{"id":1228,"date":"2014-04-22T17:00:31","date_gmt":"2014-04-22T17:00:31","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1228"},"modified":"2014-04-22T17:00:31","modified_gmt":"2014-04-22T17:00:31","slug":"ragnheidur-jonsdottir-1932-2104","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1228","title":{"rendered":"Ragnhei\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir 1932-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/mynd-ragnheic3b0ur-jc3b3nsdc3b3ttir-copy.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/mynd-ragnheic3b0ur-jc3b3nsdc3b3ttir-copy.jpg?w=232\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1229\" width=\"232\" height=\"300\" alt=\"Mynd Ragnhei\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir copy\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Ragnhei\u00f0ur<\/b> <strong>J\u00f3nsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p>1932-2014<\/p>\n<p>fv. kaupkona \u00ed T\u00edzkuverslun Gu\u00f0r\u00fanar<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00feri\u00f0judaginn 22. apr\u00edl 2014 kl. 13. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi.<\/p>\n<p>H\u00e6gt er a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 r\u00e6\u00f0una og <strong>lesa<\/strong> hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in, ritningarlestrar og kve\u00f0ja sem flutt var fr\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i og Vigf\u00fasi \u00e1 Laxam\u00fdri er&nbsp;ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>Vi\u00f0 komum h\u00e9r saman \u00ed p\u00e1skavikunni sj\u00e1lfri \u00feegar gle\u00f0idagarnir r\u00edkja en svo er dagarnir 40 nefndir fr\u00e1 p\u00e1skum til uppstigningardags.&nbsp; \u00deeir v\u00edsa til daganna sem postular Jes\u00fa og n\u00e1nustu vinir s\u00e1u hann upprisinn. \u00cd J\u00f3hannesargu\u00f0spjalli segir:\u201eL\u00e6risveinarnir ur\u00f0u gla\u00f0ir er \u00feeir s\u00e1u Drottin.\u201c (J\u00f3h.21.20) Gle\u00f0idagarnir v\u00edsa til \u00feeirrar gle\u00f0i endurfunda og eftirv\u00e6ntingar.<\/p>\n<p>\u00cdhugunartextar kirkjunnar sunnudagana eftir eftir p\u00e1skar eru flestir \u00far J\u00f3hannesargu\u00f0spjalli. Stef gle\u00f0idaganna eru samf\u00e9lagi\u00f0 vi\u00f0 hinn upprisna Drottin \u00ed lj\u00f3si kve\u00f0juro\u00f0a hans \u00feegar hann r\u00e6ddi vi\u00f0 l\u00e6risveina s\u00edna og vini um a\u00f0skilna\u00f0 og endurfundi og komu heilags anda. Einn af textunum er \u00feessi: \u201e\u00c9g er g\u00f3\u00f0i hir\u00f0irinn&#8230; \u00c9g \u00feekki m\u00edna og m\u00ednir \u00feekkja mig&#8230;.\u00c9g gef \u00feeim eil\u00edft l\u00edf.\u201c<br \/>\nN\u00fa \u00feegar sumari\u00f0 n\u00e1lgast og n\u00e1tt\u00faran vaknar af vetrardvala \u00fe\u00e1 er gott a\u00f0 \u00edhuga \u00feessi stef og sj\u00e1 l\u00edfi\u00f0 \u00ed lj\u00f3si p\u00e1skanna sem segja a\u00f0 sorgin s\u00e9 a\u00f0 baki og dau\u00f0inn sigra\u00f0ur. Birta p\u00e1skanna l\u00fdsir upp \u00f6ll \u00e9l og hret, vonbrig\u00f0i og m\u00f3tl\u00e6ti og gefur n\u00fdja von \u00e1 sorgarstund.<\/p>\n<p>\u00c9g er g\u00f3\u00f0i hir\u00f0irinn, sagi\u00f0 Jes\u00fas og hann \u00feekkti l\u00edka Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lminn g\u00f3\u00f0a sem hefst \u00e1 \u00feessum or\u00f0um: Drottinn er minn hir\u00f0ir. Myndm\u00e1li\u00f0 er sk\u00fdrt, Gu\u00f0 er hir\u00f0ir sem g\u00e6tir hjar\u00f0ar sinnar og Jes\u00fas er holdtekja \u00feeirrar umhyggju og elsku \u00e1 me\u00f0al manna.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur var alin upp \u00ed sveit. H\u00fan \u00feekkti sveitast\u00f6rf og umhyggju fyrir d\u00fdrum. H\u00fan var n\u00e6m og umhyggjus\u00f6m gagnvart l\u00edfinu og anna\u00f0ist oft veik d\u00fdr \u00ed \u00e6sku.<\/p>\n<p>K\u00e6rleikurinn var henni \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin og \u00f6mmuhjarta\u00f0 var n\u00e6mt fyrir \u00fe\u00f6rfum barnabarnanna eftir a\u00f0 \u00feau komu eitt af \u00f6\u00f0ru.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur f\u00e6ddist a\u00f0 Sk\u00f6r\u00f0um \u00ed Reykjahverfi,&nbsp; Su\u00f0ur- \u00deingeyjars\u00fdslu 18. desember \u00e1ri\u00f0 1932. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum 10. apr\u00edl 2014.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin J\u00f3n \u00de\u00f3rarinsson b\u00f3ndi&nbsp; fr\u00e1 Val\u00fej\u00f3fsst\u00f6\u00f0um \u00ed M\u00fala\u00feingi, f. 12 n\u00f3vember 1895, d. 29 okt\u00f3ber 1984 og S\u00f3lveig J\u00f3nsd\u00f3ttir fr\u00e1 Sk\u00f6r\u00f0um, f. 30 september 1899, d. 25 desember 1982.<\/p>\n<p>Systkini Ragnhei\u00f0ar eru:&nbsp; \u00de\u00f3rarinn J\u00f3nsson , f. 6 \u00e1g\u00fast 1926, b\u00f3ndi \u00ed Skar\u00f0aborg, giftur Sigurveigu Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur fr\u00e1 Klambraseli en h\u00fan l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 2000. Stef\u00e1n J\u00f3n J\u00f3nsson f. 6 ma\u00ed 1929, d. 30 ar\u00edl 1985, sk\u00f3lastj\u00f3ri og b\u00f3ndi a\u00f0 K\u00fafh\u00f3li \u00ed Austur-Landeyjum. Eftirlifandi eiginkona Stef\u00e1ns er Gu\u00f0r\u00fan L\u00e1ra Sigur\u00f0ard\u00f3ttir fr\u00e1 K\u00fafh\u00f3li&nbsp; \u00ed Austur- Landeyjum. \u00deur\u00ed\u00f0ur Hill, f. 21 febr\u00faar 1935, b\u00fasett \u00ed Bandar\u00edkjunum, gift Bob Hill fyrrum kennara.<\/p>\n<p>Samband systkinanna var alla t\u00ed\u00f0 n\u00e1i\u00f0 og gott og \u00feau fylgdust vel me\u00f0 hvert \u00f6\u00f0ur af \u00feeirri elsku sem \u00feeim var \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin.<\/p>\n<p>Einkabarn Ragnhei\u00f0ar er Ragnar \u00de\u00f3r, f. 4. jan\u00faar 1957, l\u00f6gregluvar\u00f0stj\u00f3ri. Fa\u00f0ir Ragnars var \u00c1rni Scheving t\u00f3nlistama\u00f0ur sem l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 2007.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur var 24 \u00e1ra \u00feegar hann f\u00e6ddist og ekkert var\u00f0 \u00far sambandi \u00feeirra \u00c1rna. Ragnar f\u00e9kk skj\u00f3l \u00ed Sk\u00f6r\u00f0um hj\u00e1 \u00f6mmu og afa og naut \u00fear einstaks atl\u00e6tis og umhyggju alla t\u00ed\u00f0. Mamma fylgdist vel me\u00f0 drengnum s\u00ednum og \u00c1rni haf\u00f0i samband vi\u00f0 hann alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00fan giftist s\u00ed\u00f0ar Sigurbirni Ing\u00fe\u00f3rssyni, t\u00f3nlistarmanni en \u00fea\u00f0 samband var erfitt og stormasamt og lei\u00f0ir skildu. Sigurbj\u00f6rn er l\u00e1tinn (f. 17.7.1934 &#8211; d.6.7.1986)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ragnar eigna\u00f0ist \u00ferj\u00fa b\u00f6rn me\u00f0 fyrri konu sinni, Mar\u00edu Sigmundsd\u00f3ttur en \u00feau eru:<\/p>\n<p>S\u00f3lveig Unnur, f. 24 jan\u00faar 1979, s\u00f6ngkennari \u00ed Vestmanneyjum, unnusti \u00c1sgeir P\u00e1ll \u00c1g\u00fastsson.<\/p>\n<p>\u00c1rni \u00de\u00f3r, f. 26 mars 1983 vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, b\u00fasettur \u00ed Bandar\u00edkjunum, kv\u00e6ntur Viktor\u00edu R\u00f3s G\u00edslad\u00f3ttur. \u00deau senda kve\u00f0ju s\u00edna hinga\u00f0 \u00ed dag og \u00feakka fyrir elskusemi \u00f6mmu og umhyggju alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>Kjartan M\u00e1r, f. 16 j\u00fal\u00ed 1990 p\u00edpulagningama\u00f0ur, b\u00fasettur \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>Seinni kona Ragnars er Br\u00edet Olga Dmitrieva. Saman eiga \u00feau d\u00f3tturina Agneu Sn\u00e6r\u00f3s, f. 21 jan\u00faar 2012. Fyrir \u00e1 Br\u00edet Olga b\u00f6rnin T\u00f3mas Arnar, f. 23 apr\u00edl 2001 og Alexs\u00f6ndru Olgu, f. 2 \u00e1g\u00fast 2002.<\/p>\n<p>Barnab\u00f6rnin voru henni afar k\u00e6r og h\u00fan spur\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 um \u00feeirra hag og l\u00ed\u00f0an. \u00cd hvert sinn sem n\u00fdtt barn s\u00e1 dagsins lj\u00f3s var h\u00fan m\u00e6tt me\u00f0 sinn fa\u00f0m og bros. Yngsta \u00f6mmustelpan f\u00e9kk \u00f3skipta athygli og h\u00fan kalla\u00f0i hana \u00fdmist Puntstr\u00e1i\u00f0, R\u00f3sina, Littlu-D\u00eds e\u00f0a Englabarni\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1985 ur\u00f0u \u00fe\u00e1ttaskil \u00ed l\u00edfi Ragnhei\u00f0ar \u00feegar Sigur\u00f0ur B. Mark\u00fasson, f. 1 n\u00f3vember 1927, fyrrum hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikari \u00ed Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands, t\u00f3nlistakennari og k\u00f3rstj\u00f3ri, kom inn \u00ed l\u00edf hennar. Hann var l\u00edfsf\u00f6runautur hennar allt til dau\u00f0adags. \u00deau bjuggu a\u00f0 \u00d3\u00f0insg\u00f6tu 32b. Samband \u00feeirra var afar k\u00e6rleiksr\u00edkt og fagurt og Sigur\u00f0ur anna\u00f0ist hana af mikilli umhyggjusemi og elsku \u00ed veikindum hennar s\u00ed\u00f0ustu misserin og lag\u00f0i miki\u00f0 \u00e1 sig til a\u00f0 vera henni til trausts og halds. B\u00f6rn Sigur\u00f0ar l\u00e9tu ekki sitt eftir liggja og reyndust Ragnhei\u00f0i afar vel. \u00deau eru: Ragnar, f. 28 febr\u00faar 1953, framhaldsk\u00f3lakennari, giftur Margr\u00e9ti J\u00f3nsd\u00f3ttur; Mark\u00fas, f. 13 desember 1959, t\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur, kv\u00e6ntur Krist\u00ednu Kristinsd\u00f3ttur og Styrmir, f. 30 n\u00f3vember 1967, kvikmyndager\u00f0ama\u00f0ur, kv\u00e6ntur Halld\u00f3ru Gu\u00f0r\u00fanu \u00cdsleifsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Ragnar og fj\u00f6lskylda hans eru Sigur\u00f0i og hans f\u00f3lki afar \u00feakkl\u00e1t fyrir g\u00f3\u00f0 kynni og allt \u00fea\u00f0 sem \u00feau voru m\u00f3\u00f0ur hans b\u00e6\u00f0i \u00e1 g\u00f3\u00f0um d\u00f6gum og ekki s\u00ed\u00f0ur \u00feegar halla t\u00f3k undan f\u00e6ti hj\u00e1 henni.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur stunda\u00f0i barnask\u00f3lan\u00e1m \u00ed sinni heimasveit. H\u00fan f\u00f3r s\u00ed\u00f0an til n\u00e1ms \u00ed tvo vetur a\u00f0 Laugum \u00ed Reykjadal. Ung a\u00f0 \u00e1rum fluttist h\u00fan til Reykjav\u00edkur og m.a. h\u00f3f leiklistarn\u00e1m undir stj\u00f3rn \u00c6vars R. Kvarans. Ragnhei\u00f0ur haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed sem laut a\u00f0 fatat\u00edsku og almennt a\u00f0 g\u00f3\u00f0u \u00fatliti og kl\u00e6\u00f0na\u00f0i f\u00f3lks. St\u00e6rstum hluta starfs\u00e6fi sinnar var Ragnhei\u00f0ur verslunarstj\u00f3ri og s\u00ed\u00f0ar einn af eigendum t\u00edskuverslunarinnar Gu\u00f0r\u00fanu a\u00f0 Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edg 1 \u00ed Reykjav\u00edk. S\u00fa verslun var \u00e1 \u00feeim t\u00edma lei\u00f0andi \u00ed kvent\u00edskufatna\u00f0i.<\/p>\n<p>H\u00fan kom ung til Reykjav\u00edkur, sveitast\u00falkan, n\u00e6m \u00e1 fegur\u00f0 l\u00edfsins, t\u00f3nlist og t\u00edzku, fagra liti bl\u00f3m og \u00f3l\u00edka birtu \u00e1rst\u00ed\u00f0a.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i n\u00e6mt eyra fyrir m\u00fas\u00edk og oft kalla\u00f0i f\u00f6gur t\u00f3nlist fram t\u00e1r \u00e1 kinn. Henni \u00fe\u00f3tti afar v\u00e6nt um \u00edslenska t\u00f3nlist og \u00feekkti gjarnan n\u00f6fn h\u00f6funda b\u00e6\u00f0i texta og t\u00f3nlistar og segist Ragnar oft hafa flett upp \u00ed hennar minni hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar og svo t\u00f3k h\u00fan stundum lagi\u00f0 til a\u00f0 undirstrika \u00feekkingu s\u00edna.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur var verslunarstj\u00f3ri og s\u00ed\u00f0an einn af eigendur t\u00edzkuverslunnar Gu\u00f0r\u00fanar a\u00f0 Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edg 1 \u00ed Reykjav\u00edk. \u00c1 \u00feeim t\u00edma var verslunin \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0 verslana sem seldu kvenfatna\u00f0 h\u00e9r \u00e1 landi.&nbsp; \u00deegar miki\u00f0 l\u00e1 vi\u00f0 og allt stefndi \u00ed f\u00ednar veislur h\u00e9r \u00ed borg \u00fe\u00e1 leitu\u00f0u margar konur r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 Ragnhei\u00f0i sem ger\u00f0i \u00fe\u00e6r a\u00f0 prinsessum og drottningum me\u00f0 n\u00e6mu auga s\u00ednu og smekk. Fv. forseti \u00cdslands, naut oft \u00fej\u00f3nustu hennar vi\u00f0 val \u00e1 kl\u00e6\u00f0na\u00f0i vi\u00f0 \u00fdmis opinber t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur var afar n\u00e6m og tilfinningar\u00edk en bar \u00fe\u00f3 ekki tilfiningar s\u00ednar \u00e1 torg.<\/p>\n<p>H\u00fan var tr\u00fau\u00f0 kona og b\u00e6nr\u00e6kin og vissi sig vera barn Gu\u00f0s alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00fan var hreinskiptin og \u00e1kve\u00f0in. H\u00fan haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 sterkar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum og fylgdi Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokknum a\u00f0 m\u00e1lum.<\/p>\n<p>Sterkur strengur var alla t\u00ed\u00f0 milli hennar og einkasonarins og h\u00fan fylgdist vel me\u00f0 \u00f6llu \u00ed l\u00edfi hans og fj\u00f6lskyldu hans, r\u00e6ddi sigra og g\u00f3\u00f0a \u00e1fanga \u00ed l\u00edfi \u00feeirra og sag\u00f0i \u00f6\u00f0rum stolt fr\u00e1 s\u00ednum.<\/p>\n<p>Hugur hennar leita\u00f0i oft nor\u00f0u a\u00f0 Sk\u00f6r\u00f0um. Bernskudagarnir rifju\u00f0ust upp og allt \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem h\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00fear og naut. Sk\u00f6r\u00f0 voru sta\u00f0urinn hennar enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi dvali\u00f0 mestan hluta \u00e6vi sinnar h\u00e9r sy\u00f0ra. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed bernsku a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00fatvarpi\u00f0 sem kom \u00ed sveitina 2 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur en h\u00fan f\u00e6ddist. \u00datvarpi\u00f0 breytti \u00cdslandi, menningin var\u00f0 almanna eign og hvert heimili t\u00f3nleikasalur og leikh\u00fas, fr\u00e9ttastofa og uppl\u00fdsingami\u00f0st\u00f6\u00f0. Alla t\u00ed\u00f0 hlusta\u00f0i h\u00fan \u00e1 ve\u00f0urfregnir \u00ed \u00fatvarpinu og \u00fe\u00e6r voru henni sem helgistund. H\u00fan vissi hvern dag hvernig vindar bl\u00e9su \u00e1 mi\u00f0um og annesjum, inn til dala og uppi \u00e1 h\u00e1lendi. Ragnar segist hafa g\u00e6tt s\u00edn \u00e1 \u00fev\u00ed alla t\u00ed\u00f0 a\u00f0 hringja aldrei \u00ed hanna me\u00f0an ve\u00f0urfregnir voru lesnar e\u00f0a landsleikir \u00ed handbolta e\u00f0a f\u00f3tbolta voru \u00ed sj\u00f3nvarpinu!<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e1rin f\u00e6rast yfir ver\u00f0ur uppruninn og \u00e6skust\u00f6\u00f0varnar oft \u00e1leitnar. Vi\u00f0 leitum r\u00f3tanna og \u00feess sem vi\u00f0 best \u00feekkjum og fegurst.<\/p>\n<p>R\u00e6turnar eru ekki a\u00f0eins \u00ed landi og umhverfi, sveit og s\u00fdslu, heldur liggja \u00fe\u00e6r d\u00fdpra. Vi\u00f0 erum gestir og \u00fatlendingar \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0, segir \u00ed hinni helgu b\u00f3k og borgarsk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas sag\u00f0i a\u00f0 lifi\u00f0 v\u00e6ri fer\u00f0alag og vi\u00f0 v\u00e6rum gestir. Heimkynni okkar eru \u00ed himni Gu\u00f0s og \u00feanga\u00f0 stefnum vi\u00f0, \u00ed fa\u00f0m g\u00f3\u00f0a hir\u00f0isins.<\/p>\n<p>Ragnhei\u00f0ur hefur loki\u00f0 g\u00f3\u00f0u og f\u00f6gru l\u00edfsverki og er h\u00e9r kv\u00f6dd af \u00feakkl\u00e1tum \u00e1stvinum og samfer\u00f0af\u00f3lki. Vi\u00f0 bi\u00f0jum Sigur\u00f0i blessunar og g\u00f3\u00f0ra daga og Ragnari og fj\u00f6skyldu hans g\u00e6fu og gengis.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstaka kve\u00f0ju fr\u00e1 J\u00f3ni \u00de\u00f3rarinssyni, br\u00f3\u00f0ursyni Ragnhei\u00f0ar sem komst ekki vegna veikinda.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Ragnhei\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur. Gu\u00f0 blessi hana og okkur dagana sem vi\u00f0 eigum eftir \u00e1 l\u00edfsveginum. Blessi hann heimkomu hennar og okkar \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum l\u00e6t \u00e9g hlj\u00f3ma h\u00e9r hina fornu p\u00e1skakve\u00f0ju:<\/p>\n<p>Kristur er upprisinn! Kristur er sannarlega upprisinn!<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum ands. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r, ekki hef\u00f0bundin l\u00edkfylgd. Signt yfir \u00e1 kirkjuhla\u00f0i e\u00f0a \u00ed b\u00edl.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed I\u00f0n\u00f3.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt \u00e1 vefs\u00ed\u00f0unni: ornbardur. com<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri blessun:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar:<\/strong><\/p>\n<p style=\"color:#333333;\"><strong>Filipp\u00edbr\u00e9fi\u00f0 4.4-7<\/strong><\/p>\n<p style=\"color:#333333;\">4Veri\u00f0 \u00e1vallt gl\u00f6\u00f0 \u00ed Drottni. \u00c9g segi aftur: Veri\u00f0 gl\u00f6\u00f0.&nbsp;5Lj\u00faflyndi ykkar ver\u00f0i kunnugt \u00f6llum m\u00f6nnum. Drottinn er \u00ed n\u00e1nd.&nbsp;6Veri\u00f0 ekki hugsj\u00fak um neitt heldur geri\u00f0 \u00ed \u00f6llum hlutum \u00f3skir ykkar kunnar Gu\u00f0i me\u00f0 b\u00e6n og bei\u00f0ni og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0.&nbsp;7Og fri\u00f0ur Gu\u00f0s, sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi, mun var\u00f0veita hj\u00f6rtu ykkar og hugsanir ykkar \u00ed Kristi Jes\u00fa.<\/p>\n<p style=\"color:#333333;\"><strong>Mark\u00fasargu\u00f0spjall 16.1-7<\/strong><\/p>\n<div class=\"title\" style=\"font-weight:bold;font-style:italic;color:#8b0000;\"><strong><em>Hann er upp risinn<\/em><\/strong><\/div>\n<p style=\"color:#333333;\">1\u00de\u00e1 er hv\u00edldardagurinn var li\u00f0inn keyptu \u00fe\u00e6r Mar\u00eda Magdalena, Mar\u00eda m\u00f3\u00f0ir Jakobs og Sal\u00f3me ilmsmyrsl til a\u00f0 fara og smyrja hann.&nbsp;2Og mj\u00f6g \u00e1rla hinn fyrsta dag vikunnar, um s\u00f3laruppr\u00e1s, koma \u00fe\u00e6r a\u00f0 gr\u00f6finni.&nbsp;3\u00de\u00e6r s\u00f6g\u00f0u s\u00edn \u00e1 milli: \u201eHver mun velta fyrir okkur steininum fr\u00e1 grafarmunnanum?\u201c&nbsp;4En \u00feegar \u00fe\u00e6r l\u00edta upp sj\u00e1 \u00fe\u00e6r a\u00f0 steininum haf\u00f0i veri\u00f0 velt fr\u00e1 en hann var mj\u00f6g st\u00f3r.5\u00de\u00e6r st\u00edga inn \u00ed gr\u00f6fina og sj\u00e1 ungan mann sitja h\u00e6gra megin, kl\u00e6ddan hv\u00edtri skikkju, og \u00fe\u00e6r skelfdust.<br \/>\n6En hann sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e6r: \u201eSkelfist eigi. \u00de\u00e9r leiti\u00f0 a\u00f0 Jes\u00fa fr\u00e1 Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki h\u00e9r. Sj\u00e1i\u00f0 \u00fearna sta\u00f0inn \u00fear sem \u00feeir l\u00f6g\u00f0u hann.&nbsp;7En fari\u00f0 og segi\u00f0 l\u00e6risveinum hans og P\u00e9tri: Hann fer \u00e1 undan y\u00f0ur til Gal\u00edleu. \u00dear munu\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1 hann eins og hann sag\u00f0i y\u00f0ur.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/salmaskra-ragnheidur-jonsdottir-copy.pdf\">Salmaskra Ragnheidur Jonsdottir copy<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Kve\u00f0ja fr\u00e1 Laxam\u00fdri. SMELLTU \u00c1 TEXTANN \u00de\u00c1 ST\u00c6KKAR HANN!<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/kvec3b0ja-frc3a1-laxamc3bdri-vic3b0-c3batfc3b6r-ragnheic3b0ar-jc3b3nsdc3b3ttur.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/kvec3b0ja-frc3a1-laxamc3bdri-vic3b0-c3batfc3b6r-ragnheic3b0ar-jc3b3nsdc3b3ttur.jpg?w=209\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1242\" width=\"209\" height=\"300\" alt=\"Kve\u00f0ja fr\u00e1 Laxam\u00fdri vi\u00f0 \u00fatf\u00f6r Ragnhei\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur\"><\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Ragnhei\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir 1932-2014 fv. kaupkona \u00ed T\u00edzkuverslun Gu\u00f0r\u00fanar \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00feri\u00f0judaginn 22. apr\u00edl 2014 kl. 13. Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi. H\u00e6gt er a\u00f0 hlusta \u00e1 r\u00e6\u00f0una og lesa hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in, ritningarlestrar og kve\u00f0ja sem flutt var fr\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i og Vigf\u00fasi \u00e1 Laxam\u00fdri er&nbsp;ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1228","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1228","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1228"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1228\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1228"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1228"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1228"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}