{"id":2080,"date":"2019-10-18T08:50:24","date_gmt":"2019-10-18T08:50:24","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=2080"},"modified":"2019-10-18T08:50:24","modified_gmt":"2019-10-18T08:50:24","slug":"hukur-bodvarsson-1949-1980-70-ar-eru-lidin-fra-faedingu-hans","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2080","title":{"rendered":"Haukur B\u00f6\u00f0varsson 1949-1980 &#8211; 70 \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu hans"},"content":{"rendered":"<p><strong>Haukur B\u00f6\u00f0varsson<\/strong><\/p>\n<p><strong>F. 18. sept. 1949. d 25. feb. 1980.<\/strong><\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/image-6.jpg\" class=\"size-full wp-image-2084\" width=\"268\" height=\"345\"><\/p>\n<p>Haukur B\u00f6\u00f0varsson<\/p>\n<p>\u00cd dag, 18. okt\u00f3ber 2019, \u00feegar 70 \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu \u00e6skuvinar m\u00edns, Hauks B\u00f6\u00f0varssonar, minnist \u00e9g hans me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Hann f\u00f3rst me\u00f0 skipi s\u00ednu, m\/b Eir\u00edki Finnssyni og \u00e1h\u00f6fn \u00ed \u00cdsfja\u00f0ardj\u00fapi 25. febr\u00faar 1980 \u00ed miklu \u00f3ve\u00f0ri sem enginn s\u00e1 fyrir.<\/p>\n<p>Vin\u00e1tta okkar h\u00f3fst fyrir fermingaaldur og vi\u00f0 br\u00f6llu\u00f0um margt saman fram \u00e1 unglings\u00e1r. Eftir a\u00f0 \u00e9g flutti su\u00f0ur hittumst vi\u00f0 sjaldnar en gle\u00f0i r\u00edkti \u00e1valt er fundum okkar bar saman.<!--more--><\/p>\n<p>\u00c9g hugsa oft til hans og hef mynd hans \u00e1 vegg heima til a\u00f0 minnast g\u00f3\u00f0s drengs.<\/p>\n<p>\u00c1 Vefnum fann \u00e9g minningargrein um Hauk, rita\u00f0a af Gu\u00f0j\u00f3ni \u00c1rmanni Eyj\u00f3lfssyni, fyrrum sk\u00f3lastj\u00f3ra St\u00fdrimanask\u00f3lans \u00ed Vestmannaeyjum. \u00c9g birti hluta hennar h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<blockquote>\n<p style=\"padding-left: 40px\">&#8220;Me\u00f0 f\u00e1um or\u00f0um langar mig a\u00f0 minnast m\u00edns gamla nemanda og vinar Hauks B\u00f6\u00f0varssonar, sem f\u00f3st me\u00f0 m\/b Eir\u00edki Finnssyni \u00ed ofvi\u00f0rinu mikla, sem gekk yfir Vestfir\u00f0i hinn 25. febr\u00faar sl.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Haukur B\u00f6\u00f0varsson var f\u00e6ddur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 18. september 1949. Hann var sonur hj\u00f3nanna I\u00f0unnar Eir\u00edksd\u00f3ttur og B\u00f6\u00f0vars Sveinbj\u00f6rnssonar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Enn stendur m\u00e9r einkar lj\u00f3st fyrir hugskotssj\u00f3num, \u00feegar Haukur m\u00e6tti til n\u00e1ms \u00ed St\u00fdrimannask\u00f3lann \u00ed Vestmannaeyjum hausti\u00f0 1967. Hann var \u00fe\u00e1 a\u00f0eins 18 \u00e1ra gamall, naumlega me\u00f0 tilskilin siglingat\u00edma og leit \u00fat fyrir a\u00f0 vera enn yngri. Haukur bau\u00f0 af s\u00e9r g\u00f3\u00f0an \u00feokka og f\u00e9kk herbergi \u00e1 heimavist a\u00f0 Brei\u00f0abliki. \u00deegar lei\u00f0 \u00e1 vetur kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Haukur var miki\u00f0 og gott mannsefni. Hann var samviskusamur og stunda\u00f0i n\u00e1mi\u00f0 af al\u00fa\u00f0. Hann var\u00f0 vins\u00e6ll me\u00f0al f\u00e9laga sinna, \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann l\u00e9ti aldrei sinn hlut \u00ed leik n\u00e9 starfi og var \u00ed miklu upp\u00e1haldi hj\u00e1 kennurum sk\u00f3lans fyrir \u00e1stundun og g\u00f3\u00f0a framkomu.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">[. . . ]<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">\u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00e1 lif\u00f0i vert\u00ed\u00f0ar komst hann \u00ed gott skipr\u00fam til Fri\u00f0riks \u00c1smundssonar \u00e1 m\/b Mars og hr\u00f3sa\u00f0i Fri\u00f0rik honum fyrir einstaka snerpu og \u00e1huga \u00e1 sj\u00f3num.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Haukur var svo til sj\u00f3s n\u00e6sta \u00e1ri\u00f0 og kom sem full\u00feroska og har\u00f0na\u00f0ur sj\u00f3ma\u00f0ur \u00ed 2. bekk. Haukur lauk fiskimannapr\u00f3fi 2. stigs me\u00f0 pr\u00fd\u00f0is\u00e1rangri vori\u00f0 1970 og hlaut ver\u00f0laun fyrir g\u00f3\u00f0a \u00e1stundun og framfarir \u00ed n\u00e1mi. Hann h\u00e9lt s\u00ed\u00f0an vestur \u00ed \u00e1tthaga s\u00edna og var\u00f0 \u00fear flj\u00f3tlega skipstj\u00f3ri og atkv\u00e6\u00f0amikill og ann\u00e1la\u00f0ur sj\u00f3s\u00f3knari og kalla Vestfir\u00f0ingar ekki allt \u00f6mmu s\u00edna \u00ed \u00feeim efnum.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">F\u00e9lagar hans \u00fear vestra l\u00fdsa Hauk sem einst\u00f6kum \u00e1hugamanni \u00ed starfi s\u00ednu \u00e1 sj\u00f3num og a\u00f0 hann hafi \u00e1tt f\u00e1a s\u00edna l\u00edka hva\u00f0 \u00fea\u00f0 snerti. \u00deetta er vel m\u00e6lt.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Haukur var skipstj\u00f3ri me\u00f0 Gu\u00f0n\u00fdju og V\u00edking III \u00e1 l\u00ednuvei\u00f0um og var \u00fe\u00e1 alltaf \u00ed r\u00f6\u00f0 \u00feeirra aflah\u00e6stu e\u00f0a h\u00e6stur l\u00ednub\u00e1ta \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Hann s\u00f3tti st\u00edft og man \u00e9g vel eftir sj\u00f3nvarpsmynd af klakabrynju\u00f0um b\u00e1ti a\u00f0 koma a\u00f0 bryggju \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, var \u00fear Haukur a\u00f0 koma a\u00f0 landi \u00far erfi\u00f0ri sj\u00f3fer\u00f0.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">\u00c1ri\u00f0 1975 h\u00f3f Haukur r\u00e6kjuvei\u00f0ar me\u00f0 m\/b Morgunstj\u00f6rnu og \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar h\u00f3f hann \u00fatger\u00f0 og eigna\u00f0ist l\u00edtinn r\u00e6kjub\u00e1t, sem hann sk\u00edr\u00f0i \u00ed h\u00f6fu\u00f0 \u00e1 afa s\u00ednum Eir\u00edki Finnssyni, sem var \u00feekktur ma\u00f0ur \u00e1 \u00edsafir\u00f0i \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0. Upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed stunda\u00f0i Haukur r\u00e6kjuvei\u00f0ar meiri hluta \u00e1rsins og haf\u00f0i fest kaup \u00e1 st\u00e6rri r\u00e6kjub\u00e1t, er kalli\u00f0 kom, hinn 25. febr\u00faar. B\u00e1tur \u00feessi var st\u00e6rri og betur b\u00fainn en s\u00e1, sem Haukur f\u00f3rst me\u00f0 \u00ed mannska\u00f0ave\u00f0rinu mikla. Haf\u00f0i Haukur hug \u00e1 a\u00f0 fara \u00e1 dj\u00fapr\u00e6kjuvei\u00f0ar \u00e1 \u00fev\u00ed skipi.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">[. . .]<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Hann var samt jafn hl\u00fdr og al\u00fa\u00f0legur og hann var alltaf. Vi\u00f0 t\u00f6lu\u00f0um um a\u00f0 hittast me\u00f0 f\u00e9l\u00f6gum hans fr\u00e1 1. bekk nokkru s\u00ed\u00f0ar \u00ed Reykjav\u00edk. Hann var ekki viss, en n\u00e6sta vor, \u00fe\u00e1 myndum vi\u00f0 \u00e1rei\u00f0anlega hittast. Eftir veru hans \u00ed Eyjum \u00e1ttu \u00fe\u00e6r sterka taug \u00ed Hauk. En svona er l\u00edfi\u00f0. N\u00fa er Haukur horfinn \u00e1samt fleiri g\u00f3\u00f0um vinum, sem voru saman \u00e1 Brei\u00f0abliki for\u00f0um daga.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">\u00c1 li\u00f0num vetri minntust vi\u00f0 Steingr\u00edmur Arnar stundum \u00e1 Hauk og \u00f6rl\u00f6g hans. Jafnframt \u00fev\u00ed sem \u00feessar l\u00ednur er kve\u00f0ja m\u00edn til Hauks B\u00f6\u00f0varssonar eru \u00fe\u00e6r kve\u00f0ja fr\u00e1 Steingr\u00edmi og samkennurum okkar. Mikill mannsska\u00f0i er a\u00f0 sl\u00edkum dugna\u00f0armanni sem Haukur B\u00f6\u00f0varsson var. Hann var a\u00f0eins r\u00famlega \u00fer\u00edtugur og l\u00edfi\u00f0 fullt af fyrirheitum.&#8221;<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>H\u00e9r er Hauki vel l\u00fdst sem g\u00f3\u00f0um dreng, sem var kappsfullur og \u00f3s\u00e9rhl\u00edfinn, h\u00f6rkuduglegur og kn\u00e1r. Hann var vaskur og \u00e1r\u00e6\u00f0inn. \u00c9g man t.d. hva\u00f0 hann var duglegur \u00e1 sk\u00ed\u00f0um sem unglingur.<\/p>\n<p>Sj\u00e1lfur n\u00e1lgast \u00e9g n\u00fa sj\u00f6tugsaldur og \u00feakka fyrir hvern dag. L\u00edfi\u00f0 er st\u00e6rsta gj\u00f6fin en enginn veit hven\u00e6r \u00fev\u00ed l\u00fdkur. Enginn \u00e1 lofor\u00f0 um langl\u00edfi. Lifum vi\u00f0 n\u00e6sta klukkukt\u00edma, n\u00e6sta dag, n\u00e6sta \u00e1r?<\/p>\n<p>Oft ver\u00f0ur m\u00e9r hugsa\u00f0 til Hauks og \u00feeirra m\u00f6rgu sem \u00e9g hef fylgt og \u00feeirra m\u00f6rgu hverra moldum \u00e9g hef tala\u00f0 yfir \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum. N\u00e1ndin vi\u00f0 dau\u00f0ann f\u00e6r mann til a\u00f0 hugsa um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna.<\/p>\n<p>\u00c9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 tilveran s\u00e9 st\u00e6rri en vi\u00f0 skynjum h\u00e9r \u00ed \u00feessu jar\u00f0neska l\u00edfi. V\u00edddirnar eru fleir og st\u00e6rri en vi\u00f0 f\u00e1um numi\u00f0.<\/p>\n<p>Til er s\u00fa hugsun um dau\u00f0ann a\u00f0 allir deyi \u00ed raun \u00ferisvar.<\/p>\n<p>Fyrst deyjum vi\u00f0 \u00feegar hjarta\u00f0 h\u00e6ttir a\u00f0 sl\u00e1 og vi\u00f0 gefum upp andann.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 deyjum \u00f6\u00f0ru sinni \u00feegar vi\u00f0 erum horfin af j\u00f6r\u00f0u og l\u00edkaminn hefur veri\u00f0 lag\u00f0ur \u00ed gr\u00f6f, \u00ed kistu e\u00f0a duftkeri, e\u00f0a \u00ed hina votu gr\u00f6f, \u00fear sem \u00feau hv\u00edla er aldrei fundust. Eftir \u00fatf\u00f6r erum vi\u00f0 horfin, farin \u00fat af \u00feessu l\u00edfi, eins og or\u00f0i\u00f0 \u00fatf\u00f6r ber me\u00f0 s\u00e9r. En vi\u00f0 lifum samt \u00e1fram \u00ed minningum \u00e1stvina og samfer\u00f0af\u00f3lks.<\/p>\n<p>En svo kemur hinn \u00feri\u00f0ji dau\u00f0i. Hann \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00feegar engin lifandi manneskja man okkur framar, \u00feegar allir eru horfnir sem \u00feekktu okkur og \u00e1ttu um okkur minningar. Hver man \u00feig og mig \u00fe\u00e1? \u00dea\u00f0 er st\u00f3ra spurningin. Hver man okkur \u00feegar \u00feessi ver\u00f6ld er horfin?<\/p>\n<p>Norski sk\u00e1ldpresturinn Peter Dass, sem var samt\u00ed\u00f0arma\u00f0ur s\u00e9ra Hallgr\u00edms P\u00e9turssonar \u00e1 17. \u00f6ld, orti s\u00e1lm, sem Sigurbj\u00f6rn Einarsson, biskup, \u00fe\u00fdddi. S\u00e1lmurinn er n\u00famer 1 \u00ed norsku s\u00e1lmab\u00f3kinni og \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 st\u00f3r hluti Nor\u00f0manna kunni hann utanb\u00f3kar. Snilldar\u00fe\u00fd\u00f0ing Sigurbjarnar hlj\u00f3\u00f0ar svo:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Drottinn Gu\u00f0, \u00feitt d\u00fdra nafni\u00f0 sk\u00e6ra<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">d\u00fdrka ber og veita lotning t\u00e6ra.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Hver tunga, vera<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">skal vitni bera,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">a\u00f0 voldug eru<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">\u00fe\u00edn r\u00e1\u00f0 og \u00fe\u00e9r \u00feakkir f\u00e6ra.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Gu\u00f0 er Gu\u00f0, \u00fe\u00f3tt ver\u00f6ld v\u00e6ri eigi,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">ver\u00f0ur Gu\u00f0, \u00fe\u00f3tt allt \u00e1 j\u00f6r\u00f0u deyi.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">\u00de\u00f3tt farist heimur<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">sem hj\u00f3m og eimur,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">mun heilagt streyma<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">n\u00fdtt l\u00edf um geim, Gu\u00f0s \u00e1 degi.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">Bj\u00f6rgin hrynja, hamravirkin sv\u00edkja,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">himinn, j\u00f6r\u00f0 og stj\u00f6rnur munu v\u00edkja,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">en upp mun r\u00edsa,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">og r\u00e1\u00f0 hans pr\u00edsa,<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">hans r\u00edki v\u00edsa<\/p>\n<p style=\"padding-left: 40px\">og lj\u00f3si\u00f0 l\u00fdsa og r\u00edkja.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Haukur B\u00f6\u00f0varsson F. 18. sept. 1949. d 25. feb. 1980. Haukur B\u00f6\u00f0varsson \u00cd dag, 18. okt\u00f3ber 2019, \u00feegar 70 \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu \u00e6skuvinar m\u00edns, Hauks B\u00f6\u00f0varssonar, minnist \u00e9g hans me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Hann f\u00f3rst me\u00f0 skipi s\u00ednu, m\/b Eir\u00edki Finnssyni og \u00e1h\u00f6fn \u00ed \u00cdsfja\u00f0ardj\u00fapi 25. febr\u00faar 1980 \u00ed miklu \u00f3ve\u00f0ri sem enginn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-2080","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad-uncategorized"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2080","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2080"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2080\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2080"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2080"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2080"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}