{"id":2503,"date":"2020-10-28T16:07:32","date_gmt":"2020-10-28T16:07:32","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2020\/10\/28\/vilborg-sigridur-arnadottir-1946-2020\/"},"modified":"2020-10-28T16:07:32","modified_gmt":"2020-10-28T16:07:32","slug":"vilborg-sigridur-arnadottir-1946-2020","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2503","title":{"rendered":"+Vilborg Sigr\u00ed\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir 1946-2020"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/10\/6c6fc5fc-501e-49ce-82a9-eed5c6192cee.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1474\" height=\"1133\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/10\/6c6fc5fc-501e-49ce-82a9-eed5c6192cee.jpeg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2507\" \/><\/a><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Vilborg Sigr\u00ed\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1946-2020<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6ngkona<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">m\u00e1nudaginn 19. okt\u00f3ber 2020 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed H\u00f3lavallagar\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">_____<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Tilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki \u00fdkja frumlegt a\u00f0 byrja minningaror\u00f0 yfir henni Vilborgu Sigr\u00ed\u00f0i \u00c1rnad\u00f3ttur me\u00f0 tilv\u00edsun \u00ed lj\u00f3\u00f0 T\u00f3masar Gu\u00f0mundssonar, H\u00f3tel J\u00f6r\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo m\u00e1 spyrja: Hvernig er anna\u00f0 h\u00e6gt?<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum fer\u00f0alangar sem \u00ed dag sitjum \u00e1 krossg\u00f6tum, \u00e1 \u00e1ningarsta\u00f0, og kve\u00f0jum konu, sem horfin er af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Umr\u00e6tt lj\u00f3\u00f0 er svo n\u00e1tengt Vilborgu. Enn hlj\u00f3mar t\u00e6r r\u00f6dd hennar \u00ed \u00fatvarpi, hennar sem var svo t\u00f3nv\u00eds, a\u00f0 a\u00f0rir s\u00f6ngvarar \u00ed k\u00f3runum sem h\u00fan s\u00f6ng \u00ed, treystu \u00e1 n\u00e6rveru hennar. Sj\u00e1lfri fannst henni erfitt a\u00f0 hafa \u00feessa h\u00e1rr\u00e9ttu t\u00f3nheyrn sem gat skapa\u00f0 streytu \u00feegar \u00e1 reyndi og h\u00fan \u00feurfti a\u00f0 koma fram ein e\u00f0a me\u00f0 \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan lauk n\u00e1mi \u00ed s\u00e6nskum b\u00f3kmenntum vi\u00f0 H\u00cd 1977 me\u00f0 1. einkunn og svo lauk h\u00fan n\u00e1mi sem \u00f3perus\u00f6ngkona vi\u00f0 University of Hartford 1985. H\u00fan var perfeksj\u00f3nisti sem ger\u00f0i miklar kr\u00f6fur til sj\u00e1lfrar s\u00edn og annarra um lei\u00f0. \u00dea\u00f0 var ekki alltaf au\u00f0velt fyrir hana e\u00f0a \u00feau sem henni unnu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa hefur h\u00fan loki\u00f0 sinni f\u00f6r um l\u00edfsins veg, sem byrja\u00f0i svo gl\u00e6silega en lauk me\u00f0 l\u00f6ngum kafla sem virtist svo tilgangslaus og \u00e1n merkingar, en var \u00fe\u00f3 um lei\u00f0 t\u00edmabil \u00fear sem drengirnir hennar, tengdad\u00e6ttu og barnab\u00f6rn, \u00e1ttu me\u00f0 henni d\u00fdrm\u00e6tar stundir. J\u00f3laheims\u00f3knirnar voru sterkar. Pakkarnir voru teknir upp hj\u00e1 m\u00f6mmu og \u00f6mmu. Str\u00e1karnir bjuggu til gle\u00f0istundir hj\u00e1 henni hvern\u00e6r sem t\u00e6kif\u00e6ri gafst. Telma s\u00f6ng oft fyrir \u00f6mmu, allt fr\u00e1 unga aldri, og alltaf hlusta\u00f0i amma af al\u00fa\u00f0 og fylgdist vel me\u00f0. H\u00fan f\u00e9kk oft heims\u00f3knir fr\u00e1 s\u00ednum \u00e1stvinum og var \u00fev\u00ed \u00ed vissum skilningi m\u00f6ndull sem allir snerust um svo m\u00f3tsagnarkennt sem \u00fea\u00f0 annars kann a\u00f0 hlj\u00f3ma. H\u00fan heyr\u00f0i fr\u00e9ttir og fylgdist me\u00f0 af v\u00f6rum \u00feeirra sem komu og f\u00f3ru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Vi\u00f0 erum gestir og h\u00f3tel okkar er j\u00f6r\u00f0in.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi myndl\u00edking sk\u00e1ldsins lifir og er svo s\u00f6nn \u00feegar vi\u00f0 l\u00edtum yfir mannl\u00edfi\u00f0 og \u00ed eigin barm. Vi\u00f0 vitum a\u00f0 vi\u00f0 eigum t\u00edma \u00ed einhverri lengd \u00e1 \u00feessum gistista\u00f0 sem j\u00f6r\u00f0in er en enginn veit hversu langur hann er \u00ed raun. Oft hef \u00e9g fengi\u00f0 \u00fe\u00e1 bei\u00f0ni fr\u00e1 f\u00f3lki eftir meinta, vel heppna\u00f0a l\u00edkr\u00e6\u00f0u, a\u00f0 \u00e9g eigi a\u00f0 jar\u00f0a vi\u00f0m\u00e6landa minn og \u00fe\u00e1 svara \u00e9g yfirleitt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja: J\u00e1, ef \u00e9g ver\u00f0 sj\u00e1lfur lifandi og \u00ed lagi, en \u00e9g veit n\u00fa ekki hvort \u00e9g vakna \u00ed fyrram\u00e1li\u00f0, enda \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa haldir a\u00f0 \u00e9g hafi kannski betri samb\u00f6nd en \u00fe\u00fa!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn veit morgundaginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborg er horfin af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi og vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hennar og \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hefur n\u00fa hloti\u00f0 hv\u00edld. En h\u00fan lifir m.a. \u00ed s\u00f6ngvunum sem h\u00fan ger\u00f0i s\u00edgilda. Undurt\u00e6r r\u00f6dd hennar og t\u00falkun lj\u00f3\u00f0sins Vi\u00f0 Vatnsm\u00fdrina og fleiri s\u00f6ngvum, mun \u00e1fram lifa. \u00deegar br\u00f3\u00f0ir hennar var \u00ed sveit \u00ed Torstransfir\u00f0i, \u00fear sem h\u00fan haf\u00f0i sj\u00e1lf veri\u00f0 \u00ed sveit nokkur sumur, var f\u00f3lk \u00ed heyskap, sem aldrei m\u00e1tti trufla, en svo heyr\u00f0ist hr\u00f3pa\u00f0 af b\u00e6jarhla\u00f0inu: H\u00fan Vilborg er \u00ed \u00fatvarpinu! Ver\u00f6ldin st\u00f3\u00f0 kyrr me\u00f0an h\u00fan heilla\u00f0i \u00e1heyrendur um land allt og \u00feau sem ger\u00f0u hl\u00e9 \u00e1 heiskaparstriti. Og enn nj\u00f3tum vi\u00f0 s\u00f6ngs hennar og minnumst hennar fallega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00e6vi\u00e1gripum sem m\u00e9r b\u00e1rust segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Vilborg Sigr\u00ed\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir f. 7.1.1946 \u00e1 Lokast\u00edg 7 \u00ed Reykjav\u00edk<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan l\u00e9st \u00e1 &nbsp;hj\u00fakrunarheimilinu Eir 9.10.2020<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hennar voru \u00c1rni Bj\u00f6rnsson f 14.06.1923 l\u00e6knir og Gu\u00f0n\u00fd The\u00f3d\u00f3rsd\u00f3ttir Bjarnar f. 09.04.1922 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir. \u00deau eru b\u00e6\u00f0i l\u00e1tin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborg Sigr\u00ed\u00f0ur giftist Ara J\u00f3hannessyni l\u00e6kni. \u00deau skildu. B\u00f6rn \u00feeirra eru J\u00f3hannes f. 12.09.1970 hann var \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Bjarney Bjarnad\u00f3ttur, b\u00f6rn \u00feeirra eru Telma og Ari. \u00c1rni Gautur kv\u00e6ntur S\u00f3lveigu \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttur, b\u00f6rn \u00feeirra eru Vilborg El\u00edsabet og Kristj\u00e1n P\u00e9tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborgar var elst 6 systkina. \u00deau eru Krist\u00edn f\u00e6dd 1948, Bj\u00f6rn Th. f.&nbsp; 1950, Einar Sveinn f. 1952, \u00c1rni f. 1956 og Vilhj\u00e1lmur Jens f. 1964.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborg lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk 1966 og lauk s\u00ed\u00f0an Ba-pr\u00f3fi \u00ed s\u00e6nskri b\u00f3kmenntas\u00f6gu fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands1977&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan stunda\u00f0i s\u00f6ngn\u00e1m h\u00e9r heima og s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 Guildhall School of Music \u00ed London 1969. H\u00fan h\u00e9lt svo \u00e1fram s\u00f6ngn\u00e1mi \u00ed University of Hart \u00ed Hartford \u00ed Bandar\u00edkjunum og lauk \u00fea\u00f0an n\u00e1mi 1985.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan s\u00f6ng me\u00f0 \u00fdmsum k\u00f3rum. Einnig s\u00f6ng h\u00fan me\u00f0 d\u00faetinum Heimi og J\u00f3nasi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborg starfa\u00f0i vi\u00f0 Heims\u00fdninguna EXPO \u00ed Kananda 1967.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Synirnir minnast m\u00f6mmu fallega og efst er \u00feeim \u00ed huga gle\u00f0in sem fylgdi henni og elskusemin. H\u00fan sag\u00f0i aldrei nei, segja \u00feeir. H\u00fan var gestrisin og t\u00f3k \u00e6t\u00ed\u00f0 vel \u00e1 m\u00f3ti f\u00f3lki. H\u00fan \u00feeyttist me\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3tta\u00e6fingar og t\u00f3mstundastarf \u00ed bernsku og lag\u00f0i sig alla fram um a\u00f0 \u00feeim li\u00f0i vel. H\u00fan var kvenr\u00e9ttindakona og n\u00e1tt\u00faruverndarsinni me\u00f0 r\u00edka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar h\u00fan var vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed Guildhall var h\u00fan \u00feegar tekin inn \u00ed k\u00f3r sk\u00f3lans og fj\u00f6lskyldume\u00f0limir sem heims\u00f3ttu hana \u00ed London tala um a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 hreint \u00e6vint\u00fdri a\u00f0 koma til hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau minnast hennar sem geislandi manneskju, h\u00fan var falleg, vel gefin og haf\u00f0i smitandi hl\u00e1tur og au\u00f0s\u00fdndi \u00feeim mikla umhyggju. H\u00fan var elst systkina sinna og gegndi \u00fev\u00ed hlutverki af al\u00fa\u00f0 og \u00e1byrg\u00f0. H\u00fan var vandvirk, skrifa\u00f0i vel og n\u00e1\u00f0i jafnan g\u00f3\u00f0um einkunnum \u00ed sk\u00f3la og allt l\u00e9k \u00ed h\u00f6ndum hennar. H\u00fan t\u00f3k miki\u00f0 pl\u00e1ss hj\u00e1 pabba, s\u00f6g\u00f0u systkinin, og \u00ed stofunni l\u00edka, h\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00fear og \u00feurfti sitt pl\u00e1ss!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan kenndi \u00feeim a\u00f0 meta klass\u00edska t\u00f3nlist, gaf \u00feeim pl\u00f6tur. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i s\u00f6ng m.a. hj\u00e1 G\u00f6ggu Lund og t\u00f3nfr\u00e6\u00f0i hj\u00e1 \u00deorkeli Sigurbj\u00f6rnssyni og fleirum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk la\u00f0a\u00f0ist a\u00f0 henni og h\u00fan var vins\u00e6l og kalla\u00f0i \u00e1 athygli me\u00f0 pers\u00f3nu sinni og \u00fatgeislun. H\u00fan var f\u00e9lagslynd og toppurinn \u00ed tilverunni voru synirnir sem h\u00fan fylgdist me\u00f0 og gladdist yfir afrekum \u00feeirra og sigrum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edf hennar bar \u00ed s\u00e9r mikil fyrirheit, en eins og vi\u00f0 vitum \u00fe\u00e1 var l\u00edf hennar tv\u00edskipt, fyrir og eftir veikindin. Enginn velur s\u00e9r veikindi e\u00f0a grimm \u00f6rl\u00f6g. L\u00edfi\u00f0 geymir margar g\u00e1tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan naut g\u00f3\u00f0rar um\u00f6nnunar \u00fear sem h\u00fan bj\u00f3 seinustu \u00e1rin. H\u00fan var um t\u00edma \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um og Landakoti og svo \u00e1 Eir og \u00feakka \u00e1stvinir fyrir alla \u00fe\u00e1 umhyggju sem h\u00fan hlaut af h\u00e1lfu heilbrig\u00f0isstarfsf\u00f3lks.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan lifir \u00ed minningum okkar og s\u00f6ngurinn hennar mun \u00e1fram lifa, s\u00f6ngurinn me\u00f0 Heimi og J\u00f3nasi, sem var einskonar innskot \u00ed l\u00edfi hennar \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, \u00fev\u00ed h\u00fan haf\u00f0i ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 ver\u00f0a vins\u00e6l \u00fej\u00f3\u00f0laga- og \u00fea\u00f0an af s\u00ed\u00f0ur d\u00e6gurlagas\u00f6ngkona.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00f6ddin t\u00e6ra og bjarta lifir. S\u00f6ngur og t\u00f3nlist eru undur sem gle\u00f0ja f\u00f3lk um ver\u00f6ld v\u00ed\u00f0a. Vi\u00f0 \u00fer\u00edfumst ekki \u00e1n listar og menningar. Or\u00f0i\u00f0 menning heitir <em>k\u00falt\u00far<\/em> \u00e1 flestum m\u00e1lum en hj\u00e1 okkur er \u00fea\u00f0 tengt manneskjunni og \u00fev\u00ed sem mannf\u00f3lki\u00f0 gefur af s\u00e9r. Svo m\u00e1 spyrja: Hva\u00f0an kemur t\u00f3nlistin? Hva\u00f0an koma okkur hugmyndirnar um r\u00e9ttl\u00e6ti, fegur\u00f0, sannleika og fleira sem lifir \u00ed hj\u00f6rtum okkar og vitund? Eru \u00feessi hugt\u00f6k og fyrirbrig\u00f0i ekki eil\u00edf eins og frummyndirnar \u00ed kenningum Plat\u00f3ns, eitthva\u00f0 sem er eil\u00edft og ofar \u00f6llu, eitthva\u00f0 sem vi\u00f0 getum skynja\u00f0 \u00ed brj\u00f3stinu fremur en \u00ed heilanum, \u00ed hjartanu, eins og sagt er? \u00c9g jar\u00f0s\u00f6ng mikinn t\u00f3nlistarfr\u00f6mu\u00f0 \u00ed h\u00e9ra\u00f0i s\u00ednu \u00ed Noregi fyrir nokkrum \u00e1rum og \u00fe\u00e1 kom \u00e9g inn\u00e1 \u00feessa \u00feanka og sag\u00f0i a\u00f0 t\u00f3nlistarf\u00f3lk gegni \u00fev\u00ed hlutverki a\u00f0 tengja vi\u00f0 himininn og f\u00e6ra okkur hi\u00f0 himneska me\u00f0 t\u00falkun sinni \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Og \u00feegar vi\u00f0 \u00ed lok \u00feessarar athafnar heyrum Vilgorgu syngja H\u00f3tel J\u00f6r\u00f0, \u00fe\u00e1 skulum vi\u00f0 hugsa um \u00feennan \u00fer\u00e1\u00f0 a\u00f0 ofan og nema viskuna \u00ed lj\u00f3\u00f0i T\u00f3masar og t\u00f3nunum sem Heimir s\u00f3tti \u00far eil\u00edfi\u00f0inni og s\u00f6ng \u00feeirra \u00feriggja, Vilborgar, Heimis og J\u00f3nasar, sem er \u00f3dau\u00f0leg t\u00falkun \u00e1 fegur\u00f0 jar\u00f0ar, mannl\u00edfsins og vegfer\u00f0 okkar allra um l\u00edfsins veg. Vi\u00f0 skulum hlusta eins og f\u00f3lki\u00f0 \u00ed sveitinni for\u00f0um sem lag\u00f0i ni\u00f0ur \u00f6ll st\u00f6rf, hlj\u00f3p heim \u00ed b\u00e6inn og hl\u00fdddi \u00e1 himneskan s\u00f6nginn. Ver\u00f6ldin st\u00f3\u00f0 kyrr eitt andartak.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3mas orti margt fagurt og \u00e9g hef oft vitna\u00f0 \u00ed lj\u00f3\u00f0i\u00f0 hans um hana Anadyomene sem er anna\u00f0 nafn yfir Venus og Afr\u00f3d\u00edtu. Hann s\u00e1 konu st\u00edga upp \u00far \u00f6ldum Adr\u00edahafsins \u00e1 s\u00f3lbaka\u00f0ri str\u00f6nd og \u00feakka\u00f0i fyrir a\u00f0 vera lifandi og hafa &#8220;f\u00e6\u00f0zt \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0&#8221; &#8211; og skrifa\u00f0i af \u00fev\u00ed tilefni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 er \u00e1 sl\u00edkum stundum, a\u00f0 ma\u00f0ur getur gert s\u00e9r<br \/>eins grein fyrir \u00fev\u00ed og vert er,<br \/>a\u00f0 kynsl\u00f3\u00f0 vor hin eina kynsl\u00f3\u00f0 er,<br \/>sem n\u00fdtur \u00feeirrar hamingju a\u00f0 hafa ekki d\u00e1i\u00f0.<br \/>Svo hjartanlega n\u00e1i\u00f0<br \/>er l\u00edfi\u00f0 okkur enn, sem betur fer.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Anadyomene, Stj\u00f6rnur vorsins, 3. erindi)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, vi\u00f0 erum eina kynsl\u00f3\u00f0 veraldars\u00f6gunnar sem ekki er d\u00e1in. Me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga g\u00f6ngum vi\u00f0 \u00fat \u00ed hausti\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum litbrig\u00f0um og fegur\u00f0 og m\u00e6tum vetri og veiru me\u00f0 von \u00ed hjarta og \u00fe\u00f6kk fyrir fegur\u00f0 l\u00edfsins og fyrir \u00feau sem voru okkur k\u00e6r en eru fallin sem lauf og ver\u00f0a aftur a\u00f0 mold. Og hva\u00f0 svo?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9ra Hallgr\u00edmur orti \u00ed s\u00e1lminum Um dau\u00f0ans \u00f3vissan t\u00edma og sag\u00f0i \u00fear m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Afl dau\u00f0ans eins nam krenkja<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">alla \u00ed ver\u00f6ld h\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skal \u00e9g \u00fe\u00e1 \u00feurfa a\u00f0 \u00feenkja,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hann \u00feyrmi einum m\u00e9r?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Adams er e\u00f0li runni\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed mitt n\u00e1tt\u00farlegt hold,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00e9g hef \u00fear og til unni\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">aftur a\u00f0 ver\u00f0a mold.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd lokaversinu l\u00fdsir sk\u00e1ldi\u00f0 sinni kristnu von og \u00e6\u00f0ruleysi andsp\u00e6nis dau\u00f0anum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g lifi&#8217; \u00ed Jes\u00fa nafni,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed Jes\u00fa nafni&#8217; eg dey,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00f3 heilsa&#8217; og l\u00edf m\u00e9r hafni,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hr\u00e6\u00f0ist \u00e9g dau\u00f0ann ei.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo \u00e1varpar hann dau\u00f0ann og \u00fea\u00f0 er eins og hann horfist \u00ed augu vi\u00f0 hann og svo heldur hann \u00e1fram og botnar s\u00e1lminn:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dau\u00f0i, \u00e9g \u00f3ttast eigi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">afl \u00feitt n\u00e9 valdi\u00f0 gilt,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed Krist\u00ed krafti&#8217; eg segi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kom \u00fe\u00fa s\u00e6ll, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa vilt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilborg \u00e1tti s\u00edna tr\u00fa og eil\u00edf\u00f0arvon.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin kristna von er s\u00fa a\u00f0 l\u00edf okkar, sem \u00e1 s\u00e9r a\u00f0 v\u00edsu upphaf, eig s\u00e9r ekki endi, sem sl\u00edkt, heldur lifi \u00ed n\u00fdrri mynd, fyrir Jes\u00fa Krist, \u00ed eil\u00edf\u00f0inni, endurleyst fyrir n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s og elsku &#8211; endurleyst!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Vilborgar Sigr\u00ed\u00f0ar \u00c1rnad\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig \u00e1 l\u00edfsins vegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00d3TEL J\u00d6R\u00d0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum gestir og h\u00f3tel okkar er j\u00f6r\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einir fara og a\u00f0rir koma \u00ed dag<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fev\u00ed alltaf b\u00e6tast n\u00fdir h\u00f3par \u00ed sk\u00f6r\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og til eru \u00fdmsir sem fer\u00f0alag \u00feetta \u00fer\u00e1,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en \u00fe\u00f3 eru margir sem fer\u00f0alaginu kv\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og sumum liggur rei\u00f0innar \u00f3sk\u00f6p \u00e1,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en a\u00f0rir setjast vi\u00f0 h\u00f3telgluggann og b\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fea\u00f0 er margt um manninn \u00e1 svona sta\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og me\u00f0al gestanna&#8217; er s\u00edfelldur \u00feys og l\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt lendir \u00ed st\u00f6\u00f0ugri keppni&#8217; um a\u00f0 koma s\u00e9r<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og kr\u00e6kja s\u00e9r \u00ed n\u00f3gu \u00fe\u00e6gilegt s\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fe\u00f3 eru margir sem l\u00e1ta s\u00e9r lynda \u00fea\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a\u00f0 lifa&#8217; \u00fati&#8217; \u00ed horni \u00f3\u00e1reittir og spakir,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er svo misjafnt sem mennirnir leita a\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og misjafn tilgangurinn sem fyrir \u00feeim vakir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En m\u00f6rgum finnst h\u00fan d\u00fdr \u00feessi h\u00f3teldv\u00f6l<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00f3 deilt s\u00e9 um hvort h\u00f3teli\u00f0 sj\u00e1lft muni gr\u00e6\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En vi\u00f0 sem fer\u00f0umst eigum ei annars v\u00f6l,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fea\u00f0 er ekki um fleiri gistista\u00f0i a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 v\u00edsu eru flestir velkomnir \u00feanga\u00f0 inn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og vi\u00f0b\u00fana\u00f0ur er gestirnir koma&#8217; \u00ed b\u00e6inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og margir \u00ed allsn\u00e6gtum una \u00fear fyrst um sinn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en \u00e1hyggjan vex er menn n\u00e1lgast burtfer\u00f0ardaginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 streymir s\u00fa hugsun um oss sem \u00edskaldur foss<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a\u00f0 allt ver\u00f0i loks upp \u00ed dv\u00f6lina teki\u00f0 fr\u00e1 oss,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">er dau\u00f0inn, s\u00e1 mikli rukkari, r\u00e9ttir oss<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">reikninginn yfir \u00fea\u00f0 sem skrifa\u00f0 var hj\u00e1 oss.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 ver\u00f0ur oss lj\u00f3st a\u00f0 framar ei frestur gefst<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">n\u00e9 f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0stafa nokkru betur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed alls sem l\u00edfi\u00f0 l\u00e1na\u00f0i dau\u00f0inn krefst<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed l\u00edku hlutfalli&#8217; og Met\u00fasalem og P\u00e9tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Texti: T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>+Vilborg Sigr\u00ed\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir 1946-2020 S\u00f6ngkona B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskirkju m\u00e1nudaginn 19. okt\u00f3ber 2020 kl. 15 Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed H\u00f3lavallagar\u00f0i Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson _____ &#8220;Tilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag&#8221;. \u00c9g veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki \u00fdkja frumlegt a\u00f0 byrja minningaror\u00f0 yfir henni Vilborgu Sigr\u00ed\u00f0i \u00c1rnad\u00f3ttur me\u00f0 tilv\u00edsun \u00ed lj\u00f3\u00f0 T\u00f3masar Gu\u00f0mundssonar, H\u00f3tel J\u00f6r\u00f0! En svo [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[246,333,453],"class_list":["post-2503","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-minningarord"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2503","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2503"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2503\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2503"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2503"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2503"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}