{"id":2538,"date":"2021-02-24T11:23:21","date_gmt":"2021-02-24T11:23:21","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/02\/24\/jon-olafur-skaprhedinsson-1956-2021\/"},"modified":"2021-02-24T11:23:21","modified_gmt":"2021-02-24T11:23:21","slug":"jon-olafur-skaprhedinsson-1956-2021","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2538","title":{"rendered":"J\u00f3n \u00d3lafur Skarph\u00e9\u00f0insson 1956-2021"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+ J\u00f3n \u00d3lafur Skarph\u00e9\u00f0insson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1956-2021<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1243\" height=\"1840\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/img_0482.jpg?w=692\" alt=\"\" class=\"wp-image-2537\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r\/b\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feri\u00f0judaginn 23. febr\u00faar 2021 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tengill \u00e1 \u00fatsendingu\/Link to the service: <a href=\"https:\/\/youtu.be\/HLyU_OL2sBk\">https:\/\/youtu.be\/HLyU_OL2sBk<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>&#8220;Dreymi \u00feig lj\u00f3si\u00f0.&#8221;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3si\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3si\u00f0 er upphaf alls l\u00edfs \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. V\u00edsindamenn \u00e1 svi\u00f0i l\u00edffr\u00e6\u00f0i og fleiri fr\u00e6\u00f0igreina hafa sagt a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 hafi kvikna\u00f0 \u00e1 hafsbotni vi\u00f0 eldsumbrot. Eldurinn \u00ed i\u00f0rum jar\u00f0ar er lj\u00f3s af lj\u00f3si s\u00f3lar sem er lj\u00f3s af &#8220;s\u00f3lnanna s\u00f3l&#8221;. L\u00edfi\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u og l\u00edfi\u00f0 \u00ed hafinu er allt af einu og sama lj\u00f3sinu.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt sinn r\u00e6ddi \u00e9g vi\u00f0 aldra\u00f0a konu sem sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i unni\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1rum saman &#8220;a\u00f0 setja lj\u00f3s \u00e1 fl\u00f6skur&#8221;. \u00c9g kv\u00e1\u00f0i vi\u00f0 og h\u00fan \u00fatsk\u00fdr\u00f0i fyrir m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i unni\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 pakka l\u00fdsi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1 guli sem syndir \u00ed hafinu, \u00feorskurinn, hefur gefi\u00f0 okkur lj\u00f3s af lj\u00f3si um aldir. Lj\u00f3s \u00e1 lampa og lj\u00f3s \u00ed l\u00edkama og s\u00e1l \u00far l\u00fdsinu. Allt hangir saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldi\u00f0 sem skrifa\u00f0i sk\u00f6punars\u00f6gu Bibl\u00edunnar s\u00e1 fyrir s\u00e9r a\u00f0 allt hafi byrja\u00f0 me\u00f0 lj\u00f3sinu og sag\u00f0i: &#8220;Gu\u00f0 sag\u00f0i: &#8220;Ver\u00f0i lj\u00f3s.&#8221; Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 lj\u00f3s.&#8221; Hann haf\u00f0i aldrei heyrt um geimfer\u00f0ir e\u00f0a Hubbelsj\u00f3naukann og vissi ekkert um Miklahvell en sk\u00e1ldskaparg\u00e1fan gaf honum inns\u00e6i til a\u00f0 rita hi\u00f0 st\u00f3rbrotna lj\u00f3\u00f0 sem sk\u00f6punarsagan er. Hann haf\u00f0i sj\u00f6dagaskema\u00f0 fr\u00e1 Babyl\u00f3n\u00edum\u00f6nnum sem voru komnir \u00fej\u00f3\u00f0a lengst \u00e1 6. \u00f6ld f. Krist \u00ed a\u00f0 reikna \u00fat \u00e1ri\u00f0 og vikuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lifum \u00ed heimi lj\u00f3ssins. E\u00f0lisfr\u00e6\u00f0in talar um Miklahvell, h\u00f6fundur Sk\u00f6punars\u00f6gunnar tj\u00e1ir samhengi hlutanna og uppruna alls \u00ed lj\u00f3sinu og l\u00edffr\u00e6\u00f0ingurinn J\u00f3nsi sag\u00f0i: &#8220;L\u00edfi\u00f0 er bara efnahv\u00f6rf.&#8221; Allir segja \u00feeir sannleikann, hver \u00e1 sinn h\u00e1tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00d3lafur var v\u00edsindama\u00f0ur af l\u00edfi og s\u00e1l. Hann st\u00f3\u00f0 upp \u00far \u00e1 margan h\u00e1tt, sem v\u00edsindama\u00f0ur og sem manneskja og svo gn\u00e6f\u00f0i hann yfir flesta s\u00f6kum h\u00e6\u00f0ar sinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var kannski ekki h\u00e1r \u00ed loftinu \u00feegar hann f\u00f3r fyrst \u00ed sveit nor\u00f0ur \u00ed H\u00f6rg\u00e1rdal til \u00e6ttingja sinna \u00ed Gar\u00f0shorni, samt var hann lengri en flestir jafnaldra hans. Sveital\u00edfi\u00f0 fyrir nor\u00f0an og \u00ed Holti \u00e1 S\u00ed\u00f0u, m\u00f3ta\u00f0i hann \u00e1samt borgarl\u00edfinu og menntaveginum sem hann gekk og ger\u00f0i hann a\u00f0 heilsteyptum manni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n \u00d3lafur Skarph\u00e9\u00f0insson f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 15. september 1956. Hann l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi 11. febr\u00faar 2021.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Foreldrar hans eru Halla Oddn\u00fd J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 14. j\u00fan\u00ed 1935 og Skarph\u00e9\u00f0inn Bjarnason f. 21. febr\u00faar 1927, d. 10. september 2006. Yngri sonur \u00feeirra, er Fri\u00f0geir Bjarni f. 1960. Fyrri eiginkona hans var Margret Hallgr\u00edmsson f. 1953, d. 2015. Seinni eiginkona Fri\u00f0geirs Bjarna er Sigr\u00fan Rafnsd\u00f3ttir f. 1960. Halla Oddn\u00fd og Skarph\u00e9\u00f0inn skildu. Seinni kona Skarph\u00e9\u00f0ins var Sigr\u00ed\u00f0ur Karlsd\u00f3ttir, vaktstj\u00f3ri, f. 17. september 1944, d. 23. jan\u00faar 2018. Synir \u00feeirra eru Karl, f. 1968, eiginkona Sara Gylfad\u00f3ttir, Hj\u00e1lmar, f. 1969, eiginkona El\u00edn \u00d3lafsd\u00f3ttir og \u00d3skar Bjarni, f. 1980, eiginkona D\u00f3ra Bergr\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Eiginkona J\u00f3ns \u00d3lafs er H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 4. \u00e1g\u00fast 1959 og giftust \u00feau 24. apr\u00edl 2004 eftir 23 \u00e1ra samb\u00fa\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur segir a\u00f0 J\u00f3nsi hafi be\u00f0i\u00f0 hennar \u00ed t\u00edma og \u00f3t\u00edma og loksins hafi \u00fea\u00f0 gengi\u00f0 upp!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Foreldrar H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ar voru Margr\u00e9t P\u00e9tursd\u00f3ttir J\u00f3nsson f. 1928, d. 2004 og J\u00f3n Gestsson f. 1924, d. 1961. J\u00f3n \u00d3lafur og H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur eignu\u00f0ust \u00ferj\u00fa b\u00f6rn, J\u00f3n B\u00f6rk f. 24. jan\u00faar 1983, d. 16. j\u00fan\u00ed 2001, Unu Bj\u00f6rk f. 20. ma\u00ed 1991 og \u00c1su Kareni f. 16. ma\u00ed 1994.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n \u00d3lafur \u00f3lst upp \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum og gekk \u00ed Hl\u00ed\u00f0ask\u00f3la og Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la Austurb\u00e6jar. Hann lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum vi\u00f0 Hamrahl\u00ed\u00f0 1976 og BS-pr\u00f3fi \u00ed l\u00edffr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1ri\u00f0 1979. Samhli\u00f0a n\u00e1minu stunda\u00f0i hann ranns\u00f3knir af miklu kappi undir lei\u00f0s\u00f6gn J\u00f3hanns Axelssonar og kenndi l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Hann flutti s\u00ed\u00f0an \u00fat til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar 1983 \u00e1samt konu sinni og syni og h\u00f3f \u00fear doktorsn\u00e1m sem fjalla\u00f0i um \u00e1hrif \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0a taugakerfisins og \u00fdmissa lyfja \u00e1 stj\u00f3rn bl\u00f3\u00f0fl\u00e6\u00f0is. Hann var\u00f0i doktorsritger\u00f0 s\u00edna vi\u00f0 Gautaborgarh\u00e1sk\u00f3la \u00e1ri\u00f0 1988 og var r\u00e1\u00f0inn lektor vi\u00f0 Hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ideild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands sama \u00e1r. Fr\u00e1 1995 starfa\u00f0i hann sem pr\u00f3fessor \u00ed l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0i og kenndi vi\u00f0 flestar deildir Heilbrig\u00f0isv\u00edsindasvi\u00f0s. Hann stunda\u00f0i jafnframt fj\u00f6lbreyttar ranns\u00f3knir \u00e1 svi\u00f0i l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0a. Hann t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00e9lagsm\u00e1lum og sat m.a. \u00ed H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n \u00d3lafur var \u00ed sveit sem barn, fyrir nor\u00f0an og sunnan, og var mikill n\u00e1tt\u00faruunnandi. Fyrir nokkrum \u00e1rum festi hann \u00e1samt \u00f6\u00f0ru g\u00f3\u00f0u f\u00f3lki kaup \u00e1 landi \u00ed Borgarfir\u00f0i og st\u00fadera\u00f0i holti\u00f0 og r\u00fdndi \u00ed rofab\u00f6r\u00f0in. Hann haf\u00f0i \u00e1hyggjur af uppbl\u00e6stri landsins og ofbeit. J\u00f3n \u00d3lafur naut \u00feess a\u00f0 fara \u00ed fluguvei\u00f0i, lesa \u00e1na me\u00f0 fluguna \u00e1 lofti en aflinn var aukaatri\u00f0i. Hann var f\u00e9lagi \u00ed \u00c1rm\u00f6nnum \u2013 F\u00e9lagi um stangvei\u00f0i og sat um t\u00edma \u00ed stj\u00f3rn \u00feess.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n \u00d3lafur var mikill \u00e1hugama\u00f0ur um t\u00f3nlist en bl\u00fasinn var \u00ed upp\u00e1haldi og var hann t\u00ed\u00f0ur gestur \u00e1 Bl\u00fash\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n \u00d3lafur \u00e1tti st\u00f3ran og fj\u00f6lbreyttan vinah\u00f3p sem hann h\u00e9lt g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hitti fj\u00f6lskyldu J\u00f3nsa og vini \u00e1 f\u00f6studaginn var. \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0 stund \u00fear sem g\u00f3\u00f0ar og skemmtilegar minningar voru rifja\u00f0ar upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3nsi marka\u00f0i dj\u00fap spor \u00ed hj\u00f6rtu f\u00f3lks sem hann umgekkst og hans er og ver\u00f0ur s\u00e1rt sakna\u00f0. Margar s\u00f6gur flugu um \u00ed stofunni, skemmtilegar s\u00f6gur og \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 rifja sumar \u00feeirra upp h\u00e9r, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r l\u00e9tta lund og eru sem smyrsl \u00e1 s\u00e1rin \u00ed sorginni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvassaleitisgengi\u00f0 hefur haldi\u00f0 saman fr\u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0limir \u00feess voru \u00ed barnask\u00f3la. Unglings\u00e1rin voru spennandi og vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edk. \u00deeir segja a\u00f0 yfir J\u00f3nsa hafi veri\u00f0 st\u00f3r \u00e1ra og a\u00f0 erfitt hafi \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 halda \u00ed vi\u00f0 hann. Leiftrandi g\u00e1fur og l\u00edfskraftur einkenndu hann alla t\u00ed\u00f0. \u00deegar \u00feeir voru a\u00f0 stofna fj\u00f6lskyldur og mennta sig og vinna, ur\u00f0u samfundir stopulli, en alltaf \u00feegar \u00feeir hittust var \u00fea\u00f0 eins og \u00feeir hef\u00f0u seinast s\u00e9st \u00ed g\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var h\u00e1r og myndarlegur, svipsterkur og yfir honum reisn. \u00c9g s\u00e1 mynd af honum sem tekin var \u00feegar hann haf\u00f0i safna\u00f0 miklu h\u00e1ri og stelpurnar hans h\u00f6f\u00f0u fl\u00e9tta\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed tv\u00e6r r\u00f3tarfl\u00e9ttur sem n\u00e1\u00f0u ni\u00f0ur \u00e1 bak. Ekki er laust vi\u00f0 a\u00f0 hann hafi minnt mig \u00e1 svipsterkan ind\u00edanah\u00f6f\u00f0ingja. F\u00f6\u00f0ur\u00e6tt J\u00f3nsa var f\u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um og stundum er sagt um Vestfir\u00f0inga a\u00f0 \u00feeir hafi sumir \u00ed s\u00e9r su\u00f0r\u00e6na erf\u00f0av\u00edsa. En hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 \u00cdslendingar allir \u00fatlendingar a\u00f0 uppruna s\u00e9 fari\u00f0 n\u00f3gu langt aftur \u00ed t\u00edmann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann haf\u00f0i st\u00f3rt og \u00fe\u00e9tt fa\u00f0mlag sem hann gaf m\u00f6rgum um \u00e6vina og \u00feegar m\u00e1gkona hans var or\u00f0in ein me\u00f0 s\u00edn b\u00f6rn og kom eitt sinn \u00ed heims\u00f3kn og lei\u00f0 ekki vel, sag\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 J\u00f3nsa \u00fear sem hann l\u00e1 og hv\u00edldi sig eftir matinn: &#8220;N\u00fa ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 leggjast ofan \u00e1 \u00feig&#8221;. Til er skondin mynd af atvikinu sem er sterkt t\u00e1kn um v\u00e6ntum\u00feykju og umhyggju sem var r\u00edkur \u00fe\u00e1ttur \u00ed l\u00edfi J\u00f3nsa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Raunv\u00edsindama\u00f0urinn reyndist hafa mj\u00fakt hjarta. &#8220;Gu\u00f0d\u00f3murinn \u00ed honum var \u00ed fa\u00f0mlaginu&#8221; sag\u00f0i m\u00e1gkonan. B\u00f6rn hennar t\u00f6lu\u00f0u um athyglina sem hann veitti \u00feeim og hvernig hann gat veri\u00f0 \u00ed senn strangur en hl\u00fdr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann gegndi l\u00edka h\u00e1lfger\u00f0u pabbahlutverki fyrir yngri br\u00e6\u00f0ur s\u00edna sem alla t\u00ed\u00f0 litu upp til hans. Hva\u00f0 var annars h\u00e6gt a\u00f0 gera!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar starfsst\u00f6\u00f0 &#8220;litla&#8221; br\u00f3\u00f0ur f\u00e6r\u00f0ist \u00ed fr\u00e6\u00f0ah\u00fasi\u00f0 \u00fear sem J\u00f3nsi haf\u00f0i s\u00edna b\u00e6kist\u00f6\u00f0 lyftist hann upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed sama h\u00fasi og &#8220;k\u00f3ngurinn&#8221;! Og annar &#8220;litli&#8221; br\u00f3\u00f0ir segir a\u00f0 \u00ed r\u00f6kr\u00e6\u00f0um hafi J\u00f3nsi seint gefi\u00f0 sig nema \u00feegar honum t\u00f3kst a\u00f0 sn\u00faa taflinu vi\u00f0 og gera r\u00f6k litla br\u00f3\u00f0ur a\u00f0 s\u00ednum! En svo b\u00e6tti hann vi\u00f0 um J\u00f3nsa: &#8220;En hann var enginn besserwisser, og gat vissulega vi\u00f0urkennt mist\u00f6k s\u00edn ef svo bar undir.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd MH muna sk\u00f3laf\u00e9lagarnir hann \u00ed gr\u00e6na jakkanum sem hann virtist aldrei fara \u00far, me\u00f0 rj\u00fakandi p\u00edpuna \u00ed munnvikinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00f3r snemma \u00ed ranns\u00f3knir, v\u00edsindin \u00e1ttu hug hans allan. L\u00edfi\u00f0 var honum \u00e1hugam\u00e1l og vi\u00f0fangsefni. Eitt sinn t\u00f3k hann dau\u00f0vona m\u00fds me\u00f0 s\u00e9r heim af ranns\u00f3knarstofunni og hressti \u00fe\u00e6r vi\u00f0 og anna\u00f0 sinn \u00feegar m\u00fas var \u00ed h\u00fasi nokkru og hann kalla\u00f0ur til sem meind\u00fdraey\u00f0ir kom ekki til greina a\u00f0 drepa m\u00fasina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var aga\u00f0ur og vissi alltaf hvar hann geymdi skj\u00f6l og sk\u00fdrslur. Litli br\u00f3\u00f0ir, sem er himnalengja eins og hann, kom \u00ed heims\u00f3kn \u00e1 skrifstofuna og \u00fear s\u00e1st ekki \u00ed skrifbor\u00f0i\u00f0 fyrir skj\u00f6lum, en J\u00f3nsi teyg\u00f0i sig \u00ed bunka \u00e1 bor\u00f0inu og dr\u00f3 \u00fat skjali\u00f0 sem hann \u00feurfti a\u00f0 nota. Allt var \u00fev\u00ed \u00ed raun \u00ed r\u00f6\u00f0 og reglu &#8211; hans reglu!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00d3lafur kenndi heilbrig\u00f0isstarfsf\u00f3lki um \u00e1rara\u00f0ir og \u00feekkti vel til \u00ed heilbrig\u00f0iskerfinu og var \u00fev\u00ed afar \u00feakkl\u00e1tur og mat starfsf\u00f3lk \u00feess miki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var \u00e6t\u00ed\u00f0 kr\u00f6fuhar\u00f0ur \u00e1 sj\u00e1lfan sig og sumir segja a\u00f0 hann hafi sett standardinn \u00ed hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0inni. Hann var s\u00edan sem nemendur ur\u00f0u a\u00f0 komast \u00ed gegnum. \u00deegar einn nemenda kvarta\u00f0i yfir a\u00f0 hafa ekki n\u00e1\u00f0 einu pr\u00f3fi, sag\u00f0i J\u00f3nsi: &#8220;Hva\u00f0, hefur\u00f0ur ekki falli\u00f0 fyrr?&#8221; Hann vissi a\u00f0 fall er fararheill. Hann var strangur kennari en vissi \u00e6t\u00ed\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 hann var a\u00f0 gera. \u00cd MH hj\u00e1lpa\u00f0i hann m\u00f6rgum me\u00f0 st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ina m.a. H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0i og vi\u00f0 \u00feekkjum aflei\u00f0ingarnar af \u00fev\u00ed!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhverju sinni var Skarph\u00e9\u00f0inn fa\u00f0ir hans \u00ed m\u00f3ral og illa \u00e1 sig kominn og kalla\u00f0i \u00e1 soninn og ba\u00f0 hann um a\u00f0 redda einhverju sem g\u00e6ti hresst hann vi\u00f0. J\u00f3nsi kom me\u00f0 lyf merkt \u00feremur krossum og gaf honum og sag\u00f0i a\u00f0 hann m\u00e6tti bara taka 3 t\u00f6flur \u00ed einu. Skarph\u00e9\u00f0inn h\u00e9lt a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri eitthvert undralyf sem g\u00e6ti laga\u00f0 allt, t\u00f3k \u00fe\u00e6r skv. resepti J\u00f3nsa, en fannst \u00fe\u00e6r reyndar ekki breyta miklu &#8211; enda voru \u00feetta bara magnylt\u00f6flur! J\u00f3n \u00d3lafur haf\u00f0i ekki langt a\u00f0 s\u00e6kja h\u00famorinn. Pabbi hans var \u00f6\u00f0ru sinni illa fyrir kalla\u00f0ur \u00ed vinnunni og ba\u00f0 um a\u00f0 mega fara \u00ed kistulagningu. Hann f\u00e9kk leyfi\u00f0. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar fann yfirma\u00f0urinn hann \u00fear sem hann haf\u00f0i lagt sig \u00ed gluggakistu \u00ed flugturninum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00d3lafur naut \u00feess a\u00f0 fara \u00fat og sko\u00f0a kv\u00f6ldhimininn, n\u00e1\u00f0i s\u00e9r \u00ed stj\u00f6rnukort til a\u00f0 geta betur rata\u00f0 \u00e1 milli himinlj\u00f3sanna og \u00feekkt merkin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var enginn g\u00f6ngugarpur um fj\u00f6ll og firnindi en naut \u00feess a\u00f0 vera \u00fati \u00ed n\u00e1tt\u00farunni, einkum a\u00f0 vei\u00f0a. S\u00fa i\u00f0ja gaf honum fri\u00f0 og t\u00f3m til a\u00f0 hugsa. Vei\u00f0ifer\u00f0ir vinah\u00f3psins ur\u00f0u margar og \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed eina \u00feeirra \u00feurfti vinur a\u00f0 koma vi\u00f0 \u00ed b\u00fa\u00f0 og kaupa s\u00e9r n\u00e6rbuxur \u00fev\u00ed hann haf\u00f0i gleymt s\u00ednum heima. Hann t\u00f3k fyrsta pakkann sem hann s\u00e1 \u00ed b\u00fa\u00f0inni og \u00feegar hann svo f\u00f3r \u00ed buxurnar eftir ba\u00f0i\u00f0 me\u00f0 str\u00e1kunum reyndust \u00fe\u00e6r vera G-strengur me\u00f0 tungumerki Rolling Stones a\u00f0 framan! \u00dea\u00f0 var miki\u00f0 hlegi\u00f0 \u00ed \u00feeim vei\u00f0it\u00far!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00fasta\u00f0urinn Dyrholt sem \u00feau hj\u00f3nin eiga \u00ed f\u00e9lagi vi\u00f0 a\u00f0ra fj\u00f6lskyldu a\u00f0 Indri\u00f0ast\u00f6\u00f0um \u00ed Skorradal var \u00feeirra skj\u00f3l og gri\u00f0arsta\u00f0ur. Hann haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 landgr\u00e6\u00f0slu og a\u00f0 vinna gegn ofbeit og var, \u00f3l\u00edkt sumum kollega sinna, l\u00fap\u00ednuma\u00f0ur \u00fe\u00f3tt sumir \u00feeirra k\u00f6llu\u00f0u pl\u00f6ntuna &#8220;gr\u00e6na minkinn&#8221;. Hann haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 hana vinna kraftaverk \u00ed Holti \u00e1 S\u00ed\u00f0u \u00fear sem Holtsborgin haf\u00f0i bl\u00e1na\u00f0 og gr\u00e6nka\u00f0 fyrir m\u00e1tt hennar sem v\u00e9k s\u00ed\u00f0an fyrir \u00f6\u00f0rum gr\u00f3\u00f0ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var gr\u00e6jukall og elska\u00f0i t\u00f3nlist, einkum bl\u00fas og rokk. Hann p\u00e6ldi miki\u00f0 \u00ed s\u00e1ndi og g\u00e6\u00f0um upptaka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00d3lafur haf\u00f0i sterka n\u00e6rveru. Hann var alla t\u00ed\u00f0 \u00f3hr\u00e6ddur og djarfur. Hann var hugrakkur og \u00e6\u00f0rulaus \u00ed veikindum s\u00ednum og \u00feekkti reyndar sem v\u00edsindama\u00f0ur nokku\u00f0 vel til margs af \u00fev\u00ed sem hrj\u00e1\u00f0i hann. Hann haf\u00f0i kennt m\u00f6rgum \u00feeirra sem sinntu honum \u00ed veikindunum, l\u00e6knum og hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingum. Hann h\u00e6ldi \u00feeim og \u00feau honum fyrir g\u00f3\u00f0a kennslu. Gagnkv\u00e6m vir\u00f0ing r\u00edkti \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0i og d\u00e6trunum afar \u00feakkl\u00e1tur fyrir handlei\u00f0slu og stu\u00f0ning \u00ed veikindinum. Covid-\u00e1standi\u00f0 skerti m\u00f6guleika f\u00f3lks til heims\u00f3kna en vinir og vandamenn st\u00f3\u00f0u me\u00f0 honum \u00ed huga, \u00ed b\u00e6num s\u00ednum og g\u00f3\u00f0um \u00f3skum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stytti s\u00e9r stundir \u00ed veikindunum og hlusta\u00f0i oft \u00e1 \u00fatvarp. Hann l\u00fdsti \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 hann vildi gjarnan r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 tvo a\u00f0ila, annan \u00feeirra haf\u00f0i hann hlusta\u00f0 \u00e1 \u00ed \u00fatvarpsvi\u00f0tali og sag\u00f0i vi\u00f0 H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0i: &#8220;N\u00fa ver\u00f0ur\u00f0u hissa \u00fev\u00ed hann er prestur.&#8221; Klerkur s\u00e1 haf\u00f0i komi\u00f0 honum \u00e1 \u00f3vart s\u00f6kum v\u00ed\u00f0s\u00fdni og brei\u00f0rar reynslu af \u00f3l\u00edkum fr\u00e6\u00f0igreinum. Engum s\u00f6gum fer af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hafi hizt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Honum \u00fe\u00f3tti afar v\u00e6nt um H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0i og d\u00e6turnar, Unu Bj\u00f6rk og \u00c1su Kareni og \u00feegar H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur kvaddi hann eitt sinn og sag\u00f0i: &#8220;Sof\u00f0u n\u00fa vel og l\u00e1ttu \u00feig dreyma vel.&#8221; Hann glotti vi\u00f0 og svara\u00f0i: &#8220;\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 l\u00e1ta mig dreyma engla \u00fev\u00ed \u00e9g \u00e1 3 engla.&#8221; Hann elska\u00f0i fj\u00f6lskyldu s\u00edna, m\u00f3\u00f0ur, br\u00e6\u00f0ur og vini.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var ekki tr\u00faa\u00f0ur \u00ed hef\u00f0bundnum skilningi \u00feess or\u00f0s en hann haf\u00f0i s\u00ednar lei\u00f0ir til a\u00f0 t\u00falka handanveruna. Fj\u00f6lskyldan tala\u00f0i miki\u00f0 um J\u00f3n B\u00f6rk. \u00de\u00f3tt horfinn v\u00e6ri af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi var hann \u00e1fram hluti af \u00feeim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 var erfi\u00f0 reynsla a\u00f0 missa soninn. J\u00f3nsi tj\u00e1\u00f0i sig um \u00fea\u00f0 \u00ed vi\u00f0tali \u00ed DV sem \u00e9g las \u00e1 d\u00f6gunum og \u00fea\u00f0 bar vott um \u00feroska og \u00e6\u00f0ruleysi, l\u00e6rd\u00f3m af biturri reynslu. \u00c1 minnisvar\u00f0a um \u00feau sem f\u00f3rust \u00ed Skerjafjar\u00f0arslysinu stendur skrifa\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>&#8220;H\u00e9r settist s\u00f3lin \u00ed l\u00edfi \u00feeirra en geislarnir lifa \u00e1fram me\u00f0 okkur.&#8221;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd kenningum l\u00fathersku kirkjunnar er til svar vi\u00f0 spurningunni: &#8220;Hver er kristinn?&#8221; Svari\u00f0 er: S\u00fa e\u00f0a s\u00e1 sem sk\u00edr\u00f0ur er \u00ed nafni f\u00f6\u00f0ur, sonar og heilags anda, er kristinn. \u00c9g er sk\u00edr\u00f0ur og \u00e9g er f\u00e6ddur \u00e1 tilteknum sta\u00f0. Hvorugu ver\u00f0ur breytt af h\u00e1lfu \u00feess sem gaf m\u00e9r l\u00edfi\u00f0. \u00c9g get hins vegar efast og misst tr\u00fana en Gu\u00f0 missir ekki tr\u00fana \u00e1 manneskjuna. Gu\u00f0 gleymir m\u00e9r aldrei. Hann gleymir engum, sk\u00edr\u00f0um e\u00f0a \u00f3sk\u00edr\u00f0um. Hann man \u00feig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig t\u00falkum vi\u00f0 veruleikann? Sumir gera \u00fea\u00f0 me\u00f0 a\u00f0fer\u00f0um v\u00edsindanna og fr\u00e6\u00f0a, a\u00f0rir \u00ed gegnum menningu og t\u00f3nlist, enn a\u00f0rir \u00ed gegnum sk\u00e1ldskap \u00fear sem h\u00e6fileikinn til a\u00f0 hugsa \u00fat fyrir boxi\u00f0 er virkja\u00f0ur, enn a\u00f0rir eftir lei\u00f0s\u00f6gn kristninnar e\u00f0a annarra tr\u00faarbrag\u00f0a. Og margir gera \u00fea\u00f0 me\u00f0 bl\u00f6ndu af \u00f6llu \u00feessu, me\u00f0 v\u00edsindum og tr\u00fa, menningu og listum, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa upp og \u00fat fyrir boxi\u00f0 og velta fyrir s\u00e9r m\u00f6rkum e\u00f0a \u00f3endanleika alheimsins og spyrja hvort hugsanlega s\u00e9 lifandi vitund a\u00f0 baki \u00f6llu \u00feessu d\u00fdr\u00f0arverki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6ngvask\u00e1ldi\u00f0 Kim Larsen \u00e1tti s\u00edna tr\u00fa og hann tj\u00e1\u00f0i sig me\u00f0 s\u00f6ng sem ber yfirskriftina M\u00f3\u00f0ir j\u00f6r\u00f0. L\u00e6t h\u00e9r fylgja eina hendingu \u00far b\u00e6n hans \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu minni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00de\u00fa ert sumar og vetur, \u00fe\u00fa ert mogunn og g\u00e6r,<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00fe\u00fa ert bernskunnar minni og hjarta\u00f0 sem sl\u00e6r,<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00fe\u00fa ert d\u00f6ggin sem fellur og gr\u00e6\u00f0ir upp sv\u00f6r\u00f0,<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00fe\u00fa m\u00edn fegursta, M\u00f3\u00f0ir j\u00f6r\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hva\u00f0an kemur M\u00f3\u00f0ir j\u00f6r\u00f0? Hvert er l\u00f6gheimili l\u00edfsins?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grundvallar tilvistarspurningar manneskjunnar eru: Hver er \u00e9g? Hva\u00f0an kem \u00e9g? Hva\u00f0 ver\u00f0ur um mig?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 sem h\u00e9r kve\u00f0jum J\u00f3n \u00d3laf munum hann og munum muna hann um \u00f3komin \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver man \u00feig n\u00fana? Hver mun muna \u00feig eftir 20 \u00e1r, 50 \u00e1r, 100 \u00e1r?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver mun muna \u00feig \u00feegar allir ver\u00f0a horfnir sem muna \u00feig n\u00fa e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00fa m\u00edn er s\u00fa a\u00f0 yfir \u00f6llu l\u00edfi, allri ver\u00f6ldinni, yfir alheiminum og \u00ed alheiminum, s\u00e9 vitund sem allt elskar og engum gleymir. Aldrei!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;L\u00edfi\u00f0 er bara efnahv\u00f6rf&#8221; sag\u00f0i J\u00f3nsi. L\u00edfi\u00f0 kvina\u00f0i af lj\u00f3sinu, lj\u00f3sinu eina sem kvikna\u00f0i \u00ed \u00e1rdaga fyrir skrillj\u00f3num \u00e1ra. \u00c9g tek undir \u00fea\u00f0, en tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 eigi s\u00e9r \u00e6\u00f0ri uppruna og merkilegt finnst m\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feegar h\u00f6fundur Sk\u00f6punars\u00f6gunnar teflir fram l\u00edfinu \u00ed s\u00ednum texta, er ma\u00f0urinn yngstur \u00ed sk\u00f6punarverkinu, r\u00f6\u00f0 l\u00edfsins \u00e1\u00feekk og \u00ed kenningum Darwins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar v\u00edsinda- og fr\u00e6\u00f0ima\u00f0urinn Eggert \u00d3lafsson, f\u00f3r \u00far Sau\u00f0lauksdal 29. ma\u00ed 1768, eftir vetrardv\u00f6l, me\u00f0 konu sinni, kvaddi s\u00e9ra Bj\u00f6rn Halld\u00f3rsson hann og s\u00f6ng \u00far hla\u00f0i me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um er hann samdi af tilefninu. Daginn eftir drukknu\u00f0u \u00feau hj\u00f3n \u00e1 Brei\u00f0afir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Far n\u00fa, minn vin, sem \u00e1satt er<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">au\u00f0nu og manndygg\u00f0abraut,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">far n\u00fa, \u00fe\u00f3tt s\u00e1rt \u00fe\u00edn s\u00f6knum v\u00e9r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sviftur fr\u00e1 allri \u00feraut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Far \u00ed gu\u00f0s skj\u00f3li, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feann kj\u00f3sum f\u00f6runaut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Far\u00f0u blessa\u00f0ur, \u00feegar \u00fever<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feitt l\u00edf, \u00ed drottins skaut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Sr. Bj\u00f6rn Halld\u00f3rsson, Sau\u00f0lauksdal 1768)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3si\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi Lj\u00f3si\u00f0 umvefja J\u00f3n \u00d3laf Skarph\u00e9\u00f0insson &#8211; og \u00feig &#8211; og l\u00fdsa \u00fe\u00e9r og okkur \u00f6llum \u00e1 l\u00edfsins vegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r hans fer fram fr\u00e1 Fossvogskirkju \u00feri\u00f0judaginn 23. febr\u00faar 2021 kl. 13. Vegna s\u00f3ttvarna ver\u00f0ur gestum bo\u00f0i\u00f0, en ath\u00f6fninni ver\u00f0ur streymt og m\u00e1 n\u00e1lgast hlekkinn \u00e1 <a href=\"http:\/\/mbl.is\/andlat\">mbl.is\/andlat<\/a> e\u00f0a \u00e1 <a href=\"https:\/\/youtu.be\/HLyU_OL2sBk\">https:\/\/youtu.be\/HLyU_OL2sBk<\/a><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2527\" height=\"1744\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/img_0483.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2539\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2509\" height=\"1696\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/img_0484.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2540\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson + J\u00f3n \u00d3lafur Skarph\u00e9\u00f0insson 1956-2021 \u00datf\u00f6r\/b\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskirkju \u00feri\u00f0judaginn 23. febr\u00faar 2021 kl. 13 Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i Tengill \u00e1 \u00fatsendingu\/Link to the service: https:\/\/youtu.be\/HLyU_OL2sBk &#8220;Dreymi \u00feig lj\u00f3si\u00f0.&#8221; Lj\u00f3si\u00f0! Lj\u00f3si\u00f0 er upphaf alls l\u00edfs \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. V\u00edsindamenn \u00e1 svi\u00f0i l\u00edffr\u00e6\u00f0i og fleiri fr\u00e6\u00f0igreina hafa sagt a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 hafi kvikna\u00f0 \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[57,234,246,333,407,409,542,584,640],"class_list":["post-2538","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-atthagar","tag-god","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljos","tag-ljosid","tag-sannleikur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2538","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2538"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2538\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2538"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2538"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2538"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}