{"id":1379,"date":"2014-07-02T19:39:45","date_gmt":"2014-07-02T19:39:45","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1379"},"modified":"2014-07-02T19:39:45","modified_gmt":"2014-07-02T19:39:45","slug":"bjorg-thorsteinsdottir-1920-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1379","title":{"rendered":"+Bj\u00f6rg \u00deorsteinsd\u00f3ttir 1920-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/bjorg-thorsteinsd.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/bjorg-thorsteinsd.png?w=226\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1380\" width=\"226\" height=\"300\" alt=\"Bjorg Thorsteinsd\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Bj\u00f6rg \u00deorsteinsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1920-2014<\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og kennari<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 2. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1379-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/bjorg-thorsteinsd.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/bjorg-thorsteinsd.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/bjorg-thorsteinsd.mp3<\/a><\/audio>\n<p>Ef \u00e9g v\u00e6ri kvikmyndager\u00f0arma\u00f0ur og g\u00e6ti sett \u00feessi minningaror\u00f0 \u00e1 filmu og fari\u00f0 sj\u00e1lfur aftur \u00ed t\u00edmann \u00fe\u00e1 mundi \u00e9g hefja t\u00f6kur \u00ed Grj\u00f3ta\u00feorpinu og s\u00fdna f\u00f3lk \u00ed \u00fe\u00f6gulli mynd og \u00fear \u00e1 me\u00f0al stelpuhn\u00e1tu sem k\u00f6llu\u00f0 er Badda en heitir Bj\u00f6rg me\u00f0 langar fl\u00e9ttur \u00ed pilsi og jakka \u00ed matr\u00f3sast\u00edl, \u00ed h\u00e1um sokkum me\u00f0 t\u00edglamynstri efst, \u00ed glansandi sk\u00f3m me\u00f0 \u00f6klabandi. Brosi\u00f0 er \u00f6gn varf\u00e6ri\u00f0. Og kvikmyndin er svarthv\u00edt. Einn e\u00f0a \u00ed mesta lagi tveir b\u00edlar \u00ed mi\u00f0borginni. Konur \u00ed peysuf\u00f6tum e\u00f0a k\u00e1pum. Sumar me\u00f0 mj\u00f3lkurbr\u00fasa a\u00f0rar me\u00f0 skotth\u00fafu og veski. Karlar \u00ed vinnuf\u00f6tum me\u00f0 yfirvaraskegg og a\u00f0rir sparikl\u00e6ddir \u00ed ullarf\u00f6tum me\u00f0 vesti og vasa\u00far \u00ed ke\u00f0ju. Sumir me\u00f0 handvagna, a\u00f0rir me\u00f0 staf. F\u00f3lk \u00ed litlum b\u00e6 en samt h\u00f6fu\u00f0borg \u00feessa lands sem er hluti danaveldis. \u00dear eru vinkonur Bjargar, S\u00f3lveig Hj\u00f6rvar e\u00f0a Lobba. Um hana skrifar J\u00f3n M\u00fali \u00ed minningargrein undir lok li\u00f0innar aldar: \u201e\u00deegar Helgi Hj\u00f6rvar fann upp n\u00fdja forskriftab\u00f3k me\u00f0 einfaldri stafager\u00f0 fyrir al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lk, kennslub\u00f3k sem \u00e6tla\u00f0 var a\u00f0 leysa af h\u00f6f\u00f0inglega dr\u00e1ttlist J\u00f3ns \u00de\u00f3rarinssonar fr\u00e6\u00f0slustj\u00f3ra og Mortens Hansens \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug aldarinnar, vakti frumkv\u00e6\u00f0i barnakennarans mikla athygli. F\u00f6gnu\u00f0u margir st\u00edlhreinum einfaldleikanum, en hinir voru ekki f\u00e6rri sem t\u00f6ldu eftirsj\u00e1 a\u00f0 fl\u00farletrinu og s\u00f6ku\u00f0u Helga Hj\u00f6rvar um skemmdarverk. Einn var \u00fe\u00f3 s\u00e1 h\u00f3pur \u00f3skriftl\u00e6r\u00f0ra sem \u00fe\u00f3ttist n\u00fa hafa eignast kennslub\u00f3k vi\u00f0 sitt h\u00e6fi, \u00ad \u00fea\u00f0 voru krakkarnir \u00ed Br\u00f6ttug\u00f6tu og B\u00ed\u00f3krakkarnir \u00ed Fjalakettinum og leikf\u00e9lagar \u00feeirra \u00ed Grj\u00f3ta\u00feorpi. Gripu \u00feessi landsins b\u00f6rn feginshendi alm\u00fagaletur Helga og \u00e6f\u00f0u sig st\u00edft \u00e1 forskriftinni, einkum \u00e1 bla\u00f0s\u00ed\u00f0unni me\u00f0 efstu l\u00ednu \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: Lobba kom me\u00f0 lo\u00f0na sk\u00f3 \u00far Lund\u00fanaveldi. \u00adLobba var nefnilega leiksystir og upp\u00e1halds vinkona \u00feeirra sem \u00fatskrifast h\u00f6f\u00f0u \u00far t\u00edmakennslu, og hafi\u00f0 \u00e6\u00f0ra n\u00e1m \u00ed Mi\u00f0b\u00e6jarbarnask\u00f3lanum vi\u00f0 Tj\u00f6rnina. \u00dear a\u00f0 auki var Lobba d\u00f3ttir h\u00f6fundar forsskriftanna [sic] . . . \u00deegar Gamla b\u00ed\u00f3 fluttist upp \u00ed Ing\u00f3lfsstr\u00e6ti var kvikmyndasalurinn br\u00faka\u00f0ur til fundahalda, \u00ad \u00fear \u00e6f\u00f0u komm\u00fanistar sig \u00ed a\u00f0 ganga \u00ed takt, og b\u00e1ru \u00fe\u00e1 rau\u00f0a f\u00e1na \u00e1 litlum s\u00e6tum st\u00f6ngum sem f\u00f3ru vel \u00ed hendi, eins og axarsk\u00f6ft. Svo voru komm\u00fanistarnir l\u00edka \u00ed hnefaleikum, en vildu aldrei leyfa manni a\u00f0 vera me\u00f0, grefils beinin. Vi\u00f0 \u00edhaldsb\u00f6rnin hefndum okkar \u00ed k\u00f3rs\u00f6ng \u00e1 g\u00f6ngum og gluggum me\u00f0 \u00fat\u00farsn\u00faningi \u00far bar\u00e1ttus\u00f6ngnum Rau\u00f0a f\u00e1nanum: Fram allir fj\u00f3samenn me\u00f0 sk\u00f3flubla\u00f0i\u00f0, \u00fev\u00ed hrossata\u00f0i\u00f0 vort merki er. Lobba s\u00f6ng s\u00f3pran \u00ed k\u00f3rnum \u00ed einkar \u00e1hrifamiklum s\u00f3l\u00f3um upp \u00ed opi\u00f0 ge\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00f3vininum. H\u00fan var dj\u00f6rfust allra \u00ed leik og hrekk ef svo bar undir, \u00aden st\u00falkna huglj\u00fafust \u00e1 barnalesstofunni \u00ed st\u00f3ra kvisth\u00fasinu vi\u00f0 gamla kirkjugar\u00f0inn undir gafli Lands\u00edmah\u00fassins, \u00ad og gaf engum eftir \u00ed skautahlaupi \u00e1 Tjarnarsvellinu.\u201c (J\u00f3n M\u00fali, Minningargrein \u00ed Mbl 18.7.1995) Lobba deyr undir lok aldarinnar \u00e1ri\u00f0 1995. \u00dearna er l\u00edka \u00c1sger\u00f0ur B\u00faad\u00f3ttir, s\u00ed\u00f0ar veflistarkona sem lifir \u00fe\u00fasaldam\u00f3tin og kve\u00f0ur \u00feetta l\u00edf \u00e1 vord\u00f6gum 2014. Unnur vinkona er \u00fearna l\u00edka \u00ed kj\u00f3l og sportsokkun en h\u00fan hverfur yfir m\u00f3\u00f0una miklu \u00e1 unga aldri. \u00c9g tek mynd af torfb\u00e6 \u00fear sem afi st\u00falkunnar f\u00e6ddist og filma \u00ed h\u00f6fninni, s\u00fdni \u00e1rab\u00e1ta og v\u00e9lb\u00e1ta \u00feessi t\u00e6kniundur, sj\u00e1lfr\u00f3andi skip. \u00c1 Austurvelli er fimleikaflokkur a\u00f0 s\u00fdna listir s\u00ednar. Seinna, \u00fev\u00ed myndin er m\u00f6rg \u00e1r \u00ed vinnslu, fer \u00e9g austur fyrir fjall \u00e1 hestum til a\u00f0 mynda \u00ed Hraunger\u00f0i \u00fear sem Badda er ung kona og kynnist unga og gl\u00e6silega sk\u00f3lastj\u00f3ranum \u00ed \u00deingborg. Vi\u00f0 s\u00fdningu myndarinnar leikur a\u00f0als\u00f6guhetjan \u00e1 p\u00edan\u00f3 \u00ed Gamla b\u00ed\u00f3 \u00ed A\u00f0alstr\u00e6ti 8 \u00fear sem filmann fer \u00ed gegnum st\u00f3ru kvikmyndas\u00fdningav\u00e9lina. Og \u00fea\u00f0 er klappa\u00f0 \u00ed lokin.<\/p>\n<p>\u00c6vint\u00fdraheimur Bjargar var Grj\u00f3ta\u00feorpi\u00f0 og \u00feegar h\u00fan kom \u00feanga\u00f0 \u00f6ldru\u00f0 \u00fe\u00e1 lj\u00f3ma\u00f0i h\u00fan af gle\u00f0i. H\u00fan mundi t\u00edmana tvenna. \u00cdsland var land vonar \u00feegar h\u00fan f\u00e6ddist. Fullveldi\u00f0 2ja \u00e1ra og framt\u00ed\u00f0in bj\u00f6rt. Svo kom kreppan 1929 og svo str\u00ed\u00f0 eftir hana og hermenn ur\u00f0u fleiri \u00ed Reykjav\u00edk en allir \u00edb\u00faarnir. En \u00ed \u00feessu landi vonarinnar \u00ferauka\u00f0i f\u00f3lk og v\u00e6nti betri t\u00ed\u00f0ar og kjara \u00ed v\u00ed\u00f0um skilningi. Og l\u00edfi\u00f0 h\u00e9lt \u00e1fram og breyttist sm\u00e1tt og sm\u00e1tt en \u00feegar liti\u00f0 er til baka \u00fe\u00e1 l\u00edkjast breytingarnar \u00fev\u00ed a\u00f0 margar gj\u00f6rbyltingar hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0. Engin kynsl\u00f3\u00f0 \u00cdslandss\u00f6gunnar hefur s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 eins \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0. \u201e . . allt er a\u00f0 breytast, en aldrei \u00fe\u00fa\u201c, (Sb 6.2) segir s\u00e1lmask\u00e1ldi\u00f0 \u00ed lofgj\u00f6r\u00f0 sinni og tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0. L\u00edfi\u00f0 er \u00e1 hverfanda hveli en Gu\u00f0 breytist aldrei. \u00deess vegna getum vi\u00f0 lifa\u00f0 dag \u00ed senn, \u00e1hyggju- og \u00e6\u00f0rulaus, l\u00e1ti\u00f0 hverjum degi n\u00e6gja s\u00edna \u00fej\u00e1ningu, eins og Frelsarinn segir \u00ed Fjallr\u00e6\u00f0u sinni.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg \u00deorsteinsd\u00f3ttir f\u00e6ddist 16. j\u00fan\u00ed 1920 \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan \u00f3lst upp \u00ed Reykjav\u00edk, lengst af a\u00f0 Mj\u00f3str\u00e6ti 4, fyrir utan \u00e1rin 1921 til 1930 \u00feegar fj\u00f6lskylda hennar bj\u00f3 \u00ed Mj\u00f3afir\u00f0i og Sey\u00f0isfir\u00f0i. \u00c1 uppvaxtar\u00e1runum \u00ed Grj\u00f3ta\u00feorpinu eigna\u00f0ist h\u00fan vini fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0 og s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e6vinni sag\u00f0ist h\u00fan gjarnan vera komin heim \u00feegar h\u00fan gekk um gamla mi\u00f0b\u00e6inn. \u00c1 yngri \u00e1rum t\u00f3k h\u00fan virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed fj\u00f6lbreyttu starfi hj\u00e1 KR. Var \u00ed fimleikaflokki, stunda\u00f0i skauta, sk\u00ed\u00f0i og sund og keppti me\u00f0al annars \u00e1 fyrsta sundm\u00f3tinu sem haldi\u00f0 var \u00ed Sundh\u00f6ll Reykjav\u00edkur. Bj\u00f6rg stunda\u00f0i p\u00edan\u00f3n\u00e1m hj\u00e1 Katr\u00ednu Vi\u00f0ar og eigna\u00f0ist vanda\u00f0 p\u00edan\u00f3 sem var henni mj\u00f6g k\u00e6rt. H\u00fan spila\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og var Chopin \u00ed miklu upp\u00e1haldi. Bj\u00f6rgu gekk afbrag\u00f0s vel \u00ed sk\u00f3la en var\u00f0 a\u00f0 h\u00e6tta n\u00e1mi snemma vegna veikinda. H\u00fan vann s\u00ed\u00f0ar \u00e1 starfsferlinum miki\u00f0 me\u00f0 J\u00f3akim, eiginmanni s\u00ednum, \u00ed \u00feeim sk\u00f3lum sem hann stj\u00f3rna\u00f0i. \u00deeir eru \u00f3f\u00e1ir nemendurnir sem l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 lesa hj\u00e1 Bj\u00f6rgu, s\u00e9rstaklega n\u00e1\u00f0i h\u00fan g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri me\u00f0 a\u00f0 kenna \u00feeim kr\u00f6kkum sem \u00e1ttu erfitt me\u00f0 n\u00e1m. Bj\u00f6rg hj\u00e1lpa\u00f0i miki\u00f0 til vi\u00f0 kennslu og anna\u00f0 sk\u00f3lastarf \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina, alltaf \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00e1 laun fyrir \u00fe\u00e1 vinnu.<\/p>\n<p>Foreldrar Bjargar voru \u00deorsteinn T\u00f3masson og Bj\u00f6rg Magn\u00fasd\u00f3ttir. \u00deorsteinn var skipasmi\u00f0ur, f\u00e6ddur \u00ed Vestur Landeyjum.4.6.1884, d.1.5.1958. Bj\u00f6rg f\u00e6ddist \u00ed \u00c1nanaustum \u00ed Reykjav\u00edk 8.2.1879, d. 24.2.1954. Systkini Bjargar: Magn\u00fas Marin\u00f3 f. 14.2.1910, d.2.10.1980 og A\u00f0alhei\u00f0ur f. 9.5.1912, d.17.10.2005.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg giftist 17.10.1953 J\u00f3akim P\u00e1lssyni kennara og sk\u00f3lastj\u00f3ra, f.&nbsp; \u00ed Hn\u00edfsdal f.&nbsp; 20.11.1913, d. 21.9.2001. Bj\u00f6rg og J\u00f3akim h\u00f3fu b\u00faskap 1953 a\u00f0 \u00deingborg \u00fear sem J\u00f3akim var sk\u00f3lastj\u00f3ri. \u00deau fluttu til Reykjav\u00edkur 1960 og bjuggu \u00fear um skei\u00f0 en s\u00ed\u00f0an \u00ed Borgarfir\u00f0i, \u00c1rsk\u00f3gi \u00ed Eyjafir\u00f0i, H\u00f3lmav\u00edk og \u00deykkvab\u00e6 \u00e1\u00f0ur en \u00feau fluttu aftur til Reykjav\u00edkur 1971 og bjuggu \u00fe\u00e1 lengst af a\u00f0 H\u00e1aleitisbraut 24. Bj\u00f6rg og J\u00f3akim eignu\u00f0ust vini til l\u00edfst\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00f6llum \u00feeim st\u00f6\u00f0um sem \u00feau bjuggu \u00e1 \u00fati \u00e1 landi en \u00fe\u00f3 l\u00edklega hvergi fleri en \u00ed Eyjafir\u00f0inum. \u00c1rsk\u00f3gsstr\u00f6ndin var \u00feeim alla t\u00ed\u00f0 \u00e1kaflega k\u00e6r og vinatengslin vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00fear h\u00e9ldust alla t\u00ed\u00f0. \u00c1 H\u00e1aleitisbraut 24 bjuggu fj\u00f6lskyldur sem h\u00f3fu \u00fear b\u00faskap \u00feegar hverfi\u00f0 bygg\u00f0ist upp \u00far 1960 og \u00e1tti Bj\u00f6rg \u00fear \u00e1kaflega gott vinaf\u00f3lk. \u00deegar Bj\u00f6rg og J\u00f3akim fluttu aftur til Reykjav\u00edkur t\u00f3ku \u00feau virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttastarfi me\u00f0 sonum s\u00ednum hj\u00e1 \u00cd\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lagi Reykjav\u00edkur og st\u00f6rfu\u00f0u \u00f6tullega \u00ed \u00e1ratugi fyrir \u00cdR og Frj\u00e1ls\u00ed\u00fer\u00f3ttasamband \u00cdslands. Voru \u00feau hj\u00f3n t\u00edmaver\u00f0ir \u00e1 flestum m\u00f3tum um langt \u00e1rabil.&nbsp; Fengu \u00feau vi\u00f0urkenningar fyrir st\u00f6rf s\u00edn fr\u00e1 \u00cdR, \u00cdBR og FR\u00cd. Me\u00f0an heilsan leyf\u00f0i f\u00f3r Bj\u00f6rg \u00e1 v\u00f6llinn til a\u00f0 fylgjast me\u00f0 frj\u00e1ls\u00ed\u00fer\u00f3ttam\u00f3tum og fylgdist me\u00f0 \u00f6llum st\u00f3rm\u00f3tum \u00ed sj\u00f3nvarpinu \u00ed \u00f6llum \u00ed\u00fer\u00f3ttagreinum. Bj\u00f6rg n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 fylgjast me\u00f0 heimsmeistaram\u00f3tinu \u00ed f\u00f3tbolta a\u00f0 \u00feessu sinni vegna heilsubrests en \u00e1\u00f0ur keypti h\u00fan oft \u00e1skrift a\u00f0 s\u00fdningum til a\u00f0 geta fylgst sem best me\u00f0 og a\u00f0 hennar mati var Frakkinn Platini alltaf s\u00e1 besti.<\/p>\n<p>Synir Bjargar og J\u00f3akims:<\/p>\n<p>Gunnar P\u00e1ll f. 21.8.1954, maki Oddn\u00fd Fri\u00f0rikka \u00c1rnad\u00f3ttir f. 27.8.1957 og eiga \u00feau tv\u00f6 b\u00f6rn, Arnar f. 25.4.1991 og Bj\u00f6rgu f. 28.4.1994.<\/p>\n<p>Birgir \u00deorsteinn f. 24.5.1962, maki Unnur Jensd\u00f3ttir f. 17.5.1964 og eiga \u00feau tv\u00e6r d\u00e6tur, S\u00f3lborgu f. 22.9.1997 og Bjargeyju f. 11.12.2000. Barnab\u00f6rnin hafa veri\u00f0 miklir s\u00f3largeislar \u00ed l\u00edfi Bjargar og n\u00fa \u00e1 allra s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum \u00feegar l\u00edfsg\u00e6\u00f0in minnku\u00f0u voru \u00fea\u00f0 \u00feau sem g\u00e1fu l\u00edfinu gildi. \u00dea\u00f0 var n\u00e6r sama hveru illa henni lei\u00f0, h\u00fan lj\u00f3ma\u00f0i \u00ed hvert sinn sem \u00feau birtust.<\/p>\n<p>\u00deegar J\u00f3akim veiktist \u00e1 efri \u00e1rum fluttu hj\u00f3nin a\u00f0 Nor\u00f0urbr\u00fan 1 \u00fear sem \u00feau bjuggu vi\u00f0 gott atl\u00e6ti, og Bj\u00f6rg \u00ed \u00e1ratug eftir a\u00f0 J\u00f3akim f\u00e9ll fr\u00e1. S\u00ed\u00f0ustu \u00e6vi\u00e1rin hefur Bj\u00f6rg b\u00fai\u00f0 a\u00f0 Droplaugast\u00f6\u00f0um og hloti\u00f0 \u00fear g\u00f3\u00f0a um\u00f6nnum fr\u00e1b\u00e6rs starfsf\u00f3lks. Henni \u00fe\u00f3tti v\u00e6nt um starfsf\u00f3lki\u00f0 og \u00fea\u00f0 var lj\u00f3st \u00ed veikindum hennar s\u00ed\u00f0ustu vikurnar a\u00f0 \u00fea\u00f0 var gagnkv\u00e6mt. \u00deakka\u00f0 er fyrir alla g\u00f3\u00f0a \u00fej\u00f3nustu og elskusemi \u00ed hennar gar\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00fan unni t\u00f3nlist og naut hennar alla t\u00ed\u00f0 og einnig helgistunda.<\/p>\n<p>Um \u00e1rabil var hugvekja \u00e1 sunnud\u00f6gum \u00ed sj\u00f3nvarpinu sem \u00feau Biggi hor\u00f0u \u00e1 saman og svo kom H\u00fasi\u00f0 \u00e1 sl\u00e9ttunni sem hreyf\u00f0i vi\u00f0 \u00f6llum. Hugvekjan sem oftast var flutt af presti h\u00f3fst me\u00f0 g\u00edtarstefinu fagra, Cacatina \u00far kvikmyndinn Deer Hunter sem Biggi segir hafa tengst \u00feessari heil\u00f6gu stund me\u00f0 m\u00f6mmu \u00f3rj\u00fafanlegum b\u00f6ndum. Hann l\u00e6r\u00f0i \u00e1 klass\u00edskan g\u00edtar \u00ed nokkur \u00e1r og spila\u00f0i oft fyrir m\u00f6mmu s\u00edna sem spara\u00f0 aldrei hr\u00f3si\u00f0 og var hans dyggasti \u00e1\u00f0d\u00e1andi. Biggi s\u00f3tti g\u00edtart\u00edma hj\u00e1 Hannesi Gu\u00f0r\u00fanarsyni sem flytur okkur n\u00fa \u00feetta fallega lag.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>CAVATINA<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Hvernig minnast synir hennar og \u00feeirra fj\u00f6lskyldur Bjargar?<\/p>\n<p>Or\u00f0in sem \u00feeim koma fyrst \u00ed hug eru: H\u00fan var mild og g\u00f3\u00f0 manneskja. Kraftarnir voru farnir en hl\u00fdjan og brosi\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 til sta\u00f0ar. H\u00fan var h\u00f3gv\u00e6r og h\u00e1va\u00f0alaus, glettin h\u00famoristi. \u00deegar h\u00fan datt \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu og f\u00e9kk st\u00f3ra k\u00falu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 s\u00fdndi h\u00fan filipp\u00edsku starfsst\u00falkunni k\u00faluna og \u00fe\u00e6r skellihl\u00f3gu. H\u00fan valdi s\u00e9r \u00e1vallt hl\u00fd og \u00fe\u00e6gileg f\u00f6t en ekki neitt skart e\u00f0a skraut. H\u00fan var h\u00e6fileikar\u00edk kona, listhneig\u00f0. Eitt sinn vann h\u00fan vi\u00f0 lj\u00f3smyndum hj\u00e1 Lofti og l\u00e6r\u00f0i miki\u00f0. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i l\u00edka \u00e1 p\u00edan\u00f3 og d\u00e1\u00f0i Chopin. H\u00fan stunda\u00f0i \u00ed\u00fer\u00f3ttir og hef\u00f0i gjarnan vilja\u00f0 vera virk \u00ed \u00feeim efnum lengur. H\u00fan hef\u00f0i \u00e1n efa fari\u00f0 \u00ed h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1m ef h\u00fan hef\u00f0i f\u00e6\u00f0st s\u00ed\u00f0ar \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld en h\u00fan b\u00e6tti \u00fea\u00f0 upp me\u00f0 miklum b\u00f3klestri. H\u00fan var st\u00e1lminnug og vildi a\u00f0 str\u00e1karnir menntu\u00f0u sig. H\u00fan vann lengst af \u00ed sk\u00f3lastarfi me\u00f0 manni s\u00ednum, gekk \u00ed hva\u00f0 sem var og kunni allt en haf\u00f0i engin pr\u00f3f og f\u00e9kk engin laun en vann fyrir gle\u00f0ina eina. Launin hennar hafa safnast upp \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 og n\u00fa styttist \u00ed \u00fatborgun.<\/p>\n<p>H\u00fan var ekki alltaf heilsuhraust \u00fer\u00e1tt fyrir \u00ed\u00fer\u00f3ttai\u00f0kun og dugna\u00f0. H\u00fan var oft me\u00f0 h\u00f6fu\u00f0verk \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum, fann til svima og leita\u00f0i s\u00e9r l\u00e6kninga m.a. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00e1 heilsuh\u00e6li \u00ed Danm\u00f6rku en fa\u00f0ir hennar var me\u00f0al frumkv\u00f6\u00f0la h\u00e9r \u00e1 landi \u00ed n\u00e1tt\u00farul\u00e6kningum. H\u00fan bor\u00f0a\u00f0i hr\u00e1f\u00e6\u00f0i l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en sl\u00edkt var nefnt \u00ed matarbloggi og glanst\u00edmaritum. H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 me\u00f0vitu\u00f0 um hollustu en samt hvarf ekki kvillinn sem kom helst fram \u00ed kv\u00ed\u00f0a. H\u00fan var vi\u00f0kv\u00e6m manneskja en samt voru \u00ed henni miklar t\u00f6ggur. H\u00fan var greind \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um, s\u00e1 t.a.m. um b\u00f3khald heimilisins og var fj\u00e1rgl\u00f6gg \u00ed \u00feeim efnum. H\u00fan unni skipulagi og var natin vi\u00f0 a\u00f0 halda \u00f6llu \u00ed r\u00f6\u00f0 og reglu. Samband hennar og Magn\u00fasar br\u00f3\u00f0ur hennar var n\u00e1i\u00f0 og gott og hann f\u00f3r oft me\u00f0 hana \u00e1 sk\u00ed\u00f0i. Og \u00feegar Alla systir hennar eigna\u00f0ist b\u00f6rn h\u00e6ndist Bj\u00f6rg mj\u00f6g a\u00f0 henni og b\u00f6rnunum og \u00feau a\u00f0 henni eins og reyndar \u00f6ll systkinab\u00f6rn hennar. Anna Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir, systurd\u00f3ttir Bjargar sem b\u00fdr \u00ed Fl\u00f3r\u00edda \u00ed Bandar\u00edkjunum sendir kve\u00f0ju s\u00edna til \u00e1stvina og \u00fe\u00f6kk til fr\u00e6nku.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feau bjuggu \u00e1 \u00c1rsk\u00f3gsstr\u00f6nd s\u00f6ng J\u00f3akim \u00ed kirkjuk\u00f3rnum og str\u00e1karnir v\u00f6ndust \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed messu og n\u00fa syngur Biggi \u00ed \u00feessari kirkju. Fyrir nor\u00f0an \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00fe\u00e1 s\u00e9ra K\u00e1ri Valsson, t\u00e9kki a\u00f0 uppruna og l\u00e6r\u00f0ur \u00ed g\u00famm\u00edfr\u00e6\u00f0um, kom hinga\u00f0 til lands sem s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed a\u00f0 s\u00f3la hj\u00f3lbar\u00f0a en f\u00f3r s\u00ed\u00f0an \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem er sko engin g\u00famm\u00edgrein \u00fe\u00f3tt sumir haldi \u00fea\u00f0. \u00cdsland v\u00e6ri betur \u00e1 vegi statt ef fleiri l\u00e6r\u00f0u gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i en raun ber vitni. T.d. m\u00e6ttu fr\u00e6\u00f0imenn \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um k\u00edkja \u00f6gn \u00ed \u00feau fr\u00e6\u00f0i s\u00e9r til uppbyggingar og betrunar til a\u00f0 skilkja betur hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi tilverunnar. \u00deau f\u00f3ru l\u00edka reglulega \u00ed kirkju \u00ed \u00deykkvab\u00e6num og sungu Gu\u00f0i lof \u00fear fyrir opnu hafi. Ung var Bj\u00f6rg \u00ed Hraunger\u00f0i hj\u00e1 s\u00e9ra Sigur\u00f0i P\u00e1lssyni, s\u00ed\u00f0ar v\u00edgslubiskupi og fr\u00fa Stefan\u00edu konu hans. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00f3tti gott starf a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera \u00ed vist \u00e1 menningarheimili og prestssetri. Og \u00fear kynntist h\u00fan \u00e1stinni \u00fev\u00ed ungi sk\u00f3lastj\u00f3rinn \u00ed \u00deingborg kom au\u00f0vita\u00f0 heim til prestshj\u00f3nanna og kannski kom hann ekki til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sk\u00f3lam\u00e1l heldur til a\u00f0 hitta ungu st\u00falkuna sem \u00fear var \u00ed vist.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg var alla t\u00ed\u00f0 tr\u00fau\u00f0 og eins og algengt var \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld \u00fe\u00e1 fannst henni sp\u00edritismi forvitnilegur. H\u00fan gaf \u00f6llum sko\u00f0unum t\u00e6kif\u00e6ri, var opin en samt efahyggjumanneskja. H\u00fan ba\u00f0 s\u00ednar b\u00e6nir og f\u00f3r me\u00f0 Fa\u00f0ir vor b\u00e6nina me\u00f0 syni s\u00ednum upph\u00e1tt \u00feremur d\u00f6gum fyrir andl\u00e1ti\u00f0. Glettnin hvarf aldrei og \u00feegar Biggi spur\u00f0i hvort h\u00fan v\u00e6ri hr\u00e6dd \u00fe\u00e1 kom blik \u00ed augun og h\u00fan svara\u00f0i: J\u00e1, vi\u00f0 \u00feig!<\/p>\n<p>Uggur og \u00f3tti, kv\u00ed\u00f0i og \u00f3\u00f6ryggi. \u00deetta eru tilfinningar sem allir \u00feekkja \u00ed einhverjum m\u00e6li. Tilvist okkar er h\u00e1\u00f0 \u00f3vissu og \u00feess vegna er oft stutt \u00ed ugg og kv\u00ed\u00f0a. Tr\u00fain er l\u00edklega eitt besta me\u00f0al \u00feegar \u00feannig vi\u00f0rar \u00ed s\u00e1linni, tr\u00fain sem gefur von og minnir \u00e1 a\u00f0 allt l\u00edf er \u00ed hendi Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Horfi\u00f0 til fugla himinsins, lilja vallarins. Fuglar og bl\u00f3m nj\u00f3ta s\u00edn en l\u00edfi\u00f0 er samt aldrei dans \u00e1 r\u00f3sum. \u00c9g horf\u00f0i \u00e1 \u00e6\u00f0arfuglinn synda stoltan inn v\u00edkina fyrir utan stofugluggann minn um daginn me\u00f0 \u00e1tta unga. \u00deeir eru n\u00fa fj\u00f3rir. L\u00edfi\u00f0 er t\u00f6ff en \u00fea\u00f0 tommar \u00fe\u00f3 \u00e1fram og tekst \u00ed flestum tilfellum.<\/p>\n<p>Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmar eru uppspretta mikillar visku og l\u00edfsreynslu. \u00dear m\u00e1 greina flest stef mannlegrar tilvistar. \u00dear segir sk\u00e1ldi\u00f0 m.a. um \u00f3ttann og Gu\u00f0 (Sl 27.1):<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Drottinn er lj\u00f3s mitt og fulltingi,<\/p>\n<p>hvern \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 \u00f3ttast?<\/p>\n<p>Drottinn er v\u00edgi l\u00edfs m\u00edns,<\/p>\n<p>hvern \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 hr\u00e6\u00f0ast?<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa hughreystandi or\u00f0 \u00ed helgri b\u00f3k getum vi\u00f0 styrkt okkur \u00e1 l\u00edfsveginum. Or\u00f0 Gu\u00f0s eru fyrirheit, lofor\u00f0 eins og besta trygging. Tryggjum hj\u00e1 honum og munum a\u00f0 \u00fear eins og \u00ed heiminum tryggjum vi\u00f0 ekki eftir\u00e1.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram. Kvikmyndav\u00e9lin malar og n\u00fa er engin filma \u00ed henni heldur bara stafr\u00e6nt minni en allt \u00ed lit. T\u00e6knin breytist en mannl\u00edfi\u00f0 l\u00edti\u00f0 sem ekkert. \u00c1fram lifum vi\u00f0 \u00ed \u00f3tryggum heimi sem breytist \u00f6rt en Gu\u00f0 er \u00e6t\u00ed\u00f0 hinn sami. Heyrum or\u00f0 sem sta\u00f0h\u00e6fa \u00feetta (Sl 102:25-28)<\/p>\n<p>\u00c9g segi: \u201eGu\u00f0 minn, sviptu m\u00e9r ekki burt \u00e1 mi\u00f0ri \u00e6vi<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1r \u00fe\u00edn vara fr\u00e1 kyni til kyns.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00f6ndver\u00f0u grundvalla\u00f0ir \u00fe\u00fa j\u00f6r\u00f0ina<\/p>\n<p>og himinninn er verk handa \u00feinna;<\/p>\n<p>\u00feau munu l\u00ed\u00f0a undir lok en \u00fe\u00fa varir,<\/p>\n<p>\u00feau munu fyrnast sem fat,<\/p>\n<p>\u00fe\u00fa leggur \u00feau fr\u00e1 \u00fe\u00e9r sem kl\u00e6\u00f0i og \u00feau hverfa<\/p>\n<p>en \u00fe\u00fa ert hinn sami og \u00e1r \u00fe\u00edn f\u00e1 engan enda.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lifum \u00ed \u00feessari spennu milli efa og tr\u00faar, \u00f3vissu og vonar.<\/p>\n<p>\u00c1fram h\u00f6ldum vi\u00f0 gangandi e\u00f0a hlaupandi eftir l\u00edfsveginum, sau\u00f0skinnsk\u00f3rnir eru horfnir og h\u00e1\u00fer\u00f3a\u00f0ir hlaupask\u00f3r komnir \u00ed sta\u00f0inn en \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 kj\u00f3sa sumir a\u00f0 hlaupa hvorki \u00ed sau\u00f0askinnsk\u00f3m n\u00e9 h\u00e1\u00fer\u00f3u\u00f0um hlaupask\u00f3m heldur bara berf\u00e6ttir. Gunni Palli og Biggi eru lands\u00feekktir hlauparar og me\u00f0 \u00feeim hlaupa b\u00e6\u00f0i hlaupadrottningar og k\u00f3ngar. Svona er l\u00edfi\u00f0 \u00e1 l\u00edfsveginum. \u00dea\u00f0 er undursamlegt \u00e6vint\u00fdri sem s\u00edfellt kemur okkur \u00e1 \u00f3vart me\u00f0 n\u00fdjum verkefnum hvort sem \u00fea\u00f0 er \u00e1 \u00fer\u00f6ngum g\u00f6tum Grj\u00f3ta\u00feorps e\u00f0a \u00f6\u00f0rum gu\u00f0svegum. Kvikmyndav\u00e9lin malar \u00e1fram. Enn er saga skr\u00e1\u00f0, saga f\u00f3lks, saga einstaklinga, saga okkar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Bj\u00f6rgu \u00deorsteinsd\u00f3ttur sem \u00e1tti merkilega s\u00f6gu \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld og inna \u00e1 \u00fe\u00e1 tuggugustu og fyrstu en er n\u00fa geymd \u00ed eil\u00edf\u00f0inni. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hennar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Bj\u00f6rg \u00deorsteinsd\u00f3ttir 1920-2014 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og kennari &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 2. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1379","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1379","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1379"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1379\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1379"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1379"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1379"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}