{"id":1403,"date":"2014-07-12T11:49:55","date_gmt":"2014-07-12T11:49:55","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1403"},"modified":"2014-07-12T11:49:55","modified_gmt":"2014-07-12T11:49:55","slug":"gudrun-palina-dagsdottir-1924-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1403","title":{"rendered":"+Gu\u00f0r\u00fan P\u00e1l\u00edna Dagsd\u00f3ttir 1924-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/skc3b3lavc3b6rc3b0ustc3adgur-2.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/skc3b3lavc3b6rc3b0ustc3adgur-2.jpg?w=300\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1408\" width=\"300\" height=\"146\" alt=\"Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edgur 2\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Gu\u00f0r\u00fan P\u00e1l\u00edna Dagsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1924-2014<\/p>\n<p>fv. r\u00e1\u00f0skona a\u00f0<\/p>\n<p>Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg 25<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 B\u00e6nh\u00fasinu \u00ed Fossvogi f\u00f6studaginn 11. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r ver\u00f0ur duftkeri\u00f0 jar\u00f0sett \u00ed Keflav\u00edkurkirkjugar\u00f0i.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an en einungis \u00e6viatri\u00f0in eru til \u00ed texta, anna\u00f0 var flutt bla\u00f0alaust. Einhver vik fr\u00e1 textanum eru \u00ed flutningi r\u00e6\u00f0unnar og svo fengust n\u00e1nari uppl\u00fdsingar um f\u00f3lk, \u00e1rt\u00f6l og fleira, nokkru eftir a\u00f0 \u00fatf\u00f6rin f\u00f3r fram.&nbsp;<\/p>\n<p>Myndin af Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edgnum var fengin a\u00f0 l\u00e1ni af vefnum.<\/p>\n<p>Gu\u00f0spjalli\u00f0 sem lesi\u00f0 var er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1403-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gudrun-palina.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gudrun-palina.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gudrun-palina.mp3<\/a><\/audio>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan f\u00e6ddist 16. \u00e1g\u00fast 1924 og \u00f3lst upp \u00e1 Eskifir\u00f0i en foreldrar hennar sem voru Dalamenn fluttu \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 freista g\u00e6funnar. \u00deau voru Dagur J\u00f3hannsson f. 31.10.1892 \u00e1 V\u00edgh\u00f3lsst\u00f6\u00f0um, Fellsstrandarhreppi, Dalas\u00fdslu d. 30.6.1974 \u00e1 Reykjalundi, verkama\u00f0ur \u00e1 Eskifir\u00f0i og kona hans Mar\u00eda Matth\u00edasd\u00f3ttir, f. 5.6.1891 \u00ed Litlu-Tungu, Fellsstrandarhreppi, Dalas\u00fdslu, d. 12.10.1953 \u00ed Hafnarfir\u00f0i.<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan \u00e1tti einn br\u00f3\u00f0ur, J\u00f3hann <b>Bj\u00f6rn<\/b> Dagsson, f. 14.7.1931 \u00e1 Eskifir\u00f0i d. 21.6.2010 og bj\u00f3 lengst af \u00ed Keflav\u00edk en \u00feanga\u00f0 fluttu foreldrar hans og Gu\u00f0r\u00fanar \u00e1 efri \u00e1rum. Kona Bj\u00f6rns, Margr\u00e9t J\u00f3na J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 1929 d. 2007.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n<p>Dagbjartur f.1957,<\/p>\n<p>Valur f. 1958,<\/p>\n<p>Mar\u00eda f. 1960,<\/p>\n<p>Ingi\u00fe\u00f3r f. 1964<\/p>\n<p>og Bjarnveig f. 1965.<\/p>\n<p>\u00deau bjuggu a\u00f0 Hei\u00f0arvegi 24 \u00ed Keflav\u00edk.<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan f\u00e9kk berkla \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum og dvaldi \u00e1 \u201eH\u00e6linu\u201c eins og h\u00fan nefndi gjarnan V\u00edfilssta\u00f0i. H\u00fan var aldrei heilsuhraust en n\u00e1\u00f0i samt h\u00e1um aldri og var a\u00f0 n\u00e1lgast n\u00edr\u00e6\u00f0isafm\u00e6li\u00f0 \u00feegar h\u00fan l\u00e9st \u00e1 Elli- og hj\u00fakrunarheimilinu Grund 5. j\u00fal\u00ed s.l. Sem barn var\u00f0 h\u00fan fyrir slysi er h\u00fan renndi s\u00e9r \u00e1 sle\u00f0a og lenti \u00e1 gaddav\u00edrsgir\u00f0ingu og skadda\u00f0ist \u00ed andliti. H\u00fan bar \u00f6r \u00feess alla t\u00ed\u00f0. \u00cd lok seinna str\u00ed\u00f0s 1945, \u00fe\u00e1 21 \u00e1rs, haf\u00f0i Magg\u00fd vinkona hennar samband en h\u00fan var alin upp \u00e1 Eskifir\u00f0i og var komin su\u00f0ur og \u00fatvega\u00f0i henni vinnu hj\u00e1 fj\u00f6lskyldunni a\u00f0 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg 25 \u00ed H\u00fasinu sem \u00e9g kalla svo me\u00f0 st\u00f3rum staf h\u00e9r eftir \u00ed \u00feessum minningaror\u00f0um. H\u00fan hefur b\u00fai\u00f0 h\u00e9r sy\u00f0ra fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma og var r\u00e1\u00f0skona \u00ed H\u00fasinu \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung en bj\u00f3 \u00fear \u00e1fram eftir \u00fea\u00f0 \u00ed ein fj\u00f6rit\u00edu \u00e1r og naut lifeyris fj\u00f6lskyldunnar sem r\u00e9\u00f0 hana. H\u00fan s\u00e1 um heimilishaldi\u00f0 og \u00fej\u00f3na\u00f0i fj\u00f6lskyldunni. Fj\u00f6lskydlufa\u00f0irinn h\u00e9t Bj\u00f6rn Gunnlaugsson og er sag\u00f0ur \u00ed \u00cdslendingab\u00f3k hafa veri\u00f0: \u201eB\u00f3ndi og gullsmi\u00f0ur \u00e1 Gilsst\u00f6\u00f0um [1847-1925]. H\u00fasb\u00f3ndi \u00ed Reykjav\u00edk 1910\u201c. &nbsp;Nafn konu hans hef \u00e9g ekki [H\u00e9r koma seinna fengnar uppl\u00fdsingar um eiginkonu hans en h\u00fan h\u00e9t Margr\u00e9t Magn\u00fasd\u00f3ttir og var fr\u00e1 D\u00e6li \u00ed V\u00ed\u00f0idal f. 1850, d. 1945] ]en \u00feau \u00e1ttu m\u00f6rg b\u00f6rn sem ur\u00f0u fj\u00f6lskylduf\u00f3lk en 4 \u00feeirra sem ekki stofnu\u00f0u fj\u00f6lskyldu bjuggu \u00ed H\u00fasinu m\u00f3\u00f0ur sinni \u00feegar Gu\u00f0r\u00fan kom \u00feanga\u00f0 en h\u00fan d\u00f3 flj\u00f3tlega eftir \u00fea\u00f0.&nbsp; \u00deau h\u00e9tu Margr\u00e9t d. 1956, Einar, kaupma\u00f0ur, d. 1961, Fri\u00f0rik Valdimar, l\u00e6nir d. 1968 og Gu\u00f0mundur, kaupma\u00f0ur d. 1970. Gu\u00f0r\u00fan var fyrst r\u00e1\u00f0in \u00ed vist \u00ed einn vetur en \u00fe\u00e1 brotna\u00f0i Margr\u00e9t og heimili\u00f0 \u00feurfti meiri a\u00f0sto\u00f0 og \u00fev\u00ed \u00edlentist Gu\u00f0r\u00fan \u00fear. H\u00fan bj\u00f3 \u00ed h\u00fasinu me\u00f0an systikinin lif\u00f0u og \u00ed erf\u00f0askr\u00e1 \u00feeirra var skr\u00e1\u00f0 a\u00f0 h\u00fan m\u00e6tti b\u00faa \u00fear til \u00e6viloka og meira en \u00fea\u00f0, h\u00fan f\u00e9kk fr\u00e1 \u00feeim l\u00edfeyri til 67 \u00e1ra aldurs. Gu\u00f0r\u00fan bj\u00f3 \u00ed h\u00fasinu til 2001.&nbsp;<\/p>\n<p>Systkinin f\u00e9llu fr\u00e1 eitt af \u00f6\u00f0ur, Margr\u00e9t 1970 og Fri\u00f0rik Valdimar, sem var l\u00e6knir, d\u00f3 1956. Br\u00e6\u00f0urnir Einar og Gu\u00f0mundur r\u00e1ku Sportv\u00f6ruh\u00fas Reykjav\u00edkur, \u00fear sem m.a. voru seldar \u00fdmiss konar sportv\u00f6rur, lj\u00f3smyndav\u00f6rur og \u00feess h\u00e1ttar. \u00deeir foru einnig me\u00f0 umbo\u00f0 fyrir FACIT-v\u00f6rumerki\u00f0.&nbsp;&nbsp;Fyrirt\u00e6ki \u00feeirra var fyrst &nbsp;\u00ed Bankastr\u00e6ti en svo fluttu \u00feeir reksturinn \u00ed h\u00fas sem byggt var vi\u00f0 hli\u00f0 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0urst\u00edgs 25 og r\u00e1ku \u00fea\u00f0 \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. Facit v\u00f6rumerki\u00f0 er \u00feekkt af ritv\u00e9lum og reikniv\u00e9lum. \u00c9g fann skemmtilega augl\u00fdsingu um Facit \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed j\u00fan\u00ed 1926 \u00fear sem [Taki\u00f0 s\u00e9rstaklega eftir or\u00f0inu \u201ege\u00f0g\u00f3\u00f0an\u201c \u00ed augl\u00fdsingunni!]<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/facit-auglc3bdsing-1926.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/facit-auglc3bdsing-1926.png?w=300\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1406\" width=\"300\" height=\"286\" alt=\"Facit augl\u00fdsing 1926\"><\/a>H\u00fan \u00fej\u00f3na\u00f0i f\u00f3lkinu af tr\u00famennsku og natni&nbsp; alla t\u00ed\u00f0, s\u00e1 um innkaup, matseld, \u00ferif og \u00fevotta, veislur og m\u00f3tt\u00f6kur og hva\u00f0 eina sem \u00feurfti a\u00f0 gera \u00e1 f\u00ednu heimili \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan f\u00f3r oft me\u00f0 systkininum \u00ed b\u00fasta\u00f0inn Munkastein \u00e1 \u00deingv\u00f6llum en \u00fear dv\u00f6ldu \u00feau sumarlangt um \u00e1rabil. Br\u00e6\u00f0urnir voru vei\u00f0imenn, einkum einn \u00feeirra, og upphaflega var \u00fearna l\u00edtill vei\u00f0ikofi sem s\u00ed\u00f0ar \u00f3x \u00ed myndarlegan b\u00fasta\u00f0. Vaxandi trj\u00e1gr\u00f3\u00f0ur pr\u00fdddi sta\u00f0inn eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1rin li\u00f0u og ger\u00f0i sta\u00f0inn a\u00f0 s\u00f6nnum s\u00e6lureit.<\/p>\n<p>H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 einhleyp og barnlaus en br\u00f3\u00f0urb\u00f6rnin voru henni k\u00e6r. Br\u00f3\u00f0urd\u00f3ttir hennar, Mar\u00eda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, kom oft til hennar \u00e1 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edginn og dvaldi hj\u00e1 henni um t\u00edma me\u00f0an h\u00fan s\u00f3tti n\u00e1m h\u00e1rgrei\u00f0slu \u00ed I\u00f0nsk\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk sem er steinsnar fr\u00e1 \u00e1 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0uholtinu. Hj\u00e1 br\u00e6\u00f0runum var oft fr\u00e6nka \u00feeirra og jafnaldra Mar\u00edu og l\u00e9ku \u00fe\u00e6r s\u00e9r saman \u00ed \u00e6sku.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 s\u00ed\u00f0asti br\u00f3\u00f0irinn f\u00e9ll fr\u00e1 var h\u00fasi\u00f0 \u00e1nafna\u00f0 Sk\u00f3gr\u00e6ktarf\u00e9lagi H\u00fanavatnss\u00fdslu en Sk\u00f3gr\u00e6ktarf\u00e9lag Reykjav\u00edkur anna\u00f0ist rekstur \u00feess. Um t\u00edma haf\u00f0i Landvernd \u00fear b\u00e6kist\u00f6\u00f0 \u00e1 2. h\u00e6\u00f0inni en \u00e1 fyrstu h\u00e6\u00f0 bjuggu um \u00e1rabil, Sigr\u00fan Lilja J\u00f3nasd\u00f3ttir, kennari og ma\u00f0ur hennar R\u00fanar Gu\u00f0mundsson. B\u00f6rn \u00feeirra Svanhv\u00edt Helga, Rabekka Hl\u00edn og J\u00f3nasi \u00de\u00f3r ur\u00f0u Gu\u00f0r\u00fanu hjartf\u00f3lgin og ekki s\u00edst Rebekka sem naut \u00feeirrar g\u00e6fu a\u00f0 hafa f\u00e6\u00f0st sama dag og fa\u00f0ir Gu\u00f0r\u00fanar. H\u00fan var \u00feeim sem besta amma og fj\u00f6lskyldan haf\u00f0i samband vi\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu til hinsta dags.<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan P\u00e1l\u00edna var traust kona sem vann s\u00edn st\u00f6rf af al\u00fa\u00f0. H\u00fan bj\u00f3 \u00ed risinu eftir a\u00f0 systkinin vour fallin fr\u00e1 en \u00feegar \u00e1rin f\u00e6r\u00f0ust yfir hana var\u00f0 \u00fea\u00f0 erfi\u00f0ara og erfi\u00f0ara a\u00f0 klifra r\u00e1\u00f0skonustigann upp \u00e1 3. h\u00e6\u00f0.&nbsp; \u00de\u00e1 kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0ur nokkur vildi kaupa h\u00fasi\u00f0 en Gu\u00f0r\u00fan haf\u00f0i \u00fear b\u00fasetur\u00e9tt til \u00e6viloka. Hann keypti \u00fev\u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 handa henni \u00e1 Snorrabraut 56 \u00ed \u00fej\u00f3nustuh\u00fasi me\u00f0 lyftu og \u00fear naut h\u00fan g\u00f3\u00f0ra daga \u00ed 10 \u00e1r \u00fear til h\u00fan flutti \u00e1 Elli- og hj\u00fakrunarheimili\u00f0 Grund \u00fear sem h\u00fan d\u00f3 eftir a\u00f0 hafa dvali\u00f0 \u00fear \u00ed eitt og h\u00e1lft \u00e1r og noti\u00f0 \u00fear g\u00f3\u00f0rar umhyggju og \u00fej\u00f3nustu. H\u00fan hafi dotti\u00f0 illa og laskast og \u00fev\u00ed gat h\u00fan ekki lengur veri\u00f0 ein. Sigr\u00fan Lilja og hennar f\u00f3lk h\u00e9lt \u00e1vallt sambandi vi\u00f0 hana og \u00feau f\u00e6r\u00f0u henni mat og veittu henni margv\u00edslegan stu\u00f0ning sem vert er a\u00f0 \u00feakka fyrir. H\u00fan var hj\u00e1 \u00feeim \u00e1 j\u00f3lum og \u00f6\u00f0rum t\u00edmum eftir a\u00f0 Bj\u00f6rn br\u00f3\u00f0ir hennar d\u00f3 og einnig oft hj\u00e1 Mar\u00edu br\u00f3\u00f0urd\u00f3ttur sinni. Gu\u00f0r\u00fan haf\u00f0i reynst \u00feeim vel og h\u00fan f\u00e9kk \u00fea\u00f0 svo sannarlega til baka. \u00deannig virkar n\u00fa hagfr\u00e6\u00f0i himinsins sem \u00e9g kalla svo og er f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed meir sem \u00fe\u00fa gefur \u00feeim mun meira f\u00e6r\u00f0u til baka.<\/p>\n<p>H\u00fan var g\u00f3\u00f0 manneskja sem sag\u00f0i jafnan s\u00edna meiningu. H\u00fan f\u00e6r\u00f0i br\u00f3\u00f0urb\u00f6rnum s\u00ednum gjafir \u00e1 j\u00f3lum og \u00feau komu \u00ed heims\u00f3kn en sum voru henni n\u00e6rri en \u00f6nnur eins og gengur og gerist.<\/p>\n<p>Sigr\u00fan Lilja l\u00fdsti henni \u00ed m\u00edn eyru sem s\u00f6nnum \u00cdslendingi af gamla sk\u00f3lanum, manneskju me\u00f0 sko\u00f0anir sem var hreinskiptin, sag\u00f0i s\u00edna meiningu umb\u00fa\u00f0alaust og l\u00e9t f\u00f3lk heyra \u00fea\u00f0, eins og sagt er. H\u00fan var s\u00e9rlundu\u00f0 og alls ekki allra en haf\u00f0i gott hjarta. H\u00fan var berdreymin og s\u00e1 fyrir hluti en alls ekki upptekin af tr\u00fam\u00e1lum. H\u00fan var \u00fe\u00f3 sk\u00edr\u00f0 og fermd eins og flestir \u00cdslendingar og m\u00f3tu\u00f0 af \u00edslenskir menningu og si\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00fan \u00e1tti g\u00f3\u00f0ar minningar um fj\u00f6lskylduna \u00ed H\u00fasinu sem h\u00fan \u00fej\u00f3na\u00f0i og sem ger\u00f0i henni svo undur vel til af \u00f6rl\u00e6ti s\u00ednu og h\u00f6f\u00f0ingskap.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Uppl\u00fdsingar um gj\u00f6f br\u00e6\u00f0ranna \u00e1 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg 25 til Sk\u00f3gr\u00e6ktarf\u00e9lags H\u00fanavatnss\u00fdslu eru <a href=\"http:\/\/skog.is\/skjol\/Rit1970\/files\/assets\/basic-html\/page32.html\">h\u00e9r<\/a>.<\/p>\n<p><strong>Gu\u00f0spjalli\u00f0<\/strong><\/p>\n<p><strong>Matteus 25:14-30<\/strong><\/p>\n<p><strong>Talentur<\/strong><br \/>\n14Svo er um himnar\u00edki sem mann er \u00e6tla\u00f0i \u00far landi. Hann kalla\u00f0i \u00e1 \u00fej\u00f3na s\u00edna og f\u00f3l \u00feeim eigur s\u00ednar. 15Einum f\u00e9kk hann fimm talentur, \u00f6\u00f0rum tv\u00e6r og \u00feeim \u00feri\u00f0ja eina, hverjum eftir h\u00e6fni. S\u00ed\u00f0an f\u00f3r hann \u00far landi. 16S\u00e1 sem f\u00e9kk fimm talentur f\u00f3r \u00feegar, \u00e1vaxta\u00f0i \u00fe\u00e6r og gr\u00e6ddi a\u00f0rar fimm. 17Eins ger\u00f0i s\u00e1 er tv\u00e6r f\u00e9kk. Hann gr\u00e6ddi a\u00f0rar tv\u00e6r. 18En s\u00e1 sem f\u00e9kk eina f\u00f3r og gr\u00f3f f\u00e9 h\u00fasb\u00f3nda s\u00edns \u00ed j\u00f6r\u00f0 og faldi \u00fea\u00f0.<br \/>\n19L\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar kom h\u00fasb\u00f3ndi \u00feessara \u00fej\u00f3na og l\u00e9t \u00fe\u00e1 gera skil. 20S\u00e1 me\u00f0 fimm talenturnar gekk \u00fe\u00e1 fram, f\u00e6r\u00f0i honum a\u00f0rar fimm og sag\u00f0i: Herra, fimm talentur seldir \u00fe\u00fa m\u00e9r \u00ed hendur, h\u00e9r hef \u00e9g gr\u00e6tt a\u00f0rar fimm. 21H\u00fasb\u00f3ndi hans sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Gott, \u00fe\u00fa g\u00f3\u00f0i og tr\u00fai \u00fej\u00f3nn. Yfir litlu varstu tr\u00far, yfir miki\u00f0 mun \u00e9g setja \u00feig. Gakk inn \u00ed f\u00f6gnu\u00f0 herra \u00fe\u00edns.<br \/>\n22\u00de\u00e1 gekk fram s\u00e1 me\u00f0 tv\u00e6r talenturnar og m\u00e6lti: Herra, tv\u00e6r talentur seldir \u00fe\u00fa m\u00e9r \u00ed hendur, h\u00e9r hef \u00e9g gr\u00e6tt a\u00f0rar tv\u00e6r. 23Og h\u00fasb\u00f3ndi hans sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Gott, \u00fe\u00fa g\u00f3\u00f0i og tr\u00fai \u00fej\u00f3nn, yfir litlu varstu tr\u00far, yfir miki\u00f0 mun \u00e9g setja \u00feig. Gakk inn \u00ed f\u00f6gnu\u00f0 herra \u00fe\u00edns.<br \/>\n24Loks kom s\u00e1 er f\u00e9kk eina talentu og sag\u00f0i: Herra, \u00e9g vissi a\u00f0 \u00fe\u00fa ert ma\u00f0ur har\u00f0ur sem uppsker \u00fear sem \u00fe\u00fa s\u00e1\u00f0ir ekki og safnar \u00fear sem \u00fe\u00fa str\u00e1\u00f0ir ekki. 25\u00c9g var hr\u00e6ddur og f\u00f3l talentu \u00fe\u00edna \u00ed j\u00f6r\u00f0. H\u00e9r hefur \u00fe\u00fa \u00feitt.<br \/>\n26Og h\u00fasb\u00f3ndi hans sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Illi og lati \u00fej\u00f3nn, \u00fe\u00fa vissir a\u00f0 \u00e9g uppsker \u00fear sem \u00e9g s\u00e1\u00f0i ekki og safna \u00fear sem \u00e9g str\u00e1\u00f0i ekki. 27\u00de\u00fa \u00e1ttir \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja f\u00e9 mitt \u00ed banka. \u00de\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 v\u00f6xtum \u00feegar \u00e9g kom heim. 28Taki\u00f0 af honum talentuna og f\u00e1i\u00f0 \u00feeim sem hefur t\u00edu talenturnar. 29\u00dev\u00ed a\u00f0 hverjum sem hefur mun gefi\u00f0 ver\u00f0a og hann mun hafa gn\u00e6g\u00f0 en fr\u00e1 \u00feeim sem eigi hefur mun teki\u00f0 ver\u00f0a, jafnvel \u00fea\u00f0 sem hann hefur. 30Reki\u00f0 \u00feennan \u00f3n\u00fdta \u00fej\u00f3n \u00fat \u00ed ystu myrkur. \u00dear ver\u00f0ur gr\u00e1tur og gn\u00edstran tanna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Gu\u00f0r\u00fan P\u00e1l\u00edna Dagsd\u00f3ttir 1924-2014 fv. r\u00e1\u00f0skona a\u00f0 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg 25 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 B\u00e6nh\u00fasinu \u00ed Fossvogi f\u00f6studaginn 11. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13. A\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r ver\u00f0ur duftkeri\u00f0 jar\u00f0sett \u00ed Keflav\u00edkurkirkjugar\u00f0i. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an en einungis \u00e6viatri\u00f0in eru til \u00ed texta, anna\u00f0 var flutt bla\u00f0alaust. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-1403","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad-uncategorized"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1403","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1403"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1403\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1403"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1403"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1403"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}