{"id":1512,"date":"2014-10-19T13:51:32","date_gmt":"2014-10-19T13:51:32","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1512"},"modified":"2014-10-19T13:51:32","modified_gmt":"2014-10-19T13:51:32","slug":"heyrdu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1512","title":{"rendered":"Heyr\u00f0u!"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/shema-israel.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1516\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/shema-israel.jpg\" alt=\"Shema Israel\" width=\"213\" height=\"236\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><b>Heyr\u00f0u!<\/b><\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun vi\u00f0 messu \u00ed Neskirkju sunnudaginn 19. okt. 2014 &#8211; 18. sd. e. trinitatis<\/p>\n<p>Kve\u00f0jumessa fyrir 6 m\u00e1na\u00f0a afleysingu \u00ed Noregi<\/p>\n<p>Dagur heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar<\/p>\n<p>Textar: <a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/18-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/\">http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/18-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/<\/a><\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig <strong>lesi\u00f0<\/strong> hana.<\/p>\n<p>Myndir voru fengnar a\u00f0 l\u00e1ni af vefnum og er h\u00f6fundum f\u00e6r\u00f0ar \u00feakkir fyrir.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1512-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/trin-18-2014.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/trin-18-2014.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/trin-18-2014.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>Heyr\u00f0u!\u00a0<\/strong><\/p>\n<p>\u00deannig \u00e1varpar sumt f\u00f3lk h\u00f3pa n\u00fa til dags og segor: Heyr\u00f0u!<\/p>\n<p>Notkun \u00feessa or\u00f0s og fleiri or\u00f0atilt\u00e6kja var r\u00e6ddur \u00ed \u00fatvarpinu \u00e1 d\u00f6gunum og spjalla\u00f0 var vi\u00f0 m\u00e1lfarsr\u00e1\u00f0unaut. Tungan breytist og \u00fer\u00f3ast en or\u00f0i\u00f0 <i>heyr\u00f0u<\/i> skilst enn \u00fe\u00f3tt nota\u00f0 s\u00e9 \u00ed rangri t\u00f6lu og \u00ed einkennilegu samhengi.<\/p>\n<p>\u00cd gu\u00f0spjalli dagsins er einn \u00feekktasti texti \u00far GT, or\u00f0 sem Jes\u00fas f\u00f3r me\u00f0 og \u00ed samtalinu vi\u00f0 fr\u00e6\u00f0imanninn og hefst \u00e1 or\u00f0inu: <i>Heyr<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1514\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/shema.jpg?w=300\" alt=\"SHEMA\" width=\"300\" height=\"61\" \/>!<\/i>\u00a0Textinn er \u00far helgiritum Gy\u00f0inga og kalla\u00f0ur\u00a0<i>shema <\/i>eftir upphafsor\u00f0inu: <i>Sh\u2019ma Yis\u2019ra\u2019eil Adonai Eloheinu Adonai echad<\/i> &#8211; \u201eHeyr, \u00cdsrael! Drottinn, Gu\u00f0 vor, hann einn er Drottinn.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta er grundvallarj\u00e1tning Gy\u00f0inga, kristinna manna og n\u00faslima &#8211; Gu\u00f0 er einn og hann \u201eer yfir \u00f6llum, me\u00f0 \u00f6llum og \u00ed \u00f6llum.\u201c (Ef 4.6)<\/p>\n<p>Textinn sem Jes\u00fas f\u00f3r me\u00f0 er skr\u00e1\u00f0ur \u00ed 5. M\u00f3seb\u00f3k 6. kafla og hann er einn algengasti texti alls GT-isins. Hann er s\u00f6mu \u00e6ttar og inngangurinn a\u00f0 Bo\u00f0or\u00f0unum sem vi\u00f0 heyr\u00f0um \u00e1\u00f0an: \u201e\u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, sem leiddi \u00feig \u00fat af Egyptalandi, \u00fat \u00far \u00fer\u00e6lah\u00fasinu.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa skalt ekki hafa a\u00f0ra gu\u00f0i en mig.\u201c<\/p>\n<p>Umor\u00f0a\u00f0 g\u00e6ti \u00feetta hlj\u00f3\u00f0a\u00f0 svona:<\/p>\n<p>\u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, sem bjarga\u00f0i \u00fe\u00e9r og \u00feess vegna \u00e6ttir \u00fe\u00fa ekki a\u00f0 elta a\u00f0ra Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 kallar til eftirfyldar vegna g\u00f3\u00f0ger\u00f0a sinna og miskunnarverka. Brottf\u00f6rin \u00far Egyptalandi marka\u00f0i mikil skil \u00ed s\u00f6gu Gy\u00f0inga. \u00deeir yfirg\u00e1fu erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, f\u00f3ru \u00ed burt, t\u00f3ku sig upp og gengu \u00e1 vit drauma sinna og vonar um betra l\u00edf og betri heim. F\u00f6rin heitir \u00e1 fr\u00e6\u00f0im\u00e1li Ex\u00f3dus &#8211; \u00fatganga e\u00f0a\u00a0 brottf\u00f6r og af sama stofni eru or\u00f0in \u00e1 \u00f6ryggisskiltum h\u00e9r og v\u00ed\u00f0ar \u00fear sem segir: Exit e\u00f0a \u00fatgangur.<\/p>\n<p>Margir eru \u00ed erfi\u00f0um a\u00f0st\u00e6\u00f0um og fullyr\u00f0a m\u00e1 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in okkar s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00ed heild sinni. Vi\u00f0 erum f\u00f6st \u00ed vi\u00f0jum vi\u00f0skiptahafta. Efnahagur okkar er b\u00e1gur og ekki s\u00e9r enn fyrir endann \u00e1 \u00feeim vanda. Vi\u00f0 yfirgefum ekki landi\u00f0 sem heil \u00fej\u00f3\u00f0 en \u00feeim fj\u00f6lgar sem leita fyrir s\u00e9r ytra me\u00f0an \u00e1standi\u00f0 er eins og raun ber vitni. Vi\u00f0 erum l\u00edka f\u00f6st \u00ed fj\u00f6trum umr\u00e6\u00f0uhef\u00f0ar og stj\u00f3rnunarh\u00e1tta sem skapast hafa \u00ed f\u00e1mennu samf\u00e9lagi fr\u00e6ndsemi og kunningsskapar, ey\u00fej\u00f3\u00f0 fjarri fyrirmyndum sem \u00e6ttu a\u00f0 geta or\u00f0i\u00f0 okkur til g\u00f3\u00f0s. Einangrunarhyggja er ekki g\u00f3\u00f0. Vi\u00f0 b\u00faum \u00ed samf\u00e9lagi \u00fej\u00f3\u00f0anna og heimurinn er a\u00f0 \u00fer\u00f3ast \u00ed eina heild, eitt alheims\u00feorp. Hinga\u00f0 vilja margir flytja sem betur fer og vi\u00f0 h\u00f6fum leyfi til a\u00f0 f\u00e6ra okkur um set og leita hamingjunnar og efla hana hvar \u00ed heimi sem er. Vi\u00f0 erum f\u00f3lk \u00e1 fer\u00f0.<\/p>\n<p>Bo\u00f0or\u00f0in er sett fram af hinum frelsandi Gu\u00f0i sem vill lei\u00f0a s\u00edna \u00fej\u00f3\u00f0. Bo\u00f0or\u00f0in eru enn \u00ed fullu gildi sem sl\u00edk enda \u00fer\u00edfst ekkert \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag \u00e1n bo\u00f0or\u00f0anna. \u00cd hverjum leik er \u00fe\u00f6rf fyrir leikreglur eins og vi\u00f0 \u00feekkjum \u00far heimi \u00ed\u00fer\u00f3ttanna. Allt ver\u00f0ur a\u00f0 l\u00fata formi og skipulagi, l\u00f6gum og reglum. En \u00feau sem vakta regluverki\u00f0, l\u00f6greglan og d\u00f3mst\u00f3larnir, mega \u00fe\u00f3 g\u00e6ta s\u00edn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 misbeita ekki valdi s\u00ednu og ganga gegn f\u00f3lki sem leitar r\u00e9ttl\u00e6tisins me\u00f0 \u00fev\u00ed t.d. a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la illa \u00edgrundu\u00f0um framkv\u00e6mdum e\u00f0a vafas\u00f6mu framfer\u00f0i stj\u00f3rnvalda \u00e1 einum t\u00edma e\u00f0a \u00f6\u00f0rum. L\u00f6gm\u00e1li\u00f0 \u00ed lj\u00f3si fagna\u00f0arerindisins hlj\u00f3\u00f0ar svo: \u201eEn \u00e1v\u00f6xtur andans er: k\u00e6rleiki, gle\u00f0i, fri\u00f0ur, langlyndi, g\u00e6ska, g\u00f3\u00f0vild, tr\u00famennska, h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 og sj\u00e1lfsagi. Gegn sl\u00edku er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 ekki.\u201c (Gal 5.22)<\/p>\n<p>Til forna \u00ed samf\u00e9lagi Gy\u00f0inga gekk l\u00f6gm\u00e1lshyggjan allt of langt. Fr\u00e6\u00f0imenn s\u00e1tu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 daga og n\u00e6tur a\u00f0 t\u00falka l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og finnar reglur framhj\u00e1 bo\u00f0um og b\u00f6nnum e\u00f0a her\u00f0a svo \u00e1 skr\u00fafunum a\u00f0 f\u00f3lk var or\u00f0i\u00f0 fj\u00f6tra\u00f0 \u00ed l\u00f6gm\u00e1li og fl\u00f3knu regluverki. Inn \u00ed \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur tala\u00f0i Jes\u00fas og hann henti \u00e1 lofti \u00e6vafornan texta \u00far M\u00f3seb\u00f3kunum, sem vi\u00f0m\u00e6landi hans \u00feekkti, til a\u00f0 minna \u00e1 gildi elskunnar \u00ed \u00f6llu l\u00edfi. \u00deessi texti setur fram tilgang mannsins \u00ed l\u00edfinu: A\u00f0 elska Gu\u00f0, n\u00e1ungann og sj\u00e1lfan sig af \u00f6llum l\u00edfs og s\u00e1lar kr\u00f6ftum.<\/p>\n<p>\u00deetta er einfalt &#8211; svooo eiiiiinfaaalt!<\/p>\n<p>En um lei\u00f0 svo \u00f3\u00f3\u00f3tr\u00fa\u00falega fl\u00f3\u00f3\u00f3ki\u00f0!<\/p>\n<p>Sk\u00f6punarsagan \u00ed Bibl\u00edunna sem er merkileg t\u00e1knsaga, upphaf bo\u00f0or\u00f0anna einnig og svo \u00feessi merki texti sem hefst \u00e1 hebreska or\u00f0inu <i>Shema<\/i> &#8211; <i>Heyr! <\/i>\u00cd \u00feeim er sta\u00f0h\u00e6ft a\u00f0 Gu\u00f0 er einn og a\u00f0 grundv\u00f6llur heimsins er k\u00e6rleikur, innsta e\u00f0li alls er \u00e1st Gu\u00f0s og elska.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feeirri tr\u00fa hv\u00edlir \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag okkar. \u00deessi tr\u00fa er undirsta\u00f0a alls hins g\u00f3\u00f0a sem h\u00e9r hefur veri\u00f0 gert um aldir. Afsta\u00f0an til n\u00e1ungans hv\u00edlir \u00e1 \u00feessum grunni, sk\u00f3lakerfi\u00f0, heilbrig\u00f0iskerfi\u00f0, allt. Vandam\u00e1lin ver\u00f0a hins vegar \u00feegar viki\u00f0 er fr\u00e1 \u00feessum grunni og menn taka a\u00f0 byggja verk s\u00edn \u00e1 sandi.<\/p>\n<p>Biskup \u00cdslands hefur be\u00f0i\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0i landsins a\u00f0 minnast dags heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar \u00ed dag. \u00cd br\u00e9fi s\u00ednu til presta minnir biskup \u00e1 erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar og mikilv\u00e6gi hennar. \u00dear segir me\u00f0al annars:<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">\u201eMarkmi\u00f0 \u00feessa sunnudags er a\u00f0 lyfta upp heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunni til a\u00f0 sty\u00f0ja, styrkja og vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed umfangsmikla starfi sem unni\u00f0 er \u00e1 vettvangi hennar. [. . . ] Heilbrig\u00f0isstarfsf\u00f3lk ber mikla \u00e1byrg\u00f0, er undir \u00e1lagi \u00ed s\u00ednu starfi og stendur oft frammi fyrir fl\u00f3knum \u00farlausnarefnum sem krefjast s\u00e9rh\u00e6f\u00f0rar \u00feekkingar. \u00c1 degi heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar kemur kristin kirkja fram \u00ed fyrrib\u00e6n og vill me\u00f0 \u00fev\u00ed hvetja og sty\u00f0ja vi\u00f0 heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustuna \u00ed landinu. N\u00e1lgun Jes\u00fa er \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 horfum til &#8211; \u00fear sem hann \u00ed allri sinni framg\u00f6ngu m\u00e6tti manneskjunni og hennar \u00fe\u00f6rfum \u00ed heild sinni. S\u00fa umhyggja sem hann s\u00fdndi er hvatinn a\u00f0 \u00feeirri umhyggju sem okkur ber a\u00f0 s\u00fdna og \u00e1 a\u00f0 einkenna allt samf\u00e9lag okkar og heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nstu.\u201c Sj\u00e1 br\u00e9fi\u00f0 allt ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p>\u00a0Heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustan vinnur n\u00fa vi\u00f0 erfi\u00f0 skilyr\u00f0i og skert rekstrarf\u00e9. Margar stofnanir \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins sem skipta okkur gr\u00ed\u00f0arlega miklu m\u00e1li berjast n\u00fa \u00ed b\u00f6kkum og ef \u00fe\u00e6r li\u00f0ast \u00ed sundur ver\u00f0ur \u00feess langt a\u00f0 b\u00ed\u00f0a a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem brotna\u00f0 hefur ver\u00f0i aftur heilt. Frogangsr\u00f6\u00f0un stj\u00f3rnvalda er umdeild. Vissulega er \u00feeim vandi \u00e1 h\u00f6ndum en b\u00e6n okkar er s\u00fa a\u00f0 hjarta\u00f0 og k\u00e6rleikurinn f\u00e1i a\u00f0 r\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum k\u00f6llu\u00f0 til a\u00f0 vaka yfir velfer\u00f0 hvers annars \u00ed \u00feessu heimi, sama hvar vi\u00f0 b\u00faum e\u00f0a st\u00f6rfum. Elskan til Gu\u00f0 og n\u00e1ungans er allsta\u00f0ar \u00ed gildi og h\u00fan kemur \u00ed lj\u00f3s \u00ed verkum okkar sem einstaklinga, h\u00f3pa og \u00ed heild sem \u00fej\u00f3\u00f0ar. L\u00f6ggj\u00f6f sem sett er \u00e1 Al\u00feingi \u00e1 a\u00f0 hv\u00edla \u00e1 grunni elsku og vir\u00f0ingar fyrir \u00f6llum m\u00f6nnum, \u00f6llu l\u00edfi. L\u00f6ggj\u00f6f m\u00e1 ekki ver\u00f0a s\u00e9rhyggju a\u00f0 br\u00e1\u00f0. H\u00fan m\u00e1 aldrei einkennast af fr\u00e6ndhygli e\u00f0a hollustu vi\u00f0 \u00fer\u00f6nga flokkshagsmuni. L\u00edfi\u00f0 kallar okkur til a\u00f0 bera k\u00e6rleikanum vitni og s\u00f6nn elska tekur \u00e6t\u00ed\u00f0 mi\u00f0 af \u00fe\u00f6rfum heildar og velfer\u00f0 allra.<\/p>\n<p>K\u00e6ri s\u00f6fnu\u00f0ur. \u00c9g kve\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag a\u00f0 sinni \u00fear sem \u00e9g held til Noregs innan t\u00ed\u00f0ar til a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fear sem prestur \u00ed afleysingu \u00ed 6 m\u00e1nu\u00f0i. \u00c9g ver\u00f0 \u00ed launalausu leyfi \u00e1 me\u00f0an.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00ed hendi Gu\u00f0s og ma\u00f0ur kemur \u00ed manns sta\u00f0. Breytingar eru gjarnan til g\u00f3\u00f0s og allir hafa gott af uppstokkun og tilbreytingu. Prestar \u00feurfa a\u00f0 hla\u00f0a geyma s\u00edna og s\u00e6kja s\u00e9r \u00fer\u00f3tt og uppbyggingu me\u00f0 reglulegu millibili til \u00feess a\u00f0 kulna ekki \u00ed starfi, stunda endurmenntun, f\u00e6ra sig til \u00ed starfi, l\u00e6ra n\u00fdja h\u00e6tti \u00ed n\u00fdju umvherfi.<\/p>\n<p>H\u00e9r hefur veri\u00f0 \u00e6vint\u00fdri l\u00edkast a\u00f0 starfa s.l. 15 \u00e1r. Kirkjus\u00f3kn er me\u00f0 \u00fev\u00ed besta sem gerist og s\u00f6fnu\u00f0urinn \u00e1hugasamur um gang kirkjustarfsins. Hafi\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir allt og Gu\u00f0 geymi ykkur \u00ed vetur og gefi okkur aftur g\u00f3\u00f0a samfundi.<\/p>\n<p>Kirkjan hefur mikilv\u00e6gu hlutverki a\u00f0 gegna \u00ed landinu. H\u00fan stendur v\u00f6r\u00f0 um grunngildin. \u00dea\u00f0 gefur \u00e1 b\u00e1tinn um \u00feessar mundir og \u00fea\u00f0 er ekki \u00ed fyrsta sinn. Kirkjan er voldugt skip. \u00c1 seinustu \u00f6ld gengu yfir margir n\u00fdir straumar \u00ed mannlegri hugsun sem sumum fannst \u00f3gna kirkjunni. En n\u00fd hugsun getur \u00f6rva\u00f0 og eflt. Kirkjan ver\u00f0ur a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 n\u00fdja hugsun \u00e1 hverjum t\u00edma og \u00feroskast me\u00f0 framf\u00f6rum \u00e1 svi\u00f0i v\u00edsinda og mennta.<\/p>\n<p>Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna a\u00f0 \u00feessa dagana reynir Frans p\u00e1fi fyrsti n\u00fa a\u00f0 \u00feoka sinni kirkju til meiri skilnings og \u00feroska \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 vi\u00f0fangsefni n\u00fat\u00edmans. En hann \u00e1 vi\u00f0 ramman reip a\u00f0 draga en \u00feetta tosast n\u00fa allt, t\u00fai \u00e9g.<\/p>\n<p>Og vegna \u00feess a\u00f0 kristin tr\u00fa er opi\u00f0 kerfi, l\u00edfsvegur, en ekki l\u00f6gm\u00e1l e\u00f0a kerfis\u00fer\u00e6lkun, getur h\u00fan \u00e1 hverri t\u00ed\u00f0 lifa\u00f0 og eflst. \u00dea\u00f0 liggur \u00ed e\u00f0li hennar, h\u00fan fer\u00f0ast me\u00f0 f\u00f3lki inn \u00e1 n\u00fdjar lendur \u00e1 vit n\u00fdrra \u00e6vint\u00fdra \u00ed mannl\u00edfinu. L\u00edfi\u00f0 er spennandi vegfer\u00f0! \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 vera \u00e1 fer\u00f0 me\u00f0 Gu\u00f0i s\u00ednum \u00ed leitinni a\u00f0 lj\u00f3si og sannleika.<\/p>\n<p>\u00dej\u00f3\u00f0kirkjan gengur \u00ed gegnum storma sem stofnun og h\u00fan hefur gert \u00fea\u00f0 \u00e1\u00f0ur. En kirkja Krists er meira en \u00deK. Kirkja Krists er st\u00e6rri og meiri og Drottinn hefur heiti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kirkjan hans muni aldrei \u00e1 grunn ganga.<\/p>\n<p>\u00deess vegna eru or\u00f0in fornu \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed gildi, s\u00edung og n\u00fd og a\u00f0 breyttu breytenda hlj\u00f3\u00f0ar inngangurinn svona:<\/p>\n<p>Heyr! \u00edslensk \u00fej\u00f3\u00f0, heyr, \u00edslensk kristni:<\/p>\n<p>\u201eDrottinn, Gu\u00f0 vor, hann einn er Drottinn. Og \u00fe\u00fa skalt elska Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn, af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu, allri s\u00e1lu \u00feinni, \u00f6llum huga \u00fe\u00ednum og \u00f6llum m\u00e6tti \u00fe\u00ednum. Anna\u00f0 er \u00feetta: \u00de\u00fa skalt elska n\u00e1unga \u00feinn eins og sj\u00e1lfan \u00feig. Ekkert bo\u00f0or\u00f0 anna\u00f0 er \u00feessum meira.\u201c<\/p>\n<p>Heyr\u00f0u!<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/brc3a9f-biskups-um-dag-heilbrigc3b0isc3bejc3b3nustunanr.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1515\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/brc3a9f-biskups-um-dag-heilbrigc3b0isc3bejc3b3nustunanr.png?w=212\" alt=\"Br\u00e9f biskups um dag heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunanr\" width=\"212\" height=\"300\" \/><\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Heyr\u00f0u! Pr\u00e9dikun vi\u00f0 messu \u00ed Neskirkju sunnudaginn 19. okt. 2014 &#8211; 18. sd. e. trinitatis Kve\u00f0jumessa fyrir 6 m\u00e1na\u00f0a afleysingu \u00ed Noregi Dagur heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar Textar: http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/18-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/ \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig lesi\u00f0 hana. Myndir voru fengnar a\u00f0 l\u00e1ni af vefnum og er h\u00f6fundum f\u00e6r\u00f0ar \u00feakkir fyrir.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1512","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1512","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1512"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1512\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1512"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1512"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1512"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}