{"id":1286,"date":"2014-05-16T20:24:00","date_gmt":"2014-05-16T20:24:00","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1286"},"modified":"2014-05-16T20:24:00","modified_gmt":"2014-05-16T20:24:00","slug":"sigridur-davidsdottir-1919-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1286","title":{"rendered":"+Sigr\u00ed\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir 1919-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1289\" alt=\"Sigr\u00ed\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir\" width=\"213\" height=\"284\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Sigr\u00ed\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1919-2014<\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og saumakona<\/p>\n<p>fr\u00e1 Patreksfir\u00f0i<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu f\u00f6studaginn 16. ma\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1286-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir.mp3<\/a><\/audio>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>N\u00e1\u00f0<\/strong> . . .<\/p>\n<p>\u00cd li\u00f0inni viku var fr\u00f3\u00f0legur \u00fe\u00e1ttur \u00ed Sj\u00f3nvarpinu \u00fear sem fe\u00f0ginin L\u00e1ra, fr\u00e9ttama\u00f0ur og \u00d3mar Ragnarsson vitju\u00f0u fjalla og fjar\u00f0a \u00e1 su\u00f0urhluta Vestfjar\u00f0arkj\u00e1lkans. Bergi\u00f0 er fornt og hart en litir og lj\u00f3s m\u00fdkja allt, hv\u00edtir sandar og gr\u00e6nar hl\u00ed\u00f0ar og dalir gera fir\u00f0ina svo undurfagra og Rau\u00f0asandur er engu l\u00edkur \u00e1 \u00feessu landi. Og Kollsv\u00edk er m\u00f6rgum ykkar minnisst\u00e6\u00f0. Sj\u00f3rinn \u00ed Su\u00f0urfj\u00f6r\u00f0unum hefur allt annan lit en fir\u00f0irnir fyrir nor\u00f0an sem \u00e9g minntist \u00e1 er \u00e9g jar\u00f0s\u00f6ng tv\u00edburasystur hennar, Bjarnhei\u00f0i \u00e1ri\u00f0 2008 og Vikar br\u00f3\u00f0ur \u00feeirra 2005. Birtan \u00ed sj\u00f3num er \u00f6nnur en \u00ed flestum \u00f6\u00f0rum fj\u00f6r\u00f0um og t\u00farkisbl\u00e1minn einstakur \u00ed dj\u00fapinu.<\/p>\n<p>Landi\u00f0 er fagurt og fr\u00edtt og n\u00fa b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 sumarsins \u00f3\u00fereyjufull \u00fev\u00ed \u00f6ll \u00fer\u00e1um vi\u00f0 yl og birtu, fuglal\u00edf, bl\u00f3m og laufskr\u00fa\u00f0. Fegur\u00f0in b\u00fdr innra me\u00f0 okkur \u00f6llum svo er Gu\u00f0i fyrir a\u00f0 \u00feakka.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur sem var tv\u00edburi f\u00e6ddist \u00ed K\u00f3ngsengi \u00ed Rau\u00f0asandshreppi 13. \u00e1g\u00fast 1919. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Hrafnistu \u00ed Reykjav\u00edk \u00feann 7. ma\u00ed 2014. Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin Andrea Andr\u00e9sd\u00f3ttir f. 20. n\u00f3v. 1887 \u00e1 Va\u00f0li \u00e1 Bar\u00f0astr\u00f6nd d. 3. ma\u00ed 1968 og Dav\u00ed\u00f0 J\u00f3hannes J\u00f3nsson f. 16. des. 1884 \u00e1 Geirseyri vi\u00f0 Patreksfj\u00f6r\u00f0 d. 10. jan. 1930.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin voru 7:<\/p>\n<p>H\u00f6r\u00f0ur (f. 19. okt. 1917), tv\u00edburarnir<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur (f. 13. \u00e1g\u00fast 1919) og<\/p>\n<p>Bjarnhei\u00f0ur \u00d3l\u00edna, f. 13. \u00e1g\u00fast 1919, tv\u00edburarnir<\/p>\n<p>Sigurj\u00f3n f. 14. sept. 1921 og<\/p>\n<p>Andr\u00e9s f. 14. sept. 1921,<\/p>\n<p>Vikar f. 1. september 1923 og<\/p>\n<p>Leifur f. 5. des. 1924.<\/p>\n<p>\u00d6ll l\u00e1tin.<\/p>\n<p>\u00cd minningargrein Stef\u00e1ns Thoroddsen um Sigurj\u00f3n Dav\u00ed\u00f0sson br\u00f3\u00f0ur Sigr\u00ed\u00f0ar kemur vel fram hverjar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur voru \u00e1 fyrri hluta li\u00f0innar aldar. \u00dear segir m.a.:<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">\u201e . . . Dav\u00ed\u00f0 J\u00f3nsson og Andrea Andr\u00e9sd\u00f3ttir, voru vel metnir borgarar \u00e1 Patreksfir\u00f0i. Dav\u00ed\u00f0 var a\u00f0 s\u00f6gn st\u00f3r ma\u00f0ur, hraustmenni og listasmi\u00f0ur. Andrea var l\u00edtil kona og gr\u00f6nn, en h\u00f6rkudugleg og br\u00e1\u00f0lagin. Dav\u00ed\u00f0 heitinn bygg\u00f0i fj\u00f6lskyldu sinni h\u00fas \u00e1 Geirseyri, en ha\u00f0fi vart loki\u00f0 \u00fev\u00ed, \u00feegar illv\u00edgur sj\u00fakd\u00f3mur helt\u00f3k hann og lag\u00f0i a\u00f0 velli \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma fr\u00e1 konu og sj\u00f6 ungum b\u00f6rnum.<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">\u00dea\u00f0 hef\u00f0i m\u00f6rgum fallist hendur \u00ed sporum Andreu, \u00fev\u00ed ofan \u00e1 \u00feessi \u00f3t\u00ed\u00f0indi b\u00e6ttist a\u00f0 atvinnuleysi og erfi\u00f0ir t\u00edmar voru \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feorpinu eins og J\u00f3n \u00far V\u00f6r l\u00fdsir vel \u00ed lj\u00f3\u00f0um s\u00ednum, en hann var samt\u00ed\u00f0a \u00feeim \u00fear. \u00dea\u00f0 hvarfla\u00f0i \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 Andreu. H\u00fan t\u00f3k alla vinnu sem bau\u00f0st, \u00fe\u00f3tt karlmannsverk v\u00e6ri og vann t.d. lengstum \u00e1 netaverkst\u00e6\u00f0i og hn\u00fdtti togarav\u00f6rpur \u00e1 m\u00f3ti hva\u00f0a karli sem var og st\u00f3\u00f0 ekkert upp \u00e1 hana. Jafnframt h\u00e9lt h\u00fan barnah\u00f3pnum s\u00ednum heimili. \u00dearna voru r\u00e6tur tv\u00edburabr\u00e6\u00f0ranna Sigurj\u00f3ns og Andr\u00e9sar, sem vistu\u00f0ust flj\u00f3tlega hj\u00e1 g\u00f3\u00f0u f\u00f3lki vestur \u00ed Arnarfir\u00f0i og voru \u00fear fr\u00e1 8 \u00e1ra aldri og fram yfir fermingu.\u201c<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur \u00f3lst upp \u00ed H\u00e6nuv\u00edk fram \u00e1 5. \u00e1r en \u00fe\u00e1 settist fj\u00f6lskyldan a\u00f0 \u00e1 Patreksfir\u00f0i. Fa\u00f0ir Sigr\u00ed\u00f0ur f\u00e9ll fr\u00e1 \u00e1 besta aldri og \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 Andrea ein uppi me\u00f0 b\u00f6rnin 7 og \u00fea\u00f0 elsta 13 \u00e1ra, tv\u00edburasysturnar \u00e1 11. \u00e1ri.<\/p>\n<p>H\u00fan kynntist \u00fear af lei\u00f0andi snemma kr\u00f6ppum kj\u00f6rum og har\u00f0ri l\u00edfsbar\u00e1ttu. M\u00f3\u00f0ir hennar var sterk kona sem l\u00e9t ekki bugast og kom \u00f6llum s\u00ednum b\u00f6rnum til manns. Eftir andl\u00e1t Dav\u00ed\u00f0s \u00ed jan\u00faar 1930 var Sigr\u00ed\u00f0ur send a\u00f0 \u00d6skubrekku \u00ed Ketild\u00f6lum \u00ed Arnarfir\u00f0i og var \u00fear \u00ed eitt og h\u00e1lft \u00e1r hj\u00e1 hj\u00f3nunum Vigd\u00edsi og Einari G\u00edslasyni. \u00deau vildu f\u00f3stra hana til framt\u00ed\u00f0ar en h\u00fan vildi komast aftur til m\u00f6mmu og svo var\u00f0. H\u00fan minntist \u00feess a\u00f0 hj\u00f3nin \u00e1 F\u00edfust\u00f6\u00f0um \u00ed Arnarfir\u00f0i spur\u00f0u hvort h\u00fan \u00e6tti ekki br\u00f3\u00f0ur til a\u00f0 reka k\u00fdrnar fyrir sig og h\u00fan kva\u00f0 j\u00e1, vi\u00f0 og nefndi Sigurj\u00f3n sem v\u00e6ri svo flj\u00f3tur a\u00f0 hlaupa. \u00dar var\u00f0a a\u00f0 tv\u00edburarnir, hann og Andr\u00e9s, f\u00f3ru \u00ed f\u00f3stur til \u00de\u00f3runnar og G\u00edsla eins og \u00e1\u00f0ur kom fram og s\u00f3ttu sk\u00f3la hj\u00e1 s\u00e9ra B\u00f6\u00f0vari \u00e1 Hrafnseyri og f\u00f3ru \u00fea\u00f0an me\u00f0 f\u00f3sturm\u00f3\u00f0ur sinni til st\u00fadentsn\u00e1ms vi\u00f0 MA en G\u00edsli l\u00e9st \u00feegar \u00feeir voru 10 \u00e1ra.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur f\u00f3r su\u00f0ur til Reykjav\u00edkur 17 e\u00f0a 18 \u00e1ra og \u00fe\u00e6r systurnar f\u00f3ru b\u00e1\u00f0ar \u00ed sauman\u00e1m hj\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0ir Bankastr\u00e6ti. \u00de\u00e6r leig\u00f0u hj\u00e1 \u00d3skari Halld\u00f3rssyni \u00fatger\u00f0armanni sem var umsvifamikill \u00ed \u00fatger\u00f0 og einn mesti s\u00edldarspek\u00falant samt\u00ed\u00f0ar sinnar. \u00c1 sumrin f\u00f3ru \u00fe\u00e6r heim \u00ed fj\u00f6r\u00f0inn fagra en voru fyrir sunna \u00e1 veturna. \u00de\u00e6r unnu svo hj\u00e1 Feldinum og stofnu\u00f0u lokst \u00e1samt \u00feri\u00f0ju konunni saumastofu og r\u00e1ku hana \u00ed 5 \u00e1r. Sigr\u00ed\u00f0ur sauma\u00f0i miki\u00f0 heima alla t\u00ed\u00f0 me\u00f0fram h\u00fasm\u00f3\u00f0urst\u00f6rfunum og vann hvers kyns st\u00f6rf&nbsp; sem \u00ed bo\u00f0i voru. H\u00fan vann \u00ed fiski og \u00fe\u00e6r systu f\u00f3ru me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni nor\u00f0ur \u00e1 Siglufj\u00f6r\u00f0 \u00ed s\u00edld og fylgdu svo g\u00f6ngu s\u00edldarinnar til Raufarhafnar. \u00de\u00e1 var unni\u00f0 daga og n\u00e6tur e\u00f0a eins og skrokkurinn \u00feoldi.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur giftist \u00d3lafi \u00deorsteini Sigur\u00f0ssyni, sem f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 27. febr\u00faar 1921 en l\u00e9st 2. ma\u00ed 1987. Hann var elstur 7 barna hj\u00f3nanna Sigur\u00f0ar \u00deorsteinssonar, kaupmanns \u00e1 Freyjug\u00f6tu 11 og fyrri konu hans, Lilju Marteinsd\u00f3ttur. Me\u00f0 s\u00ed\u00f0ari konu sinni \u00e1tti Sigur\u00f0ur 3 b\u00f6rn. \u00d3lafur var \u00fev\u00ed elstur 10 barna Sigur\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00cd minningargrein Vikars um \u00d3laf segir:<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">\u201e\u00d3lafur \u00e1tti a\u00f0 m\u00f6rgu leyti erfi\u00f0 bernsku\u00e1r. M\u00f3\u00f0ir hans missti heilsuna \u00e1 besta aldri og \u00e1rin eftir fyrri heimsstyrj\u00f6ldina og kreppu\u00e1rin voru barnm\u00f6rgum fj\u00f6lskyldum \u00feung \u00ed skauti.<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">\u00c1 unga aldri f\u00f3r \u00d3lafur til sumardvalar \u00ed sveit eins og t\u00edtt var um kaupsta\u00f0arb\u00f6rn og er raunar enn. T\u00f3lf \u00e1ra gamall fer hann a\u00f0 heiman til lengri dvalar, e\u00f0a til a\u00f0 vinna fyrir s\u00e9r eins og sagt var. Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um alvara l\u00edfsins var tekin vi\u00f0. Hann var \u00e1 \u00fdmsum b\u00e6jum austan fjalls og raunar v\u00ed\u00f0ar. Ekki er a\u00f0 efa a\u00f0 sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur hafa sett mark sitt \u00e1 l\u00edfsvi\u00f0horf hans s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e6vinni. \u00dea\u00f0 gefur augalei\u00f0 a\u00f0 barnask\u00f3lan\u00e1m hefur veri\u00f0 stopult, en barnapr\u00f3fi (fullna\u00f0arpr\u00f3fi) lauk \u00d3lafur \u00e1 tilsettum t\u00edma \u00ed Mosfellssveit og var \u00fe\u00e1 \u00e1 Blikast\u00f6\u00f0um. Eftir \u00fea\u00f0 l\u00e1 lei\u00f0 hans til H\u00fasav\u00edkur og hlaut hann \u00fe\u00e1 nokkra kennslu hj\u00e1 Fri\u00f0rik A. Fri\u00f0rikssyni, pr\u00f3fasti, og var \u00d3lafi jafnan hl\u00fdtt til s\u00edra Fri\u00f0riks og konu hans.<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Sext\u00e1n \u00e1ra gamall er \u00d3lafur aftur kominn til Reykjav\u00edkur og vinnur \u00fe\u00e1 \u00fdmis st\u00f6rf er til f\u00e9llu, m.a. \u00e1 bifrei\u00f0averkst\u00e6\u00f0i hj\u00e1 Steind\u00f3ri Einarssyni. Snemma \u00e1rs 1940 tekur hann meirapr\u00f3f bifrei\u00f0astj\u00f3ra og fer a\u00f0 aka leigu- og langfer\u00f0ab\u00edlum. Hann \u00f3k um skei\u00f0 \u00e1\u00e6tlunarb\u00edl til \u00deingvalla hj\u00e1 Gunnari Gu\u00f0nasyni \u00e1 BS\u00cd, en lengst af \u00f3k \u00d3lafur eigin leigubifrei\u00f0.<\/p>\n<p style=\"padding-left:30px;\">Eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti leigub\u00edlaakstri var hann allm\u00f6rg \u00e1r vi\u00f0 lager- og \u00fatkeyrslust\u00f6rf hj\u00e1 Mi\u00f0st\u00f6\u00f0inni hf., en s\u00ed\u00f0ustu fimmt\u00e1n\u00e1rin starfa\u00f0i hann \u00ed \u00c1lverinu \u00ed Straumsv\u00edk e\u00f0a \u00fear til \u00e1 s\u00ed\u00f0asta hausti a\u00f0 heilsa hans br\u00e1st.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>B\u00f6rn Sigr\u00ed\u00f0ur og \u00d3lafs eru:<\/p>\n<p>J\u00f3hanna Andrea f. 1944<\/p>\n<p>Ur\u00f0ur f. 1945 og<\/p>\n<p>Leifur f. 1948.<\/p>\n<p>Afkomendur Sigr\u00ed\u00f0ar eru n\u00fa 40.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hennar \u00f3lust upp \u00ed Holtunum en voru \u00ed sveit \u00e1 sumrin \u00ed H\u00e6nuv\u00edk og Reykh\u00f3lasveit. \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0ur t\u00edmi a\u00f0 vera \u00ed sveitinn fyrir vestan og f\u00e1 \u00ed s\u00e1lina hina s\u00e9rst\u00f6ku birtu su\u00f0urfjar\u00f0a Vestfjar\u00f0akj\u00e1lkans \u00fear sem skelin gerir strandir hv\u00edtar og sj\u00f3inn t\u00farkisbl\u00e1an \u00ed s\u00f3linni.<\/p>\n<p>H\u00fan hugsa\u00f0i fyrst og s\u00ed\u00f0ast um heimili\u00f0, a\u00f0 allir hef\u00f0u n\u00f3g. H\u00fan signdi b\u00f6rnin \u00feegar h\u00fan f\u00e6r\u00f0i \u00feau \u00ed hreinan bol en langamma \u00e1 Freyjug\u00f6tunni kenndi \u00feeim b\u00e6nir og vers. \u00deau gengu \u00ed MI\u00f0b\u00e6jarsk\u00f3lann<\/p>\n<p>\u00d3lafur l\u00e9st 1987 \u00far krabbameini og Sigr\u00ed\u00f0ur h\u00e9lt \u00e1fram s\u00ednum st\u00f6rfum. H\u00fan haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 sauma\u00f0 allar fl\u00edkur \u00e1 b\u00f6rnin og alltaf fann h\u00fan einhverssta\u00f0ar vinnu. H\u00fan var s\u00f6ngelsk og s\u00f6ng \u00e1samt systur sinni \u00ed D\u00f3mk\u00f3rnum um \u00e1rabil og einnig \u00ed S\u00f6ngsveitinni F\u00edlharm\u00f3n\u00edu. Fyrsti k\u00f3rinn hennar var kvennak\u00f3r Slysavarnarf\u00e9lagsins.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er h\u00fan kv\u00f6dd h\u00e9r \u00ed Fossvogskapellu me\u00f0 f\u00f6grum s\u00f6ng, b\u00e6num og minningaror\u00f0um. \u00deannig kve\u00f0jum vi\u00f0 \u00cdslendingar f\u00f3lki\u00f0 okkar me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstaka kve\u00f0ju fr\u00e1 Andreu, d\u00f3tturd\u00f3ttur Sigr\u00ed\u00f0ar og manni hennar Sigurj\u00f3ni sem eru \u00e1 \u00cdtal\u00edu.<\/p>\n<p>Minnst var \u00e1 fegur\u00f0 landsins \u00ed upphafi \u00feessara minningaror\u00f0a en fegur\u00f0 mannsandans er l\u00edka mikil. \u00deau eru m\u00f6rg sem unni\u00f0 hafa sigra \u00ed l\u00edfinu \u00fe\u00f3tt ekki fari h\u00e1tt og engar myndir hafi birst \u00ed bl\u00f6\u00f0um e\u00f0a glanst\u00edmaritum. Flestir vinna s\u00edn st\u00f6rf \u00ed kyrr\u00feey og nj\u00f3ta menningar og lista \u00ed h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 hjartans. Sigr\u00ed\u00f0ur unni s\u00f6ng og fegur\u00f0 l\u00edfsins. S\u00f6ngurinn kveikir t\u00f6fra \u00ed hj\u00f6rtum okkar \u00feega vi\u00f0 opnum munninn og leyfum vindbelgnum a\u00f0 bl\u00e1sa um hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri barkans. \u00de\u00e1 gerist eitthva\u00f0 \u00ed s\u00e1linni sem skapar samhlj\u00f3m og f\u00e6r hj\u00f6rtun til a\u00f0 titra. Sk\u00e1ldin yrkja me\u00f0 or\u00f0um og hlj\u00f3mum og gle\u00f0ja okkur alla daga og n\u00fa nj\u00f3tum vi\u00f0 fegur\u00f0arinnar h\u00e9r \u00ed \u00feessum fagra sal \u00fear sem st\u00f3rbroti\u00f0 listaverk t\u00falkar l\u00edfsg\u00f6nguna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fdna mestu pers\u00f3nu mannkyss\u00f6gunnar \u00ed lj\u00f3sum og dimmum litum. Kristur lif\u00f0i fegursta l\u00edfi sem lifa\u00f0 hefur veri\u00f0 og hann gekk \u00ed gegnum mestu \u00fej\u00e1ningu allra t\u00edma er hann lei\u00f0 \u00e1 krossi. Gu\u00f0 reisti hann upp fr\u00e1 dau\u00f0um og \u00feess vegna komum vi\u00f0 saman \u00ed h\u00fasi hans \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum l\u00e1tna.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 felum Sigr\u00ed\u00f0i Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur honum sem h\u00fan var v\u00edg\u00f0i \u00ed heilagri sk\u00edrn sem \u00f3m\u00e1lga barn og bi\u00f0jum henni blessunar um lei\u00f0 og vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hennar og st\u00f6rf.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hennar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">S\u00e1lmarnir 121:1-8<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">1<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>\u00c9g hef augu m\u00edn til fjallanna,<br \/>\nhva\u00f0an kemur m\u00e9r hj\u00e1lp?<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">2<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Hj\u00e1lp m\u00edn kemur fr\u00e1 Drottni,<br \/>\nskapara himins og jar\u00f0ar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">3<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Hann mun ekki l\u00e1ta f\u00f3t \u00feinn skri\u00f0na,<br \/>\nv\u00f6r\u00f0ur \u00feinn blundar ekki.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">4<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,<br \/>\nhann, v\u00f6r\u00f0ur \u00cdsraels.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn er v\u00f6r\u00f0ur \u00feinn,<br \/>\nDrottinn sk\u00fdlir \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhann er \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">6<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Um daga mun s\u00f3larhitinn ekki vinna \u00fe\u00e9r mein<br \/>\nn\u00e9 heldur tungli\u00f0 um n\u00e6tur.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">7<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn mun vernda \u00feig fyrir \u00f6llu illu,<br \/>\nhann mun vernda s\u00e1l \u00fe\u00edna.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">8<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><i>Drottinn mun var\u00f0veita \u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu<br \/>\nh\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.&nbsp;<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><br \/>\n<\/span><\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">Matteusargu\u00f0spjall 5:1-48<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;\"><strong>Fjallr\u00e6\u00f0an<\/strong><\/div>\n<p><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">1<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\">\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans.&nbsp;<\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">2<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\">\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<br \/>\n<\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">3<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">4<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru syrgjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">5<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">6<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">7<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru miskunnsamir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">8<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru hjartahreinir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">9<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<br \/>\n<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">10<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\"><i>S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.&nbsp;<\/i><\/span><span style=\"color:#333333;\"><br \/>\n<\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">11<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\">S\u00e6l eru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 er menn sm\u00e1na y\u00f0ur, ofs\u00e6kja og lj\u00faga \u00e1 y\u00f0ur \u00f6llu illu m\u00edn vegna.&nbsp;<\/span><span style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">12<\/sup><\/span><span style=\"color:#333333;\">Gle\u00f0jist og fagni\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 laun y\u00f0ar eru mikil \u00e1 himnum. \u00deannig ofs\u00f3ttu \u00feeir sp\u00e1mennina sem voru \u00e1 undan y\u00f0ur.<br \/>\n<\/span><\/p>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;\"><strong>Salt og lj\u00f3s<\/strong><\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">13<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">14<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">15<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\"><sup style=\"color:#c31f1f;\">16<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\" style=\"color:#333333;\">\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/salmaskra-sigrc3adc3b0ur-davc3adc3b0sdc3b3ttir-copy.pdf\">Salmaskra Sigr\u00ed\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir copy<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir 1919-2014 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og saumakona fr\u00e1 Patreksfir\u00f0i \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu f\u00f6studaginn 16. ma\u00ed 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1286","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1286","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1286"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1286\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1286"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1286"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1286"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}