{"id":1262,"date":"2014-05-09T14:13:09","date_gmt":"2014-05-09T14:13:09","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1262"},"modified":"2014-05-09T14:13:09","modified_gmt":"2014-05-09T14:13:09","slug":"stefania-olof-magnusdottir-1917-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1262","title":{"rendered":"Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f Magn\u00fasd\u00f3ttir 1917-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/stefanc3ada-c3b3lc3b6f.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1263\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/stefanc3ada-c3b3lc3b6f.png\" alt=\"Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f\" width=\"174\" height=\"199\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f Magn\u00fasd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p><strong>\u201eL\u00d3A\u201c<\/strong><\/p>\n<p>h\u00fasfreyja, verkakona, sk\u00e1ti<\/p>\n<p>1917-2014<\/p>\n<p>H\u00f6rpug\u00f6tu 9 og 13B<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studagin 9. ma\u00ed 2014 kl. 13 (f\u00e6\u00f0ingardag eiginmanns hennar).<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 og <strong>lesi\u00f0<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ne\u00f0anm\u00e1ls eru svo ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1262-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/lc3b3a_take_1.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/lc3b3a_take_1.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/lc3b3a_take_1.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>N\u00e1\u00f0<\/strong> . . .<\/p>\n<p>N\u00fa standa yfir svonefndir gle\u00f0idagar \u00ed kirkjunni en dagarnir fr\u00e1 p\u00e1skum til uppstigningardags heita svo. Dagana 40 eftir p\u00e1ska s\u00e1u fylgjendur Jes\u00fa hann upprisinn og gl\u00f6ddust mj\u00f6g. Hann birtist \u00feeim aftur og aftur og eftir a\u00f0 hann hvarf \u00feeim sj\u00f3num \u00e1 uppstigningardag f\u00f3ru \u00feeir um allt og s\u00f6g\u00f0u fr\u00e1 gle\u00f0i sinni. Bo\u00f0skapur \u00feeirra var og er fagna\u00f0arerindi, gle\u00f0it\u00ed\u00f0indi sem heimurinn \u00fearfnast a\u00f0 heyra enn \u00ed dag.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er verkefni og vi\u00f0 finnum \u00fea\u00f0 \u00f6ll \u00e1 eigin skinni a\u00f0 \u00farlausnarefnin eru krefjandi og vi\u00f0 vanb\u00fain til margs sem l\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okkur a\u00f0 leysa \u00far. Vi\u00f0 finnum til vanm\u00e1ttar og vitum a\u00f0 l\u00edf okkar er allt anna\u00f0 en fullkomi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 sem vi\u00f0 lifum \u00ed er fl\u00f3kinn vefur \u00fear sem grunnstofnanir skipta miklu, fj\u00f6lskylda, sk\u00f3li, vinna, atvinnul\u00edf og f\u00e9lagsl\u00edf. \u00cd fj\u00f6lskyldunni er lag\u00f0ur grunnur a\u00f0 fars\u00e6lu l\u00edfi. B\u00f6rn l\u00e6ra \u00fear fyrstu samskipti vi\u00f0 a\u00f0ra, l\u00e6ra a\u00f0 vir\u00f0a a\u00f0ra, komast af \u00ed samf\u00e9lagi annarra. Sk\u00f3larnir vinna sitt mikilv\u00e6ga starf og atvinnul\u00edfi\u00f0 tekur svo vi\u00f0. En svo er \u00fea\u00f0 f\u00e9lagsstarfi\u00f0 sem skiptir ekki hva\u00f0 minnstu m\u00e1li. Kirkjan, \u00ed\u00fer\u00f3ttahreyfingin og sk\u00e1taf\u00e9l\u00f6gin skipta miklu m\u00e1li a\u00f0eins nokkur d\u00e6mi s\u00e9u nefnd.<\/p>\n<p>Ung kynntist L\u00f3a sk\u00e1tastarfi og var sannur sk\u00e1ti alla \u00e6vin. \u00dear \u00e1tti h\u00fan g\u00f3\u00f0a vini og naut \u00feess a\u00f0 starfa og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed uppbygglegu starfi \u00fear sem leikur og s\u00f6ngur er \u00ed h\u00e1vegum haf\u00f0ur. Sj\u00e1lfur var \u00e9g sk\u00e1ti sem barn og unglingur og \u00e1 skemmtilegar minningar af fundum, \u00fatilegum og fer\u00f0al\u00f6gum. \u00dea\u00f0 var svo gaman a\u00f0 leika s\u00e9r. J\u00e1, a\u00f0 leika s\u00e9r. Er \u00fea\u00f0 ekki tilgangur l\u00edfsins? Eigum vi\u00f0 ekki a\u00f0 leika okkur alla \u00e6vina? Hvernig v\u00e6ri ef vi\u00f0 leyf\u00f0um okkur meiri leik og gle\u00f0i \u00ed sta\u00f0 \u00fer\u00fagandi alv\u00f6ru og \u00e1hyggju \u00ed dagsins amstri?<\/p>\n<p>\u201eLeikur eins og sk\u00e1k getur haft tilgang eins og til d\u00e6mis a\u00f0 skemmta m\u00f6nnum, \u00fej\u00e1lfa r\u00f6khugsun og einbeitingu, safna stigum, vinna m\u00f3t. \u00deessi tilgangur leiksins er algerlega utan vi\u00f0 leikinn sj\u00e1lfan og er til vegna \u00feess a\u00f0 sk\u00e1kin er leikin af m\u00f6nnum sem lifa s\u00ednu l\u00edfi utan vi\u00f0 taflbor\u00f0i\u00f0 og l\u00e1ta sig var\u00f0a um \u00feroska sinn, hei\u00f0ur og \u00f6nnur g\u00e6\u00f0i. Sama m\u00e1 segja um a\u00f0ra leiki sem menn leika. Ef \u00feeir hafa tilgang \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir eru hluti af einhverju st\u00e6rra samhengi, ver\u00f6ld sem n\u00e6r \u00fat fyrir leikinn sj\u00e1lfan.\u201c (Atli Har\u00f0arson &#8211; af vefnum)<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 spyr \u00e9g um l\u00edfsleikinn sj\u00e1lfan, hefur hann ekki tilgang vegna \u00feess a\u00f0 hann er hluti af st\u00e6rra samhengi? Vi\u00f0 tengjumst \u00f6ll \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt og svo er Hann til sem \u00f6llu gaf l\u00edf og setti l\u00edfsleikinn af sta\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00e9r hafa \u00ferj\u00fa hugt\u00f6k bori\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma, gle\u00f0idagar, fagna\u00f0arerindi og l\u00edfsleikur og af \u00feeim m\u00e1 lei\u00f0a or\u00f0i l\u00edfsgle\u00f0i.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 komum h\u00e9r saman til a\u00f0 gle\u00f0jast og \u00feakka fyrir l\u00edf m\u00e6trar konu sem vi\u00f0 kve\u00f0jum me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. \u00cd dag er li\u00f0in 105 \u00e1r fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu eiginmanns hennar, Gunnars, sem l\u00e9st 1984.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f h\u00e9t h\u00fan og f\u00e6ddist \u00e1 H\u00f3li \u00ed \u00d3lafsfir\u00f0i 25. jan\u00faar 1917. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu S\u00f3lt\u00fani 30. apr\u00edl 2014.<\/p>\n<p>Foreldrar L\u00f3u eins og h\u00fan var k\u00f6llu\u00f0 voru Gu\u00f0r\u00fan J\u00f3na \u00d3lafsd\u00f3ttir og Magn\u00fas Gr\u00edmur \u00d3lafsson. Fa\u00f0ir hennar l\u00e9st fr\u00e1 barnah\u00f3pnum og \u00feeim var komi\u00f0 fyrir hj\u00e1 g\u00f3\u00f0um fj\u00f6lskyldum, L\u00f3u hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ursystur sinni og manni hennar, Marsibil \u00d3lafsd\u00f3ttur og Kristni \u00deorsteinssyni.<\/p>\n<p>F\u00f3stursystir L\u00f3u var \u00d3l\u00f6f Kristinsd\u00f3ttir og alsystkyn voru, Ing\u00f3lfur, Sigr\u00ed\u00f0ur Krist\u00edn, P\u00e1l\u00edna, Magnea, Steingr\u00edmur, Gunnlaugur og Margr\u00e9t sem \u00f6ll eru l\u00e1tin.<\/p>\n<p>18. desember 1937 giftist L\u00f3a, Gunnari J\u00f3sefsyni f. 9. ma\u00ed 1909, d. 13. okt.1984, hann var fr\u00e1 Atlast\u00f6\u00f0um \u00ed Flj\u00f3tav\u00edk \u00e1 Hornstr\u00f6ndum. \u00dear er mikilfengleg og f\u00f6gur n\u00e1tt\u00fara og \u00f6flin sterk \u00ed sj\u00f3 og vindum. Hornstrandir hafa f\u00f3stra\u00f0 marga sterka einstaklinga, karla og konur, \u00ed aldanna r\u00e1s en \u00fea\u00f0 var Geirmundur Heljarskinn sem nam Flj\u00f3tav\u00edk for\u00f0um daga.<\/p>\n<p>L\u00f3a og Gunnar eignu\u00f0ust 6 b\u00f6rn og t\u00f3ku a\u00f0 s\u00e9r systurd\u00f3ttir L\u00f3u 6 \u00e1ra gamla.<\/p>\n<p>B\u00f6rn:<\/p>\n<p>1. Sigr\u00ed\u00f0ur Krist\u00edn \u00c1rnad\u00f3ttir, maki Skj\u00f6ldur Stef\u00e1nsson d. 2008. Skj\u00f6ldur \u00e1tti son sem er l\u00e1tinn. Saman \u00e1ttu \u00feau 4 b\u00f6rn: P\u00e1l\u00ednu Hr\u00f6nn, Stef\u00e1n, \u00c1rna \u00d3ttar og Skj\u00f6ld Orra.<\/p>\n<p>2. Kristinn Gunnarsson, maki Svava \u00c1g\u00fastd\u00f3ttir, \u00feau eiga 3 b\u00f6rn: \u00c1slaugu, Gunnar Hauk og Krist\u00ednu Rut.<\/p>\n<p>3. Margr\u00e9t Gunnarsd\u00f3ttir, maki \u00deorl\u00e1kur Baxter, \u00feau eiga 3 b\u00f6rn: Katr\u00ednu, Arnar \u00de\u00f3r og Sigr\u00ed\u00f0i Bj\u00f6rk.<\/p>\n<p>4. J\u00f3n Magn\u00fas Gunnarsson, maki El\u00edn \u00de\u00f3ra Magn\u00fasd\u00f3ttir, \u00feau eiga 3 b\u00f6rn: Magn\u00fas Hrafn, Gunnar Atla og Lindu.<\/p>\n<p>5. Brynd\u00eds Gunnarsd\u00f3ttir, maki Reynir Gu\u00f0mundsson, \u00feau eiga 3 b\u00f6rn: Stefan\u00edu \u00d3l\u00f6fu, Halld\u00f3r Albert og Thelmu Lind.<\/p>\n<p>6. Gunnlaug Krist\u00edn Gunnarsd\u00f3ttir, maki P\u00e1ll Brynjar Arason, \u00feau eiga 2 b\u00f6rn: Brynd\u00edsi \u00d3sk og Ragnar Franz.<\/p>\n<p>7. El\u00edn Halla Gunnarsd\u00f3ttir sem l\u00e9st 5. \u00e1g. 1990, 29 \u00e1ra g\u00f6mu. Eftirlifandi maki hennar er S\u00e6mundur Sigur\u00f0sson. El\u00edn \u00e1tti El\u00edas Inga \u00c1rnason me\u00f0 \u00c1rna P\u00e1lssyni sem var miki\u00f0 hj\u00e1 \u00f6mmu \u00ed Skerj\u00f3.<\/p>\n<p>Afkomendur L\u00f3u og Gunnars eru 86. H\u00fan fylgdist alla t\u00ed\u00f0 vel me\u00f0 h\u00f3pnum s\u00ednum, mundi br\u00fa\u00f0kau\u00f0sdaga barna sinna og afm\u00e6lisdaga afkomenda. \u00dea\u00f0 er miki\u00f0 r\u00edkid\u00e6mi a\u00f0 eiga sl\u00edkan h\u00f3p af myndarlegu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>S\u00e9rtst\u00f6k kve\u00f0ja hefur borist \u201etil elsku \u00f6mmu L\u00f3u\u201c fr\u00e1 Thelmu Lind, Hjalta og Michael Reyni sem eru st\u00f6dd \u00e1 Sp\u00e1ni. Einnig fr\u00e1 lang\u00f6mmub\u00f6rnum L\u00f3u, \u00feeim Stellu Finnbogad\u00f3ttur sem er st\u00f6dd \u00ed Danm\u00f6rku og H\u00e1koni \u00de\u00f3r og Dan\u00edel Frey \u00e1 Akureyri.<\/p>\n<p>L\u00f3a var g\u00f3\u00f0 m\u00f3\u00f0ir sem g\u00e6tti sinna vel og var vinur barna sinna. \u00deeim \u00fe\u00f3tti gott a\u00f0 tala vi\u00f0 m\u00f6mmu e\u00f0a skrifa henni br\u00e9f og f\u00e1 hj\u00e1 henni r\u00e1\u00f0. H\u00fan var alltaf til sta\u00f0ar. \u00deannig var \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00f6rgum heimilum for\u00f0um og vi\u00f0 erum m\u00f6rg sem \u00feekkjum \u00f6ryggi\u00f0 sem skapa\u00f0ist af \u00fev\u00ed a\u00f0 vita af m\u00f6mmu heima me\u00f0 hl\u00fdjan fa\u00f0m, g\u00f3\u00f0an mat, bakkelsi, hrein f\u00f6t, sum saumu\u00f0 af henni sj\u00e1lfri og hl\u00fdja heimaprj\u00f3na\u00f0a sokka. \u00deetta voru g\u00f3\u00f0ir dagar.<\/p>\n<p>L\u00f3a \u00f3lst upp \u00ed \u00d3lafsfir\u00f0i og \u00e1 Siglufir\u00f0i, \u00fear vann h\u00fan m.a. \u00ed s\u00edld. \u00dear byrju\u00f0u h\u00fan og Gunnar b\u00faskap, svo fluttu \u00feau til Akureyrar. Gunnar var fj\u00f6lh\u00e6fur ma\u00f0ur, h\u00fasasmi\u00f0ur, skipasmi\u00f0ur og kafari og rak fyrirt\u00e6ki fyrir nor\u00f0an. Eftir a\u00f0 \u00feau fluttu til Reykjav\u00edkur 1955 vann h\u00fan \u00fdmis st\u00f6rf svo sem \u00ed \u00cdsbirninum, Flugeldh\u00fasinu og H\u00e1sk\u00f3alb\u00ed\u00f3i. Gunnar sem haf\u00f0i reki\u00f0 slipp \u00e1 Akureyri \u00e1\u00f0ur en \u00feau fluttu su\u00f0ur vann fyrst hj\u00e1 BP og s\u00ed\u00f0an hj\u00e1 Vita- og hafnarm\u00e1lastofnun og rak tr\u00e9sm\u00ed\u00f0averkst\u00e6\u00f0i inn vi\u00f0 H\u00f6f\u00f0a um t\u00edma. Hann d\u00f3 \u00far krabbameini 1984 og h\u00fan haf\u00f0i \u00fev\u00ed veri\u00f0 ekkja \u00ed 30 \u00e1r er h\u00fan l\u00e9st \u00e1 98. aldurs\u00e1ri.<\/p>\n<p>\u00deau bjuggu fyrst \u00e1 Frammnesvegi 30 og svo \u00e1 H\u00f6rpug\u00f6tu 9 og 13b \u00fear sem \u00e1\u00f0ur var G\u00fastab\u00fa\u00f0.<\/p>\n<p>L\u00f3a var alla t\u00ed\u00f0 virkur sk\u00e1ti og naut \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 \u00ed \u00feeim g\u00f3\u00f0a og uppbyggilega f\u00e9lagsskap. \u00c1 efri \u00e1rum var h\u00fan \u00ed St. Georgs gildinu og \u00e1tti \u00fear marga g\u00f3\u00f0a vini.<\/p>\n<p>L\u00f3a var h\u00f3gv\u00e6r manneskja og yfirvegu\u00f0 sem trana\u00f0i s\u00e9r ekki fram. H\u00fan gat veri\u00f0 glettin og gamans\u00f6m og sag\u00f0i t.a.m. vi\u00f0 b\u00f6rnin a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti l\u00f3\u00f0 \u00fati \u00ed b\u00e6 og v\u00edsa\u00f0i \u00fear me\u00f0 til grafar sinnar \u00ed Gufunesi.<\/p>\n<p>H\u00fan lag\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 upp \u00far \u00fev\u00ed vi\u00f0 b\u00f6rnin a\u00f0 \u00feau \u00e6ttu a\u00f0 standa sig, vera hei\u00f0arleg og dugleg. H\u00fan kenndi \u00feeim grunngildi \u00feau sem \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag okkar hefur byggt \u00e1 \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e1r. Rifja\u00f0 var upp \u00feegar El\u00edn heitin var stelpa a\u00f0 h\u00fan safna\u00f0i b\u00f6rnum saman fyrir utan heimili sitt og leiddi svo h\u00f3pinn \u00ed sunnudagask\u00f3lann \u00ed Neskirkju. \u00cd hverfinu \u00feekktu \u00f6ll b\u00f6rn konuna \u00ed H\u00f6rpug\u00f6tunni sem \u00feau k\u00f6llu\u00f0u \u00f6mmu L\u00f3u. Sj\u00e1lf s\u00f3tti h\u00fan starf \u00ed Neskirkju og \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00fear \u00e1 margan h\u00e1tt \u00e1samt \u00f6\u00f0rum konum um \u00e1rabil, f\u00f3r \u00ed safna\u00f0arfer\u00f0ir og t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi kirkjunnar fyrir eldri borgara.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hj\u00e1lpu\u00f0u til heima og svo b\u00e1ru \u00feau \u00fat Morgunbla\u00f0i\u00f0 og svo t\u00f3k L\u00f3a vi\u00f0 og sinnti \u00fev\u00ed til 1983. H\u00fan l\u00e9t sig ekki muna um sporin \u00ed hverfinu og var \u00e1valt vi\u00f0b\u00fain til g\u00f3\u00f0ra verka eins sk\u00e1ta er si\u00f0ur. Og n\u00fa berst Mogginn \u00ed h\u00fas me\u00f0 minningargreinum um m\u00e6ta konu sem var tr\u00fa \u00ed sm\u00e1u sem sem st\u00f3ru og vann s\u00edn verk af al\u00fa\u00f0 og gle\u00f0i. H\u00fan s\u00e1 um sig sj\u00e1lf eftir a\u00f0 h\u00fan var\u00f0 ekkja og eftir dv\u00f6lina \u00e1 Felli \u00ed Skipholti var h\u00fan \u00e1 V\u00edfisst\u00f6\u00f0um um t\u00edma og naut \u00fear b\u00e6\u00f0i fegur\u00f0ar umhverfis og \u00fej\u00f3nustu g\u00f3\u00f0s f\u00f3lks. \u00de\u00e1 f\u00f3r h\u00fan \u00ed S\u00f3lt\u00fan en \u00fear var h\u00fan stuttan t\u00edma, a\u00f0eins 3 s\u00f3lahringa.<\/p>\n<p>L\u00f3a var barng\u00f3\u00f0 og v\u00e6n manneskja en henni var ekki fisja\u00f0 saman. H\u00fan gat veri\u00f0 h\u00f6r\u00f0 af s\u00e9r eins og \u00feegar h\u00fan l\u00e1 heima me\u00f0 sprungin botlanga \u00ed 10 daga og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 l\u00e1ta s\u00e9 batna en var\u00f0 svo a\u00f0 fara \u00ed a\u00f0ger\u00f0 \u00feegar verkirnir voru or\u00f0nir \u00f3b\u00e6rilegir.<\/p>\n<p>H\u00fan prj\u00f3na\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0, sauma\u00f0i f\u00f6t \u00e1 h\u00f3pinn sinn, var vandvirk og vinnus\u00f6m \u00ed hv\u00edvetna. \u201eH\u00fan mamma var alltaf a\u00f0 punta mig \u00feegar \u00e9g var stelpa\u201c, segir Sigr\u00ed\u00f0ur Krist\u00edn og l\u00fdsir \u00fea\u00f0 vel elsku hennar og gle\u00f0i yfir b\u00f6rnunum sem h\u00fan lif\u00f0i fyrir.<\/p>\n<p>Stefan\u00eda (eins og h\u00fan var k\u00f6llu\u00f0 af \u00feeim sem \u00f6nnu\u00f0ust hana) dvaldi \u00e1 Dvalarheimilinu Felli \u00ed Skipholti s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin. \u00dear var hugsa\u00f0 vel um hana og \u00e1 starfsf\u00f3lki\u00f0 miklar \u00feakkir skili\u00f0 fyrir umhyggju og elskusemi. Dagarnir \u00ed S\u00f3lt\u00fani ur\u00f0u \u00fer\u00edr eins og fyrr sag\u00f0i. Margt getur gerst \u00e1 \u00ferem d\u00f6gum. Vi\u00f0 vitum aldrei hven\u00e6r kalli\u00f0 kemur en \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera \u00e1 n\u00e6stu gr\u00f6sum hj\u00e1 f\u00f3lki sem komi\u00f0 er vel \u00e1 t\u00edr\u00e6\u00f0isaldur.<\/p>\n<p>Kristur var \u00ferj\u00e1 daga \u00ed gr\u00f6f sinni uns Gu\u00f0 reisti hann upp. Me\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum og upprisu sigra\u00f0i Kristur dau\u00f0ann sj\u00e1lfan, mesta \u00f3vin mannsins. \u00dea\u00f0 var lokaleikur Gu\u00f0s \u00ed tafli l\u00edfsins, m\u00e1tleikur \u00ed l\u00edfsleiknum mikla. Gu\u00f0 hefur \u00ed Kristi unni\u00f0 sk\u00e1kina og vi\u00f0 pe\u00f0in f\u00f6gnum \u00e1 gle\u00f0id\u00f6gum yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga l\u00edfi\u00f0 \u00ed Kristi, eiga l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa sem er vettvangur l\u00edfsleiksins.<\/p>\n<p>Nj\u00f3tum l\u00edfsins og leikum okkur. Gu\u00f0 gle\u00f0st \u00e1n efa yfir b\u00f6rnum s\u00ednum sem kunna a\u00f0 leika s\u00e9r eins og h\u00fan L\u00f3a gladdist yfir s\u00ednum b\u00f6rnum \u00ed \u00feeirra leit a\u00f0 \u00feroska og betri skilningi \u00e1 l\u00edfinu.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er leikur \u00e1 taflbor\u00f0i Gu\u00f0s. Nj\u00f3tum \u00feess a\u00f0 vera til og \u00fe\u00f6kkum fyrir a\u00f0 hafa \u00e1tt L\u00f3u sem samfer\u00f0akonu.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Stefan\u00edu \u00d3lafar Magn\u00fasd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>Sign yfir \u00ed forkirkju. Kaffi og svo \u00ed gar\u00f0. R\u00e6\u00f0a \u00e1 vefnum.<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">S\u00e1lmarnir 121:1-8<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p style=\"color:#333333;\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">1<\/span>Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/>\n<i>\u00c9g hef augu m\u00edn til fjallanna,<br \/>\nhva\u00f0an kemur m\u00e9r hj\u00e1lp?<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">2<\/span><i>Hj\u00e1lp m\u00edn kemur fr\u00e1 Drottni,<br \/>\nskapara himins og jar\u00f0ar.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">3<\/span><i>Hann mun ekki l\u00e1ta f\u00f3t \u00feinn skri\u00f0na,<br \/>\nv\u00f6r\u00f0ur \u00feinn blundar ekki.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">4<\/span><i>Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,<br \/>\nhann, v\u00f6r\u00f0ur \u00cdsraels.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">5<\/span><i>Drottinn er v\u00f6r\u00f0ur \u00feinn,<br \/>\nDrottinn sk\u00fdlir \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhann er \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">6<\/span><i>Um daga mun s\u00f3larhitinn ekki vinna \u00fe\u00e9r mein<br \/>\nn\u00e9 heldur tungli\u00f0 um n\u00e6tur.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">7<\/span><i>Drottinn mun vernda \u00feig fyrir \u00f6llu illu,<br \/>\nhann mun vernda s\u00e1l \u00fe\u00edna.<br \/>\n<\/i><span style=\"color:#c31f1f;\">8<\/span><i>Drottinn mun var\u00f0veita \u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu<br \/>\nh\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.<\/i><\/span><\/p>\n<table style=\"color:#333333;\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">Filipp\u00edbr\u00e9fi\u00f0 4:4-7<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BibleUpdatepanel\" style=\"color:#333333;\">\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BiblePanel\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">4<\/span>Veri\u00f0 \u00e1vallt gl\u00f6\u00f0 \u00ed Drottni. \u00c9g segi aftur: Veri\u00f0 gl\u00f6\u00f0.\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">5<\/span>Lj\u00faflyndi ykkar ver\u00f0i kunnugt \u00f6llum m\u00f6nnum. Drottinn er \u00ed n\u00e1nd.\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">6<\/span>Veri\u00f0 ekki hugsj\u00fak um neitt heldur geri\u00f0 \u00ed \u00f6llum hlutum \u00f3skir ykkar kunnar Gu\u00f0i me\u00f0 b\u00e6n og bei\u00f0ni og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0.\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">7<\/span>Og fri\u00f0ur Gu\u00f0s, sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi, mun var\u00f0veita hj\u00f6rtu ykkar og hugsanir ykkar \u00ed Kristi Jes\u00fa.<br \/>\n<\/span><\/div>\n<div><\/div>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BibleUpdatepanel\">\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BiblePanel\">\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color:#c31f1f;\">J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14:1-6<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;\">Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><span style=\"color:#c31f1f;\">1<\/span>\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">2<\/span>\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">3<\/span>\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.\u00a0<span style=\"color:#c31f1f;\">4<\/span>Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<span style=\"color:#c31f1f;\">5<\/span>T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<span style=\"color:#c31f1f;\">6<\/span>Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/span><\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/salmaskra-stefanc3ada-c3b3lc3b6f-copy.pdf\">Salmaskra Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f copy<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Stefan\u00eda \u00d3l\u00f6f Magn\u00fasd\u00f3ttir \u201eL\u00d3A\u201c h\u00fasfreyja, verkakona, sk\u00e1ti 1917-2014 H\u00f6rpug\u00f6tu 9 og 13B &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studagin 9. ma\u00ed 2014 kl. 13 (f\u00e6\u00f0ingardag eiginmanns hennar). R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ne\u00f0anm\u00e1ls eru svo ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1in.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1262","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1262","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1262"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1262\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1262"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1262"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1262"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}