vort h\u00e1lft er hafi\u00f0&#8221; segir \u00ed f\u00f6grum sj\u00f3mannas\u00e1lmi, helmingur f\u00f6\u00f0urldands okkar liggur \u00ed s\u00e6dj\u00fapinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eLegg \u00fe\u00fa \u00fat \u00e1 dj\u00fapi\u00f0 og leggi\u00f0 net ykkar til fiskjar&#8221;, sag\u00f0i Jes\u00fas vi\u00f0 S\u00edmon P\u00e9tur. Og hann f\u00f3r eftir or\u00f0um hans og fyllti b\u00e1tinn.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir Helgason lag\u00f0i oft \u00fat \u00e1 dj\u00fapi\u00f0, b\u00e6\u00f0i \u00cdsafja\u00f0ardj\u00fapi\u00f0 og \u00f6nnur dj\u00fap og fyllti b\u00e1tinn sinn. Hann var sj\u00f3ma\u00f0ur st\u00e6rstan hluta starfs\u00e6vi sinnar, seigur og s\u00e6kinn, fundv\u00eds \u00e1 fisk og r\u00e6kju. \u00deegar menn byrju\u00f0u a\u00f0 leita r\u00e6kju \u00ed \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fapi \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld h\u00f6f\u00f0u margir l\u00edtinn skilning \u00e1 sj\u00f3m\u00f6nnum sem eltust vi\u00f0 &#8220;marfl\u00e6r&#8221; inn um allt Dj\u00fap. N\u00fa eru r\u00e6kjur \u00e1 bor\u00f0um okkar allra og vi\u00f0 metum \u00fe\u00e6r mikils sem g\u00f3ms\u00e6ta f\u00e6\u00f0u og d\u00fdrm\u00e6ta \u00fatflutningsv\u00f6ru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dj\u00fapi\u00f0 er \u00feekkt hugtak innan heimspeki og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i og v\u00edsar oft til \u00feess \u00f3\u00feekkta, til hyld\u00fdpis, jafnvel nota\u00f0 um t\u00f3mi\u00f0, sem var til \u00e1\u00f0ur en allt var skapa\u00f0, einskonar ginnungagap.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dj\u00fapi\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innra me\u00f0 okkur sj\u00e1lfum er dj\u00fap, \u00f3m\u00e6lisdj\u00fap, huldir heimar, s\u00e1larkimar og d\u00fdpi sem vi\u00f0 skiljum varla sj\u00e1lf, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0rir. Margt er \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 ekki \u00feekkjum e\u00f0a skiljum en h\u00f6fum samt einhverjar hugmyndir um. \u00deannig er tr\u00fain einskonar dj\u00fap sem er b\u00e6\u00f0i utan mannsins og innra me\u00f0 honum. Tr\u00fa m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 vitund um eitthva\u00f0 \u00e6\u00f0ra og st\u00e6rra en hugurinn getur n\u00e1\u00f0 utanum e\u00f0a skili\u00f0 til fulls.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edan er mikil tr\u00faarb\u00f3k sem fjallar um tr\u00fa og leit manneskjunnar a\u00f0 \u00e6\u00f0ra tilgangi, gl\u00edmu hennar vi\u00f0 Gu\u00f0 og leitina a\u00f0 skilningi \u00e1 tilgangi l\u00edfsins. En a\u00f0eins \u00e1 einum sta\u00f0, \u00ed einu versi, er tr\u00fain skilgreind \u00ed \u00feeirri miklu b\u00f3k:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.&#8221; (Heb 11.1)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 tr\u00faa er a\u00f0 treysta \u00fev\u00ed a\u00f0 draumar r\u00e6tist, vonir ver\u00f0i a\u00f0 veruleika, a\u00f0 upp renni betri t\u00ed\u00f0, a\u00f0 allt fari vel \u00feegar upp ver\u00f0ur sta\u00f0i\u00f0, a\u00f0 meira a\u00f0 segja dau\u00f0inn muni ekki eiga s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir var tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. \u00c9g kom a\u00f0 bei\u00f0ni \u00e1stvina a\u00f0 d\u00e1narbe\u00f0i hans \u00fear sem hann l\u00e1 me\u00f0vitundarlaus. \u00c9g tala\u00f0i til hans, s\u00f6ng s\u00e1lminn, \u00d3, Jes\u00fa, br\u00f3\u00f0ir besti, og f\u00f3r svo me\u00f0 b\u00e6n, signdi yfir hann og blessa\u00f0i. \u00de\u00e1 lyfti hann h\u00f6nd sinni \u00far dj\u00fapi me\u00f0vitundarleysinsins, t\u00f3k \u00ed h\u00f6nd m\u00edna og \u00feakka\u00f0i fyrir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd dj\u00fapi vitundar hans bjuggu b\u00e6\u00f0i tr\u00fain og vonin, sem hann eigna\u00f0ist sem drengur hj\u00e1 tr\u00fau\u00f0um \u00e1stvinum. Tr\u00fain fylgdi honum alla t\u00ed\u00f0 \u00ed \u00f6llum ve\u00f0rabrig\u00f0um l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er \u00feessi hetja er horfin fr\u00e1 okkur, ma\u00f0ur sterkra en \u00f3l\u00edkra eiginleika, eins og reipi ofi\u00f0 \u00far \u00f3tal \u00fer\u00e1\u00f0um og m\u00f6rgum \u00fe\u00e1ttum. \u00dea\u00f0 trosna\u00f0i seint og gaf sig ekki au\u00f0veldlega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c6vi\u00e1grip<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>P\u00e9tur Geir Helgason f\u00e6ddist \u00ed \u00c1lftafir\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap hinn 15. n\u00f3vember 1932 og l\u00e9st \u00ed Reykjav\u00edk 21. ma\u00ed 2021, sonur hj\u00f3nanna Helga Bendiktssonar (f. 29. okt 1893 d. 12. des 1975) og J\u00f3n\u00ednu P\u00e9tursd\u00f3ttur (f. 11. j\u00fan 1905 d. 31. mar 1985).<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Systkini P\u00e9turs Geirs voru: Benedikt Helgason (f. 1923, l\u00e1tinn), Gu\u00f0mundur Helgason (f. 1925, l\u00e1tinn), Birna Benjam\u00ednsd\u00f3ttir (f. 1927), Gu\u00f0mundur Helgason (f. 1929, l\u00e1tinn), L\u00fa\u00f0v\u00edg Helgason(f. 1936, l\u00e1tinn) og Sigr\u00ed\u00f0ur Helgad\u00f3ttir (f. 1941, l\u00e1tin).<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Gu\u00f0munda J\u00f3na P\u00e9tursd\u00f3ttir (f. 5. apr 1901 d. 23. jan 1993) m\u00f3\u00f0ursystir P\u00e9turs Geirs t\u00f3k hann \u00ed f\u00f3stur \u00feegar hann var fj\u00f6gurra m\u00e1na\u00f0a gamall og \u00f3l h\u00fan hann upp, fyrst me\u00f0 P\u00e9tri Janusi Oddsyni (f. 10. jan 1902 d. 27. okt 1976) en ein eftir a\u00f0 \u00feau skildu. Fyrir \u00e1tti Gu\u00f0munda J\u00f3na d\u00f3tturina Fanneyju Halld\u00f3rsd\u00f3ttur (f. 26. feb 1924 d. 5. okt 2008) og leit P\u00e9tur Geir alla t\u00ed\u00f0 \u00e1 hana sem systur s\u00edna.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>P\u00e9tur Geir kv\u00e6ntist \u00d3sk Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0 \u00d3skarsd\u00f3ttur fr\u00e1 Hr\u00edsey \u00e1ri\u00f0 1952 (f. 9. j\u00fan\u00ed 1934 d. 30. jan 2008). \u00deau eignu\u00f0ust fj\u00f6gur b\u00f6rn. <\/em>\u00deau eru:<em> \u00d3skar Geir (f. 1. sept 1952), R\u00fanar \u00de\u00f3r (f. 21. sept 1953), Gu\u00f0munda J\u00f3na (f. 13. sept 1958) og Heimir M\u00e1r (f. 20. ma\u00ed 1962). P\u00e9tur Geir og \u00d3sk \u00f3lu einnig upp a\u00f0 mestu d\u00f3tturd\u00f3ttur s\u00edna \u00d3sk Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0 yngri.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Barnab\u00f6rn P\u00e9turs Geirs og \u00d3skar eru sext\u00e1n talsins, barnabarnab\u00f6rn eru tuttugu og n\u00edu og barnabarnabarnab\u00f6rn eru \u00ferj\u00fa.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3sk kom til \u00cdsafjar\u00f0ar til a\u00f0 stunda n\u00e1m \u00ed H\u00fasm\u00e6\u00f0rask\u00f3lanum \u00d3sk sem var mikilv\u00e6gur sk\u00f3li og ungu mennirnir \u00ed b\u00e6nunm horf\u00f0u me\u00f0 tilhl\u00f6kkun til st\u00falknah\u00f3psins sem birtist \u00ed b\u00e6num hvert haust. \u00deeir voru a\u00f0 leita s\u00e9r kvonfangs og stundum var sk\u00f3linn kalla\u00f0ur Vetrarhj\u00e1lpin \u00ed gamans\u00f6mum t\u00f3ni! Margar st\u00falkur giftust \u00cdsfir\u00f0ingum og fluttu \u00fe\u00e1 me\u00f0 s\u00e9r til heimahaganna e\u00f0a settust a\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00ed Fa\u00f0mi fjalla bl\u00e1rra. \u00deannig lag\u00f0i sk\u00f3linn til bl\u00f6ndun erf\u00f0aefna \u00ed landinu og fars\u00e6lt og fagurt heimilishald me\u00f0 velsk\u00f3lu\u00f0um og \u00fatskrif\u00f0um gl\u00e6simeyjum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>P\u00e9tur Geir og \u00d3sk bjuggu fyrstu tuttugu og \u00ferj\u00fa b\u00faskapar \u00e1r s\u00edn \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, lengst af \u00e1 Seljalandsvegi 30 sem \u00feau bygg\u00f0u og fluttu inn \u00ed \u00e1ri\u00f0 1961. \u00c1ri\u00f0 1976 fluttu \u00feau til Reykjav\u00edkur \u00fear sem \u00feau bjuggu \u00ed eitt \u00e1r \u00e1\u00f0ur en \u00feau fluttu til K\u00f3paskers \u00fear sem \u00feau bjuggu \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00e1\u00f0ur en \u00feau fluttu aftur til \u00cdsafjar\u00f0ar. \u00dear voru \u00feau fram til \u00e1rsins 1988 \u00feegar \u00feau fluttu \u00e1 \u00c1rsk\u00f3gsstr\u00f6nd \u00ed eitt \u00e1r en bjuggu eftir \u00fea\u00f0 j\u00f6fnum h\u00f6ndum \u00e1 Akureyri og K\u00f3paskeri til \u00e1rsins 2007.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1 K\u00f3paskeri var \u00feeim teki\u00f0 me\u00f0 kostum og kynjum. P\u00e9tur Geir haf\u00f0i veri\u00f0 r\u00e1\u00f0inn \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 vera verkstj\u00f3ri \u00ed r\u00e6kjuverksmi\u00f0ju \u00feorpsins. Hann og \u00d3sk voru b\u00e6\u00f0i vel li\u00f0in og \u00e1 K\u00f3paskeri eignu\u00f0ust \u00feau marga og g\u00f3\u00f0a vini til l\u00edfst\u00ed\u00f0ar og t\u00f3ku \u00e1stf\u00f3stri vi\u00f0 \u00feorpi\u00f0. Ekki s\u00edst mynda\u00f0ist g\u00f3\u00f0 og \u00e6vil\u00f6ng vin\u00e1tta vi\u00f0 hj\u00f3nin Kristj\u00e1n og Gu\u00f0bj\u00f6rgu en \u00fea\u00f0 var Kristj\u00e1n sem r\u00e9\u00f0 P\u00e9tur Geir nor\u00f0ur \u00e1 Melrakkasl\u00e9ttu. Gu\u00f0bj\u00f6rg er fallin fr\u00e1 en Kristj\u00e1n er me\u00f0 okkur h\u00e9r \u00ed dag. Hann s\u00e1 um b\u00f3khald og fleira fyrir P\u00e9tur Geir allt fram \u00e1 s\u00ed\u00f0asta dag. \u00dear var allt \u00ed r\u00f6\u00f0 og reglu eins og \u00feeir b\u00e1\u00f0ir vildu hafa \u00fea\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00dea\u00f0 var vinnan sem r\u00e9\u00f0i flutningum \u00feeirra. P\u00e9tur Geir var lengst af sj\u00f3ma\u00f0ur og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, var b\u00e6\u00f0i me\u00f0 v\u00e9lstj\u00f3rapr\u00f3f og skipstj\u00f3rnarpr\u00f3f og \u00fe\u00e1 l\u00e6r\u00f0i hann ni\u00f0ursu\u00f0u ungur a\u00f0 \u00e1rum \u00ed Par\u00eds. \u00cd nokkur \u00e1r var hann yfirfiskmatsma\u00f0ur hj\u00e1 Fiskmati r\u00edkisins. Hann var verkstj\u00f3ri \u00ed r\u00e6kjuverksmi\u00f0ju \u00e1 K\u00f3paskeri \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r og forstj\u00f3ri r\u00e6kjuverksmi\u00f0ju \u00e1 \u00c1rsk\u00f3gsstr\u00f6nd \u00ed um \u00ferj\u00fa \u00e1r. Eftir \u00fea\u00f0 stunda\u00f0i hann tryllu\u00fatger\u00f0 \u00e1 sumrin fr\u00e1 K\u00f3paskeri fram til \u00e1rsins 2002 \u00feegar hann og \u00d3sk seldu sumarh\u00fas sitt \u00fear.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Hausti\u00f0 2007 fluttu P\u00e9tur Geir og \u00d3sk til Reykjav\u00edkur \u00fear sem h\u00fan l\u00e9st s\u00ed\u00f0an hinn 30. jan\u00faar 2008. Eftir \u00fea\u00f0 bj\u00f3 P\u00e9tur Geir einn en s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0ina var hann \u00e1 Landakoti, V\u00edfilst\u00f6\u00f0um og loks Droplaugast\u00f6\u00f0um \u00fear sem hann l\u00e9st.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mynd m\u00edn af P\u00e9tri Geir, en m\u00f3\u00f0ir m\u00edn og hann voru fj\u00f3rmenningar, er mynd af gla\u00f0beittum manni. \u00c9g \u00feekkti hann bara sem hressan sj\u00f3mann og t\u00f3nlistarmann, man hann \u00ed h\u00f3pi l\u00fa\u00f0ra\u00feeytara \u00ed f\u00ednum b\u00faningum \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0isd\u00f6gum \u00ed b\u00e6num okkar fagra, \u00cdsafir\u00f0i. Myndin sem \u00e9g \u00e1 \u00ed huga m\u00e9r er af brosandi manni, kankv\u00edsum me\u00f0 greindarleg augu og svip og hvella r\u00f6dd. Hann var hress og f\u00f3r ekki me\u00f0 l\u00f6ndum \u00ed s\u00ednu daglega l\u00edfi og b\u00f6rnin hans af Seljalandsveginum voru fj\u00f6rmikil og virk &#8211; og \u00fe\u00e1 er \u00e9g ekki a\u00f0 tala \u00ed l\u00e1gstigi! \u00deegar \u00e9g jar\u00f0s\u00f6ng n\u00e1granna konu \u00feeirra til margra \u00e1ra, \u00ed vetur sem lei\u00f0, Birnu, konu B\u00fassa, sag\u00f0i \u00e9g fr\u00e1 barnah\u00f3pnum \u00e1 Seljalandsveginum og Engjaveginum \u00fear sem m.a. bj\u00f3 n\u00e1i\u00f0 fr\u00e6ndf\u00f3lk mitt \u00ed f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt, svonefndir Gr\u00edmsarar, og velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hva\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00ed vatninu sem &#8220;p\u00fakarnir&#8221; drukku. Krakkar voru kalla\u00f0ir p\u00fakar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kraftur b\u00fdr \u00ed b\u00f6rnum P\u00e9turs Geirs og \u00fear sem sl\u00edkt afl er fyrir hendi er \u00f3lga og sk\u00f6punarkraftur sem br\u00fdst \u00fat me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir l\u00e9t um sig muna \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um og gefa m\u00e1 honum margskonar einkunnir. Hann var r\u00e6kjuk\u00f3ngur, fundv\u00eds \u00e1 mi\u00f0 og torfur og gaf sig ekki fyrr en hann haf\u00f0i fundi\u00f0 r\u00e6kju \u00ed J\u00f6kulfj\u00f6r\u00f0um sem f\u00e1ir h\u00f6f\u00f0u tr\u00fa \u00e1. Hann var um \u00e1rabil forma\u00f0ur Hugins, f\u00e9lags sm\u00e1b\u00e1tasj\u00f3manna \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i; forma\u00f0ur \u00cdB\u00cd og kom knattspyrnum\u00f6nnum b\u00e6jarin upp \u00far 2. deild og alla lei\u00f0 \u00ed 1. deild og var s\u00e6mdur gullmerki \u00cdS\u00cd. Minnisst\u00e6\u00f0ur er leikurinn sem \u00cdsfir\u00f0ingar l\u00e9ku vi\u00f0 Keflv\u00edkinga \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Tveir Fokkerar fullir af h\u00e1lfum \u00cdsfir\u00f0ingum flugu su\u00f0ur til a\u00f0 sty\u00f0ja s\u00edna menn en ekki leit \u00fea\u00f0 vel \u00fat \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatum leiks en \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u Keflv\u00edkingar skora\u00f0 2 m\u00f6rk. \u00de\u00e1 byrju\u00f0u \u00cdsfir\u00f0ingarnir a\u00f0 hr\u00f3pa \u00ed tr\u00fa og von: 7\/2!, 7\/2!, 7\/2! og g\u00e1fust ekki upp fyrr en \u00feau \u00farslit voru \u00ed h\u00f6fn!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir var f\u00e9lagsma\u00f0ur sem gaf sig 100% \u00ed allt sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd p\u00f3lit\u00edk l\u00e9t P\u00e9tu Geir hjarta\u00f0 r\u00e1\u00f0a og grunngildin. Hann var stranghei\u00f0arlegur og gaf hvorki afsl\u00e1tt af l\u00f6gum n\u00e9 si\u00f0areglum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var yfirmatsma\u00f0ur hj\u00e1 Fiskmati r\u00edkisins og s\u00fdndi \u00fear festu og fyrirhyggju og enga fyrirgrei\u00f0slup\u00f3lit\u00edk og gaf enga afsl\u00e6tti. \u00deegar r\u00e1\u00f0herrann vildi gefa leyfi fyrir a\u00f0 flytja \u00fat fisk sem ekki st\u00f3\u00f0s g\u00e6\u00f0amat, sag\u00f0i P\u00e9tur Geir vi\u00f0 hann: &#8220;Ef \u00fe\u00fa vilt a\u00f0 \u00feessi \u00fatger\u00f0 flytji \u00fat \u00faldinn fisk, \u00fe\u00e1 gefur \u00fe\u00fa \u00fat leyfi\u00f0, ekki \u00e9g!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir var fastur fyrir og bygg\u00f0i l\u00edf sitt \u00e1 f\u00f6stum grunni traustra gilda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var h\u00famoristi, skemmtilegur b\u00e6\u00f0i \u00ed daglegu l\u00edfi og \u00e1 gle\u00f0istundum me\u00f0 vinum og \u00e6ttingjum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin \u00e1tti P\u00e9tur Geir vi\u00f0 t\u00f6luver\u00f0 veikindi a\u00f0 str\u00ed\u00f0a. \u00dea\u00f0 er \u00e1 engan halla\u00f0 \u00fe\u00f3tt syni hans R\u00fanari \u00de\u00f3r og d\u00f3tturd\u00f3tturinni \u00d3sk Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0, Sveini El\u00edasi manni hennar og b\u00f6rnum, s\u00e9 h\u00e9r \u00feakka\u00f0 s\u00e9rstaklega fyrir \u00feeirra a\u00f0hlynningu og endalausu \u00feolinm\u00e6\u00f0i. \u00deau voru til taks allan s\u00f3larhringinn undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta og fyrir \u00fea\u00f0 var P\u00e9tur Geir \u00feakkl\u00e1tur enda ger\u00f0i \u00fea\u00f0 honum kleift a\u00f0 halda heimili s\u00ednu fram \u00ed andl\u00e1ti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur hafa borist fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum \u00e6ttingjum og vinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0munda J\u00f3na Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar Hinrik H. Fri\u00f0bertsson og \u00feeirra afkomendur, sem ekki g\u00e1tu veri\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag, senda s\u00ednar bestu kve\u00f0jur og bi\u00f0ja f\u00f6\u00f0ur og afa blessunar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir \u00d3skarsson gat ekki veri\u00f0 me\u00f0 okkur h\u00e9r \u00ed dag. Hann bi\u00f0ur um g\u00f3\u00f0ar kve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldunnar. Hann minnist afa s\u00edns og nafna me\u00f0 mikilli hl\u00fdju og \u00feakkl\u00e6ti fyrir \u00f3rj\u00fafanlegan vinskap hans og g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 \u00ed gegnum \u00e1rin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dalla kemst \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki vegna veikinda. H\u00fan og d\u00e6tur hennar og \u00d3skars Geirs, \u00fe\u00e6r Hj\u00f6rd\u00eds og Hafd\u00eds \u00ddr, bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0jur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hei\u00f0a vinkona P\u00e9turs og \u00d3skar og fj\u00f6lskylda hennar bi\u00f0ja fyrir innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldunnar og \u00feakka einl\u00e6ga vin\u00e1ttu vi\u00f0 \u00feau hj\u00f3nin um \u00e1ratuga skei\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Signu fr\u00e6nku \u00d3skar og Gulla B\u00faa \u00e1 Akureyri senda hugheilar kve\u00f0jur og \u00feakka g\u00f3\u00f0 og n\u00e1in kynni vi\u00f0 P\u00e9tur, \u00d3sk heitina og fj\u00f6lskyldu \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Adda Hermannsd\u00f3ttir og fj\u00f6lskylda \u00cdsafir\u00f0i senda innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur og \u00feakkar \u00e1ralanga vin\u00e1ttu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 Erlingi Tryggvasyni, Braga Magn\u00fassyni, Benna \u00d6verby og \u00d3la Thorarensen sem allir eru \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og fylgjast me\u00f0 ath\u00f6fninni \u00e1 Vefnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ger\u00f0ur fr\u00e6nka P\u00e9turs og Gulli ma\u00f0ur hennar senda g\u00f3\u00f0ar kve\u00f0jur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlistin var P\u00e9tri Geir \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin og margir \u00e6ttingja hans eru listfengnir og margir \u00feeirra b\u00faa yfir r\u00edkri t\u00f3nlistarg\u00e1fu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann haf\u00f0i eyra fyrir sk\u00e1ldskap og gaf \u00fat lj\u00f3\u00f0ab\u00f3kina S\u00f3lr\u00fanir. \u00cd lj\u00f3\u00f0inu Lei\u00f0arlok eru honum sj\u00f3rinn hugst\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dat vi\u00f0 s\u00e6inn sit<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">einn sumar dag<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">gl\u00e6silegt er glit<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">gl\u00f3rautt s\u00f3larlag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1rur brotna \u00e1 sandi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00e6rist \u00fearar\u00f3t<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">bera bo\u00f0 a\u00f0 landi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00e6\u00f0i hal og sn\u00f3t.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f3lin gyllir s\u00e6inn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sigla skip \u00e1 braut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bjarma sl\u00e6r \u00e1 b\u00e6inn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00e6\u00f0i dal og laut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 \u00e1s\u00fdnd \u00e6gifagra<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">upp \u00far sj\u00f3num r\u00eds<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sunna s\u00edna geisla<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sendir lof og pr\u00eds.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eins og fyrr hefur komi\u00f0 fram var P\u00e9tur Geir tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. Hann elska\u00f0i miki\u00f0, s\u00f6g\u00f0u b\u00f6rnin, en var au\u00f0s\u00e6ranlegur, r\u00e9tts\u00fdnn og tr\u00fa\u00f0i \u00e1 jafnr\u00e6\u00f0i og hi\u00f0 sammannlega \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann horfinn fr\u00e1 okkur, \u00feessi kempa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e9tur Geir hefur lagt \u00fat \u00e1 dj\u00fapi\u00f0 \u00ed hinsta sinn og er kvaddur h\u00e9r \u00ed Neskirkju \u00ed Reykjav\u00edk. Kirkjubyggingum er jafnan l\u00edkt vi\u00f0 skip. Vi\u00f0 sitjum h\u00e9r \u00ed kirkjuskipi. \u00c1 ensku er tala\u00f0 um &#8220;church nave&#8221; kirkjuskip en &#8220;nave&#8221; er stofninn \u00ed or\u00f0inu &#8220;navy&#8221;. Flest okkar vorum munstru\u00f0u \u00e1 \u00feetta skip Krists \u00ed heilagri sk\u00edrn, v\u00edg\u00f0 til a\u00f0 tilheyra \u00fev\u00ed fleyi sem f\u00e6rir okkur alla lei\u00f0, \u00ed himininn heim, gegnum brotsj\u00f3i l\u00edfsins og yfir dj\u00fapi\u00f0 mikla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lokaversin \u00ed lj\u00f3\u00f0inu Lei\u00f0arlok hlj\u00f3\u00f0a svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi br\u00e1tt er loki\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">lei\u00f0 er hafin str\u00f6ng.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd skj\u00f3lin flest er foki\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">farin \u00e6vin l\u00f6ng.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f3lin gyllir s\u00e6inn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sigli \u00e9g \u00e1 braut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hv\u00edsla bl\u00edtt \u00ed bl\u00e6inn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">bi\u00f0 um l\u00edkn \u00ed \u00feraut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum P\u00e9tur Geir Helgason me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi hann lifa \u00ed himni Gu\u00f0s me\u00f0 \u00e1stvinum s\u00ednum sem horfnir eru og megir \u00fe\u00fa sem h\u00e9r kve\u00f0ur me\u00f0 \u00fe\u00f6kk, me\u00f0 g\u00f3\u00f0um minningum og s\u00e1rum \u00ed bland, sigla \u00e1fram \u00e1 yfirbor\u00f0i l\u00edfsdj\u00fapsins og rata \u00ed fri\u00f0arh\u00f6fn \u00feegar kalli\u00f0 kemur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu P\u00e9turs Geirs Helgasonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1397\" height=\"1779\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/05\/img_0629.jpg?w=804\" alt=\"\" class=\"wp-image-2631\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 +P\u00e9tur Geir Helgason 1932-2021 fv. skipstj\u00f3ri og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00c9g horfi \u00fat \u00e1 Sundin bl\u00e1 \u00fati fyrir h\u00f6fu\u00f0borginni \u00far gluggunum heima. Sj\u00f3r hefur veri\u00f0 sl\u00e9ttur og kyrr s\u00ed\u00f0ustu daga en fyrir helgina hv\u00edtna\u00f0i \u00ed b\u00e1ru og s\u00e6gr\u00e6nir litafl\u00e1kar skreyttu yfirbor\u00f0i\u00f0. Fiskib\u00e1tar og seglsk\u00fatur sigldu \u00fat eins og sj\u00f3menn hafa gert um aldir h\u00e9r [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,48,333,518,557,584,602,640],"class_list":["post-2629","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-isafjordur","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-sorg","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2629","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2629"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2629\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2629"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2629"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2629"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}