{"id":1505,"date":"2014-10-17T20:14:20","date_gmt":"2014-10-17T20:14:20","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1505"},"modified":"2014-10-17T20:14:20","modified_gmt":"2014-10-17T20:14:20","slug":"olof-emma-kristjansdottir-1928-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1505","title":{"rendered":"+\u00d3l\u00f6f Emma Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir 1928-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/c3b3lc3b6f-emma.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/10\/c3b3lc3b6f-emma.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1506\" alt=\"\u00d3l\u00f6f Emma\" width=\"244\" height=\"291\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00d3l\u00f6f Emma Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<\/b> 1928-2014<\/p>\n<p>fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni f\u00f6studaginn 17. okt\u00f3ber 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una og lesi\u00f0 hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. <!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1505-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/c3b3lc3b6f-emma.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/c3b3lc3b6f-emma.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/10\/c3b3lc3b6f-emma.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>\u201e\u00d3ttast \u00fe\u00fa eigi, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er me\u00f0 \u00fe\u00e9r. L\u00e1t eigi hugfallast, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feinn Gu\u00f0. \u00c9g styrki \u00feig, \u00e9g hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r, \u00e9g sty\u00f0 \u00feig me\u00f0 h\u00e6gri hendi r\u00e9ttl\u00e6tis m\u00edns.\u201c (Jesaja 41.10)<\/p>\n<p>\u00deessi or\u00f0 og fleiri \u00far hinni helgu b\u00f3k hafa hugga\u00f0 og styrkt f\u00f3lk um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. Vi\u00f0 komum h\u00e9r saman til a\u00f0 kve\u00f0ja konu sem \u00e1tti fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0 \u00ed hjarta s\u00ednu, tr\u00fana sem h\u00fan f\u00e9kk \u00ed arf fr\u00e1 foreldrum s\u00ednum og samf\u00e9lagi.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00d3l\u00f6fu Emmu er gengin heil kynsl\u00f3\u00f0. H\u00fan kve\u00f0ur \u00feetta l\u00edf seinust 8 systkina. \u00deau voru hvert \u00f6\u00f0ru myndarlegra, v\u00e6nt og gott f\u00f3lk, tr\u00faa\u00f0 og vel af Gu\u00f0i gert.<\/p>\n<p>H\u00fan f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 13. apr\u00edl 1928. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Elli- og dvalarheimilinu Grund vi\u00f0 Hringbraut \u00ed Reykjav\u00edk 11. okt\u00f3ber 2014.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin Margr\u00e9t J\u00f3hanna Magn\u00fasd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir, fr\u00e1 Hj\u00f6llum \u00ed Sk\u00f6tufir\u00f0i og Kristj\u00e1n G\u00edslason, sj\u00f3ma\u00f0ur fr\u00e1 Hvammi D\u00fdrafir\u00f0i. \u00deau voru n\u00e1grannar fj\u00f6lskyldu minnar \u00ed S\u00f3lg\u00f6tunni \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed s\u00f6mu g\u00f6tu bj\u00f3 Hj\u00f6rtur br\u00f3\u00f0ir hennar um \u00e1rabil eftir a\u00f0 foreldrar \u00feeirra f\u00e9llu fr\u00e1.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var yndislegt a\u00f0 alast upp \u00ed S\u00f3lg\u00f6tunni og kynnast Margr\u00e9ti og Kristj\u00e1ni og f\u00e1 a\u00f0 koma \u00ed har\u00f0fiskhjallinn hans og heyra h\u00famorinn og skondin tilsv\u00f6r hans, f\u00e1 a\u00f0 smakka rikling og steinb\u00fdtinn \u00f3barinn eftir a\u00f0 hafa t\u00ednt fyrir hann sprek \u00ed fj\u00f6runni \u00ed ofninn. \u00de\u00e1 var ekki l\u00edti\u00f0 spennandi a\u00f0 sj\u00e1 hann verka h\u00e1karl sem Hj\u00f6rtur f\u00e6r\u00f0i \u00ed land \u00e1 s\u00ednum togara\u00e1rum. \u00c9g gleymi \u00fev\u00ed ekki \u00feegar hann svo gr\u00f3f upp h\u00e1karlstunnuna eftir k\u00e6singu og gaf m\u00e9r a\u00f0 smakka skyrh\u00e1karl sem \u00e9g \u00e1t af bestu lyst en \u00e6ldi svo eins og m\u00fakki um n\u00f3ttina \u00fev\u00ed maginn \u00ed str\u00e1k sem vart var meir en 6-8 \u00e1ra \u00feoldi ekki sl\u00edkar kr\u00e6singar enda veittar \u00e1n v\u00f6kvans sem oft fylgir h\u00e1karli!<\/p>\n<p>\u00c9g var s\u00e9rstaklega be\u00f0inn um a\u00f0 rifja upp vi\u00f0 \u00feessa ath\u00f6fn minningar m\u00ednar af \u00feessum g\u00f3\u00f0u hj\u00f3num en fa\u00f0ir minn og Margr\u00e9t voru \u00feremenningar og \u00e9g og Olla \u00fe.a.l. fj\u00f3rmenningar sem taldist til fr\u00e6ndsemi for\u00f0um daga en m\u00e9r hefur veri\u00f0 sagt a\u00f0 \u00ed gamla daga gat f\u00f3lk \u00e1 fer\u00f0um s\u00ednum um landi\u00f0 bei\u00f0st gistingar hj\u00e1 fr\u00e6ndf\u00f3lki \u00ed 4. li\u00f0 enda engin h\u00f3tel \u00e1 landinu \u00fe\u00e1 heldur lengst af bara torfb\u00e6ir og kot.<\/p>\n<p>B\u00f6rn Margr\u00e9tar og Kristj\u00e1ns voru:<\/p>\n<p>Magn\u00fas, f. 1918, d. 2004;<\/p>\n<p>Sveinbj\u00f6rn, f. 1920, d. 1981;<\/p>\n<p>\u00de\u00f3ra Krist\u00edn, f. 1922, d. 2012;<\/p>\n<p>Hj\u00f6rtur, f. 1925, d. 1992;<\/p>\n<p>Sveinbj\u00f6rg f. 1927, d 2010;<\/p>\n<p>\u00d3l\u00f6f Emma f. 1928, d. 2014;<\/p>\n<p>Svava Sigr\u00ed\u00f0ur, f. 1929, d. 2001, og Gu\u00f0mundur \u00c1g\u00fast, f. 1935, d. 2006.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessari ath\u00f6fn hef \u00e9g jar\u00f0sungi\u00f0 flest barna Margr\u00e9tar og Kristj\u00e1ns. Hvern hef\u00f0i gruna\u00f0 \u00fea\u00f0 for\u00f0um daga \u00feegar str\u00e1kurinn hennar S\u00f6llu og J\u00f3ns \u00ed S\u00f3lg\u00f6tu 8 &#8211; sem Kitti lj\u00fafur kalla\u00f0i H\u00f6llina \u00e1 sinn \u00edr\u00f3n\u00edska h\u00e1tt &#8211; \u00e6tti eftir a\u00f0 standa \u00ed \u00feessum sporum? En svona er n\u00fa l\u00edfi\u00f0. Reyndar sag\u00f0i Svava Sigga a\u00f0 pabbi hennar hef\u00f0i haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00fe\u00f3tt hann \u00d6ddi hef\u00f0i kaupmannsbl\u00f3\u00f0 \u00ed \u00e6\u00f0um \u00fe\u00e1 yr\u00f0i hann prestur. Og \u00fea\u00f0 gekk eftir og h\u00e9r stendur hann n\u00fa og jar\u00f0syngur Ollu og hefur \u00fe\u00e1 jar\u00f0sungi\u00f0 \u00f6ll systkinin nema Sveinbj\u00f6rn og Hj\u00f6rt, sex af \u00e1tta.<\/p>\n<p>\u00c9g man \u00feegar barnab\u00f6rnin komu vestur og dv\u00f6ldu hj\u00e1 \u00f6mmu og afa \u00ed S\u00f3lg\u00f6tunni \u00fear sem \u00e6t\u00ed\u00f0 var n\u00f3g pl\u00e1ss og hjartar\u00fdmi\u00f0 \u00f3m\u00e6lanlegt. \u00de\u00e1 var gaman a\u00f0 leika \u00ed S\u00f3lg\u00f6tunni og fj\u00f6runni vi\u00f0 hjallinn hans Kitta.<\/p>\n<p>\u00deeim hj\u00f3num var ekki fisja\u00f0 saman og sagt var a\u00f0 Kristj\u00e1n hafi veri\u00f0 svo duglegur til sj\u00f3s a\u00f0 vart var h\u00e6gt a\u00f0 greina hendur hans \u00e1 l\u00ednunni svo hratt dr\u00f3 hann f\u00e6ri\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar Kristj\u00e1n missti m\u00f3\u00f0ur s\u00edna 12 \u00e1ra og var sendur f\u00f3tgangandi fr\u00e1 \u00e6skuheimili s\u00ednu \u00ed D\u00fdrafir\u00f0i og yfir tv\u00e6r hei\u00f0ar til \u00cdsafjar\u00f0ar sag\u00f0ist hann hafa be\u00f0i\u00f0 Gu\u00f0 um a\u00f0 hj\u00e1lpa s\u00e9r a\u00f0 rata r\u00e9tta lei\u00f0 og heiti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i og ver\u00f0a sterkur og duglegur ef hann k\u00e6mist lifandi \u00e1 \u00e1fangasta\u00f0. Hann var b\u00e6nheyr\u00f0ur og st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 or\u00f0 s\u00edn. Hann \u00fej\u00f3na\u00f0i Gu\u00f0i s\u00ednum og l\u00edfinu sj\u00e1lfu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera duglegur og koma upp 8 myndarlegum b\u00f6rnum me\u00f0 sinni g\u00f3\u00f0u konu. Hann s\u00e1 hana barnunga en h\u00fan var 12 \u00e1rum yngir en hann og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 giftast \u00fe\u00e9r \u00feegar \u00fe\u00fa ver\u00f0ur eldri. Og \u00fea\u00f0 gekk eftir. D\u00e6tur \u00feeirra \u00fe\u00f3ttu st\u00f3rgl\u00e6silegar og v\u00f6ktu hvarvetna athygli, gla\u00f0legar og greindar, listr\u00e6nar me\u00f0 blik \u00ed augum og spriklandi h\u00famor og tilsv\u00f6r eins og pabbinn og br\u00e6\u00f0urnir g\u00e1fu stelpunum ekkert eftir.<\/p>\n<p>Olla hlaut gott uppeldi \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og naut almennrar sk\u00f3lag\u00f6ngu. H\u00fan var gl\u00e6sileg og vel bygg\u00f0, \u00ed\u00fer\u00f3ttakona, sterk og dugleg og hef\u00f0i gjarnan vilja\u00f0 komast \u00ed n\u00e1m a\u00f0 Laugavatni en \u00fe\u00e1 var sl\u00edkt \u00e1l\u00edka a\u00f0gengilegt og a\u00f0 fara um h\u00e1lfan hn\u00f6ttinn n\u00fa \u00e1 t\u00edmum til a\u00f0 mennta sig og engir sj\u00f3\u00f0ir e\u00f0a styrkir til sl\u00edkra \u00e6vint\u00fdra. En anna\u00f0 \u00e1tti fyrir henni a\u00f0 liggja. H\u00fan vann almenn st\u00f6rf sem st\u00falka en allir sem vettlingi g\u00e1tu valdi\u00f0 ur\u00f0u au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 vinna heima og utan heimilis. Svo f\u00f3r h\u00fan a\u00f0 vinna hj\u00e1 S\u00edmanum \u00ed Hr\u00fatafir\u00f0i og l\u00e9t sig ekki muna um a\u00f0 synda yfir fj\u00f6r\u00f0inn. H\u00fan vann l\u00edka hj\u00e1 S\u00edmanum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan lif\u00f0i vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edku l\u00edfi \u00fear sem sviptivindar gengu yfir en alltaf st\u00f3\u00f0 h\u00fan keik.<\/p>\n<p>\u00deegar Olla steig \u00e1 landi \u00ed H\u00fasav\u00edk for\u00f0um daga (1953) kl\u00e6dd eins og kvikmyndastjarna fr\u00e1 Hollywood \u00ed kj\u00f3l sem h\u00e6f\u00f0i vexti hennar vel og eldrau\u00f0um h\u00e1h\u00e6lu\u00f0um sk\u00f3m \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u konurnar \u00e1 \u00f6ndinn og karlar ur\u00f0u vi\u00f0utan.<\/p>\n<p>H\u00fan eigna\u00f0ist 5 b\u00f6rn me\u00f0 4 m\u00f6nnum. S\u00e1 fyrsti, Ingvar Einarsson var \u00e6sku\u00e1stin hennar en svo kom P\u00e1lmi H\u00e9\u00f0insson, loks Karl Hanson og \u00fe\u00e1 Hj\u00e1lmar P\u00e9tursson. \u00deettar voru stormasamir t\u00edmar en h\u00fan reis \u00e6t\u00ed\u00f0 upp enda kraftmikil kona me\u00f0 listr\u00e6na h\u00e6fileika sem t\u00f3k n\u00fdrri og n\u00fdrri \u00e1skorun.<\/p>\n<p>Besta t\u00edmann \u00e1tti h\u00fan l\u00edklega \u00ed Bandar\u00edkjunum me\u00f0 John Wheeler en h\u00fan flutti til hans \u00e1ri\u00f0 1979 \u00e1samt yngsta syni s\u00ednum en \u00fe\u00e1 var h\u00fan 51 \u00e1rs, or\u00f0in \u00feroska\u00f0ri og yfirvega\u00f0ri, en alltaf jafn gl\u00e6sileg. En \u00fear var\u00f0 h\u00fan fyrir mestu sorginni \u00feegar h\u00fan missti manninn sinn 2001 og svo n\u00e6st yngsta son sinn og d\u00f3ttur hans \u00ed b\u00edlslysi 2002.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hennar eru:<\/p>\n<p>Ingvar Gr\u00e9tar Ingvarsson f. 15.10.1948,<\/p>\n<p>Helgi P\u00e1lmason f. 24.2.1954,<\/p>\n<p>Margr\u00e9t J\u00f3hanna P\u00e1lmad\u00f3ttir, f. 28.4.1956,<\/p>\n<p>Kristinn \u00de\u00f3r Hj\u00e1lmarsson (Hanson) f. 1.2. 1960 d. 23.5.2002 \u00e1samt d\u00f3ttur sinni El\u00ednu Rut sem \u00fe\u00e1 var 21 \u00e1rs. Yngstur er:<\/p>\n<p>Kristj\u00e1n P\u00e9tur Hj\u00e1lmarsson f. 2.9.1967.<\/p>\n<p>H\u00fan var grandv\u00f6r kona, tr\u00fa s\u00ednum m\u00f6nnum, \u00e1str\u00edk m\u00f3\u00f0ir, elsk a\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum, einl\u00e6g og s\u00f6nn \u00ed afst\u00f6\u00f0unni til l\u00edfsins og mj\u00f6g tr\u00fau\u00f0. H\u00fan var \u00e1 margan h\u00e1tt \u00e1 undan sinni samt\u00ed\u00f0, tr\u00fa\u00f0i \u00e1 frelsi einstaklingsins, frelsi konunnar, var hugr\u00f6kk \u00ed st\u00edl og framkomu. \u00cd henni \u00f3lga\u00f0i l\u00edf og kraftar h\u00e6fileikar\u00edkrar konu. H\u00fan var eins og fugl sem var\u00f0 a\u00f0 fl\u00faga me\u00f0 \u00feeim fj\u00f6\u00f0rum sem l\u00edfi\u00f0 f\u00e6r\u00f0i henni en hef\u00f0i aldrei geta\u00f0 una\u00f0 s\u00e9r sem fugl \u00ed b\u00fari. H\u00fan var\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 flj\u00faga frj\u00e1ls og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i h\u00fan \u00e1 sinn h\u00e1tt og ekki s\u00edst \u00ed myndlistinni. H\u00fan naut \u00feess a\u00f0 skapa me\u00f0 pensli \u00ed h\u00f6nd og liti. \u00de\u00e1 kom yfir hana st\u00f3\u00edsk r\u00f3 og h\u00fan horf\u00f0i \u00ed myndfl\u00f6tinn yfirvegu\u00f0 og l\u00e9t litina tala. H\u00fan hef\u00f0i geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0 g\u00f3\u00f0ur myndlistarkennari, einkum me\u00f0a\u00f0 barna, \u00fev\u00ed h\u00fan elska\u00f0i b\u00f6rn og naut s\u00edn \u00e6t\u00ed\u00f0 vel \u00ed \u00feeirra h\u00f3pi. H\u00fan gat f\u00f6ndra\u00f0 me\u00f0 \u00feeim, leiki\u00f0 vi\u00f0 \u00feau \u00e1 g\u00f3lfum, slegi\u00f0 \u00e1 g\u00edtarstrengi og sungi\u00f0. Seinna eigna\u00f0ist h\u00fan p\u00edan\u00f3 sem John gaf henni og hann keypti l\u00edka anna\u00f0 og sendi El\u00ednu Rut \u00e1 \u00cdslandi me\u00f0 mikilli fyrirh\u00f6fn. P\u00edan\u00f3i\u00f0 var fr\u00e6gt og lif\u00f0i af ey\u00f0imerkurstorma og ind\u00edana\u00e1r\u00e1sir. Olla safna\u00f0i fyrir \u00fev\u00ed me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 reykja. Olla naut s\u00edn me\u00f0al barna og vissi a\u00f0 Jes\u00fas kenndi a\u00f0 ma\u00f0ur \u00e6tti a\u00f0 vera einl\u00e6gur eins og b\u00f6rnin og a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri eina lei\u00f0in til a\u00f0 komast inn \u00ed r\u00edki Gu\u00f0s. H\u00fan s\u00e1 Jes\u00fa allsta\u00f0ar. H\u00fan og hann voru vinir. H\u00fan elska\u00f0i Jes\u00fa eins og h\u00fan l\u00e6r\u00f0i af s\u00ednu f\u00f3lki \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, af Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0ishernum sem starfa\u00f0i af miklum \u00fer\u00f3tti fyrir vestan \u00e1 hennar \u00e6sku\u00e1rum \u00fear sem h\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00e1 g\u00edtar og af kirkjunni sem var n\u00e1nast vi\u00f0 h\u00fasvegginn heima. H\u00fan var gjafmild og grei\u00f0vikin \u00ed anda kristinn l\u00edfsgilda, gaf f\u00f3lki \u00fea\u00f0 sem \u00fea\u00f0 vanhaga\u00f0i um eins og t.d. \u00feegar h\u00fan gaf pottana s\u00edna og p\u00f6nnur.<\/p>\n<p>H\u00fan bj\u00f3 lengi \u00ed Arizona og \u00fear var gott a\u00f0 vera \u00ed \u00feurru og hl\u00fdju loftslagi og margir s\u00f3ttu \u00feau hj\u00f3nin heim og oft komu \u00feau hinga\u00f0 og h\u00fan ein a\u00f0 vitja \u00e1stvina sinna.<\/p>\n<p>H\u00fan flutti til \u00cdslands 2009 eftir a\u00f0 hafa misst John og \u00fe\u00f3tti gott a\u00f0 vera n\u00e6rri s\u00ednu f\u00f3lki. \u00c9g hitti hana seinast a\u00f0 mig minnir vi\u00f0 \u00fatf\u00f6r St\u00ednu systur hennar og \u00feegar vi\u00f0 kv\u00f6ddumst innilega \u00ed erfidrykkjunni me\u00f0 kossum \u00e1 kinn, brosti h\u00fan og hl\u00f3 og sag\u00f0i me\u00f0 \u00feessum \u00f3borganlega h\u00famor sem l\u00e1 \u00ed genum hennar: \u201e\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 kyssa \u00feig aftur, \u00e9g hef nefnilega aldrei \u00e1\u00f0ur kysst prest!\u201c<\/p>\n<p>Svona var h\u00fan Olla Kitt eins og h\u00fan var k\u00f6llu\u00f0 fyrir vestan, st\u00falkan \u00far S\u00f3lg\u00f6tunni, sem elska\u00f0i s\u00f3l og sumar, gle\u00f0i og gaman \u00ed samskiptum vi\u00f0 f\u00f3lk. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0ur eiginleiki a\u00f0 geta gla\u00f0st og ekki veitir n\u00fa af \u00ed \u00feessu l\u00edfi sem f\u00e6rir allt of m\u00f6rgum miklar \u00e1gjafir. \u00de\u00e1 er gott a\u00f0 eiga g\u00f3\u00f0an h\u00famor og l\u00e9tta lund, st\u00f3rt hjarta og fyrirgefningu. Margt l\u00edfsglatt f\u00f3lk gl\u00edmir jafnframt vi\u00f0 dimma daga og myrka \u00ed s\u00e1lu sinni. L\u00edfi\u00f0 er og ver\u00f0ur eins og \u00ed S\u00f3lg\u00f6tunni. \u00dear s\u00e9r ekki til s\u00f3lar \u00ed 3 m\u00e1nu\u00f0i \u00e1r hvert en svo sk\u00edn h\u00fan og \u00fe\u00e1 er haldin veisla og allt ver\u00f0ur bjart \u00feegar snj\u00f3rinn endurvarpar birtunni milli fjalla og fj\u00f6r\u00f0urinn er svo lygn a\u00f0 enginn s\u00e9r mun veruleika og speglunar \u00ed Pollinum.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er mildur dagur og fagur, haustkyrr\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk og Olla hefur hloti\u00f0 hv\u00edld og fri\u00f0. H\u00fan er h\u00e9r kv\u00f6dd af s\u00ednu f\u00f3lki sem \u00feakkar allt gott og felur Gu\u00f0i allt, b\u00e6\u00f0i lj\u00f3s og skugga. H\u00fan lif\u00f0i l\u00edfinu eins og h\u00fan taldi r\u00e9ttast hverju sinni, vann \u00far s\u00ednum erfi\u00f0leikum me\u00f0 tr\u00fana a\u00f0 vopni og komst \u00e1fram me\u00f0 hj\u00e1lp Gu\u00f0s og g\u00f3\u00f0ra manna. Oft var \u00fea\u00f0 erfitt. L\u00edfi\u00f0 er ekki \u00e6t\u00ed\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tt og einfalt, sl\u00e9tt e\u00f0a fellt. En h\u00fan elska\u00f0i ykkur, b\u00f6rnin s\u00edn, og barnab\u00f6rn, fr\u00e6ndf\u00f3lk og vini og er n\u00fa falin Gu\u00f0i k\u00e6rleikans, Gu\u00f0i miskunnar og fyrirgefningar.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur kve\u00f0jur tveggja systurd\u00e6tra hennar, \u00d3l\u00ednu Kjartans \u00d3lad\u00f3ttur Ermert (Oll\u00fdjar) sem er b\u00fasett \u00ed Kaliforn\u00edu og Lilju Steingr\u00edmsd\u00f3ttur, sem n\u00fdlega er flutt til Danmerkur og barnabarns hennar, Gestar Ingvarssonar sem er \u00ed Noregi og Som tengdad\u00f3ttur sem Thailandi.<\/p>\n<p>Heil kynsl\u00f3\u00f0 er farin og n\u00fa eru\u00f0 \u00fei\u00f0, b\u00f6rn systkinanna \u00far S\u00f3lg\u00f6tunni, or\u00f0in a\u00f0 elstu kynsl\u00f3\u00f0inni. Svona er l\u00edfi\u00f0. \u00dea\u00f0 er undursamlegt \u00e6vint\u00fdr en l\u00edka gl\u00edma vi\u00f0 ve\u00f0ur og vinda, dimma daga og \u00e9ljagang. En \u00ed \u00feeirri gl\u00edmu sk\u00edn vi\u00f0 okkur lj\u00f3si\u00f0 eil\u00edfa sem er Kristur. Hann sag\u00f0i: \u201e\u00c9g er lj\u00f3s heimsins. S\u00e1 sem fylgir m\u00e9r, mun ekki ganga \u00ed myrkri, heldur hafa lj\u00f3s l\u00edfsins.\u201c<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu \u00d3lafar Emmu Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi l\u00edfsveginn \u00feinn.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur. Hann styrkir okkur og sty\u00f0ur. L\u00e1tum \u00fev\u00ed aldrei hugfallast. H\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 lifa og nj\u00f3ta daganna \u00fev\u00ed \u00feeim f\u00e6kkar. En \u00fear me\u00f0 er l\u00edfi\u00f0 ekki b\u00fai\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00ed hendi Gu\u00f0s fr\u00e1 getna\u00f0i til grafar og um alla eil\u00edf\u00f0.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed Safna\u00f0arheimili D\u00f3mkirkjunnar.<\/p>\n<p>L\u00edkfylgd &#8211; jar\u00f0sett \u00ed Hafnarfir\u00f0i.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt, texti og hl\u00f3\u00f0upptaka.<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00d3l\u00f6f Emma Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir 1928-2014 fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni f\u00f6studaginn 17. okt\u00f3ber 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una og lesi\u00f0 hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1505","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1505","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1505"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1505\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1505"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1505"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1505"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}