{"id":1192,"date":"2014-04-10T15:26:05","date_gmt":"2014-04-10T15:26:05","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1192"},"modified":"2014-04-10T15:26:05","modified_gmt":"2014-04-10T15:26:05","slug":"manuel-arjona-cejudo-1948-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1192","title":{"rendered":"Manuel Arjona Cejudo 1948-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/manuel1.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1198\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/manuel1.png\" alt=\"manuel\" width=\"209\" height=\"289\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Manuel Arjona Cejudo<\/b><\/p>\n<p>hamskeri<\/p>\n<p>Hj\u00e1lmholti 3, Reykjav\u00edk<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 10. apr\u00edl 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufuneskirkjugar\u00f0i<\/p>\n<p>Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 me\u00f0 myndum er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p>Viltu <strong>hlusta<\/strong> og\/e\u00f0a <strong>lesa<\/strong>? Smelltu \u00e1 <strong>\u00fer\u00edhyrninginn<\/strong> h\u00e9r i framhaldinu:<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Gracia y paz a vosotros, de Dios nuestro Padre y del Se\u00f1or Jesucristo.<\/p>\n<p>N\u00e1\u00f0 s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur og fri\u00f0ur, fr\u00e1 Gu\u00f0i f\u00f6\u00f0ur vorum og Drottni Jes\u00fa Kristi. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fa er f\u00f3lki\u00f0 \u00ed Herrera \u00ed \u00f3\u00f0a \u00f6nn a\u00f0 undirb\u00faa n\u00e6stu viku sem vi\u00f0 k\u00f6llum <i>kyrruviku<\/i> e\u00f0a <i>dymbilviku<\/i> en \u00e1 Sp\u00e1ni heitir h\u00fan <i>semana santa <\/i>&#8211; <i>helgavika,<\/i> \u00feegar s\u00ed\u00f0ustu daga Jes\u00fa Krists er minnst, daganna fyrir krossfestinguna. A\u00f0 vera \u00ed Andal\u00fas\u00edu \u00ed \u00feeirri viku og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed skr\u00fa\u00f0g\u00f6ngunum \u00fear sem hvert \u00feorp og b\u00e6r fleytir s\u00ednum hj\u00f3lapramma um g\u00f6turnar og f\u00f3lki\u00f0 gengur \u00ed fylkingu \u00e1 eftir og ber helgimyndir og l\u00edkneski er heillandi upplifun. Hinir fornu, kristnu, ka\u00fe\u00f3lsku si\u00f0ir, eiga s\u00e9r dj\u00fapar r\u00e6tur \u00ed menningu og hj\u00f6rtum Sp\u00e1nverja.<\/p>\n<p>Manuel kom \u00far \u00feessum jar\u00f0vegi. Hann \u00f3lst upp \u00ed Herrera sem er b\u00e6r n\u00e6rri Sevilla \u00ed Adal\u00fas\u00edu en Sevilla er f\u00f6gur borg sem \u00e1 s\u00e9r merka s\u00f6gu og menningarver\u00f0m\u00e6ti af \u00fdmsu tagi.<\/p>\n<p>Manuel Arjona Cejudo f\u00e6ddist 1.okt\u00f3ber 1948. Hann l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu 30.mars sl. langt fyrir aldru fram.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Pedro Arjona Diaz og Dolores Cejudo Benjumea, en \u00feau eru b\u00e6\u00f0i l\u00e1tin. Manuel var annar \u00ed r\u00f6\u00f0 fj\u00f6gurra systkyna sem eru Jos\u00e9, Maria og Dolores, en \u00feau eru b\u00fasett \u00e1 Sp\u00e1ni og senda kve\u00f0jur s\u00ednar hinga\u00f0 er \u00feau minnast og sakna g\u00f3\u00f0s br\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n<p>Margt hefur breyst \u00e1 Sp\u00e1ni fr\u00e1 \u00fev\u00ed Manuel var ungur. Og margt hefur breyst \u00ed Evr\u00f3pu \u00e1 sama t\u00edma. Hann \u00f3lst upp \u00e1 t\u00edmum einr\u00e6\u00f0isstj\u00f3rnar Francos sem r\u00e9\u00f0 \u00f6llu fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed kj\u00f6lfar borgarastr\u00ed\u00f0sins sem h\u00f3fst 1936. Foreldrar Manuels lif\u00f0u g\u00f3\u00f0u og fri\u00f0s\u00e6lu l\u00edfi. M\u00f6rgum finnst t\u00edminn l\u00ed\u00f0a me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti \u00e1 Sp\u00e1ni en v\u00ed\u00f0a annarssta\u00f0ar. Mannl\u00edfi\u00f0 er \u00ed skor\u00f0um og til skamms t\u00edma t\u00ed\u00f0ka\u00f0ist l\u00f6ng mi\u00f0degishv\u00edld e\u00f0a <i>siesta.<\/i><\/p>\n<p>\u00c1 sj\u00f6unda \u00e1ratugi li\u00f0innar aldar h\u00f3fst bylting sem \u00e1tti eftir a\u00f0 breyta miklu \u00ed Evr\u00f3pu og v\u00ed\u00f0a um heim, bylting unga f\u00f3lksins sem hristi af s\u00e9r vi\u00f0jar og vi\u00f0horf fyrri t\u00edma. F\u00f3lk sem \u00fe\u00e1 var \u00e1 unglings\u00e1rum heilla\u00f0ist af lei\u00f0togum byltingarinnar sem voru einkum fj\u00f3rir str\u00e1kar fr\u00e1 borginni Liverpool \u00e1 Englandi og k\u00f6llu\u00f0u sig The Beatles. \u00c1ri\u00f0 1975 hvarf Franco af sj\u00f3narsvi\u00f0inu en \u00fe\u00e1 var Manuel farinn \u00e1 vit \u00e6vint\u00fdra og b\u00fainn a\u00f0 yfirgefa Sp\u00e1n. Hann kom til \u00cdslands 1972 en \u00fe\u00e1 haf\u00f0i hann l\u00e6rt hamskur\u00f0 heima \u00e1 Sp\u00e1ni \u00ed Barcelona. Fa\u00f0ir hans rak verslun \u00ed Herrera og seldi n\u00fdlenduv\u00f6rur, efni til hannyr\u00f0a og fleira, var svona hinn hef\u00f0bundni kaupma\u00f0ur \u00e1 horninu, en Manuel vildi ekki leggja \u00fea\u00f0 fyrir sig \u00fe\u00f3 fa\u00f0ir hans \u00e6tla\u00f0i honum \u00fea\u00f0. Hugur hans leita\u00f0i anna\u00f0. Hann vann fyrst um sinn eftir komuna hinga\u00f0 hj\u00e1 \u00cdslenska d\u00fdrasafninu, svo \u00ed Kassager\u00f0inni um t\u00edma, \u00fe\u00e1 hj\u00e1 N\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0istofnun \u00ed 10 \u00e1r uns hann opna\u00f0i sitt eigi\u00f0 verkst\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00cdsland heilla\u00f0i \u00feennan gl\u00e6silega og bl\u00f3\u00f0heita Andal\u00fas\u00edumann en \u00fea\u00f0 var \u00e1stin sem festi hann h\u00e9r \u00ed nor\u00f0rinu. \u00deau kynntust \u00feegar hann var n\u00fdkominn til a\u00f0 vinna h\u00e9r \u00ed nokkra m\u00e1nu\u00f0i, Anna S\u00f3ley Sveinsd\u00f3ttir og hann og \u00fea\u00f0 var \u00e1st vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn. Gesturinn fr\u00e1 Herrera, d\u00f6kkur \u00e1 br\u00fan og br\u00e1 og hi\u00f0 lj\u00f3sa man undan bl\u00e1himni sumars og nor\u00f0ulj\u00f3satrafi vetrarins \u00ed landi nor\u00f0ursins ur\u00f0u hj\u00f3n 12. ma\u00ed 1973. Yfirbrag\u00f0 \u00feeirra og menningararfur var \u00f3l\u00edkur en hj\u00f6rtun sl\u00f3gu \u00ed takt. \u00deau eignu\u00f0ust eina d\u00f3ttur, Katr\u00ednu V\u00f6lu Arjona f.1976. Eiginma\u00f0ur hennar er Ing\u00f3lfur J\u00f3hannesson f.1976 og eiga \u00feau \u00ferj\u00fa b\u00f6rn: Hilmi Arjona Ing\u00f3lfsson f.2001, R\u00f3bert Arjona Ing\u00f3lfsson f.2006 og Tinnu Arjona Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur f.2009.<\/p>\n<p>Honum lei\u00f0 vel \u00e1 \u00cdslandi og heilla\u00f0ist af landi og \u00fej\u00f3\u00f0. \u00deau f\u00f3ru v\u00ed\u00f0a til a\u00f0 sko\u00f0a landi\u00f0 og margar fer\u00f0ir f\u00f3ru \u00feau til Sp\u00e1nar. Katr\u00edn var eitt sinn hj\u00e1 \u00f6mmu og afa \u00ed nokkra m\u00e1nu\u00f0i og naut \u00feess a\u00f0 kynnast \u00e6ttf\u00f3lki s\u00ednu ytra. H\u00e9r heima bjuggu \u00feau lengi vel \u00ed Gno\u00f0avogi en s\u00ed\u00f0ast \u00ed Hj\u00e1lmholti. \u00deau eignu\u00f0ust sumarh\u00fas \u00e1 \u00deingv\u00f6llum og nutu \u00fear l\u00edfsins \u00ed fa\u00f0mi fegur\u00f0ar og kyrr\u00f0ar.<\/p>\n<p>Manuel eigna\u00f0ist marga g\u00f3\u00f0a vini h\u00e9r heima \u00ed gegnum starf sitt sem hann vann af mikilli fagmennsku. Hann var vei\u00f0ima\u00f0ur af l\u00edfi og s\u00e1l og f\u00f3r margar skemmtilegar fer\u00f0ir um fj\u00f6ll og firnindi til a\u00f0 elta br\u00e1\u00f0. Margar s\u00f6gur eru til \u00far \u00feessum fer\u00f0um sem fj\u00f6lskyldan rifjar gjarnan upp. Ekki voru gr\u00e6jurnar \u00ed fyrstu fer\u00f0unum neitt \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem menn hafa n\u00fana \u00ed s\u00ednum h\u00f6ndum. Ein fr\u00e6gasta fer\u00f0in var farin \u00e1 g\u00f6mlum r\u00fassajeppa og s\u00e6tin aftur \u00ed voru heybaggar. Brj\u00f3stbirtan var ekki fjarri og gamani\u00f0 t\u00f3k \u00e1 sig margar myndir. Hann \u00f3lst upp vi\u00f0 a\u00f0 v\u00edn v\u00e6ri hluti af daglegu l\u00edfi en fa\u00f0ir hans sem var kaupma\u00f0ur \u00e1tti skika \u00fear sem v\u00ed\u00f0vi\u00f0urinn \u00f3x og stundum \u00fe\u00f3tti \u00feeim br\u00e6\u00f0rum s\u00fart, Manolo og Pepe, a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 g\u00e6ta v\u00ednvi\u00f0arins l\u00f6ngum stundu me\u00f0a \u00f6nnur b\u00f6rnin l\u00e9ku s\u00e9r en sitja \u00feurfti yfir \u00fer\u00fagunum svo \u00fe\u00e6r hyrfu ekki af stilkum s\u00ednum fyrir uppsekruna. L\u00f6ngu seinna lag\u00f0i hann \u00e1fengi\u00f0 \u00e1 hilluna og smakka\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki s\u00ed\u00f0ustu 20 \u00e1rin.<\/p>\n<p>Manuel gekk \u00ed Fr\u00edm\u00farararegluna \u00e1ri\u00f0 2004 og haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 8. stigi \u00fear er hann l\u00e9st. Hann taldi a\u00f0 kynni s\u00edn af Reglunni v\u00e6ri eitt \u00fea\u00f0 besta sem hef\u00f0i hent sig \u00e1 \u00e6vinni. \u00dear eigna\u00f0ist hann marga g\u00f3\u00f0a vini og naut \u00feess \u00fat \u00ed ystu \u00e6sar a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed uppbyggjandi starfi Reglunnar sem sn\u00fdst um mannr\u00e6kt \u00e1 kristnum grunni. Hann var \u00ed St. J\u00f3hannesarst\u00fakunni Gimli og standa br\u00e6\u00f0ur hans hei\u00f0ursv\u00f6r\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag og bera kistu hans \u00far kirkju \u00ed minningu g\u00f3\u00f0s br\u00f3\u00f0ur og vinar. \u00deeir h\u00e9ldu vel utan um hann \u00ed veikindum hans, heims\u00f3ttu hann og studdu me\u00f0 vin\u00e1ttu sinni og k\u00e6rleika.<\/p>\n<p>Manuel greindist me\u00f0 krabbamein fyrir 10 \u00e1rum og f\u00f3r \u00fe\u00e1 \u00ed geislame\u00f0fer\u00f0 og allt gekk vel til \u00e1rsins 2010 en \u00fe\u00e1 t\u00f3k meini\u00f0 sig upp aftur og \u00e1ger\u00f0ist tv\u00f6 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin. Hann var \u00e1 sp\u00edtala \u00ed vetur en kom heim \u00e1 gaml\u00e1rsdag og l\u00e1 banaleguna heima og kvaddi \u00feetta l\u00edf umvafinn elsku eiginkonu, d\u00f3ttur, tengdasonar og barnabarna s\u00ed\u00f0ustu dagana og stundirnar. Hann var alla t\u00ed\u00f0 \u00e6\u00f0rulaus og kvarta\u00f0i aldrei \u00fer\u00e1tt fyrir margskonar \u00f3\u00fe\u00e6gindi svo sem <i>sondu<\/i> og <i>h\u00e1lsventil<\/i> sem hann \u00feurfti a\u00f0 tala \u00ed gegnum me\u00f0 s\u00e9rst\u00f6kum h\u00e6tti. Hann var aldrei pirra\u00f0ur, segir fj\u00f6lskyldan, en \u00e6\u00f0rulaus til hinstu stundar.<\/p>\n<p>Hann var vinur vina sinna, or\u00f0var og or\u00f0heldinn. En hann var ekki skaplaus, haf\u00f0i \u00e1kve\u00f0nar sko\u00f0anir \u00e1 \u00f6llu, gat veri\u00f0 \u00ferj\u00f3skur og st\u00edfur en \u00e6t\u00ed\u00f0 sanngjarn. \u00cd augun fj\u00f6lskyldunnar var hann l\u00e9ttlyndur ma\u00f0ur og gamansamur a\u00f0 e\u00f0lisfari en gr\u00e6skulaus. Hann gat rei\u00f0st svo a\u00f0 \u00e1 honum sau\u00f0 en \u00fea\u00f0 hvarf sem d\u00f6gg fyrir s\u00f3lu. Hann var vel a\u00f0 s\u00e9r um margt, las og fr\u00e6ddist um menn og m\u00e1lefni. Eftir a\u00f0 Anna gaf honum iPad \u00e1tti hann au\u00f0veldara me\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 fr\u00e9ttum h\u00e9r heima og \u00e1 Sp\u00e1ni. Hann var umhyggjusamur og l\u00e9t sig var\u00f0a hag annarra. H\u00e1ttv\u00eds var hann og aldrei glannalegur \u00ed tali e\u00f0a framkomu en hreinskilinn og hei\u00f0arlegur \u00ed hv\u00edvetna. Hann var duglegur og vinnusamur og vann s\u00edn verk af al\u00fa\u00f0 og fagmennsku.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskylan var \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed fyrsta s\u00e6ti. Eiginkonan, d\u00f3ttirin, tengdasonurinn og barnab\u00f6rnin voru hans au\u00f0ur og uppspretta gle\u00f0i og hamingju og svo bar hann mikla umhyggju fyrir tengdam\u00f3\u00f0ur sinni, Valger\u00f0i og h\u00fan fyrir honum.<\/p>\n<p>Manuel n\u00e1\u00f0i g\u00f3\u00f0um t\u00f6kum \u00e1 \u00edslensku en eins og alkunna er \u00fe\u00e1 er sumt l\u00edkt \u00ed frambur\u00f0i \u00ed sp\u00e6nsku og \u00edslensku. Fj\u00f6lskyldan skyldi hann vel en stundum \u00feurftu \u00f3kunnugir a\u00f0 sperra eyrun vi\u00f0 fyrstu setningarnar. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00fea\u00f0 flest hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed raun erfitt a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 \u00f6\u00f0ru tungum\u00e1li og stundum f\u00e6rum vi\u00f0 yfir \u00e1 anna\u00f0 tungum\u00e1l or\u00f0t\u00f6k og hugmyndir sem ganga upp \u00ed okkar m\u00e1li en ekki hinu. Af einu d\u00e6mi s\u00f6g\u00f0u \u00feau m\u00e9r, fj\u00f6lskylda hans, en \u00fea\u00f0 var \u00feegar Manuel var a\u00f0 horfa \u00e1 spretthlaupara \u00ed sj\u00f3nvarpinu og sag\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri engin fur\u00f0a a\u00f0 hann hef\u00f0i sigra\u00f0 \u00fev\u00ed hann v\u00e6ri me\u00f0 svo sterka afturf\u00e6tur!<\/p>\n<p>Minningarnar eru margar og m\u00f6rg atvikin sem vekja gle\u00f0i og kalla fram bros og hl\u00fdju. Og \u00feannig eigum vi\u00f0 a\u00f0 minnast, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 brosa og gr\u00e1ta.<\/p>\n<p>Manuel er farinn \u00e1 vit n\u00fdrrar tilveru og \u00fe\u00e1 er gott a\u00f0 rifja upp or\u00f0 um hina kristnu von sem birtist m.a. \u00ed \u00feessum or\u00f0um: <i>Ekkert l\u00edf \u00e1n dau\u00f0a, enginn dau\u00f0i \u00e1n l\u00edfs.<\/i><\/p>\n<p>\u00c9g rakst \u00e1 \u00feessa hugvekju \u00ed enskri b\u00f3k \u00e1 d\u00f6gunum og sneri henni \u00e1 \u00edslensku:<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\"><i>Enginn undirb\u00faningur er til fyrir dau\u00f0ann nema s\u00e1 a\u00f0 opna fyrir n\u00fainu. Ef \u00fe\u00fa ert h\u00e9r og n\u00fa &#8211; \u00fe\u00e1 muntu einnig ver\u00f0a \u00fear.<\/i><\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\"><i>&#8211; Stephen Levine<\/i><\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\">\u201eHvernig vil \u00e9g a\u00f0 dau\u00f0i minn ver\u00f0i?\u201c er erfi\u00f0 spurning, sem vi\u00f0 h\u00e9ldum a\u00f0 vi\u00f0 spyr\u00f0um ekki n\u00e6stum \u00fev\u00ed strax. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 erum vi\u00f0 h\u00e9r og spurningin stendur.<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\">Fyrir okkur flestum er svari\u00f0 n\u00e6sta au\u00f0velt. \u00deegar vi\u00f0 deyjum, viljum vi\u00f0 vera vi\u00f0st\u00f6dd me\u00f0 fullri me\u00f0vitund um allt sem kann a\u00f0 henda n\u00e6st.<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\">\u00dev\u00ed er \u00fea\u00f0 l\u00edklega best a\u00f0 byrja a\u00f0 \u00e6fa sig n\u00fana. Vi\u00f0 getum reynt a\u00f0 vera n\u00e1l\u00e6g \u00e1 hverju andartaki me\u00f0 fullri me\u00f0vitund \u00ed n\u00fainu.<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\">\u00deetta krefst \u00e6fingar. M\u00f6rg okkar \u00feekkja hvernig \u00fea\u00f0 er a\u00f0 fara \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 h\u00e1lfu dau\u00f0, dofin af alk\u00f3h\u00f3li, \u00f6\u00f0rum v\u00edmuefnum, sykri, \u00e1hyggjum, \u00f3tta. Vi\u00f0 \u00feekktum ekki anna\u00f0. En n\u00fa eigum vi\u00f0 val. Vi\u00f0 getum vali\u00f0 a\u00f0 lifa fyllilega h\u00e9r, hreint og kl\u00e1rt. Vi\u00f0 getum vali\u00f0 a\u00f0 vera lifandi, ekki dofin<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\">&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p style=\"text-align:left;padding-left:30px;\"><i>Hj\u00e1lpa\u00f0u m\u00e9r a\u00f0 vera h\u00e9r og n\u00fa, fyllilega lifandi, a\u00f0 vera \u00fer\u00f3ttmikill og vakandi.<\/i><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0ustu vei\u00f0ifer\u00f0ina f\u00f3r Manuel \u00ed haust og l\u00e9t ekkert st\u00f6\u00f0va sig. Hreind\u00fdravei\u00f0in var honum sem \u00e6vint\u00fdri. A\u00f0 stoppa upp hreind\u00fdr og \u00f6nnur st\u00f3r d\u00fdr var honum \u00e1skorun. Eitt sinn stoppa\u00f0i hann upp lj\u00f3n fyrir sj\u00e1lfan listamanninn, Salvador Dali.<\/p>\n<p>\u201eHreind\u00fdr (fr\u00e6\u00f0iheiti: Rangifer tarandus) eru hjartard\u00fdr sem finna m\u00e1 v\u00ed\u00f0a \u00e1 nor\u00f0urhveli jar\u00f0ar. \u00deau eru einstaklega vel a\u00f0l\u00f6gu\u00f0 a\u00f0 lifa af kulda og snj\u00f3\u00feyngsli a\u00f0 vetrarlagi. Andst\u00e6tt \u00f6llum \u00f6\u00f0rum hjartard\u00fdrum bera b\u00e6\u00f0i kynin horn. Kvenkyns hreind\u00fdr nefnist simla (e\u00f0a hreink\u00fdr), og karlkyns hreind\u00fdr nefnist hreinn (e\u00f0a hreintarfur).\u201c<\/p>\n<p>Hjartard\u00fdr \u00feykja f\u00f6gur og t\u00edgulleg a\u00f0 sj\u00e1. \u00cd evr\u00f3pskum helgis\u00f6gnum birtast minni um hj\u00f6rtinn sem kristst\u00e1kn og \u00f6ll \u00feekkjum vi\u00f0 myndina af j\u00f3lasveininum sem fer\u00f0ast um \u00e1 vagni sem hreind\u00fdr fara fyrir. \u00a0Og fyrirmynd j\u00f3lasveinsins er einn af d\u00fdrlingum ka\u00fe\u00f3lsku kirkjunnar, heilagur Nikul\u00e1s.<\/p>\n<p>Framundan er <i>semana santa &#8211; kyrravika<\/i> &#8211; vikan \u00feegar hinn kristni heimur minnist krossfestingar Jes\u00fa og f\u00f3rnardau\u00f0a. Svo koma p\u00e1skar, mesta h\u00e1t\u00ed\u00f0 kristninnar, h\u00e1t\u00ed\u00f0 l\u00edfsins, h\u00e1t\u00ed\u00f0 sigurs og eil\u00edfs l\u00edfs. Manolo \u00feekkti si\u00f0i s\u00edns heimab\u00e6jar og h\u00e9ra\u00f0s, \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 t\u00falka\u00f0i atbur\u00f0i kyrruviku me\u00f0 helgimyndum, skr\u00fa\u00f0g\u00f6ngum og l\u00e1tbrag\u00f0i af \u00fdmsu tagi. Hann var messudrengur \u00ed \u00e6sku. M\u00f3\u00f0ir hans var kirkjur\u00e6kin og m\u00f3ta\u00f0i b\u00f6rnin s\u00edn \u00ed anda hinnar kristnu vonar. Hann \u00e1tti \u00fe\u00e1 tr\u00fa \u00ed hjarta s\u00e9r a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 v\u00e6ri \u00ed hendi Gu\u00f0s. Nafni\u00f0 Manuel er af hebreska or\u00f0inu <i>Immanuel<\/i> sem merkir <em>Gu\u00f0 er me\u00f0 oss<\/em>. Fyrir sumu f\u00f3lki er tr\u00fain fjarst\u00e6\u00f0ukennd eins og verk eftir Salvador Dali og \u00e9g skal vi\u00f0urkenna a\u00f0 tr\u00fain er einmitt \u00feannig \u00ed m\u00f6rgum greinum en \u00fea\u00f0 er ekki s\u00edst \u00fea\u00f0 sem gerir hana svo heillandi. H\u00fan ver\u00f0ur ekki a\u00f0eins skilin me\u00f0 r\u00f6khugsun heilans heldur \u00fearf hjarta\u00f0 til svo a\u00f0 tr\u00fain f\u00e1i merkingu og n\u00e1i a\u00f0 dafna \u00ed jar\u00f0vegi s\u00e1larinnar.<\/p>\n<p>N\u00fa er Manuel farinn \u00ed s\u00edna hinstu f\u00f6r. \u00cd hugvekjunni sem \u00e9g vitna\u00f0i til h\u00e9r a\u00f0 framan segir:<\/p>\n<p><i>Ef \u00fe\u00fa ert h\u00e9r og n\u00fa &#8211; \u00fe\u00e1 muntu einnig ver\u00f0a \u00fear.<\/i><\/p>\n<p>Og \u00fear ver\u00f0ur hann sem d\u00f3 \u00e1 krossi og reis upp fr\u00e1 dau\u00f0um, hann sem J\u00f3hannes postuli kalla\u00f0i \u201elj\u00f3ni\u00f0 af J\u00fada\u201c.<\/p>\n<p>J\u00e1, hann f\u00e9kkst vi\u00f0 lj\u00f3ni\u00f0 h\u00e9r en lj\u00f3ni\u00f0 af J\u00fada mun m\u00e6ta honum \u00fear.<\/p>\n<p>\u00cd kirkjum um allan Sp\u00e1n og hvarvetna \u00e1 \u00cdslandi og v\u00ed\u00f0a \u00ed hinum kristna heimi ver\u00f0ur \u00feess minnst n\u00e6sta sunnudag a\u00f0 Kristur h\u00f3f innrei\u00f0 s\u00edna \u00ed Jer\u00fasalem. Hann kom h\u00f3gv\u00e6r og gekk sinn \u00fej\u00e1ningarveg. Hann er me\u00f0 okkur \u00ed \u00fej\u00e1ningum og sorgum l\u00edfsins, fylgir okkur sem s\u00e1 er \u00feekkir allt og skilur allt. Hann er upprisinn. Hann er h\u00e9r \u00ed anda s\u00ednum og hann er \u00fear sem Manuel er n\u00fana, \u201elj\u00f3ni\u00f0 af J\u00fada\u201c &#8211; Kristur sigurvegarinn.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Manuels Arjona Cejudo og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Gloria a Dios, el Padre y el Hijo y el Esp\u00edritu Santo.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur kve\u00f0jur fr\u00e1 Hilmari Helgasyni og konu hans R\u00f6gnu sem eru \u00ed P\u00f3llandi og g\u00e1tu ekki fylgt honum til grafar en voru vi\u00f0 kistulagningu hans og fr\u00e1 Gu\u00f0geiri Helgasyni og \u00de\u00f3reyju Gunn\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur \u00ed Grindav\u00edk sem ekki komust heldur til \u00fatfararinnar.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Gufuneskirkjugar\u00f0i. L\u00edkfyld \u00feanga\u00f0.<\/p>\n<p>Erfidrykkja \u00ed Safna\u00f0aheimili Neskirkju.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt \u00e1 vefs\u00ed\u00f0unni: <a href=\"http:\/\/localhost:8081\"><span style=\"color:#011a99;\">ornbardur.com<\/span><\/a><\/p>\n<p>Postulleg\u00a0kve\u00f0ja:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ritningarlestrara<\/p>\n<p><b>Op J\u00f3h 5:\u00a0<\/b><\/p>\n<p><b>Fyrsti lestur:<\/b><br \/>\n<sup>1<\/sup>\u00cd h\u00e6gri hendi hans, er \u00ed h\u00e1s\u00e6tinu sat, s\u00e1 \u00e9g b\u00f3k, skrifa\u00f0a innan og utan, innsigla\u00f0a sj\u00f6 innsiglum. <sup>2<\/sup>Og \u00e9g s\u00e1 sterkan engil, sem kalla\u00f0i h\u00e1rri r\u00f6ddu: &#8220;Hver er maklegur a\u00f0 lj\u00faka upp b\u00f3kinni og leysa innsigli hennar?&#8221; <sup>3<\/sup>En enginn var s\u00e1 \u00e1 himni e\u00f0a j\u00f6r\u00f0u e\u00f0a undir j\u00f6r\u00f0unni, sem loki\u00f0 g\u00e6ti upp b\u00f3kinni og liti\u00f0 \u00ed hana. <sup>4<\/sup>Og \u00e9g gr\u00e9t st\u00f3rum af \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn reyndist maklegur a\u00f0 lj\u00faka upp b\u00f3kinni og l\u00edta \u00ed hana. <sup>5<\/sup>En einn af \u00f6ldungunum segir vi\u00f0 mig: &#8220;Gr\u00e1t \u00fe\u00fa eigi! Sj\u00e1, sigra\u00f0 hefur lj\u00f3ni\u00f0 af J\u00fada \u00e6ttkv\u00edsl, r\u00f3tarkvistur Dav\u00ed\u00f0s, hann getur loki\u00f0 upp b\u00f3kinni og innsiglum hennar sj\u00f6.\u201d<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Annar lestur:<\/b><\/p>\n<p><b>Op J\u00f3h 7:<\/b><\/p>\n<p><sup>9<\/sup>Eftir \u00feetta s\u00e1 \u00e9g, og sj\u00e1: Mikill m\u00fagur, sem enginn gat t\u00f6lu \u00e1 komi\u00f0, af alls kyns f\u00f3lki og kynkv\u00edslum og l\u00fd\u00f0um og tungum. \u00deeir st\u00f3\u00f0u frammi fyrir h\u00e1s\u00e6tinu og frammi fyrir lambinu, skr\u00fdddir hv\u00edtum skikkjum, og h\u00f6f\u00f0u p\u00e1lmagreinar \u00ed h\u00f6ndum. <sup>10<\/sup>Og \u00feeir hr\u00f3pa h\u00e1rri r\u00f6ddu:<\/p>\n<p>Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i\u00f0 heyrir til Gu\u00f0i vorum,<\/p>\n<p>sem \u00ed h\u00e1s\u00e6tinu situr, og lambinu.<\/p>\n<p><sup>11<\/sup>Allir englarnir st\u00f3\u00f0u kringum h\u00e1s\u00e6ti\u00f0 og \u00f6ldungana og verurnar fj\u00f3rar. Og \u00feeir f\u00e9llu fram fyrir h\u00e1s\u00e6tinu \u00e1 \u00e1sj\u00f3nur s\u00ednar, tilb\u00e1\u00f0u Gu\u00f0 <sup>12<\/sup>og s\u00f6g\u00f0u:<\/p>\n<p>Amen, lofgj\u00f6r\u00f0in og d\u00fdr\u00f0in,<\/p>\n<p>viskan og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0in, hei\u00f0urinn og m\u00e1tturinn og krafturinn s\u00e9 Gu\u00f0i vorum um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p><sup>13<\/sup>Einn af \u00f6ldungunum t\u00f3k \u00fe\u00e1 til m\u00e1ls og sag\u00f0i vi\u00f0 mig: &#8220;\u00deessir, sem skr\u00fdddir eru hv\u00edtu skikkjunum, hverjir eru \u00feeir og hva\u00f0an eru \u00feeir komnir?&#8221;<\/p>\n<p><sup>14<\/sup>Og \u00e9g sag\u00f0i vi\u00f0 hann: &#8220;Herra minn, \u00fe\u00fa veist \u00fea\u00f0.&#8221;<\/p>\n<p>Hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: &#8220;\u00deetta eru \u00feeir, sem komnir eru \u00far \u00ferengingunni miklu og hafa \u00fevegi\u00f0 skikkjur s\u00ednar og hv\u00edtf\u00e1ga\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00ed bl\u00f3\u00f0i lambsins. <sup>15<\/sup>\u00deess vegna eru \u00feeir frammi fyrir h\u00e1s\u00e6ti Gu\u00f0s og \u00fej\u00f3na honum dag og n\u00f3tt \u00ed musteri hans, og s\u00e1, sem \u00ed h\u00e1s\u00e6tinu situr, mun tjalda yfir \u00fe\u00e1. <sup>16<\/sup>Eigi mun \u00fe\u00e1 framar hungra og eigi heldur framar \u00feyrsta og eigi mun heldur s\u00f3l brenna \u00fe\u00e1 n\u00e9 nokkur hiti. <sup>17<\/sup>\u00dev\u00ed a\u00f0 lambi\u00f0, sem er fyrir mi\u00f0ju h\u00e1s\u00e6tinu, mun vera hir\u00f0ir \u00feeirra og lei\u00f0a \u00fe\u00e1 til vatnslinda l\u00edfsins. Og Gu\u00f0 mun \u00feerra hvert t\u00e1r af augum \u00feeirra.\u201d<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>Gu\u00f0spjall:<\/b><\/p>\n<p><b>J\u00f3h 14.1-6<\/b><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/p>\n<p>1\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. 2\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? 3\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. 4Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<\/p>\n<p>5T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<\/p>\n<p>6Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/04\/manuel-sc3a1lmaskrc3a1-copy.pdf\">Manuel s\u00e1lmaskr\u00e1 copy<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Manuel Arjona Cejudo hamskeri Hj\u00e1lmholti 3, Reykjav\u00edk &nbsp; \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 10. apr\u00edl 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufuneskirkjugar\u00f0i Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 me\u00f0 myndum er ne\u00f0anm\u00e1ls. Viltu hlusta og\/e\u00f0a lesa? Smelltu \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn h\u00e9r i framhaldinu:<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1192","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1192","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1192"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1192\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1192"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1192"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1192"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}