{"id":1355,"date":"2014-06-16T19:02:31","date_gmt":"2014-06-16T19:02:31","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1355"},"modified":"2014-06-16T19:02:31","modified_gmt":"2014-06-16T19:02:31","slug":"trumann-kristiansen-1928-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1355","title":{"rendered":"+Tr\u00famann Kristiansen 1928-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/trumann-kristiansen.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/trumann-kristiansen.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1356\" alt=\"Trumann Kristiansen\" width=\"200\" height=\"283\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Tr\u00famann Kristiansen<\/b><\/p>\n<p>1928-2014<\/p>\n<p>fv. kennari og sk\u00f3lastj\u00f3ri<\/p>\n<p>\u00e1 Hvolsvelli<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju<\/p>\n<p>m\u00e1nudaginn 16. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 15<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed K\u00f3pavogskirkjugar\u00f0i<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1355-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trc3bamann.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trc3bamann.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/trc3bamann.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Hann<\/strong> \u00f3lst upp \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i og fjaran var st\u00f3r hluti leikvallar hans og barnanna. Alla t\u00ed\u00f0 var fj\u00f6r\u00f0urinn honum hugleikinn, fjaran, logni\u00f0, fj\u00f6llin, fiskurinn og fuglinn. S\u00f6mu kenndir upplif\u00f0i hann \u00e1 s\u00e6lud\u00f6gum s\u00ednum vi\u00f0 \u00deingvallavatn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er eitthva\u00f0 s\u00e9rstakt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 standa \u00e1 str\u00f6nd og horfa yfir haf e\u00f0a st\u00f3rt vatn. V\u00edsindamenn sem k\u00f6nnu\u00f0u l\u00ed\u00f0an g\u00f6nguf\u00f3lks \u00ed Englandi, a\u00f0 mig minnir, t\u00f3k eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lki lei\u00f0 mun betur sem gekk vi\u00f0 sj\u00f3 e\u00f0a vatn en \u00feeim sem gengu \u00ed sk\u00f3glendi e\u00f0a \u00fati \u00e1 v\u00ed\u00f0avangi. Er \u00fea\u00f0 litur vatnsins, dj\u00fapi\u00f0 leyndard\u00f3msfulla, e\u00f0a haffl\u00f6turinn og sj\u00f3ndeildarhringurinn, sem skiptir mestu? \u00dev\u00ed g\u00e1tu v\u00edsindamenn ekki svara\u00f0. En ganga me\u00f0fram sj\u00f3 e\u00f0a vatni gaf meir \u00ed a\u00f0ra h\u00f6nd hamingjunnar en a\u00f0rar g\u00f6ngulei\u00f0ir.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er \u00ed vissum skilningi dv\u00f6l vi\u00f0 str\u00f6nd. Hva\u00f0 tekur vi\u00f0? Hva\u00f0 er bak vi\u00f0 ystu sj\u00f3narr\u00f6nd? Hva\u00f0 b\u00fdr \u00ed handanverunni?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er leit a\u00f0 sv\u00f6rum.<\/p>\n<p>Tr\u00famann var kennari af Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0. Hann f\u00f3r \u00ed Kennarask\u00f3lann og t\u00f3k \u00fear m.a. n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed sm\u00ed\u00f0akennslu sem gaf honum mikla gle\u00f0i. Hann kenndi allar greinar en var handverksma\u00f0ur fyrst og s\u00ed\u00f0ast. Hann naut \u00feess a\u00f0 breyta \u00f3heflu\u00f0u efni \u00ed nytjahlut me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 t\u00e1lga hann til og hefla, p\u00fassa og lakka. A\u00f0 sm\u00ed\u00f0a er a\u00f0 skapa og Gu\u00f0 hefur veri\u00f0 kalla\u00f0ur h\u00f6fu\u00f0smi\u00f0ur himins og jar\u00f0ar. Hann hefur l\u00edka veri\u00f0 nefndur frumarkitekt tilverunnar. Fyrsta hlutverk Adams skv. sk\u00f6punars\u00f6gunni var a\u00f0 nefna d\u00fdrin. Hann flokka\u00f0i \u00fear me\u00f0 tilverunar eins og v\u00edsindamenn gera. Hann var fyrsti v\u00edsindama\u00f0urinn og kennarinn um lei\u00f0. Og Tr\u00famanni kippti \u00ed kyni\u00f0 vi\u00f0 \u00feennan fyrsta mann skv. t\u00e1kns\u00f6gu Bibl\u00edunnar. En s\u00fa saga er \u00ed raun ekki saga fyrstu manna, a\u00f0 m\u00ednu viti, heldur saga okkar allra. Sagan um sk\u00f6pun mannsins og fall er saga m\u00edn og \u00fe\u00edn. \u00deess vegna lifir h\u00fan sem sannleikur, sk\u00e1ldsaga sem segir sannleikann um manninn sem tegund. Hin helga b\u00f3k er tilraun til a\u00f0 t\u00falka tilvist mannsins \u00ed heimi sem tengdur er \u00ed eitt st\u00f3rt samhengi sem vi\u00f0 nefnum Gu\u00f0 og skilgreindur hefur veri\u00f0 t.a.m. \u00feessum me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: \u201eGu\u00f0 er hringur, hvers mi\u00f0ja er allssta\u00f0ar og ystu m\u00f6rk hvergi.\u201c Og postulinn P\u00e1ll hugsa\u00f0i \u00e1 \u00e1\u00feekkum n\u00f3tum er hann r\u00e6ddi vi\u00f0 spekingana \u00e1 Aresarh\u00e6\u00f0 \u00ed A\u00feenu: \u201e\u00cd honum lifum, hr\u00e6rumst og erum vi\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Tr\u00famann var f\u00e6ddur \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i \u00e1 n\u00fd\u00e1rsdag \u00e1ri\u00f0 1928. Hann anda\u00f0ist \u00e1 hj\u00fakrunardeild Hrafnistu \u00ed Hafnarfir\u00f0i 31. ma\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn. Tr\u00famann var yngsta barn hj\u00f3nanna Matt\u00edu \u00de\u00f3ru \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttur, f. 1883, d. 1967, fr\u00e1 Haga \u00ed Holtum \u00ed Rang\u00e1r\u00feingi, og Jentofts Kornel\u00edusar Kristiansen, f. 1879, d. 1943, fr\u00e1 Narv\u00edk \u00ed Noregi. Systkini Tr\u00famanns voru \u00feau Klara h\u00e1rgrei\u00f0slumeistari, f. 1910, d. 1987, G\u00fastaf Rolf p\u00edpulagningameistari, f. 1915, d. 1991, kv\u00e6ntur Berg\u00fe\u00f3ru P\u00e1lsd\u00f3ttur, d. 1979, Selma leikfimikennari, f. 1917, d. 2004, gift J\u00f3ni A. J\u00f3hannessyni, d. 1995 og Baldur Ingolf, p\u00edpulagningameistari, f. 1919, d. 1975, kv\u00e6ntur Steinunni Kristiansen, d. 2013.<\/p>\n<p>Matt\u00eda \u00de\u00f3ra flutti til Reykjav\u00edkur eftir a\u00f0 Jentoft l\u00e9st en \u00fe\u00e1 var Tr\u00famann 15 \u00e1ra og bj\u00f3 enn \u00ed foreldrah\u00fasum.<\/p>\n<p>Tr\u00famann kv\u00e6ntist \u00ed ma\u00ed 1950 eftirlifandi eiginkonu sinni Birnu Fr\u00edmannsd\u00f3ttur, f. 4. jan\u00faar 1931, en \u00feau luku b\u00e6\u00f0i kennarapr\u00f3fi fr\u00e1 Kennarask\u00f3la \u00cdslands \u00fea\u00f0 sama vor. \u00deau eignu\u00f0ust fj\u00f6gur b\u00f6rn. Elstur er<\/p>\n<p><b>Matth\u00edas M\u00e1r<\/b> kennari og \u00fe\u00fd\u00f0andi, f. 18.11.50. Kona hans er Heidi Strand myndlistarma\u00f0ur, f. 6.3.53. \u00deau eiga \u00d6nnu Lindu, Atla \u00de\u00f3r og Braga M\u00e1. Eiginkona Braga M\u00e1s er Krist\u00edn Vala Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og eiga \u00feau tv\u00e6r d\u00e6tur, Heklu Himinbj\u00f6rgu og K\u00f6tlu Berg\u00fe\u00f3ru.<\/p>\n<p><b>Ragnhei\u00f0ur<\/b> vinnumarka\u00f0sfr\u00e6\u00f0ingur er f\u00e6dd 16.2.52. Eldri d\u00f3ttir hennar er Gu\u00f0r\u00fan Kristinsd\u00f3ttir, gift Philippe Urfalino og eiga \u00feau tv\u00edburad\u00e6tur, Freyju og Brynd\u00edsi. Yngri d\u00f3ttirin er Camilla Mirja Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, gift Pontusi Degsell, og eiga \u00feau tv\u00f6 b\u00f6rn, Simon og Emmy.<\/p>\n<p><b>M\u00e1lfr\u00ed\u00f0ur Klara<\/b> arkitekt er f\u00e6dd 11.6.56, gift Sigur\u00f0i Reyni G\u00edslasyni, doktor \u00ed jar\u00f0efnafr\u00e6\u00f0i og eiga \u00feau tv\u00edburana \u00d6nnu Dilj\u00e1 og Birni J\u00f3n.<\/p>\n<p>Yngst er svo<\/p>\n<p><b>Kolbr\u00fan<\/b> hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur, f. 3.3.67 og \u00e1 h\u00fan tv\u00f6 b\u00f6rn, Tr\u00famann og Au\u00f0i \u00ddr Har\u00f0arb\u00f6rn.<\/p>\n<p>Tr\u00famann og Birna r\u00e9\u00f0u sig til starfa vi\u00f0 Hvolssk\u00f3la sem \u00fe\u00e1 var barnask\u00f3li Hvolhrepps \u00ed Rang\u00e1rvallas\u00fdslu, hann sem sk\u00f3lastj\u00f3ri og h\u00fan sem kennari. \u00dear st\u00f6rfu\u00f0u \u00feau vi\u00f0 g\u00f3\u00f0an or\u00f0st\u00edr fram til \u00e1rsins 1972 og bygg\u00f0u \u00e1 \u00feeim t\u00edma upp heildst\u00e6\u00f0an grunnsk\u00f3la me\u00f0 barna- og unglingadeild sem margir hreppar \u00ed Rang\u00e1rvallas\u00fdslu \u00e1ttu hlutdeild \u00ed. \u00c1ri\u00f0 1972 fluttu \u00feau hj\u00f3nin til Hverager\u00f0is \u00fear sem Tr\u00famann var\u00f0 sk\u00f3lastj\u00f3ri barnask\u00f3lans en Birna kenndi vi\u00f0 \u00feann sama sk\u00f3la, allt til \u00feess a\u00f0 hann f\u00f3r \u00e1 eftirlaun 1991. \u00c1 Hvolsvelli haf\u00f0i Tr\u00famann unni\u00f0 vi\u00f0 og byggt upp gott h\u00e9ra\u00f0sb\u00f3kasafn, hann t\u00f3k \u00fer\u00e1\u00f0inn upp a\u00f0 n\u00fdju \u00ed Hverager\u00f0i og vann \u00e1 b\u00f3kasafni b\u00e6jarins um t\u00edu \u00e1ra skei\u00f0 \u00ed hlutastarfi.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2001 fluttu \u00feau Tr\u00famann og Birna sig um set \u00e1 n\u00fd, a\u00f0 \u00feessu sinni til K\u00f3pavogs, ekki s\u00edst til \u00feess a\u00f0 geta veri\u00f0 n\u00e6r b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum sem \u00fe\u00e1 bjuggu flest \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu. Heilsan var farin a\u00f0 gefa sig 2011 \u00feegar \u00feau fluttu \u00e1 hj\u00fakrunar- og dvalarheimili\u00f0 Hrafnistu, fyrsta \u00e1ri\u00f0 vi\u00f0 Br\u00fanaveg \u00ed Reykjav\u00edk en s\u00ed\u00f0an 2012 bjuggu \u00feau hj\u00f3n \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 Hrafnistu \u00ed Hafnarfir\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00deau \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a daga saman, voru samhent \u00ed kennslunni og \u00ed l\u00edfi og leik. A\u00f0 lifa er a\u00f0 leika s\u00e9r og \u00feau kunnu \u00fea\u00f0 svo sannarlega me\u00f0 nemendum og b\u00f6rnum s\u00ednum. \u00deau voru gamans\u00f6m \u00ed daglegu l\u00edfi og n\u00e1lgu\u00f0ust allt me\u00f0 gle\u00f0i og glettni. \u00deegar \u00e9g spur\u00f0i um \u00fea\u00f0 sem v\u00e6ri eftirminnilegast \u00ed fari Tr\u00famanns \u00fe\u00e1 l\u00e9tu sv\u00f6rin ekki \u00e1 s\u00e9r standa. hann var str\u00ed\u00f0inn, \u00e1kve\u00f0inn og upp\u00e1finningasamur. \u00deetta kom s\u00e9r allt vel \u00ed kennara- og sk\u00f3lastj\u00f3rastarfinu og str\u00ed\u00f0ninni og \u00e1kve\u00f0ninni var\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 beita af visku og n\u00e6mni. Hann var hugmyndar\u00edkur \u00ed sk\u00f3lastarfinu og reif starfi\u00f0 upp og efldi. Hann lag\u00f0i sig allan fram um a\u00f0 r\u00e6kta unga f\u00f3lki\u00f0 sem hann bar \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 og gat stoltur liti\u00f0 yfir farinn veg og gla\u00f0st yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa kveikt \u00e1huga fj\u00f6lda nemenda til a\u00f0 mennta sig sem allra mest og best. \u00c1rangur hans sem sk\u00f3lastj\u00f3ra \u00ed Hvolssk\u00f3la var mikill og m\u00e6lanlegur.<\/p>\n<p>Hann var almennur kennar og l\u00edka sm\u00ed\u00f0akennari og naut s\u00edn vel \u00ed \u00fev\u00ed hlutverki, opna\u00f0i fyrir nemendum heima sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0rar sk\u00f6punar og verkvits \u00fear sem \u00feau l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 hugsa \u00ed \u00fer\u00edv\u00eddd og formum.<\/p>\n<p>Hann sem b\u00fai\u00f0 haf\u00f0i vi\u00f0 sj\u00f3 og fj\u00f6ll var\u00f0i l\u00edfsstarfi s\u00ednu \u00ed a\u00f0 kenna b\u00f6rnum \u00ed fjarl\u00e6gri sveit fr\u00e1 s\u00ednum heimah\u00f6gum \u00fear sem enginn er sj\u00f3r e\u00f0a fj\u00f6ll, nema \u00ed fjarska, og snj\u00f3r \u00feekktist varla \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 snj\u00f3kistur fjar\u00f0anna fyrir austan. \u00deetta eru \u00f3l\u00edkir heimar, v\u00ed\u00f0\u00e1ttur Su\u00f0urlands og fir\u00f0irnir eystra me\u00f0 s\u00ednum h\u00e1um hamrabeltum sem sk\u00fdla en skyggja um lei\u00f0 \u00e1 s\u00f3l en gefa logn sem er einstakt og \u00f3vi\u00f0jafnanlegt.<\/p>\n<p>\u00deau voru vins\u00e6l hj\u00f3n \u00e1 Hvolsvelli, Birna og Tr\u00famann, enda settu \u00feau mark sitt \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0 me\u00f0 h\u00e6fileikum s\u00ednum og g\u00e1fum. \u00deau h\u00f6f\u00f0u \u00e1hrif \u00e1 marga einstaklinga til g\u00f3\u00f0s, efldu f\u00f3lk og hv\u00f6ttu til d\u00e1\u00f0a. F\u00e9lagsl\u00edfi\u00f0 \u00ed sk\u00f3lanum var fj\u00f6rugt og \u00feau t\u00f3ku fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed \u00e1samt b\u00f6rnum s\u00ednum. Sk\u00f3lahlj\u00f3msveit var starfr\u00e6kt og sm\u00ed\u00f0a\u00f0i Tr\u00famann flesti hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rin sj\u00e1lfur. Kona nokkur sag\u00f0i: \u201eH\u00fan Birna kenndi m\u00e9r vinnukonugripin \u00e1 g\u00edtar og Tr\u00famann kenndi m\u00e9r a\u00f0 dansa.\u201c Og \u00e9g spyr: Hva\u00f0 \u00fearf ung kona frekar a\u00f0 l\u00e6ra en \u00feetta til a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins.<\/p>\n<p>Una\u00f0sstundir \u00feeirra hj\u00f3na og barna voru ekki hva\u00f0 s\u00edst lifa\u00f0ar \u00ed Bakkaseli \u00ed Hagav\u00edk vi\u00f0 \u00deingvallavatn. \u00dear gat Tr\u00famann gleymt s\u00e9r algj\u00f6rlega \u00e1 vatnsbakkanum vi\u00f0 a\u00f0 undirb\u00faa vei\u00f0ar, gera kl\u00e1r vei\u00f0arf\u00e6ri og b\u00e1t. Svo var lagt \u00fat \u00e1 dj\u00fapi\u00f0 \u00ed kyrr\u00f0inni og logninu og eins og vitur skipstj\u00f3ri vissi hann \u00e6t\u00ed\u00f0 hvar best var a\u00f0 kasta og egna fyrir silung og murtu, st\u00f3rbleikju og urri\u00f0a. Einu sinni n\u00e1\u00f0i hann einum afar st\u00f3rum \u00e1 5-punda l\u00ednu. Til a\u00f0 n\u00e1 honum \u00feurfti langan t\u00edma og mikla lagni til a\u00f0 sl\u00edta ekki og missa \u00feann st\u00f3ra. Og fiskarnir komu til hans eins og \u00ed lei\u00f0slu og bitu \u00e1 hj\u00e1 honum \u00e1n \u00feess a\u00f0 vita a\u00f0 \u00feeirra bei\u00f0 f\u00e1tt anna\u00f0 en pannan \u00ed b\u00fasta\u00f0num. Svona er n\u00fa l\u00edfi\u00f0. Eins dau\u00f0i er annars brau\u00f0. Vi\u00f0 erum af j\u00f6r\u00f0u komin og hverfum \u00feanga\u00f0 aftur. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n vatnsins sem j\u00f6r\u00f0in gefur, jurta og d\u00fdra sem vi\u00f0 sn\u00e6\u00f0um. Vi\u00f0 erum mold og hverfum aftur til moldar. Hold er mold sama hverju \u00fea\u00f0 kl\u00e6\u00f0ist, sag\u00f0i s\u00e9ra Hallgr\u00edmur. \u00dea\u00f0 er hollt fyrir ungu kynsl\u00f3\u00f0ina a\u00f0 hugsa \u00e1 \u00feessum n\u00f3tum og vita a\u00f0 mj\u00f3lkin og kj\u00f6ti\u00f0, fiskurinn og \u00e1vextirnir ver\u00f0a ekki til \u00ed st\u00f3rm\u00f6rku\u00f0um. Vi\u00f0 erum hluti af st\u00f3rri ke\u00f0ju. N\u00e1tt\u00faran er ekki einhverssta\u00f0a utan vi\u00f0 okkur, ekki uppi \u00e1 h\u00e1lendi e\u00f0a \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. Vi\u00f0 erum n\u00e1tt\u00faran, \u00e9g og \u00fe\u00fa.<\/p>\n<p>\u00cd anda svonefndra Bakkaselslausna sem oft komu \u00e1 \u00f3vart \u00fe\u00e1 er l\u00edfi\u00f0 einfalt ef grannt er sko\u00f0a\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00ed einu st\u00f3ru samhengi og vi\u00f0 erum eins og fiskar \u00ed vatni og komumst ekki \u00fat \u00far \u00fev\u00ed. Og vatni\u00f0 er Gu\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00f3pur sk\u00f3lasystkina \u00far K\u00cd keypti Bakkasel saman og \u00fear var oft \u00fer\u00f6ng \u00e1 \u00feingi, gle\u00f0i og gaman, \u00fer\u00e1tt fyrir 3 \u00ferj\u00f3ska og \u00e1kve\u00f0na sk\u00f3lastj\u00f3ra og \u00feeirra konur og fj\u00f6rug b\u00f6rn sem hvert voru me\u00f0 s\u00ednu sni\u00f0i. En sk\u00f3laf\u00f3lki\u00f0 vissi a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 sn\u00fdst um samf\u00e9lag og samskipti, lausnir og l\u00edfsleikni. Barnab\u00f6rnin elsku\u00f0u afa og nutu \u00feess a\u00f0 l\u00e6ra af honum og leika vi\u00f0 hann, \u00e1tta sig \u00e1 str\u00ed\u00f0ninni og galsanum. \u201eAfi veit allt\u201c, sag\u00f0i eitt \u00feeirra andaktugt. Kve\u00f0ja hefur borist fr\u00e1 afastr\u00e1k, Atla \u00de\u00f3r Matth\u00edassyni sem er \u00ed Danm\u00f6rku en me\u00f0 okkur \u00ed huganum.<\/p>\n<p>\u00deau hj\u00f3nin bjuggu lengst af \u00ed emb\u00e6ttisb\u00fasta\u00f0 \u00e1 Hvolsvelli og l\u00edka \u00ed Hverager\u00f0i en bygg\u00f0u s\u00e9r s\u00ed\u00f0ar h\u00fas a\u00f0 Borgarhei\u00f0i \u00ed Hverager\u00f0i og \u00e1ttu \u00fear m\u00f6rg handt\u00f6kin \u00ed innr\u00e9ttingasm\u00ed\u00f0i og gr\u00f3\u00f0urvinnu.<\/p>\n<p>Me\u00f0 sk\u00f3lastj\u00f3rastarfinu vann Tr\u00famann \u00fdmis st\u00f6rf \u00e1 sumrin svo sem a\u00f0 aka mj\u00f3lkurb\u00edlnum og Birna var \u00e1 skirfstofu kauf\u00e9lagsins. Matth\u00edas minnist \u00feess er honum gafst t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 fara \u00ed s\u00edna fyrstu utanfer\u00f0 til \u00c1landseyja \u00e1 vegum Rotary-hreyfingarinnar \u00e1samt \u00f6\u00f0rum str\u00e1k \u00edslenskum. En s\u00e1 b\u00f6ggull fylgdi skammrifi a\u00f0 Matth\u00edas var b\u00fainn a\u00f0 r\u00e1\u00f0a sig til \u00ed vinnu \u00ed grasmj\u00f6lsverksmi\u00f0junni. \u00de\u00e1 bau\u00f0st Tr\u00famann til a\u00f0 taka vaktirnar fyrir hann \u00ed eina 16 daga og \u00fat f\u00f3r Matti.<\/p>\n<p>Tr\u00famann gekk alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og stunda\u00f0i sund s\u00e9r til heilsub\u00f3tar og svo f\u00f3r hann um \u00e1 hj\u00f3lhesti eins og \u00fea\u00f0 var einu sinni kalla\u00f0. Eftir a\u00f0 \u00feau fluttu \u00ed K\u00f3pavog f\u00f3r hann v\u00ed\u00f0a um og \u00e1 sunnud\u00f6gum gekk hann gjarnan til kirkju og heims\u00f3tti s\u00f6fnu\u00f0ina \u00ferj\u00e1 h\u00e9r \u00ed K\u00f3pavogi og jafnvel v\u00ed\u00f0ar. Hann var f\u00e9lagslega \u00feenkjandi \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum, s\u00f6g\u00f0u systkinin m\u00e9r, vinstrisinna\u00f0ur, sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ur \u00ed hugsun og \u00fear af lei\u00f0andi sjaldan samm\u00e1la s\u00ed\u00f0asta r\u00e6\u00f0umanni. Um t\u00edma kaus hann Kvennalistann enda fa\u00f0ir \u00feriggja d\u00e6tra. Hann var vanur a\u00f0 ganga \u00ed \u00f6ll heimilisst\u00f6rf, var listakokkur og lummurnar hans \u00fe\u00f3ttu taka lummum annarra fram. Hann t\u00edndi gr\u00f6s \u00e1 sumrin \u00ed te og krydd og fann upp uppskritir og pr\u00f3fa\u00f0i \u00e1 Birnu og b\u00f6rnum en \u00feessi sem hann ger\u00f0i \u00far kryddjurtum og l\u00e9ttosti n\u00e1\u00f0i n\u00fa aldrei vins\u00e6ldum enda var \u00feri\u00f0ja efni\u00f0 \u00ed henni hakka\u00f0ur h\u00e1karl. Osta- og smj\u00f6rsalan keypti ekki \u00feessa uppskrif af honum! Hann sauma\u00f0i l\u00edka og \u00ed raun l\u00e9k allt \u00ed h\u00f6ndum hans.<\/p>\n<p>Hann orti v\u00edsur um allt og ekkert, margar gamansamar og fullar af h\u00famor og str\u00ed\u00f0ni en l\u00edka v\u00edsur eins og \u00feessa um hana Birnu:<\/p>\n<p>M\u00e9r drottinn lj\u00fafa l\u00e9\u00f0i<\/p>\n<p>a\u00f0 lei\u00f0a um \u00e6vistig.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa ert m\u00edn g\u00e6fa og gle\u00f0i,<\/p>\n<p>\u00f3, gu\u00f0 minn blessi \u00feig.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 -\u00e6vistig- er a\u00f0 s\u00f6gn Matth\u00edasar l\u00edklega s\u00f3tt \u00ed einn hans upp\u00e1halds s\u00e1lm, \u00cd blj\u00fagri b\u00e6n en \u00fear segir:<\/p>\n<p>\u00c9g leita \u00fe\u00edn, Gu\u00f0 leiddu mig<\/p>\n<p>og l\u00fdstu m\u00e9r um \u00e6vistig.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00feurfum lj\u00f3s til a\u00f0 geta lifa\u00f0. Stundum dimmir \u00ed s\u00e1lu okkar og \u00fea\u00f0 \u00feekkti Tr\u00famann. Hann mundi dimma daga \u00ed Sey\u00f0isfir\u00f0i sem barn og unglingur, skammdegi\u00f0 sem er lengi a\u00f0 hopa fyrir r\u00edsandi s\u00f3l. Menning, handverk, t\u00f3nlist, \u00f3perur og \u00f6nnur holl i\u00f0ja gefa okkur \u00fathald \u00e1 dimmum vetrum.<\/p>\n<p>[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku um Simf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands og Heklugos]<\/p>\n<p>\u00deannig hefur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 um aldir \u00ed \u00feessu kalda og dimma landi \u00e1 vetrum a\u00f0 f\u00f3lk \u00ferey\u00f0i \u00feorran og g\u00f3una me\u00f0 kv\u00f6ldv\u00f6kum og skemmtan en \u00feegar sumars\u00f3lin skein og \u00f6ll n\u00e1tt\u00faran lifna\u00f0i og lofa\u00f0i sinn Gu\u00f0 \u00fe\u00e1 var gott a\u00f0 lifa. Og \u00feannig er \u00fea\u00f0 enn. Um s\u00ed\u00f0ustu helgi skein s\u00f3lin gl\u00f6\u00f0 \u00ed tvo daga og ma\u00f0ur nokkur sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u00deessir tveir dagar hafa bjarga\u00f0 sumrinu \u00ed fyrra.<\/p>\n<p>Og n\u00fa n\u00e6rist rj\u00fapan og g\u00e6sin \u00e1 sumargr\u00f3\u00f0ri sem Tr\u00famann leita\u00f0i uppi \u00e1 haustd\u00f6gum. L\u00edfi\u00f0 er allt \u00ed bl\u00f3ma en hann er horfinn, saddur l\u00edfdaga, hefur fengi\u00f0 s\u00edna hv\u00edld og b\u00ed\u00f0ur n\u00fa h\u00e9r \u00e1 str\u00f6ndinni, b\u00ed\u00f0ur \u00feess a\u00f0 halda \u00ed s\u00edna hinstu f\u00f6r. Kirkjunni er oft l\u00edkt vi\u00f0 skip. Vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00ed kirkjuskipi og \u00e1stvinur er h\u00e9r kvaddur me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Dj\u00fapi\u00f0 b\u00ed\u00f0ur me\u00f0 s\u00ednum leyndard\u00f3mum en um bor\u00f0 er hann sem for\u00f0um kyrr\u00f0i vind og sj\u00f3. Hann geymir alla sem honum eru helga\u00f0ir, fr\u00e1teknir og merktir sigurt\u00e1kni upprisunnar \u00e1 enni og brj\u00f3sti. Vi\u00f0 erum \u00ed honum og hann \u00ed okkur, eins og urri\u00f0inn \u00ed \u00deingvallavatni sem \u00feekkir sitt samhengi og hefur lifa\u00f0 \u00fear um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. Hann er hluti hins st\u00f3ra samhengis eins og vi\u00f0. Vi\u00f0 og fiskurinn og fiskurinn og vi\u00f0, l\u00edfi\u00f0 og leikurinn, sorgin og treginn, \u00e1stin og hamingjan. Allt \u00ed einu samhengi, innan sama hrings.<\/p>\n<p>Gott er a\u00f0 kve\u00f0ja \u00ed \u00feessu samhengi og Gu\u00f0 blessi minningu Tr\u00famanns Kristiansen og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar:<\/strong><\/p>\n<p><strong>S\u00edraksb\u00f3lk 4. 11-19<\/strong><\/p>\n<p><strong>Spekin sem kennari<\/strong><br \/>\n11Spekin hefur b\u00f6rn s\u00edn til vegs<br \/>\nog tekur \u00feau a\u00f0 s\u00e9r sem hennar leita.<br \/>\n12S\u00e1 sem elskar hana elskar l\u00edfi\u00f0,<br \/>\n\u00e1rrisulir hennar vegna hlj\u00f3ta \u00f3m\u00e6ldan f\u00f6gnu\u00f0.<br \/>\n13S\u00e1 sem spekina h\u00f6ndlar au\u00f0nast vegsemd<br \/>\nog blessun Drottins fylgir henni.<br \/>\n14\u00deeir \u00fej\u00f3na Hinum heilaga sem \u00fej\u00f3na spekinni<br \/>\nog Drottinn elskar \u00fe\u00e1 sem unna henni.<br \/>\n15S\u00e1 sem hl\u00fd\u00f0ir spekinni mun d\u00e6ma l\u00fd\u00f0i,<br \/>\ns\u00e1 er henni fylgir mun \u00f3hultur b\u00faa.<br \/>\n16Treysti hann spekinni mun h\u00fan ver\u00f0a eign hans<br \/>\nog ganga \u00ed arf til ni\u00f0ja hans.<br \/>\n17Fyrst mun h\u00fan lei\u00f0a hann um torf\u00e6ra stigu<br \/>\nog vekja honum \u00f3tta og skelfingu.<br \/>\nSpekin agar hann me\u00f0 \u00fej\u00e1ningum<br \/>\nuns hann ber fullt traust til hennar.<br \/>\nH\u00fan reynir hann me\u00f0 kr\u00f6fum s\u00ednum.<br \/>\n18H\u00fan kemur s\u00ed\u00f0an rakleitt til hans \u00e1 n\u00fd,<br \/>\ngle\u00f0ur hann og birtir honum s\u00edna leyndu d\u00f3ma.<br \/>\n19Ef hann lei\u00f0ist afvega yfirgefur h\u00fan hann<br \/>\nog ofurselur hann gl\u00f6tun.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Gu\u00f0spjalli\u00f0<\/strong><\/p>\n<p><strong>Matteusargu\u00f0spjall 5:1-10 og 13-16<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fjallr\u00e6\u00f0an<\/strong><br \/>\n1\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans. 2\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n3\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n4S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n5S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n6S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n7S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n8S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n9S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n10S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n[. . . ]<\/p>\n<p>Salt og lj\u00f3s<br \/>\n13\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n14\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu. 16\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/sc3a1lmaskrc3a1-trc3bamann-kristiansen-copy.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Tr\u00famann Kristiansen copy<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Tr\u00famann Kristiansen 1928-2014 fv. kennari og sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00e1 Hvolsvelli \u00datf\u00f6r fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju m\u00e1nudaginn 16. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 15 Jar\u00f0sett \u00ed K\u00f3pavogskirkjugar\u00f0i R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls. &nbsp;<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1355","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1355","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1355"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1355\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1355"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1355"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1355"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}