{"id":129,"date":"2013-04-18T18:49:12","date_gmt":"2013-04-18T18:49:12","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=129"},"modified":"2013-04-18T18:49:12","modified_gmt":"2013-04-18T18:49:12","slug":"ragnheidur-bodvarsdottir-1921-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=129","title":{"rendered":"Ragnhei\u00f0ur B\u00f6\u00f0varsd\u00f3ttir 1921-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/04\/ragnheidurbodvarsdottir.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-133\" alt=\"RagnheidurBodvarsdottir\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/04\/ragnheidurbodvarsdottir.jpg?w=214\" width=\"214\" height=\"300\" \/><\/a>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><strong>Ragnhei\u00f0ur B\u00f6\u00f0varsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p>1921-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r \u00ed Fossvogskapellu<\/p>\n<p>fimmtudaginn 18. apr\u00edl 2013 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufuneskirkugar\u00f0i<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og svo m\u00e1 l\u00edka <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 hana me\u00f0 \u00fevi a\u00f0 smella \u00e1 <strong>\u00fer\u00edhyrninginn<\/strong>.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>\u00c9g heims\u00f3tti \u00e6skusl\u00f3\u00f0ir m\u00ednar fyrr \u00ed vikunni og \u00fe\u00e1 rifja\u00f0ist margt upp. Sumt var \u00fear breytt en \u00fe\u00f3 ekki allt \u00fev\u00ed l\u00edfi\u00f0 er \u00ed raun eins \u00ed grunninn fr\u00e1 degi til dags, fr\u00e1 \u00e1ri til \u00e1rs, \u00f6ld af \u00f6ld. L\u00edfi\u00f0 sn\u00fdst um a\u00f0 lifa, a\u00f0 hafa \u00ed sig og \u00e1, a\u00f0 annast \u00e1stvini, a\u00f0 elska Gu\u00f0 og n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfan sig. \u00deegar N\u00f3afl\u00f3\u00f0inu slota\u00f0i sem sagt er fr\u00e1 \u00ed Bibl\u00edunni m\u00e6lti Drottinn fram \u00feessi or\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>Svo lengi sem j\u00f6r\u00f0in stendur<\/p>\n<p>skal hvorki linna s\u00e1ningu n\u00e9 uppskeru,<\/p>\n<p>frosti n\u00e9 hita,<\/p>\n<p>sumri n\u00e9 vetri,<\/p>\n<p>degi n\u00e9 n\u00f3ttu<\/p><\/blockquote>\n<p>L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram og \u00fea\u00f0 gengur sinn vana gang.<\/p>\n<p>L\u00edf Ragnhei\u00f0ar var \u00ed f\u00f6stum skor\u00f0um alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan sinnti s\u00ednum verkum af al\u00fa\u00f0 og tr\u00famennsku, stunda\u00f0i s\u00edna vinnu, anna\u00f0ist manninn sinn, b\u00f6rn s\u00edn og barnab\u00f6rn, h\u00e9lt sambandi vi\u00f0 \u00e6ttingja og vini. Heimur hennar var Reykjav\u00edk og lengst af bj\u00f3 h\u00fan \u00e1 sama sta\u00f0 \u00e1 Melunum. \u00dear er gott a\u00f0 b\u00faa og starfa. Vinnusta\u00f0ir hennar voru aldrei fjarri, sk\u00f3lar barnanna handan torgsins og allt \u00ed seilingarfjarl\u00e6g\u00f0. H\u00fan var fars\u00e6l kona sem lif\u00f0i g\u00f3\u00f0u l\u00edfi og hefur n\u00fa loki\u00f0 s\u00ednu dagsverki. Vi\u00f0 kve\u00f0jum hana me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 17. \u00e1g\u00fast 1921.<\/p>\n<p>H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum Fossvogi 2. apr\u00edl 2013 en haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur dvali\u00f0 \u00e1 Elli- og hj\u00fakrunarheimilinu Grund um nokkurt skei\u00f0.<\/p>\n<p>Foreldrar R\u00f6gnu eins og h\u00fan var alltaf k\u00f6llu\u00f0 voru B\u00f6\u00f0var J\u00f3nsson, H\u00fanvetningur a\u00f0 \u00e6tt og uppruna d. 1954 og Gu\u00f0r\u00fan Sk\u00falad\u00f3ttir Skagfir\u00f0ingur d. 1965.<\/p>\n<p>Systkini R\u00f6gnu voru J\u00f3n, Gunnar, Ingibj\u00f6rg og Sigurbj\u00f6rg en \u00feau eru \u00f6ll l\u00e1tin.<\/p>\n<p>Hinn 8. apr\u00edl 1950 giftist Ragna J\u00f3hanni L. Sigur\u00f0ssyni loftskeytamanni f. 20. febr\u00faar 1924 d. 2. september 2009.<\/p>\n<p>B\u00f6rn R\u00f6gnu og J\u00f3hanns eru Birna og Gunnar.<\/p>\n<p>1)Birna f. 23. mars 1954, maki \u00c1sgeir J\u00f3nsson f. 30. okt\u00f3ber 1951. B\u00f6rn \u00feeirra eru: a)J\u00f3hann \u00d6rn f. 24. \u00e1g\u00fast 1970 maki Gu\u00f0n\u00fd Gu\u00f0nad\u00f3ttir f. 17. ma\u00ed 1970 og eru b\u00f6rn \u00feeirra Aron f. 24. j\u00fan\u00ed 1998, Birna f. 11. j\u00fan\u00ed 2001 og Atli f. 12. ma\u00ed 2012. b)Ragnhei\u00f0ur f. 6. mars 1978 maki Hei\u00f0ar \u00de\u00f3rhallsson f. 21. j\u00fan\u00ed 1970 og barn \u00feeirra er Viktor\u00eda L\u00edf f. 14. jan\u00faar 2013 c)Sturla f. 20. j\u00fal\u00ed 1980.<\/p>\n<p>2)Gunnar f. 14. september 1955 maki Marta Loftsd\u00f3ttir f. 19 mars 1955. B\u00f6rn Gunnars eru a)\u00c1rni Beck f. 28. febr\u00faar 1978 maki Mie Rasmussen f. 28. apr\u00edl 1973 og b\u00f6rn \u00feeirra eru R\u00f3sa Sif f. 30. j\u00fal\u00ed 2009 og Silja Bj\u00f6rk f. 9 desember 2011. Mie sendir ykkur kve\u00f0ju s\u00edna og barnanna. b)Gu\u00f0r\u00fan Bj\u00f6rg f. 9. n\u00f3vember 1980 maki P\u00e9tur Ingi P\u00e9tursson f. 2. jan\u00faar 1974 og b\u00f6rn \u00feeirra eru Ingunn Lind f. 24. febr\u00faar 2006 og Emil f. 2. febr\u00faar 2009. Synir M\u00f6rtu og f\u00f3stursynir Gunnars eru a)H\u00f6r\u00f0ur f. 22. jan\u00faar 1981 hans b\u00f6rn eru H\u00f6gni Alvar f. 25. apr\u00edl 2004 og Vigd\u00eds Elfur f. 15. j\u00fan\u00ed 2006 b)Finnur f. 1986.<\/p>\n<p>Ragna f\u00e6ddist a\u00f0 Laugavegi 73, bj\u00f3 hj\u00e1 foreldrum s\u00ednum \u00e1 \u00fdmsum st\u00f6\u00f0um \u00ed Reykjav\u00edk, en sk\u00f3lagangan var \u00fe\u00f3 yfirleitt \u00ed Austurb\u00e6jarbarnask\u00f3la. Nokkur sumur var h\u00fan \u00ed sveit \u00ed M\u00fdrdal og unni h\u00fan \u00feeim sl\u00f3\u00f0um alla t\u00ed\u00f0. Ragna h\u00f3f ung st\u00f6rf \u00ed Reykjav\u00edkurap\u00f3teki og s\u00ed\u00f0an \u00ed Ing\u00f3lfsap\u00f3teki en lengst af starfa\u00f0i h\u00fan \u00ed Vesturb\u00e6jarap\u00f3teki \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna \u00ed Melask\u00f3la.<\/p>\n<p>H\u00fan var hl\u00fd manneskja og hj\u00e1lpleg og vildi allt fyrir a\u00f0ra gera. H\u00fan var f\u00e9lagslynd og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi aldra\u00f0ra a\u00f0 Aflagranda og \u00c1rsk\u00f3gum. H\u00fan keyr\u00f0i b\u00edl fram eftir \u00f6llu og safna\u00f0i gjarnan vinkonum me\u00f0 s\u00e9r til a\u00f0 s\u00e6kja dagskr\u00e1 \u00e1 fyrrnefndum st\u00f6\u00f0um.<\/p>\n<p>B\u00f6rn hennar segja a\u00f0 h\u00fan hafi kennt \u00feeim margt gott og lagt a\u00f0 \u00feeim a\u00f0 vera \u00feau sj\u00e1lf, vera hei\u00f0arleg, s\u00fdna hl\u00fdju og g\u00f3\u00f0mennsku gagnvart \u00f6llum. Segja m\u00e1 a\u00f0 h\u00fan hafi kennt \u00feeim a\u00f0 lifa eftir hinni Gullnu reglu Jes\u00fa Krists:<\/p>\n<blockquote><p>Allt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir menn geri y\u00f0ur, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feeim gera.<\/p><\/blockquote>\n<p>Ragna var l\u00edfsgl\u00f6\u00f0 manneskja en alv\u00f6rugefin undir ni\u00f0ri. B\u00f6rnin minnast \u00feess hva\u00f0 h\u00fan gat oft veri\u00f0 k\u00e1t og gamans\u00f6m og til \u00ed a\u00f0 gantast vi\u00f0 \u00feau.<\/p>\n<p>H\u00fan var alltaf til sta\u00f0ar og haga\u00f0i sinni vinnu \u00feannig a\u00f0 h\u00fan gat veri\u00f0 heima \u00feegar \u00feau k\u00e6mu \u00far sk\u00f3la \u00fev\u00ed h\u00fan vildi ekki a\u00f0 \u00feau k\u00e6mu a\u00f0 t\u00f3mu h\u00fasi. H\u00fan reyndist barnab\u00f6rnunum vel og g\u00e6tti \u00feeirra oft og langm\u00f6mmub\u00f6rnin voru l\u00edka hj\u00e1 henni, einkum \u00fea\u00f0 elsta en J\u00f3hann og h\u00fan voru um t\u00edma dagforeldrar fyrir drenginn.<\/p>\n<p>Ragna var r\u00e6ktars\u00f6m vi\u00f0 f\u00f3lk og minningu \u00feeirra sem h\u00fan haf\u00f0i kynnst \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni. H\u00fan f\u00f3r oft a\u00f0 gr\u00f6fum form\u00e6\u00f0ra sinna og fe\u00f0ra, velgj\u00f6r\u00f0armanna og vina og lag\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e6r r\u00f3sir. Oft f\u00f3r h\u00fan \u00ed M\u00fdrdalinn \u00fear sem h\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed sveit og vitja\u00f0i \u00fe\u00e1 grafa f\u00f3lksins sem h\u00fan var hj\u00e1 og \u00fe\u00f3tt alla t\u00ed\u00f0 v\u00e6nt um. N\u00fdlega spur\u00f0i h\u00fan hvort ekki yr\u00f0i fari\u00f0 \u00ed M\u00fdrdalinn \u00ed sumar. Rifja\u00f0 var upp \u00ed m\u00edn eyru a\u00f0 or\u00f0in g\u00f6mul hoppa\u00f0i h\u00fan milli \u00fe\u00fafna \u00ed M\u00fdrdalnum og hlj\u00f3p vi\u00f0 f\u00f3t og l\u00e9k s\u00e9r vi\u00f0 \u00f6lduna \u00ed Reynisfj\u00f6ru. H\u00fan kom einnig vi\u00f0 \u00ed Skagafir\u00f0i og lag\u00f0i r\u00f3s \u00e1 lei\u00f0i afa s\u00edns og ef h\u00fan vissi af fer\u00f0um barna sinna e\u00f0a \u00e6ttingja \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um \u00fe\u00e1 ba\u00f0 h\u00fan a\u00f0 heilsa nor\u00f0ur og \u00e1tti \u00fe\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 skila b\u00e6ri kve\u00f0ju \u00ed kirkjugar\u00f0inn.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskyldan vill f\u00e6ra S\u00f3lveigu \u00feakkir fyrir elskusemi hennar alla t\u00ed\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6lskylduna og ennfremur r\u00e6ktarsemi systkinabarna R\u00f6gnu sem heims\u00f3ttu hana oft og allt til hinstu daga.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0 fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu til grafar. Af j\u00f6r\u00f0u ertu kominn, a\u00f0 j\u00f6r\u00f0u skaltu aftur ver\u00f0a.<\/p>\n<blockquote><p>Svo lengi sem j\u00f6r\u00f0in stendur<\/p>\n<p>skal hvorki linna s\u00e1ningu n\u00e9 uppskeru,<\/p>\n<p>frosti n\u00e9 hita,<\/p>\n<p>sumri n\u00e9 vetri,<\/p>\n<p>degi n\u00e9 n\u00f3ttu<\/p><\/blockquote>\n<p>Og enn f\u00e6\u00f0ist f\u00f3lk, lifir og deyr \u00ed henni Reykjav\u00edk. \u00c1 Melunum ver\u00f0a sk\u00f3larnir br\u00e1tt hlj\u00f3\u00f0ir \u00feegar b\u00f6rnin fara \u00ed sumarfr\u00ed. \u00de\u00e1 taka fuglarnir vi\u00f0 og syngja \u00fear til b\u00f6rnin koma aftur me\u00f0 s\u00edna s\u00f6ngva, hr\u00f3p og k\u00f6ll a\u00f0 loknu sumri. Borgin i\u00f0ar af l\u00edfi og \u00f6ll b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 sumarsins bl\u00ed\u00f0a \u00feegar tr\u00e9n laufgast \u00e1 n\u00fd og j\u00f6r\u00f0in ver\u00f0ur i\u00f0jagr\u00e6n og hl\u00fd. L\u00edfi\u00f0 r\u00eds upp af dau\u00f0a. \u00deannig er \u00fea\u00f0 \u00ed n\u00e1tt\u00farunni og \u00feannig s\u00e9r kristin tr\u00fa fyrir s\u00e9r n\u00fdtt l\u00edf \u00ed r\u00edki Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 felum Ragnhei\u00f0i B\u00f6\u00f0varsd\u00f3ttur \u00feessu eil\u00edfa r\u00edki Gu\u00f0s og bi\u00f0jum henni blessunar um eil\u00edf\u00f0.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hennar og Gu\u00f0 blessi okkur \u00e1 l\u00edfsveginum og gefi okkur \u00f6llum gle\u00f0i og gott l\u00edf.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Gufunesi.<\/p>\n<p>Erfisdrykkja \u00e1 Hotel Natura &#8211; (H\u00f3tel Loftlei\u00f0ir)<\/p>\n<p>Be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 jar\u00f0setningu \u00fear til erfisdrykkju l\u00fdkur. Vi\u00f0 munum hittast \u00ed Gufunesi kl. 15.30.<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0in ver\u00f0a birt . . .<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri kve\u00f0jur:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 Ragnhei\u00f0ur B\u00f6\u00f0varsd\u00f3ttir 1921-2013 \u00datf\u00f6r \u00ed Fossvogskapellu fimmtudaginn 18. apr\u00edl 2013 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufuneskirkugar\u00f0i R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og svo m\u00e1 l\u00edka hlusta \u00e1 hana me\u00f0 \u00fevi a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-129","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/129","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=129"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/129\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=129"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=129"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=129"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}