{"id":1606,"date":"2015-08-12T17:09:16","date_gmt":"2015-08-12T17:09:16","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1606"},"modified":"2015-08-12T17:09:16","modified_gmt":"2015-08-12T17:09:16","slug":"hrafn-tulinius-1931-2015","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1606","title":{"rendered":"+Hrafn Tulinius 1931-2015"},"content":{"rendered":"<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/hrafn-tulinius.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/hrafn-tulinius.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1607\" alt=\"Hrafn Tulinius\" width=\"177\" height=\"222\"><\/a><\/span><span class=\"s1\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Minningaror\u00f0<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><b>Hrafn Tulinius<\/b><\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">yfirl\u00e6knir krabbameinsskr\u00e1r og pr\u00f3fessor<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">1931-2015<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Rvk<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">mi\u00f0vikudgainn 12. \u00e1g\u00fast 2015 kl. 13<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\">\u00de\u00fa getur <strong>lesi\u00f0<\/strong> r\u00e6\u00f0un h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og jafnframt <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 hana.<\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>S\u00e1lmaskr\u00e1in<\/strong> er birt ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p class=\"p1\"><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1606-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/08\/hrafn-tulinius.m4a?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/08\/hrafn-tulinius.m4a\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/08\/hrafn-tulinius.m4a<\/a><\/audio>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Undrun og innlifum, hrifn\u00e6mi og lotning.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00ab\u00deegar \u00e9g horfi \u00e1 himininn . . .\u00bb sag\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0 \u00ed 8. Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmi sem l\u00fdsir hrifningu sinni yfir sk\u00f6punarverkinu.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">H\u00e6fileikinn til a\u00f0 undrast er forsenda v\u00edsinda og framfara. Augu sem horfa rannsakandi \u00ed spurn leita svara.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hrafn unni b\u00f3kmenntum og listum og t\u00e1ra\u00f0ist gjarnan \u00feegar hrifningin n\u00e1\u00f0i t\u00f6kum \u00e1 hans annars stilltu og h\u00f3gv\u00e6ru s\u00e1l. Sk\u00e1ldskaparg\u00e1fan &#8211; h\u00e6fileikinn til a\u00f0 sj\u00e1 \u00fat fyrir rammann &#8211; er forsenda allrar leitar, allra v\u00edsinda og \u00feess vegna vir\u00f0a sannir v\u00edsindamenn menningu og listir. Adam var fyrsti v\u00edsindama\u00f0urinn skv. 1. M\u00f3seb\u00f3k en \u00fear segir: \u00abOg ma\u00f0urinn gaf \u00f6llu b\u00faf\u00e9nu nafn \u00e1samt fuglum loftsins og d\u00fdrum merkurinnar.\u00bb Fyrsta skilgreining og flokkun fyrirbrig\u00f0a \u00ed heiminum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Mannss\u00e1lin visnar ef h\u00fan n\u00fdtur ekki lista og menningar. Samstarfsma\u00f0ur Hrafns \u00e1 erlendri grund og vinur \u00ed 50 \u00e1r, Nick Day, rita\u00f0i minningaror\u00f0 um Hrafn og \u00feakkar honum samstarfi\u00f0 \u00e1 svi\u00f0i v\u00edsinda og nefnir&nbsp;s\u00e9rstaklega a\u00f0 hann hafi kynnt s\u00e9r \u00edslenskan b\u00f3kmenntaarf og lei\u00f0sagt s\u00e9r um lendur hans. Hann segir: \u00abFyrir Hrafni voru b\u00f3kmenntir og v\u00edsindi hluti st\u00e6rra samhengis. S\u00e1 sem mennta\u00f0ur er \u00ed Englandi drekkur \u00fea\u00f0 \u00ed sig a\u00f0 enskar b\u00f3kmenntir eigi s\u00e9r r\u00e6tur \u00ed klass\u00edskum gr\u00edskum og latneskum b\u00f3kmenntaarfi. Hrafn s\u00fdndi m\u00e9r fram \u00e1 a\u00f0 margt af \u00fev\u00ed sem er \u00ed e\u00f0li enskrar lj\u00f3\u00f0listar \u00e1 s\u00e9r r\u00e6tur \u00ed \u00edslenskum sk\u00e1ldskap.\u00bb<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Svi\u00f0i\u00f0 var st\u00f3rt og sk\u00f6rp augu v\u00edsindamannsins k\u00f6fu\u00f0u \u00ed dj\u00fap hva\u00f0a vi\u00f0fangsefnis sem var. Hrafnar \u00d3\u00f0ins f\u00f3ru daglega um allan heim segir \u00ed fornum textum og t\u00f3ku vel eftir \u00f6llu, komu til baka og krunku\u00f0u \u00ed eyru hans. \u00ab\u00deannig vissi \u00d3\u00f0inn um hva\u00f0eina, sem ger\u00f0ist.\u00bb<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deau skipti sem vi\u00f0 Hrafn hittumst \u00ed lok messugj\u00f6r\u00f0ar e\u00f0a \u00fatfarar, h\u00e9r e\u00f0a \u00ed \u00f6\u00f0rum kirkjum, horf\u00f0i hann \u00e1 mig me\u00f0 s\u00ednum eftirminnilegu og rannsakandi augum, \u00feakka\u00f0i fyrir sig me\u00f0 traustu handtaki, en sag\u00f0i annars f\u00e1tt. \u00deannig var hann. En hann var hl\u00fdr ma\u00f0ur og gla\u00f0ur \u00ed s\u00e1l og sinni, \u00feakkl\u00e1tur fyrir l\u00edfi\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem \u00fea\u00f0 f\u00e6r\u00f0i honum. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">A\u00f0 honum st\u00f3\u00f0u sterkir stofnar<\/span><span class=\"s1\"><span class=\"Apple-converted-space\">&nbsp; <\/span><\/span><span class=\"s1\">athafna- og menntamanna en um lei\u00f0 kynntist hann \u00fev\u00ed \u00ed \u00e6tt sinni a\u00f0 h\u00e1rf\u00edn egg er oft \u00e1 milli g\u00e6fu og gj\u00f6rvileika. Hann var fremur f\u00e1m\u00e1ll um uppv\u00f6xt sinn en vann \u00feess meir me\u00f0 s\u00ednar tilfinningar hi\u00f0 innra. Hugsunin var \u00e6t\u00ed\u00f0 sk\u00fdr og einbeitnin sk\u00f6rp. Hann var\u00f0 a\u00f0 komast \u00e1fram af eigin rammleik og atorku og n\u00e1\u00f0i langt \u00e1 s\u00ednu fr\u00e6\u00f0asvi\u00f0i en mikla\u00f0ist aldrei af verkum s\u00ednum. Hann var h\u00f3gv\u00e6r ma\u00f0ur og stilltur, eins og klettur er ekkert haggar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Fa\u00f0ir Hrafns var Hallgr\u00edmur Axel Tulinius (1896-1963). Nafni\u00f0 Tulinius barst til Danmerkur fr\u00e1 P\u00f3llandi r\u00e9tt fyrir aldam\u00f3tin 1800 en mun eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur vera danskt og s\u00e6nskt a\u00f0 uppruna \u00feegar leita\u00f0 er enn lengra aftur. Hrafn er \u00fei\u00f0ja kynsl\u00f3\u00f0 me\u00f0 nafni\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi. Axel afi Hrafns var st\u00fadent fr\u00e1 MR en nam l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i \u00ed Kaupmannah\u00f6fn. Hann var s\u00fdsluma\u00f0ur Su\u00f0ur-M\u00falas\u00fdslu en s\u00ed\u00f0ar fyrsti forstj\u00f3ri Sj\u00f3v\u00e1tryggingaf\u00e9lags \u00cdslands. Br\u00e6\u00f0ur Axels voru \u00feekktir af verslunarst\u00f6rfum s\u00ednum og \u00fatger\u00f0, einkum \u00de\u00f3rarinn, sem stofna\u00f0i fyrsta \u00edslenska skipaf\u00e9lagi\u00f0, Thoref\u00e9lagi\u00f0. Gu\u00f0r\u00fan kona Axels \u00e1tti l\u00edka \u00e6ttir a\u00f0 rekja til Danmerkur, en \u00ed m\u00f3\u00f0ur\u00e6tt. \u00cd f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt var h\u00fan d\u00f3ttir Hallgr\u00edms Sveinssonar, biskups \u00cdslands. Hallgr\u00edmur Axel var elsti sonur \u00feeirra og nam verslunarfr\u00e6\u00f0i \u00ed Danm\u00f6rku. Frami hans var skj\u00f3tur \u00ed \u00edslensku vi\u00f0skiptal\u00edfi og um \u00fer\u00edtugt haf\u00f0i hann stofna\u00f0 innflutningsverslunina H.Ben me\u00f0 Hallgr\u00edmi Benediktssyni \u00e1samt m\u00f6rgum \u00f6\u00f0rum fyrirt\u00e6kjum \u00e1 uppgangst\u00edmum milli tveggja heimsstyrjalda. Hann var giftur Hrefnu L\u00e1rusd\u00f3ttur sem l\u00e9st \u00ed b\u00edlslysi 1928. \u00deau \u00e1ttu \u00ferj\u00fa b\u00f6rn, Axel, f. 1918, Gu\u00f0r\u00fanu, f. 1919 og M\u00e1lfr\u00ed\u00f0i, f. 1926. \u00deau voru eldri h\u00e1lfsystkini Hrafns.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">M\u00f3\u00f0ir Hrafns var Margr\u00e9t J\u00f3hannsd\u00f3ttir Tulinius (1904-1971). H\u00fan var d\u00f3ttir hj\u00f3nanna J\u00f3hanns L\u00fathers Sveinbjarnarsonar og Gu\u00f0r\u00fanar Torfad\u00f3ttur. J\u00f3hann L\u00father var Brei\u00f0fir\u00f0ingur, f\u00e6ddur \u00ed Sk\u00e1leyjum, og kominn af vestfirskum h\u00f6f\u00f0ingjum a\u00f0 langfe\u00f0gatali. J\u00f3hann L\u00father gekk menntaveginn, l\u00e6r\u00f0i til prests og var pr\u00f3fastur a\u00f0 H\u00f3lmum \u00ed Rey\u00f0arfir\u00f0i \u00feegar hann l\u00e9st langt fyrir aldur fram fr\u00e1 fj\u00f3rum litlum b\u00f6rnum. Eiginkona hans, Gu\u00f0r\u00fan, var f\u00e6dd \u00e1 Flateyri, d\u00f3ttir Torfa Halld\u00f3rssonar, skipherra og verslunarmanns, og Mar\u00edu \u00d6ssurard\u00f3ttur eiginkonu hans. Torfi og Mar\u00eda voru st\u00f3reignaf\u00f3lk um skei\u00f0 og br\u00e6\u00f0ur Gu\u00f0r\u00fanar \u00feekktir menn \u00ed \u00fatger\u00f0 og verslun, einkum P\u00e1ll og \u00c1sgeir. \u00deegar sr. J\u00f3hann L\u00father l\u00e9st, flutti Gu\u00f0r\u00fan me\u00f0 b\u00f6rnin til Flateyrar \u00fear sem h\u00fan \u00e1tti heimili me\u00f0 systur sinni og b\u00f6rnum s\u00ednum. H\u00fan var s\u00edmst\u00f6\u00f0varstj\u00f3ri \u00fear.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">L\u00f6ng vin\u00e1tta var milli m\u00f3\u00f0ur\u00e6ttar og f\u00f6\u00f0ur\u00e6ttar Hrafns fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar J\u00f3hann L\u00father var prestur a\u00f0 H\u00f3lmum en Axel s\u00fdsluma\u00f0ur \u00e1 Eskifir\u00f0i. Sennilega var \u00fea\u00f0 \u00feess vegna sem Margr\u00e9t f\u00f3r sem ung kona til a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a unga ekkjumanninn Hallgr\u00edm, eftir sviplegt fr\u00e1fall konu hans Hrefnu. Br\u00e1tt t\u00f3kust \u00e1stir me\u00f0 \u00feeim Margr\u00e9ti og Hallgr\u00edmi. \u00deau giftust og \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar f\u00e6ddist Hrafn sem var sk\u00edr\u00f0ur \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 fyrri eiginkonu f\u00f6\u00f0ur s\u00edns.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hallgr\u00edmur og Margr\u00e9t voru gl\u00e6silegt par og Hallgr\u00edmi haf\u00f0i vegna\u00f0 vel \u00ed vi\u00f0skiptum. S\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 vel gekk um t\u00edma er a\u00f0 fj\u00f6lskyldan bj\u00f3 \u00ed Gimli vi\u00f0 L\u00e6kjarg\u00f6tu \u00feegar Hrafn f\u00e6ddist&nbsp;1931. Hrafn er \u00fev\u00ed d\u00e6mi um mann \u00far yfirst\u00e9tt \u00e1 \u00edslenska v\u00edsu ef svo m\u00e1 or\u00f0a \u00fea\u00f0, en sem f\u00e9kk \u00fe\u00f3 l\u00edtinn arf \u00ed eignum tali\u00f0 \u00far f\u00f6\u00f0urgar\u00f0i, vegna \u00e1falla \u00ed vi\u00f0skiptum f\u00f6\u00f0urins. Allt sem Hrafn \u00e1tti var\u00f0 hann a\u00f0 vinna fyrir sj\u00e1lfur. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Athvarf Hrafns \u00ed \u00e6sku var Flateyri \u00fear sem amma hans og \u00f6mmusystir bjuggu, en einnig m\u00f3\u00f0ursystir hans, Mar\u00eda, og ma\u00f0ur hennar, Kristj\u00e1n Ebenesersson, me\u00f0an hann lif\u00f0i. \u00dear dvaldi Hrafn flest ef ekki \u00f6ll sumur me\u00f0an hann var barn og fram \u00e1 unglings\u00e1r. \u00dear \u00e1tti hann bestu \u00e6skuminningarnar og honum \u00fe\u00f3tti mj\u00f6g v\u00e6nt um \u00f6mmu Gu\u00f0r\u00fanu, t\u00f6ntu \u00c1stu og Maju fr\u00e6nku. Ekki s\u00ed\u00f0ur tala\u00f0i hann af vir\u00f0ingu og v\u00e6ntum\u00feykju um Kristj\u00e1n mann hennar sem reyndist honum g\u00f3\u00f0ur f\u00e9lagi og fyrirmynd me\u00f0an hann lif\u00f0i. Hann var alla t\u00ed\u00f0 heilla\u00f0ur af fj\u00f6llunum \u00ed \u00d6nundarfir\u00f0i og&nbsp;l\u00edkti \u00feeim vi\u00f0 s\u00falur \u00ed musteri.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann var\u00f0 ungur st\u00fadent og vir\u00f0ist hafa \u00e1kve\u00f0i\u00f0 flj\u00f3tlega a\u00f0 l\u00e6ra til l\u00e6knis. Hrafni vegna\u00f0i vel \u00ed n\u00e1mi en hann var \u00e1 fyrsta e\u00f0a \u00f6\u00f0ru \u00e1ri \u00ed l\u00e6knan\u00e1minu \u00feegar hann kynnist Helgu. \u00deau giftust a\u00f0eins tv\u00edtug, \u00ed desemberlok 1951 og stofnu\u00f0u heimili.&nbsp;<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deau eignu\u00f0ust M\u00e1 eftir t\u00e6plega tveggja \u00e1ra samb\u00fa\u00f0. Torfi og \u00de\u00f3r f\u00e6\u00f0ast fimm og sex \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar en Gu\u00f0n\u00fd og Sif me\u00f0 \u00feriggja \u00e1ra millibili t\u00f6luvert s\u00ed\u00f0ar, \u00feegar Hrafn og Helga eru farin a\u00f0 halla \u00ed fertugt.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d6ll \u00feessi \u00e1r voru vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edk. Hrafn lauk n\u00e1mi \u00ed l\u00e6knadeild, kl\u00e1ra\u00f0i kand\u00eddats\u00e1ri\u00f0, m.a. \u00ed h\u00e9ra\u00f0i \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og Neskaupsta\u00f0. (Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku). Hann komst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 hann vildi vera meinafr\u00e6\u00f0ingur og helga sig v\u00edsindum, l\u00edkast til a\u00f0 hluta til vegna kynna af fjarskyldum fr\u00e6nda, N\u00edelsi Dungal, en Hrafn vann undir hans stj\u00f3rn \u00e1 Ranns\u00f3knastofu H\u00e1sk\u00f3lans vi\u00f0 Bar\u00f3nsst\u00edg. 1960 h\u00f3fst fimmt\u00e1n \u00e1ra t\u00edmabil \u00fear sem fj\u00f6lskyldan bj\u00f3 a\u00f0 mestu leyti erlendis. Fyrst var dvali\u00f0 \u00ed \u00e1tta m\u00e1nu\u00f0i \u00ed Sandey \u00ed F\u00e6reyjum \u00fear sem Hrafn var h\u00e9ra\u00f0sl\u00e6knir. Tilgangurinn var a\u00f0 safna peningum fyrir framhaldsn\u00e1mi. S\u00ed\u00f0an f\u00e9kk hann styrk til a\u00f0 l\u00e6ra meinafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Freiburg \u00ed \u00de\u00fdskalandi. Eftir \u00e1r \u00fear bau\u00f0st honum a\u00f0 nema vi\u00f0 M.D. Anderson h\u00e1sk\u00f3lasj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 \u00ed Houston, Texas. \u00dear bj\u00f3 fj\u00f6lskyldan \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00fear til Hrafn var b\u00fainn a\u00f0 afla s\u00e9r s\u00e9rleyfis sem meinafr\u00e6\u00f0ingur. \u00de\u00e1 var flutt til Albany New York, \u00fear sem hann kenndi vi\u00f0 l\u00e6knask\u00f3la. \u00dea\u00f0 var \u00fear sem Gu\u00f0n\u00fd Helga f\u00e6ddist 1967. Seint \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri var flutt til \u00cdslands \u00fear sem fj\u00f6lskyldan bj\u00f3 \u00e1 H\u00e1aleitisbraut \u00ed eitt og h\u00e1lft \u00e1r. \u00de\u00e1 bau\u00f0st Hrafni starf vi\u00f0 Al\u00fej\u00f3\u00f0a Krabbameinsstofnunina \u00ed Lyon og \u00feau Helga fluttu \u00feanga\u00f0 1969.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 t\u00f3ku sex \u00e1r \u00ed Frakklandi sem voru afar gj\u00f6ful \u00e1r \u00ed starfi Hrafns og \u00fear sem k\u00farsinn var settur fyrir feril hans eftir \u00fea\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var \u00fe\u00e1 sem hann byrja\u00f0i a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 faraldsfr\u00e6\u00f0ilegar krabbameinsranns\u00f3knir sem hann h\u00e9lt \u00e1fram eftir a\u00f0 hann flutti heim. Yngsta barni\u00f0, Sif, f\u00e6ddist 1970 \u00ed Frakklandi.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">1975 fluttu Hrafn og Helga aftur til \u00cdslands me\u00f0 d\u00e6turnar tv\u00e6r en M\u00e1r haf\u00f0i or\u00f0i\u00f0 eftir \u00e1 \u00cdslandi 1969, Torfi var sendur heim \u00ed sk\u00f3la 1973 og \u00de\u00f3r \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">S\u00ed\u00f0an hafa \u00feau b\u00fai\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00fe\u00f3 Hrafn hafi fer\u00f0ast miki\u00f0 vegna starfs s\u00edns. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Fr\u00e1 1998 hafa \u00feau dvali\u00f0 langdv\u00f6lum \u00e1 hverju \u00e1ri \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00ed Fitou skammt fr\u00e1 Mi\u00f0jar\u00f0arhafsstr\u00f6nd Frakklands.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Mesti harmur \u00ed l\u00edfi \u00feeirra hj\u00f3na er \u00e1n efa hvarf Gu\u00f0n\u00fdjar \u00ed j\u00fan\u00ed 1986 \u00feegar h\u00fan var 19 \u00e1ra og \u00ed sumarvinnu \u00ed Noregi. H\u00fan var n\u00fdor\u00f0in st\u00fadent, greind og gl\u00e6sileg og \u00e1tti framt\u00ed\u00f0ina fyrir s\u00e9r, en h\u00fan haf\u00f0i l\u00edka \u00fej\u00e1st um \u00e1rabil en me\u00f0 hl\u00e9um af \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0a. H\u00fan fannst aldrei en flest bendir til \u00feess a\u00f0 h\u00fan hafi svipt sig l\u00edfi, \u00fe\u00f3tt full vissa fyrir \u00fev\u00ed f\u00e1ist aldrei. \u00c1rin eftir \u00fea\u00f0 voru \u00feeim mj\u00f6g erfi\u00f0 en \u00fea\u00f0 birti \u00e1 n\u00fd yfir Hrafni eftir hvarfi\u00f0 og sorgin eftir Gu\u00f0n\u00fdju var\u00f0 honum og \u00feeim hj\u00f3num l\u00e9ttb\u00e6rari.&nbsp;<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hvernig ma\u00f0ur var Hrafn \u00ed augum barnanna?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann var \u00e1hugasamur um margt eins og fyrr hefur komi\u00f0 fram en hann haf\u00f0i litla \u00feolinm\u00e6\u00f0i gagnvart stj\u00f3rnm\u00e1lal\u00edfinu, fannst skorta \u00e1 r\u00f6kv\u00edsi og si\u00f0fer\u00f0i me\u00f0al flestra stj\u00f3rnm\u00e1lamanna. Einkum var honum \u00ed n\u00f6p vi\u00f0 flokka og flokksr\u00e6\u00f0i, taldi a\u00f0 \u00fe\u00e1 v\u00e6ri illa komi\u00f0 fyrir m\u00f6nnum si\u00f0fer\u00f0islega ef \u00feeir l\u00e9tu hagsmuni flokkana ganga fyrir hagsmunum umbj\u00f3\u00f0enda sinna. Flokksagi var honum ekki a\u00f0 skapi. \u00deess vegna studdi hann einmenningskj\u00f6rd\u00e6mi og haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 hugmyndum Gu\u00f0mundar Hannessonar, l\u00e6knis, um a\u00f0 endurvekja go\u00f0akerfi\u00f0 gamla.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann var l\u00edfsnautnama\u00f0ur, vildi bor\u00f0a g\u00f3\u00f0an mat og nj\u00f3ta lista. Helga bj\u00f3 honum og b\u00f6rnum fagurt heimili &#8211; a.m.k. fimm stj\u00f6rnu heimili &#8211; og t\u00f6fra\u00f0i fram f\u00edna r\u00e9tti me\u00f0 sinni gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Honum \u00fe\u00f3tti skemmtilegt a\u00f0 fer\u00f0ast og \u00feurfti a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 miki\u00f0 \u00ed tengslum vi\u00f0 st\u00f6rf s\u00edn. \u201eHrafninn er farfugl,\u201c var stundum sagt hj\u00e1 Krabbameinsf\u00e9laginu. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann \u00e6f\u00f0i b\u00f6rnin gjarnan \u00ed talnaleikjum og hvatti \u00feau til mennta. \u00deau hj\u00f3nin h\u00e9ldu a\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum menningu og listum sem bori\u00f0 hefur s\u00fdnilegan \u00e1v\u00f6xt. Hrafn r\u00e6kta\u00f0i \u00e1rum saman sitt eigi\u00f0 gr\u00e6nmeti og eina bl\u00f3mategund sem fyllti alla glugga, Sankti P\u00e1l\u00edu. \u00dear runnu saman \u00e1hugi \u00e1 erf\u00f0afr\u00e6\u00f0i og fegur\u00f0. Svo haf\u00f0i hann \u00e1huga \u00e1 t\u00e6kni og t\u00e6kjum, einkum t\u00f6lvuv\u00e6\u00f0ingu \u00ed \u00fe\u00e1gu v\u00edsindanna og svo almennum samg\u00f6ngum. Hann f\u00f3r flestra sinna fer\u00f0a gangandi og t\u00f3k str\u00e6t\u00f3 \u00e1rum saman enda gagnr\u00fdninn \u00e1 offj\u00f6lgun b\u00edla \u00ed borginni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">V\u00edsindavinnan og fj\u00f6lskyldan skiptu hann meira m\u00e1li en allt anna\u00f0 og \u00fea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 l\u00edf hans hafi sn\u00faist fyrst og fremst um \u00feetta tvennt. Einkum var hann elskur a\u00f0 konu sinni og kom \u00fea\u00f0 s\u00edfellt betur \u00ed lj\u00f3s eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1rin li\u00f0u. H\u00fan bj\u00f3 honum fallegt heimili og hann naut mikilla l\u00edfsg\u00e6\u00f0a, \u00fe\u00f6kk s\u00e9 henni, ekki s\u00edst eftir a\u00f0 heilsunni f\u00f3r a\u00f0 hraka.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hvernig fa\u00f0ir var hann?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann lag\u00f0i miki\u00f0 upp \u00far h\u00e1ttv\u00edsi og f\u00e1ga\u00f0ri heg\u00f0un, s\u00fdndi v\u00e6ntum\u00feykju og hl\u00fdju en tala\u00f0i ekki miki\u00f0 um sj\u00e1lfan sig e\u00f0a tilfinningar s\u00ednar. En n\u00e6rveran var \u00e6t\u00ed\u00f0 sterk. Hann var klettur \u00ed l\u00edfi barnanna. \u00dea\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 treysta honum, og hann hlusta\u00f0i ef \u00feeim l\u00e1 eitthva\u00f0 \u00e1 hjarta. \u00dea\u00f0 var einkar gott a\u00f0 leita til hans um l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0ileg efni. Helsta hlutverk hans var a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0 fyrirmynd og \u00fea\u00f0 var hann svo sannarlega, segja \u00feau.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Systkinin fundu \u00fea\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 hann var stoltur af \u00feeim og \u00fev\u00ed sem \u00feau h\u00f6f\u00f0um \u00e1orka\u00f0, hvert \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i og \u00fea\u00f0 var \u00feeim mikilv\u00e6gt a\u00f0 skynja sl\u00edkt.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Barnab\u00f6rnin elsku\u00f0u afa og muna hans glettni og g\u00f3\u00f0a skap. S\u00ed\u00f0asta starfi\u00f0 \u00feeirra hj\u00f3na var \u00feegar \u00feau voru au-pair i Berl\u00edn hj\u00e1 Sif og fj\u00f6lskyldu en \u00fe\u00e1 voru \u00feau samtals t\u00edu sinum eldri en hef\u00f0bundnar au-pair st\u00falkur e\u00f0a 164 \u00e1ra samtals. Hann var einkar natinn vi\u00f0 barnab\u00f6rnin, hj\u00e1lpa\u00f0i \u00feeim \u00ed pr\u00f3flestri, \u00f3k \u00feeim \u00e1 milli sta\u00f0a og rak um t\u00edma svonefndan \u00abSiggustr\u00e6t\u00f3\u00bb fyrir afastelpu.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">H\u00e9r ver\u00f0a ekki rakin st\u00f6rf hans og ranns\u00f3knir. Um \u00fea\u00f0 m\u00e1 lesa \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Hann var ekki fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 hreykja s\u00e9r og hef\u00f0i kannski bara vilja\u00f0 a\u00f0 \u00e9g flytti h\u00e9r \u00f6rstutt \u00e6vi\u00e1grip &nbsp;\u00ed upphafi athafnar og bi\u00f0i ykkur svo a\u00f0 hlusta \u00e1 m\u00fas\u00edk og \u00feakka\u00f0i ykkur svo fyrir komuna. En h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 hans heftir \u00fe\u00f3 ekki \u00feakkl\u00e6ti \u00e1stvina og samfer\u00f0af\u00f3lks og \u00fev\u00ed er \u00feessi ath\u00f6fn \u00f6\u00f0rum \u00fer\u00e6\u00f0i \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0 fyrir fr\u00e1b\u00e6ran mann, eiginmann, f\u00f6\u00f0ur, tengdaf\u00f6\u00f0ur, afa, v\u00edsindamann. Hann \u00e1 einnig \u00feakkir skili\u00f0 fyrir st\u00f6rf s\u00edn \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00fej\u00f3\u00f0ar og mannkyns \u00e1 svi\u00f0i l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0innar. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann var hei\u00f0arlegur ma\u00f0ur. Heilindi einkenndu framg\u00f6ngu hans, segja b\u00f6rnin. \u00deau hj\u00f3n \u00e1ttu saman g\u00f3\u00f0 \u00e1r, voru samr\u00fdmd og elsk a\u00f0 hvort \u00f6\u00f0ru. \u00deau kynntust \u00e1 dansleik \u00ed Verzlunarsk\u00f3lanum og fyrsta stefnum\u00f3ti\u00f0 \u00e1ttu \u00feau \u00feegar Hrafn bau\u00f0 henni \u00e1 t\u00f3nleika Simf\u00f3n\u00eduhl\u00f3msveitarinnar. Snemma beygist kr\u00f3kur.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin eftir a\u00f0 hann greindist me\u00f0 alzheimer \u00e1 byrjunarstigi vildi hann aldrei sj\u00e1 af henni Helgu sinni, f\u00f3r me\u00f0 henni \u00ed h\u00e1rgrei\u00f0slu og snyrtingu og v\u00ed\u00f0ar. Hann haf\u00f0i teki\u00f0 m\u00f6rg pr\u00f3f um \u00e6vina og sta\u00f0i\u00f0 sig vel en n\u00fa bi\u00f0u hans n\u00fd pr\u00f3f, minnispr\u00f3fin. Hvernig b\u00fdr ma\u00f0ur sig undir minnispr\u00f3f, j\u00fa, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa og l\u00e6ra og hefur einhvern til a\u00f0 hj\u00e1lpa s\u00e9r. Helga hl\u00fdddi honum yfir og spur\u00f0i: Hrafn minn, hva\u00f0a \u00e1r er n\u00fana? Hven\u00e6r ertu f\u00e6ddur? Og au\u00f0vita\u00f0 n\u00e1\u00f0i hann oft \u00e1g\u00e6tum \u00e1rangri \u00ed pr\u00f3funum me\u00f0 sl\u00edkan lei\u00f0beinanda sem Helga er. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deau s\u00f3ttu n\u00e1mskei\u00f0 um Egilss\u00f6gu \u00ed vetur sem lei\u00f0 og ekki spillti fyrir a\u00f0 \u00fear kom b\u00f3k Torfa Sk\u00e1ldi\u00f0 \u00ed skriftinni vi\u00f0 s\u00f6gu. \u00c1rum saman skiptust \u00feau \u00e1 um a\u00f0 lesa upp \u00far b\u00f3kum fyrir hvort anna\u00f0. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0ur si\u00f0ur. \u00deau myndu\u00f0u saman svo gott jafnv\u00e6gi, voru i einskonar ying\/yang sambandi alla t\u00ed\u00f0. Uppfylltu hvort anna\u00f0. \u00deau f\u00f3ru v\u00ed\u00f0a og t\u00f3kust margoft \u00e1 vi\u00f0 n\u00fd verkefni og \u00e1skoranir. \u00abVi\u00f0 \u00feor\u00f0um alltaf. L\u00f6g\u00f0um \u00e6t\u00ed\u00f0 upp me\u00f0 fulla poka af kjarki\u00bb, sag\u00f0i&nbsp;Helga vi\u00f0 mig. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deau h\u00f6f\u00f0u \u00e1vallt fingur \u00e1 p\u00falsi fj\u00f6lskyldunnar og fylgdust stolt me\u00f0 h\u00f3pnum s\u00ednum. \u00cd uppeldinu var l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 sameignlegar m\u00e1lt\u00ed\u00f0ir og samt\u00f6l. Heimsmenning og hl\u00fdja einkenndu samskipti \u00feeirra. \u00deau voru dugleg a\u00f0 ganga saman og eitt sinn gengu \u00feau 120 km eftir Jakobsveginum \u00e1 5 d\u00f6gum en vegurinn liggur til Santiago de Compostella og voru \u00fe\u00e1 komin \u00e1 \u00e1ttr\u00e6\u00f0isaldur en voru \u00fe\u00f3 yngst \u00ed h\u00f3pnum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Og n\u00fa er vegur Hrafns \u00e1 enda runninn. Hann d\u00f3 inn \u00ed morguns\u00e1ri\u00f0 31. j\u00fal\u00ed s.l., gaf upp andann um lei\u00f0 og s\u00f3lin reis upp \u00e1 n\u00fd \u00feennan undurfagra sumarmorgunn. L\u00edfi\u00f0 er undur. L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f. Engu m\u00e1tti muna a\u00f0 \u00e9g og \u00fe\u00fa hef\u00f0um ekki or\u00f0i\u00f0 til. Ef \u00feessi eina fruma sem s\u00f3tti a\u00f0 egginu hef\u00f0i synt framhj\u00e1 hef\u00f0ir \u00fe\u00fa aldrei or\u00f0i\u00f0 til og \u00e9g ekki heldur. Aldrei. Aldrei \u00ed milljar\u00f0a-\u00e1ra-langri s\u00f6gu alheimsins. Aldrei. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00f6ll \u00feegi\u00f0 af hendi l\u00edfsins \u00feetta eina t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 lifa \u00e1 \u00feessum bl\u00e1a hnetti sem NB er s\u00e1 eini sem \u00feekktur er \u00fear sem hlj\u00f3\u00f0 berst innan hvolfsins, eini sta\u00f0urinn \u00ed \u00f6llum alheiminum sem vita\u00f0 er um a\u00f0 t\u00f3nlist heyrist, ef marka m\u00e1 v\u00edsindagrein sem \u00e9g las n\u00fdveri\u00f0. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 erum hamingjunnar f\u00f3lk. Og ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 allt b\u00e6tist \u00fea\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 okkur er bo\u00f0u\u00f0 von um a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 meira en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 augum blasir \u00ed \u00f6nnum daganna. Stundum er spurt: Tr\u00fair \u00fe\u00fa \u00e1 Gu\u00f0? S\u00fa spurning er lei\u00f0andi og skapar ekki umr\u00e6\u00f0u um hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi. H\u00fan skiptir f\u00f3lki upp \u00ed tvo h\u00f3pa, me\u00f0 og \u00e1 m\u00f3ti, tr\u00faa\u00f0a og gu\u00f0lausa. V\u00e6nlegra er a\u00f0 spyrja: Er til MEIRA&nbsp;en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 getum vita\u00f0 e\u00f0a v\u00edsindin geta f\u00e6rt okkur heim sanninn um? Er til MEIRA&nbsp;en \u00fea\u00f0 sem mannsheilinn r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0? Og ef svo er hefur \u00fe\u00e1 \u00feetta MEIRA einhvern vilja sem var\u00f0ar okkur mannf\u00f3lki\u00f0? Er MEIRA til &#8211; MEIRA me\u00f0 st\u00f3rum st\u00f6fum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hrafn lif\u00f0i r\u00edku, innra l\u00edfi og f\u00e9kkst vi\u00f0 a\u00f0 r\u00fdna \u00ed r\u00fanir l\u00edfsins alla \u00e6vi. Hann skynja\u00f0i hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0inni en einnig og ekki s\u00ed\u00f0ur \u00ed menningu, listum og tr\u00fa. Hann bar vir\u00f0ingu fyrir \u00fev\u00ed sem vel var gert \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um mannsandans og \u00fear voru tr\u00fa og kirkja ekki undanskilin.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Vegurinn er \u00e1 enda, hinn jar\u00f0neski vegur. Heldur vegurinn \u00e1fram \u00ed annarri v\u00eddd? Er til eitthva\u00f0 MEIRA. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Sk\u00e1ldi\u00f0 Hannes P\u00e9tursson kallast me\u00f0vita\u00f0 e\u00f0a \u00f3me\u00f0vita\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 8. Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lm sem fyrr var vitna\u00f0 til \u00ed lj\u00f3\u00f0i s\u00ednu Umhverfi.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">Hve lengi get \u00e9g lofsungi\u00f0 \u00feessi fj\u00f6ll<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">lofsungi\u00f0 \u00feetta haf, \u00feessar eyjar og strendur<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">j\u00e1 menn og alla hluti sem huga minn gle\u00f0ja<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">hve lengi, \u00e1n \u00feeirrar vissu a\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9 til <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">ofar s\u00e9rhverjum sta\u00f0, hverri reynslu og hugsun<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">sem teflir \u00feessum fj\u00f6llum fram, \u00feessu hafi<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">fjarl\u00e6g\u00f0 og n\u00e1l\u00e6g\u00f0, \u00f6llu \u2014 l\u00edfi og dau\u00f0a<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">leikur \u00fev\u00ed fram fyrir augum m\u00e9r \u00f6ruggri hendi?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hversu lengi munum vi\u00f0 velkjast \u00ed vafa um hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi? Hversu lengi?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left:30px;\"><span class=\"s1\">\u00ab\u00deegar \u00e9g horfi \u00e1 himininn, verk handa \u00feinna, tungli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar, sem \u00fe\u00fa settir \u00fear, hva\u00f0 er \u00fe\u00e1 ma\u00f0urinn \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa minnist hans,og mannsins barn a\u00f0 \u00fe\u00fa vitjir \u00feess?\u00bb<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Svo kva\u00f0 sk\u00e1ldi\u00f0 hebreska. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deegar \u00e9g horfi \u00e1 himinninn, horfi \u00e1 s\u00f3lina koma upp, s\u00e9 \u00e1stvin gefa upp \u00f6ndina, barn f\u00e6\u00f0ast, s\u00e9 l\u00edfi\u00f0 \u00ed allri sinni fj\u00f6lbreytni og fegur\u00f0, hver er \u00e9g \u00fe\u00e1 mitt \u00ed \u00f6llu \u00feessu undri?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00ab\u00deegar \u00e9g horfi \u00e1 himinninn\u00bb.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Amen<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\"><strong>Tilkynningar:<\/strong><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\">Kve\u00f0jur fr\u00e1 kollegum vi\u00f0 krabbameinsskr\u00e1ningu \u00ed Finnlandi og \u00e1 F\u00e6reyjum og krans fr\u00e1 samt\u00f6kum norr\u00e6nna krabbameinsskr\u00e1a.<\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Gufunesi. Kistan borin \u00fat. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Erfidrykkja \u00ed I\u00f0n\u00f3.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Fari\u00f0 \u00ed gar\u00f0inn eftir erfi.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Postulleg kve\u00f0ja:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/sc3a1lmaskrc3a1-hrafn-tulinius1.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Hrafn Tulinius<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Hrafn Tulinius yfirl\u00e6knir krabbameinsskr\u00e1r og pr\u00f3fessor 1931-2015 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Rvk mi\u00f0vikudgainn 12. \u00e1g\u00fast 2015 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0un h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og jafnframt hlusta\u00f0 \u00e1 hana. S\u00e1lmaskr\u00e1in er birt ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[364,365,444,640,679],"class_list":["post-1606","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-krabbameinsrannsoknir","tag-krabbameinsskraning","tag-meira","tag-tru","tag-visindi"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1606","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1606"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1606\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1606"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1606"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1606"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}