{"id":1669,"date":"2016-03-20T14:33:46","date_gmt":"2016-03-20T14:33:46","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1669"},"modified":"2016-03-20T14:33:46","modified_gmt":"2016-03-20T14:33:46","slug":"timamot-predikun-vid-kvedjumessu-i-neskirkju","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1669","title":{"rendered":"&#8220;T\u00edmam\u00f3t&#8221; &#8211; pr\u00e9dikun vi\u00f0 kve\u00f0jumessu \u00ed Neskirkju"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1674\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2016\/03\/palmasunnudagur.png?w=294\" alt=\"Palmasunnudagur\" width=\"294\" height=\"300\" \/>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><b>T\u00edmam\u00f3t<\/b><\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun vi\u00f0 kve\u00f0jumessu \u00ed Neskirkju\u00a0p\u00e1lmasunnudag 20. mars 2016 kl. 11<\/p>\n<p>Sermon at a farewell mass at Neskirkja Reykjavik Iceland palmsunday March 20, 2016.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1669-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2016\/03\/kvec3b0jumessa.m4a?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2016\/03\/kvec3b0jumessa.m4a\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2016\/03\/kvec3b0jumessa.m4a<\/a><\/audio>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>Hver eru merkustu t\u00edmam\u00f3t l\u00edfs \u00fe\u00edns?<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru t\u00edmam\u00f3t \u00ed dag. Neskirkja var v\u00edg\u00f0 fyrir 59 \u00e1rum \u00e1 p\u00e1lmasunnudag \u00e1ri\u00f0 1957. Fyrsta n\u00fat\u00edmakirkja landsins, fri\u00f0u\u00f0 a\u00f0 ytra bir\u00f0i, me\u00f0 n\u00fdju safna\u00f0aheimili fr\u00e1 2004, sem er fyrsta safna\u00f0arheimili sinnar tegundar \u00e1 \u00cdslandi \u00fear sem saman fer safna\u00f0arstarf og rekstur kaffih\u00fass me\u00f0 neta\u00f0gangi, lists\u00fdningum og fleiru. Vesturb\u00e6ingar hafa gjarnan haft fingur \u00e1 p\u00falsi samt\u00ed\u00f0ar sinnar, me\u00f0 g\u00f3\u00f0a s\u00fdn fram \u00e1 vi\u00f0. Hinga\u00f0 hafa margir komi\u00f0 \u00ed t\u00edmans r\u00e1s og s\u00f3tt s\u00e9r kraft til l\u00edfs og \u00fej\u00f3nustu. H\u00e9r hittast kynsl\u00f3\u00f0irnar. Kirkjan \u00fej\u00f3nar f\u00f3lki fr\u00e1 v\u00f6ggu til grafar. H\u00e9r sveiflast starfi\u00f0 \u00e1 milli gle\u00f0i og sorgar. Tr\u00fa og von v\u00edsa veginn til framt\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00c9g hef lifa\u00f0 m\u00f6rg t\u00edmam\u00f3t \u00e1 \u00e6vinni og n\u00fa stend \u00e9g \u00e1 krossg\u00f6tum. \u00c9g kom til \u00fej\u00f3nustu \u00ed Neskirkju \u00e1 haustd\u00f6gum 1999 og var h\u00e9r vi\u00f0 prests\u00fej\u00f3nustu til haustsins 2014 er \u00e9g f\u00f3r til Noregs \u00ed afleysingu \u00fear og til a\u00f0 m\u00e1ta mig vi\u00f0 meginlandi\u00f0 sem mig hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 langa\u00f0 a\u00f0 b\u00faa \u00e1.<\/p>\n<p>Bestu og \u00e1vaxtas\u00f6mustu \u00e1rin m\u00edn \u00ed prestsskap \u00e1tti \u00e9g h\u00e9r. Starfi\u00f0 h\u00f3fst r\u00f3lega en svo byrju\u00f0u prestsverkin a\u00f0 hla\u00f0ast upp og undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta var or\u00f0i\u00f0 allt of miki\u00f0 um annir. Sagt er a\u00f0 \u00fea\u00f0 henti flestum prestum a\u00f0 skipta um starfsvettvang \u00e1 7-10 \u00e1ra fresti en skipulag kirkjunnar h\u00e9r heima hindrar \u00feessa nau\u00f0synlegu tilbreytingu.<\/p>\n<p>\u00deegar aldurinn f\u00e6rist yfir mann \u00fe\u00e1 er r\u00e9tt a\u00f0 rifa seglin og hafa \u00f6gn minna fyrir stafni. Kirkjan ytra hefur allt anna\u00f0 skipulag en h\u00e9r \u00e1 landi og \u00fear er \u00feess g\u00e6tt a\u00f0 enginn vinni yfir sig. Fleiri bera bir\u00f0arnar og samf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1 heildina liti\u00f0 er \u00ed meira jafnv\u00e6gi en h\u00e9r.<\/p>\n<p>[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku um Noreg vs. Hverager\u00f0i]<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00cdsland stendur \u00e1 krossg\u00f6tum. Umr\u00e6\u00f0an \u00ed landinu, einkum \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, gefur v\u00edsbendingar um l\u00ed\u00f0an f\u00f3lks og m\u00e9r \u00feykir\u00a0 bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstingur landans oftar en ekki vera \u00ed h\u00e6rra lagi. Umr\u00e6\u00f0an um kirkjuna hefur veri\u00f0 \u00f3v\u00e6gin og ford\u00f3mafull \u00e1 k\u00f6flum en kirkjan mun standa \u00fea\u00f0 af s\u00e9r.<\/p>\n<p>Vesturl\u00f6nd ganga \u00ed gegnum breytingar og margir vilja skera \u00e1 fornar r\u00e6tur menningarinnar og telja a\u00f0 ma\u00f0urinn geti fundi\u00f0 upp eitthva\u00f0 betra sj\u00e1lfur. \u00c9g efa \u00fea\u00f0 st\u00f3rlega. \u00c1 sama t\u00edma og \u00feeim fj\u00f6lgar sem segja skili\u00f0 vi\u00f0 kirkju og kristni \u00e1 Vesturl\u00f6ndum, vex kirkjan hr\u00f6\u00f0um skrefum \u00ed K\u00edna. Og hinir kristnu \u00fear vita margir hverjir hvernig \u00feeir geta haft sem mest \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0. \u00c9g hl\u00fdddi n\u00fdlega \u00e1 ufj\u00f6llum BBC4 um kristni \u00ed K\u00edna. \u00dear kom fram a\u00f0 kristnir K\u00ednverjar\u00a0ganga \u00ed komm\u00fanistaflokkinn til a\u00f0 geta haft \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lgi\u00f0. Um 40% me\u00f0lima flokksins eru kristnir. Og \u00e1hrifin m\u00e1 sj\u00e1 v\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>Hver \u00e6tli sinni a\u00f0allega l\u00edknar\u00fej\u00f3nstu \u00ed landinu, \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 f\u00e1rsj\u00faka og deyjandi? Hin kristnu!<\/p>\n<p>Hver sinna HIV-smitu\u00f0um? Hin kristnu!<\/p>\n<p>Hver reka flest muna\u00f0arleysingjah\u00e6li \u00ed landinu? Hin kristnu!<\/p>\n<p>Hvers vegna er \u00fea\u00f0? Kemur k\u00e6rleikurinn ekki fram af sj\u00e1lfu s\u00e9r \u00ed \u00f6llum m\u00f6nnum? Nei, hann gerir \u00fea\u00f0 ekki. Manneskjan \u00fearf grunngildi, si\u00f0abo\u00f0skap, hvatningu, k\u00f6llun, sem beinir sj\u00f3num hennar a\u00f0 hinu g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna. H\u00fan \u00fearf a\u00f0 s\u00e6kja hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a til uppsprettunnar, til skapara s\u00edns.<\/p>\n<p>Svo halda menn \u00fev\u00ed bl\u00e1kalt fram h\u00e9r \u00e1 landi og v\u00ed\u00f0ar a\u00f0 si\u00f0r\u00e6nn h\u00famanismi, gu\u00f0leysi e\u00f0a einhverjar n\u00fat\u00edmahugmyndir toppi \u00feessa k\u00e6rleiks\u00fej\u00f3nustu, sem \u00e1 s\u00e9r m\u00f6rg \u00fe\u00fasund \u00e1ra hef\u00f0? Hvers vegna sprettur sl\u00edk \u00fej\u00f3nusta s\u00ed\u00f0ur upp me\u00f0al f\u00f3lks me\u00f0 a\u00f0rar l\u00edfssko\u00f0anir?<\/p>\n<p>Heimildir: http:\/\/www.bbc.co.uk\/programmes\/b072hs5s<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru t\u00edmam\u00f3t \u00ed l\u00edfi Jes\u00fa \u00feennan dag. Honum var innilega fagna\u00f0 er hann kom r\u00ed\u00f0andi \u00e1 asna inn \u00ed Jer\u00fasalem. F\u00f3lk lag\u00f0i yfirhafnir s\u00ednar \u00e1 lei\u00f0 hans, veifa\u00f0i p\u00e1lmagreinum eins og konungur v\u00e6ri \u00fear \u00e1 fer\u00f0. F\u00f3lki\u00f0 elska\u00f0i \u00feennan einstaka mann sem tala\u00f0i \u00e1 annan h\u00e1tt en \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i heyrst \u00ed ver\u00f6ldinni. Hann gaf f\u00f3lki von \u00ed erfi\u00f0um a\u00f0st\u00e6\u00f0um og tala\u00f0i jafnan m\u00e1li \u00feeirra er \u00e1ttu undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja. En skj\u00f3tt skipast ve\u00f0ur \u00ed lofti. Almennings\u00e1liti\u00f0 er oft eins og vindurinn. Fj\u00f3rum d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar var hann handtekinn og \u00e1 \u00feeim fimmta var hann l\u00edfl\u00e1tinn af hinu p\u00f3lit\u00edska og tr\u00faarlega valdi \u00feess t\u00edma eftir a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i hr\u00f3pa\u00f0 til P\u00edlatusar: Krossfestu hann!<\/p>\n<p>Jes\u00fas haf\u00f0i bo\u00f0a\u00f0 breytingar \u00ed heiminum. Bo\u00f0skapur hans snerist ekki a\u00f0eins um himinn og handanveru heldur um \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0, um a\u00f0st\u00e6\u00f0ur f\u00f3lks \u00ed vi\u00f0sj\u00e1rver\u00f0um heimi. \u00deess vegna bo\u00f0a\u00f0i hann \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagslegar breytingar me\u00f0 or\u00f0unum sem hann flutti \u00ed Nasaret er hann h\u00f3f starf sitt um \u00fer\u00edtugt. Og strax eftir \u00feann lestur \u00e6tlu\u00f0u menn a\u00f0 kasta honum fyrir bj\u00f6rg en hann gekk \u00ed gegnum mann\u00fer\u00f6ngina og h\u00f3f a\u00f0 fer\u00f0ast um og kenna um Gu\u00f0s r\u00edki\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar Mar\u00eda m\u00f3\u00f0ir hans f\u00e9kk bo\u00f0 engilsins um a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri me\u00f0 barni og bo\u00f0a\u00f0i henni mestu t\u00edmam\u00f3t veraldars\u00f6gunna, flutti h\u00fan lofs\u00f6ng sinn sem ber heiti\u00f0 Magnificat. \u00dear bo\u00f0ar h\u00fan f\u00e9lags- og efnahagslegar breytingar. Lesi\u00f0 um \u00feetta heima \u00ed 1. og 4. kafla L\u00fakasargu\u00f0spjalls.<\/p>\n<p>Tr\u00fain sn\u00fdst ekki bara um l\u00edfi\u00f0 eftir dau\u00f0ann. H\u00fan sn\u00fdst um l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa, um r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika. \u00deess vegna \u00e1 kristni tr\u00fa erindi vi\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0, vi\u00f0 heiminn. H\u00fan hefur \u00fe\u00e1 k\u00f6llun, \u00fe\u00e1 skipun Herra s\u00edns, a\u00f0 bo\u00f0a heiminum fagna\u00f0arerindi\u00f0 um n\u00fdja j\u00f6r\u00f0 og n\u00fdjan himin.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fdjasta hefti Sk\u00edrnis er grein eftir \u00edslenskan sk\u00f3lamann \u00e1 svi\u00f0i heimspeki og si\u00f0fr\u00e6\u00f0i. \u00dear fjallar hann um mannr\u00e9ttindi og segir m.a.:<\/p>\n<p>\u00abEitthva\u00f0 er \u00fea\u00f0 \u00ed menningu samt\u00edmans sem veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 hugmyndir um mannr\u00e9ttindi eiga s\u00e9r hlj\u00f3mgrunn. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 henda rei\u00f0ur \u00e1 hva\u00f0 \u00feetta er. Fyrsta ger\u00f0in gerir r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 tr\u00fain \u00e1 mannr\u00e9ttindi uppfylli \u00fe\u00f6rf sem \u00e1\u00f0ur var svala\u00f0 me\u00f0 kristind\u00f3mi e\u00f0a p\u00f3lit\u00edskum \u00fat\u00f3p\u00edum.\u00bb<\/p>\n<p>(Atli Har\u00f0arson \u00ed Sk\u00edrni, haust 2015, s. 447).<\/p>\n<p>H\u00e9r talar fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, mennta\u00f0ur vesturlandab\u00fai, sem vir\u00f0ist ekki vita e\u00f0a skilja a\u00f0 kristind\u00f3murinn hefur fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0 bo\u00f0a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagslegt r\u00e9ttlt\u00e6ti, ekki \u00fat\u00f3p\u00edur heldur r\u00e9ttl\u00e6ti h\u00e9r og n\u00fa. En sagan hefur \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki bara veri\u00f0 bein l\u00edna framfara heldur hafa \u00fer\u00f6ngs\u00fdn \u00f6fl \u00e6t\u00ed\u00f0 skoti\u00f0 upp kollinum innan kirkjunnar og varpa\u00f0 skugga \u00e1 bo\u00f0skap Krists. Sl\u00edkt gerist innan allra skipulagsheilda. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0 og \u00fer\u00e1tt fyrir hn\u00f6kra hefur okkur mi\u00f0a\u00f0 \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt.<\/p>\n<p>Van\u00feekking f\u00f3lks almennt tala\u00f0 n\u00fa \u00e1 t\u00edmum hva\u00f0 var\u00f0ar r\u00e6tur menningarinnar og \u00e1hrif kristinnar tr\u00faar \u00e1 heiminn er himinhr\u00f3pandi. Uppfr\u00e6\u00f0a \u00fearf almenning um mikilv\u00e6gi kristinnar tr\u00faar \u00ed menningu vesturlanda. Kristin tr\u00fa er ekki bara upptekin af l\u00edfinu handan l\u00edfs og dau\u00f0a heldur h\u00e9r og n\u00fa. D\u00e6min f\u00e1 K\u00edna sanna \u00fea\u00f0. H\u00e9r \u00e1 landi var \u00fea\u00f0 kirkjan sem h\u00f3f hj\u00fakrunar- og l\u00edknarstarf, menntun barna og almennings. Heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nusta og menntastofnanir eiga r\u00e6tur s\u00ednar \u00ed starfi kirkju og kristni. Og n\u00fa er heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustan \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum \u00fear sem tekist er \u00e1 um framt\u00ed\u00f0arskipan hennar, hvort almenningur eigi a\u00f0 grei\u00f0a meira fyrir \u00fej\u00f3nustuna. Sumt f\u00f3lk vill st\u00e9ttskipt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag \u00fear sem hinir betur megandi hafa forgang en \u00feau eru m\u00f6rg sem vilja j\u00f6fnu\u00f0 bygg\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um \u00f6ll sk\u00f6pu\u00f0 af Gu\u00f0i og eigum \u00feess vegna me\u00f0f\u00e6ddan r\u00e9tt til g\u00e6\u00f0a l\u00edfsins.<\/p>\n<p>\u00cdsland er n\u00fa \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur um okkur sem \u00fej\u00f3\u00f0? Kemst h\u00e9r \u00e1 stj\u00f3rnskipan r\u00e9ttl\u00e6tis e\u00f0a ver\u00f0um vi\u00f0 \u00e1fram \u00ed vi\u00f0jum misskiptingar og \u00f3r\u00e1\u00f0s\u00edu?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 horfum upp \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1r eftir \u00e1r, kj\u00f6rt\u00edmabil eftir kj\u00f6rt\u00edmabil, a\u00f0 fj\u00e1rmunir eru f\u00e6r\u00f0ir \u00ed st\u00f3rum st\u00edl fr\u00e1 almenningi til forr\u00e9ttindah\u00f3pa en almenningur situr eftir me\u00f0 kj\u00f6r sem g\u00e6tu veri\u00f0 mun betri. N\u00fa b\u00fd \u00e9g \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem skiptir g\u00e6\u00f0um landsins me\u00f0 allt \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti en h\u00e9r er gert og skattleggur ar\u00f0inn af n\u00e1tt\u00faruau\u00f0lindum me\u00f0 mun skilvirkari h\u00e6tti en h\u00e9r er gert. \u00dear eru hvorki ol\u00edu- n\u00e9 s\u00e6greifar. Regluverki\u00f0 er mun \u00fer\u00f3a\u00f0ra og \u00f6ll stj\u00f3rns\u00fdsla \u00ed mun betri skor\u00f0um en h\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00cdslenskur fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur \u00e1 svi\u00f0 hagfr\u00e6\u00f0i hefur sagt a\u00f0 \u00cdslendingar s\u00e9u r\u00edkari en Nor\u00f0menn me\u00f0 allan sinn ol\u00edugr\u00f3\u00f0a \u00fe.e. hver og einn einstaklingur \u00ed landinu. \u00de\u00e1 eru allar au\u00f0lindir taldar me\u00f0. Munurinn \u00e1 \u00feessum l\u00f6ndum er s\u00e1 a\u00f0 h\u00e9r er ar\u00f0urinn af st\u00e6rstu au\u00f0lindinni \u00ed v\u00f6sum \u00f6rf\u00e1rra fj\u00f6lskyldna en ytra \u00ed sj\u00f3\u00f0i sem tilheyrir almenningi.<\/p>\n<p>\u00cdsland er og hefur lengi veri\u00f0 \u00e1 villig\u00f6tum og almenningur er f\u00f3\u00f0ra\u00f0ur \u00e1 bj\u00f6gu\u00f0um uppl\u00fdsingum \u00ed m\u00f6rgum fj\u00f6lmi\u00f0lum, uppkokku\u00f0u bulli til a\u00f0 \u00fej\u00f3na\u00a0 m\u00e1lsta\u00f0 forr\u00e9ttindah\u00f3panna sem halda lygunum gangandi me\u00f0 styrkjum, me\u00f0 ar\u00f0inum af au\u00f0lindum, fj\u00e1rmunum almennings sem r\u00e6\u00f0ur \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki yfir eign sinni og \u00e1g\u00f3\u00f0a\u00a0til r\u00e1\u00f0st\u00f6funar \u00ed \u00fe\u00e1gu heildarinnar.<\/p>\n<p>Ef menn skrifa gegn misskiptingunni, kv\u00f3takerfinu e\u00f0a \u00f6\u00f0rum \u00f3r\u00e9tti h\u00e9r \u00fe\u00e1 er \u00feeim gjarnan h\u00f3ta\u00f0. \u00cdslenskum fr\u00e6\u00f0imanni vi\u00f0 erlendan h\u00e1sk\u00f3la var h\u00f3ta\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann fengi aldrei vinnu h\u00e9r \u00e1 landi ef hann h\u00e9ldi \u00e1fram a\u00f0 gagnr\u00fdna kv\u00f3takerfi\u00f0 og misskiptinguna h\u00e9r \u00e1 landi. Framm\u00e1ma\u00f0ur \u00ed landinu skrifa\u00f0i h\u00e1sk\u00f3layfirv\u00f6ldum ytra til a\u00f0 reyna a\u00f0 hindra hann \u00ed starfi. \u00d3r\u00e9tturinn er varinn me\u00f0 si\u00f0lausu ath\u00e6fi.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 koma \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e1 \u00cdslandi en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki fyrr en grundvallarl\u00f6gin ver\u00f0a endursko\u00f0u\u00f0, n\u00fdr s\u00e1ttm\u00e1li ger\u00f0ur, n\u00fd stj\u00f3rnarskr\u00e1 sam\u00feykkt. Frumvarpi\u00f0 liggur fyrir og er af virtum fr\u00e6\u00f0im\u00f6nnum tali\u00f0 eitt besta frumvarp sinnar tegundar sem fram hefur komi\u00f0 \u00ed heiminum. Sorglegt er a\u00f0 horfa upp\u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ld sitja a\u00f0 svikr\u00e1\u00f0um vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyn a\u00f0 komast fram hj\u00e1 vilja \u00fej\u00f3\u00f0arinnar sem h\u00fan s\u00fdndi afdr\u00e1ttarlaust \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu um till\u00f6gur stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s 20. okt\u00f3ber 2012. Sta\u00f0i\u00f0 er me\u00f0 \u00f3fyrirleitnum h\u00e6tti gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e9r komist \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0ur. \u00c1 sama t\u00edma renna milljar\u00f0atugir afram \u00ed vasa s\u00e6greifa og annarra forr\u00e9ttindah\u00f3pa me\u00f0an eftirlaun sker\u00f0ast og afrakstur almennings r\u00fdrnar.<\/p>\n<p>Um \u00feetta ver\u00f0ur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fev\u00ed m\u00e1li\u00f0 var\u00f0ar r\u00e9ttl\u00e6ti og sanngirni \u00ed landinu, var\u00f0ar \u00f6rl\u00f6g og hag heildarinnar, var\u00f0ar tilvist okkar allra. M\u00e1li\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fat fr\u00e1 kristinni tr\u00fa og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>Kirkjan skiptir m\u00e1li \u00ed umr\u00e6\u00f0unni og h\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 l\u00e1ta um sig muna me\u00f0 bo\u00f0un sinni \u00ed or\u00f0i og verki. Best er jafnan a\u00f0 l\u00e1ta verkin tala. Norskur biskup sag\u00f0i eitt sinn a\u00f0 tr\u00fain byggi ekki \u00ed h\u00f6f\u00f0inu heldur f\u00f3tunum &#8211; og \u00e9g b\u00e6ti vi\u00f0: og \u00ed h\u00f6ndunum. Tr\u00fain \u00ed verki skiptir m\u00e1li.<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>Hver eru merkustu t\u00edmam\u00f3t l\u00edfs \u00fe\u00edns?<\/p>\n<p>\u00de\u00fa ein\/einn getur svara\u00f0 \u00fev\u00ed. Hins vegar m\u00e1 segja a\u00f0 hver n\u00fdr dagur s\u00e9 t\u00edmam\u00f3t. N\u00f3ttin er a\u00f0 baki og n\u00fdr dagur runninn upp me\u00f0 n\u00fdjum t\u00e6kif\u00e6rum. Vi\u00f0 eigum \u00feennan dag og vi\u00f0 hvert f\u00f3tm\u00e1l eru krossg\u00f6tur sem kalla \u00e1 val og afst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>Hva\u00f0a afst\u00f6\u00f0u t\u00f6kum vi\u00f0 \u00ed daglegum st\u00f6rfum okkar? Hva\u00f0 veljum vi\u00f0? \u00c1 hva\u00f0a grunni byggjum vi\u00f0 \u00e1kvar\u00f0anir okkar?<\/p>\n<p>Hver eru merkustu t\u00edmam\u00f3t l\u00edfs \u00fe\u00edns?<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed m\u00e1 halda fram me\u00f0 r\u00f6kum a\u00f0 merkustu t\u00edmam\u00f3t \u00e6vinnar hafi veri\u00f0 \u00e1 t\u00edmapunkti sem ekkert okkar skynja\u00f0i n\u00e9 man. Sk\u00edrnin markar mestu skil tilvistar okkar. Kirkjan skilgreinir kristna manneskju sem \u00fe\u00e1 sem sk\u00edr\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00ed nafni f\u00f6\u00f0ur, sonar og heilags anda. \u00dear me\u00f0 var l\u00edf okkar sett \u00ed hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi, vi\u00f0 helgu\u00f0 hinum krossfesta og upprisna, sk\u00edr\u00f0 til dau\u00f0a hans og upprisu, sk\u00edr\u00f0 til l\u00edfs \u00ed Gu\u00f0i \u00e1 j\u00f6r\u00f0u og \u00ed himni. K\u00f6llun okkar er a\u00f0 lifa jafnan \u00ed \u00feessum tveim v\u00edddum, \u00e1 j\u00f6r\u00f0u og \u00ed himni Gu\u00f0s. Sk\u00edrnin er v\u00edgsla til almenns prestsd\u00f3ms, k\u00f6llun um a\u00f0 koma \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e1 j\u00f6r\u00f0u \u00ed nafni Krists. \u00ab . . . til komi \u00feitt r\u00edki, ver\u00f0i \u00feinn vilji svo \u00e1 j\u00f6r\u00f0u sem \u00e1 himni\u00bb segjum vi\u00f0 \u00ed b\u00e6n Drottins. Liggur \u00fea\u00f0 ekki \u00fear me\u00f0 lj\u00f3st fyrir a\u00f0 tr\u00fanni ber a\u00f0 l\u00e1ta sig var\u00f0a l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa, kaup og kj\u00f6r, mannr\u00e9ttindi, r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika?<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00cd dag kve\u00f0 \u00e9g Ness\u00f6fnu\u00f0. H\u00e9r hef \u00e9g \u00e1tt marga g\u00f3\u00f0a samstarfsmenn, karla og konur og noti\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3na g\u00f3\u00f0um og krefjandi s\u00f6fnu\u00f0i. H\u00e9r hef \u00e9g eignast marga g\u00f3\u00f0a vini, fengi\u00f0 b\u00e6\u00f0i hvatningu og au\u00f0vita\u00f0 gagnr\u00fdni eins og vera ber. Messus\u00f3kn var h\u00e9r um \u00e1rabil me\u00f0 \u00fev\u00ed besta sem ger\u00f0ist \u00ed landinu sag\u00f0i einn af biskupum landsins vi\u00f0 mig. Hinga\u00f0 s\u00f3tti f\u00f3lk \u00far Vesturb\u00e6num og einnig \u00f6\u00f0rum borgarhlutum. Oft kom hinga\u00f0 kirkjuf\u00f3lk utan af landi til a\u00f0 upplifa, sj\u00e1 og heyra hvernig starfi\u00f0 bl\u00f3mstra\u00f0i \u00e1 Melunum. H\u00e9r var gott a\u00f0 starfa en annr\u00edki\u00f0 gekk \u00far h\u00f3fi fram og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 ekki una\u00f0 lengur.<\/p>\n<p>Og n\u00fa kve\u00f0 \u00e9g ykkur me\u00f0 s\u00f6knu\u00f0i og trega og \u00fe\u00e1 s\u00e6ki \u00e9g m\u00e9r or\u00f0 til P\u00e1ls postula sem kalla\u00f0i til s\u00edn \u00f6ldungana \u00ed Efesus &#8211;\u00a0 \u00abs\u00f3knarnefndina\u00bb &#8211; og kvaddi \u00fe\u00e1 og s\u00f6fnu\u00f0inn og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u00abOg n\u00fa fel \u00e9g ykkur Gu\u00f0i og or\u00f0i n\u00e1\u00f0ar hans sem getur styrkt tr\u00fa ykkar og veitt ykkur hlutdeild \u00ed r\u00edki hans \u00e1samt \u00f6llum \u00feeim sem helga\u00f0ir eru.\u00bb<\/p>\n<p>S\u00f3knarnefndarf\u00f3lki, prestum, organistum, t\u00f3nlistarf\u00f3lki, k\u00f3rf\u00f3lki, starfsf\u00f3lki \u00f6llu og safna\u00f0arf\u00f3lki \u00feakka \u00e9g g\u00f3\u00f0ar og gefandi stundir \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum.<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru t\u00edmam\u00f3t \u00ed l\u00edfi okkar allra og svo koma t\u00edmam\u00f3tin miklu \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum \u00feetta jar\u00f0neska l\u00edf.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessum degi hefst kyrravika, vikan \u00feegar Kristur m\u00e6tti s\u00ednum miklu t\u00edmam\u00f3tum. Hann var\u00f0 a\u00f0 ganga lei\u00f0ina til enda og tr\u00faa og vona eins og vi\u00f0. Hann bygg\u00f0i allt sitt l\u00edf \u00e1 tr\u00fa og von.<\/p>\n<p>\u00c1 p\u00e1skum f\u00f6gnum vi\u00f0 sigri l\u00edfsins yfir dau\u00f0anum. Myrkra\u00f6flin sem t\u00f6ldu sig hafa sigra\u00f0 ur\u00f0u a\u00f0 athl\u00e6gi. \u00deess vegna f\u00f6gnum vi\u00f0 \u00e1 p\u00e1skum, hl\u00e6gjum og gerum a\u00f0 gamni okkar vegna \u00feess a\u00f0 Gu\u00f0 sneri \u00e1 hi\u00f0 illa \u00ed tilverunni. Hann mun \u00e1vallt og \u00e6t\u00ed\u00f0 eiga s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0. Megi sannir p\u00e1skar og upprisugle\u00f0i n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 hj\u00f6rtum \u00cdslendinga og lei\u00f0a til breyttrar framt\u00ed\u00f0ar r\u00e9ttl\u00e6tis og sannleika.<\/p>\n<p>Sigurinn er unninn og hann gefur okkur byr, \u00fer\u00f3tt og kjark \u00ed amstri daganna, \u00ed andstreymi og m\u00f3tl\u00e6ti, \u00ed \u00f6ldur\u00f3ti \u00f3r\u00f3legrar samt\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>T\u00edmam\u00f3t &#8211; krossg\u00f6tur &#8211; og vi\u00f0 eigum val \u00e1 hverju andartaki.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 eigum val um a\u00f0 flj\u00f3ta sofandi a\u00f0 feig\u00f0ar\u00f3si e\u00f0a standa me\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tinu og sannleikanum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 eigum val \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum, vi\u00f0 hverjar krossg\u00f6tur.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi starfi\u00f0 \u00ed Neskirkju, \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0 og kristni \u00ed landinu. Gu\u00f0 blessi \u00feig<\/p>\n<ul>\n<li>&#8211; &#8211; &#8211; &#8211; &#8211; &#8211; &#8211; &#8211; &#8211;<\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Textar dagsins, b\u00e6nir og fleira:<\/strong><\/p>\n<p>P\u00e1lmasunnudagur<\/p>\n<p>Litur: Fj\u00f3lubl\u00e1r.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0ars\u00f6ngur\/lofgj\u00f6r\u00f0 ekki sungin.<\/p>\n<p>Vers vikunnar:<\/p>\n<p>\u201e\u00deannig \u00e1 Mannssonurinn a\u00f0 ver\u00f0a upp hafinn svo a\u00f0 hann veiti hverjum sem tr\u00fair \u00e1 hann eil\u00edft l\u00edf. \u201c (J\u00f3h 3.14b-15)<\/p>\n<p>Kollekta:<\/p>\n<p>Eil\u00edfi Gu\u00f0, sem l\u00e9st son \u00feinn, frelsara vorn, Jes\u00fa Krist, au\u00f0m\u00fdkja sig og ganga \u00ed dau\u00f0ann \u00e1 krossi: Veit oss af miskunn \u00feinni a\u00f0 l\u00edkjast honum \u00ed h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 hjartans og eignast hlutdeild \u00ed upprisu hans, sem me\u00f0 \u00fe\u00e9r lifir og r\u00edkir \u00ed einingu heilags anda, einn sannur Gu\u00f0 um aldir alda.<\/p>\n<p>Textar\u00f6\u00f0: A<\/p>\n<p>Lex\u00eda: Sak 9.9-10<\/p>\n<p>Fagna mj\u00f6g, d\u00f3ttirin S\u00edon,<\/p>\n<p>l\u00e1t gle\u00f0il\u00e1tum, d\u00f3ttirin Jer\u00fasalem.<\/p>\n<p>Sj\u00e1, konungur \u00feinn kemur til \u00fe\u00edn.<\/p>\n<p>R\u00e9ttl\u00e1tur er hann og sigurs\u00e6ll,<\/p>\n<p>l\u00edtill\u00e1tur og r\u00ed\u00f0ur asna,<\/p>\n<p>ungum \u00f6snufola.<\/p>\n<p>Hann \u00fatr\u00fdmir herv\u00f6gnum \u00far Efra\u00edm<\/p>\n<p>og v\u00edghestum \u00far Jer\u00fasalem.<\/p>\n<p>\u00d6llum herbogum ver\u00f0ur eytt.<\/p>\n<p>Hann mun bo\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0unum fri\u00f0<\/p>\n<p>og r\u00edki hans mun n\u00e1 fr\u00e1 hafi til hafs<\/p>\n<p>og fr\u00e1 Flj\u00f3tinu<\/p>\n<p>til endimarka jar\u00f0ar.<\/p>\n<p>Pistill: Fil 2.1-11<\/p>\n<p>Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst k\u00e6rleikur hans upp\u00f6rvar, fyrst andi hans skapar samf\u00e9lag, fyrst \u00fear r\u00edkir hl\u00fdja og sam\u00fa\u00f0 geri\u00f0 \u00fe\u00e1 gle\u00f0i m\u00edna fullkomna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einhuga, hafa sama k\u00e6rleika, einn hug og eina s\u00e1l. Geri\u00f0 ekkert af eigingirni e\u00f0a h\u00e9g\u00f3magirnd. Veri\u00f0 l\u00edtill\u00e1t og meti\u00f0 hvert anna\u00f0 meira en ykkur sj\u00e1lf. L\u00edti\u00f0 ekki a\u00f0eins \u00e1 eigin hag heldur einnig annarra. Veri\u00f0 me\u00f0 sama hugarfari sem Kristur Jes\u00fas var.<\/p>\n<p>Hann var \u00ed Gu\u00f0s mynd.<\/p>\n<p>En hann f\u00f3r ekki me\u00f0 \u00fea\u00f0 sem feng sinn a\u00f0 vera Gu\u00f0i l\u00edkur.<\/p>\n<p>Hann svipti sig \u00f6llu, t\u00f3k \u00e1 sig \u00fej\u00f3ns mynd<\/p>\n<p>og var\u00f0 m\u00f6nnum l\u00edkur.<\/p>\n<p>Hann kom fram sem ma\u00f0ur,<\/p>\n<p>l\u00e6g\u00f0i sj\u00e1lfan sig<\/p>\n<p>og var\u00f0 hl\u00fd\u00f0inn allt til dau\u00f0a,<\/p>\n<p>j\u00e1, dau\u00f0ans \u00e1 krossi.<\/p>\n<p>Fyrir \u00fev\u00ed hefur og Gu\u00f0<\/p>\n<p>h\u00e1tt upp hafi\u00f0 hann<\/p>\n<p>og gefi\u00f0 honum nafni\u00f0,<\/p>\n<p>sem hverju nafni er \u00e6\u00f0ra,<\/p>\n<p>til \u00feess a\u00f0 fyrir nafni Jes\u00fa<\/p>\n<p>skuli hvert kn\u00e9 beygja sig \u00e1 himni, j\u00f6r\u00f0u og undir j\u00f6r\u00f0u<\/p>\n<p>og s\u00e9rhver tunga j\u00e1ta Gu\u00f0i f\u00f6\u00f0ur til d\u00fdr\u00f0ar:<\/p>\n<p>Jes\u00fas Kristur er Drottinn.<\/p>\n<p>Gu\u00f0spjall: J\u00f3h 12.1-16<\/p>\n<p>Sex d\u00f6gum fyrir p\u00e1ska kom Jes\u00fas til Betan\u00edu \u00fear sem Lasarus var, s\u00e1 er hann vakti fr\u00e1 dau\u00f0um. \u00dear var honum b\u00fainn kv\u00f6ldver\u00f0ur og Marta gekk um beina en Lasarus var einn \u00feeirra sem a\u00f0 bor\u00f0i s\u00e1tu me\u00f0 honum. \u00de\u00e1 t\u00f3k Mar\u00eda pund af \u00f3mengu\u00f0um, d\u00fdrum nardussmyrslum og smur\u00f0i f\u00e6tur Jes\u00fa og \u00feerra\u00f0i me\u00f0 h\u00e1ri s\u00ednu f\u00e6tur hans. En h\u00fasi\u00f0 fylltist ilmi smyrslanna. Segir \u00fe\u00e1 J\u00fadas \u00cdskar\u00edot, einn l\u00e6risveina hans, s\u00e1 er mundi sv\u00edkja hann: \u201eHv\u00ed voru \u00feessi smyrsl ekki seld fyrir \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 denara<\/p>\n<p>og gefin f\u00e1t\u00e6kum?\u201c Ekki sag\u00f0i hann \u00feetta af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann l\u00e9ti s\u00e9r annt um f\u00e1t\u00e6ka heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var \u00fej\u00f3fur. Hann haf\u00f0i pyngjuna og t\u00f3k af \u00fev\u00ed sem \u00ed hana var l\u00e1ti\u00f0. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas: \u201eL\u00e1t hana \u00ed fri\u00f0i. H\u00fan hefur geymt \u00feetta til greftrunardags m\u00edns. F\u00e1t\u00e6ka hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 hj\u00e1 ykkur en mig hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki \u00e1vallt.\u201c<\/p>\n<p>N\u00fa fr\u00e9tti allur fj\u00f6ldi Gy\u00f0inga af \u00fev\u00ed a\u00f0 Jes\u00fas v\u00e6ri \u00ed Betan\u00edu og \u00feeir komu \u00feanga\u00f0, ekki a\u00f0eins hans vegna heldur og til a\u00f0 sj\u00e1 Lasarus sem hann haf\u00f0i vaki\u00f0 fr\u00e1 dau\u00f0um. \u00de\u00e1 \u00e1kv\u00e1\u00f0u \u00e6\u00f0stu prestarnir a\u00f0 taka einnig Lasarus af l\u00edfi \u00fev\u00ed vegna hans sneru margir Gy\u00f0ingar baki vi\u00f0 \u00feeim og f\u00f3ru a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 Jes\u00fa.<\/p>\n<p>Degi s\u00ed\u00f0ar fr\u00e9tti hinn mikli mannfj\u00f6ldi, sem kominn var til h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar, a\u00f0 Jes\u00fas v\u00e6ri a\u00f0 koma til Jer\u00fasalem. F\u00f3lk t\u00f3k \u00fe\u00e1 p\u00e1lmagreinar, f\u00f3r \u00fat \u00e1 m\u00f3ti honum og hr\u00f3pa\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201eH\u00f3sanna!<\/p>\n<p>Blessa\u00f0ur s\u00e9 s\u00e1 sem kemur \u00ed nafni Drottins,<\/p>\n<p>konungur \u00cdsraels!\u201c<\/p>\n<p>Jes\u00fas fann ungan asna og settist \u00e1 bak honum, eins og skrifa\u00f0 er:<\/p>\n<p>\u00d3ttast ekki, d\u00f3ttir S\u00edon.<\/p>\n<p>Konungur \u00feinn kemur<\/p>\n<p>og r\u00ed\u00f0ur \u00f6snufola.<\/p>\n<p>L\u00e6risveinar hans skildu \u00feetta ekki \u00ed fyrstu en \u00feegar Jes\u00fas var d\u00fdrlegur or\u00f0inn minntust \u00feeir \u00feess a\u00f0 \u00feetta var rita\u00f0 um hann og a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gert \u00feetta fyrir hann.<\/p>\n<p>S\u00e1lmur: 128<\/p>\n<p>\u00d3, kom \u00ed h\u00e1tign, Herra minn.<\/p>\n<p>\u00de\u00e9r heilsar allur l\u00fd\u00f0urinn<\/p>\n<p>og kl\u00e6\u00f0um lag\u00f0a braut \u00fe\u00e9r b\u00fdr,<\/p>\n<p>me\u00f0 blessun \u00fe\u00e9r \u00e1 m\u00f3ti sn\u00fdr.<\/p>\n<p>\u00d3, kom \u00ed h\u00e1tign, Herra minn,<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed harla n\u00e6rri\u2019 er dau\u00f0i \u00feinn.<\/p>\n<p>\u00de\u00edn sigurf\u00f6r m\u00f3t Satan h\u00e9r,<\/p>\n<p>m\u00f3t synd og dau\u00f0a hafin er.<\/p>\n<p>\u00d3, kom \u00ed h\u00e1tign, Herra minn,<\/p>\n<p>af h\u00e6\u00f0um f\u00f3rnargj\u00f6rning \u00feinn<\/p>\n<p>me\u00f0 undrun sko\u00f0ar englaher,<\/p>\n<p>sj\u00e1, augun himnesk fylgja \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00d3, kom \u00ed h\u00e1tign, Herra minn,<\/p>\n<p>til h\u00f6rmunganna r\u00ed\u00f0 n\u00fa inn.<\/p>\n<p>\u00deinn fa\u00f0ir h\u00e6st \u00e1 himnum er,<\/p>\n<p>hans hjarta b\u00ed\u00f0ur eftir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00d3, kom \u00ed h\u00e1tign, Herra minn,<\/p>\n<p>me\u00f0 h\u00e1tign gakk \u00ed dau\u00f0a \u00feinn.<\/p>\n<p>\u00c1 krossi mildu h\u00f6f\u00f0i hneig,<\/p>\n<p>\u00e1 himni\u2019 og j\u00f6r\u00f0 svo r\u00edki\u00f0 eig.<\/p>\n<p>Milman \u2013 Sb. 1871<\/p>\n<p>Stef\u00e1n Thorarensen<\/p>\n<p>B\u00e6n dagsins:<\/p>\n<p>Drottinn Jes\u00fas Kristur. F\u00f3lki\u00f0 kom \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r me\u00f0 fagna\u00f0ar\u00f3pum og hyllti \u00feig. Samt skildi \u00fea\u00f0 \u00feig eftir einan. svo a\u00f0 \u00fe\u00fa yr\u00f0ir pynta\u00f0ur og deyddur. Vi\u00f0 erum hr\u00e6dd vi\u00f0 d\u00f6kku hli\u00f0arnar \u00e1 mannl\u00edfinu, hr\u00e6dd vi\u00f0 skuggana, hr\u00e6dd vi\u00f0 m\u00f6guleika illskunnar \u00ed mannf\u00f3lkinu, -\u00ed okkur sj\u00e1lfum. Gef\u00f0u okkur n\u00e1\u00f0 til a\u00f0 \u00feekkja okkur sj\u00e1lf og a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 \u00ed okkur sj\u00e1lfum b\u00fdr. Hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa okkur a\u00f0 koma me\u00f0 \u00fea\u00f0 allt til \u00fe\u00edn a\u00f0 \u00fe\u00fa blessir \u00fea\u00f0 og b\u00e6tir \u00fea\u00f0 me\u00f0 k\u00e6rleika \u00fe\u00ednum. Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson T\u00edmam\u00f3t Pr\u00e9dikun vi\u00f0 kve\u00f0jumessu \u00ed Neskirkju\u00a0p\u00e1lmasunnudag 20. mars 2016 kl. 11 Sermon at a farewell mass at Neskirkja Reykjavik Iceland palmsunday March 20, 2016. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1669","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1669","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1669"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1669\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1669"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1669"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1669"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}