{"id":1309,"date":"2014-05-27T18:07:25","date_gmt":"2014-05-27T18:07:25","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1309"},"modified":"2014-05-27T18:07:25","modified_gmt":"2014-05-27T18:07:25","slug":"arni-sigursteinn-haraldsson-1944-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1309","title":{"rendered":"+\u00c1rni Sigursteinn Haraldsson 1944-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/c3a1rni-s-haraldsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/c3a1rni-s-haraldsson.png?w=232\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1310\" width=\"232\" height=\"300\" alt=\"\u00c1rni S Haraldsson\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00c1rni Sigursteinn Haraldsson<\/b><\/p>\n<p>1944-2014<\/p>\n<p>fr\u00e1 Vigur<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Gar\u00f0akirkju \u00feri\u00f0judaginn 27. ma\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmasrk\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1309-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/c3a1rni-s-haraldsson.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/c3a1rni-s-haraldsson.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/c3a1rni-s-haraldsson.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>L\u00edfi\u00f0<\/strong> vestur \u00ed Dj\u00fapi gekk sinn vanagang \u00feegar \u00c1rni f\u00e6ddist enda \u00fe\u00f3tt l\u00fd\u00f0veldi\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 stofna\u00f0 12 d\u00f6gum fyrr. \u00dea\u00f0 breytti n\u00fa litlu var\u00f0andi f\u00e6\u00f0ingar og dau\u00f0a, fuglal\u00edf og fisk \u00ed kringum landi\u00f0. En mannl\u00edfi\u00f0 breyttist \u00fe\u00f3 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og vitund f\u00f3lksins um sj\u00e1lft sig l\u00edka. \u00cdsland hefur gj\u00f6rbreyst \u00e1 70 \u00e1rum. \u00c1rni var me\u00f0al hinna fyrstu l\u00fd\u00f0veldisbarna og bar a\u00f0 auki anna\u00f0 nafn, Sigursteinn. Foreldrara hans voru Haraldur Valdimarsson verkstj\u00f3ri \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00de\u00f3rey Sigur\u00f0ard\u00f3ttir (f.22.9.1911) fr\u00e1 Folaf\u00e6ti vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap. Hann var tekinn \u00ed f\u00f3stur \u00ed eynni Vigur \u00ed \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fapi af \u00e1b\u00faendum \u00fear, Bj\u00f6rgu Bj\u00f6rnsd\u00f3ttur og Bjarna Sigur\u00f0ssyni b\u00f3nda og hreppsstj\u00f3ra. M\u00f3\u00f0ir hans var reyndar einnig f\u00f3stru\u00f0 \u00ed Vigur. Hann \u00f3lst upp hj\u00e1 \u00feeim til 17 \u00e1ra aldurs en f\u00f3r \u00fe\u00e1 a\u00f0 heiman og vann \u00fdmis st\u00f6rf h\u00e9r og \u00fear.<\/p>\n<p>H\u00e1lfbr\u00f3\u00f0ir \u00c1rna var \u00de\u00f3rarinn f. 1930 d. 2004, sonur \u00de\u00f3rarins Sigur\u00f0ssonar.<\/p>\n<p>Systur hans samm\u00e6\u00f0ra eru:<\/p>\n<p>Kristr\u00fan, 25.6.1949, Bj\u00f6rg, 11.9.1951 og Elsa Bj\u00f6rk, 2.1.1957, d\u00e6tur P\u00e9turs Einarssonar fr\u00e1 Fjallseli \u00ed Fellum, Flj\u00f3tsdalsh\u00e9ra\u00f0i.<\/p>\n<p>H\u00e1lfsystur \u00c1rna, samfe\u00f0ra, d\u00e6tur Haraldar verkstj\u00f3ra \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og Brynhildar I. J\u00f3nasd\u00f3ttur, lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ur eru: \u00de\u00f3runn, Elsa og J\u00f3na Vigd\u00eds sem er l\u00e1tin (d. 2002).<\/p>\n<p>Ungur kynntist hann Kaju Joensen \u00d3lad\u00f3ttur \u00ed Sandger\u00f0i. \u00deau fluttu til H\u00fasav\u00edkur \u00fear sem \u00c1rni sinnti \u00fdmsum st\u00f6rfum, var l\u00f6gregluma\u00f0ur, vann vi\u00f0 prenti\u00f0n, var st\u00f6\u00f0varstj\u00f3ri Shell en \u00feekktastur er hann fyrir a\u00f0 hafa unni\u00f0 sem b\u00f3lstrari fyrir nor\u00f0an og jafnan nefnur af H\u00fasv\u00edkingum, \u00c1rni b\u00f3lstrari. \u00deau bjuggu v\u00ed\u00f0ar en skildu fyrir u.\u00fe.b. 10 \u00e1rum. Kaja b\u00fdr \u00ed F\u00e6reyjum en \u00fea\u00f0an er h\u00fan og er or\u00f0in heilsuveil.<\/p>\n<p>Seinni hluta \u00e6vinnar bj\u00f3 \u00c1rni \u00ed Reykjav\u00edk, vann vi\u00f0 b\u00f3lstrun, t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00e9lagstarfi af \u00fdmsu tagi og m\u00e1la\u00f0i m.a. myndir. Allt l\u00e9k \u00ed h\u00f6ndum hans.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00c1rna og Kaju eru:<br \/>\n1) Magni \u00c1rnason, b\u00f3ndi og sj\u00f3ma\u00f0ur \u00ed Brei\u00f0dal.<\/p>\n<p>Maki: Maria Christie P\u00e1lsd\u00f3ttir.<br \/>\nB\u00f6rn hans og stj\u00fapb\u00f6rn Mar\u00edu: Mar\u00eda Bj\u00f6rg Magnad\u00f3ttir, Heimir \u00c1rni Magnason, S\u00e6r\u00fan \u00d3sk Magnad\u00f3ttir.<br \/>\n2) Bj\u00f6rg \u00c1rnad\u00f3ttir, h\u00e1rgrei\u00f0slukona \u00e1 \u00cdtal\u00edu.<br \/>\nMaki: Corrado Montipo.<br \/>\nB\u00f6rn: Erik Montipo, Martin Montipo.<br \/>\n3) \u00d3li \u00de\u00f3r \u00c1rnason, mj\u00f3lkurfr\u00e6\u00f0ingur og mj\u00f3lkurb\u00fasstj\u00f3ri \u00ed Belg\u00edu.<br \/>\nMaki: Sara M\u00f6rk.<br \/>\nB\u00f6rn: \u00d3livia M\u00f6rk \u00d3lad\u00f3ttir, J\u00f3natan M\u00f6rk \u00d3lason, Dav\u00ed\u00f0 M\u00f6rk \u00d3lason.<\/p>\n<p>\u00c1rna er l\u00fdst sem vinnus\u00f6mum manni sem kl\u00e1ra\u00f0i s\u00edn verk af vandvirkni og af heilindum. Hann var hj\u00e1lpsamur en um lei\u00f0 kappsamur mj\u00f6g og vildi lj\u00faka \u00f6llu strax. Hann var mikill m\u00edn\u00fatuma\u00f0ur segja b\u00f6rnin hans og alltaf a\u00f0 skipuleggja t\u00edma sinn. Ef hann var \u00e1 fer\u00f0alagi \u00fe\u00e1 skipti hann lei\u00f0 sinni \u00ed \u00e1fanga og reikna\u00f0i \u00fat hvern legg og vissi \u00fev\u00ed n\u00e1kv\u00e6mlega hversu mikinn t\u00edma hann \u00feurfti og \u00f3k \u201e\u00fe\u00e9ttingsfast\u201c til a\u00f0 n\u00e1 settu marki hverju sinni.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin minnast hans sem g\u00f3\u00f0s kokks sem elda\u00f0i fr\u00e1b\u00e6ran lunda og margt fleira og baka\u00f0i heimsins bestu p\u00f6nnuk\u00f6kur. Af \u00feessu m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 honum var margt til lista lagt. \u00c1rni var fri\u00f0samur ma\u00f0ur. Hann var m\u00fas\u00edkalskur og l\u00e9k b\u00e6\u00f0i \u00e1 orgelharm\u00f3n\u00edum og harm\u00f3niku. Hann haf\u00f0i n\u00e6mt auga fyrir fegur\u00f0 l\u00edfsins og naut \u00feess a\u00f0 skreyta heima hj\u00e1 s\u00e9r og komst \u00ed miki\u00f0 j\u00f3laskap \u00feegar hann skreytti j\u00f3latr\u00e9\u00f0 \u00e1rlega af miklum \u00e1kafa. Hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 nj\u00f3ta efri \u00e1ranna og var b\u00fainn a\u00f0 kaupa s\u00e9r golfsett en \u00fea\u00f0 var n\u00fa l\u00edti\u00f0 nota\u00f0 en \u00feeim mun meir spila\u00f0i hann bridge og hlakka\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 til a\u00f0 hitta f\u00e9lagana og var jafnan b\u00fainn a\u00f0 baka stafla af p\u00f6nnuk\u00f6kum fyrir spilakv\u00f6ldin.<\/p>\n<p>A\u00f0spur\u00f0 um l\u00edfsmott\u00f3 hans, segja b\u00f6rnin a\u00f0 hann hafi lifa\u00f0 fyrir vinnuna og helsta l\u00edfsregla hans hafi veri\u00f0 a\u00f0 gera \u00f6\u00f0rum gott og v\u00e6nta hins sama e\u00f0a eins og segir \u00ed hinni gullnu reglu Krists: \u201eAllt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir menn gj\u00f6ri y\u00f0ur, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feeim gj\u00f6ra.\u201c Reglan s\u00fa er algild og eil\u00edf og gott a\u00f0 hafa hana sem vi\u00f0mi\u00f0 \u00e1 l\u00edfsveginum. Hann leita\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 lifa heilbrig\u00f0u l\u00edfi, einkum hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti a\u00f0 nota \u00e1fengi og lei\u00f0 miklu betur.<\/p>\n<p>Hann kl\u00e1ra\u00f0i sitt l\u00edfsstarf og \u00fea\u00f0 \u00e1 t\u00edma, eins og sagt er, en n\u00fa er \u00feetta b\u00fai\u00f0 og \u00e6vin a\u00f0 baki og ekkert framundan.<\/p>\n<p>E\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<p>Hans bi\u00f0u verekefni og til st\u00f3\u00f0 a\u00f0 hann m\u00e1la\u00f0i \u00edb\u00fa\u00f0ina hj\u00e1 \u00de\u00f3runni systur sinni en \u00fea\u00f0 var\u00f0 ekki. K\u00f3ngur vill sigla en byr hl\u00fdtur a\u00f0 r\u00e1\u00f0a, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6ki sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i af Dj\u00fapmanni \u00ed bernsku.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur kve\u00f0jur fr\u00e1 b\u00f6rnum \u00de\u00f3runnar, Ingibj\u00f6rgu og Haraldi sem b\u00faa \u00ed Stokkh\u00f3lmi.<\/p>\n<p>Skarph\u00e9\u00f0inn A\u00f0alsteinsson fr\u00e1 H\u00fasav\u00edk sendir ykkur kve\u00f0ju en hann var heimagangur hj\u00e1 \u00c1rna og fj\u00f6lskyldu fyrir nor\u00f0an og bi\u00f0ur fyrir sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur fr\u00e1 s\u00e9r og fj\u00f6lskyldu sinni og&nbsp; \u00feakkar g\u00f3\u00f0ar stundir \u00ed S\u00f3lbrekku og Laugarbrekku.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og enn situr spurningin eftir: Er \u00feetta allt b\u00fai\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum \u00feessa jar\u00f0vist? Erum vi\u00f0 ekkert anna\u00f0 en mold? V\u00edst erum vi\u00f0 af j\u00f6r\u00f0inni og hverfum \u00feanga\u00f0 aftur. S\u00fa er vissa og tr\u00fa allra kynsl\u00f3\u00f0a en kristnin b\u00e6tir vi\u00f0 og segir okkur eiga \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0 \u00far hringr\u00e1s fr\u00e1 mold til moldar. H\u00fan beinir sj\u00f3num okkar til hins st\u00f3ra semhengis alls sem er. R\u00f6khugsunin \u00e1 \u00ed erfi\u00f0leikum me\u00f0 allt sem sprengir hinn hef\u00f0bundna ramma veruleikans en hjarta\u00f0, \u00feessi innri skynjun, sem b\u00fdr \u00ed okkur \u00f6llum hefur h\u00e6fileilkann til a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed gegnum allar g\u00e1tur og \u00fat yfir \u00f6ll m\u00f6rk. Hjarta\u00f0 veit a\u00f0 l\u00edf\u00f0 er meira og st\u00e6rra en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 augum blasir \u00ed \u00f6nnum daganna.<\/p>\n<p>N\u00fa standa yfir svonefndir gle\u00f0idagar \u00ed kirkjunni, fr\u00e1 p\u00e1skum til uppstigningardags en \u00fe\u00e1 daga for\u00f0um gl\u00f6ddust l\u00e6risveinarnir yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 Jes\u00fa upprisinn. \u00de\u00e1 s\u00e1u \u00feeir me\u00f0 hjartanu, \u00feessari dj\u00fapu og n\u00e6mu skynjun brj\u00f3stvitsins og l\u00edfi\u00f0 gekk upp. Meira a\u00f0 segja \u00fej\u00e1ningin var ekki lengur \u00f3skiljanleg. Upprisan breytti \u00f6llu. En h\u00fan er ekki bara veruleiki handan landam\u00e6ra l\u00edfs og dau\u00f0a. Upprisan er a\u00f0 verki \u00ed l\u00edfi okkar allra. H\u00fan gefur n\u00fdja von, reisir f\u00f3lk upp \u00far veikindum, opnar n\u00fdjar dyr og t\u00e6kif\u00e6ri, stu\u00f0lar a\u00f0 fyrirgefningu og s\u00e1tt og gerir l\u00edfi\u00f0 \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 lifa \u00fev\u00ed \u00ed von og tr\u00fa. \u00deessi tv\u00f6 s\u00ed\u00f0astnefndu hugt\u00f6k, tr\u00fa og von, heyra saman og eru n\u00e1skyld. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n tr\u00faar \u00e1 l\u00edfi\u00f0, lifum ekki \u00e1n \u00feess a\u00f0 vona \u00e1 betri t\u00ed\u00f0. Og \u00feegar tr\u00fain og vonin ver\u00f0a st\u00e6rstar sprengja \u00fe\u00e6r ramma veruleikans og sj\u00e1 l\u00edfi\u00f0 halda \u00e1fram \u00ed annarri v\u00eddd \u00fear sem Gu\u00f0 er allt \u00ed \u00f6llu.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Fyrir 10 d\u00f6gum kom \u00c1rni \u00e1samt \u00de\u00f3runni systur sinni hinga\u00f0 \u00ed kirkjugar\u00f0inn a\u00f0 lei\u00f0i Brynhildar m\u00f3\u00f0ur \u00de\u00f3runnar og J\u00f3nu Vigd\u00edsar. Hann er n\u00fa jar\u00f0sunginn \u00e1 d\u00e1nardegi Brynhildar sem s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 hann tengdist f\u00f6\u00f0urfj\u00f6lskyldu sinni \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 gekk sinn vanagang vestur \u00ed Dj\u00fapi \u00fe\u00f3tt l\u00fd\u00f0veldi\u00f0 v\u00e6ri stofna\u00f0 en \u00fea\u00f0 gaf f\u00f3lkinu \u00fe\u00f3 n\u00fdja von. \u00c1 sama h\u00e1tt gefur vitundin um r\u00edki Gu\u00f0s \u00ed Kristi n\u00fdja von. H\u00fan er mesta vonarafl tilverunnar. Vi\u00f0 lifum n\u00fa gle\u00f0idagana eins og fylgjendur frelsarans for\u00f0um. H\u00f6ldum \u00ed vonina um r\u00edki Gu\u00f0s og hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00c1rna Sigursteins Haraldssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/salmaskra-c3a1rni-s-haraldsson-copy.pdf\">Salmaskra \u00c1rni S Haraldsson copy<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ritningarlestrar vi\u00f0 ath\u00f6fnina:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">S\u00e1lmarnir 121:1-8<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">1<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>\u00c9g hef augu m\u00edn til fjallanna,<br \/>\nhva\u00f0an kemur m\u00e9r hj\u00e1lp?<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">2<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Hj\u00e1lp m\u00edn kemur fr\u00e1 Drottni,<br \/>\nskapara himins og jar\u00f0ar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">3<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Hann mun ekki l\u00e1ta f\u00f3t \u00feinn skri\u00f0na,<br \/>\nv\u00f6r\u00f0ur \u00feinn blundar ekki.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">4<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,<br \/>\nhann, v\u00f6r\u00f0ur \u00cdsraels.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn er v\u00f6r\u00f0ur \u00feinn,<br \/>\nDrottinn sk\u00fdlir \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhann er \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">6<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Um daga mun s\u00f3larhitinn ekki vinna \u00fe\u00e9r mein<br \/>\nn\u00e9 heldur tungli\u00f0 um n\u00e6tur.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">7<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn mun vernda \u00feig fyrir \u00f6llu illu,<br \/>\nhann mun vernda s\u00e1l \u00fe\u00edna.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">8<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn mun var\u00f0veita \u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu<br \/>\nh\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.&nbsp;<\/i><\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14:1-6<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;\"><strong>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/strong><\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">1<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.&nbsp;<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">2<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?&nbsp;<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">3<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.&nbsp;<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">4<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">5<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">6<\/sup><\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><br \/>\n<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; &nbsp; Minningaror\u00f0 \u00c1rni Sigursteinn Haraldsson 1944-2014 fr\u00e1 Vigur \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Gar\u00f0akirkju \u00feri\u00f0judaginn 27. ma\u00ed 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmasrk\u00e1in eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1309","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1309","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1309"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1309\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1309"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1309"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1309"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}