{"id":1465,"date":"2014-08-31T16:16:06","date_gmt":"2014-08-31T16:16:06","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1465"},"modified":"2014-08-31T16:16:06","modified_gmt":"2014-08-31T16:16:06","slug":"dram-eda-audmykt-eda-kannski-eitthvad-annad","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1465","title":{"rendered":"Ofurmenni e\u00f0a aumingjar?"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/nietsche.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1467\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/nietsche.jpg?w=300\" alt=\"Nietsche\" width=\"300\" height=\"196\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun vi\u00f0 messu \u00ed Neskirkju<\/p>\n<p>sunnudaginn 31. \u00e1g\u00fast 2014 &#8211; 11. sd. e. trinitatis<\/p>\n<p><strong>Ofurmenni e\u00f0a\u00a0aumingjar?<\/strong><\/p>\n<p>Afsta\u00f0an til valdhafa og hins \u00e6\u00f0sta valds.<\/p>\n<p>R\u00e6tt var m.a. um gu\u00f0leysi, h\u00famanisma og kristni.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver fr\u00e1vik fr\u00e1 texta eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1465-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/trin-11-2014.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/trin-11-2014.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/trin-11-2014.mp3<\/a><\/audio>\n<p>N\u00e1\u00f0 . . .<\/p>\n<p>Hverjir eru bestir?<\/p>\n<p>Hverjir eru g\u00e1fa\u00f0astir?<\/p>\n<p>Hverjir eiga fallegasta landi\u00f0?<\/p>\n<p>Hreinasta vatni\u00f0?<\/p>\n<p>Bestu landb\u00fana\u00f0arafur\u00f0irnar?<\/p>\n<p>Besta fiskinn?<\/p>\n<p>Besta f\u00f3lki\u00f0?<\/p>\n<p>Kl\u00e1rustu stj\u00f3rnm\u00e1lamennina?<\/p>\n<p>\u00deessar upphr\u00f3panir eru eima\u00f0ar \u00fat \u00fat umr\u00e6\u00f0u daganna og \u00fea\u00f0 er eins og svarhr\u00f3pin \u00f3mi yfir landi\u00f0 \u00ed or\u00f0inu sem er samnefnari okkar:<\/p>\n<p>\u00cdslendingar!<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum stundum svo sj\u00e1lfh\u00e6lin sem \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 gengur brj\u00e1l\u00e6\u00f0i n\u00e6st. Sj\u00e1lfh\u00e6lnin birtir kannski fyrst og s\u00ed\u00f0ast andhverfu s\u00edna \u00fe.e. minnim\u00e1ttarkenndina \u00ed okkur, \u00fatkj\u00e1lkabrag og afdalamennsku? Engu er l\u00edkara en a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00e1 sumum t\u00edmum e\u00f0a andart\u00f6kum s\u00f6gunnar samsama\u00f0 okkur me\u00f0 ofurmenninu \u00ed anda Nietzsche. Ofurmenni\u00f0 \u00feurfti engin vi\u00f0mi\u00f0 nema sj\u00e1lfan sig. Hann var h\u00e1leit hugmynd heimspekings um manninn sem tegund, karl og konu, sem r\u00edsa \u00e6tti upp \u00far me\u00f0almennsku kristninnar sem s\u00f6g\u00f0 var vanr\u00e6kja jar\u00f0sambandi\u00f0 og horfa st\u00f6\u00f0ugt til handanverunnar og v\u00e6ri \u00fear me\u00f0 l\u00edfsfl\u00f3ttastefna. Og undir \u00feetta t\u00f3ku hugmyndafr\u00e6\u00f0ingar komm\u00fanismans og s\u00f6g\u00f0u tr\u00fana vera \u00f3p\u00edum fyrir f\u00f3lki\u00f0. Kristnin kann vissulega a\u00f0 hafa \u00e1 einum t\u00edma e\u00f0a \u00f6\u00f0rum, \u00e1 einum sta\u00f0 e\u00f0a \u00f6\u00f0rum, tj\u00e1\u00f0 sig me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti a\u00f0 himinninn hafi or\u00f0i\u00f0 svo eftirs\u00f3ttur a\u00f0 heimurinn hafi or\u00f0i\u00f0 halloka, skilinn eftir \u00e1 yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar eins og \u00f3n\u00fdtur hamur, aum kj\u00f6r f\u00f3lks \u00ed \u00feessum heimi veri\u00f0 leyst me\u00f0 \u00e1v\u00edsun \u00e1 himnas\u00e6lu. G\u00famm\u00edt\u00e9kkagu\u00f0fr\u00e6\u00f0i gengur aldrei upp. G\u00famm\u00edt\u00e9kkar eru \u00f3n\u00fdtir \u00ed hva\u00f0a mynd sem er. Kristind\u00f3murinn hefur l\u00edklega \u00ed aldanna r\u00e1s misskili\u00f0 flest af \u00fev\u00ed sem Jes\u00fas kenndi en um lei\u00f0 skili\u00f0 sumt m\u00e6ta vel og tekist jafnvel a\u00f0 halda \u00fev\u00ed sem best er. Nor\u00f0url\u00f6ndin eru e.t.v. eitt besta d\u00e6mi\u00f0 um vel heppna\u00f0a \u00farvinnslu \u00e1 kristnum hugmyndum \u00fear sem jar\u00f0sambandi\u00f0 og himnatengingin eru \u00ed \u00feokkalegu jafnv\u00e6gi.<\/p>\n<p>Nietzsche var \u00ed senn \u00e1 m\u00f3ti antisemitisma e\u00f0a gy\u00f0ingahatri og \u00fej\u00f3\u00f0ernisstefnu nazista [Nietzsche var uppi 1844-1900 og \u00fev\u00ed \u00e1 undan nazistum en ver\u00f0ur ekki kennt um \u00f6fgar og afb\u00f6kun \u00feeirrar stefnu] en \u00feeir n\u00fdttu s\u00e9r samt kenningar hans og h\u00e9ldu \u00e1 lofti s\u00ednum hugmyndum um ofurmenni\u00f0, ar\u00edann g\u00f3\u00f0a og fagra &#8211; fagra \u00ed merkingunni lj\u00f3s. Nietzsche var f\u00f3rnarlamb rangt\u00falkana manna \u00e1 hans eigin hugmyndum og sama m\u00e1 segja um Krist \u00e1 \u00f6llum \u00f6ldum.<\/p>\n<p>Ef vi\u00f0 erum ekki ofurmenni og \u00fea\u00f0an af s\u00ed\u00f0ur aumingjar, hva\u00f0 erum vi\u00f0 \u00fe\u00e1?<\/p>\n<p>Hvar sta\u00f0setjum vi\u00f0 okkur \u00ed l\u00edfinu sem einstaklingar og \u00fej\u00f3\u00f0? Hva\u00f0a vi\u00f0mi\u00f0 h\u00f6fum vi\u00f0? Eigum vi\u00f0 okkur einhver \u00e6\u00f0ri vi\u00f0mi\u00f0 e\u00f0a erum vi\u00f0 sj\u00e1lf mi\u00f0ja alheimsins?<\/p>\n<p>N\u00fa vex \u00feeim hugmyndum fiskur um hrygg \u00ed samt\u00ed\u00f0 okkar a\u00f0 ma\u00f0urinn s\u00e9 mi\u00f0ja alls, a\u00f0 hann \u00feurfi engin vi\u00f0mi\u00f0 \u00f6nnur en sj\u00e1lfan sig, \u00feurfi engum a\u00f0 l\u00fata, ekkert a\u00f0 vir\u00f0a, nema eigin sko\u00f0anir, eigin vilja, eigin nafla.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 karlinn Marteinn L\u00father hef\u00f0i sagt n\u00fa, ef hann gengi me\u00f0 hamar sinn, nagla og skjal um Vesturb\u00e6inn til a\u00f0 negla \u00e1 dyr \u00feessa h\u00fass, veit \u00e9g ekki, en hann sag\u00f0i \u00e1 s\u00ednum t\u00edma a\u00f0 mesti vandi mannsins v\u00e6ri s\u00e1 a\u00f0 hann v\u00e6ri kengboginn inn \u00ed sj\u00e1lfan sig, a\u00f0 synd hans, brotal\u00f6min \u00ed l\u00edfi hans, ger\u00f0i hann &#8211; incurvatus in se &#8211; upphaf og endi sj\u00e1lfs s\u00edns. \u00deannig er hinn gu\u00f0lausi ma\u00f0ur, hann \u00e1 ekkert nema sj\u00e1lfan sig og \u00f6nnur sko\u00f0anasystkin. Afsta\u00f0a gu\u00f0leysingja e\u00f0a h\u00famanista er \u00e1 margan h\u00e1tt heillandi og hugr\u00f6kk, skal \u00e9g vi\u00f0urkenna og \u00ed augum sumra jafnvel f\u00f6gur og frelsandi, en \u00ed augum \u00feess sem vill eiga s\u00e9r \u00e6\u00f0ra vi\u00f0mi\u00f0 er h\u00fan ekki eins g\u00f6fug og alls ekki frelsandi. Frelsi\u00f0 er margslungi\u00f0 hugtak. Or\u00f0i\u00f0 frj\u00e1ls er mynda\u00f0 af fr\u00ed-h\u00e1ls og v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 vera laus vi\u00f0 hlekki s\u00edna. Frelsi er oft misskili\u00f0 sem lausn fr\u00e1 \u00f6llu \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0 sem lausn til einhvers. Fermingarb\u00f6rnin r\u00e6ddu vi\u00f0 mig \u00e1 d\u00f6gunum um hv\u00edldardaginn \u00ed Bo\u00f0or\u00f0unum t\u00edu og fannst sumum \u00fea\u00f0 bo\u00f0or\u00f0 vera \u00f3\u00fearft og algj\u00f6rlega \u00farelt. \u00c9g spur\u00f0i \u00fe\u00e1 hvort \u00feau vildu hafa kennslu \u00e1 laugard\u00f6gum eins og var \u00feegar \u00e9g var str\u00e1kur. Nei, \u00fea\u00f0 vildu \u00feau ekki og alls ekki a\u00f0 kennt v\u00e6ri \u00e1 sunnud\u00f6gum. \u00deau skildu nefnilega bo\u00f0or\u00f0i\u00f0 sem skyldukv\u00f6\u00f0 um eitthva\u00f0 neikv\u00e6tt \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0 sem frelsi fr\u00e1 vinnu e\u00f0a n\u00e1mi, frelsi til a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0 en alla hina dagana. Og hva\u00f0an skyldi n\u00fa s\u00fa hugmynd vera komin a\u00f0 gefa f\u00f3lki einn fr\u00eddag \u00ed viku, og ekki bara frj\u00e1lsum m\u00f6nnum heldur l\u00edka \u00fer\u00e6lum og amb\u00e1ttum Nota Bene, bur\u00f0ar- og dr\u00e1ttard\u00fdrum l\u00edka!? Hugmyndin er komin fr\u00e1 Gy\u00f0ingum og \u00fea\u00f0an inn \u00ed kristnina. Vi\u00f0 eigum fr\u00eddag sem frelsar okkur undan skyldukv\u00f6\u00f0 vinnu og \u00fer\u00e6ld\u00f3ms og fr\u00eddagurinn er \u00fear me\u00f0 gj\u00f6f himinsins handa s\u00ed\u00fereyttum jar\u00f0arb\u00f6rnum. Svo er hitt hvernig vi\u00f0 verjum hv\u00edldardeginum &#8211; og \u00fear b\u00faum vi\u00f0 vi\u00f0 frelsi!<\/p>\n<p>J\u00e1, \u00fea\u00f0 er vandi a\u00f0 vera frj\u00e1ls \u00fev\u00ed frj\u00e1ls ma\u00f0ur \u00e1 val.<\/p>\n<p>Hvar sta\u00f0setjum vi\u00f0 okkur \u00ed heiminum? Erum vi\u00f0 best og kl\u00e1rust? Stundum \u00f6rlar \u00e1 \u00f3heilbrig\u00f0ri \u00fej\u00f3\u00f0ernishyggju \u00ed umr\u00e6\u00f0u daganna h\u00e9r \u00e1 landi. Sumir tala opinberlega \u00ed anda slagor\u00f0anna sem sett voru fram h\u00e9r \u00ed upphafi. Sumt \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum \u00cdslendinga kemur m\u00e9r stundum fyrir sj\u00f3nir sem gamaldags og \u00farelt. Sumir tala eins og \u00feeir hafi daga\u00f0 uppi \u00e1 19. \u00f6ld \u00feegar afsta\u00f0an til almennings birtist \u00ed m\u00e1li \u00feeirra, a\u00f0 ma\u00f0ur tali n\u00fa ekki um afst\u00f6\u00f0una til valdsins sem \u00feeir telja sig hafa og vilja beita a\u00f0 eigin ge\u00f0\u00fe\u00f3tta.<\/p>\n<p>Ef sumir eru gamaldags og fastir \u00e1 19. \u00f6ldinni, m\u00e6tti spyrja hvort presturinn s\u00e9 ekki sj\u00e1lfur fastur \u00ed hj\u00f3lf\u00f6rum 1. aldar? J\u00fa, hann er au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 \u00feeim vegi, vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e1 var kennt af \u00feeim manni sem flesta fylgjendur \u00e1 \u00ed heiminum, jafnvel \u00e1 21. \u00f6ld!hefur enn ekki veri\u00f0 hraki\u00f0 me\u00f0 r\u00f6kum svo a\u00f0 or\u00f0 hans ver\u00f0i send \u00ed \u00fareldingu eins og gamall og ry\u00f0ga\u00f0ur togari. Enn siglir fley hans um sn\u00e6fextar drafnir \u00feessa heims og b\u00fd\u00f0ur f\u00f3lki far og til \u00e6fingar \u00ed \u00feeim l\u00ednudansi sem l\u00edfi\u00f0 er og ver\u00f0ur, l\u00ednudansi milli \u00f6fga tilverunnar, jafnv\u00e6gis himins og heims.<\/p>\n<p>\u00cd gu\u00f0spjalli dagsins segir Jes\u00fas s\u00f6gu af tveim m\u00f6nnum, annar er hnakkakerrtur og viss \u00ed sinni s\u00f6k en hinn er beyg\u00f0ur og au\u00f0mj\u00fakur. Hann teflir \u00feeim fram sem andst\u00e6\u00f0um og dregur sj\u00e1lfur \u00e1lyktun af s\u00f6gunni, velur annan umfram hinn. Oft l\u00e9t hann \u00e1heyrendum eftir a\u00f0 velja en ekki h\u00e9r. Hann hafnar hinum hrokafulla sem telur sig bestan en upphefur hinn sem veit sig vera \u00feurfamann Gu\u00f0s. L\u00edfi\u00f0 er l\u00ednudans. A\u00f0 vera h\u00e1leitur og hugumst\u00f3r getur veri\u00f0 dygg\u00f0 en l\u00edka l\u00f6stur og au\u00f0m\u00fdkt getur einnig veri\u00f0 dygg\u00f0 en l\u00edka l\u00f6stur \u00feegar h\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 undirl\u00e6gjuh\u00e6tti. Dygg\u00f0ir kristninnar hafa yfirv\u00f6ld og \u00fear me\u00f0 kirkjan nota\u00f0 \u00ed aldanna r\u00e1s til a\u00f0 halda f\u00f3lki ni\u00f0ri, \u00feagga ni\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed og \u00fe\u00fasta \u00fea\u00f0 en allir sl\u00edkir tilbur\u00f0ir eru au\u00f0vita\u00f0 mist\u00falkun og misbeiting \u00feess erindis sem kennt er fri\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0 og fri\u00f0, r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika. \u00dea\u00f0 er vont \u00feegar sl\u00edkt gerist en \u00fear me\u00f0 eru dygg\u00f0irnar ekki \u00fareltar. Mestu skiptir a\u00f0 hafa r\u00e9tta afst\u00f6\u00f0u til hlutanna. Sumir l\u00edta \u00e1 Gu\u00f0 sem rei\u00f0an himnaf\u00f6\u00f0ur og eru hr\u00e6ddir vi\u00f0 hann me\u00f0an a\u00f0rir l\u00edta \u00e1 hann sem vin sem unnt er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 um allt milli himins og jar\u00f0ar.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 m\u00e6tti nefna h\u00e9r a\u00f0 kristin tr\u00fa er ekki bo\u00f0 og b\u00f6nn, l\u00f6gm\u00e1l og skyldukv\u00f6\u00f0 vi\u00f0 \u00f3sveigjanlegan Gu\u00f0 heldur vin\u00e1ttusamband. Tr\u00fain er \u00ed innsta e\u00f0li samfylgd \u00e1 vegi vin\u00e1ttu og elsku. Kristin tr\u00fa er \u00e1starasamband Gu\u00f0s og manns: \u00dev\u00ed svo elska\u00f0i Gu\u00f0 heiminn a\u00f0 hann gaf son sinn, segir \u00ed kjarna NT. Kristin tr\u00fa er \u00fear me\u00f0 ekki tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, kenningarkerfi og l\u00f6gm\u00e1lsb\u00e6kur, heldur frj\u00e1ls lei\u00f0 til a\u00f0 finna hi\u00f0 r\u00e9tta \u00ed samtali pers\u00f3na, samtali Gu\u00f0s og manns \u00ed gegnum b\u00e6n og lestur og p\u00e6lingar. H\u00fan er samfylgt me\u00f0 honum sem sag\u00f0ist vera vegurinn. \u00deessi hugsun um samtal Gu\u00f0s og manns kemur sk\u00fdrt fram \u00ed upphafsb\u00e6n messunnar, me\u00f0hj\u00e1lparab\u00e6ninni \u00edslensku:<\/p>\n<p>\u201eDrottinn, \u00e9g er kominn \u00ed \u00feitt heilaga h\u00fas til a\u00f0 lofa \u00feig og \u00e1kalla og til a\u00f0 heyra, hva\u00f0 \u00fe\u00fa, Gu\u00f0 fa\u00f0ir, skapari minn, \u00fe\u00fa, Drottinn Jes\u00fas, frelsari minn, \u00fe\u00fa, heilagi andi, huggari minn, vilt vi\u00f0 mig tala \u00ed \u00fe\u00ednu or\u00f0i . . . \u201c<\/p>\n<p>\u00deetta er samtal, samvera, samskipti . . .<\/p>\n<p>Messan er samtal Gu\u00f0s og manns, b\u00e6nin er \u00fea\u00f0 l\u00edka og altarisgangan er bo\u00f0 um \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku allra \u00ed veislu himinsins og \u00ed \u00feeirri mission Krists a\u00f0 gera \u00feennan heim betri, r\u00e9ttl\u00e1tari og sanngjarnari. H\u00fan er opinn fa\u00f0mur \u00fear sem allir mega nj\u00f3ta \u00feess sem \u00ed bo\u00f0i er.<\/p>\n<p>L\u00edf tr\u00faa\u00f0s manns er samr\u00e6\u00f0a vi\u00f0 Gu\u00f0. M\u00f3se f\u00e9kk Gu\u00f0 meira a\u00f0 segja til a\u00f0 skipta um sko\u00f0un og skotinn sem valdi eigin grafskrift l\u00e9t h\u00f6ggva \u00feetta \u00e1 legstein sinn:<\/p>\n<p>H\u00e9r hv\u00edlir Martin Elginbrod<\/p>\n<p>Miskunna s\u00e1lu minni, Drottinn Gu\u00f0,<\/p>\n<p>eins og \u00e9g mundi gera<\/p>\n<p>ef \u00e9g v\u00e6ri Drottinn<\/p>\n<p>og \u00fe\u00fa v\u00e6rir Martin Eglinbrod.<\/p>\n<p>Hvorum megin \u00e6tli \u00feessi Martin st\u00e6\u00f0i \u00ed d\u00e6mis\u00f6gu dagsins? Kannski mitt \u00e1 milli \u00feeirra tveggja sem sagt er fr\u00e1. \u00cd \u00fea\u00f0 minnsta hugnast m\u00e9r vel \u00feessi kump\u00e1nlega afsta\u00f0a \u00fev\u00ed h\u00fan er \u00ed vissum skilningi \u00ed anda \u00feeirrar vestfirsku afst\u00f6\u00f0u til valdsins sem \u00e9g \u00f3lst upp vi\u00f0. Ber\u00f0u h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 h\u00e1tt og hugsa\u00f0u st\u00f3rt en gleymdu aldrei\u00a0hl\u00fdrri afst\u00f6\u00f0u hjartans.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur u aldir aldar. Amen.<\/p>\n<p>Textar dagsins:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/11-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/\">http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/11-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Pr\u00e9dikun vi\u00f0 messu \u00ed Neskirkju sunnudaginn 31. \u00e1g\u00fast 2014 &#8211; 11. sd. e. trinitatis Ofurmenni e\u00f0a\u00a0aumingjar? Afsta\u00f0an til valdhafa og hins \u00e6\u00f0sta valds. R\u00e6tt var m.a. um gu\u00f0leysi, h\u00famanisma og kristni. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver fr\u00e1vik fr\u00e1 texta eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[2],"tags":[40,96,147,166,243,247,313,319,357,468,469,481,482,489,640,664,665,696],"class_list":["post-1465","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad-uncategorized","tag-audmykt","tag-bestir","tag-dramb","tag-elska","tag-gud","tag-gudleysi","tag-hrosun","tag-humanismi","tag-kommunismi","tag-nasismi","tag-nazismi","tag-nietsche","tag-nietzsche","tag-ofurmenni","tag-tru","tag-vald","tag-valdhafar","tag-vinatta"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1465","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1465"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1465\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1465"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1465"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1465"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}