{"id":2361,"date":"2020-07-13T22:15:24","date_gmt":"2020-07-13T22:15:24","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=2361"},"modified":"2020-07-13T22:15:24","modified_gmt":"2020-07-13T22:15:24","slug":"ad-brengla-sjalfa-threnninguna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2361","title":{"rendered":"A\u00f0 brengla sj\u00e1lfa \u00ferenninguna"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edklega \u00fe\u00e6ttu \u00fea\u00f0 t\u00ed\u00f0indi til n\u00e6sta b\u00e6jar, sem g\u00e6tu jafnvel valdi\u00f0 kirkjuklofningi, leitt til styrjaldar og a\u00f0skilna\u00f0ar \u00fej\u00f3\u00f0a og menningaheilda, ef menn l\u00e9tu s\u00e9r detta \u00ed huga a\u00f0 brengla sj\u00e1lfa \u00ferennninguna, Heilaga \u00ferenningu.<br \/>\u00a0<br \/>Hva\u00f0 er \u00e9g a\u00f0 fara me\u00f0 \u00feessum inngangi? L\u00edtum n\u00e1nar \u00e1 m\u00e1li\u00f0. J\u00e1, M\u00c1LI\u00d0 sj\u00e1lft.<br \/>\u00a0<br \/>Eitt \u00feekktasta \u00e1varp \u00far starfi okkar presta er \u00feetta: \u00a0<br \/>\u00a0<br \/>&#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s, f\u00f6\u00f0ur og sonar og heilags anda.&#8221;<br \/>\u00a0<br \/>\u00deetta l\u00e6tur ekki miki\u00f0 yfir s\u00e9r og er sakleysislegt l\u00edtur einfalt \u00fat \u00e1 b\u00f3k en vandinn vaknar \u00feegar m\u00e6la skal fram \u00feessi or\u00f0. Allt of margir kollega minna, brengla nefnilega \u00ferenninguna me\u00f0 r\u00f6ngum frambur\u00f0i.<\/p>\n<p><!--more-->\u00a0<br \/>Minn g\u00f3\u00f0i kennari \u00ed tr\u00faf\u00e6\u00f0i, dr. Einar Sigurbj\u00f6rnsson, blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans, f\u00f3r me\u00f0 okkur yfir \u00feetta \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og minnti \u00e1 mikilv\u00e6gi kommunnar sem fylgir Gu\u00f0i. H\u00fan skiptir \u00f6llu og ver\u00f0ur a\u00f0 heyrast \u00ed m\u00e6ltu m\u00e1li me\u00f0 \u00f6rl\u00edtilli \u00fe\u00f6gn. J\u00e1, \u00fe\u00f6gnin segir svo miki\u00f0 og vanti hana \u00ed \u00e1varpinu er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 brengla sj\u00e1lfan gu\u00f0d\u00f3minn, hvorki meira n\u00e9 minna.<br \/>Handb\u00f3kin hefur kross \u00ed sta\u00f0 kommu milli Gu\u00f0s og f\u00f6\u00f0ur: &#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s + f\u00f6\u00f0ur, sonar og heilags anda.&#8221; \u00dea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 vera \u00e1minning til a\u00f0 taka \u00f6rlitla k\u00fanstp\u00e1su. <br \/><br \/>Margir prestar segja:\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>&#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s f\u00f6\u00f0ur, sonar og heilags anda.&#8221;\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>Fyrri komman er horfin \u00far \u00e1varpinu. H\u00fan hverfur \u00ed m\u00e6ltu m\u00e1li \u00fear sem h\u00fan \u00e1 \u00ed raun a\u00f0 vera og \u00fear me\u00f0 h\u00e6ttir Gu\u00f0 a\u00f0 vera \u00fer\u00edeinn og ver\u00f0ur tv\u00edeinn, sonur og heilagur andi. Fa\u00f0irinn hverfur einhvern veginn og v\u00f6\u00f0last inni \u00ed byrjunina og kemst aldrei \u00fat \u00far upphafinu. \u00dea\u00f0 er engu l\u00edkara en a\u00f0 hann hafi bara h\u00e6tti vi\u00f0 sk\u00f6punina \u00ed mi\u00f0jum kl\u00ed\u00f0um og fari\u00f0 \u00ed laaaaanga p\u00e1su og me\u00f0 vestfirzkum frambur\u00f0i, Nota Bene.<br \/>\u00a0<br \/>\u00cd \u00e1varpinu er Gu\u00f0 frumlagi\u00f0 og hann skilgreindur n\u00e1nar me\u00f0 \u00ferefaldri einkunn, fa\u00f0ir og sonur og heilagur andi.<br \/>\u00a0<br \/>Til a\u00f0 setja \u00feetta fram me\u00f0 sk\u00fdrum h\u00e6tti skrifa \u00e9g \u00feetta svo:<br \/>\u00a0<br \/>\u00cd nafni Gu\u00f0s &#8211; (og h\u00e9r kemur \u00f6rstutt \u00fe\u00f6gn)-\u00a0<br \/>f\u00f6\u00f0ur<br \/>og\u00a0<br \/>sonar\u00a0<br \/>og<br \/>heilags anda,\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>sem lesa skal eins og teknir s\u00e9u \u00fer\u00edr taktar \u00ed valsi (\u00e9g kann n\u00fa reyndar l\u00edti\u00f0 fyrir m\u00e9r \u00ed dansi) e\u00f0a \u00ferj\u00e1r stuttar sveiflur.<br \/>\u00a0<br \/>N\u00fdlega, heyr\u00f0i \u00e9g unga konu (sem \u00e9g man \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki nafni\u00f0 \u00e1, og kannski sem betur fer, hennar vegna), flytja morgunb\u00e6n \u00e1 R\u00e1s 1, sem h\u00f3fst \u00e1 umr\u00e6ddu \u00e1varpi enl hlj\u00f3\u00f0a\u00f0i svo:\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>&#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s, sonar og heilags anda.&#8221;\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>\u00c9g spur\u00f0i sj\u00e1lfan mig: Datt fa\u00f0irinn \u00fat vegna mistaka e\u00f0a er \u00feetta hennar skilgreining \u00e1 Gu\u00f0i, a\u00f0 hann s\u00e9 tv\u00edeinn, e\u00f0a vildi h\u00fan sameina hugsunina um Gu\u00f0, sem b\u00e6\u00f0i f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur, og \u00fear af lei\u00f0andi sleppt a\u00f0 nota einkunnina fa\u00f0ir\/m\u00f3\u00f0ir? Ef svo er \u00fe\u00e1 hefur henni mistekist \u00fev\u00ed \u00ed setningunni: &#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s, sonar og heilags anda&#8221;, er enginn fa\u00f0ir og engin m\u00f3\u00f0ir og \u00fear af lei\u00f0andi bara sonur og heilagur andi. Gu\u00f0 er \u00fe\u00e1 or\u00f0inn tv\u00edeinn. Hafi henni or\u00f0i\u00f0 \u00e1 or\u00f0fall, sem hent getur alla, \u00fe\u00e1 er m\u00e1li\u00f0 leyst, en ef \u00feetta var \u00e6tlu\u00f0 meining, \u00fe\u00e1 \u00fearf n\u00fa heldur betur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00ed h\u00f3pi gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inga og allra kristinn manna, sem j\u00e1ta tr\u00fa \u00e1 \u00fer\u00edeinan Gu\u00f0. Sl\u00edkar breytingar ver\u00f0a ekki ger\u00f0ar af neinum, sem bara finnst a\u00f0 \u00feetta geti veri\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti. Minna m\u00e1 \u00e1 a\u00f0 kirkjan klofna\u00f0i \u00fat af einu or\u00f0i, filioque, \u00e1ri\u00f0 1054. Vona a\u00f0 h\u00e9r ver\u00f0i brenglu\u00f0 \u00ferenning ekki til \u00feess a\u00f0 \u00far ver\u00f0i brenglu\u00f0 og klofin kirkja!<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-2419\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/07\/ebc61a42-c586-4429-a187-f9e77436eddc.jpeg?w=300\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"190\" \/><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00a0<br \/>Svo er \u00fea\u00f0 nafni\u00f0 Jes\u00fas.<br \/>\u00a0<br \/>\u00dea\u00f0 er svo einfalt \u00e1 \u00edslensku \u00ed f\u00f6llunum fj\u00f3rum:<br \/>Jes\u00fas<br \/>Jes\u00fa<br \/>Jes\u00fa\u00a0<br \/>Jes\u00fa.<br \/>\u00a0<br \/>\u00deetta er beygingin sem t\u00f3k vi\u00f0 af hinni eldri:<br \/>Jes\u00fas<br \/>Jes\u00fam<br \/>Jes\u00fa<br \/>Jes\u00fa.\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>Sj\u00e1 fr\u00f3o\u00f0leiksmola h\u00e9r: https:\/\/bin.arnastofnun.is\/korn\/21<br \/>\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>M\u00e9r \u00feykir alltaf d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 heyra gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inga og presta sem seti\u00f0 hafa yfir Jes\u00fa-fr\u00e6\u00f0um \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og hafa jafnvel doktorsgr\u00e1\u00f0ur, segja Jes\u00fa \u00ed nefnifalli. \u00c9g veit a\u00f0 gamla \u00e1varpsfalli\u00f0 var Jes\u00fa en \u00fea\u00f0 er n\u00fa horfi\u00f0 \u00far m\u00e6ltu m\u00e1li en finnst enn \u00ed g\u00f6mlum kve\u00f0skap eins og t.d. &#8220;\u00d3, Jes\u00fa br\u00f3\u00f0ir besti&#8221; sem var breytt \u00ed Jes\u00fas \u00ed n\u00fdrri ger\u00f0um s\u00e1lmab\u00f3karinnar til a\u00f0 m\u00e6ta brottf\u00f6llnu \u00e1varpsfallinu.<br \/>\u00a0<br \/>\u00cd 40 \u00e1r hef \u00e9g strita\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 reita m\u00e1larfa \u00far m\u00ednu be\u00f0i og er ekki enn kominn a\u00f0 verklokum \u00fev\u00ed \u00feeim l\u00fdkur ekki fyrr en me\u00f0 dau\u00f0a m\u00ednum. A\u00f0 tala g\u00f3\u00f0a \u00edslensku er st\u00f6\u00f0ug vinna og fyrir okkur sem stundum \u00fea\u00f0 a\u00f0 tala &#8211; og \u00fea\u00f0 \u00ed \u00e1heyrn almennings &#8211; er \u00fea\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlega mikilv\u00e6gt a\u00f0 stunda m\u00e1lr\u00e6kt og arfahreinsun.<br \/>\u00a0<br \/>Elskulegir kollegar sem af og til m\u00e6ttu \u00ed messu hj\u00e1 m\u00e9r e\u00f0a voru vi\u00f0staddir \u00fatf\u00f6r, s\u00f6g\u00f0u sumir vi\u00f0 mig vingjarnlega: &#8220;\u00de\u00fa lest fa\u00f0irvori\u00f0 of hratt.&#8221;\u00a0J\u00e1, \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 stundum liggur m\u00e9r \u00e1 og er st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 reyna a\u00f0 bremsa mig af.\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>Me\u00f0an \u00e9g var \u00ed Noregi messa\u00f0i \u00e9g kl. 11 og \u00feegar heim kom a\u00f0 messu lokinni hlusta\u00f0i \u00e9g oft \u00e1 \u00fatvarpsmessur a\u00f0 heiman sem voru a\u00f0 hefjast um kl. 13 a\u00f0 norskum t\u00edma. Fyrir utan brengla\u00f0a \u00ferenningu \u00ed upphafi messu \u00e1ttu sumir \u00ed mesta basli me\u00f0 a\u00f0 beygja or\u00f0i\u00f0 Jes\u00fas og svo kom tr\u00faarj\u00e1tningin og almenna b\u00e6nin, \u00e1samt fa\u00f0irvori eins og presturinn v\u00e6ri a\u00f0 flaka fisk \u00ed akkor\u00f0i. \u00c9g var \u00ed messu h\u00e9r heima n\u00fdlega og gat engan veginn fylgt prestinum \u00ed fa\u00f0irvori e\u00f0a tr\u00faarj\u00e1tningu, svo miki\u00f0 l\u00e1 honum \u00e1. Kannski er \u00e9g bara or\u00f0inn gamall og heyri h\u00e6gar en \u00e1\u00f0ur, en m\u00e9r finnst reyndar svo ekki vera, \u00fev\u00ed \u00e9g upplifi mig enn ungan og spr\u00e6kan.<br \/>\u00a0<br \/>En \u00ed vetur heyr\u00f0i \u00e9g messu \u00ed \u00fatvarpi fr\u00e1 Lindakirkju og \u00fear f\u00f3r hann s\u00e9ra Gu\u00f0ni M\u00e1r Har\u00f0arson me\u00f0 b\u00e6n og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i hann af hreinni snilld hva\u00f0 var\u00f0ar framsetningu \u00fev\u00ed hann las eins og enginn v\u00e6ri rita\u00f0ur texti heldur bara b\u00e6n fr\u00e1 eigin brj\u00f3sti. Hann ba\u00f0 svo h\u00e6gt og fallega a\u00f0 ma\u00f0ur f\u00e9kk \u00fe\u00e1 tilfinningu a\u00f0 hugur fylgdi m\u00e1li, a\u00f0 tr\u00faar\u00feel fylgdi or\u00f0um og inntaki. Hann var a\u00f0 bi\u00f0ja. Hann var a\u00f0 tala vi\u00f0 Gu\u00f0 en ekki a\u00f0 keyra textarunu \u00e1 f\u00e6ribandi. \u00dea\u00f0 er vandi a\u00f0 flytja rita\u00f0an texta svo a\u00f0 \u00e1heyrandanum finnist hann vera \u00e1varpa\u00f0ur e\u00f0a skynji a\u00f0 tala\u00f0 s\u00e9 fyrir hans h\u00f6nd \u00ed b\u00e6n til Gu\u00f0s.<br \/>\u00a0<br \/>H\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr \u00feegar teki\u00f0 var vi\u00f0tal vi\u00f0 f\u00f3lk \u00ed \u00fatvarpi og \u00fea\u00f0 spurt, heyr\u00f0i ma\u00f0ur hvort svarandinn svara\u00f0i beint, e\u00f0a haf\u00f0i undirb\u00fai\u00f0 sig fyrirfram og m\u00e6tt me\u00f0 ritu\u00f0 sv\u00f6r og lesi\u00f0.\u00a0 N\u00fa kemst enginn upp me\u00f0 a\u00f0 koma \u00ed vi\u00f0tal \u00ed \u00fatvarpi me\u00f0 ritu\u00f0 sv\u00f6r vi\u00f0 fyrframfengnum spurningum.\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>Engan man \u00e9g fara betur me\u00f0 rita\u00f0a texta \u00ed \u00fatvarpi, en s\u00e9ra Bernhar\u00f0 Gu\u00f0mundsson, sem oft st\u00fdr\u00f0i \u00fe\u00e1ttum \u00e1 R\u00fav h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr. Hann las texta eins og um m\u00e6lt m\u00e1l v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e1\u00f0a.<br \/>\u00a0<br \/>A\u00f0 flytja m\u00e6lt m\u00e1l er vandasamt og \u00ed raun er \u00fea\u00f0 list a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 vel. Tungum\u00e1li\u00f0 er t\u00f3nlist, m\u00e1li\u00f0 er m\u00fasikk, og \u00fev\u00ed skiptir hrynjandin miklu, h\u00fan skiptir \u00ed raun mestu.<br \/>\u00a0<br \/>\u00deessir \u00feankar m\u00ednir lei\u00f0a kannski til \u00feess a\u00f0 \u00e9g taki fyrir anna\u00f0 m\u00e1l, \u00fe.e. nau\u00f0lendingar \u00e1r\u00e1ttuna, sem r\u00edkir \u00ed lj\u00f3svakami\u00f0lum um \u00feessar mundir, en h\u00fan kemur fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6llum setningum er nau\u00f0lent me\u00f0 hrapt\u00f3ni \u00ed lok hverrar setningar, sem virkar eins og allt m\u00e1l endi \u00e1 lei\u00f0indat\u00f3ni. Tek \u00fea\u00f0 kannski fyrir seinna.<br \/>\u00a0<br \/>En munum a\u00f0 brengla ekki sj\u00e1lfa \u00ferenninguna.\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>T\u00f6kum p\u00e1su \u00e1 fyrstu kommunni!\u00a0<br \/>\u00a0<br \/>Munum \u00feetta:<br \/>\u00a0<br \/>Anda inn &#8211; og anda \u00fat!<br \/><br \/>&#8220;\u00cd nafni Gu\u00f0s + f\u00f6\u00f0ur, sonar og heilags anda.&#8221;<br \/>\u00a0<br \/>&#8211; &#8211; &#8211;<br \/>Myndina sem birt er h\u00e9r a\u00f0 framan teikna\u00f0i \u00e9g fyrir nokkrum \u00e1rum. H\u00fan s\u00fdnir kunnuglega sk\u00fdringu Ensku kirkjunnar &#8211; Church of England &#8211; \u00e1 Heilagri \u00ferenningu.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00edklega \u00fe\u00e6ttu \u00fea\u00f0 t\u00ed\u00f0indi til n\u00e6sta b\u00e6jar, sem g\u00e6tu jafnvel valdi\u00f0 kirkjuklofningi, leitt til styrjaldar og a\u00f0skilna\u00f0ar \u00fej\u00f3\u00f0a og menningaheilda, ef menn l\u00e9tu s\u00e9r detta \u00ed huga a\u00f0 brengla sj\u00e1lfa \u00ferennninguna, Heilaga \u00ferenningu.\u00a0Hva\u00f0 er \u00e9g a\u00f0 fara me\u00f0 \u00feessum inngangi? L\u00edtum n\u00e1nar \u00e1 m\u00e1li\u00f0. J\u00e1, M\u00c1LI\u00d0 sj\u00e1lft.\u00a0Eitt \u00feekktasta \u00e1varp \u00far starfi okkar presta er \u00feetta: [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-2361","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2361","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2361"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2361\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2361"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2361"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2361"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}