{"id":1179,"date":"2014-03-18T16:31:39","date_gmt":"2014-03-18T16:31:39","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1179"},"modified":"2014-03-18T16:31:39","modified_gmt":"2014-03-18T16:31:39","slug":"helga-thora-th-kjartansdottir-1945-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1179","title":{"rendered":"Helga \u00de\u00f3ra Th. Kjartansd\u00f3ttir 1945-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/helgathora.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1180\" alt=\"helgathora\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/helgathora.png\" width=\"203\" height=\"236\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Helga \u00de\u00f3ra Thoroddsen Kjartansd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1945-2014<\/p>\n<p>skur\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju, 18. mars 2014 kl. 15.00.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 og <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in og ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><b>Fri\u00f0ur<\/b> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur \u00f6llum<\/p>\n<p>Hvernig mundu\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00fdsa henni Helgu \u00de\u00f3ru, spur\u00f0i \u00e9g f\u00f3lki\u00f0 hennar og svari\u00f0 l\u00e9t ekki \u00e1 s\u00e9r standa: \u201eEngin lognmolla.\u201c<\/p>\n<p>\u00c9g elska \u00feig, stormur, sem geisar um grund<\/p>\n<p>og gle\u00f0i\u00feyt vekur \u00ed bla\u00f0sterkum lund,<\/p>\n<p>en gr\u00e1feysknu kvistina bugar og br\u00fdtur<\/p>\n<p>og bjarkirnar treystir um lei\u00f0 og \u00fe\u00fa \u00fe\u00fdtur.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00de\u00fa skefur burt fannir af foldu og h\u00f3l,<\/p>\n<p>\u00fe\u00fa feykir burt sk\u00fdjum fr\u00e1 ylbjartri s\u00f3l,<\/p>\n<p>og neistann upp bl\u00e6s \u00fe\u00fa og b\u00e1lar upp loga<\/p>\n<p>og bryddir me\u00f0 glitskr\u00fa\u00f0i \u00fath\u00f6f og voga.<\/p>\n<p>H\u00fan f\u00e6ddist og \u00f3st upp \u00e1 Patreksfir\u00f0i og \u00feekkti hvernig stormurinn gat \u00fdft upp fj\u00f6r\u00f0inn \u00ed vetrarve\u00f0rum en h\u00fan \u00feekkti l\u00edka sumarlogni\u00f0 yndislega \u00feegar fj\u00f6llin tignarleg speglast \u00ed haffletinum. Su\u00f0urfir\u00f0ir Vestfjar\u00f0arkj\u00e1lkans hafa \u00e1 s\u00e9r annan bl\u00e6 en fir\u00f0irnir a\u00f0 nor\u00f0an ver\u00f0u. \u00c9g man \u00feegar \u00e9g f\u00f3r fyrst um Su\u00f0urfir\u00f0ina og var\u00f0 lj\u00f3st hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem greinir \u00fe\u00e1 fr\u00e1 hinum. \u00dea\u00f0 er birtan, liturinn \u00ed sj\u00f3num sem kemur af skelinni, hv\u00edtum sandinum \u00ed botninum sem sumsta\u00f0ar n\u00e6r h\u00e1tt upp \u00ed hl\u00ed\u00f0ar eins og \u00ed Patreksfir\u00f0i t.a.m. \u00ed kringum Sau\u00f0lauksdal. S\u00f3lgulur skeljasandurinn gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00feegar lj\u00f3si\u00f0 fellur \u00e1 haffl\u00f6tinn gl\u00f3ir sj\u00f3rinn t\u00farkisbl\u00e1r \u00ed fj\u00f6r\u00f0unum.<\/p>\n<p>Lj\u00f3si\u00f0 \u00ed dj\u00fapinu.<\/p>\n<p>Allt l\u00edf er undir lj\u00f3sinu komi\u00f0.<\/p>\n<p>Meira a\u00f0 segja \u00feorskurinn ber \u00ed s\u00e9r lit s\u00f3lar og gefur af s\u00e9r lj\u00f3smeti &#8211; l\u00fdsi. Lj\u00f3si\u00f0 b\u00fdr \u00ed dj\u00fapinu og lj\u00f3si\u00f0 b\u00fdr \u00ed okkur. Vi\u00f0 lifum vegna \u00feess a\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 sk\u00edn. Vi\u00f0 erum b\u00f6rn lj\u00f3ssins. Fa\u00f0ir Helgu \u00de\u00f3ru dr\u00f3 \u00feann gula \u00far dj\u00fapinu. Hann var skipstj\u00f3ri sem s\u00f3tti sj\u00f3inn st\u00edft, sigldi oft me\u00f0 aflan til \u00fatlanda og kom heim hla\u00f0inn gj\u00f6fum handa konu sinni og b\u00f6rnum. \u00deetta voru d\u00fdr\u00f0ardagar \u00ed f\u00f6grum fir\u00f0i \u00fear sem unnt var a\u00f0 leika s\u00e9r frj\u00e1ls \u00ed fj\u00f6ru og fjalli. Og Helga naut \u00feess a\u00f0 vera til. H\u00fan var elst systkina sinna. \u00deau \u00f3lust upp \u00e1 listr\u00e6nu heimili. Mamma og pabbi b\u00e6\u00f0i sk\u00e1ldm\u00e6lt og ortu um b\u00f6rnin s\u00edn og samfer\u00f0af\u00f3lki\u00f0. Pabbi var hagur \u00e1 tr\u00e9 og bein, skar \u00fat muni, m\u00e1la\u00f0i og orti. Mamma l\u00e9k \u00e1 svi\u00f0i, s\u00f6ng og spila\u00f0i \u00e1 p\u00edan\u00f3.<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra Thoroddsen Kjartansd\u00f3ttir h\u00e9t h\u00fan fullu nafni. H\u00fan f\u00e6ddist \u00e1 Patreksfir\u00f0i 26. mars 1945, d\u00f3ttir hj\u00f3nanna Hrefnu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur, f. 21. ma\u00ed 1920 D\u00fdrfir\u00f0ings og Kjartans Th. Ingimundarsonar skipstj\u00f3ra og Bar\u00f0strendings, f. 25. \u00e1g\u00fast 1923, d. 18. febr\u00faar 2008<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra \u00e1tti fj\u00f6gur systkini,<\/p>\n<p>Hrein Hrafnkel, f. 1946,<\/p>\n<p>J. Jens, f. 1951,<\/p>\n<p>dreng, f. 1955, d. 1955 og<\/p>\n<p>\u00de\u00f3runni, f. 1956.<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra \u00f3lst upp \u00e1 Patreksfir\u00f0i og lauk grunnsk\u00f3lan\u00e1mi vi\u00f0 h\u00e9ra\u00f0ssk\u00f3lann a\u00f0 N\u00fapi \u00ed D\u00fdrafir\u00f0i.\u00a0Ung a\u00f0 \u00e1rum starfa\u00f0i h\u00fan sem s\u00edmam\u00e6r vi\u00f0 s\u00edmst\u00f6\u00f0ina \u00e1 Patreksfir\u00f0i. \u00c1 \u00feeim t\u00edma s\u00e1tu stelpurnar \u00e1 s\u00edmanum vi\u00f0 st\u00f3rt skiptibor\u00f0 og handtengdu f\u00f3lk saman me\u00f0 sn\u00farum. -Mi\u00f0st\u00f6\u00f0, g\u00f3\u00f0an dag, var svara\u00f0 \u00feegar f\u00f3lk hringdi og ba\u00f0 um n\u00famer sem s\u00edmam\u00e6rin tengdi svo vi\u00f0. Heimiliss\u00edmar voru margir \u00e1 st\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 volduga skjalat\u00f6sku og hver gat \u00e1 \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 s\u00edmar yr\u00f0u \u00ed vasa hvers manns \u00ed framt\u00ed\u00f0inni, s\u00edmar sem geta n\u00e1nast allt? T\u00e6knin er mikil en h\u00fan dugar ekki \u00ed \u00f6llum stormum l\u00edfsins. Og Ve\u00f0urstofan varar vi\u00f0 stormi \u00ed dag og \u00ed s\u00edmanum er h\u00e6gt a\u00f0 fylgjast me\u00f0 ve\u00f0rinu \u00ed gegnum gervitungl!<\/p>\n<p>\u201e\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins\u201c, sag\u00f0i Jes\u00fas. Vi\u00f0 erum b\u00f6rn lj\u00f3ssins og eigum a\u00f0 l\u00fdsa. \u201e\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.\u201c<\/p>\n<p>Hvernig l\u00e6tur ma\u00f0ur lj\u00f3s sitt l\u00fdsa? Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna verk s\u00edn af al\u00fa\u00f0 og velja s\u00e9r g\u00f6fugt starf. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i Helga \u00de\u00f3ra. H\u00fan helga\u00f0i sig hj\u00fakrun.<\/p>\n<p>\u00cd mars 1968 brautskr\u00e1\u00f0ist Helga \u00de\u00f3ra fr\u00e1 Hj\u00fakrunarsk\u00f3la \u00cdslands og tveimur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar lauk h\u00fan n\u00e1mi sem skur\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur. A\u00f0 n\u00e1mi loknu starfa\u00f0i h\u00fan alla \u00e6vi sem hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og skur\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur, \u00e1 Landakoti og Landsp\u00edtalanum og \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasunum \u00ed Keflav\u00edk, \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed Vestmannaeyjum. \u00c1 \u00e1rinu 1986 f\u00f3r Helga \u00de\u00f3ra \u00e1samt teymi fr\u00e1 LSH til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar og afla\u00f0i s\u00e9r s\u00e9r\u00feekkingar sem skur\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed hjartaskur\u00f0a\u00f0ger\u00f0um. \u00cd framhaldi af \u00fev\u00ed t\u00f3k h\u00fan \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 innlei\u00f0a hjartaskur\u00f0a\u00f0ger\u00f0ir h\u00e9r \u00e1 landi. \u00de\u00e1 setti h\u00fan upp skur\u00f0stofua\u00f0st\u00f6\u00f0una \u00feegar Skur\u00f0stofa Reykjav\u00edkur t\u00f3k til starfa \u00e1ri\u00f0 1990 og var deildarstj\u00f3ri \u00fear \u00ed 3 \u00e1r.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i flutt til Reykjav\u00edkur me\u00f0 fj\u00f6lskyldun sinni 1962, \u00fe\u00e1 17 \u00e1ra.<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra giftist \u00e1ri\u00f0 1967 Gu\u00f0mundi Kristj\u00e1nssyni, f. 20. febr\u00faar 1946. Foreldrar hans voru hj\u00f3nin \u00dars\u00fala Beate Gu\u00f0mundsson, f. Piernay (frb p\u00eder-nei) og Kristj\u00e1n P\u00e9tur Gu\u00f0mundsson. Helga \u00de\u00f3ra og Gu\u00f0mundur skildu \u00e1ri\u00f0 1987. \u00deau eignu\u00f0ust 3 b\u00f6rn:<\/p>\n<p>Kristj\u00e1n P\u00e9tur, f. 24. \u00e1g\u00fast 1967, d. 23. febr\u00faar 2012,<\/p>\n<p>Hrefnu, f. 10. september 1971. D\u00f3ttir hennar og Ott\u00f3 Tynes er Tinna, f. 28. ma\u00ed 2005.<\/p>\n<p>Kjartan, f. 29. j\u00fal\u00ed 1975. Eiginkona hans er Emil\u00eda Gunnarsd\u00f3ttir. B\u00f6rn \u00feeirra eru Melkorka, f. 30. j\u00fal\u00ed 2001, Hrafn, f. 12. \u00e1g\u00fast 2004 og Haukur Orri, f. 31. mars 2011.<\/p>\n<p>\u201eEngin lognmolla\u201c, s\u00f6g\u00f0u \u00feau. Helga var alltaf a\u00f0. H\u00fan var hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar, vins\u00e6l samstarfskona, gla\u00f0leg og hress, fagurkeri og listr\u00e6n \u00ed s\u00e9r, alltaf vel til h\u00f6f\u00f0 og mikil skv\u00edsa \u00ed s\u00e9r. \u00deau segja a\u00f0 h\u00fan hafi alltaf veri\u00f0 me\u00f0 sk\u00e6rbleikt gloss, meira a\u00f0 segja undir skur\u00f0stofugr\u00edmunni og svo vildi h\u00fan hafa h\u00e1v\u00e6ra og fj\u00f6ruga t\u00f3nlist \u00e1 fullu me\u00f0an a\u00f0ger\u00f0ir f\u00f3ru fram.<\/p>\n<p>Hvar sem h\u00fan bj\u00f3 \u00fe\u00e1 var heimili hennar fagurlega skreytt og skipulagt. H\u00fan haf\u00f0i \u00ed s\u00e9r \u00feetta svonefnda <i>feng-sui<\/i> \u00fe\u00f3tt enginn hef\u00f0i heyrt um \u00fea\u00f0 e\u00f0a vissi a\u00f0 sl\u00edkt v\u00e6ri til \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur. Helga var fagurkeri og ef b\u00f6rnin e\u00f0a vinir komu \u00ed heims\u00f3kn \u00fe\u00e1 var ekki elda\u00f0 neitt hversdagslegt heldur var \u00fea\u00f0 \u00fer\u00edr\u00e9tta\u00f0 og svo voru serv\u00edettur, kerti og allt \u00ed st\u00edl dagsins. H\u00fan var st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 kaupa gjafir handa f\u00f3lkinu s\u00ednu og kom aldrei \u00ed heims\u00f3kn \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa eitthva\u00f0 sm\u00e1legt me\u00f0fer\u00f0is \u00fe\u00f3 ekki v\u00e6ri nema s\u00e9rv\u00edettub\u00fant. Og \u00feegar henni fannst vanta \u00fdmislegt sm\u00e1legt til a\u00f0 fegra deildina sem h\u00fan vann \u00e1 n\u00fdlega \u00fe\u00e1 f\u00f3r h\u00fan \u00ed IKEA og keypti \u00e1 eigin kostna\u00f0 \u00fea\u00f0 sem henni fannst vanta til a\u00f0 gera umhverfi\u00f0 b\u00e6rilegra.<\/p>\n<p>H\u00fan var mikill h\u00famoristi og gat hlegi\u00f0 sig m\u00e1ttlausa og \u00feegar h\u00fan sag\u00f0i s\u00f6gur, oft af sj\u00e1lfri s\u00e9r, gat h\u00fan stundum varla kl\u00e1ra\u00f0 \u00fe\u00e6r fyrir hl\u00e1tri. H\u00fan var kvik og sn\u00f6gg upp \u00e1 lagi\u00f0 og gat redda\u00f0 s\u00e9r \u00ed \u00f3tal a\u00f0st\u00e6\u00f0um eins og \u00feegar h\u00fan var tekin fyrir of hra\u00f0an akstur \u00ed \u00e1g\u00fast og t\u00f3kst a\u00f0 blikkka l\u00f6greglumannin og sn\u00faa sig \u00fat \u00far m\u00e1linu \u00e1 sta\u00f0num. H\u00fan var hispurslaus \u00ed heg\u00f0un og h\u00e1ttum og stundum \u00f6gra\u00f0i h\u00fan f\u00f3lki a\u00f0eins til a\u00f0 pr\u00f3fa vi\u00f0br\u00f6g\u00f0in. Hins vegar ger\u00f0i h\u00fan ekki flugu mein, haf\u00f0i r\u00edka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og var\u00f0 rei\u00f0 ef t.a.m. b\u00f6rnin hennar ur\u00f0u fyrir \u00f3r\u00e9tti. H\u00fan elska\u00f0i b\u00f6rnin s\u00edn og \u00feegar h\u00fan m\u00e6tti \u00ed part\u00fd me\u00f0 \u201eholl-systrum\u201c s\u00ednum haf\u00f0i h\u00fan jafnan me\u00f0fer\u00f0is bunka af myndum af \u00feeim til a\u00f0 s\u00fdna hollinu.<\/p>\n<p>L\u00edf hennar var engin lognmolla og ekki heldur neinn dans \u00e1 r\u00f3sum. H\u00fan gl\u00edmdi vi\u00f0 \u00f3lguna \u00ed s\u00e1lu sinni alla t\u00ed\u00f0 og stormarnir hi\u00f0 innra leiddu hana oft \u00ed erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Svo var\u00f0 h\u00fan fyrir mikill sorg \u00feegar h\u00fan missti frumbur\u00f0inn sinn, Kristj\u00e1n P\u00e9tur, fyrir r\u00e9ttum 2 \u00e1rum. Hann hafi barist \u00e1rum saman vi\u00f0 erfi\u00f0an sj\u00fakd\u00f3m, s\u00e1larstorma og f\u00edkn. \u00dea\u00f0 var erfi\u00f0 reynsla. Aldrei gaf h\u00fan Kristj\u00e1n P\u00e9tur upp \u00e1 b\u00e1tinn, m\u00f3\u00f0urhjarta\u00f0 sl\u00f3 \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed brj\u00f3sti hennar og umhyggjan fyrir honum var \u00f3skipt til hinsta dags. Enginn ver\u00f0ur nokkurri sinni samur eftir a\u00f0 hafa misst barni\u00f0 sitt.<\/p>\n<p>En hva\u00f0 veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 sumir lifa meir \u00ed stormum en logni? Er \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfvali\u00f0 e\u00f0a er \u00fea\u00f0 upplagi\u00f0?<\/p>\n<p>\u00c9g vitna\u00f0i fyrr \u00ed lj\u00f3\u00f0i\u00f0 Storm eftir Hannes Hafstein. Hva\u00f0 olli \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var \u00feessi bar\u00e1ttuma\u00f0ur sem gl\u00edmdi vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og ekki s\u00edst vi\u00f0 sinn innri mann, f\u00edkn og \u00f6nnur feikn? Bj\u00f3 \u00fea\u00f0 \u00ed erf\u00f0av\u00edsum hans? Var karakter hans meitla\u00f0ur sem \u00ed stein fr\u00e1 getna\u00f0i til grafar?<\/p>\n<p>\u00de\u00fa \u00feenur \u00fat seglin og byr\u00f0inginn ber<\/p>\n<p>og birtandi, andhreinn um j\u00f6r\u00f0ina fer;<\/p>\n<p>\u00fe\u00fa loftilla, d\u00e1\u00f0lausa lognmollu hrekur<\/p>\n<p>og l\u00edfsanda starfandi hvarvetna vekur.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og \u00feegar \u00fe\u00fa sigrandi\u00b4 um foldina fer,<\/p>\n<p>\u00fe\u00e1 finn \u00e9g, a\u00f0 \u00fer\u00f3tturinn eflist \u00ed m\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00c9g elska \u00feig, kraftur, sem \u00f6ldurnar reisir,<\/p>\n<p>\u00e9g elska \u00feig, m\u00e1ttur, sem \u00feokuna leysir.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c9g elska \u00feig, elska \u00feig, eil\u00edfa str\u00ed\u00f0,<\/p>\n<p>me\u00f0 \u00f3lgandi bl\u00f3\u00f0i \u00fe\u00e9r s\u00f6ng minn \u00e9g b\u00fd\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa alfrj\u00e1lsi loftfari, hamast \u00fe\u00fa hra\u00f0ur;<\/p>\n<p>hugur minn fylgir \u00fe\u00e9r, djarfur og gla\u00f0ur.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u201eEngin lognmolla.\u201c Helga \u00de\u00f3ra var kona stormsins og h\u00fan f\u00e9kk hann \u00ed fangi\u00f0 aftur og aftur uns h\u00fan m\u00e6tti \u00fev\u00ed ve\u00f0ri sem h\u00fan var\u00f0 a\u00f0 l\u00fata \u00ed l\u00e6gra haldi fyrir.<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra l\u00e9st \u00e1 Grens\u00e1sdeild Landsp\u00edtala, m\u00e1nudaginn 10. mars sl. eftir hetjulega bar\u00e1ttu vi\u00f0 erfi\u00f0 veikindi. A\u00f0ger\u00f0in sem \u00e1tti a\u00f0 l\u00e9tta henni l\u00edfi\u00f0 var\u00f0 \u00ferautaganga \u00ed storminum st\u00f3ra.<\/p>\n<p>Kjartan fa\u00f0ir Helgu orti til hennar afm\u00e6lislj\u00f3\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2001:<\/p>\n<p>N\u00fa h\u00e6kkar s\u00f3l \u00e1 lofti dag fr\u00e1 degi<\/p>\n<p>og dapurleikinn hverfur burt fr\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>M\u00edn \u00f3sk er s\u00fa a\u00f0 s\u00f3lin okkar megi,<\/p>\n<p>sk\u00edna l\u00edka \u00ed gar\u00f0inum hj\u00e1 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og ef svo er \u00fe\u00e1 m\u00e1ttu me\u00f0 m\u00e9r gle\u00f0jast,<\/p>\n<p>og m\u00e6ta n\u00fdjum degi hress og frj\u00e1ls.<\/p>\n<p>En haf\u00f0u vopn \u00fe\u00edn tilb\u00fain a\u00f0 verjast,<\/p>\n<p>og vongl\u00f6\u00f0 l\u00e1ttu sverfa n\u00fa til st\u00e1ls.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deegar upp er sta\u00f0i\u00f0 eftir slaginn,<\/p>\n<p>\u00fe\u00fa stendur frj\u00e1ls me\u00f0 p\u00e1lma \u00ed hendi \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>Og brj\u00f3st \u00feitt fullt af birtu allan daginn,<\/p>\n<p>\u00fe\u00e1 bl\u00f3mstrar r\u00f3s \u00ed gar\u00f0inum hj\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00e9r er ort um gle\u00f0i l\u00edfs og gl\u00edmu l\u00edka, um a\u00f0 nj\u00f3ta g\u00f3\u00f0ra daga en \u00feurfa einnig a\u00f0 berjast og skylmast vi\u00f0 erfi\u00f0 \u00f6fl. \u00cd lj\u00f3\u00f0inu eru upprisustef, v\u00edsun til \u00feess a\u00f0 sigra og standa me\u00f0 p\u00e1lma \u00ed hendi. P\u00e1lmagrein er fornt sigurt\u00e1kn eins og l\u00e1rvi\u00f0arsveigurinn er l\u00edka t\u00e1kn um k\u00f3r\u00f3nuna sem minnst var \u00e1 vi\u00f0 fermingu okkar flestra:<\/p>\n<p>\u201eVertu tr\u00far allt til dau\u00f0a og \u00e9g mun gefa \u00fe\u00e9r k\u00f3r\u00f3nu l\u00edfsins.\u201c (Op Jh 2.10b)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Og mamma sem \u00f6ldru\u00f0 kve\u00f0ur d\u00f3ttur s\u00edna h\u00e9r \u00ed dag orti eitt sinn um vonina:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vonin vopni\u00f0 okkar er,<\/p>\n<p>vonin vakir yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>Vonin vermir \u00e1r og s\u00ed\u00f0,<\/p>\n<p>vonin varir alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Vonin er m\u00e1ttugt vopn sem sigrar allt. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n vonar. Tr\u00fain og vonin eru systur, eiginlega tv\u00edburasystur s\u00e9u or\u00f0 Hebreabr\u00e9fsins h\u00f6f\u00f0 \u00ed huga en versi\u00f0 er eina skilgreining \u00ed Bibl\u00edunni allri \u00e1 tr\u00fanni sem sl\u00edkri:<\/p>\n<p>\u201eTr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.\u201c (Heb 11.1)<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra er horfin af \u00feessu l\u00edfi fyrir aldur fram. H\u00fan hef\u00f0i geta\u00f0 \u00e1tt g\u00f3\u00f0a daga en \u00fe\u00e1 kom kalli\u00f0. H\u00fan streyttist \u00e1 m\u00f3ti eins og henni var \u00ed bl\u00f3\u00f0 bori\u00f0, bar\u00f0ist me\u00f0an kraftar leyf\u00f0u en var\u00f0 a\u00f0 l\u00fata \u00fev\u00ed valdi sem enginn megnar a\u00f0 sn\u00faa ni\u00f0ur &#8211; nema einn. H\u00fan \u00e1tti tr\u00fa \u00ed hjarta s\u00e9r og \u00feegar \u00e9g vitja\u00f0i hennar \u00e1 Landsp\u00edtalanum og Grens\u00e1sdeildinni og las \u00ed eyra hennar fyrirheit hinnar helgu b\u00f3kar \u00fe\u00e1 lauk h\u00fan alltaf upp augum og hlusta\u00f0i grannt og hreyf\u00f0i jafnvel fingur. Dj\u00fap s\u00e1larinnar skynja\u00f0i \u00fea\u00f0 sem mestu skiptir og v\u00ed\u00f0ast og d\u00fdpst n\u00e6r.<\/p>\n<p>N\u00fa er fastan \u00feegar p\u00edslarsaga Jes\u00fa er rifju\u00f0u upp \u00ed kirkjun landsins og \u00ed \u00fatvarpi.<\/p>\n<p>Me\u00f0 s\u00ednum dau\u00f0a&#8217; hann deyddi<br \/> dau\u00f0ann og sigur vann,<br \/> makt hans og afli eyddi,<br \/> ekkert mig ska\u00f0a kann,<br \/> \u00fe\u00f3 leggist l\u00edk \u00ed j\u00f6r\u00f0u,<br \/> lifir m\u00edn s\u00e1la fr\u00ed,<br \/> h\u00fan m\u00e6tir aldrei h\u00f6r\u00f0u<br \/> himneskri s\u00e6lu \u00ed.<\/p>\n<p>H\u00e9r er slegi\u00f0 \u00e1 strengi sigurs og vonar sem b\u00fdr \u00ed Jes\u00fa Kristi sem breytti tilverunni \u00far dal dau\u00f0ans \u00ed gr\u00e6nar himins grundir \u00fear sem n\u00e6\u00f0is m\u00e1 nj\u00f3ta a\u00f0 lokinni l\u00edfsbar\u00e1ttu.<\/p>\n<p>Sterkustu kraftar tilverunnar eru ekki stormur og b\u00e1l, heldur eru \u00feeir allt a\u00f0rir &#8211; \u00f6fl sem ekkert f\u00e6r broti\u00f0 \u00e1 bak aftur &#8211; e\u00f0a me\u00f0 or\u00f0um postulans.<\/p>\n<p>\u201eEn n\u00fa varir tr\u00fa, von og k\u00e6rleikur, \u00feetta \u00ferennt, en \u00feeirra er k\u00e6rleikurinn mestur.\u201c (I Kor 13.13).<\/p>\n<p>Helga \u00de\u00f3ra er kv\u00f6dd af f\u00f3lki sem elska\u00f0i hana og virti sem manneskju me\u00f0 kostum s\u00ednum og g\u00f6llum, erf\u00f0av\u00edsum og \u00farvinnsluh\u00e1ttum. \u00deannig erum vi\u00f0 \u00f6ll, hvert me\u00f0 s\u00ednum h\u00e6tti, kostum og kynjum. H\u00fan er kv\u00f6dd af \u00feakkl\u00e1tu f\u00f3lki og allt sem var gott og allt sem var s\u00e1rt er lagt \u00ed hendur hins alm\u00e1ttka og miskunnsama Gu\u00f0s. Fort\u00ed\u00f0inni ver\u00f0ur aldrei breytt e\u00f0a eins og kona nokkur sag\u00f0i sem or\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i fyrir erfi\u00f0ri reynslu: \u00c9g var\u00f0 frj\u00e1ls \u00feegar m\u00e9r loksins t\u00f3kst a\u00f0 gefa upp alla von um breytta fort\u00ed\u00f0. Sama hugsun kemur fram \u00ed \u00e6\u00f0ruleysisb\u00e6ninni g\u00f3\u00f0u sem h\u00e9kk \u00e1 veggnum yfir d\u00e1narbe\u00f0i Helgu \u00de\u00f3ru:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 gefi m\u00e9r \u00e6\u00f0ruleysi<br \/> til a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0 \u00fea\u00f0<br \/> sem \u00e9g f\u00e6 ekki breytt,<br \/> kjark til a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed<br \/> sem \u00e9g get breytt<br \/> og vit til a\u00f0 greina \u00fear \u00e1 milli.<\/p>\n<p>Hann sem sigra\u00f0i alla storma og megna\u00f0i a\u00f0 kyrra b\u00e6\u00f0i vind og sj\u00f3, hann tekur \u00e1 m\u00f3ti henni, hann sem snart hana for\u00f0um \u00e1 enni og brj\u00f3st me\u00f0 sigurt\u00e1kni upprisunnar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Helgu \u00de\u00f3ru Thoroddsen Kjartansd\u00f3ttur me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hennar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur:<\/p>\n<p>Fr\u00e1 Kjartani Loftssyni og Dav\u00ed\u00f0 Jenssyni, systkinasonum Helgu \u00de\u00f3ru og \u00feeirra fj\u00f6lskyldum \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Ragnhildi Magn\u00fasd\u00f3ttur, fr\u00e6nku Helgu og J\u00f3hanni Steinssyni sem eru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum;<\/p>\n<p>fr\u00e1 samstarfsf\u00f3lki og vinum Kjartans og Emil\u00edu \u00ed L\u00faxemborg sem senda kve\u00f0jur s\u00ednar og fj\u00f6lskyldna sinna;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Sj\u00f6fn Hj\u00e1lmarsd\u00f3ttur og Sigurj\u00f3ni Arnlaugssyni sem eru \u00e1 Fl\u00f3r\u00edda;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Egil\u00ednu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, \u00e6skuvinkonu, sem n\u00fa b\u00fdr \u00ed Stykkish\u00f3lmi og komst ekki vegna lasleika;<\/p>\n<p>fr\u00e1 samstarfsf\u00f3lki \u00e1 Landakoti og<\/p>\n<p>fr\u00e1 samstarfsf\u00f3lki \u00e1 Heilbrig\u00f0isstofnun Vestmannaeyja en \u00ed kve\u00f0junni segir:<\/p>\n<p>\u201eMinning um yndislega konu lifir \u00ed hj\u00f6rtum okkar, \u00fev\u00ed okkur \u00fe\u00f3tti \u00f3skaplega v\u00e6nt um hana, h\u00fan snerti okkur \u00f6ll \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt.\u201c<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r &#8211; ekki hef\u00f0bundin l\u00edkfylgd.<\/p>\n<p>Signt yfir \u00ed forkirkju.<\/p>\n<p>Standandi erfi \u00ed safna\u00f0arheimilinu.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt \u00e1 <a href=\"http:\/\/localhost:8081\">ornbardur.com<\/a><\/p>\n<p>Postulleg blessun:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/helga-c3bec3b3ra-th-sc3a1lmaskrc3a1-nc3bd.pdf\">Helga \u00de\u00f3ra Th s\u00e1lmaskr\u00e1 n\u00fd<\/a><\/p>\n<p>Ritningarlestrar:<\/p>\n<p>S\u00e1lmur 130<\/p>\n<p>1Helgig\u00f6ngulj\u00f3\u00f0.<br \/> \u00dar dj\u00fapinu \u00e1kalla \u00e9g \u00feig, Drottinn,<br \/> 2Drottinn, heyr \u00fe\u00fa raust m\u00edna,<br \/> l\u00e1t eyru \u00fe\u00edn hlusta \u00e1 gr\u00e1tbei\u00f0ni m\u00edna.<br \/> 3Ef \u00fe\u00fa, Drottinn, g\u00e6fir g\u00e6tur a\u00f0 misgj\u00f6r\u00f0um,<br \/> Drottinn, hver fengi \u00fe\u00e1 sta\u00f0ist?<br \/> 4En hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er fyrirgefning<br \/> svo a\u00f0 menn \u00f3ttist \u00feig.<br \/> 5\u00c9g vona \u00e1 Drottin,<br \/> s\u00e1l m\u00edn vonar,<br \/> hans or\u00f0s b\u00ed\u00f0 \u00e9g.<br \/> 6Meir en v\u00f6kumenn morgun,<br \/> v\u00f6kumenn morgun,<br \/> \u00fer\u00e1ir s\u00e1l m\u00edn Drottin.<br \/> 7\u00d3, \u00cdsrael, b\u00ed\u00f0 \u00fe\u00fa Drottins<br \/> \u00fev\u00ed a\u00f0 hj\u00e1 Drottni er miskunn<br \/> og hj\u00e1 honum er gn\u00e6g\u00f0 lausnar.<br \/> 8Hann mun leysa \u00cdsrael<br \/> fr\u00e1 \u00f6llum misgj\u00f6r\u00f0um hans.<\/p>\n<p>J\u00f3hannes 14.1-6<\/p>\n<p>1\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. 2\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? 3\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. 4Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/> 5T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/> 6Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Helga \u00de\u00f3ra Thoroddsen Kjartansd\u00f3ttir 1945-2014 skur\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju, 18. mars 2014 kl. 15.00. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in og ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1179","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1179","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1179"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1179\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1179"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1179"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1179"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}