{"id":1395,"date":"2014-07-10T18:42:50","date_gmt":"2014-07-10T18:42:50","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1395"},"modified":"2014-07-10T18:42:50","modified_gmt":"2014-07-10T18:42:50","slug":"gyda-askelsdottir-1933-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1395","title":{"rendered":"+Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir 1933-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/gyc3b0a-c3a1skelsdc3b3ttir.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/gyc3b0a-c3a1skelsdc3b3ttir.jpg?w=225\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1396\" width=\"225\" height=\"300\" alt=\"Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>+Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1933-2014<\/p>\n<p>M\u00e1nat\u00fani 4, Reykjav\u00edk<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 10. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1395-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gyda1.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gyda1.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/gyda1.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>Vi\u00f0<\/strong> kistulagningu Gy\u00f0u \u00ed g\u00e6r sungum vi\u00f0 fallegan s\u00e1lm, Kalli\u00f0 er komi\u00f0 (Sb 271).<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Kalli\u00f0 er komi\u00f0,<br \/>\nkomin er n\u00fa stundin,<br \/>\nvinaskilna\u00f0ar vi\u00f0kv\u00e6m stund.<br \/>\nVinirnir kve\u00f0ja<br \/>\nvininn sinn l\u00e1tna,<br \/>\ner sefur h\u00e9r hinn s\u00ed\u00f0sta blund.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir hefur veri\u00f0 burtk\u00f6llu\u00f0 af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi. Senn l\u00ed\u00f0ur a\u00f0 \u00f6gurstund okkar allra. Vi\u00f0 ver\u00f0um \u00f6ll k\u00f6llu\u00f0 af \u00feessu l\u00edfi \u00ed fyllingu t\u00edmans. \u00dea\u00f0 er l\u00edfsins saga. A\u00f0 vera til er miki\u00f0 \u00feakkarefni. L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f og \u00fea\u00f0 varir tiltekinn t\u00edma. Enginn veit hversu lengi. En til hvers lifir ma\u00f0ur? Vi\u00f0 lifum vegna \u00feess a\u00f0 Gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 okkur \u00feetta eina l\u00edf og hann setur okkur fyrir verkefni \u00ed or\u00f0i s\u00ednu. Jes\u00fas dr\u00f3 verkefni\u00f0 saman \u00ed nokkur or\u00f0: Elska\u00f0u Gu\u00f0 af \u00f6llu hjarta, s\u00e1lu, huga og m\u00e6tti og n\u00e1unga \u00feinn eins og sj\u00e1lfa\/n \u00feig. \u00deetta er einf\u00f6ld uppskrift a\u00f0 g\u00f3\u00f0u l\u00edfi sem b\u00e6tir heiminn og \u00fear eru verkefnin vissulega \u00f3\u00ferj\u00f3tandi.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g heyr\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 hennar Gy\u00f0u tala um hana, kosti hennar og l\u00edfshlaup, \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00fea\u00f0 ekki \u00e1 milli m\u00e1la a\u00f0 h\u00fan hefur reynt a\u00f0 lifa \u00ed anda or\u00f0a Jes\u00fa. H\u00fan var v\u00e6n manneskja, hreinlynd og tala\u00f0i vel um f\u00f3lk. Bj\u00f6ssi sag\u00f0i vi\u00f0 hana \u00feegar halla t\u00f3k undan f\u00e6ti: \u201eGy\u00f0a m\u00edn, \u00fe\u00fa fer\u00f0 ekki me\u00f0 \u00feungan bagga af \u00feessu l\u00edfi.\u201c Gott er a\u00f0 geta lifa\u00f0 \u00feannig a\u00f0 samviskan s\u00e9 heil og t\u00e6r. H\u00fan var or\u00f0v\u00f6r og fremur f\u00e1m\u00e1l en \u00feegar h\u00fan tala\u00f0i \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 af viti og inns\u00e6i. H\u00fan hitti oft naglann \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, s\u00f6g\u00f0u \u00feau. H\u00fan s\u00e1 jafnan j\u00e1kv\u00e6\u00f0u hli\u00f0arnar \u00e1 f\u00f3lki og var stolt af sinni fj\u00f6lskyldu. H\u00fan lif\u00f0i \u00e1n alvlarlegra \u00e1rekstra og vandi sig og s\u00edna \u00e1 a\u00f0 gera upp daginn fyrir svefninn og s\u00e6ttast ef eitthva\u00f0 haf\u00f0i skapa\u00f0 spennu og \u00f3\u00e1n\u00e6gju. \u00deess vegna \u00e1 n\u00e6sta vers s\u00e1lmsins vel vi\u00f0:<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Margs er a\u00f0 minnast,<br \/>\nmargt er h\u00e9r a\u00f0 \u00feakka.<br \/>\nGu\u00f0i s\u00e9 lof fyrir li\u00f0na t\u00ed\u00f0.<br \/>\nMargs er a\u00f0 minnast,<br \/>\nmargs er a\u00f0 sakna.<br \/>\nGu\u00f0 \u00feerri tregat\u00e1rin str\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>Til g\u00e6fu telst a\u00f0 eiga g\u00f3\u00f0ar minningar um gott f\u00f3lk. Vi\u00f0 gr\u00e1tum vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 elskum. \u00deannig er n\u00fa l\u00edfi\u00f0, \u00fea\u00f0 hefur \u00e1 s\u00e9r tv\u00e6r hli\u00f0ar og hvorug getur veri\u00f0 \u00e1n hinnar. Engin \u00e1st, engin sorg, st\u00f3r \u00e1st, mikill s\u00f6knu\u00f0ur.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a f\u00e6ddist \u00ed Hr\u00edsey \u00ed Eyjafir\u00f0i 10. ma\u00ed 1933. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi 28. j\u00fan\u00ed 2014 n\u00fdor\u00f0in 81 \u00e1rs.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin Gu\u00f0r\u00fan Lov\u00edsa J\u00f3nsd\u00f3ttir, f. \u00e1 K\u00e1lfsskinni, \u00c1rsk\u00f3gshreppi 2.8. 1890, d. 24.7. 1985 og \u00c1skell \u00deorkelsson, \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur, f. \u00e1 Ytri-M\u00e1sst\u00f6\u00f0um, Svarfa\u00f0ardalshreppi 4.11. 1883, d. 5.8. 1961.<\/p>\n<p>Systkini Gy\u00f0u voru 11 en \u00feessi komust \u00e1 legg:<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur Krist\u00edn, f. 1913, d. 1958,<\/p>\n<p>J\u00f3n \u00de\u00f3rir, f. 1916, d. 1989,<\/p>\n<p>\u00c1sgeir, f. 1920, d. 2002,<\/p>\n<p>Agnar f. 1924 d. 2011 og<\/p>\n<p>Zophon\u00edas, f. 1928, d. 2011.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a var yngst \u00feeirra og eru \u00feau n\u00fa \u00f6ll fallin fr\u00e1.<\/p>\n<p>\u201eUm lei\u00f0 og \u00e9g s\u00e1 hana Gy\u00f0u hugsa\u00f0i \u00e9g aldrei um a\u00f0rar konur,\u201c segir Bj\u00f6ssi me\u00f0 s\u00f6knu\u00f0 \u00ed hjarta. H\u00fan var \u00e1stin hans allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed&nbsp; \u00feau voru ung og l\u00edfi\u00f0 blasti vi\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<p>\u00deann 16. j\u00fan\u00ed 1951 gengu \u00feau \u00ed hj\u00f3naband Gy\u00f0a og J\u00f3n \u00deorbj\u00f6rn Einarsson, m\u00e1larameistar f. 30.8.1926. Hann var \u00fe\u00e1 t\u00e6plega 25 \u00e1ra og h\u00fan n\u00fdor\u00f0in 18 \u00e1ra. \u00deau voru gl\u00e6sileg hj\u00f3n og eignu\u00f0ust 4 b\u00f6rn en misstu frumbur\u00f0inn \u00e1 fyrsta \u00e1ri sem var au\u00f0vita\u00f0 erfi\u00f0 reynsla. Gy\u00f0a ver\u00f0ur jar\u00f0sett vi\u00f0 hli\u00f0 st\u00falkunnar litlu \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i \u00ed&nbsp; dag:<\/p>\n<ol>\n<li>Gu\u00f0bj\u00f6rg J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 1950 d. 1951.<\/li>\n<li>Gu\u00f0mundur J\u00f3nsson f. 1952. Eiginkona hans er Lilja Gu\u00f0r\u00fan Halld\u00f3rsd\u00f3ttir f. 1954. B\u00f6rn \u00feeirra eru J\u00f3n Halld\u00f3r f. 1971 og Lilja f. 1976. J\u00f3n Halld\u00f3r er kv\u00e6ntur Kolbr\u00fanu Eddu G\u00edslad\u00f3ttur f. 1978. Sonur \u00feeirra er Aron Fannar. D\u00f3ttir Kolbr\u00fanar Eddu er Hafd\u00eds Hera. D\u00e6tur J\u00f3ns Halld\u00f3rs eru Alexandra D\u00eds, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Arnar Imsland, og Bergr\u00f3s Lilja. Lilja er gift Haraldi Kolka Leifssyni f. 1976. Synir \u00feeirra eru Leifur Kolka og Gu\u00f0mundur Kolka.<\/li>\n<li>Gu\u00f0bj\u00f6rg J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 1954. Eiginma\u00f0ur hennar var Magn\u00fas Magn\u00fasson f. 1952 D\u00f3ttir \u00feeirra er Gy\u00f0a f. 1976. Samb\u00fdlisma\u00f0ur Gy\u00f0u er Jan Arentoft Nielsen. \u00deau eiga n\u00fdf\u00e6ddan son. Samfe\u00f0ra Gy\u00f0u er Inga D\u00f3ra Magn\u00fasd\u00f3ttir f. 1985. S\u00ed\u00f0ari eiginma\u00f0ur Gu\u00f0bjargar og f\u00f3sturfa\u00f0ir Gy\u00f0u er Einar Karlsson f. 1953. \u00deau skildu.<\/li>\n<li>Sigr\u00ed\u00f0ur Krist\u00edn J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 1962. Eiginma\u00f0ur hennar er Oddur Hallgr\u00edmsson f. 1960. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Matthea f. 1983, gift Halld\u00f3ri Oddssyni f. 1983. B\u00f6rn \u00feeirra eru Skarph\u00e9\u00f0inn og Silf\u00e1 Helga. Hallgr\u00edmur f. 1987, er kv\u00e6ntur \u00c1sd\u00edsi \u00d3lafsd\u00f3ttur f. 1989, og Gu\u00f0bj\u00f6rg f. 1990. Samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er \u00deorsteinn Helgi Valsson f. 1991.<\/li>\n<\/ol>\n<p>Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir \u00f3lst upp \u00ed Hr\u00edsey. Fyrir tv\u00edtugt flutti h\u00fan su\u00f0ur og dvaldi hj\u00e1 systur sinni \u00ed Hverager\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1950 h\u00f3fu Gy\u00f0a og J\u00f3n \u00deorbj\u00f6rn b\u00faskap a\u00f0 Vesturvallag\u00f6tu 7 \u00ed Reykjav\u00edk en \u00fear bjuggu foreldrar hans. \u00c1ri\u00f0 1959 fluttu \u00feau \u00ed n\u00fdbyggt h\u00fas sitt a\u00f0 Selbrekku 6 \u00ed K\u00f3pavogi, \u00fear sem \u00feau bjuggu allt til \u00e1rsins 1985, \u00feegar \u00feau fluttu a\u00f0 Laugateigi 7 \u00ed Reykjav\u00edk. A\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu fluttu \u00feau \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 s\u00edna a\u00f0 M\u00e1nat\u00fani 4 \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1ri\u00f0 2002.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a helga\u00f0i sig fj\u00f6lskyldunni og vann sem h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00fear til yngsta barn \u00feeirra hj\u00f3na var vi\u00f0 14 \u00e1ra aldur. \u00de\u00e1 h\u00f3f h\u00fan st\u00f6rf utan heimilisins hluta \u00far degi og starfa\u00f0i um \u00e1rabil sem saumakona hj\u00e1 Saumastofunni Sportveri og Saumastofunni Fasa.<\/p>\n<p>H\u00fan var fr\u00e1b\u00e6r handavinnukona sem snei\u00f0 og sauma\u00f0i v\u00f6ndu\u00f0 f\u00f6t \u00e1 b\u00f3ndann og b\u00f6rnin og eftir \u00fev\u00ed var teki\u00f0 hva\u00f0 f\u00f6tin \u00feeirra voru f\u00edn og skv. n\u00fdjustu t\u00edsku. H\u00fasm\u00f3\u00f0irin haf\u00f0i \u00ed n\u00f3gu a\u00f0 sn\u00faast me\u00f0 st\u00f3rt heimili og oft mala\u00f0i saumav\u00e9lin \u00e1 n\u00f3ttinni \u00feegar h\u00fan haf\u00f0i besta n\u00e6\u00f0i\u00f0 til a\u00f0 kl\u00e1ra n\u00fdja fl\u00edk.<\/p>\n<p>Bj\u00f6ssi starfa\u00f0i sem m\u00e1laremeistari og haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 n\u00f3g a\u00f0 gera en Gy\u00f0a s\u00e1 um allt og h\u00e9lt heimilinu sk\u00ednandi f\u00f6gru og hreinu e\u00f0a Spic \u2019n Span svo vitna\u00f0 s\u00e9 \u00ed gamalt, amer\u00edskt v\u00f6rumerki.<\/p>\n<p>H\u00fan kenndi b\u00f6rnunum g\u00f3\u00f0a si\u00f0i, vandi \u00feau \u00e1 a\u00f0 bor\u00f0a hollan mat og vera g\u00f3\u00f0ar manneskjur. \u00cd \u00fev\u00ed sambandi kenndi h\u00fan \u00feeim b\u00e6nir og vers.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin uxu \u00far grasi og ur\u00f0u \u00e1stfangin og byrju\u00f0u a\u00f0 b\u00faa heima hj\u00e1 m\u00f6mmu og pabba. Lilja tengdad\u00f3ttir minnist \u00feess hva\u00f0 Gy\u00f0a t\u00f3k henni vel og af n\u00e6rf\u00e6rni, vir\u00f0ingu og \u00e1st \u00feegar h\u00fan kom a\u00f0eins 16 \u00e1ra \u00e1 heimili\u00f0 og bj\u00f3 \u00fear n\u00e6stu 5 \u00e1rin. Sonur hennar og Gu\u00f0mundar leit dagsins lj\u00f3s og Gy\u00f0a kenndi henni a\u00f0 vera mamma en t\u00f3k aldrei fram fyrir hendur hennar. \u00dea\u00f0 er list a\u00f0 eiga g\u00f3\u00f0 samskipti \u00fear sem vir\u00f0ing er borin fyrir f\u00f3lki. Tengdasynir hennar bera henni s\u00f6mu s\u00f6guna um elskulegt vi\u00f0m\u00f3t og hl\u00fdju.<\/p>\n<p>Vinir barnanna voru \u00e6t\u00ed\u00f0 velkomnir og stelpurnar minnast \u00feess a\u00f0 oft fengu vinkonurnar a\u00f0 gista og \u00fe\u00e1 hvarf kleinudunkurinn og mj\u00f3lkin inn \u00ed herbergi \u00fear sem \u00e1stin og l\u00edfsm\u00e1lin voru brotin til mergjar. Og alltaf t\u00f3k Gy\u00f0a \u00fev\u00ed me\u00f0 brosi \u00e1 v\u00f6r. a\u00f0 hafa unga f\u00f3lki\u00f0 heima. Og Gu\u00f0mundur kom me\u00f0 s\u00edna vini heim sem fengu s\u00f6mu m\u00f3tt\u00f6kur og elskusemi af hendi Gy\u00f0u.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a var ekki bara m\u00f3\u00f0ir barna sinna, h\u00fan var l\u00edka \u00feeirra besti vinur. Oft var seti\u00f0 \u00e1 eldh\u00fassbekknum \u00ed Selbrekkunni og r\u00e6tt um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna. Gy\u00f0a var hreinskiptin og or\u00f0heppin en tj\u00e1\u00f0i sig h\u00e1va\u00f0alaust \u00e1 margan m\u00e1ta. \u00deau s\u00e1u \u00fea\u00f0 t.d. \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1 svip hennar ef henni misl\u00edka\u00f0i eitthva\u00f0.<\/p>\n<p>Barnab\u00f6rnin elsku\u00f0u a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 gista hj\u00e1 \u00f6mmu og afa. \u201eLeyfi\u00f0 \u00feeim a\u00f0 vera \u00fev\u00ed s\u00e1 t\u00edmi kemur a\u00f0 \u00feau vilja ekki vera hj\u00e1 \u00f6mmu og afa\u201c, sag\u00f0i Gy\u00f0a vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn og b\u00e6tti \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 muna a\u00f0 venja b\u00f6rnin s\u00edn vi\u00f0 holla f\u00e6\u00f0u. H\u00fan passa\u00f0i \u00f6ll barnab\u00f6rnin s\u00edn og naut \u00feess a\u00f0 hafa afkomendur \u00e1 heimilinu. \u00deau voru hennar fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin minnast g\u00f3\u00f0u daganna \u00e1 Vestuvallag\u00f6tunni \u00feegar mamma var heimavinnandi og svo sumardaganna sem \u00feau dv\u00f6ldu me\u00f0 henni \u00ed Hr\u00edsey. \u00dea\u00f0 voru Parad\u00edsardagar.<\/p>\n<p>\u00deegar Gu\u00f0bj\u00f6rg bj\u00f3 \u00ed Danm\u00f6rku f\u00e9kk h\u00fan m\u00f6rg br\u00e9f fr\u00e1 m\u00f6mmu, stundum 2 x \u00ed viku. Gy\u00f0a h\u00e9lt vel utan um f\u00f3ki\u00f0 sitt.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var \u00ed sveit sem str\u00e1kur og J\u00f3n rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 upp a\u00f0 \u00feau voru alltaf a\u00f0 kaupa n\u00fdjar gallabuxur \u00e1 str\u00e1kinn \u00ed sveitinn. \u00deau undru\u00f0ust \u00feessi miklu slit en komust svo a\u00f0 raun um a\u00f0 hinar h\u00f6f\u00f0u bara ekki veri\u00f0 \u00fevegnar. Hann \u00e1tti \u00fev\u00ed margar gallabuxur um hausti\u00f0!<\/p>\n<p>Sj\u00e1lf elska\u00f0i h\u00fan f\u00edn f\u00f6t og haf\u00f0i yndi af a\u00f0 punta sig. Eftir a\u00f0 h\u00fan veiktist kom Bj\u00f6ssi stundum vi\u00f0 \u00ed b\u00fa\u00f0inni Hj\u00e1 Hrafnhildi og kom heim me\u00f0 falleg f\u00f6t handa henni sem h\u00fan gat vali\u00f0 \u00far.<\/p>\n<p>A\u00f0 hafa \u00ed sig og \u00e1 er mikilv\u00e6gt \u00f6llu f\u00f3lki og a\u00f0 eiga eitthva\u00f0 fallegt og f\u00ednt skiptir okkur m\u00f6rg miklu m\u00e1li. Vi\u00f0 erum fyrir hluti og skraut, t\u00f3l og t\u00e6ki, glingur og gr\u00e6jur en ekkert af \u00feessu fer me\u00f0 okkur yfir m\u00f3\u00f0una miklu. \u00dear me\u00f0 er ekki veri\u00f0 a\u00f0 amast vi\u00f0 \u00feessari heg\u00f0un okkar mannf\u00f3lksins. Meira a\u00f0 segja svonefndir villimenn eru glysgjarnir og hrafninn safnar glingri og skrauti. Segja m\u00e1 a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 leikur til a\u00f0 nj\u00f3ta og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 hafa j\u00e1kv\u00e6\u00f0a afst\u00f6\u00f0u til l\u00edfsins \u00fev\u00ed \u00ed bland vi\u00f0 leikinn er stre\u00f0 og strit eins og segir \u00e1 fyrstu s\u00ed\u00f0um hinnar helgu b\u00f3kar \u00feegar Gu\u00f0 \u00e1varpar Adam fyrir brottf\u00f6r hans og Evu \u00far Parad\u00eds:<\/p>\n<p>\u201eMe\u00f0 erfi\u00f0i skaltu hafa vi\u00f0urv\u00e6ri af \u00fev\u00ed alla \u00fe\u00edna \u00e6vidaga.<\/p>\n<p>\u00deyrna og \u00feistla skal landi\u00f0 gefa af s\u00e9r og \u00fe\u00fa skalt lifa \u00e1 gr\u00f6sum merkurinnar.<\/p>\n<p>\u00cd sveita \u00fe\u00edns andlitis skaltu brau\u00f0s \u00fe\u00edns neyta \u00fear til \u00fe\u00fa hverfur aftur til jar\u00f0arinnar \u00fev\u00ed af henni ertu tekinn.\u00dev\u00ed a\u00f0 mold ert \u00fe\u00fa og til moldar skaltu aftur hverfa.\u201c (1. M\u00f3s 2.17b-19)<\/p>\n<p>\u00cd lj\u00f3si \u00feessar or\u00f0a er mikilv\u00e6gt a\u00f0 halda \u00ed l\u00edfsgle\u00f0ina. L\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okkur n\u00f3g af m\u00f3tl\u00e6ti og sorgum og \u00feess vegna \u00fearf a\u00f0 jafna \u00fea\u00f0 \u00fat me\u00f0 gle\u00f0i, g\u00e6sku og gamni.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a \u00e1tti g\u00f3\u00f0a daga og naut l\u00edfsins. H\u00fan f\u00e9kk hjarta\u00e1fall sextug a\u00f0 aldri og upp \u00far \u00fev\u00ed h\u00f3fst r\u00f6\u00f0 tilvika og einn sj\u00fakd\u00f3murinn t\u00f3k vi\u00f0 af \u00f6\u00f0rum og \u00fev\u00ed var\u00f0 h\u00fan a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 vinna. Ung gl\u00edmdi h\u00fan vi\u00f0 brj\u00f3sklos \u00ed baki og f\u00f3r \u00ed a\u00f0ger\u00f0ir \u00feess vegna en vann \u00fe\u00f3 alla t\u00ed\u00f0 heima og utan heimilis til sextugs. H\u00fan greindist me\u00f0 krabbamein \u00ed brisi \u00ed apr\u00edl s.l. og \u00fea\u00f0 dr\u00f3 hana til dau\u00f0a \u00e1 nokkrum vikum. H\u00fan dvaldi \u00e1 L\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi og hlaut \u00fear fr\u00e1b\u00e6ra um\u00f6nnun sem h\u00e9r er \u00feakka\u00f0 fyrir. J\u00f3n, b\u00f6rnin og barnab\u00f6rnin voru hj\u00e1 henni \u00f6llum stundum. \u00c1\u00f0ur haf\u00f0i h\u00fan veri\u00f0 veik heima og Bj\u00f6ssi og fj\u00f6lskyldan hugsa\u00f0 um hana af elskusemi og natni \u00e1samt fr\u00e1b\u00e6ru starfsf\u00f3lki Heimahlynningar. Hafi \u00feau \u00f6ll \u00fe\u00f6kk fyrir sem hj\u00fakru\u00f0u Gy\u00f0u og l\u00e9ttu henni s\u00ed\u00f0ustu skrefin \u00e1 l\u00edfsveginum.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a nafna \u00f6mmu sinnar var h\u00e9r \u00ed 5 vikur \u00ed vor og sumar og studdi afa og \u00f6mmu en var\u00f0 a\u00f0 hverfa aftur til Danm\u00f6rku \u00fear sem h\u00fan f\u00e6ddi n\u00fdjasta me\u00f0lim fj\u00f6lskyldunnar \u00ed heiminn \u00ed li\u00f0inni viku. Svona heldur n\u00fa l\u00edfi\u00f0 \u00e1fram og vi\u00f0 f\u00e1um a\u00f0 nj\u00f3ta blessunar og barnal\u00e1ns.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 yndi af a\u00f0 fera\u00f0ast. H\u00fan f\u00f3r oft nor\u00f0ur \u00e1 \u00e6skusl\u00f3\u00f0ir s\u00ednar og svo f\u00f3ru \u00feau hj\u00f3nin \u00ed fer\u00f0ir til \u00fatlanda, \u00ed borgarfer\u00f0ir og s\u00f3larlandafer\u00f0ir. \u00deau f\u00f3ru einnig \u00e1rlega \u00ed Hrei\u00f0ri\u00f0 vi\u00f0 Laugavatn sem er \u00ed eigu systurbarna Gy\u00f0u. Seinasta fer\u00f0in utan var farin til Danmerkur a\u00f0 heims\u00e6kja barnab\u00f6rnin Lilju og Gy\u00f0u.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur hafa borist fr\u00e1 \u00e1stvinum, Gu\u00f0u og Jan \u00ed \u00d3\u00f0insv\u00e9um \u00ed Danm\u00f6rku og Hallgr\u00edmi og \u00c1sd\u00edsi \u00ed New York \u00ed Bandar\u00edkjunum til fj\u00f6lskyldunnar og me\u00f0 \u00fe\u00f6kk til \u00f6mmu.<\/p>\n<p>Margs er a\u00f0 minnast.<\/p>\n<p>K\u00e6ra fj\u00f6lskylda, \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 misst miki\u00f0 og s\u00f6knu\u00f0urinn er s\u00e1r. En me\u00f0 t\u00ed\u00f0 og t\u00edma sefast \u00fea\u00f0 sem s\u00e1rast er og \u00feakkl\u00e6ti\u00f0 eitt mun r\u00edkja \u00ed hj\u00f6rtum ykkar. \u00c1stvinamissir er \u00e6t\u00ed\u00f0 erfi\u00f0ur en vi\u00f0 lifum \u00fea\u00f0 af eins og gengnar kynsl\u00f3\u00f0ir hafa \u00feurft a\u00f0 gera um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. Vi\u00f0 kve\u00f0jum m\u00e6ta konu, fagra mannesku yst sem innst.<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Far \u00fe\u00fa \u00ed fri\u00f0i,<br \/>\nfri\u00f0ur Gu\u00f0s \u00feig blessi,<br \/>\nhaf\u00f0u \u00fe\u00f6kk fyrir allt og allt.<br \/>\nGekkst \u00fe\u00fa me\u00f0 Gu\u00f0i,<br \/>\nGu\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00fa fylgi,<br \/>\nhans d\u00fdr\u00f0arhnoss \u00fe\u00fa hlj\u00f3ta skalt.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram. J\u00f3n er b\u00e6nama\u00f0ur og bi\u00f0ur \u00e1fram fyrir s\u00ednu f\u00f3lki a\u00f0 \u00fev\u00ed megi \u00f6llu farnast vel. Hann er \u00feakkl\u00e1tur fyrir t\u00edmann me\u00f0 Gy\u00f0u og sama \u00fe\u00f6kk er \u00ed hugum barnanna og fj\u00f6lskyldna \u00feeirra.<\/p>\n<p>Gy\u00f0a d\u00f3 hj\u00f3\u00f0lega og fallega, \u00e1n verkja og \u00fej\u00e1ningar. Svo er l\u00e6knifr\u00e6\u00f0inni fyrir a\u00f0 \u00feakka og hj\u00fakrun fagf\u00f3lks.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Gr\u00e1tnir til grafar<br \/>\ng\u00f6ngum v\u00e9r n\u00fa h\u00e9\u00f0an,<br \/>\nfylgjum \u00fe\u00e9r, vinur. Far vel \u00e1 braut.<br \/>\nGu\u00f0 oss \u00fea\u00f0 gefi,<br \/>\ngla\u00f0ir v\u00e9r megum<br \/>\n\u00fe\u00e9r s\u00ed\u00f0ar fylgja&#8217; \u00ed fri\u00f0arskaut.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Sb. 1886 &#8211; Valdimar Briem<\/p>\n<p>Lokaversi\u00f0 er b\u00e6n um a\u00f0 mega fylgja henni inn \u00ed birtu himinsins \u00feegar g\u00f6ngunni \u00e1 l\u00edfsveginum l\u00fdkur.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 gefi a\u00f0 s\u00fa b\u00e6n r\u00e6tist hj\u00e1 okkur \u00f6llum, a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 sem h\u00e9r er lifa\u00f0 ver\u00f0i a\u00f0eins upphaf af ferli sem er \u00ed raun eil\u00edft \u00ed k\u00e6rleiksr\u00edki Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Gy\u00f0u \u00c1skelsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi okkur sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum. Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/sc3a1lmaskrc3a1-gyc3b0a-c3a1skelsdc3b3ttir.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir<\/a><\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar<\/strong><\/p>\n<p><strong>R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8:31b-39<\/strong><\/p>\n<p>Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur? 32Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum? 33Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar. 34Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur. 35Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists? Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0? 36\u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<br \/>\n\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn<br \/>\nog vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.<br \/>\n37Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur. 38\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar, 39h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n<p><strong>J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14.1-6<\/strong><\/p>\n<p>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<br \/>\n1\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. 2\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? 3\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. 4Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n5T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n6Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 +Gy\u00f0a \u00c1skelsd\u00f3ttir 1933-2014 M\u00e1nat\u00fani 4, Reykjav\u00edk &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 10. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1395","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1395","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1395"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1395\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1395"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1395"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1395"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}