{"id":1361,"date":"2014-06-23T08:58:44","date_gmt":"2014-06-23T08:58:44","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1361"},"modified":"2014-06-23T08:58:44","modified_gmt":"2014-06-23T08:58:44","slug":"rikir-og-fataekir-molar-og-miskunn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1361","title":{"rendered":"R\u00edkir og f\u00e1t\u00e6kir, molar og miskunn"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/rich-man-poor-man.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1363\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/rich-man-poor-man.png\" alt=\"Rich man poor man\" width=\"267\" height=\"189\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun\u00a0 \u00ed Neskirkju<\/p>\n<p>sunnudaginn 22. j\u00fan\u00ed 2014 &#8211; 1. sd. e. trinitatis<\/p>\n<p><b>R\u00edki ma\u00f0urinn og Lazarus<\/b><\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og <strong>lesa<\/strong>. Sumu \u00ed textanum var sleppt og \u00f6\u00f0ru b\u00e6tt vi\u00f0. Hlj\u00f3\u00f0upptakan geymir \u00fea\u00f0 sem sagt var. Textar dagsins sem lagt var \u00fat af \u00ed r\u00e6\u00f0unni eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1361-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trin-1e-2014-riki-m-og-lasarus.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trin-1e-2014-riki-m-og-lasarus.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trin-1e-2014-riki-m-og-lasarus.mp3<\/a><\/audio>\n<p>Bo\u00f0 Jes\u00fa um a\u00f0 elska n\u00e1ungann er r\u00f3tt\u00e6k krafa um f\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0 og p\u00f3lit\u00edska afst\u00f6\u00f0u til l\u00edfsins. A\u00f0 elska n\u00e1ungann v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 t\u00f6kum \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 samfer\u00f0af\u00f3lki okkar. \u00deessi hugsun er \u00e6varforn og kemur mj\u00f6g sk\u00fdrt fram \u00ed GT. Stundum er \u00fev\u00ed haldi\u00f0 fram a\u00f0 GT og NT s\u00e9u svo \u00f3lkir \u00fe\u00e6ttir Bibl\u00edunnar a\u00f0 n\u00e1nast s\u00e9 annan Gu\u00f0 a\u00f0 finna \u00ed \u00fev\u00ed gamla en \u00ed \u00fev\u00ed n\u00fdja. Svo er ekki, heldur m\u00e1 greina \u00fer\u00f3un hugmynda um l\u00edfi\u00f0 og tilverunar, um mann og heim \u00ed b\u00e1\u00f0um \u00fe\u00e1ttum \u00feessa mikla rits sem Bibl\u00edan er. Lex\u00eda dagsins er um a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta \u00fe\u00f6rfum f\u00e1t\u00e6kra, a\u00f0 vera miskunnsamur og lj\u00faka ekki aftur l\u00f3fa s\u00ednum fyrir \u00feeim sem \u00feurfandi eru.<\/p>\n<p>F\u00e1t\u00e6kt er ekki n\u00fd af n\u00e1linni en samf\u00e9lagi\u00f0 hefur \u00fe\u00f3 breyst miki\u00f0 \u00e1 \u00ferj\u00fa\u00fe\u00fasund \u00e1rum. F\u00e1t\u00e6ktin er e.t.v. meira dulin n\u00fa en for\u00f0um og svo er hi\u00f0 f\u00e9lagslega kerfi til sta\u00f0ar sem tekur utan um f\u00e1t\u00e6ktina og \u201efelur\u201c hana fyrir okkur a\u00f0 nokkru leyti. H\u00fan er eins og dau\u00f0inn sem er falinn inni \u00e1 stofnunum a\u00f0 mestu leyti n\u00fa \u00e1 t\u00edmum.<\/p>\n<p>F\u00e1t\u00e6ka hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 hj\u00e1 ykkur, sag\u00f0i Jes\u00fas.\u00a0 Vi\u00f0 ver\u00f0um v\u00edst a\u00f0 b\u00edta \u00ed \u00fea\u00f0 s\u00fara epli en hvernig eigum vi\u00f0 a\u00f0 taka \u00e1 m\u00e1lefnum f\u00e1t\u00e6kra? Um \u00fea\u00f0 deilir f\u00f3lk \u00ed flokkum \u00e1 hinu p\u00f3lit\u00edska svi\u00f0i. Sumir telja a\u00f0 mestu skipti a\u00f0 atvinnul\u00edfi\u00f0 s\u00e9 svo \u00f6flugt og f\u00f3lk hafi n\u00e6g t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 efnast svo a\u00f0 molarnir hrynji af bor\u00f0um \u00feeirra og til hinna f\u00e1t\u00e6ku. Vissulega er mikilv\u00e6gt a\u00f0 f\u00f3lk hafi frelsi til athafna og megi efnast.<\/p>\n<p>A\u00f0rir vilja ekki a\u00f0 neinn gr\u00e6\u00f0i nema r\u00edki\u00f0 sem sj\u00e1i svo um a\u00f0 deila \u00fat g\u00e6\u00f0um heimsins. Vissulega er r\u00edki\u00f0 \u00f3missandi \u00fe\u00e1ttur mannlegs samf\u00e9lags n\u00fa \u00e1 t\u00edmum.<\/p>\n<p>Svo eru til \u00f3tal tilbrig\u00f0i vi\u00f0 hvort tveggja og mi\u00f0jan k\u00fds v\u00e6ntanlega a\u00f0 frj\u00e1ls marka\u00f0ur s\u00e9 mikilv\u00e6gur og a\u00f0 f\u00e9lagsleg \u00e1byrg\u00f0 s\u00e9 r\u00edkur \u00fe\u00e1ttur \u00ed samf\u00e9laginu. Mi\u00f0jan sameinar sterku litina til h\u00e6gri og vinstri. Allir vi\u00f0urkenna a\u00f0 til s\u00e9 \u00feurfandi f\u00f3lk \u00ed landinu og heiminum. \u00deegar Jes\u00fas tala\u00f0i um a\u00f0 f\u00e1t\u00e6kt ver\u00f0i \u00e1vallt til, studdist hann \u00f6rugglega ekki vi\u00f0 f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ilegar kannannir e\u00f0a ranns\u00f3knir. Hann vissi og \u00feekkti e\u00f0li manna. En n\u00fa hefur \u00fea\u00f0 komi\u00f0 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 samf\u00e9lagsleg a\u00f0sto\u00f0 getur sn\u00faist upp \u00ed andhverfu s\u00edna og gert f\u00f3lk svo h\u00e1\u00f0 henni a\u00f0 \u00fea\u00f0 fari aldrei aftur \u00fat a\u00f0 vinna og a\u00f0 f\u00f3lk festist hreinlega \u00ed f\u00e1t\u00e6ktargildru og s\u00fa gildra haldi b\u00f6rnunum l\u00edka, barnab\u00f6rnunum og jafnvel n\u00e6stu kynsl\u00f3\u00f0um. \u00de\u00e1 er hj\u00e1lpin or\u00f0in a\u00f0 eldist\u00f6\u00f0 atvinnulausra og f\u00e1t\u00e6kra sem aldrei var \u00e6tlunin. Elska mannsins gerir hj\u00e1lpina m\u00f6gulega en breyskleiki mannsins gerir hana a\u00f0 andhverfu sinni. Svona er l\u00edfi\u00f0. \u00c6t\u00ed\u00f0 er h\u00f6ggormur \u00ed Parad\u00eds sem skrumsk\u00e6lir hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a og sn\u00fdr \u00fev\u00ed upp \u00ed andhverfu s\u00edna. \u00deess vegna h\u00f6fum vi\u00f0 verk a\u00f0 vinna. Hi\u00f0 illa kemur af sj\u00e1lfu s\u00e9r en vinna \u00fearf a\u00f0 hinu g\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00cd grein sem \u00e9g las \u00ed NYT fyrir nokkrum misserum er komi\u00f0 inn \u00e1 \u00feessi m\u00e1l me\u00f0 s\u00e9rst\u00f6kum h\u00e6tti. \u00c9g \u00fe\u00fdddi greinina og f\u00e9kk leyfi NYT og h\u00f6fundarins sem er fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur vi\u00f0 Harvard h\u00e1sk\u00f3lann til a\u00f0 birta hana h\u00e9r \u00e1 landi en grei\u00f0a \u00feurfti fyrir birtinguna og \u00fea\u00f0 vildi bla\u00f0i\u00f0 ekki gera sem \u00e9g hef\u00f0i samband vi\u00f0 og \u00fev\u00ed er h\u00fan bara \u00ed t\u00f6lvu minni og hef \u00e9g leyfi til a\u00f0 nota hana sj\u00e1lfur og \u00e1 m\u00ednum nets\u00ed\u00f0um. Mig langar til a\u00f0 leyfa ykkur a\u00f0 heyra \u00feessa grein \u00fev\u00ed h\u00fan opinberar me\u00f0 s\u00e9rst\u00f6kum h\u00e6tti gildagrunn Evr\u00f3pu og afst\u00f6\u00f0u til f\u00e1t\u00e6ktar og a\u00f0sto\u00f0ar.<\/p>\n<p>Greinin hlj\u00f3\u00f0ar svo:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\"><strong>L\u00faterskur mergur \u00fe\u00fdsku a\u00f0haldsstefnunnar<\/strong><\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Eftir Steven Ozment<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Birtist \u00ed vef\u00fatg\u00e1fu The New York Times 11. \u00e1g\u00fast 11, 2012 og \u00e1 prenti daginn eftir.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Ef til er eitt \u00fej\u00f3\u00f0erni sem umheimurinn telur sig skilja au\u00f0veldlega og algerlega til fulls, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0verjar. Settu \u00ed einn pott nasismann og gy\u00f0ingahatri\u00f0 og sj\u00e1! &#8211; 2000 \u00e1ra spennandi og fl\u00f3kin saga hverfur eins og d\u00f6gg fyrir s\u00f3lu.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Fr\u00e1 upphafi evru-kreppunnar, hefur \u00feessi sm\u00e6ttarhyggja, sem g\u00e6tir \u00ed senn innan \u00de\u00fdskalands og utan, s\u00edast inn gegnum \u00f6rlagar\u00edka arfleif\u00f0 Weimar-t\u00edmans, \u00e1rin sem g\u00e1fu fyrirheit um l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i \u00ed kj\u00f6lfar ni\u00f0url\u00e6gingar Fyrri heimstyrjaldarinnar og enda\u00f0i svo me\u00f0 valdat\u00f6ku nasista 1933.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Annars vegar er \u00fev\u00ed haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00f3\u00f0aver\u00f0b\u00f3lga \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugar s\u00ed\u00f0ustu aldar \u00fatsk\u00fdri and\u00fa\u00f0 \u00de\u00fdskalands \u00e1 \u00feenslu-hvetjandi peninga- og fj\u00e1rm\u00e1lastefnu \u00ed dag. Hins vegar a\u00f0 fingraf\u00f6r nasista \u00e1 millistr\u00ed\u00f0s\u00e1runum sanni fyrir sumum a\u00f0 jafnvel n\u00fa \u00e1ri\u00f0 2012 s\u00e9 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islega \u00feenkjandi \u00dej\u00f3\u00f0verjum ekki treystandi \u00feegar kemur a\u00f0 velfer\u00f0 Evr\u00f3pu.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Vi\u00f0 skulum l\u00edta lengra aftur en til hins flekka\u00f0a Weimar-l\u00fd\u00f0veldis og kafa d\u00fdpra \u00ed \u00f3vi\u00f0jafnanlega og r\u00edka s\u00f6gu \u00de\u00fdskalands og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega \u00feau \u00f3afm\u00e1anlegu spor sem Marteinn L\u00fater marka\u00f0i \u00ed s\u00f6guna og \u00fe\u00e1 \u201eborg \u00e1 bjargi\u201c er hann bygg\u00f0i me\u00f0 \u00e1hrifum s\u00ednum \u00e1 M\u00f3tm\u00e6lendatr\u00fana. [Aths. \u00fe\u00fd\u00f0anda: H\u00e9r er v\u00edsa\u00f0 \u00ed s\u00e1lminn Vor Gu\u00f0 er borg \u00e1 bjargi traust sem er einskonar \u201e\u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6ngur\u201c M\u00f3tm\u00e6lenda, einkum l\u00faterskra, \u00e1 ensku A Mighty Fortress Is Our God og \u00e1 \u00fe\u00fdsku, Ein feste Burg ist unser Gott]<br \/>\nJafnvel enn \u00ed dag &#8211; og enda \u00fe\u00f3tt tr\u00faarleg fj\u00f6lbreytni og veraldarhyggja s\u00e9 vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i \u00ed \u00de\u00fdskalandi &#8211; skilgreinir \u00fej\u00f3\u00f0in sig og hlutverk sitt \u00fat fr\u00e1 skrifum og ger\u00f0um si\u00f0b\u00f3tarmannsins \u00e1 16. \u00f6ld sem skildi eftir sig sk\u00fdra og skorinor\u00f0a skilgreiningu \u00e1 l\u00fathersku samf\u00e9lagi \u00ed ritger\u00f0 sinni Frelsi kristins manns hverrar efni hann dregur saman \u00ed tveimur setningum: \u00a0\u201eKristinn ma\u00f0ur er \u00a0frj\u00e1ls drottnari allra hluta og \u00a0engum undirgefinn. Kristinn ma\u00f0ur er \u00e1nau\u00f0ugur \u00fer\u00e6ll allra hluta og hverjum manni undirgefinn.\u201c\u00a0[Um frelsi Kristinn manns, \u00edsl., \u00fe\u00fd\u00f0 Magn\u00fas Run\u00f3lfsson, \u00a0Reykjav\u00edk 1967, s.11]<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Sko\u00f0um afst\u00f6\u00f0u L\u00faters til l\u00edknarm\u00e1la og f\u00e1t\u00e6krahj\u00e1lpar. Hann ger\u00f0i f\u00e1t\u00e6krahj\u00e1lp a\u00f0 skipulag\u00f0ri og f\u00e9lagslegri skyldu me\u00f0 \u00fev\u00ed koma upp f\u00e1t\u00e6krakistu [sj\u00f3\u00f0i] \u00ed hverjum \u00fe\u00fdskum b\u00e6. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 skriplast \u00e1fram eftir vegi hef\u00f0bundinna \u00f6lmusugjafa til \u00feurfandi f\u00e1t\u00e6klinga lag\u00f0i L\u00fater til a\u00f0 \u00feeir fengju styrk e\u00f0a l\u00e1n \u00far sj\u00f3\u00f0num. Hver sem \u00feannig f\u00e9kk framlag lofa\u00f0i a\u00f0 borga l\u00e1ni\u00f0 til baka eftir a\u00f0 hafa n\u00e1\u00f0 t\u00f6kum \u00e1 vanda s\u00ednum og or\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lfb\u00e6r. \u00dear me\u00f0 t\u00f3k hann \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 n\u00e1unga s\u00ednum og sj\u00e1lfum s\u00e9r. \u00deannig birtist elskan til n\u00e1ungans me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 axla sameiginlegar byr\u00f0ar samf\u00e9lagsins sem l\u00fatherskir kalla \u201etr\u00fa sem starfar \u00ed k\u00e6rleika\u201c.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">L\u00edti\u00f0 hefur breyst \u00e1 500 \u00e1rum. \u00de\u00fdski kanslarinn, Angela Merkel, sem er f\u00e6dd og sk\u00edr\u00f0 af austur-\u00fe\u00fdskum, l\u00faterskum presti, [f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum] tr\u00fair auglj\u00f3slega a\u00f0 hinar aldag\u00f6mlu si\u00f0fer\u00f0ilegu dygg\u00f0ir og \u00farr\u00e6\u00f0i s\u00e9u bestu l\u00e6knislyfin \u00ed evru-kreppunni. H\u00fan hefur enga l\u00f6ngun til a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva veraldlegri hugmyndafr\u00e6\u00f0i, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 skipulag\u00f0ri tr\u00fa, upp\u00e1 landa s\u00edna, en stj\u00f3rnm\u00e1lastefna hennar er greinilega m\u00f3tu\u00f0 af n\u00e6gjusemi og f\u00f3rnf\u00fdsi, en um lei\u00f0 af \u00f6rl\u00e6ti og sanngirni \u00ed anda M\u00f3tm\u00e6lendatr\u00faar.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Ef fr\u00fa Merkel neitar a\u00f0 sty\u00f0ja svok\u00f6llu\u00f0 evru-skuldabr\u00e9f, er \u00fea\u00f0 ekki vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri eins og a\u00f0 gefa f\u00e9 til \u00f3ver\u00f0ugra f\u00e1t\u00e6klinga heldur vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 myndi ekki hj\u00e1lpa f\u00e1t\u00e6kum a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin l\u00edfi og ver\u00f0a sterkir \u00ed \u00fe\u00e1gu sj\u00e1lfra s\u00edn og \u00feurfandi n\u00e1unga. S\u00e1 sem \u00feiggur og n\u00e6r s\u00e9r og hefur hag af samf\u00e9laginu \u00feegar hann er \u00feurfandi ber si\u00f0fer\u00f0ilega \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 a\u00f0 endurgrei\u00f0a samf\u00e9laginu til baka og s\u00fdna \u00fear me\u00f0 a\u00f0 hann er sterkur \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags\u00feegn sem getur fyllt \u00e1 hinn sameiginlega sj\u00f3\u00f0 og lagt fram sinn skerf handa \u00feeim sem n\u00fa eru \u00feurfandi n\u00e1grannar og hj\u00e1lpu\u00f0u honum for\u00f0um. \u00deannig virkar f\u00f3rnf\u00fast l\u00faterskt samf\u00e9lag.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Fyrir \u00feessi sj\u00f3narmi\u00f0 hefur fr\u00fa Merkel veri\u00f0 uppnefnd \u201emeinl\u00e6tadrottning\u201c og anna\u00f0 verra. En h\u00fan er hvergi bangin. H\u00fan vi\u00f0urkennir a\u00f0 a\u00f0hald s\u00e9 erfi\u00f0asta lei\u00f0in heim en b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u00f6ruggasta og flj\u00f3tlegasta lei\u00f0in til a\u00f0 n\u00e1 efnahagsbata og fullu valdi \u00e1 kreppunni. L\u00fater v\u00e6ri henni algj\u00f6rlega samm\u00e1la. Samkv\u00e6mt sko\u00f0anak\u00f6nnunum eru \u00dej\u00f3\u00f0verjar einnig samm\u00e1la fr\u00fa Merkel. \u00deeir halda fast \u00ed tr\u00fa s\u00edna sem borin er uppi af sterkum l\u00faterskum kenningum um a\u00f0 mannlegt l\u00edf f\u00e1i ekki \u00ferifist \u00ed letingjaborgum og gj\u00e1l\u00edfisl\u00f6ndum. \u00deeir vita a\u00f0 f\u00e9 ver\u00f0ur \u00e6t\u00ed\u00f0 af skornum skammti og a\u00f0 markvisst \u00fearf a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00f6flun \u00feess, skr\u00e1ningu og g\u00e6slu \u00e1\u00f0ur en \u00fev\u00ed ver\u00f0ur veitt til n\u00fdrra l\u00e1ntakenda og bei\u00f0enda.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">\u00deeir hugga sig vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00feau l\u00f6nd sem fylgt hafa hinni \u00fe\u00fdsku fyrirmynd og hl\u00fdtt l\u00f6gum um a\u00f0hald og \u00f6\u00f0rum bj\u00f6rgunar\u00e1\u00e6tlunum kanslarans hafa n\u00e1\u00f0 bata \u00f3l\u00edkt ey\u00f0slukl\u00f3m eins og Grikkjum og \u00cdt\u00f6lum.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Ef hin l\u00faterska arfleif\u00f0 um a\u00f0 f\u00f3rna s\u00e9r fyrir n\u00e1ungann veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0verjar velja a\u00f0haldslei\u00f0ina \u00fe\u00e1 mun h\u00fan einnig lei\u00f0a \u00fe\u00e1 til f\u00e9lagslegrar skuldbindingar. Hin l\u00faterska kenningu um a\u00f0 hinn tr\u00faa\u00f0i frelsist einungis \u201efyrir tr\u00fa\u201c dregur ekki \u00far hinni s\u00edst\u00e6\u00f0u \u00fe\u00f6rf fyrir k\u00e6rleiksr\u00edk g\u00f3\u00f0verk eins og illa uppl\u00fdstir gagnr\u00fdnendur sta\u00f0h\u00e6fa gjarnan. Tr\u00fain eflir frekar hinn tr\u00faa\u00f0a til g\u00f3\u00f0ra verka \u00ed heiminum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ey\u00f0a \u00e1hyggjum hans \u00e1 yfirstandandi t\u00ed\u00f0 og um framt\u00ed\u00f0 alla.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Vissulega hefur dregi\u00f0 \u00far l\u00faterstr\u00fa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum \u00ed \u00de\u00fdskalandi me\u00f0an bylgjur fj\u00f6lhyggju og veraldarhyggju hafa hvelfst yfir landi\u00f0. En \u00e1 sama t\u00edma s\u00fdna \u00dej\u00f3\u00f0verjar af \u00f3l\u00edkum uppruna mikla hl\u00fdju \u00ed gar\u00f0 n\u00fdkj\u00f6rins forseta, Joachims Gauck, sem er fv. prestur \u00ed l\u00fatersku kirkjunni.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Vissulegar er l\u00faterstr\u00fa ekki eina lifandi \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsafli\u00f0 \u00ed \u00de\u00fdskalandi n\u00fat\u00edmans. En h\u00fan er merkur hluti af tv\u00f6\u00fe\u00fasund \u00e1ra s\u00f6gu landsins, sem einkennist af f\u00f3rnf\u00fdsi og \u00ferautseigju. \u00c1 4. \u00f6ld voru \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fdskir str\u00ed\u00f0smenn sem m\u00f6nnu\u00f0u n\u00e6stum hverja yfirmannsst\u00f6\u00f0u \u00ed r\u00f3mverska hernum. Seinna breyttu \u00dej\u00f3\u00f0verjar nor\u00f0ur- og mi\u00f0-evr\u00f3pskum au\u00f0num \u00ed n\u00e6gtahorn &#8211; og \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum \u00ed \u00f6flugt i\u00f0nveldi.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Og \u00fea\u00f0 sem meira er um vert, l\u00faterstr\u00fa lif\u00f0i b\u00e6\u00f0i af h\u00e6gristefnu nasismans og vinstristefnu komm\u00fanismans sem b\u00e1\u00f0ar reyndu a\u00f0 uppr\u00e6ta tr\u00fana og setja s\u00edna eigin \u00ed sta\u00f0inn. Seiglan kemur hva\u00f0 sk\u00fdrast \u00ed lj\u00f3s \u00feegar tr\u00fanni er \u00f6gra\u00f0 af umskiptum.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Me\u00f0 st\u00f6\u00f0ugri frams\u00f3kn islam \u00ed Evr\u00f3pu \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu tveimur \u00e1ratugum og \u00ed lj\u00f3si l\u00e1tlauss efnahagslegs \u00fer\u00fdstings fr\u00e1 n\u00e1gr\u00f6nnum, kemur \u00fea\u00f0 ekki \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0verjar af \u00f3l\u00edkum uppruna hafa enn \u00e1 n\u00fd uppg\u00f6tva\u00f0 \u00ed s\u00ednum gy\u00f0ing-kristna arfi \u201eborg \u00e1 bjargi traust\u201c.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">Steven Ozment er pr\u00f3fessor \u00ed sagnfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 Harvard og h\u00f6fundur b\u00f3karinnar: The Serpent and the Lamb: Cranach, Luther, and the Making of the Reformation.<\/p>\n<p style=\"padding-left:60px;\">\n<div class=\"embed-thenewyorktimes\"><iframe title=\"German Austerity\u2019s Lutheran Core\" src=\"https:\/\/www.nytimes.com\/svc\/oembed\/html\/?url=https%3A%2F%2Fwww.nytimes.com%2F2012%2F08%2F12%2Fopinion%2Fsunday%2Fin-euro-crisis-germany-looks-to-martin-luther.html\" scrolling=\"no\" frameborder=\"0\" allowtransparency=\"true\" style=\"border:none;max-width:500px;min-width:300px;min-height:550px;display:block;width:100%;\"><\/iframe><\/div>\n<\/p>\n<p>Sagt hefur veri\u00f0 a\u00f0 hvergi s\u00e9 ma\u00f0urinn jafn einsamall og \u00ed margmenni. Au\u00f0veldara er a\u00f0 hverfa og fela sig \u00ed borgarsamf\u00e9lagi en litlu \u00feorpi. \u00c9g hef oft velt \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 utan um f\u00f3lk \u00ed fl\u00f3knum heimi s\u00e9 a\u00f0 skipta \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu upp \u00ed litlar einingar \u00ed sta\u00f0 st\u00f3rra heilda. \u00cd afr\u00edsku ortaki segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi heilt \u00feorp til a\u00f0 ala upp barn. Vi\u00f0 lifum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem lengst af hefur beitt \u00feessari a\u00f0fer\u00f0. B\u00f6rn hafa noti\u00f0 umhyggu st\u00f3rfj\u00f6lskyldunnar og n\u00fa \u00feessa dagana \u00feegar \u00e9g jar\u00f0syng hvern \u00f6ldunginn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum, f\u00f3lk sem f\u00e6ddist \u00e1 fyrri hluta li\u00f0innar aldar, \u00fe\u00e1 kemur oft \u00ed lj\u00f3s \u00ed \u00e6ttars\u00f6gum \u00feessa f\u00f3lks a\u00f0 st\u00f3rfj\u00f6lskyldan s\u00e1 um s\u00edna. B\u00f6rn einst\u00e6\u00f0ra m\u00e6\u00f0ra voru f\u00f3stru\u00f0 af \u00f6mmu og afa og svo framvegis og ekkjur nutu sama stu\u00f0nings st\u00f3rfj\u00f6lskyldu sinnar. N\u00fa er \u00feetta a\u00f0 hverfa sm\u00e1tt og sm\u00e1tt, a.m.k. \u00ed n\u00e1grannal\u00f6ndunum \u00fear sem fj\u00f6lmenni er meira og lengra \u00e1 milli f\u00f3lks. Af \u00fev\u00ed lei\u00f0ir a\u00f0 einsemdin ver\u00f0ur meiri og f\u00f3lk meir upp \u00e1 hi\u00f0 opinbera komi\u00f0. Ef vi\u00f0 hugsum \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00feorpseiningum \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur mannl\u00edfi\u00f0 eins og st\u00f3r \u00feorpaklasi \u00fear sem allir tilheyra h\u00e6filega st\u00f3rri einingu sem passar upp \u00e1 s\u00edna. \u00c9g veit ekki hvort h\u00e6gt er a\u00f0 framkv\u00e6ma sl\u00edka hugmynd \u00e1 t\u00edmum takmarkal\u00edtils frelsis \u00fear sem allir vilja ver frj\u00e1lsir og \u00f3h\u00e1\u00f0ir \u00f6\u00f0rum. Individualisminn endar \u00ed einsemd og ef hi\u00f0 opinbera kerfi hj\u00e1lpar ekki til ferst f\u00f3lk \u00ed einsemd sinni og nekt.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feykist vita a\u00f0 menn geti skoti\u00f0 \u00feessar hugmyndir m\u00ednar \u00ed kaf me\u00f0 einf\u00f6ldum h\u00e6tti en samt finnst m\u00e9r \u00fe\u00e6r svo manneskjulegar og r\u00e6tur \u00feeirra svo dj\u00fapar \u00ed s\u00f6gu heims og mannl\u00edfs a\u00f0 vert s\u00e9 a\u00f0 gefa \u00feeim gaum. Sumir munu v\u00e6ntanlega kalla \u00feetta komm\u00fanisma og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri skondi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 sig sl\u00edkan stimpil verandi kominn af bl\u00e1u \u00edhaldi sem reyndar \u00ed m\u00ednu tilfelli var f\u00e9lagslega \u00feenkjandi \u00edhald.<\/p>\n<p>N\u00f3g um \u00fea\u00f0. F\u00e1t\u00e6kir ver\u00f0a \u00e1fram hj\u00e1 okkur og krafa Jes\u00fas um a\u00f0 elska n\u00e1ungann er p\u00f3lit\u00edks yfirl\u00fdsing um \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 samf\u00e9lagi okkar. Kristin tr\u00fa er ekki, var ekki og ver\u00f0ur aldrei, samf\u00e9lag sk\u00fdjagl\u00f3pa, sem sj\u00e1 ekki verkefnin \u00ed heimi t\u00edmans.<\/p>\n<p>Grunnhugsunin er elskan og samkenndin, <i>empat\u00edan<\/i>, sem er svo mikilv\u00e6g \u00ed \u00f6llum samskiptum f\u00f3lk.<\/p>\n<p>Elska Gu\u00f0s er grunnstef tilverunnar. Innst \u00ed kjarna alls \u00feess sem skapa\u00f0 er &#8211; er elska. Heimurinn er grundvalla\u00f0ur \u00e1 elsku og \u00fev\u00ed er spurningin \u00feessi:<\/p>\n<p>Er h\u00e6gt a\u00f0 lifa \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 \u00feann grunn og komast af?<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i . . . .<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/1-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/\" target=\"_blank\">Ritningartextar dagsins.<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Pr\u00e9dikun\u00a0 \u00ed Neskirkju sunnudaginn 22. j\u00fan\u00ed 2014 &#8211; 1. sd. e. trinitatis R\u00edki ma\u00f0urinn og Lazarus R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og lesa. Sumu \u00ed textanum var sleppt og \u00f6\u00f0ru b\u00e6tt vi\u00f0. Hlj\u00f3\u00f0upptakan geymir \u00fea\u00f0 sem sagt var. Textar dagsins sem lagt var \u00fat af \u00ed r\u00e6\u00f0unni [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1361","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1361","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1361"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1361\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1361"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1361"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1361"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}