{"id":1373,"date":"2014-07-01T19:57:29","date_gmt":"2014-07-01T19:57:29","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1373"},"modified":"2014-07-01T19:57:29","modified_gmt":"2014-07-01T19:57:29","slug":"edda-thorarinsdottir-1936-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1373","title":{"rendered":"+Edda \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir 1936-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/edda-thorarinsdottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/edda-thorarinsdottir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1374\" alt=\"Edda Thorarinsdottir\" width=\"229\" height=\"203\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Edda \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1936-2014<\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir&nbsp;og&nbsp;fv. starfsma\u00f0ur P\u00f3sts og s\u00edma<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju \u00feri\u00f0judaginn 1. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 15<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1373-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/edda-thorarinsdottir.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/edda-thorarinsdottir.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/07\/edda-thorarinsdottir.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Jes\u00fas<\/strong> sag\u00f0i: \u201e\u00c9g lifir og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 lifa.\u201c<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e1stvinur deyr hverfur margt en minningarnar lifa \u00e1fram. Edda er horfin me\u00f0 sinn g\u00f3\u00f0a h\u00famor og skemmtilegu n\u00e6rveru. B\u00f6rnin hennar og tengdab\u00f6rn sakna m\u00f6mmu og barnab\u00f6rnin \u00f6mmu sem var \u00feeim svo mikils vir\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er miki\u00f0 undur a\u00f0 vera til. M\u00e9r ver\u00f0ur svo oft hugsa\u00f0 um \u00feau forr\u00e9ttindi sem felast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera til. \u00dea\u00f0 m\u00e1tti engu muna a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i ekki til og sama \u00e1 vi\u00f0 um \u00feig. Fruman sem n\u00e1\u00f0i egginu svo \u00far varst \u00fe\u00fa hef\u00f0i geta\u00f0 fundi\u00f0 anna\u00f0 egg og \u00fe\u00e1 hef\u00f0ir \u00fe\u00fa ekki or\u00f0i\u00f0 til, aldrei &#8211; aldrei \u00ed allri eil\u00edf\u00f0inni. Vi\u00f0 erum einst\u00f6k, hvert og eitt, og aldrei ver\u00f0ur til neinn annar, \u00fe\u00fa, nein \u00f6nnur, \u00fe\u00fa! L\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt og \u00fea\u00f0 er undursamlegt t\u00e6kif\u00e6ri til sk\u00f6punar og \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 Gu\u00f0 og menn. L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f og \u00fea\u00f0 varir tiltekinn t\u00edma h\u00e9r \u00ed heimi en lifir a\u00f0 eil\u00edfu \u00ed himni Gu\u00f0s. En l\u00edfi\u00f0 er samt aldrei eint\u00f3mur dans \u00e1 r\u00f3sum. \u00dea\u00f0 f\u00e6rir okkur verkefni til a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 og \u00feroskast af. Hvernig v\u00e6ri l\u00edfi\u00f0 ef vi\u00f0 \u00feyrftum aldrei a\u00f0 hafa fyrir \u00fev\u00ed? Ef vi\u00f0 \u00feyrftum bara a\u00f0 r\u00e9tta \u00fat h\u00f6ndina og fengjum \u00fear me\u00f0 allt sem vi\u00f0 \u00fer\u00e1\u00f0um? Ef vi\u00f0 g\u00e6tum bara fari\u00f0 me\u00f0 einfaldar b\u00e6nir og allar \u00f3skir uppfylltust? V\u00e6ri \u00fea\u00f0 l\u00edf einhvers vir\u00f0i a\u00f0 lifa \u00fev\u00ed? L\u00edfi\u00f0 er jafnv\u00e6gi gle\u00f0i og sorgar, k\u00e6rleika og s\u00f6knu\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er einhverskonar <i>ying<\/i> og <i>yang<\/i> \u00ed l\u00edfinu svo v\u00edsa\u00f0 s\u00e9 til austurlenskrar speki. \u00dea\u00f0 er fagna\u00f0arerindi og l\u00f6gm\u00e1l skv. gy\u00f0ing\/kristnum hugmyndaheimi, frelsi og \u00e1byrg\u00f0.<\/p>\n<p>Og innan \u00feessa ramma, \u00e1 milli tveggja p\u00f3la, fer l\u00edfsleikurinn fram. Hann er \u00ed vissum skilningi eins og knattspyrnuleikur sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 innan markal\u00edna \u00fear sem reglur gilda og d\u00f3mari og l\u00ednuver\u00f0ir g\u00e6ta leiksins. Menn hafa frelsi til a\u00f0 leika s\u00e9r innan l\u00ednanna, innan marka, undir v\u00f6kulum augum \u00feeirra \u00feriggja sem g\u00e6ta leiksins.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er leikur innan marka og \u00fer\u00edeinn Gu\u00f0 hefur g\u00e6tur \u00e1 \u00f6llu. Jafnv\u00e6gi\u00f0 skiptir \u00f6llu, <i>ying<\/i> og <i>yang<\/i>, fagna\u00f0arerindi og l\u00f6m\u00e1l, frelsi og \u00e1byrg\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Edda <\/b>f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 14. \u00e1g\u00fast 1936. H\u00fan anda\u00f0ist \u00e1 Landsp\u00edtala V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um hinn 21. j\u00fan\u00ed 2014. Foreldrar Eddu voru hj\u00f3nin \u00de\u00f3rarinn Bj\u00f6rnsson, p\u00f3stfulltr\u00fai fr\u00e1 Borgarfir\u00f0i, f. 8.okt\u00f3ber 1900, d. 24. j\u00fal\u00ed 1959 og Ingiveig&nbsp; Eyj\u00f3lfsd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja fr\u00e1 Keflav\u00edk, f. 31. j\u00fal\u00ed 1902, d. 12. febr\u00faar 1985.&nbsp; L\u00edffr\u00e6\u00f0ilegir foreldrar hennar voru \u00d3lafur P\u00e1lsson \u00d3lafsson veitingama\u00f0ur fr\u00e1 Akranesi, f. 1897, d. 1965 og Helga P\u00e1l\u00edna Sigur\u00f0ard\u00f3ttir h\u00fasfreyja fr\u00e1 \u00cdsafjar\u00f0adj\u00fapi, f. 1901, d. 1987<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00d3lafs og Helgu og systkini Eddu voru: El\u00edn f.1923, d. 2009,&nbsp; Magn\u00fas f. 1925, d. 2011, \u00de\u00f3rd\u00eds&nbsp; f. 1926, d. 1995, \u00deorgeir f. 1927, d. 2010, Sigur\u00f0ur Ingvi f. 1929, Jens\u00edna f. 1931, d. 2006, Gu\u00f0r\u00fan f. 1932, d. 1997 og&nbsp; Soff\u00eda f. 1934, d. 2013. \u00d6ll l\u00e1tin nema Sigur\u00f0ur Ingvi. H\u00fan \u00feekkti ekki til uppruna s\u00edns fyrr en li\u00f0i\u00f0 var \u00e1 \u00e6vi hennar en kynntist systkininum s\u00ednum fullor\u00f0in og haf\u00f0i mesti samband vi\u00f0 \u00deorgeir og Ingva.<\/p>\n<p>Edda \u00f3lst upp \u00ed Reykjav\u00edk og bj\u00f3 lengst af \u00e1 Karlag\u00f6tu 11 \u00ed h\u00fasi sem foreldrar hennar bygg\u00f0u \u00e1ri\u00f0 1937. H\u00fan \u00f3lst upp vi\u00f0 \u00e1str\u00edki foreldra sinna \u00e1 miklu menningarheimili \u00fear sem klass\u00edsk t\u00f3nlist og listir voru \u00ed h\u00e1vegum haf\u00f0ar. \u00de\u00f3rarinn, fa\u00f0ir hennar, var einn af stofnendum T\u00f3nlistarf\u00e9lagsins \u00ed Reykjav\u00edk og spila\u00f0i jafnframt \u00e1 fi\u00f0lu \u00ed hlj\u00f3msveit Reykjav\u00edkur. H\u00fan var elsk a\u00f0 foreldrum s\u00ednum og naut samvista vi\u00f0 fr\u00e6ndf\u00f3lk sitt, ekki s\u00edst systkini Ingiveigar en mikill samgangur var \u00e1 milli \u00feeirra. H\u00fan fann sig \u00e6t\u00ed\u00f0 umvaf\u00f0a umhyggju og \u00e1str\u00edki.<\/p>\n<p>Edda gekk \u00ed Austurb\u00e6jarsk\u00f3lann og lauk framhaldsn\u00e1mi vi\u00f0 Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la Verkn\u00e1ms \u00e1ri\u00f0 1953 en \u00feessi sk\u00f3li t\u00f3k til starfa \u00e1ri\u00f0 1950, var fyrst um sinn \u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i undir risi \u00ed Austurb\u00e6jarsk\u00f3la og Edda var \u00ed fyrsta \u00fatskriftah\u00f3p sk\u00f3lans \u00e1ri\u00f0 1953 \u00fe\u00e1 17 \u00e1ra. H\u00fan var fr\u00e1b\u00e6r n\u00e1msma\u00f0ur og bekkurinn hennar var nefndur \u201eg\u00e1fumannabekkurinn\u201c. H\u00fan bj\u00f3 fr\u00e1 eins \u00e1rs aldri \u00e1 Nj\u00e1lsg\u00f6tunni og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Karlag\u00f6tu \u00ed Nor\u00f0urm\u00fdrinni.<\/p>\n<p>Str\u00ed\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 baki og Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0uholti\u00f0 anna\u00f0 en \u00feegar \u00fear var allt kr\u00f6kkt af herm\u00f6nnum \u00e1 \u00e6sku\u00e1rum hennar. Hallgr\u00edmsprestakall haf\u00f0i veri\u00f0 stofna\u00f0 1940 og byrja\u00f0 var a\u00f0 framkv\u00e6ma volduga hugmynd um h\u00e1a kirkju \u00e1 Holtinu sem n\u00fa er risin og \u00feykir me\u00f0al fegurstu kirkna \u00ed heimi ef marka m\u00e1 \u00e1lit fer\u00f0amanna sem hinga\u00f0 streyma daglega.<\/p>\n<p>Framt\u00ed\u00f0in blasti vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni sem \u00f6\u00f0last haf\u00f0i sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i og stefndi a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 marka spor \u00ed s\u00f6gu heimsins sem frj\u00e1ls og fullvalda \u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 merka s\u00f6gu. L\u00edfi\u00f0 breyttist \u00e1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum, atvinnul\u00edf efldist og f\u00f3lk f\u00f3r \u00ed vaxandi m\u00e6li a\u00f0 f\u00e1 greidd laun \u00ed peningum. \u00deau sem lifa\u00f0 hafa lungann \u00far li\u00f0inn \u00f6ld hafa reynt gr\u00ed\u00f0arlegar breytingar \u00e1 l\u00edfsh\u00e1ttum.<\/p>\n<p>\u00c1stin vitja\u00f0i f\u00f3lks \u00fe\u00e1 eins og n\u00fa og Edda hitti sinn l\u00edfsf\u00f6runaut eins og vera ber.<\/p>\n<p>Hinn 4. j\u00fan\u00ed 1960 giftist Edda, Gunnari Fri\u00f0j\u00f3nssyni, framrei\u00f0slumanni fr\u00e1 Reykjav\u00edk, f. 11. j\u00fan\u00ed 1937. \u00deau slitu samvistir 1992.&nbsp; [Foreldrar Gunnars Fri\u00f0j\u00f3nssonar voru Fri\u00f0j\u00f3n Steinsson verkama\u00f0ur fr\u00e1 H\u00fanavatnss\u00fdslu f.1904, d. 1941 og Gu\u00f0r\u00fan Hj\u00f6rleifsd\u00f3ttir h\u00fasfreyja fr\u00e1 Eyrarbakka, f. 1908, d. 1986.]<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra eru<\/p>\n<ol>\n<li>Ingiveig, fer\u00f0am\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur og lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur, f.&nbsp; 9. n\u00f3vember 1960.<\/li>\n<li>\u00de\u00f3rarinn, t\u00f6lvut\u00e6knima\u00f0ur,&nbsp; f. 17. september 1964 giftur \u00c1lfhildi Sylv\u00edu J\u00f3hannsd\u00f3ttur, dagforeldri,&nbsp; f. 26. \u00e1g\u00fast 1964. B\u00f6rn \u00feeirra eru: J\u00f3hann Gunnar, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur,&nbsp; f. 18. september 1987, \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu \u00c1str\u00ed\u00f0ard\u00f3ttur nema; b\u00f6rn \u00feeirra eru \u00cdrena R\u00fan og \u00c1sta Sylv\u00eda; Dan\u00edel Ingi f. 15. mars 1989,verslunarma\u00f0ur,&nbsp; \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Elsu Einarsd\u00f3ttur, skrifstofumanni.; Edda \u00de\u00f3runn , f. 20. september 1996, nemi.<\/li>\n<li>Fri\u00f0j\u00f3n Bj\u00f6rgvin, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri, f. 2. okt\u00f3ber 1976 giftur H\u00f6rpu Hlynsd\u00f3ttur,&nbsp; matv\u00e6lafr\u00e6\u00f0ingi, f. 4. \u00e1g\u00fast 1977. B\u00f6rn \u00feeirra eru:&nbsp; Arna Bj\u00f6rg , f. 10. desember 2004; Br\u00edet Mar\u00eda , f. 19. \u00e1g\u00fast 2008 og Agnes Inga, f. 24.\u00e1g\u00fast 2013.<\/li>\n<\/ol>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Edda starfa\u00f0i lengst af hj\u00e1 P\u00f3sti og s\u00edma, fyrst \u00e1 P\u00f3stm\u00e1laskrifstofunni \u00ed gamla Lands\u00edmah\u00fasinu og s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 afhendingu \u00e1byrg\u00f0abr\u00e9fa og flokkun \u00e1 p\u00f3sth\u00fasinu \u00ed P\u00f3sth\u00fasstr\u00e6ti. H\u00fan var me\u00f0limur \u00ed P\u00f3stmannaf\u00e9laginu.<\/p>\n<p>Edda lag\u00f0i stund \u00e1 p\u00edan\u00f3n\u00e1m \u00ed T\u00f3nlistarsk\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk og \u00fe\u00f3tti efnileg. H\u00fan haf\u00f0i yndi af t\u00f3nlist og s\u00f6ng&nbsp; t.d. \u00ed nokkrum k\u00f3rum \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina og alltaf var g\u00edtarinn me\u00f0 \u00ed f\u00f6r er h\u00fan br\u00e1 s\u00e9r \u00ed fer\u00f0alag me\u00f0 vinkvennah\u00f3pnum. T\u00f3nlistin h\u00e9r \u00ed dag tekur mi\u00f0 af hennar \u00e1huga og smekk.<\/p>\n<p>H\u00fan las miki\u00f0 og var \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 b\u00f3k \u00ed h\u00f6nd, \u00fdmist einhverja sk\u00e1lds\u00f6gu e\u00f0a lj\u00f3\u00f0ab\u00f3k en h\u00fan las og tala\u00f0i b\u00e6\u00f0i ensku og d\u00f6nsku \u00e1g\u00e6tlega en ung dvaldi h\u00fan \u00ed Danm\u00f6rku og n\u00e1\u00f0i g\u00f3\u00f0um t\u00f6kum \u00e1 d\u00f6nsku. H\u00fan las sakam\u00e1las\u00f6gur eftir Ag\u00f6tu Christie og fleiri h\u00f6funda og horfi\u00f0 \u00e1 sj\u00f3narps\u00fe\u00e6tti um sakam\u00e1l og lif\u00f0i sig svo inn \u00ed \u00fe\u00e6ttina a\u00f0 stj\u00f6rnur \u00feeirra voru or\u00f0nar heimilisvinir eins og t.d. Jessica Fletcher, Matlock, Poirot, Derrick og Barnaby sem leystu allar g\u00e1tur. H\u00fan var kl\u00f3k \u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0a krossg\u00e1tur enda me\u00f0 r\u00edka m\u00e1lkennd, \u00e1tti t.a.m. au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 l\u00e6ra tungum\u00e1l og svo var h\u00fan g\u00f3\u00f0ur penni og t\u00e6kif\u00e6risr\u00e6\u00f0uma\u00f0ur. H\u00fan orti og skrifa\u00f0i lj\u00f3\u00f0 en h\u00fan var ekki hannyr\u00f0akona skv. hef\u00f0bundinni merkingu \u00feess or\u00f0s.<\/p>\n<p>H\u00fan var g\u00f3\u00f0ur hlustandi og b\u00f6rnin \u00e1tti \u00ed henni ekki bara g\u00f3\u00f0a m\u00f3\u00f0ur heldur l\u00edka hollr\u00e1\u00f0an vin. \u00deau minnast \u00feess a\u00f0 h\u00fan las yfir allar ritger\u00f0ir \u00feeirra og gaf g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 var\u00f0andi efnist\u00f6k og m\u00e1lfar. En h\u00fan var l\u00edka str\u00ed\u00f0in og stundum d\u00e1l\u00edi\u00f0 hrekkj\u00f3tt en aldrei \u00e1 meinlegan h\u00e1tt. H\u00fan haf\u00f0i r\u00edkan h\u00famor og gat au\u00f0veldlega gert gr\u00edn a\u00f0 sj\u00e1lfri s\u00e9r sem er nau\u00f0synlegur fylgifiskur allra g\u00f3\u00f0ra h\u00famorista.<\/p>\n<p>H\u00fan var mikil stemmningsmanneskja, naut \u00feess a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 huggulegt. <i>Ad hygge sig<\/i> \u2013 var hennar motto enda haf\u00f0i h\u00fan dvali\u00f0 langdv\u00f6lum \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og haf\u00f0i hrifist mj\u00f6g af d\u00f6nskum k\u00falt\u00far. Ingiveig man notalegu stundirnar \u00ed stofunni hennar \u00f6mmu \u00e1 efri h\u00e6\u00f0inni \u00e1 Karlag\u00f6tu 11, me\u00f0 m\u00f6mmu og \u00f6mmu. \u00dear var ilmur af kaffi, sherry og konfekti og falleg t\u00f3nlist \u00e1 f\u00f3ninum. M\u00e6\u00f0gurnar nutu \u00feess \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 a\u00f0 punta sig upp og fara saman \u00e1 kaffih\u00fas og \u00fat a\u00f0 bor\u00f0a.<\/p>\n<p>Afar minnist\u00e6\u00f0 var Eddu fyrsta utanlandsfer\u00f0in, Evr\u00f3pureisan, sem h\u00fan f\u00f3r \u00ed me\u00f0 foreldrum s\u00ednum \u00e1ri\u00f0 1955. \u00deetta var ein fyrsta h\u00f3pfer\u00f0 sem Ing\u00f3lfur Gu\u00f0brandsson, fer\u00f0afr\u00f6mu\u00f0ur, skipulag\u00f0i til London, Brighton og Par\u00edsar. H\u00fan fer\u00f0a\u00f0ist miki\u00f0 um landi\u00f0, f\u00f3r hringfer\u00f0 me\u00f0 Esjunni og sigldi utan me\u00f0 Gullfossi. H\u00fan dvaldi um skei\u00f0 \u00e1 \u00cdtal\u00edu \u00fear sem d\u00f3ttir hennar starfa\u00f0i og fer\u00f0ast \u00e1 seinni \u00e1rum m.a. til Madeira, M\u00f6ltu og sigldi um Kar\u00edbahafi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd ma\u00ed 1959 feta\u00f0i Edda \u00ed f\u00f3tspor m\u00f3\u00f0ur sinnar, Ingiveigar Eyj\u00f3lfsd\u00f3ttur og gekk&nbsp; \u00ed Oddfellowregluna \u00ed Rebekkust\u00faku nr.1 Berg\u00fe\u00f3ru.<\/p>\n<p>H\u00fan var virk \u00ed Oddfellow starfinu og f\u00e6r\u00f0i \u00fea\u00f0 henni mikla gle\u00f0i og l\u00edfsfyllingu. H\u00fan naut \u00feess a\u00f0 s\u00e6kja fundi, taka \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00f6ndri og fj\u00e1r\u00f6flunarstarfi og \u00e6t\u00ed\u00f0 hlakka\u00f0i h\u00fan til j\u00f3laballa innan reglunnar. Systur hennar standa v\u00f6r\u00f0u h\u00e9r \u00ed dag henni til hei\u00f0urs og \u00ed \u00fe\u00f6kk fyrir framlag hennar til st\u00fakustarfs og g\u00f3\u00f0ra m\u00e1lefna en Oddfellowreglan er kunn af s\u00ednum velgj\u00f6r\u00f0um \u00ed \u00fe\u00e1gu lands og \u00fej\u00f3\u00f0ar.<\/p>\n<p>Edda var alla t\u00ed\u00f0 f\u00e9lagslynd og \u00e1tti g\u00f3\u00f0an og traustan vinkvennah\u00f3p. Oft var gestkv\u00e6mt \u00e1 heimilinu enda var h\u00fan vinam\u00f6rg og g\u00f3\u00f0 heim a\u00f0 s\u00e6kja.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin segja hana hafa veri\u00f0 einstaka m\u00f3\u00f0ur sem m\u00e1tti ekkert aum sj\u00e1. H\u00fan var einst\u00f6k amma og langamma, elska\u00f0i barnab\u00f6rnin s\u00edn \u00fat af l\u00edfinu og \u00fereyttist aldrei \u00e1 a\u00f0 hr\u00f3sa \u00feeim. H\u00fan var \u00e6t\u00ed\u00f0 til sta\u00f0ar og \u00feau voru \u00ed reglulegu sambandi vi\u00f0 hana alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00fan var s\u00e6lkeri og \u00e1tti alltaf eitthva\u00f0 g\u00f3\u00f0g\u00e6ti uppi \u00ed sk\u00e1p alveg fram \u00e1 s\u00ed\u00f0asta dag.&nbsp;H\u00fan var dugleg a\u00f0 baka og \u00feegar b\u00f6rnin voru l\u00edtil baka\u00f0i h\u00fan \u00e1 laugard\u00f6gum \u00fdmist sk\u00faffuk\u00f6ku, sj\u00f3nvarpsk\u00f6ku e\u00f0a hj\u00f3nabandss\u00e6lu.&nbsp;H\u00fan var l\u00edka mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur kokkur hvort sem um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a venjulegan heimilismat e\u00f0a veislumat. J\u00f3lin eru \u00feeim ofarlega \u00ed huga en \u00fe\u00e1 var allt teki\u00f0 \u00ed gegn, hvort sem um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fevott \u00e1 gard\u00ednum e\u00f0a lj\u00f3sakr\u00f3num, baka\u00f0ar voru tugir tegunda af sm\u00e1k\u00f6kum og \u00f6\u00f0ru g\u00f3\u00f0g\u00e6ti og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u00fe\u00e1 ur\u00f0u allir a\u00f0 f\u00e1 n\u00fd n\u00e1ttf\u00f6t.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00fan var einnig g\u00f3\u00f0 vinkona tengdad\u00e6tra sinna. H\u00fan haf\u00f0i hloti\u00f0 k\u00e6rleiksr\u00edkt uppeldi foreldra sinna \u00e1 menningarheimili \u00ed Nor\u00f0urm\u00fdrinni og tengst Hallgr\u00edmskirkju fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed bernsku. Fa\u00f0ir hennar var mj\u00f6g tr\u00faa\u00f0ur og h\u00e9lt \u00fev\u00ed fram a\u00f0 Bibl\u00edan g\u00e6fi sv\u00f6r vi\u00f0 flestu ef ekki \u00f6llu sem m\u00e1li skipti. Hann sagi\u00f0 gjarnan: \u201eHorf\u00f0u \u00e1 bj\u00f6rtu hli\u00f0arnar.\u201c Fr\u00e6nkur hennar, Margr\u00e9t og Mar\u00eda e\u00f0a Magga og Massa voru virkar \u00ed barnastarfi kirkjunnar og h\u00e9ldu uppi sunnudagask\u00f3lastarfi \u00ed Austurb\u00e6jarsk\u00f3la og s\u00ed\u00f0ar h\u00e9r \u00ed Hallgr\u00edmskirkju. \u00de\u00e6r voru fastar \u00e1 meiningunni og l\u00e1su Bibl\u00eduna af kostg\u00e6fni og \u00e1huga en stundum fannst n\u00fa \u00de\u00f3rarni pabba tr\u00fa \u00feeirra of \u00e1kve\u00f0in og str\u00f6ng.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vera \u00ed jafnv\u00e6gi og \u00ed tr\u00fanni \u00fearf l\u00ednudansinn a\u00f0 fara fram \u00e1 mi\u00f0junni milli fagna\u00f0arerindis og l\u00f6gm\u00e1ls, milli frelsis og \u00e1byrg\u00f0ar. \u00dear \u00e1 gl\u00edman s\u00e9r sta\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem m\u00e6tir manni \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>Edda m\u00e6tti \u00fdmsu m\u00f3tl\u00e6ti. H\u00fan greindist me\u00f0 ikts\u00fdki, erfi\u00f0an gigtarsj\u00fakd\u00f3m 29 \u00e1ra a\u00f0 aldri og gl\u00edmdi vi\u00f0 hann eftir \u00fea\u00f0. Edda var me\u00f0limur \u00ed Gigtarf\u00e9lagi \u00cdslands og fylgdist vel me\u00f0 ranns\u00f3knum og \u00fer\u00f3un gigtarsj\u00fakd\u00f3ma alla s\u00edna t\u00ed\u00f0. En aldrei barma\u00f0i h\u00fan s\u00e9r e\u00f0a kvarta\u00f0i. \u00c1ri\u00f0 2011 greindist h\u00fan me\u00f0 krabbamein sem h\u00fan bar\u00f0ist gegn af hetjuskap og \u00e6\u00f0ruleys til hinstu stundar. H\u00fan var b\u00f6rnum s\u00ednum og \u00e1stvinum g\u00f3\u00f0 og sterk fyrirmynd.<\/p>\n<p>H\u00fan m\u00e6tti \u00fev\u00ed sem a\u00f0 h\u00f6ndum bar af \u00e6\u00f0ruleysi og haf\u00f0i gjarnan yfir or\u00f0 P\u00e1ls postula sem var l\u00edfsreyndur ma\u00f0ur sem gl\u00edmdi vi\u00f0 margt og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201eAllt megna \u00e9g fyrir hj\u00e1lp hans sem mig styrkan gerir.\u201c&nbsp; (Fil 4.13)<\/p>\n<p>H\u00fan \u00e1tti einl\u00e6ga tr\u00fa \u00e1 frelsarann Jes\u00fa Krist og l\u00edf eftir dau\u00f0ann. B\u00f6rnin muna or\u00f0 hennar \u00ed lok dags: \u201eGu\u00f0 gefi \u00fe\u00e9r g\u00f3\u00f0a n\u00f3tt.\u201c H\u00fan ba\u00f0 me\u00f0 \u00feeim og kenndi \u00feeim b\u00e6nir og vers og lag\u00f0i \u00feeim hollar l\u00edfsreglur. H\u00fan var stolt af \u00feeim og s\u00ednum \u00e1stvinum.<\/p>\n<p>\u201eKynsl\u00f3\u00f0ir koma, kynsl\u00f3\u00f0ir fara, allar s\u00f6mu \u00e6vig\u00f6ng\u201c, segir \u00ed f\u00f6grum j\u00f3las\u00e1lmi. \u00dea\u00f0 eru or\u00f0 a\u00f0 s\u00f6nnu. Vi\u00f0 eigum l\u00edfi\u00f0 a\u00f0eins stutta stund h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0 og svo hverfum vi\u00f0 \u00f6ll \u00ed fyllingu t\u00edmans. L\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt \u00ed \u00f6llum s\u00ednum margbreytileika og \u00fea\u00f0 er undursamlegt \u00e6vint\u00fdri a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera til og mesta \u00feakkarefni\u00f0 er a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 er \u00ed hendi Gu\u00f0s. Allt er \u00ed einu st\u00f3ru samhengi og \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 skiljum ekki n\u00fa mun lj\u00fakast upp \u00feegar Gu\u00f0 afhj\u00fapar alla leyndard\u00f3m og allar erfi\u00f0ustu krossg\u00e1tur l\u00edfsins ganga upp. Krossg\u00e1tur. J\u00e1, l\u00edfi\u00f0 er krossg\u00e1ta me\u00f0 krossinn sem lausn \u00ed mi\u00f0ju \u00feess. \u00cd krossi Krists, \u00fej\u00e1ningu hans, dau\u00f0a og upprisu gengur allt upp og f\u00e6r n\u00fdjan tilgang.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g lifir\u201c, sag\u00f0i Jes\u00fas \u201eog \u00fe\u00e9r munu\u00f0 lifa.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00feeirr tr\u00fa kve\u00f0jum vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a konu og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edfi\u00f0 hennar. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Eddu \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>Tilkyningar og postulleg blessun.<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar:<\/strong><\/p>\n<p><strong>R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8.31b-39<\/strong><\/p>\n<p>Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur?&nbsp;<sup>32<\/sup>Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum?&nbsp;<sup>33<\/sup>Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar.&nbsp;<sup>34<\/sup>Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur.&nbsp;<sup>35<\/sup>Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists? Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0?&nbsp;<sup>36<\/sup>\u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<br \/>\n<i>\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn<br \/>\nog vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.&nbsp;<\/i><br \/>\n<sup>37<\/sup>Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur.&nbsp;<sup>38<\/sup>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar,&nbsp;<sup>39<\/sup>h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n<p><strong>J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14.1-6<\/strong><\/p>\n<p><sup>1<\/sup>\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.&nbsp;<sup>2<\/sup>\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?&nbsp;<sup>3<\/sup>\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.&nbsp;<sup>4<\/sup>Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<sup>5<\/sup>T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<sup>6<\/sup>Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Edda \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir 1936-2014 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir&nbsp;og&nbsp;fv. starfsma\u00f0ur P\u00f3sts og s\u00edma &nbsp; \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju \u00feri\u00f0judaginn 1. j\u00fal\u00ed 2014 kl. 15 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1373","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1373","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1373"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1373\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1373"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1373"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1373"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}