{"id":2534,"date":"2021-01-17T10:04:59","date_gmt":"2021-01-17T10:04:59","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2021\/01\/17\/ma-hefta-tjaningarfrelsi-var-rett-ad-loka-a-trump\/"},"modified":"2021-01-17T10:04:59","modified_gmt":"2021-01-17T10:04:59","slug":"ma-hefta-tjaningarfrelsi-var-rett-ad-loka-a-trump","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2534","title":{"rendered":"M\u00e1 hefta tj\u00e1ningarfrelsi, var r\u00e9tt a\u00f0 loka \u00e1 Trump?"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Endursko\u00f0u\u00f0 grein a\u00f0 hluta til sem \u00e1\u00f0ur birtist \u00ed Kjarnanum 16. jan\u00faar 2021.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tj\u00e1ningarfresli \u00e6tti a\u00f0 vera \u00f6llum heilagt sem b\u00faa \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi og reyndar hvar sem er. Tj\u00e1ningarfrelsi\u00f0 er einn af hornsteinum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isins og fars\u00e6ls l\u00edfs \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En eru einhver m\u00f6rk \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 f\u00f3lk getur sagt \u00e1 opinberum vettvangi?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vissulega er \u00fea\u00f0 mj\u00f6g umdeilanlegt a\u00f0 samf\u00e9lagsmi\u00f0larnir Twitter og Facebook hafi sett h\u00f6mlur \u00e1 tj\u00e1ningu Trumps forseta. Sumir hafa fagna\u00f0 \u00feeirri \u00e1kv\u00f6r\u00f0un me\u00f0an a\u00f0rir harma hana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tj\u00e1ningarfrelsi felur \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00e9r a\u00f0 m\u00e9r er heimilt a\u00f0 tj\u00e1 mig um hva\u00f0 sem er og me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti sem \u00e9g k\u00fds, en \u00e9g ver\u00f0 jafnframt a\u00f0 standa og falla me\u00f0 \u00fev\u00ed sem \u00e9g segi hverju sinni. A\u00f0 hefta mann sem er \u00ed senn vins\u00e6ll og l\u00edka afar \u00f3vins\u00e6ll, kosinn n\u00fdlega af 70 millj\u00f3num Bandar\u00edkjamanna, \u00fe\u00f3 ekki n\u00e6g\u00f0i til sigurs, er mj\u00f6g alvarleg gj\u00f6r\u00f0. N\u00fa er \u00e9g enginn a\u00f0d\u00e1andi Trumps, finnst hann fyrirlitlegur \u00e1 margan h\u00e1tt, en hann \u00e1 \u00fe\u00f3 sinn r\u00e9tt til tj\u00e1ningar eins og \u00e9g og \u00fe\u00fa. Tilfinningar m\u00ednar eru eitt en sko\u00f0anir og r\u00f6khusun mega \u00fe\u00f3 ekki l\u00fata valdi \u00feeirra. Hva\u00f0 munu \u00fe\u00e6r millj\u00f3nir manna gera \u00e1 n\u00e6stu vikum og m\u00e1nu\u00f0um sem telja a\u00f0 kosningunum hafi veri\u00f0 stoli\u00f0 af Trump?<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1324\" height=\"823\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2021\/01\/img_0429-2.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2533\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Fengi a\u00f0 l\u00e1ni af Vefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver hefur vald til a\u00f0 \u00feagga ni\u00f0ur \u00ed \u00f6\u00f0rum? Enginn hefur \u00ed raun \u00fea\u00f0 vald, en samt er \u00fev\u00ed valdi beitt.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um n\u00fa hver \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lana sem millj\u00f3nir um allan heim n\u00fdta s\u00e9r til a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar, mi\u00f0la sem v\u00e6ru ekki neitt \u00e1n okkar sem notum \u00fe\u00e1. Eigum vi\u00f0 \u00feessa mi\u00f0la? Nei! \u00c1 almenningur \u00feessa mi\u00f0la? Nei! \u00deessir mi\u00f0lar eru \u00ed einkaeigu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Morgunbla\u00f0i\u00f0 og Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0, svo d\u00e6mi s\u00e9u tekin, eru einkareknir fj\u00f6lmi\u00f0lar, sem geta au\u00f0vellega neita\u00f0 a\u00f0 birta grein eftir hvern sem er, ef ritsj\u00f3rninni l\u00edkar ekki \u00fea\u00f0 sem greinarh\u00f6fundar vilja f\u00e1 birt \u00e1 s\u00ed\u00f0um bla\u00f0anna. \u00deessi bl\u00f6\u00f0 eru \u00ed einkaeigu, hvort sem \u00fea\u00f0 eignarhald er \u00e1 einni hendi a\u00f0 margra svo sem hluthafa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritstj\u00f3rnir hafa vald og geta neita\u00f0 og sett stein \u00ed g\u00f6tu hvers sem er, ef svo ber undir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Frj\u00e1lsir og \u00f3h\u00e1\u00f0ir fj\u00f6lmi\u00f0lar eru mikilv\u00e6gir en hver getur tryggt sl\u00edkt hlutleysi?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edklega er mikilv\u00e6gst a\u00f0 \u00ed hverju l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi s\u00e9u starfandi fj\u00f6lmi\u00f0lar sem eru \u00ed eigu almennings, kj\u00f3senda \u00ed landinu. \u00de\u00e1 er \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta m\u00f6gulegt a\u00f0 veita sl\u00edkum fj\u00f6lmi\u00f0lum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt a\u00f0hald. Og yfir \u00feessa fj\u00f6lmi\u00f0la er sett f\u00f3lk sem vi\u00f0, almenningur, h\u00f6fum kosi\u00f0 til p\u00f3lit\u00edskrar \u00e1byrg\u00f0ar. \u00deau sem sitja \u00ed \u00datvarpsr\u00e1\u00f0i eiga a\u00f0 tryggja jafnv\u00e6gi og a\u00f0hald svo a\u00f0 R\u00fav starfi \u00ed \u00fe\u00e1gu almennings og spegli fj\u00f6lbreytni sko\u00f0ana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mogginn er \u00feekktur um \u00feessar mundir fyrir einhli\u00f0a \u00e1r\u00f3\u00f0ur \u00ed forystugreinum og svonefndum Staksteinum, en m\u00e9r vir\u00f0ist bla\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00f3 vera opi\u00f0 fyrir tj\u00e1ningu f\u00f3lks af \u00f6llu tagi og fr\u00e9ttaflutningur er ekki \u00e1berandi einhli\u00f0a \u00fe\u00f3tt sumt s\u00e9 auglj\u00f3slega birt beinl\u00ednis v.\u00fe.a. \u00fea\u00f0 er \u00e1 r\u00e9ttri flokksl\u00ednu. Eitt sinn sag\u00f0i prestur \u00ed l\u00edkr\u00e6\u00f0u um Moggann \u00feegar ekki var t\u00f3m til \u00feesa a\u00f0 lesa upp l\u00f6ng \u00e6vi\u00e1grip og verkefni hins l\u00e1tna \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um, a\u00f0 um \u00fea\u00f0 g\u00e6tu \u00e1heyrendur lesi\u00f0 n\u00e1nar \u00ed dagbla\u00f0i \u00fev\u00ed &#8220;sem \u00fej\u00f3nar dau\u00f0anum \u00f6\u00f0rum mi\u00f0lum betur.&#8221; Enginn stenst Mogganum sn\u00faning \u00ed \u00feeim efnum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lmi\u00f0lar, eins og t.d. BBC \u00ed Bretlandi og R\u00fav \u00e1 \u00cdslandi, eru \u00ed almannaeigu en s\u00e6ta n\u00fa gagnr\u00fdni, einkum h\u00e6gri afla, fyrir a\u00f0 vera ekki n\u00e6gjanlega hlutl\u00e6gir \u00ed \u00f6llum m\u00e1lum. S\u00e9 \u00fea\u00f0 reyndin, \u00fe\u00e1 er \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta h\u00e6gt a\u00f0 andm\u00e6la sl\u00edku undir f\u00e1na hlutleysir og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is og sama \u00e1 reyndar vi\u00f0 um a\u00f0ra, einkarekna fj\u00f6lmi\u00f0la. En munurinn er s\u00e1 a\u00f0 hinir opinberu mi\u00f0lar ver\u00f0a a\u00f0 taka tillit til gagnr\u00fdninnar me\u00f0an hinir geta bara ulla\u00f0 \u00e1 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og hlutl\u00e6gni og fari\u00f0 s\u00ednu fram. A\u00f0 v\u00edsu geta einkareknir fj\u00f6lmi\u00f0lar or\u00f0i fyrir b\u00fasifjum ef kaupendur segja upp \u00e1skrift. Hva\u00f0 var\u00f0ar R\u00fav \u00fe\u00e1 get ekki sagt upp \u00e1skrift.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 b\u00faum \u00ed breyttum heimi. Samf\u00e9lagsmi\u00f0lar og Neti\u00f0 eru gr\u00ed\u00f0arlegir \u00e1hrifavaldar \u00ed l\u00edfi milljar\u00f0a f\u00f3lks. Eigandi Facebook g\u00e6ti til a\u00f0 mynda sest vi\u00f0 t\u00f6lvuna s\u00edna og sko\u00f0a\u00f0 \u00fat fr\u00e1 algr\u00edmum hvort honum l\u00edki \u00e1s\u00fdnd umr\u00e6\u00f0u heimsins e\u00f0a ekki. Hann g\u00e6ti, \u00ed krafti eignarhalds s\u00edns og valds, \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hann vildi sj\u00e1 annan bl\u00e6 \u00e1 umr\u00e6\u00f0unni \u00ed heiminum og fengi\u00f0 vilja s\u00ednum framgengt. \u00deetta er n\u00fdtt a\u00f0 einn ma\u00f0ur geti st\u00fdrt umr\u00e6\u00f0u heimsins alls og haft \u00e1hrif \u00e1 sko\u00f0anamyndum milljar\u00f0a f\u00f3lks me\u00f0 einum takka \u00e1 lyklabor\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Herra Algr\u00edmur r\u00e6\u00f0ur hva\u00f0 \u00e9g s\u00e9 \u00e1 mi\u00f0lum \u00fev\u00ed hann er b\u00fainn a\u00f0 reikna \u00fat hva\u00f0 \u00e9g sko\u00f0a\u00f0i \u00e1 Netinu \u00ed g\u00e6r og sendir m\u00e9r \u00fev\u00ed greinar og myndir sem hann heldur a\u00f0 \u00e9g vilji sj\u00e1. \u00dear me\u00f0 \u00fdtir Herra Algr\u00edmur undir einsleitni sko\u00f0ana me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3\u00f0ra f\u00f3lk \u00e1 afm\u00f6rku\u00f0um svi\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig getum vi\u00f0 tryggt r\u00e9ttl\u00e1ta og hei\u00f0arlega fj\u00f6lmi\u00f0lun?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einfaldasta svari\u00f0 er:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Leyfum f\u00f3lki a\u00f0 tj\u00e1 sig og heftum ekki tj\u00e1ningarfrelsi\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er heilagur r\u00e9ttur hvers og eins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver og einn ver\u00f0ur svo a\u00f0 standa og falla me\u00f0 or\u00f0um s\u00ednum og gj\u00f6r\u00f0um, f\u00e1 \u00e1 sig brim og \u00e1gjafir e\u00f0a vins\u00e6ldal\u00e6kinn rennandi t\u00e6ran, sem sumir \u00fer\u00edfast ekki \u00e1n. Og n\u00fa eru l\u00e6kin or\u00f0in s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt ranns\u00f3knarefni!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En umfram allt \u00fe\u00e1 er mikilv\u00e6gast \u00ed hverju samf\u00e9lagi a\u00f0 kenna f\u00f3lki a\u00f0 hugsa r\u00f6kr\u00e9tt, a\u00f0 kenna \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa og skrifa og skiptast \u00e1 sko\u00f0unum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00fatherska kirkjan kenndi \u00cdslendingum a\u00f0 lesa fyrr \u00e1 \u00f6ldum og bj\u00f3 \u00fea\u00f0 \u00fear me\u00f0 undir a\u00f0 tj\u00e1 sig og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagslegri umr\u00e6\u00f0u. \u00deessu m\u00e1 gjarnan halda til haga \u00e1 t\u00edmum \u00e1gjafa og and\u00fa\u00f0ar \u00ed gar\u00f0 kristinnar kirkju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimspekingurinn Voltaire sag\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00c9g er \u00f3samm\u00e1la \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00fa segir, en \u00e9g er rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 verja r\u00e9tt \u00feinn til a\u00f0 tj\u00e1 \u00feig \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt, fram \u00ed rau\u00f0an dau\u00f0ann.&#8221; (\u00de\u00fd\u00f0. m\u00edn \u00far ensku)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Endursko\u00f0u\u00f0 grein a\u00f0 hluta til sem \u00e1\u00f0ur birtist \u00ed Kjarnanum 16. jan\u00faar 2021. Tj\u00e1ningarfresli \u00e6tti a\u00f0 vera \u00f6llum heilagt sem b\u00faa \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi og reyndar hvar sem er. Tj\u00e1ningarfrelsi\u00f0 er einn af hornsteinum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isins og fars\u00e6ls l\u00edfs \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. En eru einhver m\u00f6rk \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 f\u00f3lk getur sagt \u00e1 opinberum vettvangi? Vissulega er [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[202,266,291,363,518,542,557,602,688],"class_list":["post-2534","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-fjolmidlar","tag-haegri","tag-heimurinn","tag-kosningar","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-sidferdi","tag-stjornmal","tag-veroldin"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2534","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2534"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2534\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2534"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2534"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2534"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}