{"id":1388,"date":"2014-07-09T16:57:40","date_gmt":"2014-07-09T16:57:40","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1388"},"modified":"2014-07-09T16:57:40","modified_gmt":"2014-07-09T16:57:40","slug":"stefania-ingibjorg-petursdottir-ebba-1941-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1388","title":{"rendered":"+Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg P\u00e9tursd\u00f3ttir &#8211; \u201eEbba\u201c &#8211; 1941-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/stefania-ingibjorg-petursdottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/stefania-ingibjorg-petursdottir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1390\" alt=\"Stefania Ingibjorg Petursdottir\" width=\"151\" height=\"215\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg P\u00e9tursd\u00f3ttir&nbsp;<\/b><\/p>\n<p><b>\u201eEbba\u201c&nbsp;<\/b><\/p>\n<p>1941-2014<\/p>\n<p>Blikanesi 6, Gar\u00f0ab\u00e6<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 9. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1388-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/stefania.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/stefania.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/stefania.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>\u00deekktu<\/strong> sj\u00e1lfan \u00feig, s\u00f6g\u00f0u forngrikkir, <i>gnothi seauton<\/i>. Leita\u00f0u eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feekkja r\u00e6tur \u00fe\u00ednar, upphaf og e\u00f0li. Hva\u00f0an ertu kominn? \u00deessi ath\u00f6fn svarar \u00fev\u00ed me\u00f0 einu lykilor\u00f0i: Af <b>j\u00f6r\u00f0u<\/b> ertu komin. \u00dea\u00f0 fyrsta sem fj\u00f6lskylda Stefan\u00edu Ingibjargar sag\u00f0i vi\u00f0 mig, \u00feegar \u00e9g spur\u00f0i um hva\u00f0 hef\u00f0i einkennt hana \u00f6\u00f0ru fremur, var: H\u00fan var jar\u00f0bundin. \u00dea\u00f0 var sagt \u00ed jakv\u00e6\u00f0ri merkingu og v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i tengsl vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur j\u00f6r\u00f0 og allt sem lifir. H\u00fan var mikill d\u00fdravinur alla t\u00ed\u00f0 og haf\u00f0i yndi af a\u00f0 r\u00e6kta gar\u00f0inn sinn og \u00fea\u00f0 einnig \u00ed v\u00ed\u00f0um skilningi. H\u00fan var eftirminnileg kona, f\u00e1gu\u00f0 og h\u00f3gv\u00e6r \u00ed framkomu, en glettin og gamans\u00f6m \u00ed r\u00e9ttum a\u00f0st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg h\u00e9t h\u00fan, k\u00f6llu\u00f0 Ebba, f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 3. desember 1941. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi&nbsp; 26. j\u00fan\u00ed 2014.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda er f\u00e6dd og uppalin a\u00f0 \u00dej\u00f3rs\u00e1rg\u00f6tu 3 \u00ed Litla Skerjafir\u00f0i en \u00fear voru foreldrar hennar me\u00f0al frumbyggja. H\u00fan lauk hef\u00f0bundinni sk\u00f3lag\u00f6ngu og lauk s\u00ed\u00f0ar pr\u00f3fi sem snyrtifr\u00e6\u00f0ingur. Vann hef\u00f0bundin skrifstofust\u00f6rf hj\u00e1 \u00fdmsum fyrirt\u00e6kjum, til d\u00e6mis Gl\u00f3bus, V\u00edfilfelli og Pharmaco, starfa\u00f0i vi\u00f0 verslunarrekstur um t\u00edma, var innkaupastj\u00f3ri hj\u00e1 Hagkaup og s\u00ed\u00f0ast fulltr\u00fai \u00e1 a\u00f0alskrifstofu H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p>Foreldrar Stefan\u00edu voru hj\u00f3nin P\u00e9tur J\u00f3nsson \u00far Borgarfir\u00f0i, f. 19.9. 1895, d. 24.9. 1973, og J\u00f3runn Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir \u00far Skagafir\u00f0i, f. 14.12. 1904, d. 2.2. 1966. Systkini Stefan\u00edu eru:&nbsp; Mar\u00eda, f. 1924, d. 2000, Bj\u00f6rn, f. 1930, d. 1995, \u00c1sthildur, f. 1934, d. 1997 sem eru l\u00e1tin og J\u00f3n Birgir f. 1938.<\/p>\n<p>H\u00fan situr \u00ed b\u00edlnum me\u00f0 pabba. \u00deau aka h\u00e6gt fr\u00e1 einu h\u00fasi til annars og litla hn\u00e1tan fer varlega me\u00f0 varninginn sem \u00feau framlei\u00f0a heima, eggin d\u00fdrm\u00e6tu, sem kokkar \u00e1 veitingah\u00fasum og h\u00fasm\u00e6\u00f0ur \u00ed Reykjav\u00edk baka \u00far og elda \u00far anna\u00f0 g\u00f3\u00f0g\u00e6ti. Heima \u00ed Skerjafir\u00f0i i\u00f0ar allt af l\u00edfi \u00fev\u00ed sem j\u00f6r\u00f0in gefur af s\u00e9r. \u00dear eru h\u00e6nsni, k\u00fdr og kindur, kettir og hundar. Heyja\u00f0 er \u00ed Vatnsm\u00fdrinni \u00fear sem fuglinn fl\u00fdgur yfir og innan um eru v\u00e9lfuglar me\u00f0 drunum og bens\u00ednlykt. Heima eru l\u00edka r\u00e6kta\u00f0ar kart\u00f6flur, r\u00f3fur, rad\u00edsur og fleira. Og \u00ed n\u00e1grenninu er T\u00edvol\u00ed. Ebba er \u00ed Parad\u00eds. H\u00fan tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfi, leikur handbolta me\u00f0 stelpunum og sem unglingur er h\u00fan or\u00f0in \u00cdslandsmeistari.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00e6stu vikur ver\u00f0a li\u00f0in 47 \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Stefan\u00eda giftist, 15. j\u00fal\u00ed 1967, P\u00e1li Braga Kristj\u00f3nssyni, f. 7.2. 1944. Foreldrar hans voru Kristj\u00f3n Ingiberg Kristj\u00e1nsson, f. 25.9. 1908, d. 18.10. 1981, og \u00d3l\u00edna \u00de\u00f3rey Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, f. 10.9. 1927, d. 6.3. 2007. B\u00f6rn Stefan\u00edu og P\u00e1ls Braga eru:<\/p>\n<ol>\n<li>J\u00f3runn, f. 3.3. 1964, \u00e6ttleidd af P\u00e1li Braga, gift \u00de\u00f3rarni Stef\u00e1nssyni, b\u00f6rn hennar eru: a) P\u00e1ll Bragi f. 1986, b) Bj\u00f6rn, f. 1990, c) Selma, f. 2004.<\/li>\n<li>\u00de\u00f3r\u00f0ur, f. 8.1. 1968, kv\u00e6ntur Krist\u00ednu Mark\u00fasd\u00f3ttur, b\u00f6rn \u00feeirra: a) Hj\u00f6rd\u00eds, f. 1995, f\u00f3sturd\u00f3ttir \u00de\u00f3r\u00f0ar, b) Mark\u00fas, f. 2005, c) Kristj\u00f3n, f. 2009.<\/li>\n<li>Rakel, f. 4.6. 1970, gift \u00d3skari Sigur\u00f0ssyni, b\u00f6rn \u00feeirra: a) Stefan\u00eda \u00d3sk f. 1990, b) Sigur\u00f0ur f. 1994 c) Saga f. 2002.<\/li>\n<li>Kristj\u00e1n Leifur, f. 9.12. 1977, \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Tinnu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, b\u00f6rn \u00feeirra: a) \u00d3l\u00edna Ugla, f. 2009 b) Stef\u00e1n og Trausti, f. 2011.<\/li>\n<li>D\u00f3ttir P\u00e1ls Braga er Ynja Sigr\u00fan \u00cdsey, f. 13.8. 1967, og \u00e1 h\u00fan fj\u00f6gur b\u00f6rn.<\/li>\n<\/ol>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Stefan\u00eda og P\u00e1ll Bragi bjuggu lengst \u00e1 Fossag\u00f6tu 8 \u00ed Litla Skerjafir\u00f0i en h\u00fasi\u00f0 bygg\u00f0u \u00feau \u00e1 l\u00f3\u00f0 sem foreldrar Ebbu \u00e1ttu og r\u00e1ku b\u00faska\u00f0 sinn \u00e1. S\u00ed\u00f0ustu 12 \u00e1rin hafa \u00feau b\u00fai\u00f0 \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin eiga fagrar minningar um m\u00f6mmu og \u00feau l\u00fdsa henni \u00e1 hnitmi\u00f0a\u00f0an h\u00e1tt \u00ed fagurri minningargrein sinni og sama gera a\u00f0rir sem minnast hennar \u00ed dag. \u00deau \u00feakka hl\u00fdju hennar og umhyggju, \u00f6ryggi\u00f0 sem h\u00fan skapa\u00f0i \u00feeim, l\u00edfsreglurnar og viskuna sem h\u00fan kenndi \u00feeim, gle\u00f0ina sem einkenndi hana alla t\u00ed\u00f0 og gr\u00e6skulausan h\u00famorinn, birtuna sem bj\u00f3 \u00ed s\u00e1lu hennar.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda var l\u00edfsgl\u00f6\u00f0, gl\u00e6sileg og vel \u00e1 sig komin alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan keppti \u00ed handbolta \u00e1 s\u00ednu yngri \u00e1rum allt \u00fear til h\u00fan eigna\u00f0ist yngsta barn sitt, fyrst me\u00f0 \u00der\u00f3tti, s\u00ed\u00f0ar me\u00f0 Fram og f\u00e9lagsli\u00f0um \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og&nbsp; \u00c1r\u00f3sum. Allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an spila\u00f0i h\u00fan badminton og undanfarin \u00e1r l\u00e9ku \u00feau hj\u00f3nin s\u00e9r \u00ed golfi.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00fereytist ekki \u00e1 a\u00f0 bo\u00f0a m\u00edna golfgu\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem f\u00f3lgin er \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 skilgreina golfi\u00f0 sem kristilegustu \u00ed\u00fer\u00f3tt sem \u00e9g \u00feekki. \u00deeir sem \u00fer\u00f3u\u00f0u leikinn og reglurnar voru greinilega me\u00f0 h\u00e1gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega afst\u00f6\u00f0u til leiksins \u00fev\u00ed hann veitir f\u00f3lki s\u00e9rstaka umbun e\u00f0a eftirgj\u00f6f vegna geigunar og klaufaskapar. \u00deetta er sett \u00ed kerfi sem kallast forgj\u00f6f \u00e1 \u00edslensku en \u00e6tti \u00ed raun a\u00f0 heita fyrirgefning. Og \u00fe\u00e1 spyr \u00e9g \u00feig sem ert kylfingur: Hva\u00f0 ert \u00fe\u00fa me\u00f0 m\u00f6rg h\u00f6gg \u00ed fyrrigefningu? Og almennt tala\u00f0: Hva\u00f0 \u00feurfum vi\u00f0 mikla fyrirgefningu \u00ed l\u00edfinu? Gott v\u00e6ri a\u00f0 hafa sl\u00edkar m\u00e6lingar \u00e1 hreinu en \u00fe\u00e6r eru v\u00edst bara til \u00ed b\u00f3kinni miklu \u00ed himni Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>H\u00fan tilheyr\u00f0i Oddfellowreglunni \u00ed \u00e1ratug og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi Inner Wheel. \u00dear l\u00e9t h\u00fan um sig muna og vann a\u00f0 g\u00f3\u00f0um m\u00e1lefnum \u00ed \u00fe\u00e1gu samfer\u00f0af\u00f3lksins n\u00e6r og fj\u00e6r.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda var listfeng og lag\u00f0i stund \u00e1 gar\u00f0yrkju \u00e1rum saman og svo skar h\u00fan \u00fat muni \u00ed tr\u00e9 hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin og \u00fev\u00ed \u00e1 vel vi\u00f0 a\u00f0 sungi\u00f0 er yfir henni Kv\u00e6\u00f0i\u00f0 um fuglana.<\/p>\n<p>H\u00fan \u00f3lst upp me\u00f0 d\u00fdrum og ekki bara \u00feeim sem hoppa og skoppa um gr\u00e6nar grundir heldur l\u00edka \u00feeim sem lifa undir sver\u00f0inum. H\u00fan t\u00edndi ma\u00f0ka \u00e1rum saman og seldi til vei\u00f0imanna eftir a\u00f0 hafa ali\u00f0 \u00fe\u00e1 af fagmennsku og b\u00faviti. H\u00fan var d\u00fdravinur og \u00e1tti \u00e6t\u00ed\u00f0 g\u00e6lud\u00fdr. \u00c1ri\u00f0 1995 h\u00f3f h\u00fan r\u00e6ktun hundategundarinnar Bichon Fris\u00e9 \u00e1 \u00cdslandi og er fr\u00e1 \u00feeim kominn mikill \u00e6ttbogi.<\/p>\n<p>Ebba var mikill h\u00famoristi og ganta\u00f0ist oft vi\u00f0 heimilisf\u00f3lki\u00f0, str\u00edddi \u00feeim g\u00f3\u00f0l\u00e1tlega og gaf \u00feeim g\u00e6lun\u00f6fn: Laugi, Rebbi, Gaggal\u00fa, Geit og \u00d3i. Svo h\u00f3fst hundar\u00e6ktunin og b\u00f6rnin ur\u00f0u \u00f6gn afbr\u00fd\u00f0is\u00f6m &#8211; en \u00ed gamni, au\u00f0vita\u00f0 &#8211; og g\u00f6ntu\u00f0ust me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ru komin 4 \u201eb\u00f6rn\u201c \u00ed \u00feeirra sta\u00f0, tv\u00e6r t\u00edkur og tveir hundar.<\/p>\n<p>H\u00fan var vel lesin og or\u00f0h\u00f6g og naut \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0a krossg\u00e1tur. Sumar sk\u00e1lds\u00f6gur las h\u00fan \u00e1 hverju \u00e1ri. H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 alla s\u00f6ngleiki \u00ed sj\u00f3nvarpi me\u00f0 b\u00f6rnunum og f\u00f3r oft me\u00f0 \u00feeim \u00e1 leiks\u00fdningar og \u00e1tti s\u00f6ngleiki \u00e1 pl\u00f6tum. S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin hlusta\u00f0i h\u00fan miki\u00f0 \u00e1 klass\u00edska t\u00f3nlist me\u00f0an h\u00fan skar \u00fat og skapa\u00f0i fagra muni af listfengi.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin fengu \u00f6ll t\u00e6kif\u00e6ri til t\u00f3nlistarn\u00e1ms.<\/p>\n<p>H\u00fan var matarger\u00f0arkona par excellans og b\u00f6rnin l\u00e6r\u00f0u margt af henni \u00ed \u00feeim efnum. H\u00fan haf\u00f0i sj\u00e1lf teki\u00f0 \u00fe\u00e1 list \u00ed arf og spann \u00fer\u00e1\u00f0inn \u00e1fram me\u00f0 b\u00f6rnumum. \u00deau muna \u00feegar \u00feau g\u00e1tu fari\u00f0 \u00fat \u00ed gar\u00f0 og teki\u00f0 upp kart\u00f6flur \u00ed pottinn og t\u00ednt jar\u00f0arber og s\u00e9\u00f0 eplatr\u00e9\u00f0 vaxa. Gar\u00f0arnir hennar voru \u00e6t\u00ed\u00f0 listilega skipulag\u00f0ir og gr\u00f3skumiklir. \u00dear voru bl\u00f3m og runnar, matjurtir og eplatr\u00e9. L\u00father var eitt sinn spur\u00f0ur hva\u00f0 hann myndi gera ef hann vissi a\u00f0 heimsendir yr\u00f0i daginn eftir. \u00c9g myndi gr\u00f3\u00f0ursetja eplatr\u00e9, sag\u00f0i hann. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0 afsta\u00f0a til l\u00edfsins a\u00f0 vona \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a andsp\u00e6nis hverju sem er, l\u00edka st\u00e6rstu \u00f3gnunum.<\/p>\n<p>Ebba byrja\u00f0i snemma a\u00f0 tala vi\u00f0 b\u00f6rnin um j\u00f6r\u00f0ina, um hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls l\u00edfs og heims. H\u00fan var heilsteypt manneskja og \u00f6rl\u00e1t sem kunni a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins. B\u00f6rnin nutu \u00feess oft a\u00f0 setja upp sm\u00e1 leik\u00fe\u00e6tti heima, leika stef \u00far augl\u00fdsingum \u00far sj\u00f3nvarpinu og f\u00e6ra \u00ed st\u00edlinn. \u00deau voru \u00fej\u00e1lfu\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1ta sig vi\u00f0 umhverfi\u00f0 og tilveruna og hafa gaman af \u00fev\u00ed, hl\u00e6ja og gr\u00ednast. \u00deau m\u00e1ttu \u00e6t\u00ed\u00f0 tala um allt og brj\u00f3ta til mergjar.<\/p>\n<p>H\u00fan var heilsteypt manneskja me\u00f0 r\u00edka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og h\u00e9lt \u00feeim eiginleikum til hinstu stundar. Henni fannst l\u00edfi\u00f0 \u00ed heild sinni d\u00e1samlegt en henni svei\u00f0 \u00fea\u00f0 hvernig \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 f\u00e9kk stundum a\u00f0 fara s\u00ednu fram og \u00fea\u00f0 \u00feekktu \u00feau \u00e1 eigin skinni, P\u00e1ll og h\u00fan.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okkur m\u00f6rg verkefni til a\u00f0 \u00feroskast af. \u00c1n vi\u00f0n\u00e1ms virkar l\u00edfsleikurinn ekki en honum m\u00e1 l\u00edkja m\u00e1 vi\u00f0 handbolta- e\u00f0a f\u00f3tboltaleik sem n\u00fa er \u00ed hugum margra me\u00f0an heimsmeistarakeppnin \u00ed Brasil\u00edu fer fram me\u00f0 til\u00ferifum eins og sanna\u00f0ist \u00ed g\u00e6r \u00ed 7:1 sigri \u00dej\u00f3\u00f0verja yfir Brasil\u00edum\u00f6nnum sem er sama hlutfall og vi\u00f0 \u00feurftum a\u00f0 \u00feola \u00ed 14:2 tapi gegn d\u00f6num \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. N\u00fa skiljum vi\u00f0 Brassana betur.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er leikur, d\u00e1samlegur leikur en eins og \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttunum \u00fe\u00e1 vinnst sigur \u00ed sumum en a\u00f0rir leikir tapast.<\/p>\n<p>Hefur l\u00edfsleikurinn tapast \u00feegar dau\u00f0inn vitjar f\u00f3lks? S\u00fa spurning er m\u00f6rgum ofarlega \u00ed huga \u00feegar \u00e1stvinur er kvaddur \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins. Svari\u00f0 vi\u00f0 henni er \u00ed senn j\u00e1 og nei. \u00dea\u00f0 er nefnilega svo magna\u00f0 me\u00f0 tr\u00fana a\u00f0 h\u00fan sn\u00fdr tapinu \u00ed sigur. Krossinn, \u00feetta hr\u00e6\u00f0ilega aft\u00f6kut\u00e6ki, er okkur k\u00e6rt sigurt\u00e1kn, sem sett var \u00e1 enni okkar og brj\u00f3st \u00ed heilagri sk\u00edrn \u00feegar vi\u00f0 vorum fr\u00e1tekin handa Jes\u00fa Kristi og himni hans. S\u00e9ra Hallgr\u00edmur or\u00f0ar \u00feetta vel er hann segir:<\/p>\n<p>Me\u00f0 s\u00ednum dau\u00f0a&#8217; hann deyddi<br \/>\ndau\u00f0ann og sigur vann,<br \/>\nmakt hans og afli eyddi,<br \/>\nekkert mig ska\u00f0a kann,<br \/>\n\u00fe\u00f3 leggist l\u00edk \u00ed j\u00f6r\u00f0u,<br \/>\nlifir m\u00edn s\u00e1la fr\u00ed,<br \/>\nh\u00fan m\u00e6tir aldrei h\u00f6r\u00f0u<br \/>\nhimneskri s\u00e6lu \u00ed.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er \u00ed hendi Gu\u00f0s og \u00fea\u00f0 er l\u00edka \u00ed h\u00f6ndum okkar og samfer\u00f0af\u00f3lksins me\u00f0an vi\u00f0 g\u00f6ngum l\u00edfsveginn. S\u00fa sta\u00f0reynd minnir \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 okkar og k\u00f6llu um a\u00f0 elska n\u00e1ungann. Tr\u00fain ver\u00f0ur \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 l\u00edfinu annars ver\u00f0ur h\u00fan a\u00f0 innihaldslausu sk\u00fdjagl\u00e1pi \u00e1n jar\u00f0tengingar.<\/p>\n<p>P\u00e1ll Bragi var hj\u00e1 henni daga og n\u00e6tur s\u00ed\u00f0ustu vikurnar og b\u00f6rnin komu oft \u00e1 L\u00edknardeildina, eftir \u00fev\u00ed sem \u00feau g\u00e1tu. \u00dear hlaut h\u00fan fr\u00e1b\u00e6ra um\u00f6nnun eins og \u00ed \u00f6llu sj\u00fakd\u00f3msferlinu sem h\u00e9r er \u00feakka\u00f0 fyrir. H\u00fan \u00feakka\u00f0i fyrir g\u00f3\u00f0u \u00e1rin sj\u00f6t\u00edu sem h\u00fan hlaut me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri heilsu og l\u00edfsgle\u00f0i en t\u00f3k s\u00ed\u00f0ustu \u00feremur \u00e1runum af \u00e6\u00f0ruleysi.<\/p>\n<p>\u00deau nutu barnal\u00e1ns. S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0in sem P\u00e1ll Bragi sag\u00f0i vi\u00f0 hana voru um a\u00f0 hafa ekki \u00e1hyggjur af b\u00f6rnunum \u00fev\u00ed \u00feau v\u00e6ru \u00f6lli \u00ed g\u00f3\u00f0um m\u00e1lum. \u00deau voru samr\u00fdmd hj\u00f3n \u00ed \u00e1ratugi. Barnab\u00f6rnin voru \u00feeim k\u00e6r og nutu \u00feess a\u00f0 heims\u00e6kja afa og \u00f6mmu og l\u00e6ra af \u00feeim um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna. Ebba h\u00f3f snemma a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn og barnab\u00f6rn um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna, um f\u00f3lk og land, um gr\u00f3\u00f0ur og d\u00fdr, um samhengi alls sem lifir.<\/p>\n<p>\u00deegar Ebba var\u00f0 \u00fer\u00edtug sendi P\u00e1ll Bragi henni v\u00edsukorn eftir KN sem tj\u00e1 \u00e1st hans til hennar sem aldrei br\u00e1st:<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an fyrst \u00e9g s\u00e1 \u00feig h\u00e9r,<\/p>\n<p>s\u00f3lskin \u00fearf \u00e9g minna.<\/p>\n<p>Gegnum l\u00edfi\u00f0 l\u00fdsir m\u00e9r<\/p>\n<p>lj\u00f3si\u00f0 augna \u00feinna.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Lj\u00f3s mininganna lifir \u00e1fram \u00ed hj\u00f6rtum ykkar sem n\u00fa kve\u00f0ji\u00f0 g\u00f3\u00f0a og v\u00e6na manneskju.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg hefur loki\u00f0 l\u00edfsleik s\u00ednum og sigra\u00f0 me\u00f0 Kristi &#8211; og \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00f3endanlegri markat\u00f6lu. Kristur elskar allt og blessar me\u00f0 or\u00f0i s\u00ednu og n\u00e6rveru heilags anda. Hann gefur mikla forgj\u00f6f \u00ed l\u00edfinu og fyrirgefur allt, n\u00e1\u00f0ar og blessar.<\/p>\n<p>Hann er g\u00f3\u00f0i hir\u00f0irinn sem \u00feekkir s\u00edna hj\u00f6r\u00f0 og heldur henni til haga.<\/p>\n<p>N\u00fa er h\u00fan sem lambi\u00f0 \u00ed fa\u00f0mi hans eins og vi\u00f0 \u00feekkju af \u00f3tal myndum \u00far listaverkas\u00f6gunni. \u201eGu\u00f0 er k\u00e6rleikur\u201c segir postulinn J\u00f3hannes og \u201eDrottinn er minn hir\u00f0ir\u201c, segir \u00ed einu \u00feekktasta lj\u00f3\u00f0i veraldar \u00ed 23. s\u00e1lmi Dav\u00ed\u00f0s. Vi\u00f0 erum \u00ed hendi Gu\u00f0s eins og l\u00edfi\u00f0 allt, ma\u00f0kur \u00ed mold, l\u00f6mb og k\u00fdr, fugl og f\u00f3lk, allt sem andardr\u00e1tt hefur.<\/p>\n<p>Af j\u00f6r\u00f0u ertu kominn. Og svo kemur d\u00f3murinn \u00ed kj\u00f6lfar \u00feeirra or\u00f0a: A\u00f0 j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur ver\u00f0a. Vi\u00f0 erum af j\u00f6r\u00f0u og hverfum \u00feanga\u00f0 aftur. En hin kristna von og tr\u00fa \u00f6grar \u00feeim \u00f6rl\u00f6gum og segir: Af j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur upp r\u00edsa. Tr\u00fain s\u00e9r lengra, h\u00fan skilur me\u00f0 hjartanu, en er ekki bundin takmarka\u00f0ri hugsun heilans og svonefndri skynsemi. Brj\u00f3stviti\u00f0, hjarta\u00f0, skynjar hinar st\u00f3ru v\u00edddir og s\u00e9r g\u00e1turnar ganga upp, krossg\u00e1tur l\u00edfsins, \u00fear sem kross Krists er \u00ed mi\u00f0ju sem allsherjar lausn \u00e1 \u00fev\u00ed sem fj\u00f6trar manninn.<\/p>\n<p>14:2, 7:1. Menn tapa og sigra, tapa st\u00f3rt \u00ed lokin, en st\u00f3ri sigurinn er samt unnin, \u00fev\u00ed eil\u00edfa l\u00edfi\u00f0 hefur sigra\u00f0 me\u00f0 \u00f3endanlegri markat\u00f6lu: dau\u00f0inn eitt: l\u00edfi\u00f0 70&#215;7 &#8211; sem merkir takmarkalaust skv. or\u00f0um Jes\u00fa \u00feegar hann r\u00e6ddi fyrirgefninguna vi\u00f0 fylgjendur s\u00edna (Matteus 18:22).<\/p>\n<p>\u00deekktu sj\u00e1lfan \u00feig. Leita\u00f0u a\u00f0 sv\u00f6rum vi\u00f0 g\u00e1tum l\u00edfsins. Reyndu a\u00f0 skilja hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi og gleymdu ekki inns\u00e6i hjartans sem s\u00e9r lengra, d\u00fdpra og h\u00e6rra en \u00f6nnur skilningarvit mannsins.<\/p>\n<p>L\u00edfsleikur okkar heldur \u00e1fram me\u00f0an Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg P\u00e9tursd\u00f3ttir fagnar sigri. Gu\u00f0 blessi minningu hennar og blessi hann okkur \u00f6ll \u00e1 l\u00edfsveginum og gefi okkur g\u00f3\u00f0a daga, g\u00f3\u00f0a heimkomu og sigur \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ritningarlestrar<\/p>\n<p>S\u00e1lmarnir 8:1-10<br \/>\n1Til s\u00f6ngstj\u00f3rans. \u00c1 gitt\u00edt. Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmur.<br \/>\n2Drottinn, Gu\u00f0 vor,<br \/>\nhversu d\u00fdrlegt er nafn \u00feitt um alla j\u00f6r\u00f0ina.<br \/>\n\u00de\u00fa brei\u00f0ir lj\u00f3ma \u00feinn yfir himininn.<br \/>\n3Af munni barna og brj\u00f3stmylkinga hefur \u00fe\u00fa gert \u00fe\u00e9r v\u00edgi<br \/>\ntil varnar gegn andst\u00e6\u00f0ingum \u00fe\u00ednum,<br \/>\ntil a\u00f0 st\u00f6\u00f0va fjandmenn og hefnigjarna.<br \/>\n4\u00deegar \u00e9g horfi \u00e1 himininn, verk handa \u00feinna,<br \/>\ntungli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar, sem \u00fe\u00fa settir \u00fear,<br \/>\n5hva\u00f0 er \u00fe\u00e1 ma\u00f0urinn \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa minnist hans,<br \/>\nog mannsins barn a\u00f0 \u00fe\u00fa vitjir \u00feess?<br \/>\n6\u00de\u00fa ger\u00f0ir hann litlu minni en Gu\u00f0,<br \/>\nkr\u00fdndir hann h\u00e1tign og hei\u00f0ri,<br \/>\n7l\u00e9st hann r\u00edkja yfir handaverkum \u00fe\u00ednum,<br \/>\nlag\u00f0ir allt a\u00f0 f\u00f3tum hans:<br \/>\n8sau\u00f0f\u00e9na\u00f0 allan og uxa<br \/>\nog auk \u00feess d\u00fdr merkurinnar,<br \/>\n9fugla himins og fiska hafsins,<br \/>\nallt sem fer hafsins vegu.<br \/>\n10Drottinn, Gu\u00f0 vor,<br \/>\nhversu d\u00fdrlegt er nafn \u00feitt um alla j\u00f6r\u00f0ina.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleTitle\" class=\"bibleref\">Matteusargu\u00f0spjall 5:1-16<\/span><\/td>\n<td>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_biblike\"><\/div>\n<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\">Fjallr\u00e6\u00f0an<\/div>\n<p><sup>1<\/sup>\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans.&nbsp;<sup>2<\/sup>\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n<sup>3<\/sup><i>\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n<\/i><sup>4<\/sup><i>S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><sup>5<\/sup><i>S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n<\/i><sup>6<\/sup><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><sup>7<\/sup><i>S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><sup>8<\/sup><i>S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n<\/i><sup>9<\/sup><i>S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><sup>10<\/sup><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.&nbsp;<\/i><br \/>\n<sup>11<\/sup>S\u00e6l eru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 er menn sm\u00e1na y\u00f0ur, ofs\u00e6kja og lj\u00faga \u00e1 y\u00f0ur \u00f6llu illu m\u00edn vegna.&nbsp;<sup>12<\/sup>Gle\u00f0jist og fagni\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 laun y\u00f0ar eru mikil \u00e1 himnum. \u00deannig ofs\u00f3ttu \u00feeir sp\u00e1mennina sem voru \u00e1 undan y\u00f0ur.<\/p>\n<div class=\"title\">Salt og lj\u00f3s<\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>13<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>14<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>15<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>16<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/salmaskra-stefania-ingibjorg-petursdottir.pdf\">Salmaskra Stefania Ingibjorg Petursdottir<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Stefan\u00eda Ingibj\u00f6rg P\u00e9tursd\u00f3ttir&nbsp; \u201eEbba\u201c&nbsp; 1941-2014 Blikanesi 6, Gar\u00f0ab\u00e6 &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 9. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1388","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1388","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1388"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1388\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1388"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1388"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1388"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}