{"id":1253,"date":"2014-05-08T14:01:01","date_gmt":"2014-05-08T14:01:01","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1253"},"modified":"2014-05-08T14:01:01","modified_gmt":"2014-05-08T14:01:01","slug":"magnus-gudmundsson-1925-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1253","title":{"rendered":"Magn\u00fas Gu\u00f0mundsson 1925-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/magnc3bas-guc3b0m.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/magnc3bas-guc3b0m.png?w=211\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1254\" width=\"211\" height=\"300\" alt=\"Magn\u00fas Gu\u00f0m\"><\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Magn\u00fas Gu\u00f0mundsson<\/b><\/p>\n<p>h\u00fasateiknari fr\u00e1 A\u00f0alv\u00edk<\/p>\n<p>1925-2014<\/p>\n<p>Kvisthaga 3<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 8. ma\u00ed 2014 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0st og ritningarlestrar.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<audio class=\"wp-audio-shortcode\" id=\"audio-1253-1\" preload=\"none\" style=\"width: 100%;\" controls=\"controls\"><source type=\"audio\/mpeg\" src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/magnc3bas-guc3b0m.mp3?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/magnc3bas-guc3b0m.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2014\/05\/magnc3bas-guc3b0m.mp3<\/a><\/audio>\n<p><strong>Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n<p><strong>N\u00e1\u00f0<\/strong> . . .<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u201e . . . fegurst er \u00ed A\u00f0alv\u00edk.\u201c<\/p>\n<p>Hann gengur berf\u00e6ttur \u00ed hv\u00edtum sandinum og fyrir Kleifarh\u00e1ls sem skilur a\u00f0 v\u00edkurnar. \u00dear er skafl \u00fe\u00f3tt komi\u00f0 s\u00e9 langt fram \u00e1 sumar. S\u00f3lin er heit \u00feennan dag. Um kv\u00f6ldi\u00f0 horfir hann \u00e1 s\u00f3lina snerta haffl\u00f6tinn og r\u00edsa upp \u00e1 n\u00fd \u00fear sem V\u00edkin veit m\u00f3t vestri. Hann haf\u00f0i \u00fe\u00e1 gengi\u00f0 \u00e1 Straumnesfjall \u00ed n\u00fdju strigask\u00f3num \u00far kaupf\u00e9laginu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og s\u00e9\u00f0 til&nbsp; Gr\u00e6nlandsj\u00f6kuls \u00ed hyllingum vi\u00f0 sj\u00f3ndeildarhringinn. \u00deetta er minning sem greipt er \u00ed huga hans, ein fegursta upplifum \u00e6sku\u00e1ranna.<\/p>\n<p>Og n\u00fa stendur hann h\u00e9r vi\u00f0 altari Neskirkju og kve\u00f0ur einn af sonum A\u00f0alv\u00edkur.<\/p>\n<p>\u00deetta var um mi\u00f0jan sj\u00f6unda \u00e1ratug li\u00f0innar aldar en \u00fe\u00e1 var A\u00f0alv\u00edk ekki lengur \u00ed bygg\u00f0 en sumt af f\u00f3lkinu sem \u00fear haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 var sest a\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i e\u00f0a h\u00e9r fyrir sunnan, \u00ed Reykjav\u00edk, Keflav\u00edk og v\u00ed\u00f0ar, myndarlegt og duglegt f\u00f3lk upp til h\u00f3pa.<\/p>\n<p>Magn\u00fas f\u00e6ddist a\u00f0 \u00deverdal \u00ed A\u00f0alv\u00edk, Sl\u00e9ttuhreppi, Nor\u00f0ur-\u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslu, 18. okt\u00f3ber 1925.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Gu\u00f0mundur Snorri Finnbogason, f\u00e6ddur a\u00f0 S\u00e6b\u00f3li \u00ed A\u00f0alv\u00edk og kona hans J\u00f3n\u00edna Sveinsd\u00f3ttir, f\u00e6dd \u00ed Selhaga \u00e1 Sk\u00f6r\u00f0um, Austur H\u00fanavatnss\u00fdslu.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur Snorri og J\u00f3n\u00edna fluttu a\u00f0 \u00deverdal \u00ed A\u00f0alv\u00edk \u00e1ri\u00f0 1920 og bjuggu \u00fear til \u00e1rsins 1945. \u00de\u00e1 brug\u00f0u \u00feau b\u00fai og fluttu til Reykjav\u00edkur og bjuggu \u00fear til \u00e6viloka.<\/p>\n<p>Systkini Magn\u00fasar voru Finnbogi Ingimar, Gar\u00f0ar Hannes, Margr\u00e9t S\u00f3lveig og Sveinn Benedikt og Sturla J\u00f3sef Sigur\u00f0ur Sturluson (f\u00f3sturbr\u00f3\u00f0ir). \u00deau eru \u00f6ll l\u00e1tin. J\u00f3n\u00edna Gar\u00f0arsd\u00f3ttir, sonard\u00f3ttir \u00feeirra Gu\u00f0mundar Snorra og J\u00f3n\u00ednu \u00f3lst upp hj\u00e1 \u00feeim til fullor\u00f0ins\u00e1ra.<\/p>\n<p>Hann kom hinga\u00f0 su\u00f0ur tv\u00edtugur og kynntist l\u00edfsf\u00f6runauti s\u00ednum og kv\u00e6ntist 1. jan\u00faar 1950 Hallveigu Hannesd\u00f3ttur, H\u00f6llu, f\u00e6ddri 3. okt\u00f3ber 1927. H\u00fan l\u00e9st 24. ma\u00ed 2013. Foreldrar hennar voru Gu\u00f0r\u00fan Gu\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, f\u00e6dd a\u00f0 Kolbeinsst\u00f6\u00f0um \u00ed Miklaholtshreppi og Hannes El\u00edsson fr\u00e1 Berserkseyri \u00ed Eyrarsveit \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi.<\/p>\n<p>Fyrsta barni\u00f0, Gu\u00f0r\u00fan, leit dagsins lj\u00f3s 13. j\u00fal\u00ed 1950, eiginma\u00f0ur hennar er Halld\u00f3r Gunnar Halld\u00f3rsson. \u00de\u00e1 f\u00e6ddust \u00feeim tv\u00edburar f. 24.j\u00fal\u00ed 1957, Gylfi og Gauti. Eiginkona Gylfa er El\u00edn Soff\u00eda \u00d3lafsd\u00f3ttir og eiginkona Gauta var Hanna Sofie J\u00f6rgensen, sem l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 2006.<\/p>\n<p>Barnab\u00f6rnin eru Gu\u00f0r\u00fan Eygl\u00f3 Berg\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir, eiginma\u00f0ur hennar er Gunnar Wiencke. Magn\u00fas Halld\u00f3rsson, unnusta hans er Jenn\u00fd L\u00e1ra Lund. Magn\u00fas og Ragnar Gautasynir og Tryggvi og Egill Gylfasynir.<\/p>\n<p>Barnabarnab\u00f6rn H\u00f6llu og Magn\u00fasar eru: Viktor\u00eda Rut, Matth\u00edas Ragnar, J\u00f3akim Enok, Dagbj\u00f6rt Eva og Ronja S\u00f3ley.<\/p>\n<p>Magn\u00fas stunda\u00f0i n\u00e1m vi\u00f0 I\u00f0nsk\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk og lauk \u00fea\u00f0an pr\u00f3fi \u00ed h\u00fasasm\u00ed\u00f0i 1948. \u00deau Halla bygg\u00f0u s\u00e9r h\u00fas a\u00f0 Kvisthaga 3 \u00ed Reykjav\u00edk og bjuggu \u00fear alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deau h\u00f6f\u00f0u a\u00f0eins veri\u00f0 gift \u00ed 2 \u00e1r \u00feegar Magn\u00fas h\u00e9lt utan til n\u00e1ms 1952 vi\u00f0 T\u00e6knisk\u00f3lann \u00ed Kaupmannah\u00f6fn. Hann var \u00fear \u00ed fj\u00f6gur \u00e1r og \u00fatskrifa\u00f0ist \u00fea\u00f0an sem byggingafr\u00e6\u00f0ingur \u00e1ri\u00f0 1956. \u00deetta var mikil \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1 \u00feeim t\u00edma og \u00feurfti dj\u00fapa elsku og \u00ferautseigju beggja til. \u00deau voru \u00fe\u00e1 b\u00fain a\u00f0 byggja vi\u00f0 Kvisthagann en Halla leig\u00f0i me\u00f0an \u00e1 n\u00e1mi Magn\u00fasar st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 foreldrum s\u00ednum \u00e1 Snorrabraut 35. H\u00fan vann hj\u00e1 Brunab\u00f3taf\u00e9lagi \u00cdslands en Gu\u00f0r\u00fanar g\u00e6ttu amma og afi me\u00f0an mamma var \u00ed vinnunni. Svona gekk \u00feetta fyrir sig og lukka\u00f0ist vel og flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 Magn\u00fas kom til baka litu tv\u00edburarnir dagsins lj\u00f3s.<\/p>\n<p>A\u00f0 loknu n\u00e1mi ytra vann Magn\u00fas sem h\u00fasateiknari. Fyrst um sinn \u00e1 teiknistofu landb\u00fana\u00f0arins og fleiri teiknistofum, en lengst af starfa\u00f0i hann \u00e1 stofu sem hann og f\u00e9lagi hans, \u00deorvaldur Kristmundsson, arkitekt, stofnu\u00f0u.<\/p>\n<p>Magn\u00fas haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 yndi af fer\u00f0al\u00f6gum og \u00fativeru. \u00deau hj\u00f3nin bygg\u00f0u s\u00e9r sumarb\u00fasta\u00f0 vi\u00f0 Hafravatn \u00ed \u00deorm\u00f3\u00f0sdal og undu \u00fear l\u00f6ngum stundum. \u00deau t\u00f3ku vi\u00f0 gr\u00f3\u00f0ursnau\u00f0u og uppbl\u00e1snu landi, hl\u00fa\u00f0u a\u00f0 \u00fev\u00ed og r\u00e6ktu\u00f0u, svo \u00fear er n\u00fa sk\u00f3givaxinn una\u00f0sreitur.<\/p>\n<p>Magn\u00fas haf\u00f0i gaman af lestri b\u00f3ka og s\u00e9rstakt yndi af lj\u00f3\u00f0alestri og t\u00f3nlist. Hann s\u00f6ng um \u00e1rabil \u00ed Karlak\u00f3r Reykjav\u00edkur og kirkjuk\u00f3r D\u00f3mkirkjunnar. \u00deau hj\u00f3nin s\u00f3ttu um margra \u00e1ra skei\u00f0 t\u00f3nleika Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveitar \u00cdslands og stundu\u00f0u leikh\u00fasfer\u00f0ir. \u00deau f\u00f3ru \u00ed sund \u00e1 hverjum degi \u00ed Sundlaug Vesturb\u00e6jar \u00e1 me\u00f0an heilsan leyf\u00f0i og reglulegar g\u00f6ngufer\u00f0ir. Var \u00fe\u00e1 gjarnan gengi\u00f0 me\u00f0fram \u00c6gis\u00ed\u00f0unni, \u00fat \u00ed Skerjafj\u00f6r\u00f0 e\u00f0a \u00fat \u00e1 Seltjarnarnes.<\/p>\n<p>\u00c9g hitti Magn\u00fas stundum \u00e1 f\u00f6rnum vegi og vi\u00f0 t\u00f3kum tal saman. Hann haf\u00f0i gaman af a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 prestinn um \u00fdmis m\u00e1lefni. Kom k\u00edmni hans og glettni \u00fe\u00e1 gjarnan \u00ed lj\u00f3s. Eitt sinn r\u00e6ddum vi\u00f0 eil\u00edf\u00f0arm\u00e1lin \u00ed sturtu \u00ed Vesturb\u00e6jarlauginni. Magn\u00fas og Halla komu stundum til helgihalds h\u00e9r \u00ed Neskirkju. S\u00ed\u00f0ast hitti \u00e9g \u00feau \u00e1 \u00c6gis\u00ed\u00f0unni \u00fear sem \u00feau gengu saman s\u00e9r til heilsub\u00f3tar, gl\u00e6sileg hj\u00f3n og vel \u00e1 sig komin. \u00dea\u00f0 hefur l\u00edklega veri\u00f0 fyrir 2 \u00e1rum e\u00f0a svo en fyrir t\u00e6pu \u00e1ri jar\u00f0s\u00f6ng \u00e9g H\u00f6llu h\u00e9r \u00ed Neskirkju.<\/p>\n<p>\u00c1 sumrin fer\u00f0u\u00f0ust Magn\u00fas og Halla innanlands sem utan. \u00deau heims\u00f3ttu me\u00f0al annars syni s\u00edna og tengdad\u00e6tur \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og haf\u00f0i Magn\u00fas gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 vitja fornra sl\u00f3\u00f0a n\u00e1ms\u00e1ranna \u00fear \u00ed borg. \u00c6skusl\u00f3\u00f0irnar \u00ed A\u00f0alv\u00edk og \u00deverdal skipu\u00f0u alla t\u00ed\u00f0 s\u00e9rstakan sess \u00ed hjarta Magn\u00fasar. \u00deverdalssystkinin f\u00f3ru \u00feanga\u00f0 margar vinnu- og skemmtifer\u00f0ir me\u00f0 fj\u00f6lskyldum s\u00ednum. \u00de\u00e1 var glatt \u00e1 hjalla og sungi\u00f0 fram \u00e1 rau\u00f0a n\u00f3tt og \u00e6t\u00ed\u00f0 sungi\u00f0 S\u00f3l a\u00f0 hafi hn\u00edgur. \u00de\u00e1 titru\u00f0u gjarnan hj\u00f6rtun og augun v\u00f6knu\u00f0u.<\/p>\n<p>Sem fa\u00f0ir og uppalandi lag\u00f0i Magn\u00fas \u00e1herslu \u00e1 hei\u00f0arleika og tr\u00famennsku \u00ed mannlegum samskiptum. Hann tr\u00fa\u00f0i a\u00f0 jafnr\u00e9tti v\u00e6ri m\u00f6nnum fyrir bestu og a\u00f0 forsenda framfara v\u00e6ri menntun. Mikilv\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 b\u00f6rn nytu s\u00f6mu t\u00e6kif\u00e6ra og r\u00e9ttinda til mennta. Hann lif\u00f0i mikla breytingat\u00edma. Hann f\u00e6ddist \u00ed torfb\u00e6 \u00e1 Hornstr\u00f6ndum og var\u00f0 s\u00ed\u00f0an vitni a\u00f0 tunglfer\u00f0um manna og netbyltingunni. Hann var hugvitsma\u00f0ur og hreifst mj\u00f6g af t\u00e6kniframf\u00f6rum samt\u00edmans. \u00deegar hann kom a\u00f0 verkefnum, hugsa\u00f0i hann jafnan hvort og \u00fe\u00e1 hvernig m\u00e6tti b\u00e6ta vinnua\u00f0fer\u00f0ir. Hann hanna\u00f0i og sm\u00ed\u00f0a\u00f0i t.d. f\u00e6riband til a\u00f0 flytja \u00e1bur\u00f0 fr\u00e1 veginum vi\u00f0 Hafravatn og inn \u00e1 sumarb\u00fasta\u00f0arl\u00f3\u00f0ina, \u00feegar sk\u00f3gr\u00e6ktin st\u00f3\u00f0 \u00fear sem h\u00e6st. Magn\u00fas var mj\u00f6g handlaginn og sm\u00ed\u00f0a\u00f0i fj\u00f6lda muna b\u00e6\u00f0i st\u00f3ra og sm\u00e1a, og skipti \u00fe\u00e1 ekki m\u00e1li hvort unni\u00f0 var \u00ed tr\u00e9 e\u00f0a j\u00e1rn. \u00c1 efri \u00e1rum s\u00f3tti hann b\u00f3kbands- og tr\u00e9skur\u00f0arn\u00e1mskei\u00f0 og haf\u00f0i gagn og gaman af.<\/p>\n<p>Magn\u00fas var f\u00e9lagslyndur og gla\u00f0v\u00e6r \u00ed fasi og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a k\u00edmni- og fr\u00e1sagnarg\u00e1fu. S\u00ed\u00f0ustu \u00e1r \u00e6vinnar greindist hann me\u00f0 Alzheimer sj\u00fakd\u00f3m sem a\u00f0 lokum dr\u00f3 hann til dau\u00f0a. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 sj\u00fakd\u00f3murinn \u00e1ger\u00f0ist tapa\u00f0i hann aldrei h\u00famornum. Hann gat \u00feuli\u00f0 upp st\u00f3ru og litlu sp\u00e1mennina, me\u00f0 blik \u00ed auga, s\u00e9r og b\u00f6rnum s\u00ednum til skemmtunar, seinast nokkrum d\u00f6gum fyrir andl\u00e1t sitt. Og alltaf hreif hann s\u00f6ngurinn. \u00deegar b\u00f6rnin komu \u00ed heims\u00f3kn var gjarnan sungi\u00f0 og \u00fe\u00e1 skein s\u00f3l \u00ed sinni og allt var\u00f0 bjart. Hann s\u00f6ng vi\u00f0 raust \u00ed seinasta st\u00f3rafm\u00e6li Sveins br\u00f3\u00f0ur en \u00feeir voru b\u00e1\u00f0ir s\u00f6ngmenn.<\/p>\n<p>Magn\u00fas l\u00e9st \u00e1 Elli- og hj\u00fakrunarheimilinu Grund \u00ed Reykjav\u00edk, 19. apr\u00edl s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn.<\/p>\n<p>\u00c1stvinir Magn\u00fasar vilja \u00feakka l\u00e6knum og hj\u00fakrunarf\u00f3lki \u00e1 Grund fyrir hl\u00fdja og k\u00e6rleiksr\u00edka um\u00f6nnun.<\/p>\n<p>\u00c6vis\u00f3l Magn\u00fasar er gengin til vi\u00f0ar og samkv\u00e6mt kristinni tr\u00fa r\u00eds h\u00fan \u00e1 n\u00fd eins og sumars\u00f3lin \u00fati fyrir V\u00edkinni. Um \u00feennan leyndard\u00f3m og undur hafa sk\u00e1ldin ort eins og t.a.m. Sigur\u00f0ur Krist\u00f3fer P\u00e9tursson en s\u00e1lmur hans Drottinn vakir birtist fyrst \u00ed s\u00e1lmab\u00f3k \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar \u00e1ri\u00f0 sem Magn\u00fas flutti til Reykjav\u00edkur:<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e6vir\u00f6\u00f0ull rennur,<br \/>\nr\u00f6kkvar fyrir sj\u00f3num \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhr\u00e6\u00f0stu eigi, hel er fortjald,<br \/>\nhinum megin birtan er.<br \/>\nH\u00f6ndin, sem \u00feig hinga\u00f0 leiddi,<br \/>\nhimins til \u00feig aftur ber.<br \/>\nDrottinn elskar &#8211; Drottinn vakir<br \/>\ndaga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00deessi er tr\u00fain sem kynsl\u00f3\u00f0irnar hafa \u00f6\u00f0last af styrk og von \u00ed aldanna r\u00e1s, f\u00f3lki\u00f0 sem var\u00f0 a\u00f0 leggja sig allt fram til a\u00f0 komast af vi\u00f0 erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00e1 stuttu sumri vi\u00f0 \u00f3lgandi haf.<\/p>\n<p>Sterkir stofnar uxu upp \u00far V\u00edkinni, duglegt og h\u00e6fileikar\u00edkt f\u00f3lk, m\u00f3ta\u00f0 af m\u00e1ttugum \u00f6flum n\u00e1tt\u00faru og umhverfis og af hvert \u00f6\u00f0ru \u00ed leik og st\u00f6rfum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Magn\u00fas Gu\u00f0mundsson me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk fyrir l\u00edf hans og st\u00f6rf. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<table style=\"color: #333333\">\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color: #c31f1f\">S\u00e1lmarnir 121:1-8<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>1<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>\u00c9g hef augu m\u00edn til fjallanna,<br \/>\nhva\u00f0an kemur m\u00e9r hj\u00e1lp?<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>2<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Hj\u00e1lp m\u00edn kemur fr\u00e1 Drottni,<br \/>\nskapara himins og jar\u00f0ar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>3<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Hann mun ekki l\u00e1ta f\u00f3t \u00feinn skri\u00f0na,<br \/>\nv\u00f6r\u00f0ur \u00feinn blundar ekki.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>4<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,<br \/>\nhann, v\u00f6r\u00f0ur \u00cdsraels.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn er v\u00f6r\u00f0ur \u00feinn,<br \/>\nDrottinn sk\u00fdlir \u00fe\u00e9r,<br \/>\nhann er \u00fe\u00e9r til h\u00e6gri handar.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>6<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Um daga mun s\u00f3larhitinn ekki vinna \u00fe\u00e9r mein<br \/>\nn\u00e9 heldur tungli\u00f0 um n\u00e6tur.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>7<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn mun vernda \u00feig fyrir \u00f6llu illu,<br \/>\nhann mun vernda s\u00e1l \u00fe\u00edna.<br \/>\n<\/i><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>8<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><i>Drottinn mun var\u00f0veita \u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu<br \/>\nh\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu.<\/i><\/span><\/p>\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color: #c31f1f\">Filipp\u00edbr\u00e9fi\u00f0 4:4-7<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BibleUpdatepanel\" style=\"color: #333333\">\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BiblePanel\"><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>4<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Veri\u00f0 \u00e1vallt gl\u00f6\u00f0 \u00ed Drottni. \u00c9g segi aftur: Veri\u00f0 gl\u00f6\u00f0.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Lj\u00faflyndi ykkar ver\u00f0i kunnugt \u00f6llum m\u00f6nnum. Drottinn er \u00ed n\u00e1nd.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>6<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Veri\u00f0 ekki hugsj\u00fak um neitt heldur geri\u00f0 \u00ed \u00f6llum hlutum \u00f3skir ykkar kunnar Gu\u00f0i me\u00f0 b\u00e6n og bei\u00f0ni og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>7<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Og fri\u00f0ur Gu\u00f0s, sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi, mun var\u00f0veita hj\u00f6rtu ykkar og hugsanir ykkar \u00ed Kristi Jes\u00fa.<br \/>\n<\/span><\/div>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BibleUpdatepanel\">\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_BiblePanel\">\n<table>\n<tbody>\n<tr>\n<td>\n<div class=\"bibleref\" style=\"color: #c31f1f\">J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 14:1-6<\/div>\n<\/td>\n<td><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight: bold\"><strong>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/strong><\/div>\n<p><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>1<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>2<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>3<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.&nbsp;<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>4<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>5<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\"><sup>6<\/sup><\/span><span id=\"ContentPlaceHolder1_BibleLabel\">Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/span><\/p>\n<\/div>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/sc3a1lmaskrc3a1-magnc3bas-guc3b0mundsson-copy.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Magn\u00fas Gu\u00f0mundsson copy<\/a><\/p>\n<\/div>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_NewsUpdatepanel\"><\/div>\n<\/div>\n<div id=\"ContentPlaceHolder1_NewsUpdatepanel\" style=\"color: #333333\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&nbsp; Minningaror\u00f0 Magn\u00fas Gu\u00f0mundsson h\u00fasateiknari fr\u00e1 A\u00f0alv\u00edk 1925-2014 Kvisthaga 3 &nbsp; \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 8. ma\u00ed 2014 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0st og ritningarlestrar.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1253","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1253","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1253"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1253\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1253"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1253"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1253"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}