{"id":1351,"date":"2014-06-13T17:59:13","date_gmt":"2014-06-13T17:59:13","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1351"},"modified":"2014-06-13T17:59:13","modified_gmt":"2014-06-13T17:59:13","slug":"asgeir-olafsson-1928-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1351","title":{"rendered":"+\u00c1sgeir \u00d3lafsson 1928-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/c3a1sgeir-c3b3lafsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/c3a1sgeir-c3b3lafsson.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1352\" alt=\"\u00c1sgeir \u00d3lafsson\" width=\"223\" height=\"267\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00c1sgeir \u00d3lafsson<\/b><\/p>\n<p>1928-2014<\/p>\n<p>bifrei\u00f0astj\u00f3ri<\/p>\n<p>fr\u00e1 Gr\u00e6num\u00fdri<\/p>\n<p>\u00e1 Seltjarnarnesi<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 13. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1351-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/c3a1sgeir-c3b3lafsson.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/c3a1sgeir-c3b3lafsson.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/c3a1sgeir-c3b3lafsson.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g kom akandi til kirkju \u00ed morgun \u00f3k \u00e9g fram\u00far flutningab\u00edl me\u00f0 sirkust\u00e6ki \u00e1 palli. \u00deau voru skrautleg og f\u00f6gur \u00fear sem \u00feau l\u00e1gu hreyfingarlaus. \u00deeim ver\u00f0ur fundinn sta\u00f0ur einhverssta\u00f0ar og sett \u00ed gang og munu la\u00f0a a\u00f0 b\u00f6rnin til leiks og skemmtunar. Steypub\u00edllinn sem hann Geiri \u00f3k var me\u00f0 rau\u00f0u og hv\u00edtu s\u00edl\u00f3i sem snerist eins og sirkust\u00f3l og krakkarnir hlupu \u00e1 eftir b\u00edlnum og skoppu\u00f0u kannski gj\u00f6r\u00f0 e\u00f0a veifu\u00f0u me\u00f0 priki e\u00f0a nj\u00f3la til b\u00edlstj\u00f3rans sem var vinur \u00feeirra. \u00deau fengu far me\u00f0 honum \u00e1 sunnud\u00f6gum \u00ed sund og svo skutla\u00f0i hann f\u00f3lki hvert sem var ef \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i far og ef hann var be\u00f0inn um l\u00e1n \u00fe\u00e1 r\u00e9tti hann fram se\u00f0il og sag\u00f0i: \u201e\u00de\u00fa m\u00e1tt hafa \u00feennan, \u00e9g er h\u00e6ttur a\u00f0 nota hann.\u201c<\/p>\n<p>Grei\u00f0vikni, gamansemi og lj\u00fafmennska voru honum \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin. \u00dea\u00f0 eru g\u00f3\u00f0ir eiginleikar e\u00f0a n\u00e1\u00f0arg\u00e1fur sem gagnast mannl\u00edfinu vel. Hvernig v\u00e6ri l\u00edfi\u00f0 ef enginn hef\u00f0i \u00feessar g\u00e1fur til a\u00f0 gl\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 og efla?<\/p>\n<p>B\u00f6rnum dug\u00f0u \u00fatileikir, sundfer\u00f0ir og steypub\u00edll til a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins for\u00f0um daga \u00e1\u00f0ur en sj\u00f3nvarpi\u00f0 kom, myndb\u00f6ndin, t\u00f6lvuleikirnir og fars\u00edmarnir. L\u00edfi\u00f0 var einfaldara \u00fe\u00e1 en n\u00fa en mannl\u00edfi\u00f0 er samt \u00fea\u00f0 sama. \u00deeim mun meir sem \u00e9g les og \u00edhuga eldforna texta, tv\u00f6\u00fe\u00fasund \u00e1ra gamla og allt a\u00f0 \u00ferj\u00fa\u00fe\u00fasund \u00e1ra, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur m\u00e9r s\u00edfellt lj\u00f3sara a\u00f0 mannl\u00edfi\u00f0 er eins og \u00e1\u00f0ur. T\u00e6knin breytist en ma\u00f0urinn l\u00edti\u00f0 sem ekkert. For\u00f0um heillu\u00f0ust b\u00f6rn af hestum og hert\u00f3lum og enn eru b\u00f6rn sem hr\u00edfast af st\u00f3rum t\u00e6kjum, trukkum og steypub\u00edlum. Og enn heillast f\u00f3lk af hugsj\u00f3num og fegur\u00f0 n\u00e1tt\u00farunnar &#8211; og af hvert \u00f6\u00f0ru. Enn elskar f\u00f3lk og missir, \u00fer\u00e1ir, saknar og syrgir.<\/p>\n<p>Hi\u00f0 innra l\u00edf f\u00f3lks er eins og \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund \u00fer\u00e1tt fyrir svonefndar framfarir \u00ed v\u00edsindum og t\u00e6kni sem reyndar m\u00e1 \u00ed sumum tilfellum kalla fram-af-farir.<\/p>\n<p>Steypub\u00edlar eru \u00e1 fer\u00f0 um borgina \u00ed dag og tromlurnar sn\u00faast en Geiri er ekki lengur \u00e1 fer\u00f0 me\u00f0 krakkana og \u00feau ver\u00f0a a\u00f0 fara me\u00f0 \u00f6\u00f0rum b\u00edl \u00ed sund \u00e1 sunnudaginn.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir \u00d3lafsson f\u00e6ddist 6. j\u00fal\u00ed 1928 a\u00f0 Gr\u00e6num\u00fdri \u00e1 Seltjarnarnesi. Hann l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Skj\u00f3li 3. j\u00fan\u00ed 2014.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru hj\u00f3nin Ingibj\u00f6rg Eir\u00edksd\u00f3ttir h\u00fasfr\u00fa, f. \u00e1 Kr\u00f3ki \u00e1 Mi\u00f0nesi 30. mars 1894, d. 14. febr\u00faar 1973 og \u00d3lafur J\u00f3nsson, gjaldkeri hj\u00e1 Kveld\u00falfi, f. \u00ed Eyjarkoti \u00ed Vindh\u00e6lishreppi, A-H\u00fanavatnss\u00fdslu f. 28. desember 1874, d. 12. n\u00f3vember 1949. Bjuggu \u00feau a\u00f0 Gr\u00e6num\u00fdri \u00e1 Seltjarnarnesi fr\u00e1 1925.<\/p>\n<p>Systkini \u00c1sgeirs eru Ing\u00f3lfur f. 1916, d. 2012, J\u00f3n Jason f. 1918, d. 2011, Eir\u00edkur, f. 1919, d. 1989, \u00c1sta Mar\u00eda, f. 1921, d. 1947, nafni hans, \u00c1sgeir, f. 1923, d. 1927, Magn\u00fas, f. 1925, d. 1941 og Vilhj\u00e1lmur f. 1930 sem einn lifir systkin s\u00edn.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir kv\u00e6ntist \u00e1 Akureyri 24. desember 1951 Gu\u00f0r\u00fanu Lov\u00edsu Stef\u00e1nsd\u00f3ttur, f. a\u00f0 H\u00f3lakoti \u00ed Saurb\u00e6jarhrepp, Eyjafjar\u00f0ars\u00fdslu 15. j\u00fan\u00ed 1929, d. 27. apr\u00edl 1970. Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin Gu\u00f0munda Eirn\u00fd Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir og Fri\u00f0rik Stef\u00e1nsson. B\u00f6rn \u00c1sgeirs og Gu\u00f0r\u00fanar Lov\u00edsu eru:<\/p>\n<ol>\n<li>\u00d3lafur f. 27. apr\u00edl 1953, var kv\u00e6ntur Sigr\u00fanu Gu\u00f0leif Sigur\u00f0ard\u00f3ttur, f. 7. okt\u00f3ber 1958. B\u00f6rn \u00feeirra eru a) Gu\u00f0r\u00fan Lov\u00edsa, f. 2. j\u00fan\u00ed 1977, b\u00f6rn hennar eru: Sigur\u00f0ur Fanndal og Eva Brynd\u00eds, b) \u00c1sgeir f. 4. ma\u00ed 1979, c) Sigur\u00f0ur, f. 24. jan\u00faar 1990,<\/li>\n<li>Gu\u00f0munda Eirn\u00fd f. 6. okt\u00f3ber 1955,<\/li>\n<li>Ingibj\u00f6rg Sigr\u00fan Eyfj\u00f6r\u00f0 f. 13. desember 1956, var gift J\u00f3hanni Ingvarssyni f. 20. J\u00fal\u00ed 1951. B\u00f6rn \u00feeirra eru a) Birgir, f. 24. \u00e1g\u00fast 1979, kv\u00e6ntur Svanborgu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, f. 11. \u00e1g\u00fast 1974. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Emma, Alex \u00de\u00f3r og Snorri P\u00e1ll, b) Gunnar Geir, samb\u00fdliskona hans er J\u00f3na Svand\u00eds \u00deorvaldsd\u00f3ttir f. 29. J\u00fan\u00ed 1986. D\u00f3ttir \u00feeirra er Sara Lov\u00edsa, c) Ingibj\u00f6rg f. 31. ma\u00ed 1986, gift J\u00f3ni Inga Sveinbj\u00f6rnsyni f. 8. september 1984. B\u00f6rn \u00feeirra eru: J\u00f6kull Freyr og Hekla L\u00edf.<\/li>\n<li>Magn\u00fas f. 2. j\u00fan\u00ed 1960 kv\u00e6ntur Sigr\u00ed\u00f0i J\u00f3nu J\u00f3nsd\u00f3ttur f. 31. mars 1966.&nbsp; D\u00e6tur \u00feeirra eru: a) \u00de\u00f3rd\u00eds Eirn\u00fd f. 11. desember 1992, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Fannar Aron Hafsteinsson f. 14. \u00e1g\u00fast 1991, og b) Gu\u00f0r\u00fan Lov\u00edsa f. 15. j\u00fan\u00ed 2002.<\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00c1sgeir og Gu\u00f0r\u00fan Lov\u00edsa h\u00f3fu sinn b\u00faskap a\u00f0 Gr\u00e6num\u00fdri \u00e1 Seltjarnarnesi, en fluttu 1962 a\u00f0 N\u00fdju-Kl\u00f6pp \u00ed Lambasta\u00f0ahverfi. \u00dea\u00f0 var ekki au\u00f0velt a\u00f0 missa konuna og standa uppi einn me\u00f0 b\u00f6rnin en hann kl\u00e1ra\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00f3ma. \u00deau s\u00e1tu \u00ed fangi hans og nutu huggunar. \u00c1\u00f0ur en konan f\u00e9ll fr\u00e1 og me\u00f0an b\u00f6rnin voru ung l\u00e6r\u00f0i hann me\u00f0 \u00feeim og virtist kunna allt \u00fe\u00f3tt sk\u00f3laganga hans v\u00e6ri ekki talin \u00ed \u00e1ratugum en verkviti\u00f0 og n\u00e1tt\u00farugreindin var til sta\u00f0ar og umfram allt, elskan og umhyggjan.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 Gu\u00f0r\u00fan Lov\u00edsa f\u00e9ll fr\u00e1 h\u00f3f \u00c1sgeir samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Vald\u00edsi Sam\u00faelsd\u00f3ttur, hennar b\u00f6rn eru: Valger\u00f0ur Anna, Sam\u00fael Ingi, Gunnhildur og Hrafnhildur J\u00f3na. \u00c1sgeir og Vald\u00eds slitu samvistir.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir bj\u00f3 mest alla s\u00edna \u00e6vi \u00e1 Seltjarnarnesi, hann bj\u00f3 um t\u00edma \u00e1 Frakkast\u00edg me\u00f0 Magn\u00fasi syni s\u00ednum og endar svo \u00e6vi s\u00edna n\u00e6rri s\u00ednum \u00e6skusl\u00f3\u00f0um, er hann flutti a\u00f0 Rekagranda, en \u00fear h\u00f6f\u00f0u hann og \u00e6skuf\u00e9lagar hans leiki\u00f0 s\u00e9r \u00e1 \u00edsilag\u00f0ri tj\u00f6rn og skur\u00f0um sem \u00fe\u00e1 voru \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um. \u00de\u00e1 var \u00feeyst um \u00e1 skautum sem bundnir voru ne\u00f0an \u00e1 sk\u00f3 og skrensa\u00f0 me\u00f0 til\u00ferifum \u00ed tunglslj\u00f3sinu sem eitt l\u00fdsti upp umhverfi\u00f0 \u00e1 vetrarkv\u00f6ldum.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir gekk \u00ed M\u00fdrarh\u00fasask\u00f3la \u00e1 Seltjarnarnesi. Hann f\u00f3r ungur a\u00f0 vinna fyrir s\u00e9r. Hann og Vilhj\u00e1lmur br\u00f3\u00f0ir hans unnu vi\u00f0 byggingarvinnu m.a. vi\u00f0 byggingu s\u00e6nsku h\u00fasanna svok\u00f6llu\u00f0u \u00ed Vestub\u00e6num og einnig voru \u00feeir vinnumenn \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um. En lengst af var \u00c1sgeir vi\u00f0 st\u00f3rnv\u00f6l b\u00edla hj\u00e1 \u00cdsbirninum og s\u00ed\u00f0ar hj\u00e1 fyrirt\u00e6kinu Verk h\/f og loks hj\u00e1 steypust\u00f6\u00f0inni Brei\u00f0holt. \u00c1sgeir lauk starfs\u00e6vi sinni hj\u00e1 Granda h\/f.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hans og barnab\u00f6rn, tengdab\u00f6rn, fr\u00e6ndf\u00f3lk og vinir minnast hans me\u00f0 \u00fe\u00f6kk og gle\u00f0i. Hann var lj\u00fafur og grei\u00f0vikinn og vildi allt fyrir alla gera. Allt l\u00e9k \u00ed h\u00f6ndum hans og \u00feegar hann heims\u00f3tti d\u00f3ttur s\u00edna nor\u00f0ur \u00ed landi var hann alltaf me\u00f0 verkf\u00e6ri me\u00f0 s\u00e9r og&nbsp; var sn\u00f6ggur a\u00f0 taka fram borv\u00e9lina eins og k\u00fareki tekur byssu s\u00edna \u00far sl\u00ed\u00f0ri \u00feaul\u00e6f\u00f0um h\u00f6ndum og spur\u00f0i: Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g a\u00f0 gera n\u00fana?<\/p>\n<p>Hann var af \u00feeirri kynsl\u00f3\u00f0 \u00fear sem verkaskipting kynjanna var sk\u00fdr og verkmenn voru virtir og enginn spur\u00f0i: \u201eHva\u00f0 er svona merkilegt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 bora \u00ed vegg?\u201c<\/p>\n<p>Hann var barnag\u00e6la og haf\u00f0i gaman af a\u00f0 leika vi\u00f0 b\u00f6rn og vera vinur \u00feeirra. Hann naut \u00feess a\u00f0 spila \u00e1 spil, spila\u00f0 f\u00e9lagsvist og bridge h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr. A\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 \u00feorrabl\u00f3t og nj\u00f3ta g\u00f3\u00f0s matar a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0legum h\u00e6tti var honum hin besta skemmtun og enn batna\u00f0i dagskr\u00e1in ef h\u00e6gt var a\u00f0 taka \u00ed spil. Hann var g\u00f3\u00f0ur \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i og \u00fev\u00ed l\u00e9ku spilin \u00ed h\u00f6ndum hans og svo haf\u00f0i hann r\u00edka r\u00fdmisskynjun og \u00fer\u00edv\u00edddars\u00fdn, gat teikna\u00f0 og sm\u00ed\u00f0a\u00f0. Hann horf\u00f0i kannski um stund \u00ed kringum sig \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 einhvers barnanna og svo f\u00f3r hann og saga\u00f0i til efni og eftir skamma stund var komin upp vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 innr\u00e9ttingu, sk\u00e1pur e\u00f0a anna\u00f0 gagnlegt. Hann kl\u00e1ra\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 s\u00edn verk og n\u00e1lga\u00f0ist verkefnin me\u00f0 j\u00e1kv\u00e6\u00f0um huga og sag\u00f0i gjarnan: \u201e\u00deetta ver\u00f0ur gott \u00feegar \u00fea\u00f0 er b\u00fai\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti a\u00f0 vinna f\u00f3r hann reglulega \u00ed sund og g\u00f6ngufer\u00f0ir til a\u00f0 halda heilsunni vi\u00f0, f\u00f3r \u00ed \u00fatilegur, \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0inn og a\u00f0 vei\u00f0a. B\u00f6rnin bu\u00f0u honum oft heim og \u00feegar \u00e1kve\u00f0a \u00feurfti sta\u00f0 e\u00f0a stund \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann gjarnan: \u201e\u00dea\u00f0 ver\u00f0ur bara eins og hver vill hafa \u00fea\u00f0.\u201c \u00cd \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u kom fram visst \u00e6\u00f0ruleysi og yfirvegun. Hann var ekkert a\u00f0 \u00e6sa sig yfir einhverju sem m\u00e1tti ver me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti. Okkur er svo gjarnt a\u00f0 ofrurskipuleggja l\u00edfi\u00f0 og hafa \u00e1hyggjur af verkefnum morgundagsins. Tilfelli\u00f0 er a\u00f0 fj\u00f6lmargt sem vi\u00f0 h\u00f6fum \u00e1hyggjur af og erum kv\u00ed\u00f0in yfir og \u00e6tlum a\u00f0 skipuleggja \u00ed \u00feaula gerist bara og leysist af sj\u00e1lfu s\u00e9r ef ma\u00f0ur hefur r\u00f3 og \u00feolinm\u00e6\u00f0i til a\u00f0 treysta l\u00ed\u00f0andi stund og gangi l\u00edfsins.<\/p>\n<p>Hann var hraustur alla t\u00ed\u00f0 til l\u00edkama og s\u00e1lar en hugurinn var\u00f0 fyrir hr\u00f6rnun og sm\u00e1tt og sm\u00e1tt skertist minni\u00f0 og getan til a\u00f0 vera einn og sj\u00e1 um sig sj\u00e1lfur. Hann var heima lengur en hann gat \u00ed raun og naut umhyggju barna sinna. Eirn\u00fd bj\u00f3 og vann n\u00e6rri honum og gat fylgst me\u00f0 honum og \u00fev\u00ed gat hann veri\u00f0 lengur heima uns hann f\u00f3r til dvalar \u00ed Skj\u00f3li \u00ed jan\u00faar 2013. Hann gat ekki lengur eki\u00f0 b\u00edlnum s\u00ednum en var farinn a\u00f0 undirb\u00faa \u00fea\u00f0 \u00ed huganum a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r hj\u00f3l. D\u00e1samlegt hva\u00f0 mannshugurinn leitar s\u00edfellt lausna og s\u00e6ttir sig illa vi\u00f0 kyrrst\u00f6\u00f0u. A\u00f0 komast fr\u00e1 einum sta\u00f0 til annars er \u00f6llum mikilv\u00e6gt. En svo kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00e1 endast\u00f6\u00f0. Hva\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1? Hva\u00f0 tekur vi\u00f0?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum b\u00f6rn \u00feessa heims, erum af j\u00f6r\u00f0u komin, getum ekki lifa\u00f0 nema vegna \u00feess a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in gefur okkur vatn, kj\u00f6t og fisk, gr\u00e6nmeti og \u00e1vexti. Vi\u00f0 erum af j\u00f6r\u00f0u. N\u00e1tt\u00faran er ekki einvherssta\u00f0ar fyrir utan okkur, einhverssta\u00f0ar langt \u00ed burtu, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. Vi\u00f0 erum n\u00e1tt\u00faran. Vi\u00f0 erum af mold og til moldar munum vi\u00f0 aftur hverfa. Kristin tr\u00fa og l\u00edfssko\u00f0un neitar \u00fev\u00ed a\u00f0 dau\u00f0inn s\u00e9 endast\u00f6\u00f0 alls. H\u00fan r\u00fdfur v\u00edtahringinn og segir: Af j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur upp r\u00edsa. L\u00edfi\u00f0 sn\u00fdst ekki bara \u00ed hringi eins og tromla \u00e1 steypub\u00edl heldur sn\u00fdst \u00fea\u00f0 eins og sp\u00edrall sem n\u00e6r \u00fat fyrir hi\u00f0 jar\u00f0neska og tengist handanverunni. Heilinn og r\u00f6khugsunin eiga erfitt me\u00f0 g\u00e1tur tr\u00faar og tilvistar en hjarta\u00f0 skilur \u00fea\u00f0 allt. Hjarta\u00f0 r\u00e6\u00f0ur alveg vi\u00f0 \u00fe\u00e1 hugsun a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 haldi \u00e1fram \u00ed annarri v\u00eddd og me\u00f0 einhverjum \u00feeim h\u00e6tti sem vi\u00f0 skiljum ekki me\u00f0 reikningsk\u00fanstum veraldar. \u201e\u00deetta er engin algebra\u201c, sungu Pollarnir. St\u00f3ru stefin \u00ed tilvererunni l\u00fata \u00f6\u00f0rum l\u00f6gm\u00e1lum en \u00feeim sem setja okkur m\u00f6rk \u00ed \u00feessu l\u00edfi \u00fear sem mannl\u00edfi\u00f0 breytist l\u00edti\u00f0 fr\u00e1 \u00f6ld til aldar \u00fev\u00ed hjarta\u00f0 er hi\u00f0 sama, tilfinningarnar eins. F\u00f3lk sem gr\u00e9t \u00e1stvini s\u00edna for\u00f0um gr\u00e6tur me\u00f0 sama h\u00e6tti n\u00fa \u00e1 t\u00edmum. Sorg og s\u00f6knu\u00f0ur fara ekki eftir t\u00edzkusveiflum. \u00cd dag syrgjum vi\u00f0 og s\u00f6knum en h\u00f6ldum einnig \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0 fyrir l\u00edf g\u00f3\u00f0s manns og kve\u00f0jum \u00c1sgeir \u00d3lafsson me\u00f0 vir\u00f0ingu og felum hann himni Gu\u00f0s og hinu st\u00f3ra samhengi.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 \u00c1sgeir \u00d3lafsson 1928-2014 bifrei\u00f0astj\u00f3ri fr\u00e1 Gr\u00e6num\u00fdri \u00e1 Seltjarnarnesi \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 13. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1351","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1351","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1351"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1351\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1351"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1351"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1351"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}