{"id":1158,"date":"2014-03-09T14:19:40","date_gmt":"2014-03-09T14:19:40","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1158"},"modified":"2014-03-09T14:19:40","modified_gmt":"2014-03-09T14:19:40","slug":"heimur-er-daudur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1158","title":{"rendered":"\u201eHeimur er dau\u00f0ur, en hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?\u201c"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/hoggormurogepli.jpg\" class=\"alignleft size-full wp-image-1166\" alt=\"hoggormurogepli\" width=\"264\" height=\"191\"><\/p>\n<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5\"><strong>\u201eHeimur er dau\u00f0ur, en hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?\u201c<\/strong><\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5\">Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju<\/span><\/p>\n<p>1. sd. \u00ed f\u00f6stu, 9. mars 2014<\/p>\n<p>1. M\u00f3s 3.1-19 Fall mannsins<\/p>\n<p>2. Kor 6.1-10 \u00d6reigar en eigum \u00fe\u00f3 allt<\/p>\n<p><strong>Matt 4.1-11 Freisting Jes\u00fa<\/strong><\/p>\n<p>Ritningarlestrana er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1lgast ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p>\u00cd r\u00e6\u00f0unni eru einhver innskot sem ekki eru \u00ed texta en koma fram \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur \u00ed senn <strong>hlusta\u00f0<\/strong> og <strong>lesi\u00f0<\/strong> eftir n\u00e6stu smellu.<!--more--><\/p>\n\n<p>B\u00e6nin m\u00e1 aldrei bresta \u00feig.<\/p>\n<p>B\u00fain er freisting \u00fdmislig.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 l\u00edf og s\u00e1l er l\u00fa\u00f0 og \u00fej\u00e1\u00f0,<\/p>\n<p>lykill er h\u00fan a\u00f0 drottins n\u00e1\u00f0.<\/p>\n<p>(HP Pss 4.22)<\/p>\n<p>N\u00e1\u00f0 s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur og fri\u00f0ur fr\u00e1 Gu\u00f0i f\u00f6\u00f0ur vorum og Drottni Jes\u00fa Kristi. Amen.<\/p>\n<p>Lygar, mor\u00f0, h\u00f3rd\u00f3mur, svik, sifjaspell, \u00fej\u00f3fna\u00f0ur, landr\u00e1\u00f0, nau\u00f0ganir, d\u00f3msmor\u00f0. \u00deetta hlj\u00f3mar eins og slagor\u00f0alisti \u00ed augl\u00fdsingu um sakam\u00e1lab\u00f3k e\u00f0a hasarmynd e\u00f0a \u00fe\u00e1 l\u00fdsing \u00e1 umfj\u00f6llun gulu pressunnar en \u00ed raun er h\u00e9r veri\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa til hinnar helgu b\u00f3kar, Bibl\u00edunnar.<\/p>\n<p>Bibl\u00edan er merkileg b\u00f3k. H\u00fan er saga samskipta mannkyns vi\u00f0 skapara sinn, saga um brigsl manna og elsku Gu\u00f0s. H\u00fan er saga \u00fe\u00edn og m\u00edn. Sagan um sk\u00f6pun mannsins og fall er l\u00edka saga okka<\/p>\n<p>r. Vi\u00f0 erum s\u00f6mu \u00e6ttar og Adam og Eva. Vi\u00f0 breg\u00f0umst vi\u00f0 \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00feau for\u00f0um. Vi\u00f0 felum okkur og lokum augunum fyrir sannleikanum.<\/p>\n<p>Fyrsta sunnudag \u00ed f\u00f6stu \u00edhugar kirkjan freistingarfr\u00e1s\u00f6guna &#8211; s\u00f6guna um gl\u00edmu Jes\u00fa vi\u00f0 hi\u00f0 illa, \u00fear sem reynt er a\u00f0 t\u00e6la hann fr\u00e1 \u00e6tlunarverki s\u00ednu og ey\u00f0ileggja l\u00edf hans og markmi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er engin tilviljun a\u00f0 textinn um fall mannsins er valinn til lesturs me\u00f0 freistingars\u00f6gunni. \u00dear me\u00f0 er teflt saman hinum gamla Adam og hinum n\u00fdja, manninum sem br\u00e1st og tapa\u00f0i og manninum sem st\u00f3\u00f0st og sigra\u00f0i. Sk\u00f6pun, fall og endurlausn eru grunnstef \u00ed Kristinni tr\u00fa. S\u00fa vitund hefur b\u00fai\u00f0 me\u00f0 \u00f6llum m\u00f6nnum \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum a\u00f0 ver\u00f6ldin s\u00e9 ekki eins og henni ber a\u00f0 vera. Minningin um hi\u00f0 fullkomna, horfna, b\u00fdr \u00ed s\u00e9rhverri s\u00e1l &#8211; og skuggi fallsins er \u00fear l\u00edka. \u00der\u00e1in eftir \u00fev\u00ed sem tapa\u00f0ist er einn mikilv\u00e6gasti drifkraftur l\u00edfsins, bl\u00f3\u00f0streymi\u00f0 \u00ed \u00e6\u00f0um kirkjunnar. \u00d6ll skepnan stynur, segir P\u00e1ll, me\u00f0an h\u00fan b\u00ed\u00f0ur \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a endanlega leyst \u00far fj\u00f6trum \u00feeim sem falli\u00f0 lag\u00f0i henni um h\u00e1ls.<\/p>\n<p>\u00cd s\u00f6gunum tveim, um fall mannsins og freistingar frelsarans er \u00feri\u00f0ja pers\u00f3na sem leikur sitt hlutverk af innlifun og \u00e1str\u00ed\u00f0u, leikur lausum hala, ef svo m\u00e1 a\u00f0 or\u00f0i komast. \u00dea\u00f0 er freistarinn sj\u00e1lfur, sem ber nafni\u00f0 <i>satan<\/i> \u00e1 hebresku, en <i>diabolos<\/i> \u00e1 gr\u00edsku og hefur hloti\u00f0 nafni\u00f0 <i>dj\u00f6full<\/i> \u00e1 \u00edslenku. Hann er lygarinn, fa\u00f0ir lyginnar. Or\u00f0i\u00f0 <i>satan<\/i> merkir \u00e1k\u00e6randi, lygari, r\u00f3gberi, s\u00e1 sem ber upp\u00e1 menn falskar sakir og grefur undan sannleikanum. Um \u00feann kump\u00e1na segir s\u00e9ra Hallgr\u00edmur (2:4):<\/p>\n<p>Satan hefur og sama lag,<\/p>\n<p>situr hann um mig n\u00f3tt og dag,<\/p>\n<p>hyggjandi\u2019 a\u00f0 gl\u00f6ggt, hvar h\u00e6gast er<\/p>\n<p>\u00ed h\u00e6ttu og synd a\u00f0 koma m\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00cd t\u00edmaritinu Time (Time, March 13, 2000) birtist fors\u00ed\u00f0ugrein sem fjallar um lygar. \u00dear er m.a. vitna\u00f0 \u00ed s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing vi\u00f0 bandar\u00edskan h\u00e1sk\u00f3la sem segir a\u00f0 logi\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 hverjum einstaklingi 200 sinnum dag hvern e\u00f0a \u00e1 fimmtu hverri m\u00edn\u00fatu.<\/p>\n<p>\u00cd fj\u00f6lmi\u00f0lum er margt satt og anna\u00f0 logi\u00f0. \u00dear eru oft h\u00e1lfkve\u00f0nar v\u00edsur og dylgjur, sannleikanum er hagr\u00e6tt \u00ed \u00fe\u00e1gu au\u00f0s og valds e\u00f0a annarra hagsmuna. En um lei\u00f0 gegna fj\u00f6lmi\u00f0lar g\u00edfurlega mikilv\u00e6gu hlutverki \u00ed samf\u00e9laginu. Heilagt hlutverk \u00feeirra er a\u00f0 veita stj\u00f3rnv\u00f6ldum a\u00f0hald, s\u00f6mulei\u00f0is stofnunum, fyrirt\u00e6kjum og einstaklingum. Til a\u00f0 veita \u00feeim a\u00f0hald starfa h\u00e9r \u00e1 landi a\u00f0ilar sem fylgjast me\u00f0 umfj\u00f6llun fj\u00f6lmi\u00f0la um einst\u00f6k m\u00e1l og meta hlutl\u00e6gni, jafnr\u00e6\u00f0i og fagleg vinnubr\u00f6g\u00f0. Allt er \u00feetta mikilv\u00e6gt.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 b\u00faum n\u00fa vi\u00f0 einsleitan fj\u00f6lmi\u00f0laheim s\u00e9 liti\u00f0 til prentmi\u00f0la og sama m\u00e1 segja um sj\u00f3nvarp. Prentmi\u00f0larnir eru reknir af einkaa\u00f0ilum og ekki er \u00e6t\u00ed\u00f0 lj\u00f3s fyrir hva\u00f0 \u00feeir standa. H\u00e9r eru starfr\u00e6ktar tveir mi\u00f0lar, hvor me\u00f0 s\u00edna fr\u00e9ttastofu, sem \u00fatvapa og sj\u00f3nvarpa, annar einkarekinn en hinn \u00e1 vegum r\u00edkisisins. \u00cd raun er \u00feetta allt of einsleitt. En hva\u00f0 getur f\u00e1menn \u00fej\u00f3\u00f0? Vi\u00f0 getum gert betur og \u00feurfum a\u00f0 huga a\u00f0 eflingu fj\u00f6lmi\u00f0lunar \u00ed \u00fe\u00e1gu sannleikans og r\u00e9ttl\u00e6tisins og afhj\u00fapa \u00fe\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0la sem stunda gr\u00e1\u00f0uga s\u00e9rhagsmunag\u00e6slu.<\/p>\n<p>\u00cd greininni sem \u00e1\u00f0ur var vitna\u00f0 til er sagt fr\u00e1 ranns\u00f3kn v\u00edsindamanna \u00e1 sanns\u00f6gli f\u00f3lks. Hven\u00e6r segja menn satt og hven\u00e6r \u00f3satt? Me\u00f0 t\u00f6lvuforritum er n\u00fa h\u00e6gt a\u00f0 greina \u00fea\u00f0 me\u00f0 nokkurri n\u00e1kv\u00e6mni hvort svipbrig\u00f0i og or\u00f0 fari saman og beri vott um sanns\u00f6gli e\u00f0a lygar. Sl\u00edkt ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 seint sanna\u00f0 me\u00f0 \u00f3yggjandi h\u00e6tti \u00fev\u00ed a\u00f0 sumir eru svo miklir leikarar a\u00f0 \u00feeim tekst a\u00f0 blekkja me\u00f0 f\u00f6lskum svipbrig\u00f0um. Blekkingar eru \u00fev\u00ed mi\u00f0ur fylgifiskur fallins heims.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er \u00f3lga \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu vegna \u00feess a\u00f0 almenningi ofb\u00fd\u00f0ur frj\u00e1lsleg umgengni allt of margra vi\u00f0 sannleikann.<\/p>\n<p>Og svo eru \u00fea\u00f0 augl\u00fdsingarnar, gyllibo\u00f0in \u00f6ll, neyslufreistingarnar sem sag\u00f0ar eru f\u00e6ra okkur hamingjuna \u00e1 silfurfati. Og vi\u00f0 f\u00f6llum hvert um anna\u00f0 \u00fevert fyrir \u00feessum freistingum \u00ed \u00feeirri f\u00f6lsku tr\u00fa a\u00f0 meira s\u00e9 betra \u00feegar sannleikurinn segir okkur a\u00f0 oftar en ekki s\u00e9 minna betra. Vi\u00f0 erum l\u00edklega oftar en vi\u00f0 t\u00f6kum eftir \u00fev\u00ed leiksoppar l\u00e6v\u00edsra afla. Erum vi\u00f0 e.t.v. eins og fi\u00f0urf\u00e9 \u00ed b\u00fai alifuglab\u00e6nda? \u00c1 me\u00f0an vi\u00f0 h\u00f6fum n\u00f3g a\u00f0 b\u00edta og brenna vir\u00f0ist okkur standa \u00e1 sama um \u00f6rl\u00f6g heimsins. Koma okkur t.a.m. vi\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur f\u00f3lks \u00ed S\u00fdrlandi og \u00dakra\u00ednu e\u00f0a kj\u00f6r f\u00e1t\u00e6kra \u00e1 \u00cdslandi? Hva\u00f0 var\u00f0ar \u00fea\u00f0 okkur a\u00f0 samkynhneigt f\u00f3lk s\u00e6tir k\u00fagun og ofbeldi v\u00ed\u00f0a \u00ed heiminum? \u00deetta kemur okkur \u00f6llum vi\u00f0 en til \u00feess a\u00f0 um okkur muni \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 vakna af dvala og do\u00f0a og taka til hendinni.<\/p>\n<p>\u00deetta er d\u00f6kk mynd og henni brug\u00f0i\u00f0 upp til \u00feess a\u00f0 vekja okkur til umhugsunar um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna. Ver\u00f6ldin er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki eint\u00f3m parad\u00eds eins og n\u00fa er \u00e1statt. Parad\u00eds er horfin. Sk\u00f6punin er fallin og \u00e1 vettvangi hennar leikur fa\u00f0ir lyginnar lausum hala og blindar f\u00f3lk, vekur \u00falf\u00fa\u00f0 og \u00f3tta, sundrung og fjandskap.<\/p>\n<p>\u201eHeimur er dau\u00f0ur, en hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?\u201c Svo kva\u00f0 Eysteinn \u00c1sgr\u00edmsson, munkur \u00e1 14. \u00f6ld \u00ed lj\u00f3\u00f0i s\u00ednu Lilju sem allir vildu kve\u00f0i\u00f0 hafa. Hann var breyskur ma\u00f0ur og baldinn \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum en fann l\u00edfsins lei\u00f0 \u00ed lykils\u00f6gum Bibl\u00ednnar. Lilja fjallar um stefin \u00ferj\u00fa sem mestu skipta: sk\u00f6pun, fall og endurlausn.<\/p>\n<p>\u201eHeimur er dau\u00f0ur, en hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?\u201c Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 r\u00edsa upp og takast \u00e1 vi\u00f0 vanda okkar sj\u00e1lfra og \u00fear me\u00f0 vanda heimsins. \u00deeirri vinnu mun aldrei lj\u00faka me\u00f0an \u00feessi j\u00f6r\u00f0 stendur. \u00deess vegna starfar kirkjan og berst fyrir betri heimi. H\u00fan ver\u00f0ur f\u00f6lsk og deig ef h\u00fan talar ekki um \u00fea\u00f0 sem mi\u00f0ur fer \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu. \u00de\u00e1 bregst h\u00fan h\u00f6fundi s\u00ednum og frelsara sem sj\u00e1lfur gekk \u00e1 h\u00f3lm vi\u00f0 illskuna og \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og galt fyrir \u00fea\u00f0 me\u00f0 l\u00edfi s\u00ednu. Kirkjan er \u00ed heiminum en h\u00fan m\u00e1 ekki ver\u00f0a af heiminum. H\u00fan fer ekki varhluta af deilum og \u00falf\u00fa\u00f0. Og \u00fea\u00f0 sama \u00e1 vi\u00f0 um okkur. Vi\u00f0 lifum h\u00e9r \u00ed heimi en megum aldrei ver\u00f0a samdauna heiminum \u00fev\u00ed vi\u00f0 erum borgarar annars heims, annars r\u00edkis, r\u00edkis Gu\u00f0s. Kristur sag\u00f0i vi\u00f0 l\u00e6risveina s\u00edna \u00e1\u00f0ur en hann kvaddi \u00fe\u00e1:<\/p>\n<p>\u201e\u00cd heiminum hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ferenging, en veri\u00f0 hughraustir, \u00e9g hef sigra\u00f0 heiminn.\u201c<\/p>\n<p>Sk\u00f6pun, fall og endurlausn eru kaflarnir \u00fer\u00edr \u00ed bj\u00f6rgunars\u00f6gu Gu\u00f0s. S\u00fa bj\u00f6rgun var ekki \u00f3d\u00fdr. H\u00fan kosta\u00f0i f\u00f3rnir. H\u00fan kosta\u00f0i fri\u00f0\u00fe\u00e6gingardau\u00f0a sonar Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum glata\u00f0 parad\u00eds en \u00ed sk\u00edrninni erum vi\u00f0 v\u00edg\u00f0 \u00feeirri n\u00fdju ver\u00f6ld sem Gu\u00f0 mun lei\u00f0a fram \u00ed fyllingu t\u00edmans. \u00dear gefur Gu\u00f0 okkur \u00feegnr\u00e9tt \u00ed r\u00edki s\u00ednu sem aldrei mun \u00e1 grunn ganga. Sk\u00edrnin er l\u00edfgj\u00f6f, gj\u00f6f eil\u00edfs l\u00edfs. En um lei\u00f0 er h\u00fan v\u00edgsla til bar\u00e1ttu \u00ed anda Krists. Sk\u00edrnin er parad\u00edsarheimt. Lifum \u00ed \u00feeirri vitund og vissu a\u00f0 frelsarinn st\u00f3\u00f0st allar freistingar og gyllibo\u00f0 heimsins og sigra\u00f0i a\u00f0 lokum dau\u00f0ann og veldi hins illa. S\u00e1 sigur er enn a\u00f0 gerast, sigur hans er ver\u00f0andi me\u00f0an \u00feessi ver\u00f6ld vakir og bi\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er fagna\u00f0arerindi kristinnar tr\u00faar &#8211; a\u00f0 Gu\u00f0s r\u00edki kemur.<\/p>\n<p>Kristur svara\u00f0i bl\u00ed\u00f0m\u00e6lum hins illa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vitna \u00ed or\u00f0 Gu\u00f0s. \u201eRita\u00f0 er\u201c, sag\u00f0i hann aftur og aftur og sneri \u00feannig vi\u00f0 skeytum hins illa. Ef \u00fe\u00fa ert Sonur Gu\u00f0s . . . breyttu \u00fe\u00e1 steinunum \u00ed brau\u00f0 . . . kasta\u00f0a \u00fe\u00e9r ni\u00f0ur af \u00feakbr\u00fan musterisins \u00fev\u00ed Gu\u00f0 mun bjarga \u00fe\u00e9r . . . \u00c9g gef \u00fe\u00e9r allan heiminn ef \u00fe\u00fa tilbi\u00f0ur mig. \u00d6llu \u00feessu svara\u00f0i Jes\u00fas me\u00f0 tilv\u00edsunum \u00ed hi\u00f0 rita\u00f0a or\u00f0 Gu\u00f0s. Hann \u00feekkti fyrirheit Gu\u00f0s, sm\u00e1aletri\u00f0 \u00ed tryggingarskilm\u00e1lunum og l\u00e9t ekki sn\u00faa \u00e1 sig.<\/p>\n<p>Freistarinn notar jafnan \u00fe\u00e1 a\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 rangt\u00falka sannleikann. \u00deegar fr\u00e6i vantr\u00faar hefur veri\u00f0 s\u00e1\u00f0 er au\u00f0veldara a\u00f0 gera lygina tr\u00faanlega. H\u00e1lfsannleikur og vafam\u00e1l eru kj\u00f6ra\u00f0st\u00e6\u00f0ur til a\u00f0 telja manninum tr\u00fa um a\u00f0 ekkert s\u00e9 honum \u00e6\u00f0ra, a\u00f0 ekkert s\u00e9 algildara en hugsun mannsins og ekkert r\u00e9ttara en \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hans hverju sinni.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00f3talm\u00f6rgum svi\u00f0um er heimurinn \u00e1 villig\u00f6tum, \u00e1 helvegum. Vi\u00f0 \u00feeirri villu er ekkert sem dugar nema or\u00f0&nbsp; Gu\u00f0s og hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i hans \u00ed Jes\u00fa Kristi. Hann kom \u00ed \u00feennan heim til a\u00f0 frelsa og leysa, endurleysa. \u00cd fyllingu t\u00edmans ver\u00f0ur r\u00edki hans algj\u00f6rt.<\/p>\n<p>\u00c1 me\u00f0an vi\u00f0 b\u00ed\u00f0um \u00feess er hollt a\u00f0 \u00edhuga or\u00f0i postulans sem segir \u00ed pistli dagsins:<\/p>\n<p>\u201e\u00de\u00f3tt talinn s\u00e9 villuma\u00f0ur segi \u00e9g sannleikann, sag\u00f0ur \u00f3\u00feekktur en er al\u00feekktur, kominn \u00ed dau\u00f0ann og samt lifi \u00e9g, tyfta\u00f0ur og \u00fe\u00f3 ekki deyddur, hryggur en \u00fe\u00f3 \u00e1vallt gla\u00f0ur, f\u00e1t\u00e6kur en au\u00f0ga \u00fe\u00f3 marga, \u00f6reigi en \u00e1 \u00fe\u00f3 allt.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r talar ma\u00f0ur sem \u00feekkir l\u00edfi\u00f0 og grundv\u00f6ll \u00feess. H\u00e9r er ekki lifa\u00f0 eftir f\u00f6lskum kennisetningum heldur \u00ed \u00feeirri von sem veit a\u00f0 hin eil\u00edfu sannindi ver\u00f0a ekki keypt me\u00f0 \u00feessa heims gjaldmi\u00f0lum. \u00deau \u00f6\u00f0lumst vi\u00f0 a\u00f0eins \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 Gu\u00f0 og son hans Jes\u00fa Krist.<\/p>\n<p>S\u00f6gurnar um fall mannsins, um freistingar Jes\u00fa og fleiri og fleiri, eru lykils\u00f6gur, sem opna upp fyrir okkur skilning \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni, st\u00f6\u00f0u mannsins \u00ed sk\u00f6punarverkinu, verkefni okkar og vonir. \u00deess vegna er svo mikilv\u00e6gt a\u00f0 lesa \u00feessar s\u00f6gur, leita skilnings \u00e1 \u00feeim og finna viskuna \u00ed \u00feeim. Kirkjan er vettvangur \u00feeirrar vinnu og h\u00e9r er gott a\u00f0 vera \u00fev\u00ed Drottinn \u00feekkir e\u00f0li okkar, breiskleika og brigsl en elska okkur \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 allt. Vi\u00f0 erum \u00ed fylgd me\u00f0 honum sem st\u00f3\u00f0st allt og veit a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum stu\u00f0ning.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi, er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/a\/1-sunnudagur-i-fostu\/\" target=\"_blank\">Ritningarlestrar dagsins.<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson \u201eHeimur er dau\u00f0ur, en hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?\u201c Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju 1. sd. \u00ed f\u00f6stu, 9. mars 2014 1. M\u00f3s 3.1-19 Fall mannsins 2. Kor 6.1-10 \u00d6reigar en eigum \u00fe\u00f3 allt Matt 4.1-11 Freisting Jes\u00fa Ritningarlestrana er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1lgast ne\u00f0anm\u00e1ls. \u00cd r\u00e6\u00f0unni eru einhver innskot sem ekki eru \u00ed texta en [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-1158","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1158","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1158"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1158\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1158"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1158"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1158"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}