{"id":2332,"date":"2020-06-20T22:19:22","date_gmt":"2020-06-20T22:19:22","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=2332"},"modified":"2020-06-20T22:19:22","modified_gmt":"2020-06-20T22:19:22","slug":"skodanaleysi-og-politik","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2332","title":{"rendered":"Sko\u00f0analeysi og p\u00f3lit\u00edk"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deekkir \u00fe\u00fa einhvern sem hefur engar sko\u00f0anir? \u00deekkir \u00fe\u00fa einhvern sem ekki er p\u00f3lit\u00edskur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 merkir or\u00f0i\u00f0 p\u00f3lit\u00edk? Hva\u00f0an er \u00fea\u00f0 komi\u00f0? Or\u00f0i\u00f0 kemur \u00far gr\u00edsku. Or\u00f0i\u00f0 er <em>polis<\/em> sem merkir <em>borg<\/em> og <em>p\u00f3lit\u00edk<\/em> er \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 sem var\u00f0ar borgarana, f\u00f3lki\u00f0, velfer\u00f0 \u00feess og kj\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1906\" height=\"727\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0133.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2317\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef einhver er ekki p\u00f3lit\u00edskur, \u00fe.e. l\u00e6tur sig engu var\u00f0a almannahag, hefur engar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig l\u00edfinu skal lifa\u00f0 og hvernig skilgreina ber \u201cl\u00edf me\u00f0 reisn\u201d og hvernig sty\u00f0ja ber allt gott sem stefnir l\u00edfinu til \u00feess sem vi\u00f0 k\u00f6llum manns\u00e6mandi l\u00edf, \u00fe\u00e1 er hann \u00ed raun einhverskonar dau\u00f0yfli sem \u00ed or\u00f0ab\u00f3k er skilgreint me\u00f0 or\u00f0unum:&nbsp;<em>hr\u00e6, letibl\u00f3\u00f0, rola, skussi.<\/em><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1022\" height=\"848\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0128.jpg?w=1022\" alt=\"\" class=\"wp-image-2310\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deorvaldur Gylfason, pr\u00f3fessor \u00ed hagfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00cd, var talinn of p\u00f3lit\u00edskur til a\u00f0 gegna ritstj\u00f3rastarfi hagfr\u00e6\u00f0it\u00edmarits \u00ed norr\u00e6nu samstarfi, d\u00e6mdur fyrir sko\u00f0anir s\u00ednar af fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Bjarna Benediktssyni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1sk\u00f3lapr\u00f3fessorar geta a\u00f0 m\u00ednu viti ekki veri\u00f0 \u00f3p\u00f3lit\u00edskir, geta ekki veri\u00f0 sko\u00f0analausir um m\u00e1lefni \u00feess samf\u00e9lags, sem \u00feeir lifa og hr\u00e6rast \u00ed, en \u00feeir geta vissulega veri\u00f0 \u00f3flokksbundnir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef m\u00ednar p\u00f3lit\u00edsku hugmyndir um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna og \u00fe\u00e6r eru m\u00f3ta\u00f0ar af kristinn tr\u00fa, af Jes\u00fa Kristi og \u00feeirri hef\u00f0, sem hann spratt \u00far. \u00c9g er fv. s\u00f3knarprestur me\u00f0 sko\u00f0anir sem kristinn ma\u00f0ur og \u00fe\u00e6r l\u00e6t \u00e9g \u00ed lj\u00f3si og t\u00falka \u00fat fr\u00e1 kristinni kenningu og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i og hugmyndum kristninnar um r\u00e9ttl\u00e6ti. \u00c9g \u00f3lst upp \u00e1 heimili foreldra sem kusu Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn \u00e1 d\u00f6gum kalda str\u00ed\u00f0sins, en voru \u00fe\u00f3 farin a\u00f0 efast \u00e1 efri \u00e1rum s\u00ednum um heilindi flokksins, eftir a\u00f0 hann var\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed sem \u00e9g kalla erf\u00f0abreytingu, ger\u00f0ist erf\u00f0avilltur eftir gervifrj\u00f3vgun me\u00f0 erf\u00f0av\u00edsum \u00far \u00f6fgafullri n\u00fdfrj\u00e1lshyggju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var sj\u00e1lfur hallur undir sko\u00f0anir flokksins fyrir \u00feetta t\u00edmabil enda ekki um margt a\u00f0 velja \u00e1 t\u00edmum kulnunar milli austurs og vesturs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo \u00feroskast ma\u00f0ur og breytist og kemst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed raun \u00f3m\u00f6gulegt fyrir kristinn mann a\u00f0 vera langt til h\u00e6gri e\u00f0a vinstri. \u00c9g vil frelsi \u00ed vi\u00f0skiptum en frelsi me\u00f0 \u00e1byrg\u00f0, \u00fev\u00ed taumlaust frelsi er bara bj\u00e1lfagangur. Og \u00e9g vil samhj\u00e1lp og f\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0 samf\u00e9lagsins \u00fev\u00ed vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 hafa \u00ed hei\u00f0ri v\u00edsustu gildi veraldar: \u201cAllt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir menn geri y\u00f0ur \u00fea\u00f0 skulu\u00f0u \u00fe\u00e9r og \u00feeim gera.\u201d \u00deessi hugsun Jes\u00fa hvetur til a\u00f0ger\u00f0a, h\u00fan er <em>pr\u00f3akt\u00edf<\/em>. Gullna reglan finnst l\u00edka innan annarra tr\u00faarbrag\u00f0a en \u00fear er h\u00fan hlutlaus e\u00f0a <em>pass\u00edf<\/em>: Allt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 <em>ekki<\/em> a\u00f0 a\u00f0rir geri y\u00f0ur, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r <em>ekki<\/em> gera. Mikill munur er \u00e1 \u00feessum tveimur \u00fatg\u00e1fum \u00fev\u00ed Kristur hafnar a\u00f0ger\u00f0arleysi e\u00f0a hlutleysi.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1188\" height=\"930\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0129.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2313\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Manstu \u00feegar n\u00fdfrj\u00e1lshyggjan t\u00f3k v\u00f6ldin og kl\u00fa\u00f0ra\u00f0i \u00f6llu? \u00c9g sag\u00f0i \u00edtreka\u00f0 \u00ed r\u00e6\u00f0u og riti fyrir Hrun, a\u00f0 \u00fea\u00f0 kynni ekki g\u00f3\u00f0ri lukku a\u00f0 st\u00fdra, a\u00f0 gefa marka\u00f0inn frj\u00e1lsan og hafa eftirliti\u00f0 veikt. Me\u00f0an marka\u00f0urinn var\u00f0 eins og \u00f3\u00f0ur unglingur \u00e1 tryllit\u00e6ki, var eftirlitskerfi\u00f0 eins og ungabarn \u00ed bleyju, reglurnar f\u00e1ar og enginn til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va skr\u00edmsli\u00f0. Og \u00fev\u00ed f\u00f3r sem f\u00f3r. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reyndar skrifa\u00f0i \u00e9g sm\u00e1s\u00f6guna <em>\u00cdslensk fjallasala h.f.<\/em> \u00ed jan\u00faar 1999 sem birtist \u00ed Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins 12. apr\u00edl sama \u00e1r. H\u00fan fjalla\u00f0i um s\u00f6lu Esjunnar sem s\u00f6kk s\u00ed\u00f0an og \u00cdsland tapa\u00f0i \u00f6llum s\u00ednum fj\u00e1rmunum og vir\u00f0ingu. H\u00fan var ritu\u00f0 9 \u00e1rum fyrir Hrun og r\u00e6ttist \u00fev\u00ed mi\u00f0ur hva\u00f0 l\u00edkingarm\u00e1li\u00f0 \u00e1hr\u00e6rir, en Esjan er \u00fe\u00f3 enn \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1695\" height=\"2560\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0130.jpg?w=678\" alt=\"\" class=\"wp-image-2314\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">H\u00f6fundur \u00e1 enn til eint\u00f6k af b\u00f3kinni ef lesendur hafa \u00e1huga<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef m\u00ednar p\u00f3lit\u00edsku sko\u00f0anir og er alls ekki sko\u00f0analaus ma\u00f0ur, enda eru sl\u00edkir dau\u00f0yfli \u00ed m\u00ednum augum og svo dj\u00fapt t\u00f3k Dante Aligheri, \u00ed \u00e1rinni, h\u00f6fundur hins st\u00f3rbrotna kv\u00e6\u00f0is, Hinn gu\u00f0d\u00f3mlegi gle\u00f0ileikur, a\u00f0 sko\u00f0analausum m\u00f6nnum v\u00e6ri \u00e6tla\u00f0ur alveg s\u00e9rstakur sta\u00f0ur, d\u00fdpst \u00ed helv\u00edti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pr\u00f3fessor Svanur Kristj\u00e1nsson, stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur, vinur minn og sveitungi, benti m\u00e9r \u00e1 \u00feessa meintu sko\u00f0un Dantes. \u00cd or\u00f0r\u00e6\u00f0u um hi\u00f0 sama hafa ekki lakari menn en forsetarnir, John F. Kennedy, Theodor Roosevelt, prestarnir s\u00e9ra John A. Hutton og dr. Martin Luther King jr. og fleiri sagt Dante hafa tala\u00f0 um sl\u00edka af l\u00edtilli hrifningu svo ekki s\u00e9 n\u00fa d\u00fdpra \u00ed \u00e1rinni teki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1664\" height=\"1144\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0126.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2311\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef ekki enn fundi\u00f0 tilvitnun st\u00f3rsk\u00e1ldsins en mun leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 mig a\u00f0 lesa hana aftur upp \u00e1 500 s\u00ed\u00f0ur pl\u00fas til a\u00f0 geta sta\u00f0sett sl\u00edkar lufsur \u00ed \u00fer\u00edskiptri handanveru Dantes, enda \u00fe\u00f3tt \u00e9g deili ekki ka\u00fe\u00f3lskum mi\u00f0aldahugmyndum hans um Hreinsunareldinn, Helv\u00edti og Parad\u00eds. Hins vegar er \u00e9g ekki fjarri \u00feeirri sko\u00f0un a\u00f0 \u00feessi \u00fer\u00edskipting s\u00e9 ekki t\u00f3pol\u00f3gisk, \u00fe.e. sta\u00f0fr\u00e6\u00f0ileg, heldur s\u00e1lr\u00e6n og geti \u00fev\u00ed \u00e1tt s\u00e9r \u201csta\u00f0\u201d \u00ed s\u00e1larl\u00edfi allra manna, fyrr og n\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dante lauk s\u00ednu st\u00f3rbrotna verki, r\u00e9tt fyrir dau\u00f0a sinn, \u00e1ri\u00f0 1321. Verki\u00f0 er tali\u00f0 vera ein helsta perla \u00edtalskra b\u00f3kmennta. Verki\u00f0 \u00fe\u00fdddi Erlingur E. Halld\u00f3rsson \u00e1 \u00edslensku og kom \u00fea\u00f0 \u00fat \u00e1 vegum M\u00e1ls og menningar \u00e1ri\u00f0 2010.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1713\" height=\"2560\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0125.jpg?w=685\" alt=\"\" class=\"wp-image-2312\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dante var uppi \u00e1 t\u00edma ekki fjarri Snorra Sturlusyni og h\u00f6fundi Nj\u00e1lu og fleiri \u00f6ndvegis h\u00f6funda okkar. Merkilegt er til \u00feess a\u00f0 hugsa a\u00f0 \u00feessir kristnu h\u00f6fundar sem tami\u00f0 h\u00f6f\u00f0u s\u00e9r hina kristnu sagna- og ritunarhef\u00f0 skyldu koma saman sl\u00edkum meistaraverkum sem enn vekja undrun og a\u00f0d\u00e1un um 800 \u00e1rum eftir ritun verkanna. \u00deeir \u00e1ttu sumt sameignlegt og anna\u00f0 ekki, en sko\u00f0analeysinu deildu \u00feeir ekki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[EN VITI MENN! S\u00da V\u00d6KULA KONA, AU\u00d0UR STYRK\u00c1RSD\u00d3TTIR, BENTI M\u00c9R \u00c1 EFTIRL\u00ddSTA TILVITNUN \u00cd VERK DANTES, SEM \u00c9G HEF N\u00da SETT INN NE\u00d0ANM\u00c1LS.] <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver vill sko\u00f0analausan \u00feingmann, r\u00e1\u00f0herra, forseta? Hver vill sko\u00f0analausan pr\u00f3fessor, rith\u00f6fund, prest?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til er f\u00f3lk sem heldur a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi s\u00e9r hlutlausan l\u00edfsgrundv\u00f6ll. \u00c9g vil s\u00e9rstaklega beina or\u00f0um m\u00ednum til \u00feeirra sem halda sl\u00edkt og segja: Hlutlaus l\u00edfsgrundv\u00f6llur e\u00f0a l\u00edfssko\u00f0un er ekki til fremur en ferkanta\u00f0ur hringur e\u00f0a hringlaga ferningur. Sl\u00edkt er sta\u00f0leysa,&nbsp;<em>oxymoron<\/em>, og telst til&nbsp;<em>refhvarfa<\/em>&nbsp;\u00ed&nbsp;<em>retorikk<\/em>&nbsp;e\u00f0a m\u00e6lskulist.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er svo komi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 kristinn prestur m\u00e1 t.d. ekki heims\u00e6kja sk\u00f3la til a\u00f0 tala og fr\u00e6\u00f0a um sinn l\u00edfsgrundv\u00f6ll, en \u00fea\u00f0 mega margir a\u00f0rir gera og pr\u00e9dika sinn l\u00edfsgrundv\u00f6ll e\u00f0a t\u00falkun \u00e1 eigin l\u00edfi og a\u00f0st\u00e6\u00f0um. Sumt sk\u00f3laf\u00f3lk vir\u00f0ist va\u00f0a \u00ed <em>oxymoron-villu<\/em> og gerir s\u00e9r ekki grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 allir hafa l\u00edfssko\u00f0anir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lmi\u00f0lar vilja helst ekki tala vi\u00f0 presta nema fr\u00e9ttamenn hafi \u00feefa\u00f0 upp eitthva\u00f0 misjafnt \u00ed einhverjum s\u00f6fnu\u00f0i e\u00f0a \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunni og \u00e1 sumum fr\u00e9ttastofum sumra fj\u00f6lmi\u00f0la hafa komi\u00f0 s\u00e9r fyrir menn sem stunda beinar \u00e1r\u00e1sir \u00e1 \u00deK og komu s\u00e9r fyrir \u00ed \u00fev\u00ed augnami\u00f0 einu, a\u00f0 geta ska\u00f0a\u00f0 \u00edmynd \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar. Og \u00fe\u00e1 spyr \u00e9g: Hvar er ritstj\u00f3rnarstefna og gildagrunnur vi\u00f0komandi fj\u00f6lmi\u00f0ils?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0a sko\u00f0anir \u00e1 a\u00f0 banna \u00ed sk\u00f3lum, fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00ed hinu opinbera r\u00fdmi \u2013 og hverjar \u00e1 a\u00f0 leyfa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svari\u00f0 er einfalt: Leyfum f\u00f6lbreytileikanum a\u00f0 bl\u00f3mstra.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1019\" height=\"735\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0131.jpg?w=1019\" alt=\"\" class=\"wp-image-2315\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En sn\u00faum okkur a\u00f0 lokum aftur a\u00f0 \u00deorvaldi Gylfasyni og Bjarna Benediktssyni. Sterkasti leikur, sitjandi fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 fagna skipan \u00deorvaldar \u00ed ritsj\u00f3rast\u00f6\u00f0u hins norr\u00e6na t\u00edmarits um hagfr\u00e6\u00f0i og leyfa s\u00ed\u00f0an sko\u00f0unum a\u00f0 takast \u00fear \u00e1 \u00e1 akadem\u00edskan og p\u00f3lit\u00edskan h\u00e1tt, \u00fev\u00ed hvorugt ver\u00f0u a\u00f0skili\u00f0 fr\u00e1 hinu. \u00de\u00e1 hef\u00f0i r\u00e1\u00f0herran geta\u00f0 sanna\u00f0 sig vitran og st\u00f3ran \u2013 \u00feannig eiga valdamenn einmitt a\u00f0 reyna a\u00f0 lifa \u2013 en Bjarni situr n\u00fa uppi me\u00f0 a\u00f0 vera talinn margfalt minni en hinga\u00f0 til.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2210\" height=\"1246\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/img_0132.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2316\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P.S. Vinkona m\u00edn, Au\u00f0ur Styrk\u00e1rsd\u00f3ttir, sendi m\u00e9r tilvitnun \u00ed Dante eftir a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i birt greinina og \u00e9g l\u00e6t hana fylgja h\u00e9r \u00e1samt sk\u00fdringum hennar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Takk fyrir \u00feessa mj\u00f6g svo g\u00f3\u00f0u grein. &#8211; \u00c9g vil benda \u00fe\u00e9r \u00e1 sta\u00f0inn \u00fear sem Dante l\u00fdsir sko\u00f0un sinni \u00e1 sko\u00f0analausum. \u00dea\u00f0 er \u00ed 3. kv\u00e6\u00f0i og \u00e9g l\u00e6t h\u00e9r fylgja \u00fe\u00fd\u00f0ingu Hjalta Sn\u00e6s \u00c6gissonar, b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ikennara vi\u00f0 H.\u00cd. sem birtist \u00ed kennslub\u00f3kinni: S\u00fdnisb\u00f3k heimsb\u00f3kmennta (algj\u00f6rt grundvallarrit \u00f6llum sem unna b\u00f3kmenntum, og \u00fea\u00f0 gr\u00e6t \u00e9g a\u00f0 hafa ekki kynnst \u00fev\u00ed fyrr!). \u00c9g hef ekki \u00fe\u00fd\u00f0ingu Erlings vi\u00f0 h\u00f6ndina . . . <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>H\u00f6fu\u00f0 mitt var \u00fejaka\u00f0 af hryllingi og \u00e9g \/ sag\u00f0i: \u201eMeistari, hva\u00f0 er \u00feetta sem \u00e9g heyri? \/ Og hva\u00f0a f\u00f3lk er \u00feetta sem vir\u00f0ist yfirbuga\u00f0 af \u00fej\u00e1ningu?\u201c \/ Hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u201e\u00deessi eymdarskapur \/ er hlutskipti \u00feeirra dapurlegu s\u00e1la \/ sem lif\u00f0u \u00e1n lasta og dygg\u00f0a. \/ \u00deeim er blanda\u00f0 saman vi\u00f0 kveifak\u00f3r \/ englanna sem hvorki ger\u00f0u uppreisn \/ n\u00e9 voru tr\u00fair Gu\u00f0i, heldur st\u00f3\u00f0u afskiptalausir.\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deeirra sem ekki taka afst\u00f6\u00f0u, \u00feeirra sem lifa \u00e1n lasta og \u00e1n dygg\u00f0a, \u00feeirra sem eru huglausir, b\u00ed\u00f0ur eiginlega verra hlutskipti en allra annarra; \u00feeir komast ekki einu sinni inn \u00ed V\u00edti!: \u201eHiminninn brottv\u00edsar \u00feeim svo hann spillist ekki, \/ n\u00e9 tekur dj\u00fap helv\u00edtis vi\u00f0 \u00feeim \/ \u00fev\u00ed \u00feeir eru ekki sambo\u00f0nir hinum ford\u00e6mdu.\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear hafi\u00f0&#8217;i\u00f0 \u00fea\u00f0!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deekkir \u00fe\u00fa einhvern sem hefur engar sko\u00f0anir? \u00deekkir \u00fe\u00fa einhvern sem ekki er p\u00f3lit\u00edskur? Hva\u00f0 merkir or\u00f0i\u00f0 p\u00f3lit\u00edk? Hva\u00f0an er \u00fea\u00f0 komi\u00f0? Or\u00f0i\u00f0 kemur \u00far gr\u00edsku. Or\u00f0i\u00f0 er polis sem merkir borg og p\u00f3lit\u00edk er \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 sem var\u00f0ar borgarana, f\u00f3lki\u00f0, velfer\u00f0 \u00feess og kj\u00f6r.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-2332","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad-uncategorized"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2332","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2332"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2332\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2332"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2332"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2332"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}