{"id":1318,"date":"2014-06-04T14:16:07","date_gmt":"2014-06-04T14:16:07","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1318"},"modified":"2014-06-04T14:16:07","modified_gmt":"2014-06-04T14:16:07","slug":"margret-olafsdottir-1929-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1318","title":{"rendered":"+Margr\u00e9t \u00d3lafsd\u00f3ttir 1929-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/mynd-margrc3a9t.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/mynd-margrc3a9t.jpg?w=202\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1319\" width=\"202\" height=\"300\" alt=\"Mynd Margr\u00e9t\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Margr\u00e9t \u00d3lafsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir<\/p>\n<p>\u00c6gis\u00ed\u00f0u 78<\/p>\n<p>1929-2014<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 4. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1 og ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1318-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/margrc3a9t-c3b3lafsd.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/margrc3a9t-c3b3lafsd.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/06\/margrc3a9t-c3b3lafsd.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? var spurning sem brann \u00e1 fylgjendum Jes\u00fa eftir a\u00f0 hann var horfinn fr\u00e1 \u00feeim \u00e1 uppstigningardag. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u \u00e1tt me\u00f0 honum gle\u00f0idagana svonefndu allt fr\u00e1 p\u00e1skum. Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? Hann haf\u00f0i lofa\u00f0 a\u00f0 skilja \u00fe\u00e1 ekki eftir muna\u00f0arlausa og sag\u00f0ist mundu vitja \u00feeirra.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0 erum oft \u00ed \u00e1l\u00edka a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00fe\u00f3tt \u00f3l\u00edku s\u00e9 saman a\u00f0 jafna. Vi\u00f0 spyrjum: Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? Breytingar ver\u00f0a \u00ed l\u00edfi allra og vissulega er \u00fea\u00f0 mikil breyting og umskipti \u00feegar b\u00f6rn kve\u00f0ja m\u00f3\u00f0ur s\u00edna. \u00dei\u00f0 kv\u00f6ddu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur ykkar fyrir 4 \u00e1rum og n\u00fa er m\u00f3\u00f0ir ykkar farin af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi. S\u00e1 atbur\u00f0ur markar algj\u00f6r skil. Kynsl\u00f3\u00f0 \u00feeirra er farin og n\u00fa eru\u00f0 \u00fei\u00f0 n\u00e6st. J\u00e1, \u00fea\u00f0 er \u00f6grandi a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00f6ll munum vi\u00f0 deyja og h\u00e6gt og s\u00edgandi f\u00e6rumst vi\u00f0 n\u00e6r \u00fev\u00ed marki.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram. Dagarnir koma \u00e1fram n\u00fdir \u00far hendi Drottins og vi\u00f0 f\u00e1um a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feeirra enn um sinn. \u00deannig hefur \u00feetta veri\u00f0 um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. \u201eKynsl\u00f3\u00f0ir koma, kynsl\u00f3\u00f0ir fara, allar s\u00f6mi \u00e6vig\u00f6ng.\u201c<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er breytt. Margr\u00e9t er ekki lengur \u00e1 me\u00f0al okkar. H\u00fan hefur loki\u00f0 s\u00ednu hlutverki og \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00f3ma. H\u00fan \u00e1tti langa og vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edka \u00e6vi, ekki \u00e1n m\u00f3tl\u00e6tis og rauna, en g\u00f3\u00f0a \u00e6vi samt og naut \u00e1vaxta i\u00f0ju sinnar \u00e1 efri \u00e1rum og \u00feess fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0s sem b\u00f6rnin hennar eru, tengdab\u00f6rn og afkomendur. Henni var alla t\u00ed\u00f0 mj\u00f6g \u00ed mun a\u00f0 halda fj\u00f6lskyldunni saman og kann \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa hert hana \u00ed \u00feeim \u00e1setningi a\u00f0 frumfj\u00f6lskylda hennar sundra\u00f0ist \u00feegar h\u00fan var barn.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t f\u00e6ddist \u00e1 Akranesi 22. j\u00fal\u00ed 1929 og l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu \u00feann 24. ma\u00ed 2014, \u00e1 85. aldurs\u00e1ri.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru \u00d3laf\u00edna \u00d3lafsd\u00f3ttir fr\u00e1 Deild \u00e1 Akranesi, f. 11. okt. 1902, d. 12. okt. 1995 og \u00d3lafur Helgi Sigur\u00f0sson fr\u00e1 Fiskil\u00e6k \u00ed Melasveit, f. 25 okt. 1902, d. 3. des. 1984. Stj\u00fapfa\u00f0ir Margr\u00e9tar var \u00d3lafur \u00deorsteinsson, f. 1901, d. 1975.<\/p>\n<p>Systkini Margr\u00e9tar eru:<\/p>\n<p>1) H\u00f6r\u00f0ur Ragnar, f. 1924, d. 2001,<\/p>\n<p>2) \u00d3lafur, f. 1926, d. 2013,<\/p>\n<p>3) Gu\u00f0r\u00fan Dilj\u00e1, f. 1927, d. 1995,<\/p>\n<p>4) Ingibj\u00f6rg, f. 1932, d. 2006<\/p>\n<p>5) Sigur\u00f0ur Hreinn, f. 1933, d. 1978,<\/p>\n<p>6) Freym\u00f3\u00f0ur Hei\u00f0ar, f. 1935, d. 1978,<\/p>\n<p>7) \u00c1sa Sigr\u00ed\u00f0ur, f. 1937 og<\/p>\n<p>8) J\u00f3na Kolbr\u00fan, f.1940, d.2006.<\/p>\n<p>\u00d6ll l\u00e1tin nema \u00c1sa Sigr\u00ed\u00f0ur sem sendir ykkur kve\u00f0ju s\u00edna en h\u00fan dvelur \u00e1 Dvalarheimilinu H\u00f6f\u00f0a \u00e1 Akranesi.<\/p>\n<p>H\u00e1lfsystkini hennar samm\u00e6\u00f0ra eru:<\/p>\n<p>1) J\u00f3hann Gr\u00e9tar Hinriksson, f.1922, d. 2006, sem er l\u00e1tinn.<\/p>\n<p>2)&nbsp; \u00d3laf\u00edna Sigr\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir, f.1946.<\/p>\n<p>H\u00e1lfsystir Marg\u00e9tar samfe\u00f0ra er Svanhildur \u00d3lafsd\u00f3ttir, f. 1948.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00fan \u00f3lst upp \u00e1 Akranesi&nbsp;og var alla t\u00ed\u00f0 mikil Skagamanneskja. J\u00f3hann haf\u00f0i ekki s\u00ed\u00f0ur taugar til Akraness enda \u00fe\u00f3tt hann hafi a\u00f0eins b\u00fai\u00f0 \u00fear stutta stund.<\/p>\n<p>\u00dear var gott a\u00f0 vera sem barn enda \u00fe\u00f3tt kreppan hafi gengi\u00f0 \u00ed gar\u00f0 \u00e1ri\u00f0 sem Margr\u00e9t f\u00e6ddist. T\u00edmarnir voru allt a\u00f0rir, atvinnuh\u00e6ttir \u00f6\u00f0ruv\u00edsi og t\u00e6kif\u00e6ri f\u00f3lks allt \u00f6nnur en n\u00fa. En f\u00f3lki\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkti ekki framt\u00ed\u00f0ina fremur en vi\u00f0 sem n\u00fa lifum. Vi\u00f0 \u00feekkjum einungis \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum. En miki\u00f0 hefur \u00cdsland breyst \u00e1 \u00feeim \u00e1rum sem Margr\u00e9t lif\u00f0i. \u00dev\u00edl\u00edkar breytingar! \u00c1 hennar \u00e6sku\u00e1rum ur\u00f0u allir a\u00f0 vinna sem vettlingi g\u00e1tu valdi\u00f0, hj\u00e1lpa til heima, vinna \u00ed fiski e\u00f0a vi\u00f0 \u00f6nnur st\u00f6rf sem \u00feurfti a\u00f0 leysa. Og \u00fe\u00e1 eins og n\u00fa \u00e1tti f\u00f3lk s\u00ednar vonir og \u00fer\u00e1r um betri t\u00ed\u00f0 og ungar st\u00falkur dreymdi um a\u00f0 ver\u00f0a eiginkonur og m\u00e6\u00f0ur, a\u00f0 gegna kalli l\u00edfsins og stu\u00f0la a\u00f0 framhaldi \u00feess.<\/p>\n<p>Ung kynntist h\u00fan l\u00edfsf\u00f6runauti s\u00ednum \u00e1 Akranesi og segir sagan a\u00f0 h\u00fan hafi bo\u00f0i\u00f0 J\u00f3a redd, eins og hann var stundum kalla\u00f0ur, merki til kaups og hann sag\u00f0ist mundu kaupa ef hann m\u00e6tti kyssa hana \u00e1 kinnina. Kossinn f\u00e9kk hann a\u00f0 gefa henni og me\u00f0 t\u00ed\u00f0 og t\u00edma ur\u00f0u \u00feeir fleiri og fleiri og innilegri.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1949 giftist Margr\u00e9t J\u00f3hanni Vilhj\u00e1lmssyni, f. 4. \u00e1g\u00fast 1927, d. 24. jan\u00faar 2010. Foreldrar hans voru J\u00f3hann Ferdinant og Svein\u00edna J\u00f3nsd\u00f3ttir. B\u00f6rn \u00feeirra hj\u00f3na voru auk J\u00f3hanns, Sveinn, Ott\u00f3 og J\u00f3n Egill. H\u00e1lfsystkini J\u00f3hanns, samfe\u00f0ra eru \u00d3lafur og Gunn\u00fe\u00f3ra Freyja.<\/p>\n<p>J\u00f3hann var tekinn \u00ed f\u00f3stur og \u00e6ttleiddur af hj\u00f3nunum Vilhj\u00e1lmi Svan J\u00f3hannssyni og \u00d3l\u00f6fu \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttur. Hann hlaut gott uppeldi og naut elsku og umhyggju \u00ed uppvextinum. Hann naut almennrar sk\u00f3lag\u00f6ngu en f\u00f3r s\u00ed\u00f0an \u00ed i\u00f0nn\u00e1m og l\u00e6r\u00f0i prentun.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 blasti vi\u00f0 ungu hj\u00f3nunum og svo komu b\u00f6rnin eitt af \u00f6\u00f0ru.<\/p>\n<p>Vilhj\u00e1lmur Svan f. 1. \u00e1g\u00fast 1946 giftur Sesselju Henningsd\u00f3ttur. Sonur \u00feeirra er Vilhj\u00e1lmur Svan sem komst ekki heim \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0 vegna bilunar \u00ed flugv\u00e9l \u00ed Berl\u00edn og sendir \u00fev\u00ed kve\u00f0ju s\u00edna. Sonur Vilhj\u00e1lms Svans er J\u00f3hann, barnsm\u00f3\u00f0ir B\u00e1ra \u00d3skarsd\u00f3ttir og f\u00f3sturb\u00f6rn Vilhj\u00e1lms Svans eru Gr\u00e9tar og Sigr\u00ed\u00f0ur Hostert. Barnab\u00f6rn Vilhj\u00e1lms Svans eru 7.<\/p>\n<p>Valger\u00f0ur J\u00f3hannsd\u00f3ttir f. 14. febr\u00faar 1951, eiginma\u00f0ur Jakob Magn\u00fasson. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Hlynur S\u00f6lvi, Jakob Reynir og \u00d3l\u00f6f. Barnab\u00f6rn \u00feeirra eru 4.<\/p>\n<p>\u00d3lafur f. 30. mars 1954, eiginkona Helga Sigur\u00f0ard\u00f3ttir. B\u00f6rn \u00feeirra eru Sigur\u00f0ur, \u00de\u00f3rhallur, Hj\u00f6rvar og Soff\u00eda Hj\u00f6rd\u00eds. Barnab\u00f6rn \u00feeirra eru 4.<\/p>\n<p>Laufey J\u00f3hannsd\u00f3ttir f. 28. desember 1960, eiginma\u00f0ur Jan Bernstorff Thomsen. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Daniel, Camilla Margr\u00e9t og Thomas \u00de\u00f3r.<\/p>\n<p>\u00der\u00e1inn J\u00f3hannsson f. 21. n\u00f3vember 1962, eiginkona Erna Andreassen. Barn \u00feeirra er: Karen. F\u00f3sturb\u00f6rn \u00der\u00e1ins eru: Bjarki og \u00c1sta. Barnab\u00f6rnin eru tv\u00f6.<\/p>\n<p>Til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 kve\u00f0jur sem \u00feegar hefur veri\u00f0 skila\u00f0 eru h\u00e9r \u00ferj\u00e1r til vi\u00f0b\u00f3tar: fr\u00e1 Rakel Sesselju, lang\u00f6mmustelpu Margr\u00e9tar sem er \u00ed \u00fatl\u00f6ndum og fr\u00e1 Sindra, barnabarni Svans sem er \u00ed Damm\u00f6rku og fr\u00e1 foreldrum Jans og fj\u00f6lskyldu \u00ed Danm\u00f6rku.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Margr\u00e9t var f\u00e6dd og uppalin \u00e1 Akranesi en fluttist til Reykjav\u00edkur 1946 \u00fear sem h\u00fan bj\u00f3 til \u00e6viloka.<\/p>\n<p>\u00deau hj\u00f3nin byrju\u00f0u a\u00f0 b\u00faa saman 1946 eftir f\u00e6\u00f0ingu Svans og \u00fe\u00e1 \u00e1 H\u00f6rpug\u00f6tu 13 \u00ed Skerjafir\u00f0ri sem var grunnur af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var\u00f0 Vesturb\u00e6ingur upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi brug\u00f0i\u00f0 s\u00e9r \u00far hverfinu um stundarsakir. H\u00fan vildi a\u00f0 allt sitt f\u00f3lk byggi \u00ed Vesturb\u00e6num og haf\u00f0i s\u00ednar meiningar \u00e1 hlutunum alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan var t.a.m. mikill krati og haf\u00f0i r\u00edka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd.<\/p>\n<p>H\u00e9r \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur var\u00f0 heimili \u00feeirra mi\u00f0st\u00f6\u00f0 gesta og gangandi. Fr\u00e6ndf\u00f3lk og vinir sem komu \u00ed heims\u00f3kn \u00ed borgina ofan af Skaga gistu gjarnan hj\u00e1 \u00feeim me\u00f0an veri\u00f0 var a\u00f0 \u00fatr\u00e9tta \u00fdmislegt \u00ed henni Reykjav\u00edk e\u00f0a a\u00f0 finna s\u00e9r h\u00fasn\u00e6\u00f0i til fastrar b\u00fasetu. Heimili\u00f0 \u00feeirra var eins og umfer\u00f0armi\u00f0st\u00f6\u00f0 og allir velkomnir og \u00e6t\u00ed\u00f0 n\u00f3g pl\u00e1ss.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t var fyrst og fremst h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og uppalandi en sinnti inn \u00e1 milli \u00fdmsum st\u00f6rfum sem verkakona, vann t.d. hj\u00e1 V\u00edfilfelli, Dairy Queen, \u00ed fiski \u00e1 Kirkjusandi og v\u00ed\u00f0ar og gekk \u00ed \u00feau st\u00f6rf sem \u00ed bo\u00f0i voru hverju sinni og h\u00fan komst yfir. H\u00fan var einnig virkur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed rekstri prentsmi\u00f0ju J\u00f3hanns. \u00deau voru samhent og dugleg. H\u00fan naut \u00feess a\u00f0 hugsa um heimili\u00f0 og b\u00f6rnin og \u00feau segja hana hafa veri\u00f0 algj\u00f6ra s\u00faperm\u00f6mmu sem ger\u00f0i allt af al\u00fa\u00f0 og gle\u00f0i. H\u00fan var hj\u00e1lps\u00f6m og grei\u00f0vikin og sat sjaldan au\u00f0um h\u00f6ndum heldur vann handavinnu og ger\u00f0i margt fallegt \u00ed \u00feeim efnum um \u00e6vina.<\/p>\n<p>\u00deau voru gl\u00e6sileg saman. \u00c9g kynntist \u00feeim fyrst \u00feegar \u00feau s\u00f3ttu Neskirkju reglulega og komu pr\u00fa\u00f0b\u00fain til messu, h\u00fan gl\u00e6sileg og f\u00edn og J\u00f3i \u00ed jakkaf\u00f6tum, gjarnan lj\u00f3sleitum og a\u00f0hnepptum. J\u00e1, herramenn kunna a\u00f0 hneppa a\u00f0 s\u00e9r jakkanum &#8211; einni t\u00f6lu! Muni\u00f0 \u00fea\u00f0 str\u00e1kar! \u00deau v\u00f6ktu athygli \u00fear sem \u00feau f\u00f3ru saman.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t var me\u00f0al stofnenda Lj\u00f3ssins og \u00feau&nbsp; hj\u00f3nin voru b\u00e6\u00f0i virk \u00ed f\u00e9laginu sem haf\u00f0i a\u00f0setur h\u00e9r \u00ed Neskirkju um t\u00edma. Lj\u00f3si\u00f0 er endurh\u00e6fingar- og stu\u00f0ningsmi\u00f0st\u00f6\u00f0 fyrir f\u00f3lk sem hefur fengi\u00f0 krabbamein og a\u00f0standendur \u00feeirra. \u00deau l\u00f6g\u00f0u f\u00e9laginu li\u00f0 og studdu starfi\u00f0 af heilum hug \u00e1samt Laufeyju. \u00deau s\u00f3ttu b\u00e6nastundir \u00ed kirkjunni \u00e1 mi\u00f0vikud\u00f6gum og s\u00f3ttu s\u00e9r styrk \u00ed tr\u00fana \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 a\u00f0 halda g\u00f3\u00f0ri heilsu. Starf Lj\u00f3ssins var st\u00f3r \u00fe\u00e1ttur \u00ed l\u00edfi hennar s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin. \u00dear eigan\u00f0ist h\u00fan g\u00f3\u00f0a vini og \u00fear f\u00e9kk fagurkerinn \u00ed henni a\u00f0 bl\u00f3mstra. H\u00fan skapa\u00f0i marga f\u00edna hluti \u00ed \u00fev\u00ed starfi og s\u00e9rstaklega \u00fe\u00f3tt h\u00fan flink \u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6fa trefla og vinna skartgripi. H\u00fan var \u00feakkl\u00e1t fyrir starfsemi Lj\u00f3ssins.<\/p>\n<p>\u00deau hj\u00f3nin voru sameiningart\u00e1kn fyrir b\u00f6rnin s\u00edn og fj\u00f6lskyldur og l\u00f6g\u00f0u miki\u00f0 upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f3purinn st\u00e6\u00f0i saman. \u00c1hugi \u00feeirra og hvatning er l\u00edklega helsta \u00e1st\u00e6\u00f0a \u00feess hversu samheldinn h\u00f3purinn er \u00ed dag.<\/p>\n<p>Umhyggja Margr\u00e9tar og \u00e1hugi fyrir barnab\u00f6rnum og barnabarnab\u00f6rnunum var einstakur og var h\u00fan alltaf me\u00f0 \u00e1 n\u00f3tunum um allt sem \u00feau t\u00f3ku s\u00e9r fyrir hendur.<\/p>\n<p>H\u00fan var t\u00f3nlistarunnandi og \u00fea\u00f0 var miki\u00f0 sungi\u00f0 \u00e1 hennar heimili og s\u00e9rstaklega \u00feegar systurnar komu saman. \u00de\u00e1 var teki\u00f0 \u00ed g\u00edtarinn og sungi\u00f0 vi\u00f0 raust. H\u00fan fylgdist vel me\u00f0 t\u00f3nlist og t\u00f3nlistarvi\u00f0bur\u00f0um jafnt h\u00e9r heima sem erlendis og s\u00e9rstaklega haf\u00f0i h\u00fan gaman af \u00edslenskum og d\u00f6nskum s\u00f6ngvakeppnum og ef barnab\u00f6rnin h\u00f3fu upp raust s\u00edna me\u00f0 s\u00f6ng \u00fe\u00e1 var amma ekki langt undan me\u00f0 hvatningu og bros.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i einnig brennandi \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum og fylgdist grannt me\u00f0 \u00feegar st\u00e6rri \u00ed\u00fer\u00f3ttavi\u00f0bur\u00f0ir \u00e1ttu s\u00e9r sta\u00f0. H\u00fan hvatti barnab\u00f6rnin til d\u00e1\u00f0a \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttum og naut \u00feess a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00feeim \u00ed \u00f6llu sem \u00feau t\u00f3ku s\u00e9r fyrir hendur. Og \u00ed sj\u00e1lfu KR-hverfinu var \u00cdA \u00e6t\u00ed\u00f0 hennar upp\u00e1haldsli\u00f0 \u00ed f\u00f3tboltanum! En h\u00fan var n\u00fa farin a\u00f0 bogna \u00ed \u00feeim efnum undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta!<\/p>\n<p>H\u00fan \u00e1tti s\u00edna erfi\u00f0u daga um \u00e6vina, var stundum kv\u00ed\u00f0in og \u00f3r\u00f3leg. Ef til vill \u00e1tti bernskan \u00fear hlut a\u00f0 m\u00e1li, sundrun fj\u00f6lskyldu hennar og togstreitan sem henni fylgdi. En h\u00fan \u00e1tti tr\u00fana og \u00ed hana leita\u00f0i h\u00fan alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan spur\u00f0i \u00e1n efa oft: Hva\u00f0 ver\u00f0u n\u00fa? Og \u00feegar \u00e1rin f\u00e6r\u00f0ust yfir hana og \u00feau hj\u00f3nin h\u00f6f\u00f0u \u00e1tt s\u00edn bestu \u00e1r saman og J\u00f3i var h\u00e6ttur a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r \u00ed t\u00e1na \u00fe\u00e1 kvaddi hann og h\u00fan var\u00f0 ein eftir. Heilsan f\u00f3r \u00feverrandi en h\u00fan haf\u00f0i mikinn stu\u00f0ning barna sinna og afkomenda og naut \u00feess a\u00f0 b\u00faa \u00ed sama h\u00fasi og Laufey og Jan og fj\u00f6lskylda. \u00deau nutu l\u00edka n\u00e6rveru hennar og alls \u00feess g\u00f3\u00f0a sem \u00ed henni bj\u00f3.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? Hva\u00f0 tekur vi\u00f0? Tr\u00fain segir a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 haldi \u00e1fram. Margt af \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 skiljum ekki me\u00f0 hugsun okkar og skynsemi, skilur hjarta\u00f0. Hjarta\u00f0 veit og skilur a\u00f0 Gu\u00f0 er alm\u00e1ttugur, eil\u00edfur og k\u00e6rleiksr\u00edkur, skilur a\u00f0 r\u00edki hans er og ver\u00f0ur \u00e6t\u00ed\u00f0, a\u00f0 elska hans, miskunn og fyrirgefning er \u00f6rugg eins og fj\u00f6llin sem standa styrk.<\/p>\n<p>Fylgjendur Jes\u00fa spur\u00f0u for\u00f0um: Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? Og svo kom andinn yfir \u00fe\u00e1, andinn sem Jes\u00fas haf\u00f0i lofa\u00f0. Hann kom \u00e1 hv\u00edtasunnuh\u00e1t\u00ed\u00f0inni, andinn sem Jes\u00fas nefndi huggarann. Huggarinn kemur og hann mun veita okkur kraft til a\u00f0 lifa eins og hann ger\u00f0i fyrir tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1rum og hefur gert alla t\u00ed\u00f0 \u00ed hj\u00f6rtum \u00feeirra sem setja von s\u00edna \u00e1 Drottinn. Andi Gu\u00f0s er me\u00f0 okkur og andi Gu\u00f0s lei\u00f0ir l\u00e1tna m\u00f3\u00f0ur, tengdam\u00f3\u00f0ur, \u00f6mmu, lang\u00f6mmu, systur, fr\u00e6nku og safmer\u00f0arkonu um \u00feann veg sem h\u00fan \u00e1 n\u00fa fyrir h\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa? Fer ma\u00f0ur ekki \u00f6rugglega til Gu\u00f0s? spur\u00f0i h\u00fan.<\/p>\n<p>Svar tr\u00faarinna er: Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur \u00ed l\u00edfi og dau\u00f0a og enginn getur sliti\u00f0 okkur \u00far hendi hans e\u00f0a eins og postulinn sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201e\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar, h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.\u201c (Rm 8.38-39)<\/p>\n<p>Hva\u00f0 ver\u00f0ur n\u00fa?<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1fram \u00ed hendi Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Elska Gu\u00f0s bregst engum. Vi\u00f0 erum b\u00f6rnin hans og \u00ed \u00feeirri vissu kve\u00f0jum vi\u00f0 l\u00e1tinn \u00e1stvin.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Margr\u00e9tar \u00d3lafsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>S\u00e1lmarnir 130:1-8<\/b><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><sup>1<\/sup>Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p><i>\u00dar dj\u00fapinu \u00e1kalla \u00e9g \u00feig, Drottinn,<\/i><\/p>\n<p><sup>2<\/sup><i>Drottinn, heyr \u00fe\u00fa raust m\u00edna,<\/i><\/p>\n<p><i>l\u00e1t eyru \u00fe\u00edn hlusta \u00e1 gr\u00e1tbei\u00f0ni m\u00edna.<\/i><\/p>\n<p><sup>3<\/sup><i>Ef \u00fe\u00fa, Drottinn, g\u00e6fir g\u00e6tur a\u00f0 misgj\u00f6r\u00f0um,<\/i><\/p>\n<p><i>Drottinn, hver fengi \u00fe\u00e1 sta\u00f0ist?<\/i><\/p>\n<p><sup>4<\/sup><i>En hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er fyrirgefning<\/i><\/p>\n<p><i>svo a\u00f0 menn \u00f3ttist \u00feig.<\/i><\/p>\n<p><sup>5<\/sup><i>\u00c9g vona \u00e1 Drottin,<\/i><\/p>\n<p><i>s\u00e1l m\u00edn vonar,<\/i><\/p>\n<p><i>hans or\u00f0s b\u00ed\u00f0 \u00e9g.<\/i><\/p>\n<p><sup>6<\/sup><i>Meir en v\u00f6kumenn morgun,<\/i><\/p>\n<p><i>v\u00f6kumenn morgun,<\/i><\/p>\n<p><i>\u00fer\u00e1ir s\u00e1l m\u00edn Drottin.<\/i><\/p>\n<p><sup>7<\/sup><i>\u00d3, \u00cdsrael, b\u00ed\u00f0 \u00fe\u00fa Drottins<\/i><\/p>\n<p><i>\u00fev\u00ed a\u00f0 hj\u00e1 Drottni er miskunn<\/i><\/p>\n<p><i>og hj\u00e1 honum er gn\u00e6g\u00f0 lausnar.<\/i><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Filipp\u00edbr\u00e9fi\u00f0 4:4-7<\/b><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><sup>4<\/sup>Veri\u00f0 \u00e1vallt gl\u00f6\u00f0 \u00ed Drottni. \u00c9g segi aftur: Veri\u00f0 gl\u00f6\u00f0. <sup>5<\/sup>Lj\u00faflyndi ykkar ver\u00f0i kunnugt \u00f6llum m\u00f6nnum. Drottinn er \u00ed n\u00e1nd. <sup>6<\/sup>Veri\u00f0 ekki hugsj\u00fak um neitt heldur geri\u00f0 \u00ed \u00f6llum hlutum \u00f3skir ykkar kunnar Gu\u00f0i me\u00f0 b\u00e6n og bei\u00f0ni og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0. <sup>7<\/sup>Og fri\u00f0ur Gu\u00f0s, sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi, mun var\u00f0veita hj\u00f6rtu ykkar og hugsanir ykkar \u00ed Kristi Jes\u00fa.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14:1-6<\/b><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/b><\/p>\n<p><sup>1<\/sup>\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. <sup>2<\/sup>\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? <sup>3<\/sup>\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. <sup>4<\/sup>Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<\/p>\n<p><sup>5<\/sup>T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<\/p>\n<p><sup>6<\/sup>Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Margr\u00e9t \u00d3lafsd\u00f3ttir h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00c6gis\u00ed\u00f0u 78 1929-2014 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 4. j\u00fan\u00ed 2014 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1 og ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1318","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1318","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1318"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1318\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1318"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1318"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1318"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}