{"id":1598,"date":"2015-07-10T19:26:24","date_gmt":"2015-07-10T19:26:24","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1598"},"modified":"2015-07-10T19:26:24","modified_gmt":"2015-07-10T19:26:24","slug":"olafur-hannibalsson-1935-2015","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1598","title":{"rendered":"+\u00d3lafur Hannibalsson 1935-2015"},"content":{"rendered":"<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/olafur-hannibalsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/olafur-hannibalsson.png?w=300\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1599\" width=\"300\" height=\"240\" alt=\"Olafur Hannibalsson\"><\/a><\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Minningaror\u00f0<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><b>\u00d3lafur Hannibalsson<\/b><\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">1935-2015<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk f\u00f6studaginn 10. j\u00fal\u00ed 2015 kl. 13<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Ritningarlestrar: <\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Amos 6.12 og 8.4-8<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">I Kor 1.18-25&nbsp;<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Matt 5.6<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\">R\u00e6\u00f0una er unnt a\u00f0 <strong>hl\u00fd\u00f0a \u00e1<\/strong> og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er birt ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p class=\"p4\"><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1598-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/07\/olafur-hannibalsson-minning.m4a?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/07\/olafur-hannibalsson-minning.m4a\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2015\/07\/olafur-hannibalsson-minning.m4a<\/a><\/audio>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\"><strong>R\u00e6\u00f0an:<\/strong><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e9ttl\u00e6ti!<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deegar \u00e9g h\u00f3f a\u00f0 undirb\u00faa \u00fatf\u00f6r \u00d3lafs Hannibalssonar kom hugtaki\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti flj\u00f3tt upp \u00ed hugann.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e9ttl\u00e6ti!<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann \u00e1tti vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edka \u00e6vi og lag\u00f0i gj\u00f6rva h\u00f6nd a\u00f0 m\u00f6rgu g\u00f3\u00f0u verki, var bla\u00f0ama\u00f0ur, b\u00f3ndi og aktivisti. En umfram allt var hann v\u00e6nn ma\u00f0ur sem lag\u00f0i r\u00edka r\u00e6kt vi\u00f0 fj\u00f6lskyldu s\u00edna, fr\u00e6ndgar\u00f0 og samf\u00e9lag allt. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hvar skal byrja? Mig langar fyrst a\u00f0 verja nokkrum or\u00f0um til \u00edhugunar \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6tinu sem var svo m\u00f3tandi \u00ed l\u00edfi \u00d3lafs.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Segja m\u00e1 a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti hafi st\u00fdrt flestum gj\u00f6r\u00f0um hans og hugsun. Honum var \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin vir\u00f0ing fyrir f\u00f3lki og l\u00edfsbar\u00e1ttu \u00feess. Hugmyndir okkar vestr\u00e6nna manna um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 eru \u00far hugsanaflj\u00f3tinu st\u00f3ra \u00fear sem hebresk\/kristin elfur hefur runni\u00f0 saman vi\u00f0 gr\u00edska, f\u00edl\u00f3s\u00f3f\u00edska elfi. \u00abAf samruna \u00feeirra sprettur evr\u00f3psk menning sem n\u00fa teygir anga s\u00edna um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld, ekki s\u00edst \u00ed nafni al\u00fej\u00f3\u00f0legra v\u00edsinda og kristinnar tr\u00faar\u00bb, sagi\u00f0 P\u00e1ll heitinn Sk\u00falason, heimspekingur. H\u00e9r m\u00e6tti l\u00edka kalla arfinn dj\u00fap, hugsanadj\u00fapi\u00f0.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">En hva\u00f0an kemur r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0? Hvers vegna b\u00fdr \u00ed okkur hugmyndin um r\u00e9ttl\u00e6ti? Er hugmydin uppfinning manna e\u00f0a eil\u00edft og algilt fyrirbrig\u00f0i? V\u00edsar s\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00ed okkur hugmyndina um fullkomi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti til Gu\u00f0s og hins st\u00f3ra samhengis?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Platon h\u00e9lt \u00fev\u00ed fram a\u00f0 kenning hans um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 v\u00e6ri s\u00f6nn enda \u00fe\u00f3tt ekki fyndust r\u00e9ttl\u00e1t r\u00edki \u00ed heiminum. H\u00fan v\u00e6ri s\u00f6nn \u00e1 sama h\u00e1tt og Py\u00feag\u00f3rasarreglan um \u00fer\u00edhyrninginn er s\u00f6nn enda \u00fe\u00f3tt fullkominn \u00fer\u00edhyrningur fyrirfinnist hvergi \u00ed efnisheiminum. \u00c1&nbsp;V\u00edsindavefnum segir: \u00abH\u00fan [kenning Platons] fjalla\u00f0i um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 sem sl\u00edkt, e\u00f0a frummynd r\u00e9ttl\u00e6tisins, einhvers konar eil\u00edfan og \u00f3breytilegan veruleika sem r\u00e9ttl\u00e1t r\u00edki og r\u00e9ttl\u00e1tir einstaklingar l\u00edktu eftir \u00e1 sinn \u00f3fullkomna h\u00e1tt r\u00e9tt eins og strik sem dregin eru \u00ed ryki\u00f0 \u00e1 g\u00f6tunni geta me\u00f0 \u00f3fullkomnum h\u00e6tti l\u00edkt eftir r\u00e9tthyrndum \u00fer\u00edhyrningi.\u00bb (V\u00edsindavefurinn)<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">En \u00e9g get ekki skili\u00f0 vi\u00f0 hugtaki\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e1n \u00feess a\u00f0 fara \u00f6gn \u00ed GT. J\u00e1, hi\u00f0 misskilda GT sem allt of margir hafa ford\u00f3ma gegn. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00dea\u00f0 kom m\u00e9r \u00fe\u00e6gilega \u00e1 \u00f3vart \u00feegar \u00e9g las gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i a\u00f0 kynnast hinni hebresku hugsun um r\u00e9ttl\u00e6ti. L\u00edklega er fegurstu texta um r\u00e9ttl\u00e6ti og miskunn, um empat\u00edskan mannskiling, sem mannkyni\u00f0 \u00e1, a\u00f0 finna \u00fear. \u00cd GT eru r\u00e9ttl\u00e6ti og r\u00e9ttur hugtakapar, einnig r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0ur. R\u00e9ttl\u00e6ti er \u00ed vissum skilningi ekki til nema sem gj\u00f6r\u00f0. Sama hugsun kemur fram \u00ed NT um k\u00e6rleikann. Hann er hvorki tilfinning n\u00e9 bara hugtak heldur \u00e6t\u00ed\u00f0 verkna\u00f0ur, gj\u00f6r\u00f0 \u00ed gar\u00f0 n\u00e1ungans. Hugtaki\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed GT er <\/span><span class=\"s1\"><i>sedeq<\/i><\/span><span class=\"s1\"> sem \u00fe\u00fdtt hefur veri\u00f0 \u00e1 gr\u00edsku me\u00f0 or\u00f0inu <\/span><span class=\"s1\"><i>dikaiosyn\u0113<\/i><\/span><span class=\"s1\">. Hugtaki\u00f0 v\u00edsar ekki til abstrakt hugmyndar um r\u00e9ttl\u00e6ti e\u00f0a dygg\u00f0 heldur v\u00edsar meir til r\u00e9ttrar afst\u00f6\u00f0u til samf\u00e9lagsins og heg\u00f0unar innan \u00feess. R\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 birtist skv. \u00feessu \u00ed verkum manna. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00cd Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmi 72 eru ger\u00f0ar kr\u00f6fur til konungsins um a\u00f0 \u00abhann l\u00e1ti hina \u00fej\u00e1\u00f0u me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0arinnar n\u00e1 r\u00e9tti s\u00ednum og veiti hinum snau\u00f0u hj\u00e1lp\u00bb. (v.4) Empat\u00eda hans gagnvart \u00feeim sem h\u00f6llum f\u00e6ti standa mun lei\u00f0a til \u00feess a\u00f0 n\u00e1tt\u00faran bl\u00f3mstri. \u00abGn\u00f3ttir korns ver\u00f0i \u00ed landinu, bylgist \u00fea\u00f0 \u00e1 fjallatindunum.\u00bb (v.14) H\u00e9r er f\u00e9lagslegt r\u00e9ttl\u00e6ti og \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 n\u00e1tt\u00farunni spyrt saman og \u00ed 85. s\u00e1lmi vegur fri\u00f0ur salt vi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0: \u00abElska og tr\u00fafesti m\u00e6tast, r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0ur kyssast. Tr\u00fafesti sprettur \u00far j\u00f6r\u00f0inni og r\u00e9ttl\u00e6ti horfir ni\u00f0ur af himni.\u00bb (v.11-12). J\u00e1, hugt\u00f6kin eiga \u00ed \u00e1starsambandi. Hugsi\u00f0 ykkur fegur\u00f0 \u00feeirrar hugsunar og sk\u00e1ldlegu framsetningar! \u00cd 146. s\u00e1lmi segir: \u00abDrottinn verndar \u00fatlendinga, hann annast ekkjur og muna\u00f0arlausa en \u00f3gu\u00f0lega l\u00e6tur hann fara villa vegar.\u00bb (v.9) Og a\u00f0 lokum \u00feessar tv\u00e6r tilvitnarnir \u00ed Jesaja sp\u00e1manni \u00e1 8. \u00f6ld f. Kr: \u00abVei \u00feeim sem setja rangl\u00e1t l\u00f6g og skjalfesta ska\u00f0leg \u00e1kv\u00e6\u00f0i til a\u00f0 halda umkomulausum fr\u00e1 d\u00f3mst\u00f3lum og r\u00e6na \u00fe\u00e1 snau\u00f0u me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar r\u00e9tti s\u00ednum, til a\u00f0 f\u00e9fletta ekkjur og r\u00e6na muna\u00f0arlausa.\u00bb (Jes 10.1-2) <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Fyrir n\u00e6r \u00ferj\u00fa\u00fe\u00fasund \u00e1rum voru menn a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 hi\u00f0 sama og n\u00fa, f\u00e9lagslegt r\u00e9ttl\u00e6ti og afst\u00f6\u00f0u til \u00fatlendinga. Hva\u00f0 hefur breyst? A\u00f0eins t\u00e6kni og t\u00f3l. Mannskepnan situr enn vi\u00f0 sinn keip og \u00fearf a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 heyra um hin handanverandi, eil\u00edfu gildi, til a\u00f0 henni au\u00f0nist a\u00f0 ganga hinn r\u00e9tta veg. R\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 er eil\u00edft \u00e1 sama h\u00e1tt og kristnin segir k\u00e6rleikann vera eil\u00edfan, innsta kjarna alls l\u00edfs. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 6. n\u00f3vember 1935, sonur S\u00f3lveigar \u00d3lafsd\u00f3ttur og Hannibals Valdimarssonar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Systkini \u00d3lafs eru Arn\u00f3r, f. 1934, d. 2012, El\u00edn, f. 1936, Gu\u00f0r\u00ed\u00f0ur, f. 1937 og J\u00f3n Baldvin, f. 1939. H\u00e1lfbr\u00e6\u00f0ur \u00d3lafs samfe\u00f0ra voru \u00cdsleifur Weinem, f. 1934, d.2011 og Ingjaldur, f. 1951, d. 2014. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur var mikill Vestfir\u00f0ingur \u00ed s\u00e9r, \u00fe\u00f3tti v\u00e6nt um \u00cdsafj\u00f6r\u00f0 og Dj\u00fapi\u00f0. Vi\u00f0 erum f\u00e6ddir n\u00e1nast \u00e1 s\u00f6mu torfunni og einungis 50 metrar voru \u00e1 milli bernskuheimila okkar, en \u00e9g kynntist honum \u00fe\u00f3 ekki fyrr en fullor\u00f0inn \u00fev\u00ed fj\u00f6lskylda hans flutti fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i fyrir mitt minni. En eldri b\u00f3\u00f0ir minn, Gr\u00e9tar, 5 \u00e1rum yngri en \u00d3lafur, sag\u00f0i \u00feegar \u00e9g flutti honum andl\u00e1tsfregnina: \u00abHann Olli var d\u00e1samlegur drengur.\u00bb M\u00e9r kemur s\u00e1 vitnisbur\u00f0ur ekki \u00e1 \u00f3vart. Horf\u00f0u bara \u00e1 myndirnar \u00ed s\u00e1lmaskr\u00e1nni af hinum lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0a v\u00edkingi, me\u00f0 l\u00fdsandi augu af elsku og s\u00f3lskinsbrosi\u00f0 hl\u00fdtt og einl\u00e6gt. B\u00f6rnin, \u00abp\u00fakarnir\u00bb fyrir Vestan, l\u00e9ku s\u00e9r saman \u00ed b\u00ed\u00f3-r\u00fastunum eftir brunann mikla, \u00e1 milli Hrannarg\u00f6tu \u00fear sem \u00d3lafur bj\u00f3 og S\u00f3lg\u00f6tu, sem var gata okkar br\u00e6\u00f0ra. S\u00f3l og hr\u00f6nn. B\u00ed\u00f3-r\u00fastirnar, fjara og fjall, g\u00f6tur, h\u00fasagar\u00f0ar og bryggja. \u00deetta voru okkar Strawberry Fields og Penny Lane. Hr\u00f6nn er alda e\u00f0a bylgja en \u00ed kenningum er h\u00fan gull sbr. hrannarb\u00e1l og hrannarblik. S\u00f3l og gull, birta og g\u00e6ska, l\u00fdsa \u00d3lafi vel.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Sem l\u00edtill sn\u00e1\u00f0i var \u00d3lafur hj\u00e1 \u00f6mmu sinni a\u00f0 Strandseljum \u00ed \u00d6gurhreppi, en s\u00ed\u00f0an \u00f6ll sumur hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ursystur sinni, Gu\u00f0r\u00fanu og Helga manni hennar \u00ed Una\u00f0sdal \u00e1 Sn\u00e6fjallastr\u00f6nd. \u00dear var b\u00e6\u00f0i fj\u00f6lmennt og g\u00f3\u00f0mennt \u2013 Gu\u00f0r\u00fan og Helgi \u00e1ttu sext\u00e1n b\u00f6rn og muna\u00f0i ekki um a\u00f0 taka nokkur til vi\u00f0b\u00f3tar \u00ed vist \u00e1 sumrin. \u00dearna, \u00ed Una\u00f0sdal, liggja r\u00e6tur \u00d3lafs l\u00edklega d\u00fdpst. \u00abR\u00f6mm er s\u00fa taug\u00bb og allt \u00fea\u00f0. Hann hefur alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 eins og einn af Una\u00f0sdalssystkinunum og afar k\u00e6rt me\u00f0 \u00feeim \u00f6llum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Sem ungur ma\u00f0ur leita\u00f0i \u00d3lafur miki\u00f0 til f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur s\u00edns, Finnboga R\u00fats, sem haf\u00f0i mikil \u00e1hrif \u00e1 sko\u00f0anir hans. \u00deetta voru magna\u00f0ir br\u00e6\u00f0ur, Hannibal me\u00f0 karisma\u00f0 og eldm\u00f3\u00f0inn, og R\u00fatur me\u00f0 hina strateg\u00edsku hugsun og d\u00fdpt. \u00deeir voru kannski eins og M\u00f3se og Aron sem sagan geymir d\u00e6mi um \u00fear sem annar var hugmyndafr\u00e6\u00f0ingurinn og hinn talsma\u00f0urinn. Segja m\u00e1 a\u00f0 hj\u00e1 Finnboga hafi \u00d3lafur fengi\u00f0 sitt p\u00f3lit\u00edska uppeldi, s\u00edna hugmyndafr\u00e6\u00f0i, sem skila\u00f0i s\u00e9r \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00d3lafur vann miki\u00f0 fyrir f\u00f6\u00f0ur sinn \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1labar\u00e1ttu hans \u00e1 \u00feessum \u00e1rum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00e1 Laugarvatni og stunda\u00f0i n\u00e1m vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Delaware \u00ed Bandar\u00edkjunum og vi\u00f0 hagfr\u00e6\u00f0ih\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Prag \u00ed T\u00e9kklandi. Hann starfa\u00f0i hj\u00e1 Loftlei\u00f0um \u00ed New York, var ritstj\u00f3ri Frj\u00e1lsrar \u00fej\u00f3\u00f0ar og var skrifstofustj\u00f3ri AS\u00cd \u00e1 8. \u00e1ratugnum, &#8211; inn \u00e1 milli vann hann eitt \u00e1r a\u00f0 r\u00e6kjuranns\u00f3knum hj\u00e1 Unni Sk\u00falad\u00f3ttur \u00e1 Hafranns\u00f3knastofnun. Um t\u00edu \u00e1ra skei\u00f0 til \u00e1rsins 1987 var \u00d3lafur b\u00f3ndi \u00ed Sel\u00e1rdal og s\u00ed\u00f0an bla\u00f0ama\u00f0ur, rith\u00f6fundur og ritstj\u00f3ri. Eftir a\u00f0 hann kom a\u00f0 vestan t\u00f3k hann aftur virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum og var\u00f0 vara\u00feingma\u00f0ur Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins \u00ed Vestfjar\u00f0akj\u00f6rd\u00e6mi 1995-1999 &#8211; \u00ed h\u00f3pi sterkra andst\u00e6\u00f0inga kv\u00f3takerfisins me\u00f0 Einar Odd \u00ed broddi fylkingar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1rin \u00ed Sel\u00e1rdal voru d\u00fdrm\u00e6t reynsla. Sumun fannst \u00d3lafur vera \u00ed \u00fatleg\u00f0 \u00e1 \u00feeim \u00e1rum, en hann valdi \u00feetta vitandi vits. Hann var ann\u00e1la\u00f0ur talent, bla\u00f0ama\u00f0ur, afar vel l\u00e6s \u00e1 p\u00f3lit\u00edk, g\u00f3\u00f0ur greinandi, hvass m\u00e1lafylgjuma\u00f0ur og ann\u00e1la\u00f0ur penni. Kannski fann hann sig ekki alveg \u00ed \u00fev\u00ed hlutverki \u00e1 m\u00f6linni og sveitin heilla\u00f0i. Var \u00fea\u00f0 kannski afturhvarf til bernskunnar, n\u00e1tt\u00farunnar \u00ed anda Roussau? \u00cd sveitinni var e.t.v. meiri \u00abs\u00fabstans\u00bb, segir sonur hans, fri\u00f0ur og tenging vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna. Hann t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r \u00f3tal hlutverk \u00ed \u00fe\u00e1gu sveitarinnar \u00e1 \u00feessum \u00e1rum, var \u00ed flestum nefndum og r\u00e1\u00f0um \u00ed h\u00e9ra\u00f0inu. Vorin voru mikill annat\u00edmi fyrir b\u00f3nda me\u00f0 400 fj\u00e1r, refab\u00fa og gr\u00e1slepputrillu. En svo lauk \u00fev\u00ed \u00e6vint\u00fdri. Trilluna t\u00f3k \u00e1 haf \u00fat \u00ed \u00f3ve\u00f0ri og refirnir borgu\u00f0u aldrei svo miki\u00f0 sem h\u00fasaleigu. Einangrun oft alger svo vikum skipti \u00e1 vetrum og \u00d3lafur l\u00fdsti veginum fyrir skri\u00f0urnar heim \u00ed Sel\u00e1rdal \u00feannig \u00ed br\u00e9fi til Vegager\u00f0arinnar, a\u00f0 ef skrattinn k\u00e6mi a\u00f0 vegarspottanum og s\u00e6i ford\u00e6mda s\u00e1l vi\u00f0 hinn endann, myndi hann ekki nenna a\u00f0 s\u00e6kja hana. \u00de\u00e1 loks ger\u00f0u \u00feeir vi\u00f0 veginn! J\u00e1, me\u00f0hj\u00e1lparinn \u00ed Sel\u00e1rdal kunni a\u00f0 beita fyrir sig tr\u00faarlegu myndm\u00e1li!<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00dea\u00f0 kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00d3lafur pakka\u00f0i saman og flutti \u00ed b\u00e6inn 1987 \u2013 og \u00fea\u00f0 var eimitt \u00fe\u00e1 sem hann kynntist konu sinni Gu\u00f0r\u00fanu P\u00e9tursd\u00f3ttur l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0ingi. \u00deau t\u00f3ku b\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1tt \u00ed bar\u00e1ttunni gegn byggingu r\u00e1\u00f0h\u00fassins \u00ed Tj\u00f6rninni, \u00fea\u00f0 var fyrsta sameiginlega bar\u00e1ttum\u00e1li\u00f0 af m\u00f6rgum \u00ed \u00feeirra fars\u00e6lu samb\u00fa\u00f0. Samband \u00feeirra hefur einkennst af \u00e1st og jafnr\u00e6\u00f0i. \u00dear m\u00e6ttust tveir sterkir einstaklingar sem nutu hverrar stundar saman og l\u00e6r\u00f0u st\u00f6\u00f0ugt hvor af \u00f6\u00f0rum.&nbsp;<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur haf\u00f0i gaman af kraftinum \u00ed \u00feessari dr\u00edfandi konu, me\u00f0 bl\u00f3\u00f0 Engeyjar\u00e6ttar og Thorsara \u00ed \u00e6\u00f0um. Hann fagna\u00f0i hverri hugmynd um n\u00fd \u00e6vint\u00fdri, hvort sem \u00feau voru frambo\u00f0 til forseta, ranns\u00f3knarleyfi hinum megin \u00e1 hnettinum, e\u00f0a lautarfer\u00f0 \u00fat \u00e1 Gr\u00f3ttu \u00ed 14 stiga frosti. \u00c1hugam\u00e1lin voru fj\u00f6lbreytt, skemmtilegt f\u00f3lk, fer\u00f0al\u00f6g og saga en fyrst og s\u00ed\u00f0ast samf\u00e9lagsm\u00e1l. \u00d3lafur var vel lesinn og st\u00e1lminnugur \u2013 og \u00feess vegna \u00f3hemju fr\u00f3\u00f0ur, b\u00e6\u00f0i um l\u00ed\u00f0andi stund og li\u00f0na, innanlands og utan. Afbur\u00f0a\u00feekking hans ger\u00f0i a\u00f0 verkum a\u00f0 hann gat sett hlutina \u00ed samhengi, og \u00fatsk\u00fdrt fl\u00f3knustu m\u00e1l \u00e1 einfaldan h\u00e1tt. \u00dea\u00f0 var ekki til \u00ed honum dr\u00fdldni e\u00f0a sj\u00e1lfs\u00e1n\u00e6gja, heldur sag\u00f0i hann fr\u00e1 af h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 og yfirvegun \u00e1n \u00feess a\u00f0 vi\u00f0m\u00e6landi fengi tilfinningu fyrir eigin f\u00e1fr\u00e6\u00f0i. \u00d3lafur haf\u00f0i r\u00edka samkennd me\u00f0 f\u00f3lki, var empat\u00edskur og g\u00f3\u00f0vilja\u00f0ur, en miskunnarlaus gagnvart ofl\u00e1tungum og valdn\u00ed\u00f0ingum, eins og greinar hans vitna svo vel um.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur l\u00e9t sig \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1l miklu var\u00f0a alla t\u00ed\u00f0. Hann var ann\u00e1la\u00f0ur penni, rita\u00f0i \u00f3tal greinar og h\u00e9lt \u00fatvarpserindi um innlend og erlend m\u00e1lefni. Hann t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0ger\u00f0um, svo sem m\u00f3tm\u00e6lum \u00dej\u00f3\u00f0arhreyfingarinnar gegn fj\u00f6lmi\u00f0lal\u00f6gunum 2004, og gegn stu\u00f0ningi \u00cdslands vi\u00f0 innr\u00e1s Bandar\u00edkjahers \u00ed \u00cdrak, m.a. me\u00f0 birtingu heils\u00ed\u00f0uaugl\u00fdsingar \u00ed New York Times \u00ed \u00e1rsbyrjun 2005: \u00abEkki \u00ed okkar nafni\u00bb. Vi\u00f0 kynntumst \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir s\u00ed\u00f0astnefndu m\u00e1lunum tveim. \u00dea\u00f0 voru forr\u00e9ttindi a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 kynnast \u00feessari vestfirsku kempu \u00ed mi\u00f0ri bar\u00e1ttunni fyrir <\/span><span class=\"s1\"><b>r\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0i<\/b><\/span><span class=\"s1\">, \u00feessu mikilv\u00e6ga hugtakapari sem sprottin eru af elskunni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur var br\u00e1\u00f0fyndinn og sag\u00f0i vel fr\u00e1, l\u00edfsgla\u00f0ur og ge\u00f0g\u00f3\u00f0ur, hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar \u00e1 mannam\u00f3tum og h\u00f6f\u00f0ingi heim a\u00f0 s\u00e6kja. \u00dea\u00f0 endurspeglast vel \u00ed laginu sem \u00f6ll b\u00f6rnin hans eru samm\u00e1la um a\u00f0 hafi veri\u00f0 eina danslagi\u00f0 sem hann kunni: Come on-a my house sem Rosemary Clooney s\u00f6ng \u00ed Amer\u00edku fyrir 60 \u00e1rum. \u00deetta lag dug\u00f0i \u00d3lafi \u00e6vina \u00fat \u2013 enda ekki l\u00edtil sveifla!<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\"> <\/span><span class=\"s1\"><i>Andrea Gylfas\u00f3ttir syngur<\/i><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">J\u00e1, oft var banastu\u00f0 \u00fear sem \u00d3lafur var.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hann var g\u00e6fuma\u00f0ur eins og b\u00f6rnin hans fimm bera vitni um. D\u00e6tur \u00feeirra Gu\u00f0r\u00fanar og \u00d3lafs eru \u00c1sd\u00eds og Marta, en b\u00f6rn \u00d3lafs af fyrra hj\u00f3nabandi me\u00f0 \u00d6nnu G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur eru Hugi, S\u00f3lveig og Krist\u00edn. \u00d6ll eiga \u00feau hl\u00fdjar minningar um f\u00f6\u00f0ur sinn, v\u00e6ntum\u00feykjan er mikil og \u00fea\u00f0 er stutt \u00ed hl\u00e1turinn \u00feegar t\u00edmarnir me\u00f0 pabba eru rifja\u00f0ir upp. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">B\u00f6rn l\u00f6\u00f0u\u00f0ust alltaf a\u00f0 \u00d3lafi \u00fev\u00ed hann kom fram vi\u00f0 \u00feau eins og jafningja og \u00fea\u00f0 fylgdi honum \u00f6ryggiskennd. \u00ab\u00d3lafur er svo g\u00f3\u00f0ur FYRIR b\u00f6rn\u00bb, sag\u00f0i l\u00edtil fr\u00e6nka og hj\u00fafra\u00f0i sig upp vi\u00f0 hl\u00fdja \u00f6xl, eins og svo margir \u00e1 undan henni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Eldri b\u00f6rnin minnast sumranna \u00ed Sel\u00e1rdal, \u00fdmist me\u00f0 st\u00f3rfj\u00f6lskyldunni, Hannibal og S\u00f3lveigu og fj\u00f6lda afkomenda \u00feeirra og tengdabarna \u2013 e\u00f0a me\u00f0 pabba s\u00ednum einum. \u00dearna ur\u00f0u \u00feau afar n\u00e1in honum, \u00fev\u00ed eftir skilna\u00f0inn var\u00f0 hann enginn helgarpabbi heldur voru \u00feau hj\u00e1 honum allt sumari\u00f0 &#8211; 24\/7, twenty-four-seven, eins og n\u00fa er sagt. \u00deau gengu \u00ed \u00f6ll verk me\u00f0 honum, innanh\u00fass og utan, \u00e1 landi og sj\u00f3. En \u00feess \u00e1 milli lag\u00f0i hann upp\u00far \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00feau a\u00f0 lesa og lesa &#8211; lesa s\u00f6gu, s\u00f6gu Arnarfjar\u00f0ar og Sel\u00e1rdals, \u00feekkja s\u00f6gu kirkjunnar og listamannsins Sam\u00faels. \u00deau l\u00e1su allt sem h\u00f6nd \u00e1 festi og \u00feegar allt um \u00feraut l\u00fasl\u00e1su \u00feau snj\u00e1\u00f0ar b\u00e6kur Lestrarf\u00e9lagsins sem stofna\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed dalnum \u00ed byrjun s\u00ed\u00f0ustu aldar. T\u00edminn \u00ed Sel\u00e1rdal m\u00f3ta\u00f0i systkinin fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0 og n\u00fa s\u00e6kja \u00feau \u00feanga\u00f0 aftur, \u00fev\u00ed \u00fear eru r\u00e6tur \u00feeirra. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Me\u00f0al verkefna \u00d3lafs \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum var a\u00f0 stofna f\u00e9lag til a\u00f0 bjarga listaverkum Sam\u00faels J\u00f3nssonar \u2013 listamannsins me\u00f0 barnshjarta\u00f0, sem n\u00e6rri l\u00e1 a\u00f0 yr\u00f0u ve\u00f0ri og vindum a\u00f0 br\u00e1\u00f0. \u00dea\u00f0 starf hefur bori\u00f0 til\u00e6tla\u00f0an \u00e1rangur og er sannarlega \u00feakkarvert. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur h\u00e9lt g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0 n\u00e1granna s\u00edna og spann sterkan \u00fer\u00e1\u00f0 milli s\u00edn og fr\u00e6ndgar\u00f0sins alls. Hann var forma\u00f0ur Dj\u00fapmannaf\u00e9lagsins um \u00e1rabil og f\u00f3r vestur \u00e1 fir\u00f0i \u00e1 hverju \u00e1ri. \u00deannig l\u00e6r\u00f0u yngri d\u00e6turnar l\u00edka a\u00f0 meta tengslin vestur, sem me\u00f0al annars leiddu til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00c1sd\u00eds \u00d3lafsd\u00f3ttir og \u00de\u00f3ra Arn\u00f3rsd\u00f3ttir ger\u00f0u r\u00f6\u00f0 fj\u00f6gurra sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1tta um s\u00ed\u00f0ustu \u00e1b\u00faendur \u00ed Dj\u00fapinu. \u00d3lafi l\u00edka\u00f0i \u00fea\u00f0 framtak vel og fylgdist me\u00f0 hverju skrefi, lag\u00f0i til g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 og lei\u00f0beindi, enda \u00feekkti hann s\u00f6gu Dj\u00fapsins eins og l\u00f3fann \u00e1 s\u00e9r. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">D\u00e6turnar minnast \u00feess hva\u00f0 hann var natinn lei\u00f0beinandi. Hann hj\u00e1lpa\u00f0i \u00feeim vi\u00f0 heiman\u00e1mi\u00f0 og t\u00f3k \u00fea\u00f0 engum vettlingat\u00f6kum. A\u00f0 hl\u00fd\u00f0a yfir fyrir s\u00f6gupr\u00f3f \u00ed 9-\u00e1ra bekk var full vinna \u00ed tvo daga \u2013 enda \u00feurfti a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta margar villurnar \u00ed kennslub\u00f3kinni \u00ed lei\u00f0inni \u2013 og kennararnir l\u00e6r\u00f0u flj\u00f3tt a\u00f0 \u00e1 bak vi\u00f0 undarleg og \u00edtarleg sv\u00f6r \u00feeirra systra var traust heimild sem \u00f3\u00fearfi var a\u00f0 v\u00e9fengja.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur var b\u00f6rnum s\u00ednum \u00f3metanleg fyrirmynd \u2013 ekki a\u00f0eins \u00feekking hans, hreinskiptni og hl\u00fdja, &#8211; heldur afsta\u00f0a hans til manna og m\u00e1lefna, \u00f3bilandi r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og hugrekki. Gamla slagor\u00f0i\u00f0 \u201eGj\u00f6r r\u00e9tt \u2013 \u00feol ei \u00f3r\u00e9tt\u201c var honum \u00ed bl\u00f3\u00f0 bori\u00f0. Hann var aldrei hr\u00e6ddur um eigin hag &#8211; \u00fea\u00f0 var ekki h\u00e6gt a\u00f0 gera honum sj\u00e1lfum neitt, \u00fev\u00ed hann langa\u00f0i hvorki \u00ed v\u00f6ld, st\u00f6\u00f0ur n\u00e9 peninga \u2013 \u00fea\u00f0 sem svo oft er nota\u00f0 til a\u00f0 k\u00faga menn. Hann var frj\u00e1ls og \u00feor\u00f0i a\u00f0 fara gegn spillingu hvar sem var og tala gegn sko\u00f0unum og hagsmunum hvers sem var. Hann r\u00e9\u00f0ist ekki \u00e1 manninn, heldur m\u00e1lefni\u00f0 \u2013 me\u00f0 pennan og r\u00f6ddina hrj\u00fafu a\u00f0 vopni. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur horf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 til al\u00fej\u00f3\u00f0asamf\u00e9lagsins \u00ed vi\u00f0mi\u00f0un sinni og einangra\u00f0i sig ekki vi\u00f0 \u00cdsland. Hann var \u00f3hemju vel a\u00f0 s\u00e9r um al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00e1l, var \u00e1skrifandi a\u00f0 erlendum dagbl\u00f6\u00f0um og t\u00edmaritum og las jafnt gamlar b\u00e6kur og n\u00fdjar. Allar f\u00e9llu uppl\u00fdsingarnar \u00e1 sinn sta\u00f0 \u00e1 \u00feessum magna\u00f0a har\u00f0a diski me\u00f0 \u00f3endanlegt vinnsluminni. S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin var\u00f0 \u00d3lafur s\u00edfellt uppteknari af umhverfism\u00e1lum og \u00fev\u00ed hversu n\u00e6rri menn hafa gengi\u00f0 n\u00e1tt\u00farunni \u2013 og ekkert l\u00e1t \u00e1. \u00cd samt\u00f6lum vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn s\u00ed\u00f0ustu vikurnar, sag\u00f0ist hann hafa mestar \u00e1hyggjur af hvers konar samf\u00e9lagi hans kynsl\u00f3\u00f0 skila\u00f0i til \u00feeirrar n\u00e6stu. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00dea\u00f0 er vi\u00f0 h\u00e6fi, a\u00f0 eitt \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta sem \u00d3lafur horf\u00f0i \u00e1 \u00ed sj\u00f3nvarpi var hin magna\u00f0a r\u00e6\u00f0a sem Obama Bandar\u00edkjaforseti h\u00e9lt fyrir sk\u00f6mmu yfir moldum hins myrta s\u00f3knarprestst \u00ed Charleston, \u00ed Su\u00f0ur Kar\u00f3l\u00ednu. \u00d3lafur naut \u00feess a\u00f0 horfa \u00e1 hann og kommentera\u00f0i a\u00f0 n\u00fa loks v\u00e6ri Obama a\u00f0 n\u00e1 vopnum s\u00ednum. \u00deessi innbl\u00e1sna r\u00e6\u00f0a um mannr\u00e9ttindi og b\u00e6ttan heim var gott veganesti okkar g\u00f3\u00f0a vini. (<\/span><span class=\"s1\"><span class=\"s2\"><a href=\"http:\/\/www.wsj.com\/articles\/obama-delivers-eulogy-at-clementa-pinckney-funeral-in-charleston-1435347261\">http:\/\/www.wsj.com\/articles\/obama-delivers-eulogy-at-clementa-pinckney-funeral-in-charleston-1435347261<\/a><\/span><\/span><span class=\"s1\">)<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00d3lafur l\u00e9st sk\u00f6mmu fyrir mi\u00f0n\u00e6tti 30. j\u00fan\u00ed, heima hj\u00e1 s\u00e9r, me\u00f0 h\u00f3pinn sinn \u00ed kringum sig, umvafinn \u00e1st og \u00feakkl\u00e6ti \u00feeirra sem unnu honum mest.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hugsj\u00f3nama\u00f0urinn, me\u00f0 sitt \u00f3tr\u00falega minni og \u00feekkingu, var\u00f0 a\u00f0 j\u00e1ta sig sigra\u00f0an af krabbameininu. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Og vi\u00f0 sitjum eftir sorgm\u00e6dd yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 missa sl\u00edkan mann en um lei\u00f0 erum vi\u00f0 \u00feakkl\u00e1t fyrir \u00fea\u00f0 sem hann st\u00f3\u00f0 fyrir og ger\u00f0i \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">N\u00fa lei\u00f0ir hann ekki lengur b\u00f6rnin e\u00f0a barnab\u00f6rnin me\u00f0 sinni st\u00f3ru og \u00f6ruggu h\u00f6nd sem umvaf\u00f0i l\u00edtinn l\u00f3fa.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hver lei\u00f0ir \u00feau n\u00fa? Er til h\u00f6nd sem lei\u00f0ir okkur \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem \u00feessum og \u00f6\u00f0rum enn s\u00e1rari? Kynsl\u00f3\u00f0irnar hafa \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e1r \u00e1tt traust til sl\u00edkrar, andlegrar handar. Jesaja sp\u00e1ma\u00f0ur, Jesaja II, sag\u00f0i \u00e1 6. \u00f6ld. f. Krist:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00abEn S\u00edon segir: \u201eDrottinn hefur yfirgefi\u00f0 mig,<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Gu\u00f0 hefur gleymt m\u00e9r.\u201c<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Hvort f\u00e6r kona gleymt brj\u00f3stbarni s\u00ednu<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">a\u00f0 h\u00fan miskunni eigi l\u00edfsafkv\u00e6mi s\u00ednu?<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Og \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00e6r g\u00e6tu gleymt<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00fe\u00e1 gleymi \u00e9g \u00fe\u00e9r samt ekki.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c9g hef rist \u00feig \u00ed l\u00f3fa m\u00e9r,<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">m\u00fara \u00fe\u00edna hef \u00e9g s\u00edfellt fyrir augum.\u00bb (Jes 49.14-16)<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00ab\u00c9g hef rist \u00feig \u00ed l\u00f3fa m\u00e9r\u00bb.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Allt mannkyn, f\u00f3lk af \u00f6llum kyn\u00fe\u00e1ttum og tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um tilheyrir \u00feessari h\u00f6nd. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Og svo gripi\u00f0 s\u00e9 til enn annars myndm\u00e1ls \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 sem fiskurinn \u00ed hafinu og hafi\u00f0 er Gu\u00f0 og hafi\u00f0 streymir um t\u00e1lknin og fiskurinn syndir \u00ed \u00feessu hafi. \u00dear \u00e1 hann heima &#8211; \u00ed dj\u00fapinu.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">H\u00e9r er \u00e9g og h\u00e9r ert \u00fe\u00fa. F\u00f3lk af einu mannkyni \u00e1 einni j\u00f6r\u00f0. Vi\u00f0 erum af \u00feessari j\u00f6r\u00f0. Vi\u00f0 erum n\u00e1tt\u00faran. H\u00fan er ekki \u00fearna \u00fati. Vi\u00f0 erum mold og \u00abhold er mold, sama hverju \u00fea\u00f0 kl\u00e6\u00f0ist\u00bb sag\u00f0i s\u00e9ra Hallgr\u00edmur.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 lifum og hr\u00e6rumst \u00ed l\u00edfr\u00edki og \u00ed hinu st\u00f3ra samhengi eins og P\u00e1ll sag\u00f0i vi\u00f0 spekingana \u00ed A\u00feenu for\u00f0um og vitna\u00f0i um lei\u00f0 \u00ed \u00feeirra eigin b\u00f3kmenntaarf: \u00ab\u00cd honum lifum, hr\u00e6rumst og erum vi\u00f0. Svo hafa og sum sk\u00e1ld ykkar sagt: \u00dev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum l\u00edka hans \u00e6ttar.\u00bb<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00e1 uppruna sinn \u00ed hinu st\u00f3ra samhengi &#8211; \u00ed dj\u00fapinu. \u00dea\u00f0an kemur allt hi\u00f0 besta sem ma\u00f0urinn getur hugsa\u00f0 s\u00e9r og \u00feessu sama dj\u00fapi felum vi\u00f0 n\u00fa l\u00e1tinn \u00f6\u00f0ling og bar\u00e1ttujaxl.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00d3lafs Kritj\u00e1ns Hannibalssonar og Gu\u00f0 blessi eiginkonu hans, b\u00f6rn, afkomendur, fj\u00f6lskyldu alla, fr\u00e6ndgar\u00f0 og vini.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Amen.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Tilkynningar:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">L\u00edkfylgd<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Erfi<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e6\u00f0an og vefurinn<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Kve\u00f0ja:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00ab\u00cdsfir\u00f0ingaf\u00e9lagi\u00f0 vottar a\u00f0standendum \u00d3lafs Hannibalssonar, fyrrum formanns f\u00e9lagsins, sam\u00fa\u00f0 s\u00edna me\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir vel unnin st\u00f6rf \u00ed \u00fe\u00e1gu f\u00e9lagsins.\u00bb<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Postulleg kve\u00f0ja:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug af voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\">&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p class=\"p4\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/sc3a1lmaskrc3a1-c3b3lafur-hannibalsson-lok.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 &#8211; \u00d3lafur Hannibalsson &#8211; LOK<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00d3lafur Hannibalsson 1935-2015 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk f\u00f6studaginn 10. j\u00fal\u00ed 2015 kl. 13 Ritningarlestrar: Amos 6.12 og 8.4-8 I Kor 1.18-25&nbsp; Matt 5.6 R\u00e6\u00f0una er unnt a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er birt ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1598","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1598","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1598"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1598\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1598"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1598"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1598"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}