{"id":1384,"date":"2014-07-04T20:59:21","date_gmt":"2014-07-04T20:59:21","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1384"},"modified":"2014-07-04T20:59:21","modified_gmt":"2014-07-04T20:59:21","slug":"matthias-orlygsson-1962-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1384","title":{"rendered":"+Matth\u00edas \u00d6rlygsson 1962-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/matthc3adas-c3b6rlygsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/matthc3adas-c3b6rlygsson.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1385\" alt=\"Matth\u00edas \u00d6rlygsson\" width=\"218\" height=\"295\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Matth\u00edas \u00d6rlygsson<\/b><\/p>\n<p>1962-2014<\/p>\n<p>h\u00fasasmi\u00f0ur<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 4. j\u00fal\u00ed, kl. 13.00.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi a\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1384-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/matthias-orlygsson.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/matthias-orlygsson.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/matthias-orlygsson.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Hver er tilgangur l\u00edfsins? \u00deessi spurning og a\u00f0rar skyldar leita \u00e1 hugann \u00feegar samfer\u00f0ama\u00f0ur er kvaddur \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins. Hver er tilgangur l\u00edfsins?<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 leyfa m\u00e9r a\u00f0 koma me\u00f0 eina fullyr\u00f0ingu sem svar og h\u00fan er a\u00f0 minu viti \u00ed anda Matth\u00edasar \u00d6rlygssonar:<\/p>\n<p>Tilgangur l\u00edfsins er a\u00f0 leika s\u00e9r.<\/p>\n<p>Stundum finnst m\u00e9r l\u00edfi\u00f0 allt of alvarlegt og yfir\u00feyrmandi \u00ed \u00f6llum s\u00ednum kr\u00f6fum og skyldum. En \u00feegar d\u00fdpst er skyggnst \u00fe\u00e1 er leikurinn mikilv\u00e6gastur, l\u00edfsleikurinn sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>\u00c1 d\u00f6gunum hl\u00fdddi \u00e9g \u00e1 erlendan fr\u00e6\u00f0imann sem hefur rannsaka\u00f0 leik barna og komist a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leikur og \u00e6rsl eru mun mikilv\u00e6gari en oft hefur veri\u00f0 \u00e1liti\u00f0. B\u00f6rn leika s\u00e9r. \u00deau tuskast og veltast um, hl\u00e6gja og gr\u00e1ta, sl\u00e1st og fa\u00f0mast. Leikur er ein mikilv\u00e6gasta menntun sem ma\u00f0urinn getur \u00f6\u00f0last. Sk\u00f3laganga hefst ekki \u00feegar barni\u00f0 byrjar \u00ed sk\u00f3la. H\u00fan byrjar \u00feegar b\u00f6rn hefja a\u00f0 leika s\u00e9r. Sj\u00e1\u00f0u ungab\u00f6rn sem eru r\u00e9tt byrju\u00f0 a\u00f0 skr\u00ed\u00f0a e\u00f0a taka fyrstu skrefin. \u00deau leita strax hvers annars, kl\u00edpa \u00ed kinn, klappa, fa\u00f0ma. \u00deau vilja leika s\u00e9r.<\/p>\n<p>Eitt vakti s\u00e9rstaka athygli m\u00edna \u00ed vi\u00f0talinu vi\u00f0 \u00feennan fr\u00e6\u00f0imann og l\u00e6kni sem rannsaka\u00f0 hefur f\u00f3lk \u00e1 \u00f6llum aldri me\u00f0 tilliti til leiks \u00ed bernsku og \u00fea\u00f0 var a\u00f0 hann sag\u00f0ist hafa \u00e1tt vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 mor\u00f0ingja \u00ed fangelsum og \u00feeir hafi flestir ef ekki allir \u00e1tt \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 hafa fari\u00f0 \u00e1 mis vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed bernsku a\u00f0 leika s\u00e9r \u00e6rlega. Leikur barnsins er mikilv\u00e6gur til \u00feess a\u00f0 \u00feroska f\u00e9lagsf\u00e6rni og \u00f3talmargt anna\u00f0 sem skiptir svo miklu m\u00e1li s\u00ed\u00f0ar \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni.<\/p>\n<p>Hver er tilgangurinn me\u00f0 \u00feessu \u00f6llu? Um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund hefur f\u00f3lk leita\u00f0 svara vi\u00f0 \u00feeirri spurningu. Ein s\u00e9rkennilegasta b\u00f3k Bibl\u00edunnar heitir Pr\u00e9dikarinn og \u00fear spyr h\u00f6fundur margra spurninga og p\u00e6lir \u00ed l\u00edfinu \u00e1 mj\u00f6g svo frumlegan h\u00e1tt. \u00c9g hvet ykkur til a\u00f0 lesa hana. \u00dear segir m.a.:<\/p>\n<p>10\u00c9g virti fyrir m\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00feraut sem Gu\u00f0 hefur fengi\u00f0 m\u00f6nnunum a\u00f0 \u00fereyta sig \u00e1. 11Allt hefur hann gert hagfellt \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, jafnvel eil\u00edf\u00f0ina hefur hann lagt \u00ed brj\u00f3st \u00feeirra en ma\u00f0urinn f\u00e6r ekki skili\u00f0 a\u00f0 fullu \u00fea\u00f0 verk sem Gu\u00f0 vinnur. 12\u00c9g s\u00e1 a\u00f0 ekkert hugnast \u00feeim betur en a\u00f0 vera gla\u00f0ir og nj\u00f3ta l\u00edfsins me\u00f0an \u00fea\u00f0 endist. 13En a\u00f0 matast, drekka og gle\u00f0jast af \u00f6llu erfi\u00f0i s\u00ednu, einnig \u00fea\u00f0 er Gu\u00f0s gj\u00f6f.<\/p>\n<p>14\u00c9g komst a\u00f0 raun um a\u00f0 allt sem Gu\u00f0 gerir stendur a\u00f0 eil\u00edfu, vi\u00f0 \u00fea\u00f0 er engu a\u00f0 b\u00e6ta og af \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekkert teki\u00f0. Gu\u00f0 hefur haga\u00f0 \u00fev\u00ed svo til \u00feess a\u00f0 menn virtu hann. 15\u00dea\u00f0 sem er, var fyrir l\u00f6ngu, og \u00fea\u00f0 sem ver\u00f0ur, hefur veri\u00f0 fyrir l\u00f6ngu og Gu\u00f0 leitar aftur hins li\u00f0na. (Pr\u00e9d 3.10-15)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Pr\u00e9dikarinn fyrir \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund \u00e1rum e\u00f0a svo leikur \u00e1 s\u00f6mu strengi og l\u00e6knirinn segir um leikinn. L\u00edfsgle\u00f0in og leikurinn skipta mestu.<\/p>\n<p>Matth\u00edas \u00d6rlygsson skorti ekki gle\u00f0ina og l\u00e9ttleikann yfir tilverunni. Sjaldan vitna \u00e9g \u00ed minninargreina \u00ed l\u00edkr\u00e6\u00f0um m\u00ednum en \u00fea\u00f0 sem h\u00e9r er sagt ver\u00f0ur vart or\u00f0a\u00f0 betur:<\/p>\n<p>Matth\u00edas br\u00f3\u00f0ir minn var borinn \u00ed \u00feennan heim me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r og s\u00f3l \u00ed sinni og \u00feeir eiginleikar au\u00f0kenndu hann allt \u00fear til yfir lauk. Hann var athafnasamur og orkumikill sem barn og unglingur, leitandi, \u00feurfti st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 finna orku sinni farveg og f\u00f3r \u00fe\u00e1 ekki alltaf tro\u00f0nar sl\u00f3\u00f0ir. Hann var gamansamur, geislandi af l\u00edfsgle\u00f0i og k\u00e6ti, l\u00e9ttur \u00ed lund og prakkari \u00ed e\u00f0li s\u00ednu en \u00fea\u00f0 var au\u00f0velt a\u00f0 fyrirgefa honum prakkarastrikin enda bj\u00f3 alltaf saklaust gr\u00edn og gr\u00e6skuleysi a\u00f0 baki. \u00cd e\u00f0li s\u00ednu var hann lj\u00faflingur sem \u00f6llum vildi gott gera og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a n\u00e1vist.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deessi or\u00f0 \u00deorgeirs br\u00f3\u00f0ur hans l\u00fdsa honum \u00e1 myndr\u00e6nan h\u00e1tt. Allir sem \u00e9g hef tala\u00f0 vi\u00f0 l\u00fdsa honum me\u00f0 sama h\u00e6tti en hver me\u00f0 s\u00ednum or\u00f0um.<\/p>\n<p>Hver er tilgangur l\u00edfsins? \u00deannig er gjarnan spurt \u00feegar dau\u00f0inn leggur a\u00f0 velli f\u00f3lk \u00e1 besta aldri, gott f\u00f3lk. Hver er tilgangurinn? Pr\u00e9dikarinn talar um a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins, eta og drekka og umfram allt a\u00f0 vera gla\u00f0ur. A\u00f0 hafa \u00ed sig og \u00e1 og r\u00e6kta me\u00f0 s\u00e9r l\u00edfsgle\u00f0i, \u00fea\u00f0 skiptir mestu. En l\u00edfsgle\u00f0in ver\u00f0ur aldrei einleikur heldur \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n n\u00e1unga okkar, \u00e1n vina og samfer\u00f0af\u00f3lks. Ma\u00f0urinn er f\u00e9lagsvera og \u00feeim mun meir sem hann gefur n\u00e1unga s\u00ednum af elsku og gle\u00f0i \u00fev\u00ed meir f\u00e6r hann til baka. \u00deetta er hagfr\u00e6\u00f0i himinsins og h\u00fan ber \u00e6t\u00ed\u00f0 h\u00e1a vexti og gengisfellur aldrei.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Matth\u00edas f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 6. okt\u00f3ber 1962. Hann l\u00e9st \u00e1 Droplaugarst\u00f6\u00f0um 20. j\u00fan\u00ed 2014. Foreldrar hans eru hj\u00f3nin \u00de\u00f3ra \u00deorgeirsd\u00f3ttir, f\u00e6dd 1933, og \u00d6rlygur H\u00e1lfdanarson, f\u00e6ddur 1929. Br\u00e6\u00f0ur Matth\u00edasar eru \u00deorgeir, H\u00e1lfdan og Arn\u00fe\u00f3r \u00d6rlygssynir. Matth\u00edas var \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Kolbr\u00fanu \u00d3lafsd\u00f3ttur og \u00e1tti me\u00f0 henni d\u00e6turnar Matthildi, f\u00e6dda 1982, og Magneu Rut, f\u00e6dda 1986. Matth\u00edas og Kolbr\u00fan slitu samvistir. \u00c1ri\u00f0 1998 gekk Matth\u00edas \u00ed hj\u00f3naband me\u00f0 Elvu Sigtryggsd\u00f3ttur, f\u00e6ddri 1965. B\u00f6rn \u00feeirra eru J\u00f3hanna, f\u00e6dd 1993, Thelma \u00d3sk, f\u00e6dd 1998 og Matth\u00edas M\u00e1ni, f\u00e6ddur 2003. Matth\u00edas og Elva voru skilin. Barnab\u00f6rn Matth\u00edasar eru Birgitta N\u00f3tt og Nadia L\u00edf, b\u00f6rn Matthildar; \u00c1g\u00fast og Alda Bj\u00f6rt, b\u00f6rn Magneu Rutar; og Mikael Kristall sonur J\u00f3h\u00f6nnu. Gott samband var milli Matth\u00edasar og foreldra Elvu. Hann sm\u00ed\u00f0a\u00f0i fyrir \u00feau fallegan pall \u00ed \u00dej\u00f3rs\u00e1rdal \u00fear sem \u00feau dv\u00f6ldu oft me\u00f0an b\u00e6\u00f0i lif\u00f0u en \u00feau l\u00e9tust 2012.<\/p>\n<p>Matth\u00edas var l\u00e6r\u00f0ur h\u00fasasmi\u00f0ur og starfa\u00f0i sem sl\u00edkur um \u00e1rabil en eftir \u00fea\u00f0 vi\u00f0 b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fu me\u00f0an starfskraftar leyf\u00f0u.<\/p>\n<p>Matth\u00edas haf\u00f0i r\u00edka sk\u00f6punarg\u00e1fu. Hann haf\u00f0i gott formskyn og s\u00e1 \u00ed huga s\u00e9r hvernig skapa m\u00e6tti verk me\u00f0 hamri og h\u00f6ndum. Hann var lj\u00fafur ma\u00f0ur, k\u00e1tur og geislandi gla\u00f0ur. \u00dea\u00f0 eru g\u00f3\u00f0ir eiginleikar a\u00f0 geta l\u00fdst upp tilveruna og varpa\u00f0 birtu og lj\u00f3ma \u00e1 umhverfi sitt. \u00cd veikindum s\u00ednum \u00ed 19 \u00e1r, n\u00e6stum helming \u00e6vi sinnar, var hann \u00e6t\u00ed\u00f0 bjarts\u00fdnn og \u00e6\u00f0rulaus en or\u00f0i\u00f0 merkir \u00f3ttalaus. B\u00f6rn h\u00e6ndust a\u00f0 \u00feessu \u00f6\u00f0lingi enda skynja b\u00f6rn hreint hjarta og g\u00f3\u00f0mennsku.<\/p>\n<p>Matth\u00edas haf\u00f0i \u00f3tal \u00e1hugam\u00e1l. \u00deegar \u00e9g spur\u00f0i hva\u00f0an hann hef\u00f0i \u00feetta \u00fe\u00e1 f\u00e9kk \u00e9g \u00feau sv\u00f6r a\u00f0 hann l\u00edktist \u00e1 margan h\u00e1tt f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur s\u00ednum og nafna sem var siglingama\u00f0ur og g\u00f3\u00f0ur smi\u00f0ur og svo \u00deorgeiri afa \u00ed Gufunesi sem var atorkuma\u00f0ur, rammur a\u00f0 afli og \u00feekktur fyrir alls kyns upp\u00e1t\u00e6ki og \u00ferekvirki og ekki s\u00edst fyrir a\u00f0 fara frj\u00e1lslega me\u00f0 g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur. Eftirminnilegt er \u00feegar hann seldi k\u00fdrnar nor\u00f0ur \u00ed land og flutti \u00fe\u00e6r me\u00f0 str\u00e6t\u00f3 sem kaupandinn Gunnar Bjarnason kom me\u00f0. Vagninn st\u00f3\u00f0 uppi \u00e1 h\u00e6\u00f0 og \u00feegar b\u00edlstj\u00f3rinn st\u00f3k af sta\u00f0 og yfir hrygginn \u00fe\u00e1 runnu k\u00fdrnar aftast \u00ed b\u00edlinn svo a\u00f0 hann spor\u00f0reistist. \u00de\u00e1 t\u00f3k \u00deorgeir til sinna r\u00e1\u00f0a og setti planka \u00e1 milli s\u00e6ta og bj\u00f3 til b\u00e1sa og \u00feannig komust k\u00fdrnar nor\u00f0u \u00ed land me\u00f0 str\u00e6t\u00f3 en hann gaf n\u00fa einar tv\u00e6r k\u00fdr \u00e1 lei\u00f0inni til a\u00f0 l\u00e9tta b\u00edlinn \u00fear sem hann kom a\u00f0 of br\u00f6ttum brekkum.<\/p>\n<p>Matti var l\u00edkur honum \u00e1 margan h\u00e1tt.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i gaman af a\u00f0 far til afa \u00ed Gufunesi og \u00ed sveit fyrir nor\u00f0an. Hann var \u00e1 Flugum\u00fdri og svo \u00ed Kjeldudal \u00fear sem hann tengdist f\u00f3lkinu til framb\u00fa\u00f0ar.<\/p>\n<p>Hann var ekki bara skapandi smi\u00f0ur heldur var hann l\u00edka \u00e6vint\u00fdrama\u00f0ur \u00feegar kom a\u00f0 \u00f6flugum \u00f6kut\u00e6kjum af hva\u00f0a tagi sem eru, b\u00edlum, m\u00f3torhj\u00f3lum, v\u00e9lsle\u00f0um, fjallajeppum. Hann \u00fe\u00f3tti \u00f3tr\u00falegur \u00e1 \u00e1 fj\u00f6llum \u00fear sem hann sat vi\u00f0 st\u00fdri\u00f0 og \u00fer\u00e6ddi sl\u00f3\u00f0a yfir klungur og beljandi \u00e1r. Hann var e.t.v. ekki \u00e1 best \u00fatb\u00fana e\u00f0a flottasta jeppanum en hann komst allt og oft lengra en a\u00f0rir me\u00f0 \u00f6kuleiknin sinni og \u00fatsj\u00f3narsemi.<\/p>\n<p>Hann l\u00e9t s\u00e9r ekki n\u00e6gja a\u00f0 \u00e6\u00f0a upp um fj\u00f6ll og fyrnindi heldur \u00feurfti hann l\u00edka \u00e1 reyna fyrir s\u00e9r \u00e1 sj\u00f3. Hann haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 \u00e1huga \u00e1 sj\u00f3mennsku og fiskvei\u00f0um og \u00e1tti einn og me\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum nokkra b\u00e1ta. Eitt sinn sigldi hann fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00ed stj\u00f6rnuvitlausu ve\u00f0ri og komst vestur- og su\u00f0ur fyrir, til Patreksfjar\u00f0ar. \u00dear t\u00f3k hann eldsneyti og karlarnir \u00e1 Patr\u00f3 t\u00f3ku miki\u00f0 \u00ed nefi\u00f0 og kl\u00f3ru\u00f0u s\u00e9r \u00ed h\u00f6f\u00f0inu og s\u00f6g\u00f0u \u00fea\u00f0 hreint me\u00f0 \u00f3l\u00edkingum a\u00f0 Matta hef\u00f0i tekist a\u00f0 sigla fyrrgreinda lei\u00f0 \u00ed \u00feessu ve\u00f0ri.<\/p>\n<p>Matti haf\u00f0i \u00ed s\u00e9r e\u00f0lisgreind hva\u00f0 var\u00f0ar sm\u00ed\u00f0ar og umhverfi, form og sni\u00f0, ve\u00f0ur og vinda.<\/p>\n<p>Hann helga\u00f0i Vi\u00f0ey krafta s\u00edna s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin og var st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 skapa eitthva\u00f0 n\u00fdtt. Okkur b\u00fd\u00f0st a\u00f0 sj\u00e1 verkin hans \u00ed Vi\u00f0ey \u00ed erfinu s\u00ed\u00f0degis. Uppbygging \u00e1 vegum f\u00e9lags Vi\u00f0eyinga var hans verk a\u00f0 miklu leyti. Hann dreymdi um a\u00f0 fara \u00fat \u00ed Vi\u00f0ey \u00ed sumar og vinna.<\/p>\n<p>Hann \u00f3lst upp \u00e1 Seltjarnarnesi og \u00fear eigna\u00f0ist hann \u00e6skuvini og h\u00e9lst vin\u00e1tta \u00feeirra til \u00e6viloka. N\u00e1nustu vinir hans bera honum vel s\u00f6guna og eiga um hann skemmtilegar og hressilgar minningar. Aldrei var lognmolla \u00ed kringum Matta og upp\u00e1t\u00e6kin eftirminnileg. Hann var vins\u00e6ll \u00ed s\u00ednum aldursh\u00f3pi og vinirnir segja a\u00f0 stelpurnar hafi ekki hva\u00f0 s\u00edst haft s\u00e9rstakt auga \u00e1 honum og hann \u00e1 \u00feeim!<\/p>\n<p>Hann kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 og tromma\u00f0i t.d. \u00ed hlj\u00f3msveit um t\u00edma.<\/p>\n<p>Hann lif\u00f0i fyrir l\u00ed\u00f0andi stund, var \u00feakkl\u00e1tur og n\u00e6gjusamur og m\u00e6tti \u00f6llu hiklaus og djarfur.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er hann horfinn af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi en minningarnar um hann lifa og gle\u00f0ja ykkur \u00e1stvini hans.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstakar kve\u00f0jur. \u00d3ttar Sveinsson, br\u00f3\u00f0ursonur \u00d6rlygs, er staddur \u00e1 \u00cdtal\u00edu vi\u00f0 \u00fatskrift og sendi ykkur kve\u00f0ju s\u00edn og Matth\u00edasi \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Gu\u00f0n\u00fd Bj\u00f6rg \u00deorgeirsd\u00f3ttir, systir \u00de\u00f3ur, og ma\u00f0ur hennar, \u00de\u00f3r Sig\u00fe\u00f3rsson, sem b\u00fasett eru \u00ed Noregi send ykkur kve\u00f0ju s\u00edna og Matth\u00edasi \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Matth\u00edas t\u00f3k veikindum s\u00ednum af miklu \u00e6\u00f0ruleysi og reisn og einnig me\u00f0 h\u00famor og \u00e1hyggjuleysi. Hann var \u00feakkl\u00e1tur fyrir l\u00edfi\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem \u00fea\u00f0 f\u00e6r\u00f0i honum. Hann \u00feurfti a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og hafi sigur \u00ed m\u00f6rgum tilfellum en krabbann gat enginn mannlegur m\u00e1ttur sigra\u00f0 og \u00fev\u00ed f\u00f3r sem f\u00f3r.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 skiljum ekki hvers vegna gott f\u00f3lk hverfur af \u00feessu l\u00edfi me\u00f0an a\u00f0rir sem ekki \u00feykja jafn vel ger\u00f0ir ver\u00f0a gamlir e\u00f0a enn a\u00f0rir sem eru or\u00f0nir gamlir og l\u00f6ngu komnir \u00fat \u00far heiminum geta ekki d\u00e1i\u00f0. G\u00e1tur l\u00edfsins eru margar og vi\u00f0 sumum \u00feeirra engin sv\u00f6r. En svari\u00f0 vi\u00f0 spurningunni um tilgang l\u00edfsins sem varpa\u00f0 var fram h\u00e9r \u00ed upphafi stendur sem tilg\u00e1ta og jafnvel \u00f3h\u00f6ggu\u00f0 sem kenning. Svari\u00f0 liggur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r.<\/p>\n<p>Matth\u00edas var l\u00edfs- og leikgla\u00f0ur ma\u00f0ur. Fyrir honum skipti andartaki\u00f0 ekki hva\u00f0 minnstu m\u00e1li. A\u00f0 lifa einn dag \u00ed einu og a\u00f0 leika s\u00e9r er l\u00edfsins list.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum mann sem kunni a\u00f0 vera gla\u00f0ur, b\u00e6\u00f0i \u00ed leik og st\u00f6rfum. \u00c1rafj\u00f6ldinn segir ekki allt um l\u00edfsg\u00e6\u00f0in heldur hvernig lifa\u00f0 var.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst a\u00f0 f\u00f3lk eigi ekki a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 horfa \u00e1 eftir b\u00f6rnum s\u00ednum \u00ed gr\u00f6fina. \u00dea\u00f0 er s\u00e1rt \u00feegar f\u00f3lk gengur \u00ed gengum \u00fe\u00e1 raun. M\u00f3\u00f0ir hans sag\u00f0i vi\u00f0 mig um Matth\u00edas:<\/p>\n<p>A\u00f0 hafa fengi\u00f0 a\u00f0 eiga \u00feennan d\u00e1samlega dreng, er miki\u00f0 \u00feakkarefni, dreng sem fa\u00f0ma\u00f0i mig og endurgalt elsku m\u00edna.<\/p>\n<p>Sk\u00f6mmu fyrir andl\u00e1ti\u00f0 kom h\u00fan til hans og sag\u00f0i: S\u00e6ll Matti minn.<\/p>\n<p>Hann gat ekki svara\u00f0 me\u00f0 or\u00f0um en t\u00f3k \u00ed h\u00f6nd hennar, kyssti \u00e1 hana, brosti og kvaddi m\u00f6mmu sem \u00f3l hann og anna\u00f0ist \u00e1samt pabba af mikilli elsku.<\/p>\n<p>Hann naut elsku og umhyggju foreldra sinna, bj\u00f3 \u00e1 heimili \u00feeirra s\u00ed\u00f0ustu misserin og alltaf lag\u00f0i hann eitthva\u00f0 gott til, m\u00e1la\u00f0i t.d. alla \u00edb\u00fa\u00f0ina fyrir \u00e1ri. \u00deau voru hj\u00e1 honum \u00ed veikindum hans \u00e1samt b\u00f6rnum hans sem \u00e9g hitti vi\u00f0 d\u00e1narbe\u00f0i\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 b\u00e1\u00f0um \u00f6ll fyrir Matth\u00edasi, h\u00e9ldumst \u00ed hendur og tengdum hann inn \u00ed ke\u00f0juna. N\u00fa er hann horfinn en vi\u00f0 erum \u00e1fram hlekkir \u00ed ke\u00f0junni h\u00e9r \u00ed \u00feessu l\u00edfi. Vi\u00f0 munum \u00f6ll kve\u00f0ja \u00ed fyllingu t\u00edmans. \u00dea\u00f0 er gangur l\u00edfsins. Sumir lifa lengi a\u00f0rir skemur. Mestu skiptir a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins og a\u00f0 leika s\u00e9r me\u00f0an dagur er.<\/p>\n<p>Matth\u00edas l\u00e9st \u00ed fa\u00f0mi d\u00e6tra sinna umvafinn elsku.<\/p>\n<p>Marteinn L\u00father lag\u00f0i \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 allir sk\u00edr\u00f0ir menn v\u00e6ru prestar, karlar og konur, fullor\u00f0nir og b\u00f6rn. Hann sag\u00f0i hvern mann inna s\u00edna gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu af hendi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna st\u00f6rf s\u00edn af heilindum, hver sem \u00feau v\u00e6ru. Allir taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i hvort sem menn gegna h\u00e1um emb\u00e6ttum e\u00f0a \u00f6\u00f0rum st\u00f6rfum sem \u00feykja kannski l\u00edtilv\u00e6g \u00e1 veraldlegan m\u00e6likvar\u00f0a. Allir \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i me\u00f0 heilbrig\u00f0um st\u00f6rfum s\u00ednum, sag\u00f0i si\u00f0b\u00f3tarma\u00f0urinn og barni\u00f0 \u00fej\u00f3nar Gu\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r.<\/p>\n<p>Leikurinn heldur \u00e1fram \u00e1 l\u00edfsveginum. Vi\u00f0 erum \u00fe\u00e1tttekandur \u00ed l\u00edfsleiknum. Leikum hann af gle\u00f0i og nj\u00f3tum hans me\u00f0an dagur er.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Matth\u00edasar \u00d6rlygssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar:<\/strong><\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleTitle\" class=\"bibleref\">S\u00e1lmarnir 126:5<\/span><\/td>\n<td>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_biblike\"><\/div>\n<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>\u00deeir sem s\u00e1 me\u00f0 t\u00e1rum<br \/>\nmunu uppskera me\u00f0 gle\u00f0is\u00f6ng.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><br \/>\n<\/span><\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleTitle\" class=\"bibleref\">R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8: 31b-34, 38-39<\/span><\/td>\n<td>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_biblike\"><\/div>\n<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\"><\/div>\n<div class=\"title\">K\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00ed Kristi Jes\u00fa<\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>31 . . .&nbsp;<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">&nbsp;Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur?&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>32<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum?&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>33<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>34<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur. <\/span><\/p>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">[. . . ]&nbsp;&nbsp;<\/span><\/p>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>38<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar,&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>39<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<br \/>\n<\/span><\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleTitle\" class=\"bibleref\">Matteusargu\u00f0spjall 6:25-34<\/span><\/td>\n<td>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_biblike\"><\/div>\n<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\"><sup>25<\/sup>\u00dev\u00ed segi \u00e9g y\u00f0ur: Veri\u00f0 ekki \u00e1hyggjufull um l\u00edf y\u00f0ar, hva\u00f0 \u00fe\u00e9r eigi\u00f0 a\u00f0 eta e\u00f0a drekka n\u00e9 heldur um l\u00edkama y\u00f0ar, hverju \u00fe\u00e9r eigi\u00f0 a\u00f0 kl\u00e6\u00f0ast. Er l\u00edfi\u00f0 ekki meira en f\u00e6\u00f0an og l\u00edkaminn meira en kl\u00e6\u00f0in?&nbsp;<sup>26<\/sup>L\u00edti\u00f0 til fugla himinsins. Hvorki s\u00e1 \u00feeir n\u00e9 uppskera n\u00e9 safna \u00ed hl\u00f6\u00f0ur og fa\u00f0ir y\u00f0ar himneskur f\u00e6\u00f0ir \u00fe\u00e1. Eru\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki miklu fremri \u00feeim?&nbsp;<sup>27<\/sup>Og hver y\u00f0ar getur me\u00f0 \u00e1hyggjum auki\u00f0 einni sp\u00f6nn vi\u00f0 aldur sinn?<\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>28<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Og hv\u00ed eru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e1hyggjufull um kl\u00e6\u00f0na\u00f0? Hyggi\u00f0 a\u00f0 liljum vallarins, hversu \u00fe\u00e6r vaxa. Hvorki vinna \u00fe\u00e6r n\u00e9 spinna.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>29<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">En \u00e9g segi y\u00f0ur: Jafnvel Sal\u00f3mon \u00ed allri sinni d\u00fdr\u00f0 var ekki svo b\u00fainn sem ein \u00feeirra.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>30<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Fyrst Gu\u00f0 skr\u00fd\u00f0ir svo gras vallarins sem \u00ed dag stendur en \u00e1 morgun ver\u00f0ur \u00ed ofn kasta\u00f0, skyldi hann \u00fe\u00e1 ekki miklu fremur kl\u00e6\u00f0a y\u00f0ur, \u00fe\u00e9r tr\u00fal\u00edtil!<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>31<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Segi\u00f0 \u00fev\u00ed ekki \u00e1hyggjufull: Hva\u00f0 eigum v\u00e9r a\u00f0 eta? Hva\u00f0 eigum v\u00e9r a\u00f0 drekka? Hverju eigum v\u00e9r a\u00f0 kl\u00e6\u00f0ast?&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>32<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Allt \u00feetta stunda hei\u00f0ingjarnir og y\u00f0ar himneski fa\u00f0ir veit a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fearfnist alls \u00feessa.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>33<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">En leiti\u00f0 fyrst r\u00edkis hans og r\u00e9ttl\u00e6tis, \u00fe\u00e1 mun allt \u00feetta veitast y\u00f0ur a\u00f0 auki.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>34<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Hafi\u00f0 \u00fev\u00ed ekki \u00e1hyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa s\u00ednar \u00e1hyggjur. Hverjum degi n\u00e6gir s\u00edn \u00fej\u00e1ning.<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Matth\u00edas \u00d6rlygsson 1962-2014 h\u00fasasmi\u00f0ur \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 4. j\u00fal\u00ed, kl. 13.00. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi a\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1384","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1384","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1384"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1384\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1384"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1384"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1384"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}