{"id":1485,"date":"2014-09-23T13:43:11","date_gmt":"2014-09-23T13:43:11","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1485"},"modified":"2014-09-23T13:43:11","modified_gmt":"2014-09-23T13:43:11","slug":"steinunn-marinosdottir-1958-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1485","title":{"rendered":"+Steinunn Marin\u00f3sd\u00f3ttir 1958-2014"},"content":{"rendered":"<p class=\"p2\"><span class=\"s1\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/09\/steinunn-marinosdottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/09\/steinunn-marinosdottir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1486\" alt=\"Steinunn Marinosdottir\" width=\"227\" height=\"278\"><\/a><\/span><span class=\"s1\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/span><\/p>\n<p class=\"p2\"><span class=\"s1\">Minningaror\u00f0<\/span><\/p>\n<p class=\"p2\"><span class=\"s1\"><b>Steinunn Marin\u00f3sd\u00f3ttir<\/b><\/span><\/p>\n<p class=\"p2\"><span class=\"s1\">1958-2014<\/span><\/p>\n<p class=\"p2\"><span class=\"s1\">\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Neskirkju&nbsp;<\/span>\u00feri\u00f0judaginn 23. september 2014 kl. 11. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed H\u00f3lavallakirkjugar\u00f0i vi\u00f0 Su\u00f0urg\u00f6tu.<\/p>\n<p class=\"p2\">R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 tengilinn og <strong>lesa<\/strong> textann h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p class=\"p2\"><!--more--><\/p>\n<p class=\"p2\"><audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1485-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/steinunn-marinosdottir.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/steinunn-marinosdottir.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/steinunn-marinosdottir.mp3<\/a><\/audio><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\"><strong>\u00c1<\/strong><\/span><span class=\"s1\"> vef \u00dej\u00f3\u00f0minjasafnsins segir um merkan grip:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left: 60px\"><span class=\"s1\"><em>\u00datskorin kirkjuhur\u00f0 fr\u00e1 Val\u00fej\u00f3fssta\u00f0 \u00ed Flj\u00f3tsdal fr\u00e1 um 1200. Hur\u00f0in, sem er me\u00f0 miklum \u00fatskur\u00f0i \u00ed r\u00f3m\u00f6nskum st\u00edl, er skorin \u00fat \u00e1 \u00cdslandi. Tali\u00f0 er a\u00f0 h\u00fan hafi upphaflega veri\u00f0 um \u00feri\u00f0jungi h\u00e6rri og hringirnir \u00fe\u00e1 \u00fer\u00edr.<\/em><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left: 60px\"><span class=\"s1\"><em>\u00c1 hur\u00f0inni er silfursleginn j\u00e1rnhringur me\u00f0 innl\u00f6g\u00f0u r\u00f3samunstri. \u00cd efri hringnum er \u00feekkt mi\u00f0aldasaga \u00ed \u00feremur \u00fe\u00e1ttum. Ne\u00f0st s\u00e9st riddari \u00e1 hesti s\u00ednum og fl\u00fdgur vei\u00f0ihaukur me\u00f0. Riddarinn leggur sver\u00f0i gegnum dreka sem vafi\u00f0 hefur halanum um lj\u00f3n. \u00cd n\u00e6sta \u00fe\u00e6tti, efst til vinstri, s\u00e9st \u00feakkl\u00e1tt lj\u00f3ni\u00f0 fylgja l\u00edfgjafa s\u00ednum en vei\u00f0ihaukurinn situr \u00e1 makka hestsins. \u00cd s\u00ed\u00f0asta \u00fe\u00e6tti, efst til h\u00e6gri, liggur lj\u00f3ni\u00f0 \u00e1 gr\u00f6f riddarans og syrgir hann. \u00cd baks\u00fdn er l\u00edtil stafkirkja og \u00e1 gr\u00f6finni er r\u00fanaletur: &#8220;Sj\u00e1 inn r\u00edkja konung h\u00e9r grafinn er v\u00e1 dreka \u00feenna.&#8221; \u00cd ne\u00f0ri hringnum eru fj\u00f3rir drekar sem vefjast saman \u00ed hn\u00fat.<\/em><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\" style=\"padding-left: 60px\"><span class=\"s1\"><em>Margar \u00edslenskar mi\u00f0aldakirkjur voru skreyttar \u00fatskur\u00f0i. B\u00fana\u00f0ur \u00feeirra og \u00edbur\u00f0ur bera vitni um au\u00f0leg\u00f0 og v\u00f6ld eigendanna og s\u00fdna jafnframt tengsl \u00cdslendinga vi\u00f0 n\u00e1granna\u00fej\u00f3\u00f0ir s\u00ednar. Val\u00fej\u00f3fssta\u00f0ahur\u00f0in er eina \u00fatskorna hur\u00f0in sem var\u00f0veist hefur. H\u00fan var fyrir kirkjum \u00e1 Val\u00fej\u00f3fssta\u00f0 allt til 1851 \u00feegar h\u00fan var flutt til Kaupmannahafnar. \u00c1ri\u00f0 1930 skilu\u00f0u Danir hur\u00f0inni til baka \u00e1samt fj\u00f6lda annarra \u00f3metanlegra gripa.<\/em><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Merkileg fr\u00e1s\u00f6gn um merkan d\u00fdrgrip. Sagan sem s\u00f6g\u00f0 er \u00ed myndm\u00e1li \u00e1 tr\u00e9fleti er dj\u00fap og sterk. H\u00fan er um bar\u00e1ttuna \u00ed heiminu, um drekana sem s\u00e6kja a\u00f0 mannl\u00edfinu og \u00f6llu l\u00edfi \u00ed raun, ey\u00f0andi \u00f6flum \u00ed \u00feessum jar\u00f0neska heimi, sem birtast t.a.m. \u00ed sj\u00fakd\u00f3mum og kvillum \u00e1 s\u00e1lu og l\u00edkama manna. L\u00edfi\u00f0 er ekki bara au\u00f0velt ferli heldur gl\u00edma. Samt er l\u00edfi\u00f0 d\u00e1samleg gj\u00f6f.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r h\u00e6fileikar\u00edka konu, g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6dda, listfenga og v\u00e6na. H\u00fan er horfin fr\u00e1 okkur langt um aldur fram en skilur eftir sig minningar, tv\u00e6r d\u00e6tur og tv\u00f6 barnab\u00f6rn auk systkinah\u00f3ps. H\u00fan er syrg\u00f0 af s\u00ednu f\u00f3lki og falin Gu\u00f0i \u00ed tr\u00fa og b\u00e6n. Sj\u00e1lf \u00e1tti h\u00fan sterka tr\u00fa \u00e1 Krist en \u00fea\u00f0 er hann sem sigra\u00f0 hefur alla dreka \u00feessarar tilveru, lagt \u00fe\u00e1 a\u00f0 velli me\u00f0 lensu sinni, afli og visku. Hann er riddarinn eini og sanni sem sigra\u00f0 hefur allt illt \u00ed \u00feessum heimi og vald hans er vald k\u00e6rleika, miskunnar og fyrirgefningar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunn var f\u00e6dd 13. j\u00fan\u00ed 1958 \u00e1 Val\u00fej\u00f3fssta\u00f0 \u00ed Flj\u00f3tsdal.Froreldrar hennar voru s\u00e9ra Marin\u00f3 Kristinsson, s\u00f3knarprestur \u00fear og kona hans \u00de\u00f3rhalla G\u00edslad\u00f3ttir, lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ir. Steinunn var 6. \u00ed aldursr\u00f6\u00f0 9 systkina sem eru:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">1. Dagn\u00fd, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">2. Hrefna, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">3. \u00c1g\u00fast ,<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">4. G\u00edsli, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">5. R\u00f3sa Krist\u00edn, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">6. Steinunn,<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">7. Kolbeinn, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">8. \u00dalfur Hei\u00f0ar og<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">9. andvana f\u00e6dd tv\u00edbursystir R\u00f3su Krist\u00ednar. H\u00fan hv\u00edlir hj\u00e1 foreldrum s\u00ednum \u00ed Val\u00fej\u00f3fsta\u00f0akirkjugar\u00f0i.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00deegar Steinunn var tveggja \u00e1ra flutti fj\u00f6lskyldan \u00e1 prestsetri\u00f0 Vallanes \u00ed n\u00e6stu sveit og \u00fear \u00f3lst h\u00fan upp til 8 \u00e1ra aldurs en \u00fe\u00e1 flutti fj\u00f6lskyldan a\u00f0 Sau\u00f0anesi \u00e1 Langanesi.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Sem l\u00edti\u00f0 barn var Steinunn br\u00e1\u00f0ger og flj\u00f3t til m\u00e1ls og \u00feroska, flugl\u00e6s mj\u00f6g ung og alltaf me\u00f0 b\u00f3k a\u00f0 lesa. \u00deegar h\u00fan \u00f3x upp kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 h\u00fan var listr\u00e6n, teikna\u00f0i miki\u00f0, heilu teiknimyndas\u00f6gurnar og hestamyndirnar voru \u00f3tr\u00falega g\u00f3\u00f0ar. H\u00fan orti l\u00edka lj\u00f3\u00f0 og skrifa\u00f0i s\u00f6gur. H\u00fan haf\u00f0i fagra rith\u00f6nd, gekk vel \u00ed n\u00e1mi og f\u00e9kk yfirleitt h\u00e1ar einkunnir \u00ed sk\u00f3la.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">H\u00fan var miki\u00f0 n\u00e1tturubarn og vildi vera \u00fati \u00ed hva\u00f0a ve\u00f0ri sem var, dugleg og h\u00f6r\u00f0 af s\u00e9r. H\u00fan var r\u00f6sk vi\u00f0 \u00f6ll \u00fativerk, var natin og lagin vi\u00f0 skepnur, dugleg \u00e1 hestbaki og elska\u00f0i hesta. H\u00fan var pabbastelpa. Alla t\u00ed\u00f0 var mj\u00f6g sterkt samband \u00e1 milli \u00feeirra fe\u00f0gina. H\u00fan var \u00e1byrg gagnvart yngri br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum, g\u00e6tti \u00feeirra og lei\u00f0beindi &#8211; og stj\u00f3rna\u00f0i \u00feeim til g\u00f3\u00f0ra verka. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunn var engin h\u00e1va\u00f0amanneskja en gla\u00f0v\u00e6r og mikill h\u00famorsiti og s\u00e1 gjarnan spaugilegar hli\u00f0ar m\u00e1la. H\u00fan var snj\u00f6ll a\u00f0 herma eftir f\u00f3lki og gat brug\u00f0i\u00f0 fyrir sig beittum h\u00famor ef \u00ed \u00fea\u00f0 f\u00f3r.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunni \u00fe\u00f3tti afskaplega v\u00e6nt um systkini s\u00edn. H\u00fan og Kolbeinn br\u00f3\u00f0ir hennar voru mj\u00f6g n\u00e1in og g\u00f3\u00f0ir vinir alla t\u00ed\u00f0 og seinustu \u00e1r h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e6r Hrefna og Steinunn veri\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0u sambandi. Hrefnu \u00fe\u00f3tti afskaplega v\u00e6nt um Steinunni, \u00fe\u00e6r systur n\u00e1\u00f0u vel saman. Hrefna minnist hennar sem skemmtilegrar og umhyggjusamrar systur. H\u00famorinn var aldrei lagt undan sama hva\u00f0 \u00e1 bj\u00e1ta\u00f0i, alltaf virtist Steinunn taka l\u00edfinu \u00e1 l\u00e9ttu n\u00f3tunum, enda kraftmikil bar\u00e1ttukona. Steinunn leit upp til Dagn\u00fdjar og treysi henni vel enda st\u00f3ra systir hennar. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunn lauk grunnsk\u00f3lan\u00e1mi \u00e1 \u00de\u00f3rsh\u00f6fn, t\u00f3k landspr\u00f3f \u00e1 Ei\u00f0um og s\u00ed\u00f0an verslunarpr\u00f3f \u00ed Verslunarsk\u00f3la \u00cdslands. Seinna f\u00f3r h\u00fan til n\u00e1ms \u00ed Bandar\u00edkjunum og l\u00e6r\u00f0i marka\u00f0setningu \u00e1 t\u00edsku og h\u00f6nnun (Fashion Merchandising) hj\u00e1 Studio Seven Fashion Carreer College Los Angeles.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunn var h\u00f6rkudugleg \u00ed vinnu og vel li\u00f0in og var me\u00f0 mikin mettna\u00f0 fyrir starfi s\u00ednu sama hva\u00f0 h\u00fan t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur. H\u00fan vann \u00fdmis skrifstofu- og verslunarst\u00f6rf um \u00e6vina og var t.d. um \u00e1rabil hj\u00e1 L\u00e1nassj\u00f3\u00f0i \u00edslenskra n\u00e1msmanna. H\u00fan rak einnig eigi\u00f0 fyrirt\u00e6ki um t\u00edma. \u00c1 t\u00edmabili vann h\u00fan vi\u00f0 t\u00edskus\u00fdningar hj\u00e1 Karonsamt\u00f6kunum, t\u00f3k sj\u00e1lf \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 s\u00fdna og vann sem fyrirs\u00e6ta \u00feegar h\u00fan dvaldi \u00ed Bandar\u00edkjunum enda gl\u00e6silega kona, h\u00e1vaxin og gr\u00f6nn og bar sig vel. H\u00fan vann sem st\u00edlisti fyrir t\u00edskuv\u00f6ruverslanir um \u00e1rabil \u00ed Reykjav\u00edk og v\u00ed\u00f0ar. Steinunn vann sem r\u00e1\u00f0gjafi hj\u00e1 me\u00f0fer\u00f0arstofnunum og sinnti skrifstofust\u00f6rfum. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Um t\u00edma vann h\u00fan sem bl\u00f3maskreytir og \u00e1tti 2 fyrirt\u00e6ki, anna\u00f0 h\u00e9t Bl\u00f3makastalinn ehf og hitt Rau\u00f0 lilja ehf. H\u00fan stunda\u00f0i myndlist alla t\u00ed\u00f0 og m\u00e1la\u00f0i hundru\u00f0 verka. H\u00fan h\u00e9lt nokkrar s\u00fdningar \u00ed Bandar\u00edkjunum og seldi verk s\u00edn og svo pr\u00fd\u00f0a \u00feau veggi hj\u00e1 \u00fdmsum a\u00f0ilum mest hj\u00e1 d\u00e6trum hennar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1ri\u00f0 1979 h\u00f3f Steinunn samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 J\u00f3hanni \u00d3. J\u00f3sefssyni. \u00deau bjuggu \u00ed Reykjav\u00edk og skildu 1985. \u00deau eignu\u00f0ust 2 d\u00e6tur <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Rebekku f. 18. j\u00fan\u00ed 1981 og <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1g\u00fastu f. 16. apr\u00edl 1985, <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">b\u00e1\u00f0ar f\u00e6ddar \u00ed Reykjav\u00edk. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Sonur Rebekku er J\u00f3sef Hafsteinn Dan\u00edelsson f. 5. jan\u00faar 2000 og sonur \u00c1g\u00fastu er \u00d6rlygur M\u00e1ni Elvarsson.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00cd Reykjav\u00edk var Ber\u00fe\u00f3rugata 27 fastur punktur \u00ed tilveru hennar en \u00fear bjuggu foreldrar hennar eftir a\u00f0 \u00feau fluttu su\u00f0ur. \u00dear \u00e1tti h\u00fan g\u00f3\u00f0ar stundir me\u00f0 \u00feeim og d\u00e6trunum og var s\u00e9rstaklega h\u00e6nd a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum. Steinunn var hl\u00fd, k\u00e6rleiksr\u00edk og umhyggjus\u00f6m m\u00f3\u00f0ir. H\u00fan tengdist d\u00e6trum s\u00ednum sterkum og dj\u00fapum b\u00f6ndum, hvatti \u00fe\u00e6r til a\u00f0 l\u00e1ta drauma s\u00edna ganga upp, a\u00f0 gefast aldrei upp og vera \u00fe\u00e6r sj\u00e1lfar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1 j\u00f3lunum komu m\u00f3\u00f0ursystur Steinunnar oft \u00ed heims\u00f3kn, \u00fe\u00e6r Olla og Berg\u00fe\u00f3ra og \u00fe\u00e1 var glatt \u00e1 hjalla. Steinunn, m\u00f3\u00f0ir hennar og \u00fe\u00e6r fr\u00e6nkur h\u00f6f\u00f0u svipa\u00f0an h\u00famor og ge\u00f0 og var lengi\u00f0 seti\u00f0 frameftir og spjalla\u00f0 um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna og miki\u00f0 hlegi\u00f0. Ollu og Berg\u00fe\u00f3ru \u00fe\u00f3ttu afskaplega v\u00e6nt um Steinunni og h\u00e9ldu miki\u00f0 upp\u00e1 hana og voru \u00fe\u00e6r miklar vinkonur. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Steinunn var listr\u00e6n og skapandi og m\u00e1la\u00f0i og teikna\u00f0i miki\u00f0 me\u00f0 d\u00e6trunum \u00feegar \u00fe\u00e6r voru litlar og las miki\u00f0 fyrir \u00fe\u00e6r. \u00de\u00e6r hafa b\u00e1\u00f0ar leita\u00f0 \u00ed listn\u00e1m og h\u00f6nnun.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Henni \u00fe\u00f3tti afsakplega v\u00e6nt um barnab\u00f6rnin s\u00edn og \u00e1tti \u00feau \u00d6rlygur n\u00e1i\u00f0 samband fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann f\u00e6ddist. H\u00fan hugsa\u00f0i h\u00fan miki\u00f0 um hann og g\u00e6tti hans hven\u00e6r sem um var be\u00f0i\u00f0. \u00deeim kom mj\u00f6g vel saman, honum fannst amma afar skemmtileg og fyndin. \u00dea\u00f0 var best \u00feegar amma sv\u00e6f\u00f0i hann og las fyrir hann s\u00f6gu. \u00deau spj\u00f6llu\u00f0u um heima og geima og svo f\u00f6ndru\u00f0u \u00feau og m\u00e1lu\u00f0u.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">H\u00fan i\u00f0ka\u00f0i tr\u00fa s\u00edna og var gjarnan me\u00f0 Bibl\u00eduna n\u00e1l\u00e6gt og vitna\u00f0i oft \u00ed hana vi\u00f0 \u00fdmis t\u00e6kif\u00e6ri og leita\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 laga l\u00edf sitt a\u00f0 or\u00f0i Gu\u00f0s. H\u00fan var hei\u00f0arleg og samviskus\u00f6m og me\u00f0 mikla samkend me\u00f0 \u00feeim sem minna mega s\u00edn. H\u00fan haf\u00f0i sterka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd. H\u00fan var ekki \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 \u00e1standi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00ed dag, vildi breytingar og a\u00f0rar \u00e1herslur, a\u00f0ra forgangr\u00f6\u00f0un og meiri umhyggju fyrir f\u00f3lkinu \u00ed landinu.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Draumur hennar var a\u00f0 halda \u00e1fram \u00e1 myndlistarbrautinni og koma verkum s\u00ednum \u00e1 framf\u00e6ri og halda s\u00fdningar. H\u00fan haf\u00f0i mj\u00f6g sterkan pers\u00f3nulegan st\u00edl og verk hennar bera \u00ed s\u00e9r frumleika og d\u00fdpt. H\u00fan haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 tungum\u00e1lum og hug\u00f0ist fara \u00ed sp\u00e6nsku n\u00e1m \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og langa\u00f0i a\u00f0 fer\u00f0ast meira um heiminn.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">L\u00edfi\u00f0 er \u00e6vint\u00fdri \u00fer\u00e1tt fyrir m\u00f3tbyr og klungur sem oft ver\u00f0ur \u00e1 vegi okkar manna. Steinunn gl\u00edmdi vi\u00f0 s\u00edna dreka allt fr\u00e1 unglings\u00e1rum og til hinsta dags. L\u00edfi\u00f0 er gl\u00edma og vi\u00f0 t\u00f6pum l\u00edklega \u00f6ll \u00ed \u00feeirri bar\u00e1ttu. En Kristur, sem vi\u00f0 vorum helgu\u00f0 \u00ed heilagri sk\u00edrn og merkt me\u00f0 sigurt\u00e1kni upprisunnar, krossinum, \u00e1 enni og brj\u00f3st, hefur sigra\u00f0 drekann og alla dreka \u00feessa l\u00edfs. Hann leysir okkur \u00far fj\u00f6trum \u00feessa l\u00edfs og lei\u00f0ir okkur inn \u00ed himinn sinn, til n\u00fdrrar tilveru \u00fear sem b\u00f6l og \u00fej\u00e1ning eru a\u00f0 baki og fegur\u00f0in ein r\u00edkir.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Minning um g\u00f3\u00f0a, hl\u00fdja, umhyggjusama og \u00f6rl\u00e1ta m\u00f3\u00f0ur og \u00f6mmu, systur, fr\u00e6nku og vinkonu mun lifa me\u00f0al ykkar og \u00ed huga Gu\u00f0s ver\u00f0ur h\u00fan \u00e6t\u00ed\u00f0 til.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Kve\u00f0ja fr\u00e1 m\u00e1gi hennar, V\u00edfli \u00deorfinnsyni me\u00f0 k\u00e6ru \u00feakkl\u00e6ti fyrir g\u00f3\u00f0 kynni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1sd\u00eds S\u00f3lr\u00fan Arnlj\u00f3stsd\u00f3ttir bi\u00f0ur fyrir kve\u00f0ju til ykkar. H\u00fan saknar g\u00f3\u00f0rar vinkonu og \u00feakkar fyrir vinskapinn \u00f6ll \u00e1rin.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Tilkynningar:<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Jar\u00f0setning.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Erfi.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum.<\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Postulleg kve\u00f0ja.<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Steinunn Marin\u00f3sd\u00f3ttir 1958-2014 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Neskirkju&nbsp;\u00feri\u00f0judaginn 23. september 2014 kl. 11. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed H\u00f3lavallakirkjugar\u00f0i vi\u00f0 Su\u00f0urg\u00f6tu. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 tengilinn og lesa textann h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[150,354,369,423,64,526,559,584,598,662,663],"class_list":["post-1485","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-dreki","tag-klungur","tag-kristur","tag-marinosdottir","tag-osigur","tag-riddari","tag-sigur","tag-sorg","tag-steinunn","tag-valthjofsstadarhurdin","tag-valthjofsstadur"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1485","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1485"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1485\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1485"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1485"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1485"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}