{"id":1437,"date":"2014-08-15T17:21:53","date_gmt":"2014-08-15T17:21:53","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1437"},"modified":"2014-08-15T17:21:53","modified_gmt":"2014-08-15T17:21:53","slug":"birgir-h-thorisson-1951-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1437","title":{"rendered":"+Birgir H \u00de\u00f3risson 1951-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/birgir-c3bec3b3risson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/birgir-c3bec3b3risson.png?w=298\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1438\" width=\"298\" height=\"300\" alt=\"Birgir \u00de\u00f3risson\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Birgir \u00de\u00f3risson<\/b><\/p>\n<p>1951-2014<\/p>\n<p>F\u00e1fnisnesi 5, Reykjav\u00edk<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 15. \u00e1g\u00fast 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot eru \u00ed r\u00e6\u00f0unni sem ekki eru \u00ed textanum.<\/p>\n<p>Ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1437-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/birgir-c3bec3b3risson.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/birgir-c3bec3b3risson.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/birgir-c3bec3b3risson.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g var drengur uppi \u00e1 Seljalandsdal \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og menn voru b\u00fanir a\u00f0 leggja svigbrautina og \u00fejappa me\u00f0 sk\u00ed\u00f0um s\u00ednum, \u00fev\u00ed enginn var snj\u00f3tro\u00f0arinn, \u00fe\u00e1 f\u00f3r undanfarinn ni\u00f0ur brautina til a\u00f0 pr\u00f3fa hana. Svo h\u00f3fst keppnin. Svk. or\u00f0ab\u00f3k er undanfari \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur sem reynir svigbraut fyrir keppni en er ekki me\u00f0al keppenda. En or\u00f0i\u00f0 v\u00edsar l\u00edka til \u00feess sem fer fyrstur, almennt tala\u00f0, fer \u00e1 undan og einnig til \u00feess sem bo\u00f0ar eitthva\u00f0, er bo\u00f0beri t\u00ed\u00f0inda, segir fr\u00e1, segir s\u00f6gu.<\/p>\n<p>Saga.<\/p>\n<p>S\u00f6gur.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lifum \u00ed s\u00f6gu og lifum fyrir s\u00f6gur.<\/p>\n<p>L\u00edf okkar er saga me\u00f0 upphafi, framvindu og endi. Fr\u00e6\u00f0imenn sem rannsaka\u00f0 hafa s\u00f6gur \u00e1 \u00f3l\u00edkum t\u00edmum og menningarsv\u00e6\u00f0um greina munstur e\u00f0a sni\u00f0 sem \u00e1 einfaldan h\u00e1tt m\u00e1 greina \u00ed \u00ferj\u00fa stig: upphaf, \u00e6vint\u00fdri og endahn\u00fatur.<\/p>\n<p>\u00deetta einfalda form einkennir allar g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur, alla brandara l\u00edka. Hin mikla b\u00f3k og grunnur Vestr\u00e6nnar menningar sem pr\u00fd\u00f0ir altari\u00f0 h\u00e9r og allra kirkna fellur a\u00f0 \u00feessu sama sni\u00f0m\u00e1ti. \u00dea\u00f0 er merkilegt \u00fev\u00ed h\u00fan er ekki ritu\u00f0 af einum og sama h\u00f6fundi heldur er h\u00fan safn margra tuga rita. H\u00fan er b\u00f3kasafn &#8211; bibliotek. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 geymir h\u00fan \u00feetta sni\u00f0 sem um er r\u00e6tt. \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 vegna \u00feess a\u00f0 a\u00f0 baki henni er \u00e6\u00f0ri hugur sem \u00ed raun ritst\u00fdr\u00f0i verkinu? E\u00f0a, b\u00fdr \u00ed henni sammannleg \u00fer\u00e1, von og tr\u00fa, s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0ur, vonarsaga sem b\u00fdr \u00ed brj\u00f3sti allra manna \u00e1 \u00f6llu t\u00edmum? Sni\u00f0m\u00e1t Bibl\u00edunnar m\u00e1 me\u00f0 einf\u00f6ldum h\u00e6tti l\u00fdsa me\u00f0 \u00feremur or\u00f0um: sk\u00f6pun &#8211; fall &#8211; endurlausn. Gu\u00f0 skapa\u00f0i mann og heim &#8211; ma\u00f0urinn h\u00e9lt \u00fat \u00e1 l\u00edfsveginn &#8211; og ma\u00f0urinn br\u00e1st sj\u00e1lfum s\u00e9r og Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>Hann f\u00e9ll.<\/p>\n<p>\u00deess vegna kom Kristur til a\u00f0 lei\u00f0a hann aftur inn \u00e1 hinn r\u00e9tta veg.<\/p>\n<p>B\u00f3k b\u00f3kanna er eins og allar a\u00f0rar g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur sem byrja vel, svo kemur fl\u00e6kjustigi\u00f0 og loks sigrar s\u00f6guhetjan \u00ed lokin. Flestar kvikmyndir heimsins hafa \u00feetta sama sni\u00f0m\u00e1t hvort sem \u00fe\u00e6r eru framleiddar \u00ed Hollywood, Bollywood og e\u00f0a \u00f6\u00f0rum v\u00faddum heimsins.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 komu h\u00e9r saman til a\u00f0 minnast g\u00f3\u00f0s drengs, segja s\u00f6gu hans, taka s\u00f6gu hans \u00fat \u00ed stuttu m\u00e1li og l\u00edka til a\u00f0 finna \u00fer\u00e1\u00f0inn til a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 lifa, \u00edhuga tilvist okkar, sorgir og gle\u00f0i, finna s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn sem lei\u00f0ir til g\u00f3\u00f0rar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>L\u00edf okkar \u00e1 s\u00e9r upphaf, svo kemur \u00e6vint\u00fdri\u00f0, fl\u00e6kjustigi\u00f0 og loks lausnin.<\/p>\n<p>\u00dei\u00f0 kunni\u00f0 a\u00f0 undarast \u00feetta tal og hugsi\u00f0 e.t.v. me\u00f0 ykkur a\u00f0 s\u00f6gulokin \u00ed \u00feessu tilfelli hafi n\u00fa ekki haft g\u00f3\u00f0an endi og \u00fev\u00ed skj\u00f6plist presti hrapalega. En \u00fev\u00ed er til a\u00f0 svara a\u00f0 \u00e9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 sagan s\u00e9 alls ekki b\u00fain. Besti hlutinn er eftir. \u00deetta skynja\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0 Einar Benediktsson er hann orti s\u00e1lm sem hefst \u00e1 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n<p>Hva\u00f0 bindur vorn hug vi\u00f0 heimsins glaum,<br \/>\nsem himnaarf skulum taka?<br \/>\nOss dreymir \u00ed lei\u00f0slu l\u00edfsins draum,<br \/>\nen l\u00e1tumst \u00fe\u00f3 allir vaka,<br \/>\nog hryllir vi\u00f0 dau\u00f0ans d\u00f6kkum straum,<br \/>\n\u00fe\u00f3 dau\u00f0inn oss megi&#8217; ei saka.<\/p>\n<p>Sama hugsun kemur fram \u00ed upphafss\u00e1lmi \u00feessarar athafnar eftir forf\u00f6\u00f0ur \u00d6nnu Laufeyjar.<\/p>\n<p>Sagan g\u00f3\u00f0a &#8211; sem vi\u00f0 vorum tekinn inn \u00ed sem leikarar \u00e1 svi\u00f0i l\u00edfsins me\u00f0 v\u00edgslu sk\u00edrnarinnar, lei\u00f0ir til fars\u00e6ls endis \u00fer\u00e1tt fyrir erfi\u00f0leika \u00ed mi\u00f0kafla \u00e6vint\u00fdrisins og fl\u00e6kjustig &#8211; sagan mun enda vel \u00fer\u00e1tt fyrir allt.<\/p>\n<p>\u00d3sk m\u00edn er a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00edhugi\u00f0 einmitt \u00feetta \u00e1 sorgarstund \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum Birgi \u00de\u00f3risson, a\u00f0 s\u00f6gulokin sj\u00e1lf eru eftir, sigurinn kemur.<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r er sorgarath\u00f6fn en h\u00fan er um lei\u00f0 \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 minnumst g\u00f3\u00f0s drengs sem horfinn er allt of snemma.<\/p>\n<p>Birgir Hannes h\u00e9t hann og f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 13. jan\u00faar 1951. Hann l\u00e9st \u00e1 krabbameinsdeild Landsp\u00edtalsins 3. \u00e1g\u00fast 2014. Foreldrar hans eru Hanna Bj\u00f6rk Felixd\u00f3ttir, f. 1929, og \u00de\u00f3rir J\u00f3nsson, f. 1926. Seinni kona \u00de\u00f3ris er L\u00e1ra L\u00e1rusd\u00f3ttir. B\u00f6rn H\u00f6nnu og \u00de\u00f3ris eru Sigr\u00ed\u00f0ur J\u00f3na, maki Sigurj\u00f3n Sighvatsson, Gu\u00f0munda Helena, maki Sigur\u00f0ur G\u00edsli P\u00e1lmason, og Heba, maki Shepherd Stevenson. Hanna \u00e1 Gr\u00e9tar Felixson, maki Gu\u00f0laug Ingvad\u00f3ttir. \u00de\u00f3rir \u00e1 Sigfr\u00ed\u00f0i.<\/p>\n<p>Birgir kv\u00e6ntist \u00d6nnu Laufeyju Sigur\u00f0ard\u00f3ttur 1992. Foreldrar hennar voru Sigur\u00f0ur H. Egilsson og Sigr\u00ed\u00f0ur \u00de. Bjarnar sem b\u00e6\u00f0i eru l\u00e1tin. B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n<p>Hanna Krist\u00edn, f. 1989,<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur Helgi, f. 1991 og<\/p>\n<p>Egill Sn\u00e6r, f. 1997.<\/p>\n<p>Maki H\u00f6nnu er \u00c1rni Geir \u00dalfarsson og d\u00f3ttir \u00feeirra er \u00d6rk, f. 2011.<\/p>\n<p>Unnusta Sigur\u00f0ar er S\u00f3lveig \u00c1sta Einarsd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>Fyrir \u00e1 Birgir<\/p>\n<p>J\u00f3runni \u00d6glu, f. 1974, me\u00f0 Ingunni Egilsd\u00f3ttur, og<\/p>\n<p>Andra M\u00e1, f. 1988, me\u00f0 J\u00f3nu \u00de\u00f3rd\u00edsi Magn\u00fasd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Maki \u00d6glu er Egbert van Rappard og sonur \u00feeirra er Noah Birgir Semijns (frb. Sem\u00e6ns), f. 2013.<\/p>\n<p>Maki Andra er Ingveldur D\u00eds Hei\u00f0arsd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>Birgir gekk \u00ed Hl\u00ed\u00f0ask\u00f3la og lauk gagnfr\u00e6\u00f0apr\u00f3fi fr\u00e1 \u00c1rm\u00falask\u00f3la. Hann lauk framhaldsn\u00e1mi fr\u00e1 I\u00f0nsk\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk \u00ed v\u00e9lt\u00e6kni. A\u00f0 n\u00e1mi loknu starfa\u00f0i hann um \u00e1rabil hj\u00e1 \u00de. J\u00f3nssyni &amp; Co og Sveini Egilssyni. Hann starfr\u00e6kti verslun \u00ed K\u00f3pavogi og s\u00ed\u00f0ar framk\u00f6llunarstofu \u00ed \u00c1rm\u00fala. S\u00ed\u00f0ar var Birgir forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur og me\u00f0eigandi fasteignaf\u00e9lagsins Heimiliskaupa og fleiri tengdra f\u00e9laga til d\u00e1nardags.<\/p>\n<p>Birgir var alla t\u00ed\u00f0 mikill \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur og \u00ed\u00fer\u00f3ttaunn- andi. Hann keppti til margra \u00e1ra \u00e1 sk\u00ed\u00f0um fyrir sk\u00ed\u00f0adeild KR og var einn af h\u00f6r\u00f0ustu stu\u00f0ningsm\u00f6nnum KR. Uppbygging sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0is KR-inga \u00ed Sk\u00e1lafelli var honum hugleikin. Birgir var einnig virkur \u00ed f\u00e9- lagsst\u00f6rfum, hann var \u00ed Lions- kl\u00fabbi Reykjav\u00edkur og virkur f\u00e9lagi \u00ed AA-samt\u00f6kunum \u00ed 30 \u00e1r. Hann stunda\u00f0i sund \u00e1 hverjum degi og var kylfingur \u00ed fr\u00edstundum. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 leika golf. Hver er forgj\u00f6fin okkar \u00ed l\u00edfinu, hva\u00f0 \u00feurfum vi\u00f0 mikla fyrirgefning?<\/p>\n<p>\u00d6ll eigum vi\u00f0 okkar s\u00f6gu, l\u00edfss\u00f6gu \u00fear sem margt gerist og \u00e1 vonandi eftir a\u00f0 gerast. Og svo kemur lausnin.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskylda og vinir rifju\u00f0u upp \u00e6vi Birgis \u00ed m\u00edn eyru og \u00fear var margt gott sem bar \u00e1 g\u00f3ma, a\u00f0eins gott og fagurt, skemmtilegt og einl\u00e6gt.<\/p>\n<p>Hann var \u00e6\u00f0rulaus. Hann var mannvinur. Hann var vandvirkur, h\u00f3gv\u00e6r og yfirvega\u00f0ur. Alltaf var gott a\u00f0 hitta Birgi. Hann geisla\u00f0i fr\u00e1 s\u00e9r r\u00f3lyndi og fri\u00f0i, f\u00f3r aldrei \u00f3\u00f0slega a\u00f0 f\u00f3lki, tala\u00f0i r\u00f3lega og af viti.<\/p>\n<p>Anna Laufey og b\u00f6rnin hafa misst miki\u00f0. Hann var einstakur eiginma\u00f0ur og fa\u00f0ir, hugulsamur og elskur\u00edkur, vakinn og sofinn yfir velfer\u00f0 \u00feeirra. \u201eHann leyf\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 vera eins og \u00e9g er\u201c, segir Anna. Hann s\u00fdndi \u00f6llum hl\u00fdju, vir\u00f0ingu og pr\u00fa\u00f0mennsku. Hann var vark\u00e1r \u00ed tali en \u00feegar hann h\u00f3f upp raust s\u00edna \u00fe\u00e1 t\u00f3lk f\u00f3lk eftir \u00fev\u00ed sem hann sag\u00f0i. Hann f\u00f3r snemma \u00e1 f\u00e6tur og vissi a\u00f0 morgunstund gefur gull \u00ed mund. Hann geymdi t.d. vasalj\u00f3s \u00ed n\u00e1ttbor\u00f0sk\u00faffunni til a\u00f0 geta l\u00e6\u00f0st fram\u00far snemma \u00e1n \u00feess a\u00f0 vekja \u00d6nnu. Svona var umhyggja hans. Um t\u00edma st\u00f3\u00f0 hann og bl\u00e9s h\u00e1rtopp d\u00f3ttur sinnar hvern morgun \u00e1\u00f0ur en h\u00fan f\u00f3r \u00ed sk\u00f3lann enda var\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 takast fullkomlega.<\/p>\n<p>Hann leyf\u00f0i b\u00f6rnum s\u00ednum a\u00f0 fara eigin lei\u00f0ir en fylgdi \u00feeim fast eftir sem stoltur fa\u00f0ir. Hann var \u00feeim fr\u00e1b\u00e6r fyrirmynd, regluma\u00f0ur, heill og sannur.<\/p>\n<p>Hann bar skyn \u00e1 v\u00e9lar, t\u00f3l og t\u00e6ki og b\u00edlar voru eitt af hans m\u00f6rgu \u00e1hugam\u00e1lum. Hann skildi e\u00f0li og gangverk flestra hluta.<\/p>\n<p>Hann \u00feekkti landi\u00f0 eins og l\u00f3fana \u00e1 s\u00e9r og fr\u00e6ddi b\u00f6rnin um \u00f6rnefni og s\u00f6gur \u00e1 fer\u00f0um me\u00f0 \u00feeim um landi\u00f0. Svo var stanza\u00f0 og fari\u00f0 \u00fat \u00ed m\u00f3 og \u00fe\u00e1 dr\u00f3 hann fram pr\u00edmusinn og laga\u00f0i ilmandi kaffi handa \u00d6nnu og dr\u00f3 fram gott nesti handa \u00f6llum, mat og drykk.<\/p>\n<p>Hann var jafnan \u00e1 undan \u00f6\u00f0rum og b\u00fainn a\u00f0 plana hlutina vel enda vakna\u00f0ur fyrir allar aldir og b\u00fainn a\u00f0 fara \u00ed sund \u00feegar a\u00f0rir voru enn me\u00f0 st\u00fdrurnar \u00ed augunum.<\/p>\n<p>Hann var mj\u00f6g virkur \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfi og kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0. Hann var \u00f6flugur og \u00e1kafur stu\u00f0ningsma\u00f0ur KR og svo voru \u00fea\u00f0 kl\u00fabbarnir b\u00e6\u00f0i rennblautir og svo skrauf\u00feurrir, Potturinn, Arnarkl\u00fabburinn, B-k\u00fabburinn og Helgarh\u00f3purinn svo nokkrir s\u00e9u nefndir og svo AA. \u00de\u00e1 fylgdist hann me\u00f0 enska boltanum og \u00ed\u00fer\u00f3ttum yfirleitt.<\/p>\n<p>Hann lif\u00f0i reglus\u00f6mu l\u00edfi og var AA-ma\u00f0ur af l\u00edfi og s\u00e1l og stunda\u00f0i \u00fea\u00f0 starfa \u00ed \u00ferj\u00e1 \u00e1ratugi. T\u00f3lfsporakerfi\u00f0 me\u00f0 sinni visku er mikill og g\u00f3\u00f0ur sk\u00f3li og \u00fear l\u00e6r\u00f0i Birgir margt um l\u00edfi\u00f0 og um sj\u00e1lfan sig. Hann var \u00e1 margan h\u00e1tt vitur ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Hann var fr\u00e1b\u00e6r kokkur og mikill grillmeistari og ef hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 hafa hrygg e\u00f0a l\u00e6ri um helgina \u00fe\u00e1 var b\u00fai\u00f0 a\u00f0 kaupa hr\u00e1efni\u00f0 \u00e1 \u00feri\u00f0judegi til a\u00f0 l\u00e1ta \u00fea\u00f0 vera n\u00e1kv\u00e6mlega r\u00e9tt \u00feroska\u00f0 fyrir steikingu \u00e1 neysludegi.<\/p>\n<p>Hann kunni a\u00f0 skapa stemmingu, ra\u00f0a f\u00f3lki r\u00e9tt saman og efla samf\u00e9lag \u00feess.<\/p>\n<p>Svo var\u00f0 hann afi og \u00fe\u00e1 h\u00f3fst alveg n\u00fdr kafli \u00ed s\u00f6gu hans. Hann opna\u00f0ist allur og fann barni\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r. Litla afastelpan, \u00d6rk, br\u00e6ddi hjarta hans og f\u00e9kk hann til a\u00f0 gera hva\u00f0 sem var eins og t.d. \u00feegar h\u00fan setti \u00e1 hann varalit! \u00de\u00e1 var Biggi gla\u00f0ur og litr\u00edkur! Svo f\u00e6ddist afastr\u00e1kur og nafni sem ver\u00f0ur sk\u00edr\u00f0ur n.k. sunnudag. Hann var stoltur af \u00feeim og \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 lifa og fylgjast me\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum, barnab\u00f6rnum og \u00e1stvinum og l\u00edfss\u00f6gu \u00feeirra.<\/p>\n<p>Hann reyndist tengdaforeldrum s\u00ednum afar vel og l\u00e9t ekki sitt eftir liggja \u00feegar unni\u00f0 var vi\u00f0 b\u00fasta\u00f0 \u00feeirra \u00ed Hv\u00edt\u00e1rs\u00ed\u00f0u. Hann var \u00feeim yndislegur tengdasonur og systkinum \u00d6nnu g\u00f3\u00f0ur m\u00e1gur. Systkinum s\u00ednum reyndist hann vel og reyndar \u00f6llum. Hann f\u00f3r ekki \u00ed manngreinar\u00e1lit. Hann leig\u00f0i m\u00f6rgum um \u00e6vina og flestir ef ekki allir ur\u00f0u \u00f3\u00f0ar vinir hans. Hann leig\u00f0i t.d. m\u00f6rgum einst\u00e6\u00f0um foreldrum og studdi f\u00f3lk \u00ed l\u00edfsbar\u00e1ttunni. \u00cd fyrirt\u00e6kjarekstri skulda menn hinum og \u00feessum eins og gengur en hann l\u00e9t einyrkjana \u00e1vallt vera \u00ed forgangi fremur en st\u00f6ndugri fyrirt\u00e6ki.<\/p>\n<p>Margir kve\u00f0ja hann h\u00e9r \u00ed dag og \u00feakka fyrir samfylgdina. \u00deegar r\u00e6\u00f0unni l\u00fdkur mun \u00e9g flyja ykkur s\u00e9rstakar kve\u00f0jur fjarstaddra.<\/p>\n<p>Birgir haf\u00f0i n\u00e6mt auga fyrir fegur\u00f0 og listsk\u00f6pun eins og heimili \u00feeirra ber fagurt vitni um. \u00deau \u00e1ttu yndislega daga saman og l\u00edf \u00feeirra var \u00e1 margan h\u00e1tt sem \u00e6vint\u00fdri. \u201eVi\u00f0 d\u00f6nsu\u00f0um \u00fe\u00f3 sjaldan saman\u201c, segir Anna \u201een vi\u00f0 f\u00f3rum dansandi saman ni\u00f0ur sk\u00ed\u00f0abrekkur margra fjalla \u00ed m\u00f6rgum l\u00f6ndum.\u201c<\/p>\n<p>Anna er forma\u00f0ur sk\u00ed\u00f0adeildar KR og me\u00f0 fullum stu\u00f0ningi Birgis sem \u00e6t\u00ed\u00f0 var tilb\u00fainn til allra g\u00f3\u00f0ra verka. Hann kunni \u00fev\u00ed vel a\u00f0 vera \u00ed bakvar\u00f0arsveit og \u00feurfti \u00feess ekki a\u00f0 s\u00e9r v\u00e6ri hampa\u00f0 e\u00f0a \u00feakka\u00f0 en gladdist \u00feegar a\u00f0rir fengu hr\u00f3s. \u00cd veikindunum l\u00e9t hann sig hlakka til a\u00f0 fara me\u00f0 b\u00f6rnunum og barnab\u00f6rnunm \u00e1 sk\u00ed\u00f0i. Hann horf\u00f0i til efri \u00e1ranna me\u00f0 gle\u00f0i og eftirv\u00e6ntingu. \u00deau l\u00f6g\u00f0u miki\u00f0 \u00e1 sig fyrir b\u00f6rnin, \u00f3ku \u00feeim upp \u00ed fj\u00f6ll \u00e1 sk\u00ed\u00f0i og litu \u00e1 \u00fea\u00f0 sem g\u00e6\u00f0at\u00edma me\u00f0 \u00feeim a\u00f0 geta spjalla\u00f0 \u00ed b\u00edlnum \u00e1 lei\u00f0inni.<\/p>\n<p>Fa\u00f0ir hans lag\u00f0i \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1herslu vi\u00f0 mig hva\u00f0 Anna Laufey og b\u00f6rnin s\u00fdndu honum mikla umhyggju \u00ed erfi\u00f0um veikindum hans, voru hj\u00e1 honum daga og n\u00e6tur. \u00cd \u00fev\u00ed birtist mikil fegur\u00f0 og elska.<\/p>\n<p>\u00deau hj\u00f3nin lif\u00f0u fyrir b\u00f6rnin s\u00edn og n\u00fa er \u00fea\u00f0 fj\u00f6lskyldu og vina a\u00f0 standa me\u00f0 \u00d6nnu og b\u00f6rnunum \u00ed s\u00f6gukaflanum sem framundan er.<\/p>\n<p>Birgir var ma\u00f0ur stillingar og hei\u00f0arleika, pr\u00fa\u00f0ur og si\u00f0vandur en l\u00edka grallari sem sag\u00f0i skemmtis\u00f6gur af s\u00e9r og \u00f6\u00f0rum, bernskubrekum og \u00e6vint\u00fdrum \u00e6skunnar. Hann var hnittinn \u00ed tilsv\u00f6rum og kunni a\u00f0 koma me\u00f0 athugasemdir \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. \u00deannig eru sagnamenn, \u00feeir kunna a\u00f0 reka endahn\u00fatinn, koma me\u00f0 punch-line \u00e1 r\u00e9ttu augnabliki. \u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 vera \u00ed n\u00e1vist hans, segja margir. \u00deegar \u00e9g haf\u00f0i hlusta\u00f0 \u00e1 f\u00f3lki\u00f0 hans tala um hann dr\u00f3 \u00e9g saman m\u00edna ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u \u00ed \u00ferj\u00fa or\u00f0. Hann Birgar var: vark\u00e1r &#8211; h\u00f3gv\u00e6r &#8211; t\u00f6ffari.<\/p>\n<p>Undanfari. Hann er farinn \u00e1 undan okkur en ekki sem undanfari \u00ed sk\u00ed\u00f0abraut \u00fev\u00ed sl\u00edkir taka ekki \u00fe\u00e1tt \u00ed keppninni sj\u00e1lfri. Hann t\u00f3k fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed l\u00edfinu og lif\u00f0i \u00fev\u00ed af fegur\u00f0 og hei\u00f0arleika. Hann var undanfari \u00ed \u00feeim skilningi a\u00f0 hann var \u00e1 margan h\u00e1tt fr\u00e1b\u00e6r fyrirmynd, b\u00f6rnum s\u00ednum og samfer\u00f0af\u00f3lki og svo er hann farinn \u00e1 undan okkur sem h\u00e9r erum saman komin.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er \u00e6vint\u00fdri me\u00f0 upphafi, millikafla og endalokum. Dau\u00f0inn er ekki endalok \u00ed hinni kristnu l\u00edfss\u00fdn. Hann er \u00f3umfl\u00fdjanlegur en hann \u00e1 ekki s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>S\u00e1lmask\u00e1ldi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u00c9g lifi&#8217; \u00ed Jes\u00fa nafni,<br \/>\n\u00ed Jes\u00fa nafni&#8217; eg dey,<br \/>\n\u00fe\u00f3 heilsa&#8217; og l\u00edf m\u00e9r hafni,<br \/>\nhr\u00e6\u00f0ist \u00e9g dau\u00f0ann ei.<br \/>\nDau\u00f0i, \u00e9g \u00f3ttast eigi<br \/>\nafl \u00feitt n\u00e9 valdi\u00f0 gilt,<br \/>\n\u00ed Krist\u00ed krafti&#8217; eg segi:<br \/>\nKom \u00fe\u00fa s\u00e6ll, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa vilt.<\/p>\n<p>Tr\u00faarsk\u00e1ldi\u00f0 bo\u00f0ar fullkomi\u00f0 \u00e6\u00f0ruleysi en \u00e6\u00f0ruleysi er \u00f3ttaleysi andsp\u00e6nis \u00f3umfl\u00fdjanlegm \u00f6rl\u00f6gum.<\/p>\n<p>AA-b\u00e6nin sem l\u00fatherski gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingurinn Reinhold Niebuhr setti saman hlj\u00f3\u00f0ar svo \u00ed \u00edslenskir \u00fe\u00fd\u00f0ingu:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 &#8211; gef m\u00e9r \u00e6\u00f0ruleysi<br \/>\ntil a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g f\u00e6 ekki breytt,<br \/>\nkjark til a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed sem \u00e9g get breytt<br \/>\nog vit til a\u00f0 greina \u00fear \u00e1 milli.<\/p>\n<p>A\u00f0 lifa einn dag \u00ed einu,<br \/>\nnj\u00f3ta hvers andartaks fyrir sig,<br \/>\nvi\u00f0urkenna m\u00f3tl\u00e6ti sem fri\u00f0arveg,<br \/>\nme\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka syndugum heimi eins og hann er,<br \/>\neins og Jes\u00fas ger\u00f0i en ekki eins og \u00e9g vil hafa hann.<\/p>\n<p>Og treysta \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa munir f\u00e6ra allt \u00e1 r\u00e9ttan veg<br \/>\nef \u00e9g gef mig undir vilja \u00feinn, svo a\u00f0 \u00e9g megi vera<br \/>\nh\u00e6filega hamingjusamur \u00ed \u00feessu l\u00edfi og yfirm\u00e1ta<br \/>\nhamingjusamur me\u00f0 \u00fe\u00e9r, \u00feegar a\u00f0 eil\u00edf\u00f0inni kemur.<\/p>\n<p>\u00deetta er g\u00f3\u00f0 b\u00e6n, b\u00e6n sem byggir \u00e1 von og tr\u00fa, b\u00e6n sem vonar \u00ed verstu a\u00f0st\u00e6\u00f0um, vonar og tr\u00fair \u00e1 betri t\u00ed\u00f0, vonar og tr\u00fair \u00e1 fars\u00e6lan endi l\u00edfss\u00f6gunnar. Saga allra endar vel me\u00f0 hinum upprisna sem breytti gangi veraldars\u00f6gunnar og \u00fear me\u00f0 s\u00f6gu \u00feinni og minni.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Birgi Hannes \u00de\u00f3risson \u00ed \u00feeirri von og tr\u00fa og felum hann himni Gu\u00f0s. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans og Gu\u00f0 blessi okkur \u00f6ll sem enn erum \u00e1 svi\u00f0i s\u00f6gunnar.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur<\/p>\n<p>fr\u00e1 Hafd\u00edsi Hannesd\u00f3ttur, f\u00f6\u00f0ursystur Birgis, sem er \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasi og d\u00e6trum hennar, Ingu og H\u00f6nnu, sem eru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Unni Gylfad\u00f3ttur og fj\u00f6lskyldu \u00e1 Sp\u00e1ni;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i D\u00f3ru Birgisd\u00f3ttur er \u00e1 fer\u00f0alagi um heiminn og n\u00fa \u00ed Dubai.<\/p>\n<p>fr\u00e1 Eyj\u00f3lfi, Margr\u00e9ti og b\u00f6rnum sem eru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed G\u00f6r\u00f0um. Kistan borin \u00fat \u00e1 hla\u00f0 og \u00feer er h\u00e6gt a\u00f0 signa yfir.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed safna\u00f0arheimilinu.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt.<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar:<\/strong><\/p>\n<p><strong>K\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00ed Kristi Jes\u00fa &#8211; R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8. kafli:<\/strong><br \/>\n31Hva\u00f0 eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessu? Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur? 32Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum? 33Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar. 34Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur. 35Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists? Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0? 36\u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<br \/>\n\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn<br \/>\nog vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.<br \/>\n37Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur. 38\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar, 39h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n<div class=\"title\"><strong>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0 &#8211; J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14. kafli:<\/strong><\/div>\n<p><sup>1<\/sup>\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.&nbsp;<sup>2<\/sup>\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?&nbsp;<sup>3<\/sup>\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.&nbsp;<sup>4<\/sup>Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<sup>5<\/sup>T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<sup>6<\/sup>Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Birgir \u00de\u00f3risson 1951-2014 F\u00e1fnisnesi 5, Reykjav\u00edk \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 15. \u00e1g\u00fast 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot eru \u00ed r\u00e6\u00f0unni sem ekki eru \u00ed textanum. Ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1437","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1437","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1437"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1437\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1437"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1437"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1437"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}