{"id":1479,"date":"2014-09-21T12:55:12","date_gmt":"2014-09-21T12:55:12","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1479"},"modified":"2014-09-21T12:55:12","modified_gmt":"2014-09-21T12:55:12","slug":"til-utlendinga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1479","title":{"rendered":"Til \u00fatlendinga"},"content":{"rendered":"<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/09\/c3batlendingar.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/09\/c3batlendingar.jpg?w=300\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1480\" width=\"300\" height=\"115\" alt=\"\u00fatlendingar\"><\/a><\/span><span class=\"s1\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\"><b><br \/>\nTil \u00fatlendinga<\/b><\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju sunnudaginn 21. september 2014 &#8211; 14. sd. e. trin<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Umhverfisr\u00e1\u00f0stefna S\u00de er um s\u00f6mu helgi og fundur WCC um sama m\u00e1lefni.<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\"><span class=\"s1\">Textar dagsins eru ne\u00f0an\u00e1ls.<\/span><\/p>\n<p class=\"p1\">H\u00e9r fyrir ne\u00f0an m\u00e1 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> r\u00e6\u00f0una.<\/p>\n<p class=\"p1\"><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1479-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/trin-14-2014.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/trin-14-2014.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/09\/trin-14-2014.mp3<\/a><\/audio>\n<p class=\"p1\">Eb\u00f3la heitir sj\u00fakd\u00f3mur sem herjar n\u00fa \u00e1 f\u00f3lk \u00ed sumum r\u00edkjum \u00ed V-Afr\u00edku og \u00f3gnar um lei\u00f0 heimsbygg\u00f0inni. Sj\u00fakd\u00f3murinn berst \u00fe\u00f3 ekki me\u00f0 loftinu heldur vi\u00f0 snertingu. Hann er skelfilega h\u00e6ttulegur og br\u00e1\u00f0drepandi. V\u00edsindamenn gera n\u00fa allt hva\u00f0 \u00feeir geta til a\u00f0 finna lausn og nj\u00f3ta til \u00feess tilstyrks voldugra r\u00edkja.<\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Sj\u00fakd\u00f3mar hafa um aldir \u00f3gna\u00f0 mannkyni en l\u00e6knav\u00edsindin hafa fundi\u00f0 lausnir \u00ed m\u00f6rgum tilfellum. Stutt er s\u00ed\u00f0an pensil\u00edn var fundi\u00f0 upp en fyrir t\u00edma \u00feess d\u00f3u margir af v\u00f6ldum sm\u00e1s\u00fdkinga sem m\u00f6gnu\u00f0ust og enginn r\u00e9\u00f0 vi\u00f0. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Gu\u00f0spjalli\u00f0 er um l\u00edkr\u00fer\u00e1a menn e\u00f0a holdsveika. \u00deeir ur\u00f0u a\u00f0 hafast vi\u00f0 utan borga og b\u00e6ja \u00e1 d\u00f6gum Jes\u00fa og m\u00e1ttu ekki hafa n\u00e1in samsktipi vi\u00f0 f\u00f3lk. Jes\u00fas n\u00e1lgast \u00feorp og \u00fe\u00e1 koma \u00feeir til m\u00f3ts vi\u00f0 hann \u00e1 veginum og bi\u00f0ja hann \u00e1sj\u00e1r. Jes\u00fas l\u00e6kna\u00f0i \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed einu a\u00f0 segja \u00feeim a\u00f0 fara til prestanna en \u00fea\u00f0 \u00e1ttu l\u00edkr\u00fe\u00e1ir menn a\u00f0 gera ef \u00feeir t\u00f6ldu sig l\u00e6kna\u00f0a. \u00deeir f\u00f3ru allir. Einn sneri aftur til Jes\u00fa og \u00feakka\u00f0i l\u00e6kninguna.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Ekki er svo langt s\u00ed\u00f0an holdsveiki var vandam\u00e1l \u00e1 \u00cdslandi. Holdsveikrasp\u00edtalinn var reistur og st\u00f3\u00f0i inni \u00ed Laugarnesi. \u00dear var um \u00e1rabil ungur, sj\u00e1lfmennta\u00f0ur fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, Sigur\u00f0ur Krist\u00f3fer P\u00e9tursson, sem orti fagran s\u00e1lm sem er \u00ed s\u00e1lmab\u00f3kinni okkar nr. 402 Drottinn varkir.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Sigur%C3%B0ur_Krist%C3%B3fer_P%C3%A9tursson<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">L\u00fakas segir s\u00f6guna af Jes\u00fa og t\u00edu l\u00edk\u00fer\u00e1um m\u00f6nnum. Oftast er h\u00fan t\u00falku\u00f0 sem saga um \u00feakkl\u00e6ti og mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 vera \u00feakkl\u00e1tur. En er \u00fea\u00f0 kjarninn \u00ed s\u00f6gunni?<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">S\u00ed\u00f0asta sunnudag \u00edhugu\u00f0um vi\u00f0 s\u00f6guna um miskunnsama Samverjann sem vissulega er um miskunnsemi og k\u00e6rleika en \u00ed raun er kjarninn \u00ed henni s\u00e1 a\u00f0 Samverjinn var \u00fatlendingur. \u00cd s\u00f6gu dagsins er s\u00e1 eini, sem kom og \u00feakka\u00f0i fyrir sig, \u00fatlendingur. Hva\u00f0 er<\/span><span class=\"s1\"><span class=\"Apple-converted-space\">&nbsp; <\/span><\/span><span class=\"s1\">Jes\u00fas a\u00f0 meina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1 \u00feennan \u00fatlending? Hann teflir honum fram sem fyrirmynd \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 l\u00edta ni\u00f0ur \u00e1 framandi f\u00f3lk og telja sig sj\u00e1lft eiga meirihlutann \u00ed Himnar\u00edki h.f. Far\u00edsear og fr\u00e6\u00f0imenn \u00e1 d\u00f6gum Jes\u00fa t\u00f6ldu sig vera me\u00f0 allt \u00e1 hreinu og liti ni\u00f0ur \u00e1 \u00fatlendinga og framandi f\u00f3lk. Samt er \u00ed arfi Gy\u00f0ingar \u00ed GT a\u00f0 finna fagra texta og \u00e1minningar um a\u00f0 fara vel me\u00f0 \u00fatlendinga eins og t.d. \u00ed lex\u00edu dagsins: \u201eDrottinn verndar \u00fatlendinga\u201c. S\u00fa \u00e1minning og hvatning \u00ed GT er sumsta\u00f0ar studd me\u00f0 tilv\u00edsun \u00ed a\u00f0 eitt sinn voru \u00cdsraelsmenn sj\u00e1lfir \u00fatlendingar \u00ed Egyptalandi um aldir \u00e1\u00f0ur en \u00feeir h\u00e9ldu \u00fea\u00f0an me\u00f0 M\u00f3se \u00ed Ex\u00f3dus-f\u00f6rinni e\u00f0a brottf\u00f6rinni miklu. Mundu a\u00f0 eitt sinn var \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edn \u00ed fj\u00f6trum sem \u00fatlendingur \u00ed framandi landi. \u00deetta var b\u00f6rnum kennt a\u00f0 vita um s\u00f6gu s\u00edna og tilvist. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Hverjir erum vi\u00f0? Vi\u00f0 sem teljum okkur vera \u00cdslendinga, erum stolt af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00fea\u00f0. \u00c1tthagavitund er sterk \u00ed landinu og v\u00ed\u00f0a eru a\u00f0fluttir aldrei taldir til heimamanna. Nei, hann er ekki h\u00e9\u00f0an hann er a\u00f0fluttur, heyrist oft sagt um f\u00f3lk. Menn vilja vera <\/span><span class=\"s1\"><i>original<\/i><\/span><span class=\"s1\">. En svo breytist \u00feetta sm\u00e1tt og sm\u00e1tt. Hverjir eru Reykv\u00edkingar? Stutt er s\u00ed\u00f0an Reykjav\u00edk var eitt agnar l\u00edti\u00f0 \u00feorp \u00ed landi Seltjarnarnesshrepps sem n\u00e1\u00f0i upp \u00ed Bl\u00e1fj\u00f6ll. Reykjav\u00edk stendur eiginlega \u00f6ll \u00e1 Seltjarnarnesi e\u00f0a \u00ed landi hins forna hrepps. \u00cdb\u00faarnir h\u00e9r eru allir lang flestir \u201e\u00fatlendingar\u201c \u00fe.e. f\u00e6ddir annars sta\u00f0ar \u00e1 landinu og a\u00f0fluttir. Me\u00f0 auknum samg\u00f6ngum og tengslum vi\u00f0 \u00fatl\u00f6nd fj\u00f6lgar n\u00fa \u00fatlendu f\u00f3lki h\u00e9r \u00e1 landi. Ver\u00f6ldin er a\u00f0 blandast og f\u00f3lksflutningar eru gr\u00ed\u00f0arlegir. Evr\u00f3pa r\u00e6\u00f0ur vart vi\u00f0 f\u00f3lksstrauminn sem fl\u00e6\u00f0ir a\u00f0 str\u00f6ndum \u00e1lfunnar \u00ed leit a\u00f0 betri l\u00edfskj\u00f6rum. Aldrei fyrr \u00ed s\u00f6gunni hefur \u00fea\u00f0 blasa\u00f0 vi\u00f0 mannkyni me\u00f0 jafn sk\u00fdrum h\u00e6tti og n\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 erum eitt mannkyn, ein fj\u00f6lskylda, eitt l\u00edti\u00f0 alheims\u00feorp. \u00cd Amer\u00edku streyma b\u00f6rn fr\u00e1 M-Amer\u00edkur\u00edkjum f\u00f3tgangandi nor\u00f0ur \u00e1 b\u00f3ginn \u00ed gegnum Mex\u00edk\u00f3 til a\u00f0 komast yfir landam\u00e6ri Bandar\u00edkjanna. Yfirv\u00f6ld n\u00e1 \u00feeim flestur og senda \u00feau \u00ed til baka \u00ed r\u00fatuf\u00f6rmum \u00fear sem \u00feeirra b\u00ed\u00f0ur f\u00e1t\u00e6kt og eymd. \u00dea\u00f0 gladdi mig a\u00f0 lesa \u00ed fr\u00e9ttum n\u00fdlega a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru forystumenn kristinna tr\u00faf\u00e9laga \u00ed BNA sem einir t\u00f6lu\u00f0u m\u00e1li \u00feessara barna og hv\u00f6ttu stj\u00f3rnv\u00f6ld til a\u00f0 s\u00fdna miskunn.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u00d3tti vi\u00f0 \u00fatlendinga e\u00f0a jafnvel \u00fatlendingahatur er \u00feekkt \u00ed samt\u00ed\u00f0 okkar. \u00cd n\u00e1grannal\u00f6ndum okkar vex n\u00fdjum stj\u00f3rnm\u00e1laflokkum fiskur um hrygg sem eru \u00e1 m\u00f3ti \u00fatlendingum \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt. Xenophobia heitir \u00fea\u00f0 \u00e1 fr\u00e6\u00f0im\u00e1li a\u00f0 vera \u00ed n\u00f6p vi\u00f0 \u00fatlendinga. Vi\u00f0 \u00feekkjum l\u00edka kyn\u00fe\u00e1ttahatur sem t.a.m. er erfitt vandam\u00e1l \u00ed Bandar\u00edkjunu og v\u00ed\u00f0ar &#8211; og er \u00feekkt h\u00e9r \u00e1 landi l\u00edka. Mikilv\u00e6gur \u00e1fangi \u00ed bar\u00e1ttu svartra \u00ed BNA fyrir vi\u00f0urkenningu var kj\u00f6r Baraks Obama. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Gott er fyrir okkur upplita\u00f0a, hv\u00edta menn, a\u00f0 muna a\u00f0 mannkyni\u00f0 er allt upprunni\u00f0 \u00ed Afr\u00edku og \u00fev\u00ed voru allir menn svartir \u00ed eina t\u00ed\u00f0. V\u00edsindamenn segja a\u00f0 flutningur manna fyrir ym 7 \u00fe\u00fasund \u00e1rum \u00e1 kaldar nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir \u00fear sem s\u00f3larlj\u00f3s er minna, r\u00e6ktun og neysla kornmetis \u00e1samt fleiri \u00fe\u00e1ttum, hafi breytt erf\u00f0av\u00edsum okkar. \u00deess vegna f\u00f6lnu\u00f0um vi\u00f0.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Til er k\u00ednversk sagan um h\u00fa\u00f0lit manna. Gu\u00f0 baka\u00f0i manninn \u00far deigi. Hann var of br\u00e1\u00f0l\u00e1tur \u00ed fyrstu tilraun og \u00fev\u00ed var\u00f0 ma\u00f0urinn hans hv\u00edtur, f\u00f6lur og hr\u00e1r. N\u00e6st h\u00e6kka\u00f0i hann hitann og \u00fe\u00e1 brann allt vi\u00f0. Svo t\u00f3kst \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn og ma\u00f0urinn var\u00f0 svona l\u00edka fallega gulbr\u00fann! <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">S\u00ednum augum l\u00edtur hver silfri\u00f0, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6kinu.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 erum eitt mannkyn, gulir, svartir, hv\u00edtir. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Jes\u00fas upph\u00f3f \u00fatlendinginn \u00ed s\u00f6gunni um hina t\u00edu l\u00edk\u00fer\u00e1u. Hann er okkar fyrirmynd og sama m\u00e1 segja um miskunnsama Samverjann.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">En svo m\u00e1 spyrja: Hver er \u00fatlendingur og hver ekki \u00ed \u00feessum heimi? \u00cdsland er alseti\u00f0 \u00fatlendingum. Vi\u00f0 erum \u00f6ll komin fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum, fr\u00e1 Noregi, Breltandsleyjum og v\u00ed\u00f0ar a\u00f0. Vi\u00f0 erum \u00fatlendingar. Og Bibl\u00edan s\u00e9r okkur \u00ed s\u00f6mu mynda. \u00cd Hebreabr\u00e9finu er tala\u00f0 um fyrri kynsl\u00f3\u00f0ir sem bi\u00f0u \u00feess a\u00f0 finna lausn \u00e1 tivistarvanda mannsins. \u00dear segir: <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u201eAllir \u00feessir menn d\u00f3u \u00ed tr\u00fa \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa \u00f6\u00f0last fyrirheitin. \u00deeir s\u00e1u \u00feau \u00e1lengdar og f\u00f6gnu\u00f0u \u00feeim og j\u00e1tu\u00f0u a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru gestir og \u00fatlendingar \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.\u201c (Heb 11.13)<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u00deegar d\u00fdpst er skyggnst \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 \u00fatlendingar \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0. Heimkynni okkar eru \u00e1 himnum og \u00feanga\u00f0 stefnum vi\u00f0. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u201eTilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag\u201c, kva\u00f0 T\u00f3mas, \u201evi\u00f0 erum gestir og h\u00f3tel okkar er j\u00f6r\u00f0in\u201c.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Og \u00feessi j\u00f6r\u00f0 er eina perlan sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00ed \u00f6llu s\u00f3lkerfinu sem er svo \u00f3gnarst\u00f3rt a\u00f0 vi\u00f0 getum ekki einu sinni \u00edmynda\u00f0 okkur st\u00e6r\u00f0 \u00feess, heilinn \u00ed okkur skilur ekki sl\u00edkar st\u00e6r\u00f0ir og fir\u00f0. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">J\u00f6r\u00f0in er undurf\u00f6gur. Geimfarar hafa l\u00fdst \u00fev\u00ed er \u00feeir s\u00e1u j\u00f6r\u00f0ina \u00far fjarska utan \u00far geimnum og gr\u00e9tu yfir fegur\u00f0 bl\u00e1a hnattarins. <\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u00cd dag er haldin umhverfisr\u00e1\u00f0stefna S\u00de og Alkirkjur\u00e1\u00f0i\u00f0, WCC, kemur einnig saman \u00feessa helgi og r\u00e6\u00f0ir loftslagsbreytingar sem or\u00f0i\u00f0 hafa af okkar v\u00f6ldum. Vi\u00f0 \u00f3gnum j\u00f6r\u00f0inni me\u00f0 neyslu okkar og l\u00edfsh\u00e1ttum. V\u00edsindin leita r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 minnka mengun og \u00fatbl\u00e1stur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a n\u00fd farart\u00e6ki me\u00f0 n\u00fdjum v\u00e9lum og \u00f6\u00f0ru eldsneyti en \u00fea\u00f0 dugar ekki. Lofslagsbreytingar hafa or\u00f0i\u00f0 og \u00fe\u00e6r munu halda \u00e1fram. H\u00f6fin eru a\u00f0 s\u00farna og eitur eykst og vex \u00ed l\u00edfr\u00edkinu. Bl\u00e1i hn\u00f6tturinn stefnir \u00ed a\u00f0 vera\u00f0 d\u00f6kkur mengunarbolti, \u00f6skuhaugur, og vi\u00f0 \u00feakin kaunum og l\u00edk\u00fer\u00e1 vegna eigin gr\u00e6\u00f0gi og rangra l\u00edsh\u00e1tta. \u00c9g er sekur \u00ed \u00feessum efnum og vi\u00f0 erum \u00fea\u00f0 \u00f6ll.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 hugsa um \u00feessa hluti og horfast \u00ed augu vi\u00f0 vandann og leita lausna me\u00f0 \u00f6\u00f0rum sem byggja \u00feessa j\u00f6r\u00f0. Til m\u00edn barst b\u00e6n eftir \u00fatlending, svartan mann, br\u00f3\u00f0ur okkar \u00ed S-Afr\u00edku, Desmond Tutu. H\u00fan lj\u00f3\u00f0ar svo:<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">\u201eVi\u00f0 h\u00f6fum komi\u00f0 \u00e1 hagkerfi sem \u00f3gnar l\u00edfinu. Vi\u00f0 h\u00f6fum breytt loftslaginu til hins verra svo a\u00f0 vi\u00f0&nbsp;drukknum \u00ed \u00f6rv\u00e6ntingu. Vi\u00f0 bi\u00f0jum \u00feess a\u00f0 v\u00f6tn r\u00e9ttl\u00e6tisins fl\u00e6\u00f0i og vi\u00f0 l\u00e6rum a\u00f0 var\u00f0veita og&nbsp;endurn\u00fdja l\u00edfi\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni sem er m\u00f3\u00f0ir okkar.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Vi\u00f0 bi\u00f0jum fyrir lei\u00f0togum \u00fej\u00f3\u00f0anna, r\u00e1\u00f0sm\u00f6nnum jar\u00f0arinnar, sem safnast saman \u00ed New York til a\u00f0&nbsp;r\u00e6\u00f0a um loftslagsm\u00e1l. Vi\u00f0 bi\u00f0jum \u00feess a\u00f0 \u00feeir komist a\u00f0 samkomulagi \u00ed speki og sanngirni og a\u00f0&nbsp;\u00feeir a\u00f0hafist me\u00f0 umhyggju og hugrekki og lei\u00f0i okkur \u00e1 vegu r\u00e9ttl\u00e6tisins fyrir sakir barna okkar&nbsp;og barnabarna.\u201c<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Or\u00f0 \u00fatlendings til okkar sem \u00f6ll erum gestir og \u00fatlendingar \u00e1 \u00feessari d\u00e1samlegu j\u00f6r\u00f0 sem Gu\u00f0 gaf okkur.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\">Amen.<\/span><\/p>\n<p class=\"p3\">Taxtar dagsins:<\/p>\n<p class=\"p3\">http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/14-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Til \u00fatlendinga Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju sunnudaginn 21. september 2014 &#8211; 14. sd. e. trin Umhverfisr\u00e1\u00f0stefna S\u00de er um s\u00f6mu helgi og fundur WCC um sama m\u00e1lefni. Textar dagsins eru ne\u00f0an\u00e1ls. H\u00e9r fyrir ne\u00f0an m\u00e1 hlusta \u00e1 og lesa r\u00e6\u00f0una.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[27,85,140,308,333,388,411,412,454,518,523,525,541,608,70,709,711],"class_list":["post-1479","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-alkirkjuradid","tag-barak-obama","tag-desmond-tutu","tag-holdsveiki","tag-jesus","tag-likthra","tag-lofstslag","tag-loftslagsradstefna-sth","tag-miskunn","tag-rettlaeti","tag-reykjavik","tag-reykvikingar","tag-samverji","tag-svartir","tag-utlendingar","tag-wcc","tag-worldk-council-of-churches"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1479","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1479"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1479\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1479"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1479"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1479"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}