{"id":1343,"date":"2014-06-12T14:38:33","date_gmt":"2014-06-12T14:38:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1343"},"modified":"2014-06-12T14:38:33","modified_gmt":"2014-06-12T14:38:33","slug":"sigurdur-haraldsson-1948-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1343","title":{"rendered":"+Sigur\u00f0ur Haraldsson 1948-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/sigurc3b0ur-haraldsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/sigurc3b0ur-haraldsson.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1344\" alt=\"Sigur\u00f0ur Haraldsson\" width=\"160\" height=\"236\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Sigur\u00f0ur Haraldsson<\/b><\/p>\n<p>vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur og saltfisk\u00fatflytjandi<\/p>\n<p>Sk\u00f3garseli 41, R<\/p>\n<p>1948-2014<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1343-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/siggi-haralds.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/siggi-haralds.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/siggi-haralds.mp3<\/a><\/audio>\n<p>\u00c6\u00f0ruleysi, hugrekki, \u00feakkl\u00e6ti og reisn. \u00deetta eru or\u00f0 sem m\u00e9r eru efst \u00ed huga \u00feegar \u00e9g m\u00e6li yfir moldum Sigur\u00f0ar Haraldssonar.<\/p>\n<p>\u00c9g kynntist honum fyrst er \u00e9g kom \u00e1 heimili hans og \u00deorsteins sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ur m\u00edns og vinar. Vi\u00f0 Steini vorum \u00ed Veszl\u00f3 en Siggi og \u00d6mmi vinur hans \u00ed MR og okkur fannst \u00feeir d\u00e1l\u00edti\u00f0 alvarlegir \u00ed lopapeysunum vi\u00f0 hli\u00f0 okkar \u00ed jakkaf\u00f6tunum. Siggi, Steini, Ingibj\u00f6rg og \u00c1str\u00e1\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur b\u00fai\u00f0 \u00e1 Miklubrautinni. \u00deetta eru \u00f6flug systkini, Sigur\u00f0ur vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, \u00deorsteinn l\u00f6ggiltur endursko\u00f0andi, Ingibj\u00f6rg l\u00f6ggiltur b\u00f3kari og \u00c1str\u00e1\u00f0ur h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gma\u00f0ur.<\/p>\n<p>[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni]<\/p>\n<p>Frumbur\u00f0urinn naut sinna forr\u00e9ttinda en var\u00f0 l\u00edka a\u00f0 bera \u00fe\u00e6r byr\u00f0ar sem sl\u00edkri st\u00f6\u00f0u fylgja. \u00deannig er l\u00edf\u00f0. \u00dea\u00f0 ber \u00ed s\u00e9r \u00ed senn vir\u00f0ingu og vanda. Og n\u00fa er hann horfinn fr\u00e1 okkur \u00feessi einbeitti str\u00e1kur, afkomandi bar\u00e1ttuf\u00f3lks \u00far Reykjav\u00edk me\u00f0 r\u00e6tur sem n\u00e1 \u00fat fyrir borgarm\u00f6rkin.<\/p>\n<p>Foreldrar Sigur\u00f0ar voru A\u00f0alhei\u00f0ur Sigur\u00f0ard\u00f3ttir og Haraldur \u00deorsteinsson.<\/p>\n<p>Foreldrar A\u00f0alhei\u00f0ar voru hj\u00f3nin, Sigr\u00ed\u00f0ur J\u00f3hannesd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja, f\u00e6dd \u00ed Brekku\u2019holti&nbsp; \u00ed Vesturb\u00e6num og Sigur\u00f0ur Sigur\u00f0sson, verkstj\u00f3ri, f\u00e6ddur \u00e1 Fossi \u00e1 Skaga.<\/p>\n<p>Foreldrar Haraldar voru \u00deorsteinn Gu\u00f0laugsson, sj\u00f3ma\u00f0ur, (f. 30.3. 1886 d. 6.8. 1968) og austurb\u00e6ingur, f\u00e6ddur \u00ed Bergsta\u00f0astr\u00e6ti, og kona hans, \u00c1str\u00ed\u00f0ur Oddsd\u00f3ttir h\u00fasfreyja, (f. 12.11 1888 d. 13.7. 1961) f\u00e6dd \u00ed Brautarholti \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>Um A\u00f0alhei\u00f0i var m.a. sagt \u00ed minningaror\u00f0um:<\/p>\n<p><em>G\u00f3\u00f0vildin var henni \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin og h\u00fan r\u00e9tti jafnan hlut \u00feeirra sem halla\u00f0 var \u00e1. H\u00fan s\u00e1 gott \u00ed \u00f6llum m\u00f6nnum. Uppvaxtar\u00e1rin vi\u00f0 kr\u00f6pp kj\u00f6r m\u00f3tu\u00f0u hugsun hennar. H\u00fan vissi a\u00f0 margur sem lif\u00f0i \u00ed basli og s\u00e1rri f\u00e1t\u00e6kt, geymdi g\u00f6fuga s\u00e1l og hl\u00fdtt hjarta, sem bar\u00f0ist \u00ed breysku brj\u00f3sti.<\/em><\/p>\n<p>Um Harald var \u00feetta sagt m.a.o:<\/p>\n<p><em>Hann t\u00f3k \u00fe\u00e9tt og fast \u00ed h\u00f6nd m\u00edna \u00feegar vi\u00f0 hittumst og svo t\u00f3k hann jafnvel me\u00f0 vinstri h\u00f6nd um \u00falnli\u00f0inn \u00e1 m\u00e9r e\u00f0a um framhandlegginn og h\u00e9lt m\u00e9r \u00fe\u00e9tt a\u00f0 s\u00e9r, horf\u00f0i \u00ed augu m\u00e9r og spur\u00f0i fr\u00e9tta. \u00dea\u00f0 var ekkert h\u00e1lfk\u00e1k \u00ed \u00feeim samskiptum. Handtaki\u00f0 sterkt, augun sk\u00f6rp og brosi\u00f0 bl\u00edtt. Allt gaf \u00fea\u00f0 til kynna a\u00f0 traustur ma\u00f0ur v\u00e6ri \u00e1 fer\u00f0.<\/em><\/p>\n<p>Siggi var g\u00e6fuma\u00f0ur og eigna\u00f0ist g\u00f3\u00f0a konu og b\u00f6rn.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur kv\u00e6ntist 30. okt\u00f3ber 1971 eftirlifandi eiginkonu sinni J\u00f3nu Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttur skrifstofumanni sem f\u00e6ddist&nbsp; \u00ed Reykjav\u00edk 27. j\u00fal\u00ed 1949. Foreldrar hennar voru Gu\u00f0j\u00f3n Gu\u00f0mundsson bifrei\u00f0asmi\u00f0ur \u00ed Reykjav\u00edk f. 11. j\u00fal\u00ed 1910 d. 24. ma\u00ed 2001 og \u00d3l\u00f6f Bjarnad\u00f3ttir h\u00fasm\u00f3\u00f0ir f. 8. okt\u00f3ber 1907 d. 15. apr\u00edl 1983. Siggi mat tengdforeldra s\u00edna mikils og \u00e1tti vi\u00f0 \u00feau g\u00f3\u00f0 samskipti me\u00f0an \u00feau lif\u00f0u.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur og J\u00f3na bjuggu bjuggu alla t\u00ed\u00f0 \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu, \u00e1 Teigunum \u00ed Reykjav\u00edk og s\u00ed\u00f0ar \u00e1 Bakkafl\u00f6t \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6. Eftir a\u00f0 b\u00f6rnin f\u00f3ru a\u00f0 heiman minnku\u00f0u \u00feau vi\u00f0 og bjuggu n\u00fa s\u00ed\u00f0ast \u00ed Sk\u00f3garseli 41.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra hj\u00f3na eru:<\/p>\n<p>\u00d3lafur Arinbj\u00f6rn Sigur\u00f0sson, l\u00f6gma\u00f0ur, f. 9. ma\u00ed 1971, kv\u00e6ntur Krist\u00ednu Bj\u00f6rg Eysteinsd\u00f3ttur vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, f. 9. mars 1972. D\u00e6tur \u00feeirra eru: Kar\u00f3l\u00edna f. 1997, Lov\u00edsa f. 2002 og El\u00edsabet f. 2007.<\/p>\n<p>A\u00f0alhei\u00f0ur Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, verkefnastj\u00f3ri (MPM), f. 1. n\u00f3vember 1975. Samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Ingvar Tryggvason, flugstj\u00f3ri, 12. j\u00fal\u00ed 1972.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur var f\u00e6ddur og uppalinn \u00ed Reykjav\u00edk. Hann lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk 1969 og pr\u00f3fi \u00ed vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands 1973. A\u00f0 n\u00e1mi loknu h\u00f3f Sigur\u00f0ur st\u00f6rf hj\u00e1 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytinu. Lengst af starfa\u00f0i Sigur\u00f0ur vi\u00f0 \u00fatflutning \u00e1 saltfiski. Hann starfa\u00f0i hj\u00e1 S\u00f6lusambandi \u00cdslenskra Fiskframlei\u00f0enda fr\u00e1 1978-1992. S\u00ed\u00f0astli\u00f0in 22 \u00e1r starfa\u00f0i Sigur\u00f0ur sj\u00e1lfst\u00e6tt me\u00f0 \u00f6\u00f0rum, vi\u00f0 \u00fatflutning \u00e1 saltfiski, einkum til Sp\u00e1nar.<\/p>\n<p>[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku]<\/p>\n<p>Siggi var stoltur af uppruna s\u00ednum og minnti b\u00f6rn s\u00edn og barnab\u00f6rn \u00e1 a\u00f0 vera \u00fea\u00f0 l\u00edka og gleyma ekki r\u00f3tum s\u00ednum, f\u00f3lkinu sem \u00e1 undan gekk og lag\u00f0i sitt af m\u00f6rkum til a\u00f0 b\u00e6ta \u00feetta \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag.<\/p>\n<p>\u00deann 1. ma\u00ed 1963 birtist \u00ed Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu vi\u00f0tal vi\u00f0 Sigur\u00f0 Sigur\u00f0sson m\u00f3\u00f0urafa Sigga. \u00dear var r\u00e6tt um bar\u00e1ttu fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og manns\u00e6mandi kj\u00f6rum, en hann haf\u00f0i veri\u00f0 f\u00e1naberi \u00ed fyrstu kr\u00f6fug\u00f6ngu verkal\u00fd\u00f0sins \u00ed Reykjav\u00edk 40 \u00e1rum fyrr, 1. ma\u00ed 1923. Vi\u00f0talinu l\u00fdkur \u00e1 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n<p><em>\u201eVi\u00f0 kv\u00e9\u00f0jum [sic] fyrsta f\u00e1nabera reykv\u00edskrar al\u00fe\u00fd\u00f0u, sem vildi, a\u00f0 hann g\u00e6ti gengi\u00f0 me\u00f0 f\u00e1nann \u00ed dag, og h\u00f6ldum \u00fat \u00ed rigninguna \u00e1 Vesturg\u00f6tunni, minnugir \u00feess, a\u00f0 merki\u00f0 stendur, \u00fe\u00f3tt ma\u00f0urinn falli.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Or\u00f0st\u00edr g\u00f3\u00f0ra manna lifir me\u00f0an gott f\u00f3lk sem \u00e1 eftir kemur minnist \u00feeirra \u00ed \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Fyrstu misserin eftir a\u00f0 Siggi f\u00e6ddist var hann me\u00f0 Distu m\u00f6mmu sinni hj\u00e1 afa og nafna me\u00f0an Halli var a\u00f0 byggja yfir \u00feau og eftir a\u00f0 Siggi l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 lesa \u00fe\u00e1 las hann fyrir afa sinn sem var or\u00f0inn blindur.<\/p>\n<p>Siggi var af ein\u00f6r\u00f0u f\u00f3ki kominn og \u00feegar hann var str\u00e1kur og l\u00e9k f\u00f3tbolta me\u00f0 Val \u00fe\u00e1 var allt lagt \u00ed leikinn og \u00fea\u00f0 var rifja\u00f0 upp \u00ed minningargrein \u00e6skuvinar hans, Bjarna Bjarnasonar, a\u00f0 eitt sinn \u00ed 5. flokki skora\u00f0i Siggi 10 m\u00f6rk \u00ed fyrri h\u00e1lfleik og \u00fe\u00e1 fannst \u00fej\u00e1lfara anst\u00e6\u00f0inganna n\u00f3g komi\u00f0 og l\u00e9t flauta leikinn af.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 fer vel \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 jar\u00f0a Valsmann fr\u00e1 Neskirkju vi\u00f0 Hagatorg. Fyrstu vellir Vals st\u00f3\u00f0u vi\u00f0 Hagatorg. Fyrstu 3 vellir \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu milli H\u00f3tels S\u00f6gu og \u00dej\u00f3\u00f0arb\u00f3khl\u00f6\u00f0unnar. S\u00e1 4. vi\u00f0 Loftskeytast\u00f6\u00f0ina \u00e1 Melum.<\/p>\n<p>Rau\u00f0i liturinn \u00e1 altarinu \u00ed dag [innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku] fer vel en hann er ekki vegna Vals heldur v\u00edsar hann til elds og \u00e1kafa hinnar fyrstu kristnu hv\u00edtasunnu. Stundum stendur KR \u00e1 altarinu me\u00f0 gr\u00edsku letri og sumir h\u00e9r \u00ed hverfinu halda a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00edsi til knattspyrnuf\u00e9lags Vesturb\u00e6inga en er n\u00fa reyndar tilv\u00edsun \u00ed XRISTOS sem \u00feetta h\u00fas er helga\u00f0.<\/p>\n<p>S\u00e9ra Fri\u00f0rik lag\u00f0i l\u00ednur vi\u00f0 v\u00edgslu fyrsta vallar Vals, 6. \u00e1g\u00fast 1911. Hann h\u00e9lt \u00fear erindi sem hann nefnir Fair Play. Hann lag\u00f0i \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 \u00ed Val v\u00e6ri knattspyrnan \u00ed \u00f6\u00f0ru s\u00e6ti. \u00cd fyrsta s\u00e6ti v\u00e6ri \u00e1vallt \u00fej\u00f3nustan vi\u00f0 Gu\u00f0. R\u00e6\u00f0una h\u00f3f hann \u00e1 tilv\u00edsun \u00ed Fyrra Korintubr\u00e9f P\u00e1ls postula:<\/p>\n<p>\u201eVaki\u00f0, standi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugir \u00ed tr\u00fanni, veri\u00f0 karlmannlegir, veri\u00f0 styrkir. Allt hj\u00e1 y\u00f0ur s\u00e9 \u00ed k\u00e6rleika gj\u00f6rt.\u201c (I. Kor 16.13-14)<\/p>\n<p>Og svo lag\u00f0i hann \u00e1herslu \u00e1 \u00feetta:<\/p>\n<p>\u201eValur er \u00e9g og \u00fe\u00fa og allir hinir.\u201c<\/p>\n<p>\u00deannig hugsar s\u00e1 sem m\u00f3ta\u00f0ur er af kristnum vi\u00f0horfum.<\/p>\n<p>\u00deeir br\u00e6\u00f0ur Siggi og \u00deorsteinn voru b\u00e1\u00f0ir Valsmenn.<\/p>\n<p>Siggi kvaddi jar\u00f0l\u00edfi\u00f0 sem sannur Valsma\u00f0ur, karlmannlegur, styrkur &#8211; og s\u00e1ttf\u00fas.<\/p>\n<p>Siggi m\u00e6tti m\u00e9r \u00e6t\u00ed\u00f0 eins og g\u00f3\u00f0 blanda af Distu og Halla, handtaki\u00f0 \u00fe\u00e9tt, brosi\u00f0 bl\u00edtt og augun sk\u00f6rp og spyrjandi. Vi\u00f0 umgengumst l\u00edti\u00f0 \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni, en hittumst af og til. Siggi var svo miki\u00f0 \u00e1 fer\u00f0 og flugi a\u00f0 hann missti af m\u00f6rgu h\u00e9r heima m.a. endurfundum MR-inga og fleiru. En \u00feegar \u00e9g f\u00f3r til hans \u00e1 Landssp\u00edtalann fyrir nokkrum vikum&nbsp;\u00fe\u00e1 heilsa\u00f0i hann m\u00e9r kl\u00f6kkur af gle\u00f0i og innileika.<\/p>\n<p>\u00c6\u00f0ruleysi, hugrekki, \u00feakkl\u00e6ti og reisn. \u00c9g h\u00f3f minningaror\u00f0in me\u00f0 \u00feessum fj\u00f3rum or\u00f0um. Oft kem \u00e9g a\u00f0 r\u00fami sj\u00fakra og deyjandi og \u00fea\u00f0 er \u00e6\u00f0i misj\u00f6fn upplifun. Siggi m\u00e6tti \u00f6rl\u00f6gum s\u00ednum af f\u00e1d\u00e6ma kjarki og reisn. Hann haf\u00f0i barist \u00ed nokkur \u00e1r vi\u00f0 v\u00e1gest sem n\u00e1\u00f0i a\u00f0 lokum yfirh\u00f6ndinni. En \u00feegar hann vissi a\u00f0 ekki yr\u00f0i aftur sn\u00fai\u00f0 \u00fe\u00e1 horf\u00f0ist hann \u00ed augu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 reisn sem hann h\u00e9lt til hinstu stundar. Hann haf\u00f0i mynda\u00f0 traust tengsl vi\u00f0 menn \u00ed \u00de\u00fdskalandi og \u00e1 Sp\u00e1ni vegna vi\u00f0skipta sinna. \u00deeir ur\u00f0u n\u00e1nir vinir Sigga \u00fev\u00ed \u00feeir skynju\u00f0u \u00ed honum heilindi og hei\u00f0arleika. \u00deeir l\u00f6g\u00f0u lei\u00f0 s\u00edna hinga\u00f0 nor\u00f0ur bara til a\u00f0 kve\u00f0ja hann. Vinir og \u00e6ttingjar komu til Sigga og hann gladdist mj\u00f6g a\u00f0 f\u00e1 \u00e6skuvin sinn, \u00d6gmund, \u00ed heims\u00f3kn. \u00cd Or\u00f0skvi\u00f0um Sal\u00f3mons segir: \u201eVinur l\u00e6tur aldrei af vin\u00e1ttu sinni, \u00ed andstreymi reynist hann sem br\u00f3\u00f0ir. (Ok 17.17)<\/p>\n<p>Sp\u00e6nsku vinirnir eru komnir hinga\u00f0 aftur til a\u00f0 fylgja Sigga til grafar, \u00feeir Manolo Rocha og Alex Lleonard.<\/p>\n<p>[Innskot \u00e1 sp\u00e6nsku &#8211; er \u00e1 hl\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni]<\/p>\n<p>Antonio sem var Sigga sem f\u00f3stbr\u00f3\u00f0ir l\u00e9st \u00far kabba \u00e1ri\u00f0 2007. \u00deeir kenndu hvor \u00f6\u00f0rum tungum\u00e1l en Sigg var sleipur \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i. Hann kenndi Antonio ensku og f\u00e9kk sp\u00e6nskuna \u00ed v\u00f6ruskiptum. Lat\u00ednugrunnurinn var g\u00f3\u00f0ur og Siggi var flj\u00f3tur a\u00f0 n\u00e1 \u00feessu r\u00f3manska m\u00e1li.<\/p>\n<p>Siggi rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 upp a\u00f0 s\u00f6lumennskan var me\u00f0 allt \u00f6\u00f0rum bl\u00e6 h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr \u00feegar engir fars\u00edmar voru til &#8211; og \u00feegar \u00feeir komu fyrst til s\u00f6gunnar voru \u00feeir \u00e1 st\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 har\u00f0ar og k\u00f6nt\u00f3ttar skjalat\u00f6skur. Siggi rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 l\u00edka upp a\u00f0 \u00feegar menn \u00ed S\u00cdF, sem var st\u00f3rveldi \u00ed \u00fatflutningi, \u00feurftu a\u00f0 hugsa sig um \u00ed marga m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 kaupa faxv\u00e9l enda kosta\u00f0i v\u00e9lin \u00e1 vi\u00f0 n\u00fdjan b\u00edl. N\u00fa eru \u00edgildi \u00feessara t\u00e6kja og heilu t\u00f6lvuherbergja fort\u00ed\u00f0arinnar \u00ed einum litlum fars\u00edma \u00ed vasa jafnt barna og unglinga sem saltfiskspek\u00falanta.<\/p>\n<p>Siggi var hei\u00f0arlegur ma\u00f0ur me\u00f0 sterka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd eins og hann haf\u00f0i r\u00e6tur til. Hann var duglegur og har\u00f0ur af s\u00e9r og var jafnan allur \u00ed \u00fev\u00ed sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur. Vinnan var honum mikilv\u00e6g og stundum t\u00f3k h\u00fan full mikinn t\u00edma. Hann var l\u00f6ngum fjarverandi en J\u00f3na og hann voru \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed sambandi og h\u00fan kunni meira a\u00f0 segja runur af s\u00edman\u00farerum h\u00f3tela \u00ed Evr\u00f3pu utanb\u00f3kar svo a\u00f0 b\u00f6rnin g\u00e6tu hringt \u00ed pabba \u00e1\u00f0ur en \u00feau f\u00f3ru \u00ed sk\u00f3lann a\u00f0 morgni og h\u00fan r\u00e6tt vi\u00f0 hann um daglegt l\u00edf. J\u00f3na s\u00e1 um allt heima og oft var h\u00fan b\u00faina a\u00f0 breyta heimilinu \u00e1 me\u00f0an Siggi var ytra, haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 brj\u00f3ta ni\u00f0ur veggi og setja upp n\u00fdtt eldh\u00fas svo d\u00e6mi s\u00e9u nefnd. En \u00feegar Siggi kom heim \u00fe\u00e1 var bor\u00f0a\u00f0 af sparistellinu \u00ed stofunni og fagna\u00f0 yfir samfundum og \u00e1str\u00edki fj\u00f6lskyldunnar.<\/p>\n<p>Siggi var ekki gallalaus ma\u00f0ur frekar en vi\u00f0 en hann haf\u00f0i marga g\u00f3\u00f0a kosti. Hann var mikill fj\u00f6lskylduma\u00f0ur og elska\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 sitt. B\u00f6rnin kunna a\u00f0 meta \u00fe\u00e1 visku sem hann lauk upp fyrir \u00feeim. Hann br\u00fdndi fyrir \u00feeim a\u00f0 standa \u00e1 eigin f\u00f3tum og sko\u00f0a heiminn af traustum sj\u00f3narh\u00f3li. Hann hvatti \u00feau til a\u00f0 kynnast l\u00edfinu \u00ed landi, kj\u00f6rum f\u00f3lks og a\u00f0st\u00e6\u00f0um me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna almenn st\u00f6rf og mennta sig. Samband Sigga og J\u00f3nu var sterkt og heilt. \u00deau studdu hvort anna\u00f0 \u00ed gegnum s\u00fart og s\u00e6tt. Afastelpurnar voru honum mj\u00f6g d\u00fdrm\u00e6tar og k\u00e6rar og leitun a\u00f0 stoltari afa. Hann hef\u00f0i svo sannarlega vilja\u00f0 hafa meira \u00ferek s\u00ed\u00f0ustu misserin og f\u00e1 lengri t\u00edma me\u00f0 \u00feeim &#8211; en eigi m\u00e1 sk\u00f6pum renna<\/p>\n<p>Siggi gekk alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 s\u00e9r til heislub\u00f3tar og l\u00edfsfyllingar. Hann var vel \u00e1 sig kominn og bj\u00f3 a\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttai\u00f0kun yngri \u00e1ra og svo var hann farinn a\u00f0 leika golf sem er kristilegasta \u00ed\u00fer\u00f3tt sem \u00e9g \u00feekki enda s\u00fa eina sem er me\u00f0 s\u00e9rstakt kerfi til a\u00f0 fyrirgefa klaufaskap og geigun. Kerfi\u00f0 er bara \u00f3vart rangnefnt forgj\u00f6f \u00e1 \u00edslensku en \u00e6tti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 heita fyrirgefning. Og \u00fev\u00ed spyr \u00e9g \u00feig sem ert kylfingur: Hva\u00f0 ert \u00fe\u00fa me\u00f0 \u00ed fyrirgefningu? Og svo er st\u00f3ra spurningin til okkar allra: Hva\u00f0 f\u00e1um vi\u00f0 miki\u00f0 \u00ed fyrirgefningu \u00e1 l\u00edfsvellinum?<\/p>\n<p>Siggi var r\u00e6ktunarma\u00f0ur og sl\u00f3 hvergi af s\u00e9r \u00ed \u00feeim efnum. \u00deau eignu\u00f0ust land \u00ed Eil\u00edfsdal \u00ed Kj\u00f3s me\u00f0 foreldrum J\u00f3nu og \u00fear breyttu \u00feau \u00f6rfokamel \u00ed gr\u00f3\u00f0urvin. Seinna t\u00f3ku \u00feau Siggi og J\u00f3na skika \u00ed f\u00f3stur \u00ed landi Hests og \u00fear b\u00e6rast n\u00fa laufin \u00ed sumars\u00f3linni. \u00deri\u00f0ji b\u00fasta\u00f0urinn er svo \u00e1 Fl\u00fa\u00f0um \u00ed landi Efra-Sels \u00fear sem t\u00fan breyttist \u00ed sk\u00f3g. Siggi var kominn \u00e1 \u00e6ttarsl\u00f3\u00f0ir \u00fev\u00ed langalangafi hans, \u00deorsteinn, var f\u00e6ddur \u00e1 Fl\u00fa\u00f0um og var Hreppama\u00f0ur \u00ed marga \u00e6ttli\u00f0i.<\/p>\n<p>Fyrr \u00ed ath\u00f6fninni var 1. Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmur lesinn. \u00dear er r\u00e6tt um fars\u00e6lan l\u00edfsferil, um a\u00f0 lifa \u00ed r\u00e9ttu samhengi. M\u00e9r finnst Siggi hafa gert&nbsp;\u00fea\u00f0. Vi\u00f0 \u00e1ttum saman einl\u00e6gt samtal um tr\u00fa og eil\u00edf\u00f0. \u00c9g r\u00e6ddi vi\u00f0 hann um hjarta\u00f0, ekki \u00fea\u00f0 sem d\u00e6lir bl\u00f3\u00f0inu, heldur hitt sem skilur \u00fea\u00f0 sem r\u00f6khugsunin r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0. Vi\u00f0 skiljum me\u00f0 hjartanu eins og sagt er. Hjarta\u00f0 getur skili\u00f0 eil\u00edf\u00f0 og \u00f3endanleika, m\u00f3tsagnir tr\u00faar og l\u00edfs, en mannsheilinn ekki, \u00fev\u00ed hann er takmarka\u00f0ur \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 talinn fl\u00f3knasta og flottasta fyrirbrig\u00f0i veraldar. Hjarta\u00f0, \u00feessi innri helgid\u00f3mur, sem \u00edslenskir menn \u00e1 12. \u00f6ld k\u00f6llu\u00f0u brj\u00f3stkirkjuna, er kjarni s\u00e9rhverrar manneskju. \u00dear getur andi Gu\u00f0s b\u00fai\u00f0, heilagur andi sem \u00fathellt var \u00e1 hv\u00edtasunnu. Til a\u00f0 lifa \u00ed r\u00e9ttu samhengi \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 messa \u00ed brj\u00f3stkirkjunni og \u00feegar vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 sem ma\u00f0urinn sem&nbsp;f\u00e6r \u00feessa ums\u00f6ng: \u201eHann er sem tr\u00e9 gr\u00f3\u00f0ursett hj\u00e1 lindum, \u00fea\u00f0 ber \u00e1v\u00f6xt sinn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma og bl\u00f6\u00f0 \u00feess visna ekki. Allt, sem hann gerir, l\u00e1nast honum.\u201c<\/p>\n<p>En \u00fe\u00e1 er spurningin \u00feessi. En er h\u00e6gt a\u00f0 segja \u00feetta um mann sem er fallinn fr\u00e1 66 \u00e1ra a\u00f0 aldri eftir erfi\u00f0a bar\u00e1ttu vi\u00f0 sk\u00e6\u00f0an sj\u00fakd\u00f3m? J\u00e1, vissulega. L\u00edfsl\u00e1ni\u00f0 er og ver\u00f0ur ekki \u00ed \u00e1rum tali\u00f0. L\u00edfsl\u00e1ni\u00f0 ver\u00f0ur l\u00edka til \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 samfer\u00f0af\u00f3lki\u00f0. \u00dea\u00f0 er m\u00e6lt me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti. G\u00e6\u00f0i l\u00edfsins skipta m\u00e1li og \u00farvinnslan s\u00f6mulei\u00f0is. Vi\u00f0 m\u00e6tum \u00f6ll m\u00f3tl\u00e6ti \u00ed l\u00edfinu, ver\u00f0um jafnvel fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 menn brega\u00f0st okkur illilega. Okkur m\u00e6tir stundum \u201eheimsins r\u00e1\u00f0 sem brugga vondir menn\u201c en st\u00f6ndum keik ef vi\u00f0 vinnum \u00far \u00e1f\u00f6llu me\u00f0 l\u00f6gm\u00e1lum brj\u00f3stkirkjunnar og fyrir m\u00e1tt upprisunnar sem er sem betur fer a\u00f0 verki v\u00ed\u00f0ar \u00ed l\u00edfinu en margur heldur.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g r\u00e6ddi vi\u00f0 Sigga um \u00fatf\u00f6rina og haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur \u00e1tt me\u00f0 honum d\u00fdrm\u00e6ta b\u00e6nastund \u00fe\u00e1 dr\u00f3 hann upp nokkra punkta um s\u00e1lma og t\u00f3nlist og svo \u00feetta vers \u00far S\u00edraksb\u00f3k: \u201eS\u00e1 sem \u00f3ttast Drottin vandar val vina, hann heldur s\u00e9r a\u00f0 sl\u00edkum sem honum sj\u00e1lfum l\u00edkjast. (S\u00edr 6.17)<\/p>\n<p>\u00deetta fannst honum g\u00f3\u00f0ur texti. Speki aldanna er mikil og dj\u00fap og t\u00edzkustraumar samt\u00edmans ekki \u00fe\u00e6r t\u00f6fralausnir sem margur heldur. Kristinn tr\u00faararfur og kristin gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i er a\u00f0 \u00e9g tel st\u00e6rsta elfur hugmyndafr\u00e6\u00f0i um mann og heim sem \u00feessi ver\u00f6ld \u00e1. Engin \u00f6nnur l\u00edfssko\u00f0un \u00ed heiminum \u00e1 s\u00e9r anna\u00f0 eins bakland \u00ed p\u00e6lingum heimspekinga, gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inga og annarra fr\u00e6\u00f0imanna a\u00f0 \u00f3gleymdum sk\u00e1ldum, \u00ed fr\u00e6\u00f0itextum, sk\u00e1ldskap, lj\u00f3\u00f0um, leikritum, t\u00f3nlist og s\u00f6ng. Vi\u00f0 \u00f6\u00f0lumst aldrei skilning \u00e1 menningararfi Vesturlanda nema me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 setja okkur inn \u00ed hinn kristna arf.<\/p>\n<p>Siggi var me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 hreinu sem hann nam mi\u00f0 m\u00f3\u00f0urkn\u00e9. Hann vissi a\u00f0 hverju stefndi og m\u00e6tti \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1d\u00e6ma \u00e6\u00f0ruleysi, hugrekki, \u00feakkl\u00e6ti og reisn. Hann var \u00e6\u00f0rulaus sem merkir a\u00f0 vera \u00f3ttalaus. Hjarta hans vissi a\u00f0 samhengi\u00f0 er st\u00e6rra en \u00fea\u00f0 sem blasir vi\u00f0 veraldarhyggjunni. Hann var hugrakkur og \u00feor\u00f0i a\u00f0 r\u00e6\u00f0a dau\u00f0ann sem allt of margir afneita til hinstu stundar. Hann var \u00feakkl\u00e1tur fyrir l\u00edfi\u00f0, fyrir konuna og b\u00f6rnin, tengdab\u00f6rnin, barnab\u00f6rnin, foreldra og systkini, fj\u00f6lskyldur \u00feeirra og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u00feakkl\u00e1tur fyrir vin\u00e1ttuna \u00fear sem h\u00fan birtist honum f\u00f6lskvalsus, s\u00f6nn og t\u00e6r. Hann d\u00f3 me\u00f0 reisn eftir a\u00f0 hafa r\u00e6tt vi\u00f0 samfer\u00f0af\u00f3lk sitt, gert upp \u00fea\u00f0 sem \u00feurfti a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og kvaddi s\u00e1ttur og laus vi\u00f0 biturleika \u00ed gar\u00f0 nokkurs manns, b\u00fainn a\u00f0 fyrirgefa \u00feeim sem ger\u00f0u \u00e1 hluta hans og me\u00f0 \u00f3skir \u00feeim til handa um fars\u00e6ld og fri\u00f0.<\/p>\n<p>Er h\u00e6gt a\u00f0 deyja me\u00f0 fegurri h\u00e6tti? Er h\u00e6gt a\u00f0 deyja \u00e1 merkingarb\u00e6ran h\u00e1tt \u00ed \u00f6\u00f0ru samhengi en \u00feessu?<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g kom a\u00f0 d\u00e1narbe\u00f0i hans \u00fe\u00f3tti m\u00e9r vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 raula \u00feennan s\u00e1lm yfir honum l\u00e1tnum:<\/p>\n<p>Herra, mig heiman b\u00fa<br \/>\n\u00ed hendur \u00fe\u00ednar,<br \/>\nlei\u00f0 mig \u00ed l\u00edfsins tr\u00fa<br \/>\num l\u00edfst\u00ed\u00f0 m\u00edna.<\/p>\n<p>Allt hva\u00f0 minn g\u00f3\u00f0i Gu\u00f0<br \/>\ngaf m\u00e9r \u00ed heimi<br \/>\neinn taki aftur vi\u00f0<br \/>\nannist og geymi.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 mig ekki h\u00e9r<br \/>\n\u00ed ver\u00f6ldinni,<br \/>\nDrottinn, \u00e9g eign \u00fe\u00edn er<br \/>\naf miskunn \u00feinni.<\/p>\n<p>H\u00f6fu\u00f0 mitt seka s\u00e9<br \/>\nsem kj\u00f6ltu m\u00f3\u00f0ur<br \/>\nlagt \u00ed \u00feitt l\u00edknarkn\u00e9,<br \/>\nlausnarinn g\u00f3\u00f0ur. (HP, S\u00e1lmab\u00f3k 429)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Sigur\u00f0ar Haraldssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ritningarlestrar:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>S\u00e1lmarnir 1:1-6<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fyrsta b\u00f3k<\/strong><br \/>\n1S\u00e6ll er s\u00e1 sem eigi fer a\u00f0 r\u00e1\u00f0um \u00f3gu\u00f0legra,<br \/>\neigi gengur g\u00f6tur syndara<br \/>\nog eigi situr me\u00f0al h\u00e1\u00f0gjarnra<br \/>\n2heldur hefur yndi af lei\u00f0s\u00f6gn Drottins<br \/>\nog huglei\u00f0ir l\u00f6gm\u00e1l hans dag og n\u00f3tt.<br \/>\n3Hann er sem tr\u00e9 gr\u00f3\u00f0ursett hj\u00e1 lindum,<br \/>\n\u00fea\u00f0 ber \u00e1v\u00f6xt sinn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma<br \/>\nog bl\u00f6\u00f0 \u00feess visna ekki.<br \/>\nAllt, sem hann gerir, l\u00e1nast honum.<br \/>\n4\u00d3gu\u00f0legum farnast \u00e1 annan veg,<br \/>\n\u00feeir hrekjast sem hismi \u00ed stormi.<br \/>\n5\u00dev\u00ed hvorki standast \u00f3gu\u00f0legir fyrir d\u00f3mi<br \/>\nn\u00e9 syndarar \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i r\u00e9ttl\u00e1tra.<br \/>\n6Drottinn vakir yfir vegi r\u00e9ttl\u00e1tra<br \/>\nen vegur \u00f3gu\u00f0legra endar \u00ed vegleysu.<\/p>\n<p><strong>Matteusargu\u00f0spjall 5:1-10 og 13-16<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fjallr\u00e6\u00f0an<\/strong><br \/>\n1\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans. 2\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n3\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n4S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n5S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n6S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n7S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n8S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n9S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n10S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n[. . . ]<\/p>\n<p>Salt og lj\u00f3s<br \/>\n13\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n14\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu. 16\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/p>\n<p><span style=\"line-height:1.5;\">&nbsp;<\/span><span style=\"line-height:1.5;\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/sc3a1lmaskrc3a1-sigurc3b0ur-haraldsson-3-brot-copy.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Sigur\u00f0ur Haraldsson 3 brot copy<\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Sigur\u00f0ur Haraldsson vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur og saltfisk\u00fatflytjandi Sk\u00f3garseli 41, R 1948-2014 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1343","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1343","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1343"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1343\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1343"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1343"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1343"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}