{"id":1224,"date":"2014-04-20T23:29:13","date_gmt":"2014-04-20T23:29:13","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1224"},"modified":"2014-04-20T23:29:13","modified_gmt":"2014-04-20T23:29:13","slug":"um-bol-og-thjaningu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1224","title":{"rendered":"Um b\u00f6l og \u00fej\u00e1ningu"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/hversvegna.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1225\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/hversvegna.jpg\" alt=\"hversvegna\" width=\"278\" height=\"158\" \/><\/a><strong>J\u00f3n Sigur\u00f0sson, fv. sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00e1 Bifr\u00f6st flutti pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju f\u00f6studaginn langa 18. april 2014 sem fjalla\u00f0i um\u00a0b\u00f6l og \u00fej\u00e1ningu \u00ed heiminum, afskipti og\/e\u00f0a afskiptaleysi Gu\u00f0s og gl\u00edmu mannsins vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 komast\u00a0af \u00ed h\u00e6ttulegum heimi.\u00a0Hann gaf m\u00e9r leyfi til a\u00f0 birta r\u00e6\u00f0una h\u00e9r.<\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>\u00c1g\u00e6tu tilheyrendur<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Leikriti\u00f0 Kirsuberjagar\u00f0urinn eftir r\u00fassneska sk\u00e1ldi\u00f0 Anton Ts\u00e9koff er vel \u00feekkt h\u00e9r \u00e1 landi. \u00cd verkinu segir me\u00f0al annars af \u00fev\u00ed a\u00f0 barn drukknar \u00ed \u00e1nni n\u00e1l\u00e6gt sveitarsetri fj\u00f6lskyldunnar. M\u00f3\u00f0irin bregst \u00feannig vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan telur \u00feetta refsingu Gu\u00f0s vegna sinna eigin synda.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Mann setur hlj\u00f3\u00f0an, fyrst vi\u00f0 fregnina um slysi\u00f0 og s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 m\u00f3\u00f0urinnar. Vi\u00f0 getum ekki fullyrt neitt, en vi\u00f0 leitum sk\u00fdringa. \u00dea\u00f0 er eitt einkenni sorgarinnar a\u00f0 h\u00fan heimtar \u00e6vinlega sk\u00fdringu. Sorgin krefst svara.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00d6ll tr\u00faarvitund m\u00edn andm\u00e6lir \u00feessari sko\u00f0un m\u00f3\u00f0urinnar. \u00c9g skil ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 refsing Gu\u00f0s yfir m\u00f3\u00f0urinni a\u00f0 barninu er neita\u00f0 um l\u00edfdaga. \u00dearna m\u00e6tast \u00f3l\u00edkar atbur\u00f0ar\u00e1sir og mis-sterkir \u00e1hrifavaldar, saklaust barni\u00f0 \u00e1n var\u00fa\u00f0ar og \u00e1in sem streymir fram me\u00f0 s\u00ednum \u00feunga ni\u00f0 og ofurafli. Sm\u00e1heimur barnsins m\u00e6tir alheimi orku og \u00feunga \u00e1rinnar og barni\u00f0 drukknar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fa vitum vi\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 ekki hven\u00e6r e\u00f0a hve oft Drottinn gr\u00edpur inn \u00ed atbur\u00f0ar\u00e1s. En ef Drottinn kollvarpar \u00ed skyndi l\u00f6gm\u00e1lum sk\u00f6punarverksins og umbreytir e\u00f0li vatns og vatnsorku eina \u00f6rskotsstund til \u00feess a\u00f0 hindra slys, \u00fe\u00e1 er h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 jafnvel geti um lei\u00f0 or\u00f0i\u00f0 \u00e6gilegustu n\u00e1tt\u00faruhamfarir me\u00f0 skelfilegum aflei\u00f0ingum. Allt jafnv\u00e6gi jar\u00f0ar og heims kynni a\u00f0 fara \u00far skor\u00f0um.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c9g finn innilega til me\u00f0 m\u00f3\u00f0urinni, en \u00f6ll tr\u00faarvitund m\u00edn m\u00f3tm\u00e6lir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 henni a\u00f0 kenna. Og ekkert \u00ed leikritinu bendir s\u00e9rstaklega til vanr\u00e6kslu hennar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 okkar vi\u00f0 slysum, \u00e1f\u00f6llum, rangl\u00e6ti og \u00f6\u00f0ru m\u00f3tl\u00e6ti eru me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti. Vi\u00f0brag\u00f0 m\u00f3\u00f0urinnar \u00ed verki Ts\u00e9koffs er algengt me\u00f0al okkar. Og \u00f6ll \u00f3ttumst vi\u00f0 dau\u00f0ann, jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 vitum harla l\u00edti\u00f0 um hann.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Anna\u00f0 al\u00feekkt vi\u00f0brag\u00f0 er \u00feetta: Hvers vegna h\u00e9rna? Hvers vegna n\u00fana? Hvers vegna fj\u00f6lskylda m\u00edn? Hvers vegna barni\u00f0 mitt? Hvers vegna \u00e9g? &#8211; Og \u00fe\u00e1 undrast \u00e9g afst\u00f6\u00f0u Drottins til m\u00edn. \u00c9g fur\u00f0a mig \u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum Hans. \u00c9g efast um g\u00e6sku Hans. \u00c9g rei\u00f0ist Honum. \u00c9g efast um Hann sj\u00e1lfan. M\u00e9r s\u00e1rnar og \u00e9g h\u00e6tti jafnvel a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 Hann.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd M\u00f3seb\u00f3k er sagan af Abraham. Langa \u00e6vi tr\u00fa\u00f0i hann \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau hj\u00f3nin \u00e6ttu a\u00f0 eignast erfingja og a\u00f0 miklar \u00fej\u00f3\u00f0ir k\u00e6mu \u00fat af \u00feeim. En ekkert barn f\u00e6ddist \u00feeim og \u00e1rin li\u00f0u. Alltaf bei\u00f0 Abraham og tr\u00fa\u00f0i. Meira a\u00f0 segja segir M\u00f3seb\u00f3k fr\u00e1 \u00fev\u00ed er Sara, eiginkona hans, gat ekki anna\u00f0 en hlegi\u00f0 a\u00f0 tr\u00fana\u00f0artrausti Abrahams.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Loksins f\u00e6\u00f0ist \u00feeim einkasonur. Og \u00fe\u00e1 vill Drottinn a\u00f0 Abraham f\u00f3rni syninum. \u00c1 \u00feessum t\u00edma voru margs konar frumbur\u00f0arf\u00f3rnir algengar. Enn tr\u00fair Abraham og \u00e6tlar a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a. Hann leggur af sta\u00f0 me\u00f0 soninn \u00cdsak til \u00feess a\u00f0 f\u00f3rna honum \u00e1 sta\u00f0 \u00fear sem n\u00fa er helgasta v\u00e9 \u00e1 Musterish\u00e6\u00f0inni \u00ed J\u00f3rs\u00f6lum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Danski heimspekingurinn S\u00f8ren Kierkegaard hefur teki\u00f0 \u00feessa s\u00f6gu saman \u00e1 \u00e1hrifar\u00edkan h\u00e1tt. Abraham tr\u00fa\u00f0i og treysti gegn eigin vilja s\u00ednum. Hann hl\u00fdddi og vona\u00f0i og hika\u00f0i ekki. Hann tr\u00fa\u00f0i ekki a\u00f0eins gegn vilja s\u00ednum og andst\u00e6tt \u00e6\u00f0stu og innilegustu l\u00edfs\u00f3sk sinni, heldur tr\u00fa\u00f0i hann og treysti enda \u00fe\u00f3tt honum \u00fe\u00e6tti \u00feetta jafnvel algerlega \u00f6fugsn\u00fai\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c1rei\u00f0anlega vona\u00f0i Abraham a\u00f0 Drottinn b\u00e6g\u00f0i \u00feessari skelfingu fr\u00e1 me\u00f0 einhverjum h\u00e6tti. Fr\u00e1s\u00f6gn M\u00f3seb\u00f3kar er f\u00e1or\u00f0 og samtal \u00feeirra fe\u00f0ganna \u00f3gleymanlegt. &#8211; En Abraham var\u00f0 a\u00f0 tr\u00fa sinni, \u00f3sk og von. Drottinn af\u00feakka\u00f0i \u00feessa frumbur\u00f0arf\u00f3rn og gaf \u00cdsak l\u00edf.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd Bibl\u00edunni er Jobsb\u00f3k. Job var\u00f0 fyrir hvers konar h\u00f6rmungum og vissi ekki til \u00feess a\u00f0 hann sj\u00e1lfur hef\u00f0i broti\u00f0 af s\u00e9r gegn Drottni. Hann hr\u00f3pa\u00f0i \u00ed kv\u00f6l sinni til Drottins. Hann hr\u00f3pa\u00f0i eftir r\u00e9ttl\u00e6ti Gu\u00f0s og eftir fyrirheiti Gu\u00f0s um r\u00e9ttl\u00e6ti. &#8211; Job t\u00f3k Gu\u00f0 \u00e1 or\u00f0inu.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og hvernig bregst Drottinn vi\u00f0? Hann vi\u00f0urkenndi eigi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti og svara\u00f0i Job. A\u00f0 sumu leyti er Jobsb\u00f3k ein r\u00f3tt\u00e6kasta t\u00falkun sem til er \u00e1 st\u00f6\u00f0u mannsins \u00ed sk\u00f6punarverki Drottins. Ma\u00f0urinn leyfir s\u00e9r a\u00f0 taka Gu\u00f0 sj\u00e1lfan \u00e1 or\u00f0inu, og Drottinn daufheyrist ekki. Hann svarar. Drottinn svarar \u00e1kalli mannsins.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Drottinn svara\u00f0i Job samkv\u00e6mt r\u00e9ttl\u00e6ti s\u00ednu og h\u00f6gum Jobs var sn\u00fai\u00f0 til betra vegar. Jobsb\u00f3k l\u00fdsir \u00fev\u00ed l\u00edka hvernig mennska Jobs s\u00fdnir takmarkanir hans og \u00fer\u00f6ngt vi\u00f0horf. \u00dearna m\u00e6ttust sm\u00e1heimur mannsins og alheimur Drottins. Og \u00farlausn Jobsb\u00f3kar ver\u00f0ur ekki fyrr en ma\u00f0urinn veitir Drottni hlustunarskilyr\u00f0i. Mennskan ver\u00f0ur l\u00edka a\u00f0 hlusta.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd 9. kafla J\u00f3hannesargu\u00f0spjalls er sagt fr\u00e1 manni sem var blindur fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu. L\u00e6risveinarnir byrja a\u00f0 tala um syndir \u00feessa manns e\u00f0a foreldra hans. Jes\u00fas svarar: ,,Hvorki er \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi syndga\u00f0 e\u00f0a foreldrar hans heldur til \u00feess a\u00f0 verk Gu\u00f0s ver\u00f0i opinber \u00e1 honum. Okkur ber a\u00f0 vinna verk \u00feess sem sendi mig me\u00f0an dagur er.&#8221;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00e9r er ekki refsing heldur t\u00e6kif\u00e6ri. Drottinn daufheyrist ekki. Allir eiga von og t\u00e6kif\u00e6ri. Ef til vill er \u00fea\u00f0 takmarka\u00f0 skynbrag\u00f0 okkar sj\u00e1lfra a\u00f0 gera miki\u00f0 \u00far f\u00f6tlun og fr\u00e1vikum hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum. Ef til vill \u00fearf verk Gu\u00f0s l\u00edka a\u00f0 koma fram \u00ed hugsunum okkar sj\u00e1lfra sem \u00fe\u00f3 eigum a\u00f0 heita heil. Vera m\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 vanti eitthva\u00f0 \u00ed okkur, eitthva\u00f0 sem l\u00edka skiptir m\u00e1li.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Umm\u00e6li Krists og afskipti hans sem gu\u00f0spjalli\u00f0 l\u00fdsir eru huggun, \u00farb\u00f3t og lei\u00f0s\u00f6gn til fars\u00e6ldar. \u00dea\u00f0 eru afskiptin sem Hann hefur af blinda manninum. \u00deannig ur\u00f0u verk Gu\u00f0s opinber \u00e1 honum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0 m\u00e6tum sj\u00fakd\u00f3mum. Vi\u00f0 m\u00e6tum slysum. Vi\u00f0 lendum \u00ed fj\u00e1rhagskr\u00f6ggum. Sumt vir\u00f0ist tengt einhverjum \u00e1hrifum, ath\u00f6fnum, mist\u00f6kum, a\u00f0g\u00e6sluleysi e\u00f0a jafnvel brotum. Tveir menn stefna hvor s\u00edna lei\u00f0 \u00ed b\u00edlaumfer\u00f0inni og \u00feeim l\u00fdstur saman. \u00d3l\u00edkar stefnur; hvor \u00feeirra s\u00e9r me\u00f0 s\u00ednum augum \u00ed hra\u00f0a og misj\u00f6fnu skyggni. \u00cd b\u00edlunum eru har\u00f0ir m\u00e1lmar, orkuferli, hra\u00f0i og h\u00f6gg\u00feungi.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd slysum, hvort sem er af n\u00e1tt\u00faruhamf\u00f6rum, \u00e1rstraumi e\u00f0a \u00f6\u00f0ru, m\u00e6tast \u00f3l\u00edkar atbur\u00f0ar\u00e1sir og misst\u00f3rir \u00e1hrifavaldar. \u00cd sj\u00fakd\u00f3mum r\u00e1\u00f0ast l\u00edfe\u00f0lisferli og efnaferli \u00e1 sm\u00e1heim mannsins. Ferli og l\u00f6gm\u00e1l alheimsins m\u00e6ta sm\u00e1heimi mannsins, og \u00feessum l\u00f6gm\u00e1lum ver\u00f0ur ekki kollvarpa\u00f0 stund og stund eftir einkap\u00f6ntun okkar en allt anna\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 \u00f3breytt \u00e1fram.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki sagt heldur a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 einhver \u00fatm\u00e6ld refsing \u00e1 hendur \u00feeim sem eftir lifa, &#8211; hva\u00f0 \u00fe\u00e1 kaldlyndi, f\u00e1l\u00e6ti e\u00f0a vanr\u00e6ksla Drottins allsherjar. Og vi\u00f0 getum ekki l\u00fdst \u00fev\u00ed fyrirfram hva\u00f0 gerist \u00e1 dau\u00f0astund. Vi\u00f0 sj\u00e1um a\u00f0eins r\u00e9tt fram fyrir eigi\u00f0 nef og t\u00e6r.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Afsta\u00f0a Krists og svar hans er \u00feetta: \u00c9g er h\u00e9r me\u00f0 \u00fe\u00e9r og hj\u00e1 \u00fe\u00e9r og \u00e9g tek \u00fe\u00e1tt \u00ed sorg \u00feinni me\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00fa og \u00e1fram framvegis. &#8211; Hann hefur aldrei heiti\u00f0 okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 ekkert m\u00f3tl\u00e6ti beri a\u00f0 h\u00f6ndum e\u00f0a a\u00f0 l\u00edf okkar ver\u00f0i \u00e1hyggjulaus dans \u00e1 r\u00f3sum. Hann hefur aldrei lofa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 alheimur skuli l\u00fata sm\u00e1heimi og \u00f3sk hverrar einstakrar mannveru. En hann hefur heiti\u00f0 okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga me\u00f0 okkur \u00ed gegnum alla erfi\u00f0leika, sorgir, mist\u00f6k og harma. Hann huggar, hughreystir og r\u00e9ttir okkur h\u00f6ndina.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Hvar er Jes\u00fas Kristur \u00ed \u00f6llu m\u00f3tl\u00e6ti, erfi\u00f0leikum, mist\u00f6kum og slysum mannl\u00edfsins? Hvar er Hann \u00ed harmi og sorg manneskjunnar? &#8211; Jes\u00fas var krossfestur og lei\u00f0 d\u00fdpstu kvalir. Rangl\u00e6ti, m\u00f3tl\u00e6ti, ni\u00f0url\u00e6ging, h\u00fa\u00f0str\u00fdking, mis\u00feyrmingar, kv\u00ed\u00f0i, sorg, kv\u00f6l og \u00fej\u00e1ning&#8230; Allt \u00feetta kom einmitt fram vi\u00f0 Frelsarann Krist. Allt \u00feetta f\u00e9kk Hann yfir sig.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og \u00feetta er kjarni kristninnar. Kristur og tr\u00fain \u00e1 Hann eru ekki hafin yfir \u00fej\u00e1ningar mennskunnar, heldur eru \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti inni \u00ed \u00fej\u00e1ningunni mi\u00f0ri og kv\u00f6linni og sorginni. Einmitt h\u00e9rna er Jes\u00fas Kristur. H\u00e9r er Hann a\u00f0 finna, til huggunar og hj\u00e1lpar. \u00deetta vitum vi\u00f0 og getum kynnt okkur &#8211; \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 vitum l\u00edti\u00f0 sem ekkert anna\u00f0 um l\u00edf e\u00f0a dau\u00f0a.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00edra Hallgr\u00edmur P\u00e9tursson var\u00f0 fyrir skelfilegum \u00e1f\u00f6llum. Heimili\u00f0 brann; \u00feau misstu unga d\u00f3ttur, og a\u00f0 lyktum missti hann heilsuna og var\u00f0 alsettur \u00f3ge\u00f0slegum kaunum holdsveikinnar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00edra Hallgr\u00edmur kva\u00f0 eftir a\u00f0 heimili hans var\u00f0 eldi a\u00f0 br\u00e1\u00f0:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Gu\u00f0 er minn Gu\u00f0 \u00fe\u00f3 geysi nau\u00f0<\/p>\n<p>og gangi \u00feannig yfir,<\/p>\n<p>syrgja skal spart \u00fe\u00f3 missta eg margt,<\/p>\n<p>m\u00e1ttugur Herrann lifir.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hann missti d\u00f3ttur s\u00edna kva\u00f0 s\u00edra Hallgr\u00edmur:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fa ertu leidd, m\u00edn lj\u00fafa,<\/p>\n<p>lystigar\u00f0 Drottins \u00ed,<\/p>\n<p>\u00fear \u00e1ttu hv\u00edld a\u00f0 hafa<\/p>\n<p>h\u00f6rmunga og rauna fr\u00ed.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Gu\u00f0 \u00fe\u00fa m\u00e1tt n\u00fa m\u00e6la,<\/p>\n<p>miklu fegri en s\u00f3l,<\/p>\n<p>unun og eil\u00edf s\u00e6la<\/p>\n<p>er \u00fe\u00edn hj\u00e1 Lambsins st\u00f3l.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datfarars\u00e1lmur s\u00edra Hallgr\u00edms er sunginn yfir moldum flestra \u00cdslendinga. H\u00e9r \u00e1varpar Hallgr\u00edmur dau\u00f0ann fullum fetum sterkur og kv\u00ed\u00f0alaus:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd Krist\u00ed krafti \u00e9g segi:<\/p>\n<p>Kom \u00fe\u00fa s\u00e6ll, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa vilt.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og \u00feegar s\u00edra Hallgr\u00edmur l\u00e1 banaleguna sj\u00e1lfur orti hann:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1\u00f0 legg \u00e9g mig Lausnarans,<\/p>\n<p>l\u00edfi\u00f0 mitt er \u00ed valdi hans,<\/p>\n<p>g\u00e6skan \u00fe\u00edn hefur gr\u00e1t minn stillt,<\/p>\n<p>Gu\u00f0, far \u00fe\u00fa me\u00f0 mig sem \u00fe\u00fa vilt.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Tr\u00fa s\u00edra Hallgr\u00edms sigra\u00f0i dau\u00f0ann. L\u00edf hans var til \u00feess a\u00f0 verk Gu\u00f0s ver\u00f0i opinber \u00e1 honum, til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 hin g\u00e6tum s\u00e9\u00f0 \u00feetta og l\u00e6rt af \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Drottinn Gu\u00f0 hefur ekki brug\u00f0ist. Hann er or\u00f0heldinn og kemur til okkar \u00ed \u00f6llum \u00f3f\u00f6rum og \u00fej\u00e1ningum og sn\u00fdr l\u00edfi okkar til betra vegar. Hann hefur gefi\u00f0 okkur eil\u00edft fyrirheit um a\u00f0 ganga me\u00f0 okkur, lei\u00f0a okkur og a\u00f0sto\u00f0a, hughreysta og r\u00e9tta okkur vi\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00f6gunni er aldrei loki\u00f0 \u00ed sorginni; vonin og hj\u00e1lpin eru alltaf framundan. &#8211; En vi\u00f0 ver\u00f0um \u00fe\u00e1 l\u00edka a\u00f0 hlusta.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0 bi\u00f0jum og k\u00f6llum. Og oft finnst okkur vi\u00f0 ekki f\u00e1 neitt svar. Okkur finnst Drottinn \u00fe\u00f6gull og sn\u00faa s\u00e9r fr\u00e1. En munum \u00fe\u00e1 s\u00f6guna af kanversku konunni \u00ed Mattheusargu\u00f0spjalli. H\u00fan gafst ekki upp. H\u00fan h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 kn\u00fdja \u00e1. Og \u00e1 henni sanna\u00f0ist a\u00f0 ,,bi\u00f0ji\u00f0 og y\u00f0ur mun gefast, leiti\u00f0 og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 finna, kn\u00fdi\u00f0 \u00e1 og fyrir y\u00f0ur mun upp loki\u00f0 ver\u00f0a.&#8221;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd gu\u00f0spjalli J\u00f3hannesar segir Kristur: ,,Ekki mun \u00e9g skilja y\u00f0ur eftir muna\u00f0arlausa. \u00c9g kem til y\u00f0ar. &#8230; Hjarta y\u00f0ar skelfist ekki n\u00e9 hr\u00e6\u00f0ist. &#8230; Bi\u00f0ji\u00f0 og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 \u00f6\u00f0last svo a\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0ur y\u00f0ar ver\u00f0i fullkominn.&#8221;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og \u00ed gu\u00f0spjalli Matth\u00edasar segir Hann: ,,S\u00e6lir eru syrgjendur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a&#8221;. \u00dear segir l\u00edka: ,,Og Jes\u00fas kom til \u00feeirra, tala\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: ,,Allt vald er m\u00e9r gefi\u00f0 \u00e1 himni og j\u00f6r\u00f0u. &#8230; Sj\u00e1, \u00e9g er me\u00f0 y\u00f0ur alla daga allt til enda veraldar.&#8221;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Amen<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3n Sigur\u00f0sson, fv. sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00e1 Bifr\u00f6st flutti pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju f\u00f6studaginn langa 18. april 2014 sem fjalla\u00f0i um\u00a0b\u00f6l og \u00fej\u00e1ningu \u00ed heiminum, afskipti og\/e\u00f0a afskiptaleysi Gu\u00f0s og gl\u00edmu mannsins vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 komast\u00a0af \u00ed h\u00e6ttulegum heimi.\u00a0Hann gaf m\u00e9r leyfi til a\u00f0 birta r\u00e6\u00f0una h\u00e9r. &nbsp;<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1224","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1224","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1224"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1224\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1224"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1224"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1224"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}