{"id":1637,"date":"2015-11-28T18:18:48","date_gmt":"2015-11-28T18:18:48","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1637"},"modified":"2015-11-28T18:18:48","modified_gmt":"2015-11-28T18:18:48","slug":"gudmundur-gudmundsson-1916-2015","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1637","title":{"rendered":"+Gu\u00f0mundur Gu\u00f0mundsson 1916-2015"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/11\/gudm-gudm-mynd.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1638\" alt=\"Gudm Gudm mynd\" width=\"114\" height=\"147\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Gu\u00f0mundur Gu\u00f0mundsson&nbsp;<\/b><\/p>\n<p>1916-2015<\/p>\n<p>skipstj\u00f3ri og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n<p>Minningarath\u00f6fn \u00ed Neskirkju Reykjav\u00edk&nbsp;m\u00e1n. 23. n\u00f3v. kl. 13 og<\/p>\n<p>\u00fatf\u00f6r fr\u00e1 \u00cdsafjar\u00f0arkirkju&nbsp;lau. 28. n\u00f3v. kl. 14.<\/p>\n<p>Unnt er a\u00f0&nbsp;<strong>lesa<\/strong>&nbsp;r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig&nbsp;<strong>hlusta<\/strong>&nbsp;me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn:<\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1637-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/11\/gudm-gudm-1916-2015.m4a?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/11\/gudm-gudm-1916-2015.m4a\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/11\/gudm-gudm-1916-2015.m4a<\/a><\/audio>\n<p>Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>\u00ab\u00c9g horf\u00f0i ni\u00f0ur \u00ed dj\u00fapi\u00f0, \u00ed dimmuna,<\/p>\n<p>s\u00e1 svo lj\u00f3si\u00f0 langt \u00ed burtu<\/p>\n<p>&#8211; og \u00e9g synti upp \u00ed lj\u00f3si\u00f0.\u00bb<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var 17 \u00e1ra, n\u00fdkominn vestur fr\u00e1 Laugavatni \u00fear sem hann haf\u00f0i veri\u00f0 tvo vetur. Hann sat vi\u00f0 vinnu s\u00edna \u00e1 dekkinu um bor\u00f0 \u00ed v\u00e9lb\u00e1tnum Vini \u00feegar aldan skall \u00e1 honum og skola\u00f0i fyrir bor\u00f0. Hann s\u00f6kk \u00ed dj\u00fapi\u00f0. &#8220;En \u00feetta var afar einkennileg tilfinning, eins og ma\u00f0ur missti alla vi\u00f0mi\u00f0un og fjarl\u00e6g\u00f0arskyn . . . \u00c9g var or\u00f0inn flugsyndur eftir dv\u00f6lina \u00e1 Laugavatni. \u00dea\u00f0 bjarga\u00f0i&nbsp; m\u00e9r.\u00bb&nbsp; Atviki\u00f0 haf\u00f0i mikil \u00e1hrif \u00e1 hann og hann \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 segja foreldrum s\u00ednum fr\u00e1 enda tapa\u00f0i hann splunkun\u00fdjum klofst\u00edgv\u00e9lum \u00ed Dj\u00fapi\u00f0. Fa\u00f0ir hans vildi reyndar ekki a\u00f0 hann yr\u00f0i sj\u00f3ma\u00f0ur enda haf\u00f0i hann misst \u00deorgeir son sinn \u00ed hafi\u00f0 9 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur. (\u00c1hrifafamenn s. 98 og hlj\u00f3\u00f0upptaka m\u00edn)<\/p>\n<p>\u00deetta var \u00e1ri\u00f0 1933.<\/p>\n<p>\u00cd bla\u00f0avi\u00f0tali 1981 var Gu\u00f0mundur spur\u00f0ur:<\/p>\n<p>\u00abVar\u00f0stu aldrei fyrir neinum \u00f3h\u00f6ppum \u00ed skipstj\u00f3rat\u00ed\u00f0 \u00feinni?\u00bb<\/p>\n<p>\u00abNei, ekki svo heiti\u00f0 geti.\u00bb<\/p>\n<p>\u00abMisstir\u00f0u aldrei mann?\u00bb<\/p>\n<p>\u00abNei, \u00e9g missti aldrei mann. \u00dea\u00f0 held \u00e9g hlj\u00f3ti a\u00f0 vera eitt \u00fea\u00f0 \u00feungb\u00e6rasta sem hent getur einn skipstj\u00f3ra. En \u00ed sj\u00f3mannst\u00ed\u00f0 minni komst \u00e9g tv\u00edvegis \u00ed l\u00edfsh\u00e1ska. Mig t\u00f3k \u00fat, en n\u00e1\u00f0ist um bor\u00f0 \u00ed b\u00e6\u00f0i skiptin.\u00bb<\/p>\n<p>\u00abHva\u00f0 hugsa\u00f0ir\u00f0u \u00e1 me\u00f0an \u00fe\u00fa varst \u00ed sj\u00f3num?\u00bb<\/p>\n<p>\u00abBara um eitt, \u00fea\u00f0 var bara eitt sem komst a\u00f0 &#8211; \u00fea\u00f0 var a\u00f0 komast af.\u00bb<\/p>\n<p>\u00abTr\u00fair\u00f0u \u00e1 \u00e6\u00f0ri forsj\u00f3n?\u00bb<\/p>\n<p>\u00abJ\u00e1, \u00fea\u00f0 geri \u00e9g.\u00bb (Mbl 16. apr\u00edl 1981)<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur f\u00e6ddist \u00ed Hn\u00edfsdal 11. apr\u00edl 1916 og \u00f3lst \u00fear upp. Hann l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum 13. n\u00f3vember 2015.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Gu\u00f0mundur Stef\u00e1n Gu\u00f0mundsson, forma\u00f0ur \u00ed Hn\u00edfsdal, f. 7.12. 1877, d. 22.02. 1936, og J\u00f3na Sal\u00f3monsd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir,&nbsp; f. 5.5. 1885,&nbsp; d. 22.11. 1952. \u00deegar fa\u00f0ir hans l\u00e9st t\u00f3k Gu\u00f0mundur a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 fyrir m\u00f3\u00f0ur sinni og yngri br\u00f3\u00f0ur, a\u00f0eins tv\u00edtugur a\u00f0 aldri.<\/p>\n<p>Systkini:<\/p>\n<p>\u00deorgeir (f. 4.7. 1904, d. 12.12. 1924), sem f\u00f3rst tv\u00edtugur \u00ed sj\u00f3slysi 1924;<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg (f. 27.10. 1912, d. 7.8. 2009), l\u00e9st \u00e1 97. aldurs\u00e1ri 2009 og<\/p>\n<p>Mar\u00edas \u00de\u00f3rarinn (f. 13.4. 1922, d. 17.3. 2010) sem l\u00e9st 2010 t\u00e6plega 88 \u00e1ra.<\/p>\n<p>Alla t\u00ed\u00f0 var k\u00e6rt me\u00f0 \u00feeim systkinum og \u00feess m\u00e1 geta a\u00f0 Gu\u00f0mundur bjarga\u00f0i Mar\u00edasi eitt sinn er hann f\u00e9ll fyrir bor\u00f0 \u00e1 unglingsaldri me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gr\u00edpa \u00ed h\u00e1lsm\u00e1l hans \u00e1\u00f0ur en hann hvarf undir b\u00e1tinn. Eitt sinn horf\u00f0i hann \u00ed l\u00f3fa s\u00e9r og sag\u00f0i vi\u00f0 mann nokkurn: \u00deetta var mikilv\u00e6gasta hantak mitt \u00e1 \u00e6vinni.<\/p>\n<p>Eiginkona Gu\u00f0mundar var Gu\u00f0r\u00fan J\u00f3nsd\u00f3ttir,&nbsp; h\u00fasm\u00f3\u00f0ir,&nbsp; f. \u00e1 Langeyri \u00ed \u00c1lftafir\u00f0i 12.12.1916, d. 15.11.1981. \u00deau voru b\u00e6\u00f0i \u00far Hn\u00edfsdal og sk\u00f3lasystkin. \u00deau gengu \u00ed hj\u00f3naband \u00e1ri\u00f0 1942. Hj\u00f3naband \u00feeirra var afar fars\u00e6lt. Foreldrar Gu\u00f0r\u00fanar voru J\u00f3n Bjarnason, tr\u00e9smi\u00f0ur,&nbsp; f. 2.1. 1881, d. 3.6. 1929 og Dan\u00edela J\u00f3na Sam\u00faelsd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir,&nbsp; f. 17.9. 1888, d. 17.6. 1940. F\u00f3sturforeldrar Gu\u00f0r\u00fanar: \u00d3lafur Andr\u00e9sson, h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistari,&nbsp; f. 27.8. 1891, d. 6.8. 1968 og Margr\u00e9t \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir,&nbsp; f. 7.8. 1888, d. 16.10. 1971.<\/p>\n<p>B\u00f6rn Gu\u00f0mundar og Gu\u00f0r\u00fanar eru: 1) Brynd\u00eds, kennari og n\u00e1msr\u00e1\u00f0gjafi, f. 22.6. 1943, maki Kristj\u00e1n \u00d3lafsson. \u00deau skildu. \u00deeirra synir eru \u00d3lafur Helgi f. 1968 og Hrafnkell f. 1975, d. 2009, 2) J\u00f3na Margr\u00e9t, sk\u00f3laritari og b\u00f3kav\u00f6r\u00f0ur, f. 12.7. 1945, maki Valdimar \u00d3skar J\u00f3nsson d. 2008. \u00deeirra b\u00f6rn eru Gu\u00f0mundur Stef\u00e1n f. 1966, Ragnhei\u00f0ur f. 1967, Katr\u00edn f. 1970, d. 1970, Dav\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r f. 1973 og Margr\u00e9t f. 1974, 3) Ingibj\u00f6rg, \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingur og lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur,&nbsp; f. 3.7. 1950, maki Snorri Sigurj\u00f3nsson.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var s\u00ed\u00f0ar \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Margr\u00e9ti Helgu G\u00edslad\u00f3ttur fr\u00e1 H\u00f6fn \u00ed Hornafir\u00f0i,&nbsp; f. 3.4. 1924, d. 28.6. 2009.<\/p>\n<p>Barnab\u00f6rnin \u00f6ll sem upptalin&nbsp;voru og langafab\u00f6rnin sautj\u00e1n voru Gu\u00f0mundi afar k\u00e6r sem og b\u00f6rn og barnab\u00f6rn Margr\u00e9tar.<\/p>\n<p>\u00c6vistarf Gu\u00f0mundar var alla t\u00ed\u00f0 bundi\u00f0 sj\u00f3s\u00f3kn og \u00fatger\u00f0. Hann f\u00f3r ungur til n\u00e1ms \u00ed H\u00e9ra\u00f0sk\u00f3lann \u00e1 Laugarvatni. Hann afla\u00f0i s\u00e9r v\u00e9lstj\u00f3rar\u00e9ttinda \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og skipstj\u00f3rnarr\u00e9ttinda fr\u00e1 Sj\u00f3mannask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk.&nbsp; Hann var\u00f0 kornungur skipstj\u00f3ri fyrst \u00e1 Brynd\u00edsi \u00cdS og s\u00ed\u00f0ar Hafd\u00edsi \u00cdS. Gu\u00f0mundur&nbsp; var hafns\u00f6guma\u00f0ur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i um nokkurra \u00e1ra skei\u00f0. \u00c1ri\u00f0 1954 sneri hann s\u00e9r a\u00f0 \u00fatger\u00f0 og fiskvinnslu og stofna\u00f0i \u00ed framhaldi af \u00fev\u00ed Hr\u00f6nn hf. \u00e1samt \u00c1sgeiri Gu\u00f0bjartssyni, skipstj\u00f3ra og fleirum. Gu\u00f0mundur var lengi \u00ed forsvari fyrir \u00fatger\u00f0 Gu\u00f0bjargar \u00cdS en Hr\u00f6nn hf. \u00e1tti og ger\u00f0i \u00fat m\u00f6rg skip me\u00f0 \u00fev\u00ed nafni. Hann starfa\u00f0i vi\u00f0 \u00fatger\u00f0ina fram \u00e1 n\u00edr\u00e6\u00f0isaldur. Hann var forma\u00f0ur \u00datvegsmannaf\u00e9lags Vestfjar\u00f0a fr\u00e1 1963 til 1987 og sat lengi \u00ed stj\u00f3rn Landssambands \u00edslenskra \u00fatvegsmanna.&nbsp; Gu\u00f0mundur \u00e1tti um langt skei\u00f0 s\u00e6ti \u00ed stj\u00f3rn Kaupf\u00e9lags \u00cdsfir\u00f0inga, \u00cdsh\u00fasf\u00e9lags \u00cdsfir\u00f0inga hf., Ol\u00eduf\u00e9lags \u00fatvegsmanna og V\u00e9lb\u00e1ta\u00e1byrg\u00f0arf\u00e9lags \u00cdsfir\u00f0inga. Hann starfa\u00f0i miki\u00f0 a\u00f0 slysavarna- og bj\u00f6rgunarm\u00e1lum og gegndi lengi formennsku \u00ed karladeild SVF\u00cd \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Gu\u00f0mundur var mikill \u00e1hugama\u00f0ur um menningar-, atvinnu- og stj\u00f3rnm\u00e1las\u00f6gu og las miki\u00f0 um \u00feau efni og hann var virkur \u00fe\u00e1ttakandi \u00ed t\u00f3nlistarl\u00edfi \u00cdsafjar\u00f0ar. Hann var ger\u00f0ur a\u00f0 hei\u00f0ursf\u00e9laga \u00ed Sj\u00f3mannaf\u00e9lagi \u00cdsfir\u00f0inga sem er kannski merkilegt \u00ed j\u00f3si \u00feess a\u00f0 hann var yfirleitt hinu megin vi\u00f0 bor\u00f0i\u00f0 \u00ed samningam\u00e1lum sem forma\u00f0ur \u00datvegsmannaf\u00e9lags Vestfjar\u00f0a.&nbsp;Hann t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi Fr\u00edm\u00fararareglunnar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed Reykjav\u00edk fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 6. \u00e1ragugi li\u00f0nnar aldar og var s\u00e6mdur hei\u00f0ursmerki hennar.<\/p>\n<p>\u00cd dag hei\u00f0ra hann br\u00e6\u00f0ur og bera kistu hans \u00far kirkju. Gu\u00f0mundur var s\u00e6mdur Riddarakrossi hinnar \u00edslensku f\u00e1lkaor\u00f0u fyrir st\u00f6rf s\u00edn vi\u00f0 sj\u00e1var\u00fatveg.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var\u00f0 allra karla elstur og \u00e1tti fars\u00e6la \u00e6vi og vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edka. Hugur hans st\u00f3\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 til \u00feess a\u00f0 efla atvinnu- og menningarl\u00edf \u00e1 \u00cdsafir\u00f0. Hann barst aldrei \u00e1 \u00ed einkal\u00edfi. Skrifstofa einnar \u00f6flugustu \u00fatger\u00f0ar \u00cdslands var heima hj\u00e1 honum \u00fear sem \u00feau Gu\u00f0r\u00fan, sem var Samvinnusk\u00f3lagengin, f\u00e6r\u00f0u b\u00f3khald og hann s\u00e1 um sn\u00faninga \u00ed landi \u00e1 s\u00ednum einkab\u00edl, \u00fev\u00ed ekki \u00e1tti \u00fatger\u00f0in eigin bifrei\u00f0 \u00fe\u00e1. Fyrsta b\u00edlinn, Simca, eigna\u00f0ist hann 42 \u00e1ra og t\u00f3k \u00fe\u00e1 b\u00edlpr\u00f3f. \u00deetta var \u00e1 t\u00edmum hugsj\u00f3na og si\u00f0fer\u00f0isgilda sem n\u00fa vir\u00f0ast ekki eiga upp \u00e1 pallbor\u00f0 landsmanna \u00e1 sama h\u00e1tt og for\u00f0um \u00feegar or\u00f0 st\u00f3\u00f0u eins og stafur \u00e1 b\u00f3k og handtak sem \u00feingl\u00fdst skjal. \u00deegar Gu\u00f0bj\u00f6rgin st\u00e6rsta og yngsta var komin til lands og rekstrargrundv\u00f6llur reyndist ekki eins tryggur og oft haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 &#8211; me\u00f0al annars vegna \u00e1kvar\u00f0ana stj\u00f3rnvalda og breytinga \u00e1 fiskvei\u00f0istj\u00f3rnun &#8211; ger\u00f0u eigendur samkomulag um sameiningu vi\u00f0 nor\u00f0lenska \u00fatger\u00f0. S\u00fa gj\u00f6r\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 ver\u00f0a beggja hagur og \u00fatger\u00f0 Guggunnar gulu trygg\u00f0ur \u00e1fram \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00f6ll hvernig f\u00f3r fyrir nor\u00f0lenskum handt\u00f6kum og undirskriftum. \u00deetta var\u00f0 Gu\u00f0mundi \u00feungt og var\u00f0 \u00fea\u00f0 allt til \u00e6viloka. Samviska hans var \u00f3r\u00f3 en hva\u00f0 anna\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 gera \u00ed \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem uppi voru \u00feegar sami\u00f0 var? \u00cdsfir\u00f0ingar vissu hug og heilindi Gu\u00f0mundar og \u00e9g held a\u00f0 \u00feeir hafi ekki d\u00e6mt hann hart fyrir \u00feennan afdrifar\u00edka samning undir lok starfs\u00e6vi hans, heldur miklu fremur \u00feakka\u00f0 fyrir framlag hans til bygg\u00f0ar og mannl\u00edfs um \u00e1ratuga skei\u00f0.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er ekki kyrrst\u00e6tt. Rekstur fyrirt\u00e6kja er eins og skip \u00e1 sj\u00f3. Stundum er siglt \u00ed \u00edsfirsku logni en svo kl\u00edfur skipi\u00f0 upp \u00f6ldufald og svo ni\u00f0ur \u00ed \u00f6ldudal, upp og ni\u00f0ur og me\u00f0 veltingi \u00e1 b\u00e6\u00f0i bor\u00f0. \u00c1kvar\u00f0anataka \u00e1 hverjum t\u00edmapunkti var \u00e6t\u00ed\u00f0 ger\u00f0 \u00ed \u00f3vissu. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0. Vi\u00f0 reynum a\u00f0 velja hi\u00f0 r\u00e9tta og sem betur fer n\u00e1um vi\u00f0 oft settu marki, en ekki alltaf.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 s\u00e1tum saman fr\u00e6ndurnir \u00e1 heimili Gu\u00f0mundar \u00ed K\u00f3pavogi 2. sd. \u00ed a\u00f0ventu 2013 og hann sag\u00f0i m\u00e9r fr\u00e1 l\u00edfshlaupi s\u00ednu og \u00e9g t\u00f3k upp. B\u00e1r\u00f0ur Gu\u00f0mundur J\u00f3nsson, f\u00f6\u00f0urafi minn og Gu\u00f0mundur Stef\u00e1n fa\u00f0ir Gu\u00f0mundar voru h\u00e1lfbr\u00e6\u00f0ur, samm\u00e6\u00f0ra. Afi \u00feeirra var Gu\u00f0mundur \u00deorl\u00e1ksson. Hann tengist b\u00e1\u00f0um \u00e6ttum m\u00ednum, b\u00e6\u00f0i f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur\u00e6tt, \u00fev\u00ed hann barna\u00f0i b\u00e1\u00f0ar lang\u00f6mmur m\u00ednar, lang\u00f6mmu m\u00edna \u00ed m\u00f3\u00f0ur\u00e6tt, Gu\u00f0r\u00fanu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur fr\u00e1 Eyrardal, d\u00f3ttur Gu\u00f0muindar r\u00edka \u00ed Eyrardal \u00ed \u00c1lftafir\u00f0i og Rannveigu Engilbertsd\u00f3ttur, lang\u00f6mmu m\u00edna \u00ed f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt. \u00de\u00e6r voru kornungar en giftust reyndar b\u00e1\u00f0ar s\u00ed\u00f0ar og eignu\u00f0ust b\u00f6rn. Gu\u00f0mundur fr\u00e6ndi var ekki alveg s\u00e1ttur vi\u00f0 framfer\u00f0i afa s\u00edns \u00fev\u00ed tv\u00edburarnir, Gu\u00f0mundur Stef\u00e1n, fa\u00f0ir hans og \u00deorl\u00e1kur &#8211; kalla\u00f0ur Hrefnu-L\u00e1ki, voru teknir af henni vi\u00f0 f\u00e6\u00f0ingu. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00f3tti honum grimm \u00f6rl\u00f6g ungrar konu. Gu\u00f0mundur Stef\u00e1n \u00f3lst upp \u00ed Folaf\u00e6ti en \u00deorl\u00e1kur \u00e1 Saurum. \u00c9g sag\u00f0i vi\u00f0 Gu\u00f0mund a\u00f0 \u00feessi erfi\u00f0a reynsla Rannveigar, \u00f6mmu hans og lang\u00f6mmu minnar, hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan kynntist J\u00f3ni \u00d6rn\u00f3lfssyni, langafa m\u00ednum. Ef \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki gerst hef\u00f0i fa\u00f0ir minn aldrei or\u00f0i\u00f0 til, ekki systkin hans og afkomendur \u00feeirra &#8211; og \u00fear me\u00f0 ekki \u00e9g heldur. \u00de\u00e1 hl\u00f3 Gu\u00f0mundur og sag\u00f0i: \u00ab\u00c9g hef aldrei s\u00e9\u00f0 \u00feetta \u00ed \u00feessu lj\u00f3si!\u00bb \u00c9g held a\u00f0 fr\u00e6ndi hafi teki\u00f0 afa sinn \u00ed s\u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 heyra \u00feetta! [innskot). L\u00edfi\u00f0 er fullt af tilviljunum &#8211; e\u00f0a eigum vi\u00f0 a\u00f0 segja handlei\u00f0slu \u00e6\u00f0ri forsj\u00f3nar?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0. Vi\u00f0 siglum um l\u00edfsins haf \u00ed \u00f6ldur\u00f3ti og stundum logni, sem betur fer, en undir okkur er \u00f3m\u00e6lisdj\u00fap. Dj\u00fapi\u00f0 er \u00e1berandi hugtak \u00ed hebresk\/kristinni hugsun. \u00cd GT er dj\u00fapi\u00f0 t\u00e1kn \u00feess sem \u00f3gnar mannl\u00edfinu. Vatnsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00feekkjum vi\u00f0 af einni \u00feekktustu t\u00e1kns\u00f6gu heimsb\u00f3kmentanna, s\u00f6gunni af N\u00f3a og \u00d6rkinni. H\u00fan er t\u00e1kn fyrir kirkjuna og sk\u00edrnina. Vi\u00f0 erum h\u00e9r \u00ed \u00c1 \u00edslensku er tala\u00f0 um kirkjuskip. Vi\u00f0 erum h\u00e9r \u00ed kirkjuskipi eins og l\u00e6risveinarnir for\u00f0um \u00ed b\u00e1tnum me\u00f0 Jes\u00fa. \u00deeir ur\u00f0ur \u00f3ttaslegnir en hann svaf r\u00f3legur \u00feegar gaf \u00e1 b\u00e1tinn. \u00deeir v\u00f6ktu hann og hann kyrr\u00f0i vind og sj\u00f3. \u00deessi m\u00e1ttuga saga er \u00f6\u00f0rum \u00fer\u00e6\u00f0i t\u00e1knsaga um l\u00edfssiglingu okkar. Vi\u00f0 vorum munstru\u00f0 um bor\u00f0 \u00ed kirkju Krists vi\u00f0 heilaga sk\u00edrn og \u00fear erum vi\u00f0 \u00f6rugg. Krosst\u00e1kni\u00f0 yfir sk\u00edrnarbarninu er sem innsigli um \u00f6ruggt skipsr\u00fam. Kristur er um bor\u00f0, hann gengur \u00e1 vatninu og hann er \u00ed \u00f6ldunum og \u00ed dj\u00fapinu. \u00deau sem t\u00fdnst hafa \u00ed dj\u00fapi hafsins, og hloti\u00f0 vota gr\u00f6f, bj\u00f6rgu\u00f0ust af honum sem sigra\u00f0i \u00f3gnir dj\u00faps og heims me\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum \u00e1 krossi og upprisu. \u00dea\u00f0 er okkur huggun sem misst h\u00f6fum \u00e1stvini i hafi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cdsafjar\u00f0arkirkja er fagurt h\u00fas, t\u00e1kn um skip, og \u00ed formi \u00feaks hennar er v\u00edsa\u00f0 til \u00f6ldufalda.<\/p>\n<p>Gamla kirkjan haf\u00f0i brunni\u00f0 og \u00cdsfir\u00f0ingar \u00fev\u00ed kirkjulausir um nokkurra \u00e1ra skei\u00f0. \u00d3eining r\u00edkti \u00ed b\u00e6num um hva\u00f0 gera \u00e6tti. \u00c1 a\u00f0alsafna\u00f0arfundi \u00e1 \u00feessum \u00e1rum m\u00e6tti Gu\u00f0mundur me\u00f0 skrifa\u00f0a r\u00e6\u00f0u sem hann flutti. Hann br\u00fdndi \u00cdsfir\u00f0inga til a\u00f0 taka h\u00f6ndum saman um a\u00f0 byggja n\u00fdja kirkju \u00e1 l\u00f3\u00f0 hinnar eldri. R\u00e6\u00f0a hans og framganga olli \u00fe\u00e1ttaskilum \u00ed kirkjum\u00e1lum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. N\u00fd kirkja reis, f\u00f6gur og vel h\u00f6nnu\u00f0 til allra athafna.<\/p>\n<p>\u00cdsafjar\u00f0arkirkja, eins og a\u00f0rar kirkjur, er sem \u00d6rkin, h\u00fan er skip sem bjargar, h\u00fan er \u00abGu\u00f0-bj\u00f6rg\u00bb &#8211; og meira a\u00f0 segja \u00ed gulum lit! Guggan gula \u00far st\u00e1li er farin og siglir um h\u00f6fin \u00fear til m\u00f6lur og ry\u00f0 granda henni. En kirkja Krists, hin andlega kirkja \u00ed ver\u00f6ldinni, er bygg\u00f0 \u00e1 bjargi. H\u00fan starfar \u00e1fram og sinnir s\u00ednum vei\u00f0um og bj\u00f6rgunarhlutverki \u00ed \u00f6ldur\u00f3ti hverrar t\u00ed\u00f0ar og Drottinn hefur gefi\u00f0 okkur \u00feetta fyrirheit um kirkjuna: \u00abm\u00e1ttur heljar mun ekki \u00e1 henni sigrast.\u00bb (Mt 16.18). H\u00fan mun aldrei \u00e1 grunn ganga.<\/p>\n<p>Kirkjan er miki\u00f0 aflaskip \u00ed s\u00f6gu \u00feessa heims. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsu b\u00fai\u00f0 a\u00f0 setja \u00e1 hana kv\u00f3ta og loka fyrir henni mikilv\u00e6gum vei\u00f0sv\u00e6\u00f0umen h\u00fan heldur \u00e1fram og lifir \u00e1 fyrirheitum Drottins. \u00dea\u00f0 er n\u00fdu reyndar b\u00fai\u00f0 a\u00f0 setja \u00e1 hana kv\u00f3ta og loka fyrir henni vei\u00f0isv\u00e6\u00f0um en h\u00fan heldur \u00e1fram &nbsp;og lifir \u00e1 fyrirheitum Drottins.<\/p>\n<p>Jes\u00fas setti fram nokkrar l\u00edkingar um himnar\u00edki og sag\u00f0i me\u00f0al annars:<\/p>\n<p>\u00abEnn er himnar\u00edki l\u00edkt neti sem lagt er \u00ed sj\u00f3 og safnar alls kyns fiski.\u00bb<\/p>\n<p>Og kirkjan er enn a\u00f0 vie\u00f0um a\u00f0 fanga f\u00f3lk fyrir himininn.<\/p>\n<p>Minnast ber samstarfs Gu\u00f0mundar og \u00c1sgeirs Gu\u00f0bjartssonar sem var fars\u00e6lt gott, enda b\u00e1\u00f0ir afar g\u00f3\u00f0ir menn. \u00cd vi\u00f0talinu vi\u00f0 Gu\u00f0mund sag\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00c1sgeir hlj\u00f3ti a\u00f0 hafa veri\u00f0 afar gl\u00farinn skipstj\u00f3ri. Gu\u00f0mundur svara\u00f0i: \u00abHann var ekki bara gl\u00farinn, hann Geiri,&nbsp;hann var g\u00e6ddur yfirn\u00e1tt\u00farulegum h\u00e6fileikum, sem skipstj\u00f3ri. Hann fann alltaf fisk og sat ekki bara einn a\u00f0 aflanum, heldur l\u00e9t a\u00f0ra skipstj\u00f3ra vita.\u00bb \u00deeir dr\u00f3gust a\u00f0 Gugguni eins og j\u00e1rn a\u00f0 segli. \u00de\u00e1 r\u00e9ri Geiri \u00e1 \u00f6nnu mi\u00f0 og fann n\u00fdjar torfur. Samstarf \u00feeirra var eitt samfellt \u00e6vint\u00fdri, en \u00f6ll \u00e6vint\u00fdri taka enda,og n\u00fd ver\u00f0a til.<\/p>\n<p>Hvert stefnir \u00cdsland, \u00e1 hva\u00f0a mi\u00f0 r\u00f3um vi\u00f0 n\u00fa sem \u00fej\u00f3\u00f0? Vi\u00f0 lifum n\u00fa t\u00edma \u00feegar margt ungt f\u00f3lk vill kasta tr\u00faararfinum, skr\u00fafa fyrir mesta hugsanaflj\u00f3t heimsins, \u00fear sem saman hafa runni\u00f0 hebresk\/kristin hugsun og gr\u00edsk heimspeki. Af \u00feessu hugsanaflj\u00f3ti er vestr\u00e6n menning m\u00f3tu\u00f0. Yfir fimm\u00fe\u00fasund \u00e1ra viska hefur safnast saman \u00ed \u00feessu flj\u00f3ti, viska um skilning \u00e1 hinu st\u00f3ra samhengi alls sem er; viska um e\u00f0li mannsins, bjarta m\u00f6guleika hans en einnig dimma breyskleika; viska um vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 \u00e1f\u00f6llum og harmi; viska sem gefur ekki upp von og tr\u00fa \u00e1 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna.<\/p>\n<p>Eigum vi\u00f0 a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00f3tleysi samt\u00edmans geti komi\u00f0 me\u00f0 betri lausnir var\u00f0andi hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi tilverunnar, en \u00feessi m\u00f6rg \u00fe\u00fasund \u00e1ra gamli arfur? Vestr\u00e6nn menningararfur \u00e1 undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja, a\u00f0allega vegna vanr\u00e6kslu og skilningsleysis. Vegi\u00f0 er a\u00f0 honum \u00far m\u00f6rgum \u00e1ttum, og ekki bara me\u00f0 hry\u00f0juverkum, heldur l\u00edka og ekki s\u00ed\u00f0ur, me\u00f0 do\u00f0a og andvaraleysi almennings innan hinnar kristnu \u00e1lfu. Vi\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 halda kirkjunni lifandi me\u00f0 hj\u00e1lp Drottins.<\/p>\n<p>Fr\u00e6ndi \u00feekkti \u00feennan arf og vissi a\u00f0 hann var \u00f6ruggur um bor\u00f0 \u00ed kirkjunni. Hann ba\u00f0 b\u00e6nir s\u00ednar hvert kv\u00f6ld, sag\u00f0i hann m\u00e9r, og lag\u00f0i sig og s\u00edna \u00ed hendur Drottins. Hann var g\u00e6fuma\u00f0ur, heilsteyptur, hei\u00f0arlegur, grandvar, traustur, ma\u00f0ur or\u00f0a sinna, h\u00f6f\u00f0ingi sem vildi \u00f6llum gott og engum illt. Hann var sanngjarn, gla\u00f0sinna, g\u00f3\u00f0ur h\u00famoristi, en or\u00f0var. Hann var ma\u00f0ur framkv\u00e6mda, \u00e1r\u00e6\u00f0inn og fylginn s\u00e9r. A\u00f0 gera samf\u00e9laginu vel, var hans \u00e6\u00f0sta mark og mi\u00f0, gefa af s\u00e9r efnis- og andlega. Han hlusta\u00f0i \u00e1 s\u00edna innri r\u00f6dd [Innskot] Hann \u00f3lst upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00f3\u00f0ir hans sendi \u00feau systkinin me\u00f0 mat og fatna\u00f0 til f\u00e1t\u00e6kra. Hann var f\u00e9lagshyggjuma\u00f0ur, krati \u00ed besta skilningi \u00feess or\u00f0s. \u00cd kringum Gu\u00f0mund var \u00e6t\u00ed\u00f0 eitthva\u00f0 a\u00f0 gerast. Ef slys bar a\u00f0 h\u00f6ndum var\u00f0 heimili \u00feeirra hj\u00f3na, mi\u00f0st\u00f6\u00f0 bj\u00f6rgunara\u00f0ger\u00f0a, \u00fev\u00ed Slysavarnarf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1tti ekki eigi\u00f0 h\u00fas. S\u00ed\u00f0ar var hann ger\u00f0ur a\u00f0 hei\u00f0ursf\u00e9laga SVF\u00cd fyrir st\u00f6rf s\u00edn a\u00f0 slysavarna- og bj\u00f6rgunarm\u00e1lum.<\/p>\n<p>Hann d\u00e1sama\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 d\u00e6turnar sem voru honum afar k\u00e6rar og hann \u00feeim. \u00de\u00e6r muna vel \u00e1rin \u00f6ll og ofarlega er \u00feeim \u00ed huga er hann var hafns\u00f6guma\u00f0ur og \u00feurfti a\u00f0 fara \u00fat \u00ed \u00f6llum ve\u00f0rum og \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum s\u00f3lahringsins til m\u00f3ts vi\u00f0 skip, klifra upp margra metra ka\u00f0alstiga \u00ed veltingi til a\u00f0 komast um bor\u00f0 og st\u00fdra til hafnar. \u00de\u00e1 k\u00far\u00f0u \u00fe\u00e6r heima \u00ed dimmunni og b\u00e1\u00f0u Gu\u00f0 a\u00f0 vernda pabba. \u00de\u00e6r eru \u00feakkl\u00e1tar fyrir \u00e1str\u00edki hans, \u00f6ryggi\u00f0 sem hann veitti \u00feeim og \u00f6ll g\u00f3\u00f0u \u00e1rin. \u00de\u00e6r \u00e1ttu hann lengi. \u00dea\u00f0 er g\u00e6fa a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 hafa \u00e1stvini s\u00edna lengi og vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a heilsu. En \u00ed \u00feeim efnum er aldrei r\u00f3i\u00f0 \u00e1 \u00f6rugg mi\u00f0. M\u00f3\u00f0ir \u00feeirra f\u00f3r allt of flj\u00f3tt. Enginn r\u00e6\u00f0ur s\u00ednum n\u00e6tursta\u00f0. Ekkert okkar veit hvort morgundagurinn rennur upp til a\u00f0 varpa lj\u00f3si \u00e1 veginn. Hven\u00e6r tekur vegurinn enda? Hven\u00e6r gleypir dj\u00fapi\u00f0 okkur? Vi\u00f0 vitum \u00fea\u00f0 ekki sem betur fer. S\u00fa viska b\u00fdr \u00ed huga Drottins.<\/p>\n<p>\u00ab\u00c9g synti upp \u00ed lj\u00f3si\u00f0\u00bb.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur leita\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 lj\u00f3ss og sannleika. \u00cd Fr\u00edm\u00fararareglunni f\u00e9kk hann einstakt t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 \u00feroska sig sem mann \u00e1 grundvelli kristinnar tr\u00faar og visku aldanna. Hann lag\u00f0i Reglunni miki\u00f0 til me\u00f0 kr\u00f6ftum s\u00ednum og fj\u00e1rmunum, einkum h\u00e9r \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, til Nj\u00e1lu. Kominn langt a\u00f0 t\u00edr\u00e6\u00f0isaldri m\u00e6tti hann reglulega \u00e1 fundi \u00ed landsst\u00fakunni \u00ed Reykjav\u00edk og st\u00f3\u00f0 \u00fear keikur og hress &#8211; og jafnan me\u00f0 g\u00f3\u00f0an br\u00f3\u00f0ur a\u00f0 vestan sem fylgdarmann. \u00c6t\u00ed\u00f0 var gaman a\u00f0 hitta hann og hann heilsa\u00f0i m\u00e9r \u00e6t\u00ed\u00f0 gla\u00f0ur me\u00f0 or\u00f0unum: \u00abS\u00e6ll, elsku fr\u00e6ndi\u00bb &#8211; og kyssti mig \u00e1 kinn. Minni hans var \u00f3tr\u00falega gott og fr\u00e1s\u00f6gn jafnan yfirvegu\u00f0 og \u00ed samhengi.<\/p>\n<p>Og n\u00fa h\u00e9r \u00ed \u00feessu kirkuskipi, siglir hann \u00abupp \u00ed lj\u00f3si\u00f0\u00bb og vi\u00f0 kve\u00f0jum \u00feennan hei\u00f0ursmann og \u00f6ldung me\u00f0 dj\u00fapri vir\u00f0ingu og einl\u00e6gri \u00fe\u00f6kk. \u00cdsland \u00fearfnast n\u00fa sem fyrr manna \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 hann sem standa vi\u00f0 or\u00f0 sitt og handtak. Hann vildi hafa me\u00f0 s\u00e9r \u00ed kistuna mynd af Brynd\u00edsi \u00cdS 69 &#8211; og honum var\u00f0 a\u00f0 \u00f3sk sinni.<\/p>\n<p>Hann er lag\u00f0ur upp \u00ed s\u00edna hinstu f\u00f6r og siglir \u00abupp \u00ed lj\u00f3si\u00f0\u00bb. Kristur er um bor\u00f0, hann er l\u00edka \u00ed dj\u00fapinu og hann er \u00e1 \u00f6ldunum st\u00f3ru og \u00ed brotunum \u00f3gurlegu. \u00cd honum eigum vi\u00f0 von um a\u00f0 komast \u00ed \u00f6rugga h\u00f6fn, \u00ed himni Gu\u00f0s. Eina skipi\u00f0 sem skilar okkur \u00feanga\u00f0 er kristin kirkja.<\/p>\n<p>\u00deessi tr\u00fa sem s\u00eda\u00f0ist inn \u00ed mig og kynsl\u00f3\u00f0 m\u00edna h\u00e9r fyrir vestan, h\u00e9r \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, \u00ed g\u00f6mlu kirkjunni, \u00ed Salem, \u00e1 Hernum, \u00ed Sk\u00e1taf\u00e9laginu og heima vi\u00f0 r\u00famstokkinn. Kristin tr\u00fa gefur l\u00edfinu tilgang og setur \u00fea\u00f0 \u00ed samhengi hins \u00e6\u00f0sta og st\u00e6rsta \u00ed tiverunni. H\u00fan er, t\u00fai \u00e9g, eina m\u00f3tv\u00e6gi\u00f0 vi\u00f0 r\u00f3tleysi samt\u00edmans, heilsteypt tr\u00fa bygg\u00f0 \u00e1 s\u00fdn Krists \u00e1 heim og himinn. T\u00f3mar\u00fami\u00f0 sem myndast \u00ed \u00e1lfu okkar \u00feegar f\u00f3lk h\u00e6ttir a\u00f0 i\u00f0ka tr\u00fana lei\u00f0ir til \u00feess a\u00f0 inn \u00ed t\u00f3mar\u00fami\u00f0&nbsp;fl\u00e6\u00f0a a\u00f0rar hugmyndir sem vart standast samanbur\u00f0 vi\u00f0 hinn d\u00fdra arf.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 f\u00f6gnum yfir fars\u00e6lu l\u00edfi og st\u00f6rfum Gu\u00f0mundar og bi\u00f0jum honum blessunar um alla eil\u00edf\u00f0. Gu\u00f0 geymi minningu m\u00e6ts hei\u00f0ursmanns og blessi \u00e1stvin hans og samfer\u00f0af\u00f3lk. Gu\u00f0 blessi hann og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur<\/p>\n<p>Erfidrykkja<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Gu\u00f0mundur Gu\u00f0mundsson&nbsp; 1916-2015 skipstj\u00f3ri og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i Minningarath\u00f6fn \u00ed Neskirkju Reykjav\u00edk&nbsp;m\u00e1n. 23. n\u00f3v. kl. 13 og \u00fatf\u00f6r fr\u00e1 \u00cdsafjar\u00f0arkirkju&nbsp;lau. 28. n\u00f3v. kl. 14. Unnt er a\u00f0&nbsp;lesa&nbsp;r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig&nbsp;hlusta&nbsp;me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn: Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur. \u00ab\u00c9g horf\u00f0i ni\u00f0ur \u00ed dj\u00fapi\u00f0, \u00ed dimmuna, s\u00e1 svo [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[198,199,244,248,348,350,379],"class_list":["post-1637","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-fiskveidar","tag-fiskveidistjorn","tag-gudbjorg","tag-guggan","tag-kirkjan","tag-kirkjuskip","tag-kvoti"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1637","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1637"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1637\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1637"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1637"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1637"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}