{"id":2248,"date":"2020-05-21T15:04:33","date_gmt":"2020-05-21T15:04:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2020\/05\/21\/um-menningu-tru-og-rettlaeti\/"},"modified":"2020-05-21T15:04:33","modified_gmt":"2020-05-21T15:04:33","slug":"um-menningu-tru-og-rettlaeti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2248","title":{"rendered":"Um kve\u00f0justundir, menningu, tr\u00fa og r\u00e9ttl\u00e6ti"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Uppstigningardagur 21. ma\u00ed 2020<\/strong> pr\u00e9dikun vi\u00f0 \u00fatvarpsmessu \u00ed Brei\u00f0holtskirkju kl. 11 sem \u00e1tti a\u00f0 vera \u00e1 Grund en var flutt vegna Covid-19.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0an er h\u00e9r ef \u00fe\u00fa vilt hlusta:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2020\/05\/predikun.mp3\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r er tengill \u00e1 uppt\u00f6kuna af allri messunni. R\u00e6\u00f0an hefst \u00e1 m\u00edn\u00fatu 20:30:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/utvarp\/spila\/gudsthjonusta\/24228\/7hi3dn\">https:\/\/www.ruv.is\/utvarp\/spila\/gudsthjonusta\/24228\/7hi3dn<\/a><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/05\/img_2426.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2560\" height=\"1920\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2020\/05\/img_2426.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2249\" \/><\/a><figcaption>\u00deessi \u00fej\u00f3nu\u00f0u vi\u00f0 gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustuna \u00fear sem saman komu um 50 manns sem er h\u00e1mark \u00fear til \u00ed n\u00e6stu viku en \u00fe\u00e1 mega 200 koma saman!<br \/>S\u00e9ra Magn\u00fas Bj\u00f6rn Bj\u00f6rnsson \u00fej\u00f3nar fyrir altari.<br \/>S\u00e9ra \u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson, fyrrverandi s\u00f3knarprestur predikar.<br \/>Lesarar: Krist\u00edn Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, dj\u00e1kni \u00ed Fella- og H\u00f3lakirkju, Ragnhei\u00f0ur Sverrisd\u00f3ttir, dj\u00e1kni Biskupsstofu og \u00de\u00f3rey D\u00f6gg J\u00f3nsd\u00f3ttir, dj\u00e1kni, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Eldriborgarar\u00e1\u00f0s Reykjav\u00edkurpr\u00f3fastsd\u00e6ma.<br \/>Organisti og stj\u00f3rnandi: \u00d6rn Magn\u00fasson.<br \/>K\u00f3r Brei\u00f0holtskirkju syngur.<br \/><br \/>Hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku finnur \u00fe\u00fa \u00e1 vef RUV, R\u00e1s 1, 21. ma\u00ed 2020 kl. 11 en getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. H\u00fan er au\u00f0vita\u00f0 \u00e1hrifameiri me\u00f0 hlj\u00f3\u00f0i!<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komi\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e6l og blessu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var spur\u00f0ur um \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feorranum, a\u00f0 mig minnir, hvort \u00e9g v\u00e6ri tilb\u00fainn a\u00f0 pr\u00e9dika vi\u00f0 \u00feessa gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu. \u00c9g var hikandi \u00ed fyrstu, enda kominn \u00e1 \u00fareldingarlista eins og gamall ry\u00f0ga\u00f0ur togari, kominn \u00e1 eftirlaun, en l\u00e9t \u00fe\u00f3 til lei\u00f0ast. \u00c9g hef varla pr\u00e9dika\u00f0 \u00e1 \u00edslensku \u00ed 5 \u00e1r enda starfa\u00f0i \u00e9g og pr\u00e9dika\u00f0i yfir norskum s\u00f6fnu\u00f0um, sk\u00edr\u00f0i, fermdi, gifti og jar\u00f0s\u00f6ng Nor\u00f0menn og var\u00f0 a\u00f0 tala b\u00e6\u00f0i n\u00fdnorsku og svonefnd b\u00f3km\u00e1l. Og n\u00fa er \u00e9g h\u00e9r \u00ed dag sem <em>fyrrverandi<\/em> s\u00f3knarprestur, einskonar ellismellur, en \u00fea\u00f0 or\u00f0 er nota\u00f0 um gamalt lag sem kannski var einu sinni vins\u00e6lt.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6l og blessu\u00f0 \u00f6ll, yngri sem eldri, ung og g\u00f6mul, \u00fei\u00f0 sem \u00feekki\u00f0 b\u00e6\u00f0i \u00e6sku og elli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan hlj\u00f3mar vel \u00feessi ramm\u00edslenska kve\u00f0ja, s\u00e6l og blessu\u00f0, sem \u00e1 r\u00e6tur s\u00ednar annarsvegar \u00ed Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa \u00fear sem hann fjallar um \u00feau sem eru s\u00e6l og svo v\u00edsar kve\u00f0jan til blessunaror\u00f0a Arons, br\u00f3\u00f0ur M\u00f3se, en til \u00feeirra eru or\u00f0in rakin sem h\u00f6f\u00f0 eru yfir gy\u00f0ingum og kristnum vi\u00f0 gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustur um allan heim og hafa hlj\u00f3ma\u00f0 um aldir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Drottinn blessi \u00feig og var\u00f0veiti \u00feig.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Drottinn l\u00e1ti s\u00edna \u00e1sj\u00f3nu l\u00fdsa yfir \u00feig og s\u00e9 \u00fe\u00e9r n\u00e1\u00f0ugur.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Drottinn upplyfti s\u00ednu augliti yfir \u00feig og gefi \u00fe\u00e9r fri\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 heilsast og kve\u00f0jast, \u00fea\u00f0 er l\u00edfsins gangur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef \u00fe\u00fa einhvernt\u00edman efast um k\u00e6rleikann skaltu fara \u00fat \u00e1 r\u00fatust\u00f6\u00f0 e\u00f0a umfer\u00f0ami\u00f0st\u00f6\u00f0, \u00ed brottfarar- e\u00f0a komusal flugvallar og \u00fe\u00e1 s\u00e9r\u00f0u hvernig kve\u00f0justundir kalla fram bros og t\u00e1r, sorg og gle\u00f0i. \u00dear birtist k\u00e6rleikurinn lj\u00f3slifandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6rleikurinn birtist l\u00edka \u00ed \u00fatf\u00f6rum. Margir hafa kvatt s\u00edna n\u00e1nustu \u00e1 yfirstandandi t\u00ed\u00f0 \u00feegar k\u00f3r\u00f3nuveiran hefur sett sitt mark \u00e1 mannl\u00edfi\u00f0 um allan heim. Fj\u00f6ldatakmarkanir hafa \u00e1n efa reynst m\u00f6rgum fj\u00f6lskyldum \u00ed\u00feygjandi og \u00feeim finnst \u00e1n efa m\u00f6rgum a\u00f0 kve\u00f0justundin hafi \u00ed raun ekki fari\u00f0 fram sem skyldi \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i fj\u00f6lda \u00e6ttingja og samfer\u00f0amanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justundir eru mikilv\u00e6gar. \u00c9g hef fari\u00f0 \u00ed gegnum m\u00f6rghundru\u00f0 \u00fatfarir h\u00e9r \u00e1 landi og \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. Allsta\u00f0ar eru tilfinningarnar \u00fe\u00e6r s\u00f6mu, t\u00e1rin glitra \u00e1 sama h\u00e1tt, ekkasogin hlj\u00f3ma eins og fa\u00f0ml\u00f6gin eru kunnugleg. \u00datf\u00f6r er gr\u00ed\u00f0arlega mikilv\u00e6g stund fyrir a\u00f0standendur og samf\u00e9lagi\u00f0 og kristnin hefur \u00fer\u00f3a\u00f0 ferli sem virka\u00f0 hefur vel og lengi. Flestar kirkjudeildir gera \u00fe\u00e1 kr\u00f6fu til \u00feeirra sem lei\u00f0a sl\u00edkar stundir, a\u00f0 \u00feau s\u00e9u me\u00f0 g\u00f3\u00f0a menntun \u00ed fr\u00e6\u00f0um sem spanna v\u00edtt svi\u00f0 og veita inns\u00fdn \u00ed mannlegt e\u00f0li og heg\u00f0un og hafi \u00fej\u00e1lfa\u00f0 hugsunina um hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er. \u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0kirkan hleypir ekki neinum \u00ed \u00fea\u00f0 verk sem ekki hefur hloti\u00f0 til \u00feess menntun og reynslu. \u00dea\u00f0 er vandaverk a\u00f0 lei\u00f0a hinstu kve\u00f0ju me\u00f0 \u00e1stvinum \u00ed sorg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd dag er svonefndur uppstigningardagur \u00feegar kristnin minnist \u00feess a\u00f0 n\u00e1nustu fylgjendur Jes\u00fa Krists, kv\u00f6ddu hann, s\u00e1u hann hinsta sinn og veittu honum lotningu. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0 \u00feeim \u00ed 40 daga og n\u00e6tur eftir upprisuna fr\u00e1 dau\u00f0um. En n\u00fa var hann horfinn en samt ekki. Hann bj\u00f3 \u00e1fram \u00ed huga \u00feeirra og hjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvern einasta dag minnist \u00e9g horfinna foreldra minna og \u00feakka fyrir l\u00edf \u00feeirra og umhyggju gagnvart m\u00e9r me\u00f0an \u00feeirra naut vi\u00f0. \u00deau lifa \u00ed hjarta m\u00e9r, \u00ed minningunni, eru n\u00e6rri m\u00e9r \u00ed einhverjum skilningi, sem \u00e9g get ekki \u00fatsk\u00fdrt. \u00de\u00fa \u00feekkir \u00feetta l\u00edka \u00fe\u00fa sem hefur kvatt n\u00e1in \u00e1stvin, einn e\u00f0a fleiri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 er h\u00e9r og hva\u00f0 er \u00fear? Er l\u00edfi\u00f0 meira en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 augum blasir \u00e1 hverjum degi? Eru v\u00edddirnar meiri, fleiri, st\u00e6rri?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir kv\u00f6ddi Jes\u00fa og \u00fe\u00e1 \u00f3ra\u00f0i ekki fyrir \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 a\u00f0 hann \u00e6tti eftir a\u00f0 breyta ver\u00f6ldinni til allrar framt\u00ed\u00f0ar. Enginn hefur haft vi\u00f0l\u00edka \u00e1hrif og hann. Kristnin er fj\u00f6lmennust allra tr\u00faarbrag\u00f0a og fylgjendum Krists fj\u00f6lgar st\u00f6\u00f0ugt enda \u00fe\u00f3tt f\u00f3lk \u00ed okkar heimshluta vir\u00f0ist hir\u00f0a minna um tr\u00faararfinn en fyrri kynsl\u00f3\u00f0ir. Og \u00fe\u00f3. \u00c9g man \u00feegar 68-kynsl\u00f3\u00f0in bylti s\u00e9r me\u00f0 sveiflu og hnykkjum og vildi ekki kannast vi\u00f0 neinar hef\u00f0ir. \u00c9g man l\u00edka \u00feegar hipparnir ur\u00f0u eldri og fylgdu b\u00f6rnum s\u00ednum til fermingar sem \u00fe\u00e1 voru m\u00f6rg \u00f3sk\u00edr\u00f0 og \u00feurftu a\u00f0 sk\u00edrast fyrir ferminguna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00e1lfur telst \u00e9g til \u00feessarar s\u00f6mu 68-kynsl\u00f3\u00f0ar og var\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 fyrir \u00e1hrifum af t\u00ed\u00f0arandanum, frelsishugsun b\u00edtla\u00e1ranna, Woodstock og \u00f6llu \u00fev\u00ed villta hlj\u00f3msveita galler\u00edi sem rei\u00f0 r\u00f6ftum og hugsa\u00f0i l\u00edti\u00f0 um tr\u00fa og hef\u00f0ir en svo kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g gaf tr\u00fanni gaum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00f3x \u00far grasi \u00e1 mj\u00f6g venjulegu heimili \u00fear sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i vers og v\u00edsur sem mamma s\u00f6ng fyrir mig fyrir svefninn. \u00de\u00e1 vorum vi\u00f0 b\u00f6rnin kl\u00e6dd \u00ed sparif\u00f6t \u00e1 sunnud\u00f6gum og au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka \u00e1 uppstigningardag. Vi\u00f0 f\u00f3rum ekki oft \u00ed kirkju, en vi\u00f0 b\u00f6rnin \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, \u00fear sem \u00e9g \u00f3lst upp, f\u00f3rum gjarnar \u00ed kirkju \u00feegar barnagu\u00f0s\u00fej\u00f3nstur voru haldnar. Vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um t.d. \u00ed bi\u00f0r\u00f6\u00f0 til a\u00f0 komast \u00e1 samkomur \u00e1 Hernum \u00ed mi\u00f0ri viku \u00fear sem miki\u00f0 var spila\u00f0 og sungi\u00f0 og s\u00fdndar kvikmyndir, heims\u00f3ttum hv\u00edtasunnumenn \u00ed Salem \u00e1 laugard\u00f6gum og fengum \u00fear fr\u00e6\u00f0slu, sungum s\u00e1lma og vers og f\u00f3rum svo heim me\u00f0 Jes\u00famyndir sem vi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0um. \u00de\u00e1 f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed kirkju til s\u00e9ra Sigur\u00f0ar, f\u00f6\u00f0ur Agnesar biskups, \u00feegar hann h\u00e9lt barnagu\u00f0s\u00fej\u00f3nustur og hl\u00fdddum \u00e1 J\u00f3nas T\u00f3masson, b\u00f3ksala og t\u00f3nsk\u00e1ld, leika \u00e1 orgeli\u00f0 og s\u00ed\u00f0ar Ragnar H. Ragnar, t\u00f3nlistarj\u00f6fur \u00cdsfir\u00f0inga, f\u00e9laga \u00far Sunnuk\u00f3rnum syngja og svo f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed b\u00ed\u00f3 eftir h\u00e1degi \u00ed Al\u00fe\u00fd\u00f0uh\u00fasinu og s\u00e1um Roy Rogers og fleiri snillinga. \u00dea\u00f0 g\u00e1tu \u00fev\u00ed or\u00f0i\u00f0 allt a\u00f0 \u00ferj\u00e1r heims\u00f3knir \u00ed kirkju \u00e1 viku og af og til b\u00ed\u00f3fer\u00f0 \u00e1 sunnudegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Yfir r\u00fami bernsku minnar h\u00e9kk mynd af Jes\u00fa og hana f\u00e9kk yngri br\u00f3\u00f0ir minn og svo fluttum vi\u00f0 og \u00e9g hirti ekki lengur um \u00feessa mynd. H\u00fan hvarf \u00far l\u00edfi m\u00ednu. En \u00feegar \u00e9g var or\u00f0inn fullor\u00f0inn, b\u00fainn a\u00f0 eignast b\u00f6rn og barnab\u00f6rn, f\u00f3r \u00e9g og keypti Jes\u00fa-myndir \u00ed Kirkjuh\u00fasinu handa barnab\u00f6rnunu og svo eina handa sj\u00e1lfum m\u00e9r og hana hengdi \u00e9g \u00e1 vegg vi\u00f0 r\u00fami\u00f0 mitt, t\u00f3k hana me\u00f0 m\u00e9r til Noregs og n\u00fa n\u00fdlega kom h\u00fan upp \u00far kassa og hangir uppi \u00ed svefnherbergi m\u00ednu h\u00e9r \u00e1 landi aftur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g vil hafa Jes\u00fa hj\u00e1 m\u00e9r og ekki bara sem mynd \u00far bernskunni heldur sem lifandi veruleika, \u00ed b\u00e6n og tilbei\u00f0slu, \u00ed sk\u00edrn og altarisg\u00f6ngu, \u00ed helgu or\u00f0i og samf\u00e9lagi tr\u00faa\u00f0ra, vi\u00f0 d\u00e1narbe\u00f0 og gr\u00f6f, \u00ed hjarta m\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jes\u00fas Kristur er h\u00e9r. Hann lifir. Kristind\u00f3murinn er ekki kenningakerfi, ekki tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, \u00ed strangasta skilningi \u00feess or\u00f0s, heldur l\u00edfandi samband vi\u00f0 lifandi veruleika. Kristnin er \u00e1star og vin\u00e1ttusamband vi\u00f0 Jes\u00fa Krist, merkustu pers\u00f3nu mannkynss\u00f6gunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1hrif Jes\u00fa Krists \u00e1 heiminn eru gr\u00ed\u00f0arleg og \u00feau h\u00f3fust me\u00f0 or\u00f0um hans og vitnisbur\u00f0i \u00feeirra sem \u00feekktu hann og breiddu \u00fat bo\u00f0skap hans. Og enn er bo\u00f0skapur hans fluttur \u00ed r\u00e6\u00f0u og riti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann kvaddi fylgjendur s\u00edna og lag\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1 verkefni\u00f0 mikla:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eFari\u00f0 \u00fat um allan heim og pr\u00e9diki\u00f0 fagna\u00f0arerindi\u00f0 \u00f6llu mannkyni.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og enn stundar kirkjan sitt verkefni og er \u00e1 fer\u00f0 um heiminn me\u00f0 bo\u00f0skap tr\u00faar, vonar og k\u00e6rleika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd textum dagsins eru fyrirheit um a\u00f0 \u00feetta mikla verkefni muni halda \u00e1fram og bera \u00e1v\u00f6xt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;En \u00fe\u00e9r munu\u00f0 \u00f6\u00f0last kraft er heilagur andi kemur yfir y\u00f0ur og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 ver\u00f0a vottar m\u00ednir \u00ed Jer\u00fasalem og allri J\u00fadeu, \u00ed Samar\u00edu og allt til endimarka jar\u00f0arinnar.\u201c (\u00dar pistli dagsins).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 b\u00faum \u00ed f\u00f6gru landi en har\u00f0b\u00fdlu og h\u00e9r hefur f\u00f3lk lifa\u00f0 af fangbr\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 \u00f3bl\u00ed\u00f0a n\u00e1tt\u00faru, storma og \u00e9l, s\u00e9\u00f0 \u00e1 eftir \u00fe\u00fasundum sj\u00f3manna \u00ed greipar \u00e6gis, lifa\u00f0 af eldgos og pl\u00e1gur og n\u00fa er enn ein pl\u00e1gan komin sem str\u00e1fellir f\u00f3lk v\u00ed\u00f0a um heim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00edsindi og \u00feekking hafa reynst okkur vel og vi\u00f0 erum \u00feeim \u00feakkl\u00e1t sem mi\u00f0la \u00feekkingu sinni og reynslu til a\u00f0 hj\u00e1lpa okkur \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 t\u00edmabil sem vi\u00f0 n\u00fa lifum. Um lei\u00f0 er \u00fea\u00f0 \u00feyngra en t\u00e1rum traki a\u00f0 horfa upp \u00e1 valdamenn \u00ed heiminum sem skella skollaeyrum vi\u00f0 v\u00edsindum og \u00feekkingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 lei\u00f0ir hugann a\u00f0 grundvelli menningar okkar \u00ed hinum vestr\u00e6na heimi. P\u00e1ll heitinn Sk\u00falason, heimspekingur og h\u00e1sk\u00f3larektor, tala\u00f0i eitt sinn um grundv\u00f6ll menningar okkar og nota\u00f0i l\u00edkinguna um <strong>hugsanaflj\u00f3ti\u00f0<\/strong>, \u00fe\u00e1 miklu elfi sem m\u00f3ta\u00f0 hefur hugsun vestr\u00e6nna \u00fej\u00f3\u00f0a um aldir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hugsanaflj\u00f3ti\u00f0 er mynda\u00f0 af tveimur straumum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annarsvegar er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a straum sem kenndur er vi\u00f0 hina gy\u00f0ing\/kristnu hugsun og arf og hins vegar straum sem stendur fyrir hinn gr\u00edsk\/heimspekilega arf. \u00deessir tveir straumar mynda hugsanaflj\u00f3ti\u00f0 og \u00fea\u00f0an h\u00f6fum vi\u00f0 s\u00f3tt <strong>allar<\/strong> okkar hugmyndir um heiminn og mannl\u00edfi\u00f0, um skilning okkar \u00e1 hinu st\u00f3ra samhengi, mannskilning og afst\u00f6\u00f0u okkar til samf\u00e9lags og menningar, um samhj\u00e1lp og jafnr\u00e9tti, um mannr\u00e9ttindi og helgi l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 l\u00edtum r\u00e9tt sem sn\u00f6ggvast um \u00f6xl og horfum yfir s\u00f6gu \u00cdslandsbygg\u00f0ar og sko\u00f0um hva\u00f0 kristnin f\u00e6r\u00f0i okkur \u00fe\u00e1 kemur \u00ed hugann stafr\u00f3fi\u00f0, ritlistin og b\u00f3kmenntirnar og svo mannskilningurinn sem breyttist \u00feegar kristnin var\u00f0 r\u00e1\u00f0andi. Me\u00f0 klaustrunum kom skipul\u00f6g\u00f0 umhyggja fyrir sj\u00fakum og \u00f6ldru\u00f0um. \u00dea\u00f0 heitir enn \u00ed m\u00e1li okkar me\u00f0al aldra\u00f0ra &#8220;a\u00f0 setjast \u00ed helgan stein&#8221;. \u00dea\u00f0 heiti &#8220;<strong>\u00ed<\/strong> helgan stein&#8221; en ekki <strong>\u00e1<\/strong> helgan stein \u00fev\u00ed or\u00f0atilt\u00e6ki\u00f0 merkir a\u00f0 flytja <strong>\u00ed<\/strong> steinh\u00fasi\u00f0, klaustri\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 \u00fear umhyggju, hj\u00fakrun og hinstu hj\u00e1lp vi\u00f0 m\u00e6ri l\u00edfs og dau\u00f0a. Me\u00f0 si\u00f0b\u00f3tinni kom svo skyldan a\u00f0 kenna b\u00f6rnum a\u00f0 lesa og skrifa og loks sk\u00f3laslylda. Heilbrig\u00f0iskerfi\u00f0 og sk\u00f3larnir eiga \u00fev\u00ed r\u00e6tur s\u00ednar \u00ed hinni kristnu Evr\u00f3pu. Strax eftir kristnit\u00f6ku tengdust \u00edslenskir menntamenn evr\u00f3pskum h\u00e1sk\u00f3lum eins og sagnaarfurinn geymir. S\u00e6mundur fr\u00f3\u00f0i mun hafa siglt og numi\u00f0 merk fr\u00e6\u00f0i \u00e1 meginlandi Evr\u00f3pu og styttan g\u00f3\u00f0a sem \u00c1smundur Sveinsson ger\u00f0i um eina af s\u00f6gunum um S\u00e6mund stendur fyrir framan h\u00f6fubyggingu H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00dear kemur S\u00e6mundur \u00e1 selnum og heldur b\u00f3kinni yfir hausam\u00f3tum skepnunnar sundfimu. B\u00f3kin er Saltarinn, en svo eru s\u00e1lmar Gamla testamentisins kalla\u00f0ir, sem kenndir eru vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 konung. Saltarinn geymir l\u00edfsvisku og er \u00fev\u00ed \u00ed s\u00f6gunni um S\u00e6mund, t\u00e1kn v\u00edsinda og \u00feekkingar. \u00dea\u00f0 er mikil einf\u00f6ldun a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 kirkjan hafi sta\u00f0i\u00f0 gegn v\u00edsindum \u00ed gegnum aldirnar. \u00cd klaustrum um alla Evr\u00f3pu voru stundu\u00f0 v\u00edsindi og \u00feekkingarleit var \u00fear me\u00f0 miklum bl\u00f3ma. En au\u00f0vita\u00f0 finnast d\u00e6mi um afneitun og f\u00e1fr\u00e6\u00f0i kirkjunnar \u00fej\u00f3na \u00ed m\u00e1lum l\u00ed\u00f0andi stundar \u00e1 hverri t\u00ed\u00f0. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00fea\u00f0 sama \u00ed samt\u00edmanum af munni \u00feeirra t.d. sem vi\u00f0urkenna ekki \u00fe\u00e1tt mannkyns \u00ed b\u00e1gu \u00e1standi n\u00e1tt\u00farunnar. Enn er til f\u00f3lk sem afneitar v\u00edsindum og \u00feekkingu og til eru fj\u00f6lmennar kirkjudeildir t.d. \u00ed Bandar\u00edkjunum sem hafa afst\u00f6\u00f0u b\u00f3kstarftr\u00faar til Bibl\u00edunnar sem er \u00f3heppilegt \u00fev\u00ed b\u00f3kin s\u00fa er safnrit sem var\u00f0 til \u00e1 l\u00f6ngum t\u00edma og geymir b\u00e6\u00f0i s\u00f6gulegar heimildir um b\u00e6\u00f0i gott og illt, en svo er \u00fear a\u00f0 finna mikla og dj\u00fapa visku um manneskjuna og hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er. En hana m\u00e1 ekki t\u00falka b\u00f3kstaflega. Sl\u00edkt stenst enga alv\u00f6ru sko\u00f0un mennta og v\u00edsinda. B\u00f3kstafstr\u00fa hefur \u00ed m\u00f6rgum tilfellum varpa\u00f0 r\u00fdr\u00f0 \u00e1 bo\u00f0skap Krists og hreinlega leitt f\u00f3lk \u00e1 villig\u00f6tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Uppl\u00fdsing og heilbrig\u00f0 menntun er af hinu g\u00f3\u00f0a. Vi\u00f0 lifum n\u00fa \u00fe\u00e1 t\u00edma sem aldrei fyrr a\u00f0 f\u00f3lk hefur a\u00f0gang a\u00f0 uppl\u00fdsingum um allt milli himins og jar\u00f0ar. En uppl\u00fdsingafl\u00f3\u00f0i\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 svo miki\u00f0 a\u00f0 vandi er a\u00f0 greina \u00e1 milli \u00feess sem er r\u00e9tt og rangt. Unga kynsl\u00f3\u00f0in, sem b\u00fdr yfir t\u00e6kni og \u00feekkingu til a\u00f0 nota snjallt\u00e6ki af \u00fdmsu tagi, getur \u00fev\u00ed fengi\u00f0 a\u00f0 vita n\u00e1nast allt, en b\u00fdr um lei\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00e6ttu\u00e1stand a\u00f0 vita eiginlega ekkert vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 finnur ekki lei\u00f0ina \u00ed gegnum dimman sk\u00f3ginn \u00fear sem sumt er satt og mj\u00f6g margt logi\u00f0. Neti\u00f0 er d\u00e1samlegt en vi\u00f0sj\u00e1rvert um lei\u00f0, \u00fea\u00f0 er eins og Adam og Eva \u00ed Parad\u00eds sem ruglu\u00f0ust \u00ed r\u00edminu og t\u00fdndu s\u00e9r. Sagan um \u00feau er l\u00edtil myndhverfing um \u00feig og mig, um mannl\u00edfi\u00f0 og merkingin er eil\u00edf og \u00feess vegna lifir s\u00fa saga sem d\u00e6misaga en ekki til a\u00f0 taka b\u00f3kstaflega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er vandlifa \u00ed \u00feessum heimi og hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0. Manneskjan er ekki fullkomin og h\u00fan veit ekki allt og \u00feess vegna er \u00fea\u00f0 okkur mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00feekkja eigin takmarkanir og getu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum enn sama e\u00f0lis og \u00feau sem fyrst l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 nota verkf\u00e6ri, l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 tala og skiptast \u00e1 uppl\u00fdsingum. Og \u00f6ll erum vi\u00f0 skyld hvert \u00f6\u00f0ru sem \u00feessa ver\u00f6ld byggjum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum eitt mannkyn og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 komast af \u00ed \u00feessum fl\u00f3kna heimi. Bekkurinn er \u00fe\u00e9ttsetnari en fyrir 5000 \u00e1rum, 2000 \u00e1rum, 100 \u00e1rum, meira a\u00f0 segja \u00fe\u00e9ttsetnari en fyrir 50 \u00e1rum. Hvernig mun okkur rei\u00f0a af? Hvernig mun okkur takast a\u00f0 skipta g\u00e6\u00f0um heimsins, f\u00e6\u00f0a b\u00f6rn \u00feessa heims, annast sj\u00faka og \u00feau sem megna ekki a\u00f0 sj\u00e1 s\u00e9r farbor\u00f0a? Hva\u00f0 me\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur var hvorki karldula n\u00e9 karlvargur, hann var, eins og hann birtist \u00ed gu\u00f0spj\u00f6llunum, mildur vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem minna m\u00e1ttu s\u00edn en \u00f6grandi og gagnr\u00fdninn gagnvart \u00feeim sem hreyktu s\u00e9r og t\u00f6ldu sig \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum betri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jes\u00fas, sem var Gy\u00f0ingur, \u00feekkti Ritningarnar, tr\u00faarb\u00e6kur og hef\u00f0ir Gy\u00f0inga. Hann kunni \u00fea\u00f0 allt betur en a\u00f0ri. Hann \u00feekkti til sp\u00e1manna Gamla testamentisins sem flestir l\u00e9tu l\u00edfi\u00f0 fyrir gagnr\u00fdni s\u00edna \u00e1 yfirv\u00f6ld. \u00deeir voru <em>aktivistar<\/em> s\u00edns t\u00edma, tilheyr\u00f0u hvorki hinni p\u00f3lit\u00edsku valdast\u00e9tt n\u00e9 st\u00e9tt prestanna. \u00deeir voru ekki opinberir starfsmenn e\u00f0a emb\u00e6ttismenn og \u00fe\u00e1\u00f0u enga bitlinga. En \u00feeir s\u00e1u gjarnan \u00ed gegnum vald og spillingu, s\u00e1u l\u00edfi\u00f0 \u00ed himnesku lj\u00f3si, bjuggu yfir dj\u00fapu inns\u00e6i, hugrekki, tr\u00fafesti, r\u00e9ttl\u00e6ti og k\u00e6rleika,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan er sprottin \u00far \u00feessum arfi, arfi Gamla testamentisins, arfi \u00e6ttfe\u00f0ranna, Abrahams, \u00cdsaks og Jakobs, arfi sp\u00e1mannanna, arfi s\u00e1lmahef\u00f0arinnar, arfi hinnar himih\u00e1u vonar um betri heim og sigur hins g\u00f3\u00f0a yfir hinu illa. J\u00f3hannes sk\u00edrari var s\u00ed\u00f0astur sp\u00e1mannanna. Hann gagnr\u00fdndi Her\u00f3des og galt fyrir \u00fea\u00f0 me\u00f0 l\u00edfi s\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan e\u00f0a kirkjunnar \u00fej\u00f3nar hafa sumir e\u00f0a jafnvel margir \u00ed gegnum aldirnar or\u00f0i\u00f0 handbendi valdsherra \u00e1 hverjum t\u00edma. Kirkjan getur spillst eins og \u00f6nnur veraldleg f\u00e9l\u00f6g enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi h\u00e1leit og himnesk markmi\u00f0. \u00dea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan lifir \u00ed f\u00f6llnum heimi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lifum n\u00fa t\u00edma k\u00f3r\u00f3nuveirunnar sem \u00f3gnar l\u00edfi f\u00f3lks um allan heim. \u00d3gnir tilverunnar eru margar og hvert og eitt okkar getur hrasa\u00f0 vi\u00f0 hvert f\u00f3tm\u00e1l. \u00d3r\u00e9ttur \u00f3gnar okkar samf\u00e9lagi og okkur sv\u00ed\u00f0ur m\u00f6rgum \u00f3r\u00e9ttl\u00e1t skipting g\u00e6\u00f0a \u00feessa lands. N\u00fdjasta d\u00e6mi\u00f0 er svonefndur &#8220;fyrirframgreiddur arfur&#8221; \u00fatger\u00f0armanna nokkurra sem l\u00edta \u00e1 sig sem eigendur alls sem hj\u00e1 \u00feeim er b\u00f3kf\u00e6rt og \u00e6tla a\u00f0 arflei\u00f0a b\u00f6rnin s\u00edn a\u00f0 eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar sem hefur sl\u00e6\u00f0s inn \u00ed b\u00f3khaldi\u00f0, syndandi fiskinn \u00ed sj\u00f3num. Svo illa er komi\u00f0 fyrir \u00feessari \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hefur l\u00e1ti\u00f0 \u00feessa vitleysu ganga \u00ed \u00e1ratugi og \u00fer\u00f3ast \u00ed \u00feann \u00f3skapna\u00f0 sem svonefnd gjafakv\u00f3takerfi er komi\u00f0 \u00ed. Vi\u00f0 \u00feurfum au\u00f0vita\u00f0 kv\u00f3takerfi, kerfi til a\u00f0 stj\u00f3rna fiskvei\u00f0um. En a\u00f0 Al\u00feingi skuli ekki hafa st\u00f6\u00f0va\u00f0 \u00feessa \u00f3svinnu og l\u00e1ti\u00f0 \u00f3r\u00e9ttinn vi\u00f0gangast, framsali\u00f0 og eignf\u00e6rsluna \u00ed b\u00f3khaldinu um \u00e1rabil geri \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0\u00feingi\u00f0 stendur vart undir nafni sem sl\u00edkt og \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur sagt a\u00f0 ma\u00f0ur freistast til \u00feess a\u00f0 skipta \u00fat b\u00f3kstafnum <strong>\u00f0<\/strong> \u00far or\u00f0inu \u00fej\u00f3\u00f0\u00feing og setja <strong>f<\/strong> \u00ed sta\u00f0inn fyrir <strong>\u00f0<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deingi\u00f0 sem starfar \u00ed umbo\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 ekki a\u00f0 l\u00e1ta menn valsa um me\u00f0 eignir \u00fej\u00f3\u00f0arinna og sl\u00e1 eign sinni \u00e1 \u00fe\u00e6r eins og hvert anna\u00f0 \u00fe\u00fdfi. \u00dea\u00f0 er Al\u00feingis a\u00f0 breyta l\u00f6gunum \u00far \u00f3l\u00f6gum \u00ed r\u00e9ttl\u00e1t l\u00f6g. Al\u00feingi starfar \u00ed umbo\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar en \u00e1 ekki a\u00f0 vera grei\u00f0astofnun \u00fatger\u00f0armanna e\u00f0a annarra a\u00f0ila sem maka kr\u00f3kinn \u00e1 kostna\u00f0 almennings. Al\u00feingismenn mega ekki vera ve\u00f0settir upp \u00ed h\u00e1rsr\u00e6tur af s\u00e9rhagsmunaf\u00f3lki.<\/p>\n<p>\u00c9g skrifa\u00f0i eitt sinns stutta f\u00e6rslu \u00e1 Facebook og \u00fea\u00f0 sendi ma\u00f0ur nokkur m\u00e9r skilabo\u00f0 og ba\u00f0 mig a\u00f0 hringja \u00ed sigd. \u00c9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 og hann sag\u00f0i: \u00c9g er svo samm\u00e1la \u00fe\u00e9r en \u00e9g \u00feori ekki a\u00f0 l\u00e6ka \u00e1 \u00feig, \u00e9g \u00feori ekki \u00ed m\u00ednum heimab\u00e6 a\u00f0 vera \u00e1 m\u00f3ti \u00feessu \u00fev\u00ed \u00e9g \u00e1 vinnu m\u00edna og hagsmuni undir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegja.<\/p>\n<p>\u00c9g fagna or\u00f0um fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra um a\u00f0 til standi a\u00f0 breyta \u00feessum \u00f3l\u00f6gum og minni \u00ed \u00fev\u00ed sambandi \u00e1 till\u00f6gu Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s a\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1rgrein um au\u00f0lindir \u00cdslands. Or\u00f0alag Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s m\u00e1 ekki fyrir nokkra muni breyta \u00ed \u00feessari mikilv\u00e6gu grein en \u00e9g hef heyrt margar till\u00f6gur stj\u00f3rnm\u00e1lamanna sem gert hafa tilraunir til a\u00f0 fara \u00e1 svig vi\u00f0 or\u00f0alag greinarinnar sem 82,9% \u00fej\u00f3\u00f0arinnar l\u00fdstu sig samm\u00e1la \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu um till\u00f6gur Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s.<\/p>\n<p><\/p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er m\u00e1l a\u00f0 h\u00e1rtogunum stj\u00f3rnm\u00e1lamanna sem ganga erinda kv\u00f3tagreirfanna linni og kominn t\u00edm til a\u00f0 al\u00feingismenn \u00feekki sinn vitjunart\u00edma, a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0\u00feingi\u00f0 standi undir nafni.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi r\u00e9ttl\u00e6tiss\u00f3lin sk\u00edna sk\u00e6rar \u00e1 himni \u00cdslands \u00e1 komandi t\u00ed\u00f0 og f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu una vi\u00f0 gott \u00fej\u00f3\u00f0\u00feing og r\u00edkisstj\u00f3rn.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g ver\u00f0 n\u00fa varla rekinn \u00far \u00feessu, fyrir a\u00f0 bo\u00f0a r\u00e9ttl\u00e6ti af pr\u00e9dikunarst\u00f3li, enda bara <em>fyrrverandi<\/em> prestur og kominn \u00e1 <em>ellilaun<\/em> og ef \u00e9g ver\u00f0 v\u00edttur fyrir \u00fea\u00f0 ver\u00f0a hinir s\u00f6mu a\u00f0 v\u00edta Krist og \u00feau \u00f6ll sem tala\u00f0 hafa gegn \u00f3r\u00e9tti \u00ed heiminum \u00ed nafni hans um aldir.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum s\u00edfellt a\u00f0 heilsast og kve\u00f0jast, og n\u00fa me\u00f0 olnbogaskotum e\u00f0a h\u00f6ndum l\u00f6g\u00f0um a\u00f0 brj\u00f3sti. Vi\u00f0 heilsum n\u00fdjum degi, vi\u00f0 heilsum f\u00f3lki og kve\u00f0jum f\u00f3lk, kve\u00f0jum \u00feau sem hverfa af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi, kve\u00f0jum \u00feau sem fara burtu langdv\u00f6lum og koma kannski ekki til baka til landsins, kve\u00f0jum \u00feau sem yfirgefa okkur af einni e\u00f0a annarri ors\u00f6k.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur kvaddi s\u00edna fylgjendur. \u00deau voru m\u00f6rg sem heillu\u00f0ust af bo\u00f0skap hans, konur og karlar, b\u00f6rn og fullor\u00f0nir. Og svo er enn.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann lifir og r\u00edkir og \u00e1 r\u00edki hans mun enginn endir ver\u00f0a. Ver\u00f6ldin hefur \u00e1\u00f0ur viki\u00f0 af vegi hans. Menn hafa borist \u00e1 banaspj\u00f3t, drepi\u00f0 hver annan \u00ed mannsk\u00e6\u00f0um styrj\u00f6ldum, \u00f3\u00e1ran og sj\u00fakd\u00f3mar hafa leiki\u00f0 mannkyni\u00f0 gr\u00e1tt.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumt sem yfir okkur gengur er af v\u00f6ldum n\u00e1tt\u00farunnar sem n\u00fa heg\u00f0ar s\u00e9r torkennilega og \u00fear eigum vi\u00f0, a\u00f0 minnsta kosti \u00ed sumum tilfellum, einhvern hlut a\u00f0 m\u00e1li, anna\u00f0 er okkur algj\u00f6rlega sj\u00e1lfum a\u00f0 kenna.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum gallagripir, en elsku\u00f0 af Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan bo\u00f0ar k\u00e6rleika Gu\u00f0s \u00ed Kristi, ford\u00f3maleysi, skilning, k\u00e6rleika, miskunn og n\u00e1\u00f0, fyrirgefningu.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g er \u00feakkl\u00e1tur fyrir a\u00f0 hafa alist upp \u00ed kristnu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi, \u00fear sem kirkjan er til sta\u00f0ar, kirkan sem \u00fej\u00f3nar \u00f6llum, kirkja me\u00f0 starfsf\u00f3lk sem leitast vi\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum sem sag\u00f0i: &#8220;\u00c9g lifi og \u00fe\u00e9r munu\u00f0u lifa.&#8221; \u00deau or\u00f0 muna allir sem s\u00e9\u00f0 hafa lj\u00f3smyndina af kirkjugar\u00f0shli\u00f0inu \u00ed Vestmannaeyjum fr\u00e1 1973 \u00feegar jar\u00f0eldar logu\u00f0u, \u00fear sem grafirnar s\u00e1ust ekki undir meters h\u00e1u \u00f6skulagi.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00c9g lifi og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 lifa.&#8221;<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g les n\u00fa \u00fe\u00fd\u00f0ingu Kirstj\u00e1ns Eldj\u00e1rns, fv. forseta \u00cdslands, Nor\u00f0urlandstr\u00f3met eftir \u00fej\u00f3\u00f0sk\u00e1ld Nor\u00f0manna Petter Dass og samt\u00edmamann s\u00e9ra Hallgr\u00edms P\u00e9turssonar sem fyrstur var nefndur \u00fej\u00f3\u00f0sk\u00e1ld h\u00e9r \u00e1 landi. Dass yrkir um landi\u00f0 sitt me\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkum til\u00ferifum a\u00f0 unun er a\u00f0 lesa \u00ed snilldar\u00fe\u00fd\u00f0ingu Kristj\u00e1ns. \u00dear segir t.d. um hi\u00f0 kalda nor\u00f0ur:<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00e9r yfir oss h\u00f6fum \u00feann \u00edskalda p\u00f3l<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">svo \u00f3ralangt fr\u00e1 hinni vermandi s\u00f3l<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed v\u00e1lyndu ve\u00f0ranna heimi,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og Sat\u00farnus hyggja menn haldi \u00fear v\u00f6r\u00f0<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">um hulinn og \u00f3\u00feekktan fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og gullsins \u00ed nor\u00f0rinu geymi.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&nbsp;<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og kynlegt er \u00e1ri\u00f0, sem kemur og fer,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a\u00f0 kalla \u00fea\u00f0 s\u00f3larhring leyfi \u00e9g m\u00e9r,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fea\u00f0 er ekki skrum e\u00f0a skreytni,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fev\u00ed n\u00f3ttin \u00e1 veturna \u00f3sliti er<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en aldrei a\u00f0 sumrinu dagurinn \u00fever,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<p><\/p>\n<p>svo misj\u00f6fn er missira breytni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><\/p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta g\u00e6ti veri\u00f0 ort um \u00cdsland. (Nor\u00f0urlandstr\u00f3met s. 45)<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e6gasti s\u00e1lmur sk\u00e1ldprestsins norska og n\u00famer 1 \u00ed s\u00e1lmab\u00f3k norsku krikjunnar, sem flestir Nor\u00f0menn kunna utanb\u00f3kar, er til \u00ed snilldar\u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigurbjarnar Einarssonar, sem var velgj\u00f6r\u00f0arma\u00f0ur minn og \u00e1hrifavaldur \u00ed l\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0arinna. S\u00e1lmurinn hlj\u00f3\u00f0ar svo (Sb nr. 11):<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 Drottinn Gu\u00f0, \u00feitt d\u00fdra nafni\u00f0 sk\u00e6ra<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 d\u00fdrka ber og veita lotning t\u00e6ra.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 Hver tunga, vera<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 skal vitni bera,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 a\u00f0 voldug eru<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 \u00fe\u00edn r\u00e1\u00f0 og \u00fe\u00e9r \u00feakkir f\u00e6ra.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 Gu\u00f0 er Gu\u00f0, \u00fe\u00f3tt ver\u00f6ld v\u00e6ri eigi,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 ver\u00f0ur Gu\u00f0, \u00fe\u00f3tt allt \u00e1 j\u00f6r\u00f0u deyi.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 \u00de\u00f3tt farist heimur<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 sem hj\u00f3m og eimur,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 mun heilagt streyma<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 n\u00fdtt l\u00edf um geim, Gu\u00f0s \u00e1 degi.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 Bj\u00f6rgin hrynja, hamravirkin sv\u00edkja,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 himinn, j\u00f6r\u00f0 og stj\u00f6rnur munu v\u00edkja,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 en upp mun r\u00edsa,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 og r\u00e1\u00f0 hans pr\u00edsa,<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 hans r\u00edki v\u00edsa<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2022 og lj\u00f3si\u00f0 l\u00fdsa og r\u00edkja.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dass &#8211; Sigurbj\u00f6rn Einarsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 geymi \u00feig og gefi \u00fe\u00e9r gle\u00f0ilegt sumars, gefi a\u00f0 \u00fe\u00fa komist \u00ed gegnum \u00feessa t\u00edma, sem vi\u00f0 n\u00fa lifum, komist \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0 me\u00f0 reisn, \u00ed tr\u00fa, von og k\u00e6rleika.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0justund.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jes\u00fas kvaddi s\u00edna fylgjendur og or\u00f0 hans berast okkur \u00ed gegnum \u00e1r og aldir:<\/p>\n<p>\n\n\n\n<p><\/p>\n<p>\u201eFari\u00f0 \u00fat um allan heim og pr\u00e9diki\u00f0 fagna\u00f0arerindi\u00f0 \u00f6llu mannkyni.&#8221;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><\/p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g kve\u00f0 ykkur n\u00fa \u00f6ll sem til m\u00edn heyri\u00f0 me\u00f0 \u00feessu or\u00f0um:<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Veri\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e6l og blessu\u00f0!<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og megi fri\u00f0ur Gu\u00f0s sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi, var\u00f0veita hj\u00f6rtu ykkar og hugsanir ykkar \u00ed Kristi Jes\u00fa. (Fil 4.7).<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6l og blessu\u00f0.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&nbsp;<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Textar dagsins:<\/p>\n<p>\n\n\n\n<\/p>\n<p class=\"wp-block-paragraph\">https:\/\/kirkjan.is\/kirkjan\/kirkjuarid\/kirkjuarid-nanar\/?itemid=9c1aa1f2-da12-11e8-9431-005056bc2afe<\/p>\n<p>\n\n\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Uppstigningardagur 21. ma\u00ed 2020 pr\u00e9dikun vi\u00f0 \u00fatvarpsmessu \u00ed Brei\u00f0holtskirkju kl. 11 sem \u00e1tti a\u00f0 vera \u00e1 Grund en var flutt vegna Covid-19. R\u00e6\u00f0an er h\u00e9r ef \u00fe\u00fa vilt hlusta: H\u00e9r er tengill \u00e1 uppt\u00f6kuna af allri messunni. R\u00e6\u00f0an hefst \u00e1 m\u00edn\u00fatu 20:30: https:\/\/www.ruv.is\/utvarp\/spila\/gudsthjonusta\/24228\/7hi3dn Komi\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e6l og blessu\u00f0. \u00c9g var spur\u00f0ur um [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[9],"tags":[24,166,206,243,254,333,518,557,600,73],"class_list":["post-2248","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-predikanir-sermons","tag-althingi","tag-elska","tag-forrettindi","tag-gud","tag-hagsmunir","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-stjornarskra","tag-thing"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2248","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2248"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2248\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2248"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2248"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2248"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}