{"id":1301,"date":"2014-05-23T15:57:33","date_gmt":"2014-05-23T15:57:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1301"},"modified":"2014-05-23T15:57:33","modified_gmt":"2014-05-23T15:57:33","slug":"ragnhildur-arnadottir-1923-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1301","title":{"rendered":"+Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir 1923-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir.png?w=211\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1303\" width=\"211\" height=\"300\" alt=\"Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1923-2014<\/p>\n<p>Grandavegi 47<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 23. ma\u00ed 2014 kl. 15<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er b\u00e6\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1301-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>N\u00e1\u00f0<\/strong> . . .<\/p>\n<p>N\u00fa f\u00e6kkar \u00feeim \u00f3\u00f0um, konunum, sem lif\u00f0u og st\u00f6rfu\u00f0u \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sk\u00fdrrar verkaskiptinga. \u00de\u00e6r litu \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00e6vistarf a\u00f0 eignast b\u00f6rn, annast \u00feau af kostg\u00e6fni og vinna heima fulla vinnu alla daga vi\u00f0 matseld, saumaskap, \u00fevotta og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst uppeldi barna sinna. En \u00feegar k\u00fafurinn af \u00feeim verkefnum var horfinn nutu \u00fe\u00e6r \u00feess a\u00f0 fara \u00fat \u00e1 vinnumarka\u00f0inn og sinna um\u00f6nnunarst\u00f6rfum. \u00de\u00e6r eru margar hetjurnar sem unnu vi\u00f0 \u00feau kj\u00f6r og a\u00f0b\u00fana\u00f0 sem \u00ed bo\u00f0i var. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja \u00feetta er \u00e9g alls ekki a\u00f0 kasta r\u00fdr\u00f0 \u00e1 \u00fativinnandi m\u00e6\u00f0ur samt\u00edmans, karr\u00ederkonurnar, n\u00e9 a\u00f0 m\u00e6ra hi\u00f0 li\u00f0na \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag. \u00dea\u00f0 er li\u00f0i\u00f0 undir lok og n\u00fdir t\u00edmar teknir vi\u00f0 en \u00feau &#8211; sem ger\u00f0u sem allra best \u00far \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem voru &#8211; eiga hei\u00f0ur skilinn fyrir \u00fe\u00e1 al\u00fa\u00f0 og \u00ferautseigju sem l\u00f6g\u00f0 voru \u00ed s\u00e9rhvert verk.<\/p>\n<p>Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir f\u00e6ddist \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um \u00ed Svarfa\u00f0ardal 5. n\u00f3vember 1923. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum 3. ma\u00ed 2014.<\/p>\n<p>Foreldrar Ragnhildar voru: \u00c1rni \u00c1rnason f. 19. j\u00fan\u00ed 1892, d. 4. des 1962 og Rannveig R\u00f6gnvaldsd\u00f3ttir, f. 8. okt. 1894, d. 14. j\u00fal\u00ed 1989, \u00e1b\u00faendur \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um \u00ed Svarfa\u00f0ardal. Systkini Ragnhildar:<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur, f. 22. ma\u00ed 1917, d. 4. ma\u00ed 2003,<\/p>\n<p>Anna, f. 26. jan. 1919, d. 12. okt. 1980,<\/p>\n<p>R\u00f6gnvaldur, f. 16. mars 1920, d. 11. jan. 2010,<\/p>\n<p>Sigurl\u00edna f. 26. apr\u00edl 1922, d. 30. okt\u00f3ber 2011,<\/p>\n<p>\u00cdsak \u00c1rni, f. 23. ma\u00ed 1925, d. 15. apr\u00edl 2004 og<\/p>\n<p>Trausti Helgi, f. 21. ma\u00ed 1929 sem einn lifir.<\/p>\n<p>Ragnhildur giftist 2. ma\u00ed 1948 P\u00e1li Halld\u00f3rssyni, fr\u00e1 Haga \u00ed Holtum, f. 8. \u00e1g\u00fast 1923, d. 1. j\u00fal\u00ed 2013. B\u00f6rn \u00feeirra: a) Katr\u00edn bla\u00f0ama\u00f0ur f. 14. j\u00fal\u00ed 1949, maki \u00c1g\u00fast Ragnarsson f. 11. desember 1948, sonur \u00feeirra Ragnar \u00c1rni f. 14. mars 1989. b) \u00c1rni h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gma\u00f0ur f. 7. mars 1952, maki Emel\u00eda Gunn\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir f. 29. febr\u00faar 1959. B\u00f6rn \u00feeirra: P\u00e1ll f. 2. \u00e1g\u00fast 1986 og Ragnhildur f. 22. febr\u00faar 1989. c) Rannveig l\u00e6knir f. 12. j\u00fan\u00ed 1961, maki Gu\u00f0brandur Sigur\u00f0sson f. 2. ma\u00ed 1961. B\u00f6rn \u00feeirra: Anna Katr\u00edn f. 30. mars 1986, Ragna Krist\u00edn f. 13.n\u00f3vember 2000 og Ingi Hrafn f. 29. apr\u00edl 2003.<\/p>\n<p>Ragnhildur fluttist fr\u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um me\u00f0 foreldrum s\u00ednum og \u00f6\u00f0ru heimilisf\u00f3lki a\u00f0 Sy\u00f0ri-Hofd\u00f6lum \u00ed Vi\u00f0v\u00edkurhreppi \u00ed Skagafir\u00f0i \u00e1ri\u00f0 1936 og \u00f3lst \u00fear upp til fullor\u00f0ins\u00e1ra.<\/p>\n<p>Ragnhildur var heimavinnandi h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 me\u00f0an b\u00f6rnin voru ung, en lengst af starfa\u00f0i h\u00fan \u00e1 Kleppssp\u00edtala.<\/p>\n<p>\u00c1 heimili Ragnhildar \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um \u00ed Svarfa\u00f0ardal og s\u00ed\u00f0ar Sy\u00f0ri-Hofd\u00f6lum \u00ed Skagafir\u00f0i var allur fatna\u00f0ur unnin heima. Ragnhildur var snillingur \u00ed a\u00f0 sauma, ger\u00f0i jafnt sk\u00f3laf\u00f6t sem flottasta samkv\u00e6misfatna\u00f0. M\u00f3\u00f0ir hennar og m\u00f3\u00f0ursystir voru l\u00e6r\u00f0ar saumakonur og kunnu vel til verka. \u00deessa \u00feekkingu fluttu \u00fe\u00e6r \u00e1fram til d\u00e6tra sinna. Ragnhildur var tvo vetur \u00e1 Kvennask\u00f3lanum \u00e1 Bl\u00f6ndu\u00f3si og b\u00e6tti \u00fear enn vi\u00f0 \u00feekkingu s\u00edna. En \u00fea\u00f0 var ekki a\u00f0eins fatna\u00f0ur sem \u00fe\u00e6r unnu, \u00fe\u00e6r voru listfengar og \u00feess m\u00e1 sj\u00e1 sta\u00f0 \u00e1 fallegu heimili \u00feeirra hj\u00f3na, Ragnhildar og P\u00e1ls, \u00fear sem fagrir p\u00fa\u00f0ar, myndir og d\u00fakar skreyta. Ragnhildur haf\u00f0i gott verksvit og \u00e1\u00f0ur en h\u00fan h\u00f3fst handa var verki\u00f0 hverju sinni skipulagt vel og vandlega. H\u00fan var listr\u00e6n og ger\u00f0i allt vel sem h\u00fan t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur. H\u00fan vissi hvernig h\u00fan vildi hafa hlutina og d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 var \u00feegar h\u00fan keypti s\u00e9r einhverja fl\u00edk \u2013 var i\u00f0ulega fari\u00f0 \u00ed t\u00f6luver\u00f0ar breytingar \u00feegar heim var komi\u00f0. Allt var\u00f0 a\u00f0 passa eins vel og h\u00e6gt var.<\/p>\n<p>Heimili\u00f0 hennar \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um var s\u00e9rstakt vi\u00f0 r\u00e6tur Heljardalshei\u00f0ar. Umfer\u00f0 um hana var mj\u00f6g mikil \u00e1 \u00feessum \u00e1rum &#8211; og haf\u00f0i veri\u00f0 fr\u00e1 alda\u00f6\u00f0li og var fram til 1930 &#8211; \u00far Skagafir\u00f0i yfir \u00ed Eyjafj\u00f6r\u00f0 og \u00f6fugt. F\u00f3lk sem var \u00e1 lei\u00f0 yfir \u00ed Skagafj\u00f6r\u00f0 kom i\u00f0ulega vi\u00f0 \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um \u00e1\u00f0ur en lagt var \u00e1 hei\u00f0ina. Einnig kom f\u00f3lk \u00far Skagafir\u00f0i yfir hei\u00f0ina og \u00ed Svarfa\u00f0ardal og \u00fe\u00e1 var fyrsti vi\u00f0komusta\u00f0ur Atlasta\u00f0ir. B\u00e6rinn var \u00fev\u00ed \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0braut og var mj\u00f6g gestkv\u00e6mt \u00fear vetur, sumar, vor og haust. F\u00f3lk braust yfir hei\u00f0ina \u00ed hva\u00f0a ve\u00f0ri sem var yfir h\u00e1veturinn. Heimilisf\u00f3lki\u00f0 \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti gestum, spurt var t\u00ed\u00f0inda og sag\u00f0ar fregnir.<\/p>\n<p>\u00c1rni \u00c1rnason b\u00f3ndi \u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um var \u00feekktur sagnama\u00f0ur og kunni \u00f3teljandi s\u00f6gur af sva\u00f0ilf\u00f6rum yfir \u00feessa hei\u00f0i. Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e6r nokkrar \u00ed vi\u00f0tali vi\u00f0 dagbla\u00f0i\u00f0 T\u00edmann \u00e1ri\u00f0 1962. Ragnhildur var \u00fev\u00ed alin upp vi\u00f0 mikinn gestagang og a\u00f0 gestir seg\u00f0u t\u00ed\u00f0indi af s\u00e9r og s\u00ednum og \u00far sveitinni. H\u00fan sag\u00f0i skemmtilega fr\u00e1 og h\u00fan fylgdist mj\u00f6g vel me\u00f0 fr\u00e9ttum alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan haf\u00f0i \u00e1kve\u00f0nar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig \u00e1tti a\u00f0 segja fr\u00e9ttir og skrifa \u00fe\u00e6r og ber \u00fea\u00f0 vott um \u00feroska\u00f0a fr\u00e1sagnarg\u00e1fu.<\/p>\n<p>H\u00fan lag\u00f0i miki\u00f0 upp \u00far a\u00f0 b\u00f6rnin hennar st\u00e6\u00f0u sig vel \u00ed sk\u00f3la og var h\u00fan vakin og sofin yfir \u00fev\u00ed. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i me\u00f0 \u00feeim, \u00fatsk\u00fdr\u00f0i og hj\u00e1lpa\u00f0i. \u00deau ur\u00f0u a\u00f0 vanda sig og draga fallega til stafs og hafa vinnub\u00e6kur vel ger\u00f0ar. H\u00fan var str\u00f6ng en jafnframt mild, horf\u00f0i \u00e1 \u00feau og spur\u00f0i: gjarnan Ger\u00f0ir \u00fe\u00fa eins vel og \u00fe\u00fa gast?<\/p>\n<p>\u00c1 sumrin f\u00f3r h\u00fan me\u00f0 b\u00f6rnin \u00ed Skagafj\u00f6r\u00f0in og \u00fear voru \u00feau m\u00f6rg sumur \u00e1 Sy\u00f0ri-Hofd\u00f6lum. \u00deessi sumur voru d\u00fdr\u00f0art\u00edmar, enda f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 Hofd\u00f6lum d\u00e1samlega gott vi\u00f0 b\u00f6rnin.<\/p>\n<p>\u00deegar b\u00f6rnin voru komin \u00e1 legg f\u00f3r h\u00fan a\u00f0 huga a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00fat \u00e1 vinnumarka\u00f0inn. H\u00fan starfa\u00f0i n\u00e6rri \u00ferj\u00e1 \u00e1ratugi \u00e1 Kleppi a\u00f0 sinna ge\u00f0sj\u00fakum og var gl\u00f6\u00f0 yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 geta ori\u00f0 a\u00f0 li\u00f0i. \u00c1 Kleppi vann h\u00fan me\u00f0 g\u00f3\u00f0u f\u00f3lki sem h\u00fan mat mikils. H\u00fan \u00e1tti g\u00f3\u00f0ar vinkonur sem h\u00fan starfa\u00f0i me\u00f0 lengi \u00e1 Kleppi og s\u00fa vin\u00e1tta h\u00e9lst me\u00f0an aldur entist. H\u00fan kynntist m\u00f6rgu f\u00f3lki \u00e1 Kleppi og \u00ed allskonar \u00e1standi en aldrei var\u00f0 h\u00fan fyrir neinu misj\u00f6fnu af h\u00e1lfu sj\u00faklinga sem g\u00e1tu sumir veri\u00f0 vi\u00f0skotaillir \u00ed sinni vanl\u00ed\u00f0an. H\u00fan haf\u00f0i svo einstakt lag \u00e1 a\u00f0 s\u00fdna samhug og skilning, vera s\u00f6nn manneskja \u00ed h\u00f3pi annarra manneskja.<\/p>\n<p>N\u00fa hverfa \u00fe\u00e6r ein af annarri konurnar sem voru heimavinnandi h\u00fasm\u00e6\u00f0ur. Spurt er: fyrir hva\u00f0 st\u00f3\u00f0 h\u00fan? H\u00fan st\u00f3\u00f0 fyrir vonina um betri heim og a\u00f0 b\u00f6rnin hennar og barnab\u00f6rn v\u00e6ru heilbrig\u00f0 og fengju a\u00f0 vaxa og dafna og f\u00e1st vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem hugurinn stefndi til. Kynsl\u00f3\u00f0 hennar lif\u00f0i t\u00edmana tvenna, fr\u00e1 skorti til alsn\u00e6gta. Ragnhildur sag\u00f0i a\u00f0 f\u00f3lk kynni ekki lengur a\u00f0 \u00feakka fyrir sig, \u00feakka fyrir \u00fea\u00f0 sem \u00fea\u00f0 hef\u00f0i \u2013 allir v\u00e6ru \u00e1 har\u00f0ahlaupum eftir einhverju sem v\u00e6ri einskis vir\u00f0i \u00feegar uppp v\u00e6ri sta\u00f0i\u00f0. H\u00fan var \u00feakkl\u00e1t fyrir \u00fea\u00f0 sem l\u00edfi\u00f0 gaf henni og s\u00e1tt vi\u00f0 sinn hlut og r\u00edmar \u00fea\u00f0 vel vi\u00f0 speki aldanna: Hinn \u00feakkl\u00e1ta skortir aldrei neitt.<\/p>\n<p>Og h\u00e9r koma kve\u00f0jur me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti.<\/p>\n<p>K\u00e6rar kve\u00f0jur til \u00f6mmu senda:<\/p>\n<p>Anna Katr\u00edn Gu\u00f0brandsd\u00f3ttir elsta barnabarni\u00f0 sem starfar \u00ed Danm\u00f6rku.<\/p>\n<p>Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir \u2013 nafna hennar \u2013 sem er vi\u00f0 fornleifauppgr\u00f6ft \u00e1 K\u00fdpur.<\/p>\n<p>Og svo er h\u00e9r kve\u00f0ja fr\u00e1 fr\u00e6nda, R\u00f3bert J\u00f3ni Raschhofer, barnabarni Sigr\u00ed\u00f0ar heitinnar, systur Ragnhildar, en hann b\u00fdr \u00ed Austurr\u00edki.<\/p>\n<p>H\u00e9r kve\u00f0ur \u00feakkl\u00e1tt f\u00f3lk m\u00e6ta konu. H\u00fan hefur loki\u00f0 langri og fars\u00e6lli \u00e6vi. Alla t\u00ed\u00f0 fann h\u00fan til r\u00f3ta sinna nor\u00f0ur \u00ed Svarfa\u00f0ardal og Skagafir\u00f0i. H\u00fan hlusta\u00f0i eftir \u00fev\u00ed \u00ed ve\u00f0urfr\u00e9ttum alla t\u00ed\u00f0 hvernig vi\u00f0ra\u00f0i \u00e1 bernskusl\u00f3\u00f0um hennar og spur\u00f0i fr\u00e9tta af b\u00faskap og mannl\u00edfi. Landi\u00f0 var henni d\u00fdrm\u00e6tt, moldin og \u00fea\u00f0 sem h\u00fan gefur. Vi\u00f0 erum afur\u00f0 moldar eins og jurtir og d\u00fdr. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n moldar og jar\u00f0tengingar og t\u00e6knin mun aldrei gera okkur \u00f3h\u00e1\u00f0 r\u00f3tunum. \u00deetta vissu vitringar fyrri aldar og \u00feess vegna s\u00f6g\u00f0u \u00feeir: Af j\u00f6r\u00f0u ertu kominn. A\u00f0 j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur ver\u00f0a. Hringr\u00e1sin er sk\u00fdr og \u00f3umfl\u00fdjanleg. Vi\u00f0 erum \u00ed tiltekinni hringr\u00e1s, lifum \u00ed samhengi vi\u00f0 allt. \u00deess vegna er n\u00e1tt\u00faran ekki \u00fearna \u00fati e\u00f0a einhverssta\u00f0ar langt \u00ed burtu fyrir nor\u00f0an e\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. Vi\u00f0 erum n\u00e1tt\u00faran og ver\u00f0um a\u00f0 lifa \u00ed s\u00e1tt og samlyndi vi\u00f0 l\u00edfr\u00edki\u00f0 &#8211; vi\u00f0 okkur sj\u00e1lf og hi\u00f0 jar\u00f0neska samhengi. \u00dea\u00f0 er s\u00ed\u00f0an hluti af hinu st\u00f3ra samhengi sem r\u00edfur v\u00edtahring mannsins og b\u00e6tir vi\u00f0 hin fornu or\u00f0 \u00feessari sta\u00f0h\u00e6fingu: Af j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur upp r\u00edsa.<\/p>\n<p>Hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi heldur utan um allt l\u00edf. S\u00fa hugsun hefur veri\u00f0 \u00fatsk\u00fdr\u00f0 af heimspekingi fyrri alda me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: Gu\u00f0 er hringur hvers mi\u00f0ja er allsta\u00f0ar og ystu m\u00f6rk hvergi.<\/p>\n<p>Ragnhildur \u00feekkti \u00feetta samhengi og \u00feess vegna ba\u00f0 h\u00fan til Gu\u00f0s og kenndi b\u00f6rnum s\u00ednum b\u00e6nir m.a. \u00feessar:<\/p>\n<p>L\u00e1ttu n\u00fa lj\u00f3si\u00f0 \u00feitt<br \/>\nloga vi\u00f0 r\u00fami\u00f0 mitt.<br \/>\nHaf\u00f0u \u00fear sess og s\u00e6ti,<br \/>\nsigna\u00f0i Jes\u00fas m\u00e6ti.<\/p>\n<p>Vertu yfir og allt um kring<br \/>\nme\u00f0 eil\u00edfri blessun \u00feinni.<br \/>\nSitji Gu\u00f0s englar saman \u00ed hring<br \/>\ns\u00e6nginni yfir minni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vertu, Gu\u00f0 fa\u00f0ir, fa\u00f0ir minn,<br \/>\n\u00ed frelsarans Jes\u00fa nafni,<br \/>\nh\u00f6nd \u00fe\u00edn lei\u00f0i mig \u00fat og inn,<br \/>\nsvo allri synd \u00e9g hafni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Gu\u00f0 geymi mig og var\u00f0veiti mig<\/p>\n<p>\u00e1 s\u00e1lu og l\u00edfi \u00feessa n\u00f3tt<\/p>\n<p>og alla t\u00edma \u00ed Jes\u00fa nafni. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lifum og hr\u00e6rumst \u00ed \u00feessu samhengi og \u00feess vegna er au\u00f0veldara a\u00f0 kve\u00f0ja og s\u00e6tta sig vi\u00f0 a\u00f0 \u00feau sem vi\u00f0 elskum hverfi af hinu jar\u00f0neska svi\u00f0i og eigi s\u00e9r l\u00edfsvon \u00ed n\u00fdrri v\u00eddd og annarri tilvist.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Ranghildar \u00c1rnad\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/sc3a1lmaskrc3a1-ragnhildur-c3a1rnadc3b3ttir-breytt-copy.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir &#8211; breytt copy<\/a><\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">S\u00e1lmarnir 121:1-8<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">1<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>\u00c9g hef augu m\u00edn til fjallanna,<br \/>\nhva\u00f0an kemur m\u00e9r hj\u00e1lp?<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">2<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Hj\u00e1lp m\u00edn kemur fr\u00e1 Drottni,<br \/>\nskapara himins og jar\u00f0ar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">3<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Hann mun ekki l\u00e1ta f\u00f3t \u00feinn skri\u00f0na,<br \/>\nv\u00f6r\u00f0ur \u00feinn blundar ekki.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">4<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,<br \/>\nhann, v\u00f6r\u00f0ur \u00cdsraels.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">5<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn er v\u00f6r\u00f0ur \u00feinn,<br \/>\nDrottinn sk\u00fdlir \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhann er \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">6<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Um daga mun s\u00f3larhitinn ekki vinna \u00fe\u00e9r mein<br \/>\nn\u00e9 heldur tungli\u00f0 um n\u00e6tur.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">7<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn mun vernda \u00feig fyrir \u00f6llu illu,<br \/>\nhann mun vernda s\u00e1l \u00fe\u00edna.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">8<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn mun var\u00f0veita \u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu<br \/>\nh\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.&nbsp;<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><br \/>\n<\/span><\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">Matteusargu\u00f0spjall 5:1-48<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;color:#333333;\"><strong>Fjallr\u00e6\u00f0an<\/strong><\/div>\n<p style=\"color:#333333;\"><span style=\"color:#c31f1f;\">1<\/span>\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans.&nbsp;<span style=\"color:#c31f1f;\">2<\/span>\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n<span style=\"color:#c31f1f;\">3<\/span><i>\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">4<\/span><i>S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">5<\/span><i>S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">6<\/span><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">7<\/span><i>S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">8<\/span><i>S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">9<\/span><i>S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">10<\/span><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.&nbsp;<\/i><br \/>\n<span style=\"color:#c31f1f;\">11<\/span>S\u00e6l eru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 er menn sm\u00e1na y\u00f0ur, ofs\u00e6kja og lj\u00faga \u00e1 y\u00f0ur \u00f6llu illu m\u00edn vegna.&nbsp;<span style=\"color:#c31f1f;\">12<\/span>Gle\u00f0jist og fagni\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 laun y\u00f0ar eru mikil \u00e1 himnum. \u00deannig ofs\u00f3ttu \u00feeir sp\u00e1mennina sem voru \u00e1 undan y\u00f0ur.<\/p>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;color:#333333;\"><strong>Salt og lj\u00f3s<\/strong><\/div>\n<p style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">13<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">14<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">15<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">16<\/span><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Ragnhildur \u00c1rnad\u00f3ttir 1923-2014 Grandavegi 47 &nbsp; \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 23. ma\u00ed 2014 kl. 15 R\u00e6\u00f0una er b\u00e6\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-1301","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad-uncategorized"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1301","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1301"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1301\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1301"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1301"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1301"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}