{"id":1433,"date":"2014-08-14T16:33:12","date_gmt":"2014-08-14T16:33:12","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1433"},"modified":"2014-08-14T16:33:12","modified_gmt":"2014-08-14T16:33:12","slug":"gretar-sveinn-thorsteinsson-1986-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1433","title":{"rendered":"+Gr\u00e9tar Sveinn \u00deorsteinsson 1986-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/grc3a9tar-sveinn.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/08\/grc3a9tar-sveinn.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1434\" alt=\"Gr\u00e9tar Sveinn\" width=\"205\" height=\"298\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Gr\u00e9tar Sveinn \u00deorsteinsson<\/b><\/p>\n<p>1986-2014<\/p>\n<p>Sj\u00e1vargrund 12b, Gar\u00f0ab\u00e6<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 14. \u00e1g\u00fast 2014 kl. 15.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi \u00ed Fossvogi&nbsp;a\u00f0 b\u00e1lf\u00f6r lokinni.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni sem ekki eru \u00ed textanun.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1433-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/grc3a9tar-sveinn.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/grc3a9tar-sveinn.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/08\/grc3a9tar-sveinn.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>Hann var hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar, gestrisin og gamansamur.<\/p>\n<p>\u00deegar hann tala\u00f0i \u00fe\u00e1 var hann \u00f6r og hendurnar voru \u00e1 flj\u00fagandi fer\u00f0 og stundum \u00feegar samtal vi\u00f0 vin var komi\u00f0 \u00fat og su\u00f0ur \u00fe\u00e1 spur\u00f0i hann allt \u00ed einu: \u201eHvar byrju\u00f0um vi\u00f0? Af hverju erum vi\u00f0 komnir hinga\u00f0?\u201c<\/p>\n<p>Og n\u00fa spyr \u00e9g: Af hverju erum vi\u00f0 komin hinga\u00f0? Hvers vegna \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 standa \u00ed \u00feessum erfi\u00f0u sporum og kve\u00f0ja 28 \u00e1ra gamlan mann sem horfinn er \u00ed skyndi eftir a\u00f0 sj\u00fakd\u00f3mur t\u00f3k hann allt of snemma? Af hverju? Svari\u00f0 er hugsanlega ekki til. Vi\u00f0 vitum ekki hvers vegna dau\u00f0inn vitjar f\u00f3lks \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins. En vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 lifa me\u00f0 \u00fev\u00ed og takast \u00e1 vi\u00f0 s\u00e1rsaukann. S\u00fa vinna getur skila\u00f0 okkur \u00feroska og inns\u00e6i ef r\u00e9tt er \u00e1 spilum haldi\u00f0. Vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r g\u00f3\u00f0an dreng sem vildi \u00f6llum vel en \u00e1tti enn eftir a\u00f0 f\u00f3ta sig fullkomlega \u00e1 l\u00edfsveginum. Hann var hugsandi ungur ma\u00f0ur en l\u00edfi\u00f0 var svo spennandi og fj\u00f6lbreytilegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 var alls ekki au\u00f0velt a\u00f0 skj\u00f3ta r\u00f3tum.<\/p>\n<p>Dau\u00f0inn er andstyggilegur \u00feegar hann m\u00e6tir okkur me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti. \u00c9g segi \u00feetta viljandi til a\u00f0 fegra ekki dau\u00f0ann e\u00f0a glorif\u00edsera hann. Heilbrig\u00f0, kristin tr\u00fa, tignar ekki dau\u00f0ann. H\u00fan l\u00edtur \u00e1 hann sem \u00f3vin. En Kristur lag\u00f0i dau\u00f0ann a\u00f0 velli me\u00f0 sigri s\u00ednum \u00e1 krossi eftir \u00fej\u00e1ningu og m\u00f3tl\u00e6ti. \u00cd upprisu hans felst vonin andsp\u00e6nis dau\u00f0anum. Dau\u00f0inn er ekki lausn \u00ed \u00feessu tilfelli en \u00ed Kristi f\u00e6r hann \u00fe\u00f3 n\u00fdja v\u00eddd og inntak. Dau\u00f0i ungs manns markar ekki eil\u00edf endalok heldur eil\u00edft l\u00edf \u00ed Kristi.<\/p>\n<p>Hvernig lifir ma\u00f0ur \u00e1fram? L\u00e1tnir lifa \u00ed minningum \u00e1stvina og Gr\u00e9tar mun lengi lifa \u00ed huga ykkar og hjarta.<\/p>\n<p>\u201eMannor\u00f0i\u00f0 lifir \u00fe\u00f3tt ma\u00f0urinn deyi.\u201c \u00deessi or\u00f0 valdi Gr\u00e9tar og rita\u00f0i \u00ed \u00fatskriftarb\u00f3k Gar\u00f0ask\u00f3la \u00feegar hann lauk grunnsk\u00f3lapr\u00f3fi. Sama hugsun er til m\u00f6rgum m\u00e1lsh\u00e1ttum og l\u00edklega er s\u00e1 \u00feekktasti \u00far H\u00e1vam\u00e1lum \u00ed Gesta\u00fe\u00e6tti (v\u00edsa 76):<\/p>\n<p>Deyr f\u00e9,<\/p>\n<p>deyja fr\u00e6ndur,<\/p>\n<p>deyr sj\u00e1lfur i\u00f0 sama.<\/p>\n<p>En or\u00f0st\u00edr<\/p>\n<p>deyr aldregi<\/p>\n<p>hveim er s\u00e9r g\u00f3\u00f0an getur.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag g\u00f3\u00f0an dreng sem minnst er fyrir gle\u00f0i og elskusemi, hl\u00fdtt bros og einstakt fa\u00f0mlag. Or\u00f0st\u00edr hans mun lifa \u00ed hj\u00f6rtum \u00feeirra sem hann \u00feekktu og nutu elsku hans og vin\u00e1ttu. Horfnir \u00e1stvinir lifa \u00ed hugum eftirlifenda en \u00feeir lifa miklu lengur \u00ed huga Gu\u00f0s sem engu gleymir nema \u00fev\u00ed sem hann k\u00fds a\u00f0 gleyma, man allt sem hann vill muna, enda er hugur hans \u00f3endanlegur og g\u00edgab\u00e6tin \u00f3m\u00e6lanleg.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er vettvangur \u00feroska \u00ed \u00e1t\u00f6kum vi\u00f0 verkefni \u00feess. \u00c9g man a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00e1 margan h\u00e1tt fl\u00f3ki\u00f0 a\u00f0 vera unglingur og ungur ma\u00f0ur. H\u00e6tturnar voru margar og eru reyndar enn og \u00fe\u00e6r eru um lei\u00f0 fleiri og fl\u00e1rri n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum en um lei\u00f0 eru t\u00e6kif\u00e6rin til hins g\u00f3\u00f0a jafnvel enn fleiri en for\u00f0um. L\u00edfi\u00f0 er \u00e1skorun og l\u00edfi\u00f0 er undursamlegt, en \u00fea\u00f0 er l\u00edka h\u00e6ttulegt. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 m\u00e6ta l\u00edfinu me\u00f0 bjarts\u00fdni en um lei\u00f0 af vark\u00e1rni. \u00deessi tv\u00edhyggja \u00ed heg\u00f0un kemur v\u00ed\u00f0a fram \u00ed spekiritum eins og t.a.m. \u00ed Pr\u00e9dikaranum \u00ed GT sem er merkilegt b\u00f3kmenntaverk. \u00dear segir um \u00e6skuna:<\/p>\n<p>Gle\u00f0 \u00feig, ungi ma\u00f0ur, \u00ed \u00e6sku \u00feinni<\/p>\n<p>og l\u00e1ttu liggja vel \u00e1 \u00fe\u00e9r unglings\u00e1r \u00fe\u00edn<\/p>\n<p>og breyttu eins og hjarta\u00f0 lei\u00f0ir \u00feig<\/p>\n<p>og eins og augun girnast<\/p>\n<p>en vita skaltu a\u00f0 fyrir allt \u00feetta lei\u00f0ir Gu\u00f0 \u00feig fyrir d\u00f3m.<\/p>\n<p>V\u00edsa\u00f0u gremju burt fr\u00e1 hjarta \u00fe\u00ednu<\/p>\n<p>og l\u00e1ttu ekki b\u00f6l koma n\u00e6rri l\u00edkama \u00fe\u00ednum<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e6ska og morgunro\u00f0i l\u00edfsins eru hverful. (Pr\u00e9d 11.9-10)<\/p>\n<p>Sama vark\u00e1rni kemur fyrir \u00ed Gesta\u00fe\u00e6tti H\u00e1vam\u00e1la \u00fear sem r\u00e6tt er um heg\u00f0un gests \u00ed h\u00fasi gestgjafa, um mannasi\u00f0i og si\u00f0fer\u00f0i:<\/p>\n<p>G\u00e1ttir allar<\/p>\n<p>\u00e1\u00f0ur gangi fram<\/p>\n<p>um sko\u00f0ast skyli,<\/p>\n<p>um skyggnast skyli,<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3v\u00edst er a\u00f0 vita<\/p>\n<p>hvar \u00f3vinir<\/p>\n<p>sitja \u00e1 fleti fyrir.<\/p>\n<p>Gr\u00e9tar var gla\u00f0ur ungur ma\u00f0ur og hann gekk til m\u00f3ts vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 af \u00e1kef\u00f0. Vinir hans bera honum fagurt vitni. Hann var gla\u00f0beittur og hress, stu\u00f0bolti og \u00e6rslabelgur. \u00c9g hef heyrt marga tala um einstakt fa\u00f0mlagi\u00f0 hans og Margr\u00e9t amma rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 upp a\u00f0 seinustu or\u00f0in sem hann sag\u00f0i vi\u00f0 hana voru: \u201e\u00c9g elska \u00feig amma!\u201c \u00deau or\u00f0 eru fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0ur hennar og \u00e1stvina hans, \u00e1samt f\u00f6grum minningum um g\u00f3\u00f0an dreng.<\/p>\n<p>Gr\u00e9tar Sveinn f\u00e6ddist 14. j\u00fal\u00ed 1986. Foreldra hans eru:<\/p>\n<p>\u00deorsteinn Egilson, f. 8. apr\u00edl 1957, byggingart\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur, deildarstj\u00f3ri framkv\u00e6mda og eigna \u00ed eignadeild Landsbankans og<\/p>\n<p>Eygl\u00f3 \u00d3lafsd\u00f3ttir, f. 29. jan\u00faar 1957, b\u00f3kari hj\u00e1 Motus.<\/p>\n<p>Systur hans eru:<\/p>\n<p>B\u00e1ra \u00deorsteinsd\u00f3ttir, f. 22. ma\u00ed 1981., vi\u00f0skiftafr\u00e6\u00f0ingur, \u00fej\u00f3nustufulltr\u00fai fyrirt\u00e6kja \u00ed fyrirt\u00e6kjami\u00f0st\u00f6\u00f0 Landsbankans.<\/p>\n<p>Brynja \u00deorsteinsd\u00f3ttir, f. 6. desember 1994, nemi \u00ed Fj\u00f6lbrautarsk\u00f3la Gar\u00f0ab\u00e6jar.<\/p>\n<p>D\u00f3ttir B\u00e1ru er \u00c1str\u00f3s Thelma Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir, f. 27. j\u00fan\u00ed 2006.<\/p>\n<p>F\u00f6\u00f0uramma Gr\u00e9tars er Margr\u00e9t \u00deorvaldsd\u00f3ttir, f. 1. okt\u00f3ber 1922 sem b\u00fdr \u00ed sama h\u00fasi og fj\u00f6lskyldan.<\/p>\n<p>Gr\u00e9tar gekk \u00ed Flatask\u00f3la og s\u00ed\u00f0an \u00ed Gar\u00f0ask\u00f3la.<\/p>\n<p>Hann \u00e6f\u00f0i handbolta \u00e1 \u00feessum \u00e1rum \u00ed yngri flokkum og einnig \u00e6f\u00f0i hann bor\u00f0tennis.<\/p>\n<p>Hann var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 Fj\u00f6lbrautarsk\u00f3la Gar\u00f0ab\u00e6jar 2010 af myndlistarbraut og hlaut ver\u00f0laun fyrir lokaverkefni sitt.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 stunda\u00f0i hann n\u00e1m \u00ed margmi\u00f0lun \u00ed T\u00e6knisk\u00f3lanum \u00ed 3 annir, en lauk ekki n\u00e1mi \u00fear.<\/p>\n<p>Fastur li\u00f0ur \u00ed tilverunni voru matarbo\u00f0 \u00f6mmu hans Margr\u00e9tar \u00e1 a\u00f0fangadagskv\u00f6ld.&nbsp; Svenni, Gauja og T\u00f3ta voru \u00e1vallt \u00fear og stundum fleiri. Oft var f\u00f3lki sem fj\u00f6lskyldan haf\u00f0i tengsl vi\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 \u00ed mat ef \u00feannig st\u00f3\u00f0 \u00e1 hj\u00e1 \u00feeim a\u00f0 \u00feau \u00e1ttu ekki \u00ed \u00f6nnur h\u00fas a\u00f0 venda.<\/p>\n<p>B\u00fasta\u00f0ur \u00ed eigu fj\u00f6lskyldunnar \u00e1 \u00deingv\u00f6llum var Gr\u00e9tari k\u00e6r. Oft kom hann og hj\u00e1lpa\u00f0i vi\u00f0 eitt og anna\u00f0 og s\u00ed\u00f0ast a\u00f0 steypa undirst\u00f6\u00f0ur og sm\u00ed\u00f0a s\u00f3lpalla vi\u00f0 b\u00fasta\u00f0inn. Afi og amma Gr\u00e9tars \u00e1ttu upphaflega b\u00fasta\u00f0inn og landi\u00f0 sem hann stendur \u00e1 og svo bygg\u00f0u f\u00f6\u00f0ursystkinin n\u00fdjan b\u00fasta\u00f0 \u00e1 landinu.<\/p>\n<p>\u00deegar Gr\u00e9tar var \u00e1 ellefta e\u00f0a t\u00f3lfta aldurs\u00e1ri bau\u00f0 Sveinbj\u00f6rn fr\u00e6ndi hans honum me\u00f0 s\u00e9r til Sp\u00e1nar. Einn daginn skelltu \u00feeir s\u00e9r \u00ed vatnagar\u00f0. \u00deegar \u00feanga\u00f0 var komi\u00f0 var drengurinn ekki lengi a\u00f0 koma s\u00e9r \u00ed kynni vi\u00f0 h\u00f3p \u00fatskriftarnema \u00far framhaldssk\u00f3la sem \u00fearna var staddur og f\u00e9kk a\u00f0 flj\u00f3ta me\u00f0 \u00feeim \u00ed t\u00e6kin \u00fear hann var of ungur til a\u00f0 fara einn \u00ed \u00feau. Eftir a\u00f0 hafa eitt dagparti \u00ed leikt\u00e6kjunum me\u00f0 \u00fatskriftarnemunum skilu\u00f0u \u00feau dregnum til Svenna me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti fyrir f\u00e9lagsskapinn sem \u00feeir hef\u00f0u noti\u00f0 \u00ed r\u00edkum m\u00e6li. \u00deetta l\u00fdsir honum vel. \u00de\u00e1 f\u00f3r \u00f6ll fj\u00f6lskyldan tvisvar \u00ed fer\u00f0 til Sp\u00e1nar og var Svenni me\u00f0 \u00ed f\u00f6r \u00ed \u00feeim b\u00e1\u00f0um og Gauja fr\u00e6nka hans og \u00de\u00f3runn d\u00f3ttir hennar \u00ed seinni fer\u00f0inni.<\/p>\n<p>I\u00f0ulega kom Svenni fr\u00e6ndi \u00ed kv\u00f6ldmat \u00e1 sunnud\u00f6gum og a\u00f0 loknum kv\u00f6ldver\u00f0i f\u00f3ru Gr\u00e9tar og pabbi hans og fr\u00e6ndi oft \u00ed kvikmyndah\u00fas a\u00f0 sj\u00e1 einhverja mynd sem Gr\u00e9tar valdi. \u00deetta ger\u00f0u \u00feeir reglulega me\u00f0an hann var \u00ed FG og \u00e1 stundum eftir \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t f\u00f6\u00f0uramma hans er \u00far Hr\u00edsey. Fr\u00e6ndf\u00f3lk Gr\u00e9tars a\u00f0 nor\u00f0an er h\u00e9r \u00ed dag og fylgir honum til grafar. Einnig fr\u00e6ndi hans fr\u00e1 Noregi sem var n\u00fdfarinn \u00fat en kom aftur me\u00f0 hj\u00e1lp vina.<\/p>\n<p>H\u00e9r kve\u00f0ur hann margmenni og margir eru fjarverandi og komust ekki en senda kve\u00f0jur s\u00ednar.<\/p>\n<p>Ott\u00f3 Magn\u00fasson, Gu\u00f0r\u00fan G\u00edslad\u00f3ttir og b\u00f6rn sem eru st\u00f6dd \u00ed Fl\u00f3r\u00edda bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0ju.<\/p>\n<p>Hanna, J\u00f3i og fj\u00f6lskylda bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0ju, en \u00feau eru st\u00f6dd \u00ed Bandar\u00edkjunum.<\/p>\n<p>J\u00fal\u00edus Jakobsson bi\u00f0ur einnig fyrir kve\u00f0ju og systir hans, J\u00f3hanna Dagmar og sonur hennar, J\u00f6kull Ingi, senda innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur fr\u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p>Hildur Dr\u00f6fn, Leifur M\u00e1r og Klara Lind \u00e1 Eskifir\u00f0i senda s\u00ednar bestu kve\u00f0jur. Hugur \u00feeirra allra er hj\u00e1 fj\u00f6lskyldunni sem \u00feau segja a\u00f0 hafi \u00e1vallt reynst s\u00e9r \u00e1kaflega vel.<\/p>\n<p>Og svo b\u00ed\u00f0ur hundurinn Br\u00fan\u00f3 heima sem skynjar meir en margur heldur. Hann og Gr\u00e9tar \u00e1ttu margar stundir saman.<\/p>\n<p>Gr\u00e9tari var margt til lista lagt. Hann teikna\u00f0i og m\u00e1la\u00f0i og haf\u00f0i n\u00e6mt auga fyrir lj\u00f3smyndun. Hann var einstaklega bl\u00ed\u00f0ur og brosmildur. Hann lif\u00f0i hratt en l\u00edka h\u00e6gt \u00fev\u00ed hann t\u00f3k s\u00e9r oft langan t\u00edma \u00ed verkefni og fannst ekkert liggja \u00e1. Hann var afar hj\u00e1lpsamur og gestrisinn. \u201e\u00c9g hef aldrei heyrt hann segja nei\u201c, sag\u00f0i vinur. Vinir hans m\u00e1ttu \u00e6t\u00ed\u00f0 gista hj\u00e1 honum ef \u00feeir \u00e1ttu ekki \u00ed \u00f6nnur h\u00fas a\u00f0 venda e\u00f0a \u00e1ttu erfitt heima. Hann ger\u00f0i sig l\u00edka gestkominn hj\u00e1 vinum s\u00ednum og kom \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 sitt g\u00f3\u00f0a skap og gle\u00f0i. Hann var opinn fyrir m\u00f6rgu og p\u00e6ldi miki\u00f0 \u00ed l\u00edfinu og tilverunni, las hitt og \u00feetta um heimspeki og tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 huglei\u00f0slu og kynnti s\u00e9r andleg m\u00e1l en skorti kannski sta\u00f0festu til a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 \u00feeim m\u00e1lum. Vinur hans sag\u00f0i: \u201eHann var me\u00f0 fullkomi\u00f0 hjarta en veikan huga.\u201c<\/p>\n<p>\u00c9g sat me\u00f0 nokkrum vinum hans og hlusta\u00f0i \u00e1 \u00feau tala um hann og hl\u00e6gja innilega af tilsv\u00f6rum hans og h\u00e1ttum. Hann \u00feor\u00f0i a\u00f0 vera hann sj\u00e1lfur eins og t.d. \u00feegar vinirnir voru \u00e1 \u00fatih\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00e1 Fl\u00fa\u00f0um um verslunarmannahelgina 2012. \u00deegar f\u00f3lki\u00f0 \u00ed lopapeysunum vakna\u00f0i og k\u00edkti \u00fat \u00far tjaldinu sat hann \u00fear sparikl\u00e6ddur \u00ed f\u00ednu jakkaf\u00f6tunum s\u00ednum og sag\u00f0i: \u201eMa\u00f0ur er au\u00f0vita\u00f0 kl\u00e6ddur \u00e1 vi\u00f0eigandi h\u00e1tt \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0um.\u201c<\/p>\n<p>Gr\u00e9tar var bjartur yfirlitum, myndarlegur ungur ma\u00f0ur me\u00f0 miki\u00f0 lj\u00f3s \u00ed brosi s\u00ednu og svip. Hann var sannkalla\u00f0ur lj\u00f3slei\u00f0ari \u00ed l\u00edfi fj\u00f6lskyldu og vina.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskyldan \u00feakkar vinum s\u00ednum og fj\u00f6lskyldu fyrir \u00f3metanlegan stu\u00f0ning og \u00feakkar s\u00e9rstaklega fyrir heims\u00f3knir og fallegar kve\u00f0jur \u00e1 li\u00f0num d\u00f6gum.<\/p>\n<p>Hvar byrju\u00f0um vi\u00f0? Af hverju erum vi\u00f0 komin hinga\u00f0?<\/p>\n<p>J\u00e1, hvers vegna er l\u00edfi\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 er? \u00dea\u00f0 er leyndard\u00f3mur. \u00d3tal breytur valda \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00ed \u00feessum a\u00f0st\u00e6\u00f0um, \u00f3tal breytur og svo l\u00edka hi\u00f0 \u00f3v\u00e6nta og \u00f3fyrirs\u00e9\u00f0a, hi\u00f0 \u00f3skiljanlega og fur\u00f0ulega. Vi\u00f0 erum h\u00e9r og \u00feurfum a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 lifa, lifa fallega \u00ed anda or\u00f0a Hans sem fegurst hefur tala\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, \u00ed anda Krists sem f\u00e6r\u00f0i okkur bo\u00f0askapinn um k\u00e6rleiksr\u00edkan Gu\u00f0 en ekki d\u00e6mandi og rei\u00f0an Gu\u00f0, um Gu\u00f0 sem f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur, sem finnur til og elskar allt.<\/p>\n<p>Hvar byrju\u00f0um vi\u00f0? Af hverju erum vi\u00f0 komin hinga\u00f0?<\/p>\n<p>\u00deessar spurningar eru gildar og \u00ed anda Gr\u00e9tars en svo m\u00e1 l\u00edka spyrja:<\/p>\n<p>Hvar byrjar allt? Hvert stefnir l\u00edfi\u00f0?<\/p>\n<p>Allt \u00e1 uppruna sinn \u00ed Gu\u00f0i, eins og segir \u00ed upphafi J\u00f3hannesargu\u00f0psjalls:<\/p>\n<p>\u201e\u00cd upphafi var Or\u00f0i\u00f0 og Or\u00f0i\u00f0 var hj\u00e1 Gu\u00f0i og Or\u00f0i\u00f0 var Gu\u00f0. Hann var \u00ed upphafi hj\u00e1 Gu\u00f0i. Allt var\u00f0 til fyrir hann, \u00e1n hans var\u00f0 ekki neitt sem til er. \u00cd honum var l\u00edf og l\u00edfi\u00f0 var lj\u00f3s mannanna.\u201c (Jh 1.1-4)<\/p>\n<p>Kristur, Gu\u00f0 \u00e1 himnum, ma\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, skapa\u00f0i allt. Hann er \u201efrumgl\u00e6\u00f0ir lj\u00f3ssins\u201c, eins og forfa\u00f0ir Gr\u00e9tar or\u00f0ar \u00fea\u00f0 \u00ed j\u00f3las\u00e1lminum fagra.<\/p>\n<p>Og postulinn P\u00e1ll sag\u00f0i er hann vitna\u00f0i \u00ed eitt af sk\u00e1ldum grikkja:<\/p>\n<p>\u201e\u00cd honum lifum, hr\u00e6rumst og erum vi\u00f0.\u201c (Post 17.28)<\/p>\n<p>Gu\u00f0 er allsta\u00f0ar og vi\u00f0 komumst ekki \u00fat \u00far hafi elsku hans. Vi\u00f0 erum eins og fiskarnir \u00ed hafinu sem rennur um t\u00e1lkn \u00feeirra. Fiskurinn \u00ed hafinu og hafi\u00f0 \u00ed fiskinum. Til er r\u00famfr\u00e6\u00f0ileg t\u00falkun \u00e1 Gu\u00f0i sem \u00e9g held miki\u00f0 upp\u00e1 og er svona:<\/p>\n<p>\u201eGu\u00f0 er hringur hvers mi\u00f0ja er allsta\u00f0ar og ystu m\u00f6rk hvergi.\u201c<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum \u00ed Gu\u00f0i og Gu\u00f0 \u00ed okkur.<\/p>\n<p>En er \u00feetta svona einfalt? Kannski ekki alveg svona einfalt eins og fram kemur \u00ed s\u00f6gu sem \u201es\u00f6g\u00f0 [er] af helgum manni sem bo\u00f0inn var til l\u00e6r\u00f0ra mann og spur\u00f0i upp \u00far eins manns hlj\u00f3\u00f0i: \u201eHvar b\u00fdr Gu\u00f0?\u201c \u00deeir hl\u00f3gu og s\u00f6g\u00f0u: \u201eHvernig spyr\u00f0u? Er ekki \u00f6ll ver\u00f6ldin full af Gu\u00f0s d\u00fdr\u00f0?\u201c En hann svara\u00f0i sj\u00e1lfum s\u00e9r: \u201eGu\u00f0 b\u00fdr \u00fear sem honum er bo\u00f0i\u00f0 inn!\u201c (B\u00e6nab\u00f3k K.Sbj.)<\/p>\n<p>Kristur er fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0ur speki og visku, \u201elifandi brunnur hins andlega seims.\u201c<\/p>\n<p>Gestrisni var Gr\u00e9tari \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin og n\u00fa erum vi\u00f0 hv\u00f6tt til a\u00f0 s\u00fdna gestrisni gagnvart \u00f6llum og ekki s\u00ed\u00f0st gagnvart Gu\u00f0i. Bj\u00f3\u00f0um honum inn \u00ed sorgarh\u00fas okkar, r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 hann, bi\u00f0jum til hans, gr\u00e1tum me\u00f0 honum, \u00feiggjum huggun hans styrk og von. \u00deannig komumst vi\u00f0 \u00e1fram, \u00feannig getum vi\u00f0 tekist \u00e1 vi\u00f0 daginn og komandi daga.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram og \u00fea\u00f0 er \u00ed hendi Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Gr\u00e9tar Svein \u00ed \u00feeirri tr\u00fa og bi\u00f0jum honum blessunar um eil\u00edf\u00f0. Gu\u00f0 blessi minningu hans og blessi hann okkur \u00f6ll \u00e1 l\u00edfsveginum.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum ands. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r &#8211; jar\u00f0sett s\u00ed\u00f0ar \u00ed G\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n<p>Kistan borin \u00fat og signt yfir \u00e1 kirkjuhla\u00f0inu.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed safna\u00f0arheimilinu. Verum gl\u00f6\u00f0 yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga l\u00edfi\u00f0!<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0in ver\u00f0a birt: <a href=\"http:\/\/localhost:8081\">ornbardur.com<\/a><\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n<p>Ritningarlestrar:<\/p>\n<p>K\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00ed Kristi Jes\u00fa \u2013 R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8. kafli:<br \/>\n31Hva\u00f0 eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessu? Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur? 32Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum? 33Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar. 34Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur. 35Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists? Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0? 36\u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<br \/>\n\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn<br \/>\nog vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.<br \/>\n37Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur. 38\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar, 39h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n<p>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0 \u2013 J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14. kafli:<br \/>\n1\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. 2\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? 3\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. 4Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n5T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n6Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Gr\u00e9tar Sveinn \u00deorsteinsson 1986-2014 Sj\u00e1vargrund 12b, Gar\u00f0ab\u00e6 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 14. \u00e1g\u00fast 2014 kl. 15. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi \u00ed Fossvogi&nbsp;a\u00f0 b\u00e1lf\u00f6r lokinni. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni sem ekki eru \u00ed textanun.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1433","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1433","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1433"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1433\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1433"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1433"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1433"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}