{"id":1333,"date":"2014-06-06T12:14:39","date_gmt":"2014-06-06T12:14:39","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1333"},"modified":"2014-06-06T12:14:39","modified_gmt":"2014-06-06T12:14:39","slug":"hrefna-gudmundsdottir-1928-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1333","title":{"rendered":"+Hrefna Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir 1928-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/hrefna.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/hrefna.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1334\" alt=\"Hrefna\" width=\"244\" height=\"282\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Hrefna Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1928-2014<\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir<\/p>\n<p>Frostasj\u00f3li 13<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 6. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 11<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1333-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/hrefna.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/hrefna.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/hrefna.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>N\u00e1\u00f0<\/strong> . . .<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okku \u00f6llum \u00ed senn t\u00e6kif\u00e6ri og \u00f3gnanir.<\/p>\n<p>Saga li\u00f0innar aldar geymir marga vi\u00f0bur\u00f0i \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi \u00cdslendinga. \u00d6ldin var vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edk. Vi\u00f0 fengum heimastj\u00f3rn og fullveldi, l\u00fd\u00f0veldi\u00f0 var stofna\u00f0 og sigrar voru unnir vi\u00f0 st\u00e6kkun landhelginnar. H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands var stofna\u00f0ur og R\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0. Fleira m\u00e6tti telja af sigrum. En \u00fea\u00f0 voru l\u00edka a\u00f0rir hlutir sem settu svip sinn \u00e1 \u00f6ldina. Frostaveturinn mikli 1918 og sp\u00e6nska veikin sama \u00e1ri\u00f0 eru atbur\u00f0ir meitla\u00f0ir \u00ed s\u00f6gu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Heimsstyrjaldirnar tv\u00e6r h\u00f6f\u00f0u s\u00edn \u00e1hrif og s\u00fa s\u00ed\u00f0ari beytti \u00cdslandi f\u00e9lagslega og efnagahagslega fyrir utan \u00fea\u00f0 a\u00f0 taka m\u00f6rg mannsl\u00edf \u00far h\u00f3pi landsmanna. Kreppan haf\u00f0i \u00e1hrif h\u00e9r \u00e1 4. \u00e1ratugi aldarinnar og \u00fdmsir sj\u00fakd\u00f3mar herju\u00f0u \u00e1 f\u00f3lk og oft var f\u00e1tt til r\u00e1\u00f0a \u00e1\u00f0ur en lyf ur\u00f0u til sem dregi\u00f0 g\u00e1tu verulega \u00far dau\u00f0sf\u00f6llum. \u00c9g nefni berklana s\u00e9rstaklega sem l\u00f6g\u00f0u marga a\u00f0 velli fyrir og eftir mi\u00f0ja \u00f6ldina.<\/p>\n<p>Ung kona \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins er l\u00f6g\u00f0 inn \u00e1 berklah\u00e6li\u00f0 \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um. H\u00fan er \u00fear me\u00f0 m\u00f6rgum sj\u00faklingum. \u00dear er allt reynt til \u00feess a\u00f0 l\u00e6kna f\u00f3lk, \u00fativera, g\u00f6ngufer\u00f0ir, uppskur\u00f0ir, lyf. Me\u00f0an dagarnir l\u00ed\u00f0a gera sj\u00faklingar s\u00e9r \u00fdmislegt til d\u00e6gradvalar, spila \u00e1 spil, sp\u00e1 \u00ed spil, lesa b\u00e6kur, r\u00e6\u00f0a saman. Og \u00feeir hugsa flestir: Mun \u00e9g lifa \u00feetta af? Af 16 st\u00falkum sem l\u00e1gu inni um t\u00edma d\u00f3u 12 en 4 lif\u00f0u. Hrefna lif\u00f0i. H\u00fan var 2 \u00e1r \u00e1 V\u00edfisst\u00f6\u00f0um um tv\u00edtugt og f\u00f3r \u00feanga\u00f0 aldrei aftur til dvalar en var\u00f0 \u00fe\u00f3 aldrei almennilega heilsuhraust.<\/p>\n<p>Hrefna f\u00e6ddist \u00e1 Akranesi 3. jan\u00faar 1928. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum \u00ed Fossvogi 30. ma\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn. Foreldrar hennar voru \u00de\u00f3rhildur Steinunn Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, f. 3. \u00e1g\u00fast 1898, d. 17. okt\u00f3ber 1966 og Gu\u00f0mundur \u00de\u00f3rarinsson, f. 11. ma\u00ed 1893, d. 28. september 1986, b\u00e6\u00f0i Sn\u00e6fellingar.<\/p>\n<p>Systkini Hrefnu voru Lyd\u00eda, f. 17. okt\u00f3ber 1920, d. 23 ma\u00ed 1993, Jens\u00edna \u00de\u00f3ra, f. 9. n\u00f3vember 1925, d. 20 ma\u00ed 2007, Kristj\u00e1n f. 7. \u00e1g\u00fast 1929, d. 29. j\u00fal\u00ed 2005. \u00d6ll l\u00e1tin.<\/p>\n<p>H\u00fan \u00f3lst upp \u00e1 Akranesi fyrsta \u00e1ratug \u00e6vi sinnar og minntist \u00e1ranna \u00fear \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 gle\u00f0i. Langisandur var heillandi leikv\u00f6llur \u00fear sem sj\u00f3rinn var og er s\u00edkvikur \u00ed leik s\u00ednum vi\u00f0 landi\u00f0.<\/p>\n<p>Ung f\u00f3r h\u00fan Austur \u00e1 land til a\u00f0 vinna \u00ed eldh\u00fasi vegavinnuflokks en ma\u00f0ur m\u00f3\u00f0ursystur hennar var \u00fear verkstj\u00f3ri. \u00dear voru ungir menn \u00ed vinnu og unnu flestir me\u00f0 h\u00f6ndum s\u00ednum. V\u00e9lar voru ekki eins algengar \u00fe\u00e1 eins og n\u00fa en \u00fe\u00f3 var \u00fear eitt t\u00e6ki sem gagna\u00f0ist vel vi\u00f0 vegalagningu og \u00fea\u00f0 var veghefillinn. Honum st\u00fdr\u00f0i \u00d3lafur Einarsson, kalla\u00f0ur \u00d3li hefill. Og \u00e1stin, \u00feetta undarlega fyrirbrig\u00f0i, kvikna\u00f0i milli \u00feeirra Hrefnu og hans. \u00deau gengu \u00ed hj\u00f3naband 28. n\u00f3vember 1953 h\u00e9r \u00ed Vesturb\u00e6num, voru gefin saman af s\u00e9ra J\u00f3ni Thorarensen \u00ed stofunni \u00e1 prestssetrinu \u00e1 \u00c6gis\u00ed\u00f0u.<\/p>\n<p>\u00d3lafur Einarson er f. 7. okt\u00f3ber 1927. Hann f\u00e6ddist \u00ed Birgi \u00ed Kelduhverfi en alinn upp austur \u00ed J\u00f6kuldal. \u00c6ttir hans koma \u00far \u00deingeyjars\u00fdslum. Foreldrar hans voru Einar Bj\u00f6rn Dav\u00ed\u00f0sson f. 25. ma\u00ed 1892, d. 11. febr\u00faar 1968 og Sigr\u00ed\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir f.22. september 1898, d. 20. okt\u00f3ber 1987.<\/p>\n<p>\u00deau eignu\u00f0ust tv\u00e6r d\u00e6tur sem eru:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol>\n<li>Sigr\u00ed\u00f0ur f. 22. apr\u00edl 1955, gift Jens Sigur\u00f0ssyni f. 2. mars 1954. D\u00e6tur \u00feeirra eru: a) H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur f. 13 okt\u00f3ber 1978, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er \u00d3li Halld\u00f3r Konr\u00e1\u00f0sson, \u00feau eiga tvo syni, Viktor K\u00e1ra og Atla Hrafn. Fyrir \u00e1 \u00d3li d\u00f3tturina Helgu Bj\u00f6rgu. b) Hrefna f. 13. okt\u00f3ber 1978 og c) Sigr\u00fan f. 10. j\u00fan\u00ed 1984, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er G\u00edsli Vi\u00f0ar Oddsson.<\/li>\n<li>\u00de\u00f3rhildur f. 27. september 1958, gift \u00deorsteini M. Gunnsteinssyni f. 20. \u00e1g\u00fast 1960. D\u00e6tur \u00feeirra eru: a) Hildur Hr\u00f6nn f. 4. j\u00fan\u00ed 1983, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Bragi M\u00e1r Ottesen Valbj\u00f6rnsson, f. 19. j\u00fan\u00ed 1986, \u00feau eiga tv\u00f6 b\u00f6rn, \u00d3laf Hrafn og Steinunni Erlu. b) Brynd\u00eds f. 29. desember 1987, sonur hennar er Haukur Arnar.<\/li>\n<\/ol>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Hrefna vann \u00fdmis st\u00f6rf \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum. H\u00fan vann vi\u00f0 b\u00f3kband og einnig \u00e1 gullsm\u00ed\u00f0averkst\u00e6\u00f0i og langa\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 a\u00f0 l\u00e6ra \u00fe\u00e1 i\u00f0n.<\/p>\n<p>\u00deau fluttu \u00ed Vesturb\u00e6inn 1965 eftir a\u00f0 hafa fest kaup \u00e1 fokheldri \u00edb\u00fa\u00f0 a\u00f0 Frostaskj\u00f3li 13. \u00dear luku \u00feau vi\u00f0 framkv\u00e6mdir og hafa b\u00fai\u00f0 \u00ed s\u00ednu reisulega og snyrtilega h\u00fasi \u00e1samt g\u00f3\u00f0um samb\u00fdlingum. \u00d3lafur kenndi \u00ed Melask\u00f3la \u00ed 43 \u00e1r og \u00feeim lei\u00f0 vel \u00ed Vesturb\u00e6num. Hann kenndi einnig \u00e1 b\u00edl og svo var hann \u00ed l\u00f6greglunni \u00e1 sumrin. Hrefna vann heima og hugsa\u00f0i vel um \u00d3la og d\u00e6turnar, elda\u00f0i g\u00f3\u00f0an mat, baka\u00f0i af sinni alkunnu snilld. Henni var jafnan \u00ed mun a\u00f0 f\u00f3lk bor\u00f0a\u00f0i vel. H\u00fan sauma\u00f0i allar fl\u00edkur \u00e1 stelpurnar og vann margt fagurt \u00ed h\u00f6ndunum. Ef saumurinn heppna\u00f0ist ekki fullkomlega \u00ed fyrstu tilraun var hann rakinn upp \u00fear til h\u00fan var\u00f0 \u00e1n\u00e6g\u00f0.<\/p>\n<p>F\u00e9lags- og \u00ed\u00fer\u00f3ttal\u00edf var bl\u00f3mlegt \u00e1 Akranesi \u00e1 \u00e6sku\u00e1rum Hrefnu og sigrar \u00cdA \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld voru margir og st\u00f3rir. H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 mikil \u00cdA manneskja enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi lengst af b\u00fai\u00f0 n\u00e1nast \u00e1 sj\u00e1lfum KR-vellinum, h\u00f6fu\u00f0v\u00edgi helstu andst\u00e6\u00f0inga Skagamanna, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<p>Hrefna var leitandi manneskja og n\u00e1msf\u00fas. H\u00fan las alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0, s\u00f3tti n\u00e1mskei\u00f0 af \u00fdmsu tagi og \u00fer\u00e1\u00f0i st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 mennta sig. H\u00fan var g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6dd og m\u00e6t manneskja. H\u00fan lag\u00f0i miki\u00f0 upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6turnar og barnarb\u00f6rnin menntu\u00f0u sig og lykju \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta st\u00fadentspr\u00f3fi.<\/p>\n<p>H\u00fan fylgdist alla t\u00ed\u00f0 vel me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki, h\u00e9lt g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0 systkin s\u00edn og fr\u00e6ndf\u00f3lk. H\u00fan haf\u00f0i yndi af t\u00f3nlist, b\u00e6\u00f0i klass\u00edskri og d\u00e6gurt\u00f3nlist. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00e1 p\u00edan\u00f3 \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og l\u00e9k s\u00e9r til yndisauka. H\u00fan var mikill unnandi Evr\u00f3vision keppninnar og fylgdist grannt me\u00f0 henni \u00e1 hverju \u00e1ri. H\u00fan hafi mikinn \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum. Fyrr var minnst \u00e1 trygg\u00f0 hennar vi\u00f0 Skagamenn \u00ed \u00feeim efnum. H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 margskonar leiki \u00ed sj\u00f3nvarpi og svo \u00f3l\u00edka sem f\u00f3tbolta og frj\u00e1lsar, golf og sn\u00f3ker.<\/p>\n<p>\u00deau fer\u00f0u\u00f0ust miki\u00f0 \u00e1 sumrin, f\u00f3ru um landi\u00f0 og tj\u00f6ldu\u00f0u h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr. Eitt sumari\u00f0 f\u00f3ru \u00feau \u00d3lafur tv\u00f6 saman \u00ed eftirminnilega fer\u00f0 og komu v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 fyrir vestan og nor\u00f0an. \u00deau f\u00f3ru gjarnan \u00ed b\u00edlt\u00far um helgar og oft l\u00e1 lei\u00f0in um \u00deingvelli, Hverager\u00f0i og svo f\u00f3ru \u00feau oft um Eyjafj\u00f6r\u00f0 eftir a\u00f0 \u00f6nnur d\u00f3ttirin settist a\u00f0 \u00e1 Akureyri. Stelpurnar rifja \u00fea\u00f0 upp a\u00f0 alltaf var nesti me\u00f0 \u00ed f\u00f6r sem mamma \u00fatbj\u00f3 og ekki lifa\u00f0 \u00e1 sjoppuf\u00e6\u00f0i \u00e1 fer\u00f0um um landi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deau f\u00f3ru margar fer\u00f0ir til \u00fatlanda og oft \u00ed s\u00f3lina \u00e1 Sp\u00e1ni, \u00cdtal\u00edu og Kanar\u00ed. Hrefna f\u00f3r \u00ed margar b\u00fa\u00f0ir \u00e1 fer\u00f0um s\u00ednum til a\u00f0 sko\u00f0a eitthva\u00f0 fallegt handa d\u00e6trunum og barnab\u00f6rnunum. \u00de\u00e1 f\u00f3r h\u00fan eftirminnilega og skemmtilega fer\u00f0 til Amer\u00edku me\u00f0 Jennu systur til a\u00f0 vera vi\u00f0 br\u00fa\u00f0kaup \u00ed fj\u00f6lskyldunni.<\/p>\n<p>Hrefna las miki\u00f0 alla t\u00ed\u00f0 og haf\u00f0i yndi af b\u00f3kum. H\u00fan var f\u00f6st fyrir og \u00e1kve\u00f0in \u00ed sko\u00f0unum.<\/p>\n<p>H\u00fan lif\u00f0i fyrir eiginmann sinn, d\u00e6tur, tengdasyni og barnab\u00f6rn og var vakin og sofin yfir velfer\u00f0 \u00feeirra. H\u00fan haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 vinum d\u00e6tranna og fylgdist alla t\u00ed\u00f0 vel me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<p>Hrefna stytti s\u00e9r oft stundir vi\u00f0 spil og a\u00f0 leggja kapal og svo skemmti h\u00fan s\u00e9r og stelpunu og fleirum vi\u00f0 a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed spil og bolla. \u00dea\u00f0 var leikur sem kalla\u00f0i oft fram hl\u00e1tur og undrun. Ef hjartagosinn birtist ekki \u00ed spilunum \u00fe\u00e1 var bara stokka\u00f0 upp og \u00feau l\u00f6g\u00f0 aftur \u00feanga\u00f0i til hjartagosinn birtist!<\/p>\n<p>H\u00fan lag\u00f0i stelpunum l\u00edfsreglurnar me\u00f0 s\u00ednum h\u00f3gv\u00e6ra h\u00e6tti, kenndi \u00feeim b\u00e6nir og vers og lag\u00f0i upp \u00far vi\u00f0 \u00fe\u00e6r a\u00f0 vera kurteisar og a\u00f0 mennta sig. \u00cd henni bj\u00f3 r\u00edk r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og hjarta hennar sl\u00f3 me\u00f0 \u00feeim sem minna mega s\u00edn. H\u00fan fylgdi a\u00f0 m\u00e1lum \u00feeim sem vilja j\u00f6fnu\u00f0 og r\u00e9ttl\u00e6ti, fri\u00f0 og miskunn.<\/p>\n<p>Hrefnu er minnst me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti af m\u00f6rgu f\u00f3lki og hinga\u00f0 hafa borist s\u00e9rstakar kve\u00f0jur fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum \u00e6ttingjum og vinum:<\/p>\n<p>fr\u00e1 b\u00f6rnu Jens\u00ednu \u00de\u00f3ru \u00ed Bandar\u00edkjunum;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Ingu Ellertsd\u00f3ttur sem er \u00ed \u00fatl\u00f6ndum me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti fyrir vin\u00e1ttu s.l. 30 \u00e1r og<\/p>\n<p>fr\u00e1 \u00de\u00f3runni Benn\u00fd Finnbogad\u00f3ttur \u00ed Bolungav\u00edk, en \u00fe\u00e6r kynntust \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um og hafa haldi\u00f0 vinskap alla t\u00ed\u00f0, me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti fyrir allt.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okku \u00f6llum \u00ed senn t\u00e6kif\u00e6ri og \u00f3gnanir. Berklarnir settu mark sitt \u00e1 Hrefnu um mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. H\u00fan lif\u00f0i af \u00fe\u00e1 \u00f3gn en fleiri hindranir ur\u00f0u \u00e1 vegi hennar. H\u00fan f\u00e9kk krabbamen \u00ed tv\u00edgang en reis \u00e1vallt upp \u00far veikindum s\u00ednum. Me\u00f0 veikindunum var fylgifiskur \u00ed formi kv\u00ed\u00f0a sem stundum n\u00e1\u00f0i sterkum t\u00f6kum \u00e1 henni. En \u00feannig er \u00fea\u00f0 n\u00fa me\u00f0 okkur flest a\u00f0 vi\u00f0 r\u00edsum upp vegna \u00feess a\u00f0 upprisan er a\u00f0 verki \u00ed l\u00edfi allra manna \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt. \u00cd dag sk\u00edn s\u00f3lin og logni\u00f0 fyrr \u00ed dag var yndislegt. \u00deetta er \u00e1n efa einn bestu dagur \u00e1rsins hinga\u00f0 til h\u00e9r \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu og \u00fea\u00f0 l\u00e9ttir okkur a\u00f0 kve\u00f0ja \u00feegar fegur\u00f0in umvefur okkur.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okku \u00f6llum \u00ed senn t\u00e6kif\u00e6ri og \u00f3gnanir. St\u00e6rsta \u00f3gnin er dau\u00f0inn sj\u00e1lfur. Kristin tr\u00fa l\u00e6tur dau\u00f0ann ekki eiga s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0. Sigurhlj\u00f3mur fagna\u00f0arerindisins berst okkur \u00ed bo\u00f0skap Krists sem sigra\u00f0i dau\u00f0ann og hel. F\u00e1ir hafa or\u00f0a\u00f0 \u00fea\u00f0 betur en s\u00e9ra Hallgr\u00edmur:<\/p>\n<p>\u00c9g veit, minn lj\u00fafur lifir<br \/>\nlausnarinn himnum \u00e1,<br \/>\nhann r\u00e6\u00f0ur \u00f6llu yfir,<br \/>\neinn heitir Jes\u00fas s\u00e1,<br \/>\nsigrarinn dau\u00f0ans sanni<br \/>\nsj\u00e1lfur \u00e1 krossi d\u00f3<br \/>\nog m\u00e9r svo aumum manni<br \/>\neil\u00edft l\u00edf v\u00edst til bj\u00f3.<\/p>\n<p>Me\u00f0 s\u00ednum dau\u00f0a&#8217; hann deyddi<br \/>\ndau\u00f0ann og sigur vann,<br \/>\nmakt hans og afli eyddi,<br \/>\nekkert mig ska\u00f0a kann,<br \/>\n\u00fe\u00f3 leggist l\u00edk \u00ed j\u00f6r\u00f0u,<br \/>\nlifir m\u00edn s\u00e1la fr\u00ed,<br \/>\nh\u00fan m\u00e6tir aldrei h\u00f6r\u00f0u<br \/>\nhimneskri s\u00e6lu \u00ed.<\/p>\n<p>\u00deessi \u00f3bilandi tr\u00fa hefur gefi\u00f0 f\u00f3lki von \u00ed \u00f6llu ve\u00f0rabrig\u00f0um li\u00f0inna alda og vonandi ver\u00f0ur svo enn um \u00f3komna t\u00ed\u00f0. Og \u00e9g spyr: \u00c1 hva\u00f0 \u00e6tla \u00feau a\u00f0 vona sem vilja kasta hinum gamla arfi \u00e1 gl\u00e6? Hver bjargar fr\u00e1 \u00f3gnum tilverunnar, annar en hann sem gekk \u00e1 h\u00f3lm vi\u00f0 \u00fe\u00e6r og vann sigur?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er sterkt og s\u00fa sta\u00f0reynd birtist \u00ed l\u00edfi Hrefnu sem reis upp aftur og aftur \u00far veikindum og sigra\u00f0ist \u00e1 \u00f3gnum \u00feeim sem a\u00f0 henni ste\u00f0ju\u00f0u. N\u00fa b\u00ed\u00f0ur hennar a\u00f0 \u00feiggja sigurinn st\u00e6rsta.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum hana me\u00f0 vir\u00f0ingu og af dj\u00fapri \u00fe\u00f6kk. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Hrefnu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Erfi.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum.<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/salmaskra-hrefna-copy.pdf\">Salmaskra Hrefna copy<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Ritningarlestrar:<\/b><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8:31-39<\/b><\/p>\n<p><b>K\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00ed Kristi Jes\u00fa<\/b><\/p>\n<p>31Hva\u00f0 eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessu? Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur?&nbsp;32Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum?&nbsp;33Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar.&nbsp;34Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur.&nbsp;35Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists? Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0?36\u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<\/p>\n<p><i>\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn&nbsp;<\/i><\/p>\n<p><i>og vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.&nbsp;<\/i><\/p>\n<p>37Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur.&nbsp;38\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar,&nbsp;39h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Matteusargu\u00f0spjall 5:1-10 og 13-16<\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Fjallr\u00e6\u00f0an<br \/>\n1\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans. 2\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n3\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n4S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n5S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n6S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n7S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n8S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n9S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n10S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n[. . . ]<\/p>\n<p>Salt og lj\u00f3s<br \/>\n13\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n14\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu. 16\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Hrefna Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir 1928-2014 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir Frostasj\u00f3li 13 &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 6. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 11 Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1333","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1333","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1333"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1333\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1333"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1333"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1333"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}