{"id":1143,"date":"2014-02-21T20:22:18","date_gmt":"2014-02-21T20:22:18","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1143"},"modified":"2014-02-21T20:22:18","modified_gmt":"2014-02-21T20:22:18","slug":"olafur-kristofer-gudmundsson-1960-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1143","title":{"rendered":"\u00d3lafur Krist\u00f3fer Gu\u00f0mundsson 1960-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/olafurkristofergudm.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1144\" alt=\"OlafurKristoferGudm\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/olafurkristofergudm.png\" width=\"205\" height=\"286\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00d3lafur Krist\u00f3fer Gu\u00f0mundsson<\/b><\/p>\n<p>1960-2014<\/p>\n<p>framkv\u00e6mdastj\u00f3ri hj\u00e1 \u00d6lger\u00f0inni<\/p>\n<p>Lindasm\u00e1ra 4, K\u00f3pavogi<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju f\u00f6studaginn 21. febr\u00faar 2014 kl. 13<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 og <strong>lesi\u00f0<\/strong> r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot kunna a\u00f0 vera \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni sem ekki eru \u00ed textanum. <strong>S\u00e1lmaskr\u00e1in<\/strong> me\u00f0 myndum er ne\u00f0st.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>Ef \u00fei\u00f0 mundu\u00f0 strekkja st\u00f3ran bor\u00f0a utan \u00e1 \u00d6lger\u00f0ina og setja \u00e1 hann l\u00fdsingu \u00e1 \u00d3la, hva\u00f0a or\u00f0 mundu\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00e1ta standa \u00fear? \u00deessa spurningu lag\u00f0i \u00e9g fyrir f\u00f3lki\u00f0 hans og svari\u00f0 l\u00e9t ekki \u00e1 s\u00e9r standa. Hann \u00d3li var FJ\u00d6LSKYLDUMA\u00d0UR.<\/p>\n<p>F\u00f3lki\u00f0 hans var \u00ed fyrirr\u00fami alla t\u00ed\u00f0. Hann elska\u00f0i konu s\u00edna og b\u00f6rn, tengdab\u00f6rn og barnab\u00f6rn, systkini s\u00edn og fr\u00e6nf\u00f3lk og f\u00f3lk almennt tala\u00f0. Hann f\u00e9kk a\u00f0 reyna \u00fea\u00f0 \u00e1 eigin skinni hva\u00f0 fj\u00f6lskyldan er mikilv\u00e6g \u00feegar hann var drengur. Mamma hans veiktist er hann var 6 \u00e1ra og var \u00e1 sp\u00edtala \u00fear til h\u00fan d\u00f3 en \u00fe\u00e1 var \u00d3li 12 \u00e1ra og pabba missti hann 18 \u00e1ra. \u00deetta voru erfi\u00f0ir t\u00edmar og hann mundi \u00feegar hann var einn me\u00f0 pabba enda langyngstur systkina sinna og \u00feau farin a\u00f0 heiman fyrir l\u00f6ngu. Pabbi var einnig me\u00f0 skerta heilsu fr\u00e1 \u00fev\u00ed l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur \u00feegar elstu systkinin voru ung. Heims\u00f3knir me\u00f0 pabba \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 voru daglegt brau\u00f0 og svo f\u00f3r \u00d3li oft einn me\u00f0 str\u00e6t\u00f3 til a\u00f0 heims\u00e6kja m\u00f6mmu og var\u00f0 a\u00f0 manna sig upp \u00ed a\u00f0 hringja bj\u00f6llunni \u00e1 r\u00e9ttri stoppist\u00f6\u00f0u til a\u00f0 fara \u00far vagninum og ganga inn \u00ed st\u00f3ra h\u00fasi\u00f0 \u00fear sem mamma l\u00e1. Vonin bj\u00f3 \u00ed brj\u00f3sti hans um a\u00f0 h\u00fan n\u00e6\u00f0i heilsu og k\u00e6mi heim en s\u00fa von br\u00e1st. \u00dea\u00f0 breg\u00f0ast margar vonir \u00ed l\u00edfinu. En \u00feegar hann var or\u00f0inn st\u00f3r og b\u00fainn a\u00f0 stofna s\u00edna eigin fj\u00f6lskyldu \u00fe\u00e1 vissi hann a\u00f0 hver dagur var gj\u00f6f og aldrei a\u00f0 vita hven\u00e6r kalli\u00f0 k\u00e6mi. Og n\u00fa hefur fj\u00f6lskyldan hans \u00d3la or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00feeim harmi a\u00f0 missa hann svo \u00f3v\u00e6nt og \u00f3skiljanlega \u00e1 besta aldri &#8211; 53 \u00e1ra gamlan. \u00deetta er ekki r\u00e9ttl\u00e1tt, \u00feetta er \u00f3r\u00e9ttl\u00e1tt, segjum vi\u00f0 rei\u00f0 og s\u00e1r \u00ed gegnum sorgart\u00e1rin. En \u00fev\u00ed er til a\u00f0 svara a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 hefur hvorki lofa\u00f0 okkur langl\u00edfi n\u00e9 lausn undan \u00fej\u00e1ningum og sj\u00fakd\u00f3mum. L\u00edfi\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0 og mestu skiptir a\u00f0 nj\u00f3ta fer\u00f0arinnar hvern dag, hvers \u00e1fanga og muna a\u00f0 fj\u00f6lskyldan er \u00fea\u00f0 d\u00fdrm\u00e6tasta sem vi\u00f0 eigum \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>Hann h\u00e9t \u00d3lafur Krist\u00f3fer og skrifa\u00f0i sig oft \u00d3laf Kr. sem var \u00ed senn stytting \u00e1 nafninu og v\u00edsum \u00ed hi\u00f0 eina sanna KR \u00ed Vesturb\u00e6num. Hann f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 21. apr\u00edl 1960.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Krist\u00edn Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir, f. 29.3. 1916, d. 7.4. 1972, og Gu\u00f0mundur P\u00e9tur \u00d3lafsson, f. 3.10. 1911, d. 23.7. 1979. \u00d3lafur var yngstur fimm systkina:<\/p>\n<p>Dav\u00ed\u00f0 Kristj\u00e1n, f. 20.12. 1938, d. 20.9. 2009.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg\u00f3lfur, f. 2.1. 1941.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur, f. 28.9. 1945 og<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg, f. 1.10. 1949.<\/p>\n<p>\u00deau voru alla t\u00ed\u00f0 samheldin systkinin og h\u00e9ldu vel utan um \u00d3la eftir a\u00f0 foreldrar \u00feeirra l\u00e9tust. \u00d3li \u00f3lst upp \u00ed Vesturb\u00e6num og lauk grunnsk\u00f3lapr\u00f3fi fr\u00e1 Valh\u00fasask\u00f3la \u00e1 Seltjarnarnesi. Hann horf\u00f0i \u00e1 skipin sigla um sundin bl\u00e1 og t\u00f3k stefnuna \u00e1 sj\u00f3mennskuna og f\u00f3r \u00ed St\u00fdrimannask\u00f3lann og \u00fatskrifa\u00f0ist \u00fea\u00f0an \u00e1ri\u00f0 1983. Eftir \u00fea\u00f0 var hann \u00e1 millilandaskipum sem h\u00e1seti og st\u00fdrima\u00f0ur, fyrst hj\u00e1 skipadeild Sambandsins og s\u00ed\u00f0ar hj\u00e1 Hafskip. Hann h\u00e6tti sj\u00f3mennsku \u00e1ri\u00f0 1986 en \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00e1stin komi\u00f0 inn \u00ed l\u00edf hans. Hann kynntist yndislegri konu \u00far Vestmannaeyjum 1984. H\u00fan heitir Gu\u00f0n\u00fd, f. 2.3. 1963, d\u00f3ttir Gu\u00f0laugar Einarsd\u00f3ttur, f. 1939 og Helga Gu\u00f0nasonar, f. 1937. Svo komu b\u00f6rnin, fyrstu tv\u00f6, hvort \u00e1 s\u00ednu \u00e1rinu og \u00fea\u00f0 \u00feri\u00f0ja s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00d3lafs og Gu\u00f0n\u00fdjar eru:<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur P\u00e9tur, f. 10.5. 1985, samb\u00fdliskona hans er Bjarney Anna Bjarnad\u00f3ttir, f. 1984, d\u00f3ttir \u00feeirra Emma Gu\u00f0n\u00fd, f. 2013.<\/p>\n<p>Rakel \u00ddr, f. 3.12. 1986, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Lloyd Hans McFetridge, f. 1980, sonur \u00feeirra Hinrik P\u00e9tur, f. 2011.<\/p>\n<p>Yngst systkinanna er Helga Krist\u00edn, f. 10.1. 1994.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1987 ur\u00f0u skil \u00ed l\u00edfi hans en \u00fe\u00e1 f\u00f3r hann \u00ed \u00e1fengisme\u00f0fer\u00f0. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 g\u00f3\u00f0ur f\u00e9lagi \u00e1 sj\u00f3num og duglegur til allra verka og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00e6vint\u00fdrum me\u00f0 str\u00e1kunum eins og gengur en \u00feegar hann drakk \u00fe\u00e1 var\u00f0 hann oft rei\u00f0ur og \u00e6stur enda haf\u00f0i l\u00edfi\u00f0 veri\u00f0 honum nokku\u00f0 m\u00f3tdr\u00e6gt \u00ed \u00e6sku. Hann var bitur og s\u00e1r yfir hlutskipti s\u00ednu en \u00fea\u00f0 breyttist allt \u00ed kj\u00f6lfar me\u00f0fer\u00f0arinnar og \u00farvinnslu hans \u00e1 atvikum l\u00edfsins og svo var Gu\u00f0n\u00fd honum einst\u00f6k eiginkona, sto\u00f0 og stytta.<\/p>\n<p>[Innskot um me\u00f0fer\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00cdslandi]<\/p>\n<p>\u00deegar hann kom \u00ed land sneri s\u00e9r a\u00f0 verslunarst\u00f6rfum, vann fyrst hj\u00e1 N\u00fdjab\u00e6\/Hagkaupum \u00e1 Seltjarnarnesi. \u00c1ri\u00f0 1988 r\u00e9\u00f0 hann sig sem s\u00f6lumann hj\u00e1 heildversluninni Dan\u00edel \u00d3lafsson e\u00f0a Dan\u00f3l, sem s\u00ed\u00f0ar sameina\u00f0ist \u00d6lger\u00f0inni \u00fear sem hann starfa\u00f0i s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 26 \u00e1r, s\u00ed\u00f0ast sem me\u00f0eigandi og einn af framkv\u00e6mdastj\u00f3rum f\u00e9lagsins.<\/p>\n<p>Hann f\u00f3r v\u00ed\u00f0a um land sem s\u00f6luma\u00f0ur og \u00feegar hann kom \u00ed b\u00e6i og \u00feorp \u00fati \u00e1 landi \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 hans fyrsta verk a\u00f0 kaupa sta\u00f0arbla\u00f0i\u00f0 og lesa \u00fea\u00f0 upp til agna. \u00de\u00e1 var hann or\u00f0inn vel undirb\u00fainn fyrir verk dagsins. Hann r\u00e6ddi vi\u00f0 kallana og kellingarnar \u00ed b\u00fa\u00f0unum og vissi allt um l\u00edfi\u00f0 \u00ed b\u00e6num og \u00feeim fannst hann vera \u00feeirra ma\u00f0ur og \u00feau eiga \u00ed honum hvert bein. Hann haf\u00f0i mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a h\u00e6fileika til a\u00f0 tengjast f\u00f3lki og halda uppi samr\u00e6\u00f0um. Ef \u00d3li hitti tvo \u00fe\u00e1 \u00feekkti hann \u00ferj\u00e1, heyr\u00f0i \u00e9g sagt um hann. Oft kom hann heim me\u00f0 hr\u00fagur af vettlingum og h\u00fafum sem b\u00fa\u00f0arkonur v\u00edtt og breitt um landi\u00f0 g\u00e1fu honum \u00e1 fer\u00f0um hans sem vildu gle\u00f0ja \u00feenna g\u00f3\u00f0a s\u00f6lumann og b\u00f6rnin hans.<\/p>\n<p>Hann var str\u00ed\u00f0inn og upp\u00e1t\u00e6kjasamur og l\u00e9k s\u00e9r stundum a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1 \u00f6ndver\u00f0ri sko\u00f0un vi\u00f0 f\u00f3lk bara til a\u00f0 \u00e6sa mannskapinn d\u00e1l\u00edti\u00f0 upp. Margir fengu a\u00f0 kenna \u00e1 s\u00edmaati sem hann beitt stundum \u00ed galsa og gr\u00edni.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i sterkar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fdmsum m\u00e1lu. Hann var t.d. ekki yfir sig hrifinn af s\u00e9rkeyptum b\u00edln\u00famerum en sag\u00f0ist \u00fe\u00f3 alveg vita hva\u00f0 hann mundi setja \u00e1 sinn b\u00edl ef hann fengi s\u00e9r eitt sl\u00edk. Hann mundi setja \u00e1 \u00fea\u00f0 DAN\u00d3LI. Hann var dan\u00f3l-ma\u00f0ur \u00ed gegn og ef hann hitti vini s\u00edna \u00ed kj\u00f6rb\u00fa\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1tti hann \u00fea\u00f0 til a\u00f0 t\u00edna upp \u00far k\u00f6rfunni v\u00f6rur keppinautanna og segja: Nei, \u00fe\u00fa kaupi ekki \u00feetta!<\/p>\n<p>Hann gaf sig \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lki og \u00feegar hann gekk um ganga og sali \u00d6lger\u00f0arinnar \u00fe\u00e1 t\u00f3k hann starfsmenn tali og spur\u00f0i um hagi \u00feeirra, b\u00f6rnin \u00feeirra, fj\u00f6lskylduna. \u00deannig var hann, \u00e1hugasmur um m\u00e1lefni annarra, g\u00f3\u00f0ur yfirma\u00f0ur og vinur vina sinna.<\/p>\n<p>Gu\u00f0n\u00fd talar um hann sem klettinn sinn. Hann var vakinn og sofinn yfir velfer\u00f0 hennar og barnanna. Heimili \u00feeirra er \u00ed K\u00f3pavogi og \u00fear \u00f3lust b\u00f6rnin upp og t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttum eins og vera ber og \u00d3li var\u00f0 mikill stu\u00f0ningsma\u00f0ur Blikanna enda \u00fe\u00f3tt KR-hjarta\u00f0 t\u00e6ki aldrei nein feilsl\u00f6g. Hann var umsj\u00f3narma\u00f0ur f\u00f3tboltali\u00f0a barnanna en me\u00f0an \u00feau voru \u00e1 mestu gelgjunni vildu \u00feau helst ekki sj\u00e1 pabba \u00f6skrandi \u00e1 hli\u00f0arl\u00ednunni og m\u00e1tti hann helst ekki koma \u00e1 leiki hj\u00e1 \u00feeim. En n\u00fana er \u00feetta allt \u00ed sj\u00f3\u00f0i mininganna um st\u00f3rkostlegan pabba sem elska\u00f0i \u00feau.<\/p>\n<p>Hann vildi jafnan hafa allt \u00ed r\u00f6\u00f0 og reglu, bor\u00f0a \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edmum og svo vildi hann alltaf hafa einhvern hj\u00e1 s\u00e9r heima. Kannski var \u00fea\u00f0 vegna bernskunnar. Ef Gu\u00f0n\u00fd f\u00f3r \u00ed saumakl\u00fabb bau\u00f0 hann sj\u00e1lfum s\u00e9r \u00ed heims\u00f3kn hj\u00e1 b\u00f6rnunum til a\u00f0 vera ekki einn. Fyrstu hj\u00faskapar\u00e1rin \u00feeirra gekk hann aldrei me\u00f0 lykil. Hann vissi a\u00f0 Gu\u00f0n\u00fd v\u00e6ri heima me\u00f0 b\u00f6rnin.<\/p>\n<p>Hann kom gjarnan me\u00f0 prufur heim \u00far vinnunni og leyf\u00f0i \u00feeim a\u00f0 smakka, og jafnvel l\u00edka hundamatinn og svo \u00feor\u00f0i varla nokkur ma\u00f0ur \u00ed \u00e6ttinni a\u00f0 kaupa anna\u00f0 en Pepsi og Kristal \u00fev\u00ed anna\u00f0 val var svik vi\u00f0 \u00d3la og hans meiningar sem \u00e6t\u00ed\u00f0 voru sterkar.<\/p>\n<p>Hann f\u00f3r oft \u00ed fer\u00f0al\u00f6g me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni en \u00e6tla\u00f0i \u00fe\u00f3 aldrei a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r tjaldvagn, hj\u00f3lh\u00fdsi, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 hund. Hann var\u00f0 a\u00f0 gleypa \u00fea\u00f0 allt ofan \u00ed sig. \u00d3li var \u00f6r og virkur alla t\u00ed\u00f0 en r\u00f3a\u00f0ist me\u00f0 aldrinum.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hans f\u00f3ru \u00ed Vatansk\u00f3g og Vind\u00e1shl\u00ed\u00f0 \u00ed sumarb\u00fa\u00f0ir KFUM&amp;K og l\u00e6r\u00f0u \u00fear margt gott um Gu\u00f0 og heim og eitt sinn f\u00f3ru hann og sonurinn \u00e1 fe\u00f0gahelgi \u00ed Vatnask\u00f3gi. Hann var r\u00e6ktarsamur vi\u00f0 minningu foreldra sinna, f\u00f3r me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni a\u00f0 gr\u00f6f \u00feeirra \u00e1 afm\u00e6lisd\u00f6gum og um h\u00e1t\u00ed\u00f0ir.<\/p>\n<p>\u00deegar hann var\u00f0 fimmtugur h\u00e9lt fj\u00f6lskyldan honum veislu \u00ed Golfsk\u00e1la Odds sem t\u00f3kst me\u00f0 miklum \u00e1g\u00e6tum en aldrei f\u00f3r \u00d3li \u00ed golf. Hann taldi \u00fea\u00f0 of mikinn t\u00edma\u00fej\u00f3f fyrir fj\u00f6lskyldumann.<\/p>\n<p>Heima fyrir var hann l\u00edti\u00f0 a\u00f0 bo\u00f0a s\u00edna edr\u00famennsku e\u00f0a gefa b\u00f6rnunum fyrirm\u00e6li um \u00feeirra l\u00edf. \u00deau m\u00e1ttu lifa s\u00ednu l\u00edfi og hafa gert \u00fea\u00f0 og komist vel af.<\/p>\n<p>Hann r\u00e6kta\u00f0i vel sambandi\u00f0 vi\u00f0 systkin s\u00edn og au\u00f0velt er a\u00f0 skynja samheldni \u00feeirra og elsku til hvers annars. \u00dea\u00f0 er a\u00f0d\u00e1unarvert og kom einkar vel fram \u00ed g\u00e6r \u00feegar hann var kistulag\u00f0ur. \u00dear var ein st\u00f3r fj\u00f6lskylda sem gr\u00e9t g\u00f3\u00f0an mann.<\/p>\n<p>\u00deegar b\u00f6rnin voru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum sem skiptnemar e\u00f0a vi\u00f0 n\u00e1m f\u00f3ru Gu\u00f0n\u00fd og hann \u00ed heims\u00f3kn. B\u00f6rnin fundu hva\u00f0 \u00feau \u00ferosku\u00f0ust vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara a\u00f0 heiman og hafa ekki m\u00f6mmu og pabba \u00ed n\u00e6sta herbergi og \u00feurfa a\u00f0 skiptast \u00e1 br\u00e9fum og t\u00f6lvup\u00f3sti. En \u00fea\u00f0 var samt hring \u00ed pabba ef rafmagni\u00f0 f\u00f3r af \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. \u00deau fundu \u00feau hva\u00f0 pabbi bar mikla umhyggju fyrir \u00feeim. Hann tala\u00f0i gjarnan vi\u00f0 vini barna sinna og \u00feau fundu hva\u00f0 hann haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 l\u00edfi \u00feeirra.<\/p>\n<p>Gu\u00f0n\u00fdju og \u00d3la hlakka\u00f0i til a\u00f0 vera tv\u00f6 ein, fer\u00f0ast og nj\u00f3ta daganna og \u00e6tlu\u00f0u til Sp\u00e1nar \u00ed vor, b\u00fain a\u00f0 panta fer\u00f0ina. En svo ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 sem breytir \u00f6llu. \u00d3lafur var\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddur heima. Hann haf\u00f0i komi\u00f0 heim fimmtudaginn 13. febr\u00faar me\u00f0 brj\u00f3stsvi\u00f0a, var \u00fereyttur og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 leggja sig. Gu\u00f0n\u00fd dreif sig \u00ed r\u00e6ktina en kom svo a\u00f0 honum l\u00e1tnum \u00feegar h\u00fan sneri til baka. \u00dea\u00f0 var erfi\u00f0 reynsla og s\u00e1r. Hvernig dettur nokkrum manni \u00ed huga a\u00f0 s\u00edkvikur og vinnusamur ma\u00f0ur \u00e1 besta aldri s\u00e9 burtkalla\u00f0ur \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins? En \u00feannig er \u00fea\u00f0 n\u00fa me\u00f0 dau\u00f0ann. Hann kemur stundum \u00f3v\u00e6nt eins og segir \u00ed versinu um bl\u00f3mi\u00f0:<\/p>\n<p>\u00e1 sn\u00f6ggu augabrag\u00f0i<br \/>\naf skori\u00f0 ver\u00f0ur flj\u00f3tt,<br \/>\nlit og bl\u00f6\u00f0 ni\u00f0ur lag\u00f0i &#8211;<br \/>\nl\u00edf mannlegt endar skj\u00f3tt.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0. Kim Larsen, sem \u00d3li h\u00e9lt miki\u00f0 upp\u00e1, s\u00f6ng um De smukke unge mennsker, um b\u00f6rnin sem flj\u00faga burt eins og fuglar. B\u00f6rnin hans \u00d3la eru or\u00f0in st\u00f3r og \u00feeirra b\u00ed\u00f0ur a\u00f0 stofna fj\u00f6lskyldu og ver\u00f0a n\u00fd eining \u00ed \u00e6ttar- og l\u00edfss\u00f6gu. L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram me\u00f0 s\u00ednum skyldum, fj\u00f6l-skyldum. Or\u00f0i\u00f0 fj\u00f6lskylda minnir \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 erum aldrei ein, enginn er eyland. Vi\u00f0 tilheyrum f\u00f3lkinu okkar og h\u00f6fum skyldur vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Kristin tr\u00fa starfar \u00ed \u00feessum fj\u00f6lskylduanda. H\u00fan er ekki fl\u00f3ki\u00f0 safn kenninga, bo\u00f0 og b\u00f6nn, reglur og fyrirm\u00e6li, heldur sn\u00fdst h\u00fan um \u00fea\u00f0 sem fj\u00f6lskyldur f\u00e1st vi\u00f0, a\u00f0 elska og \u00fej\u00f3na. J\u00f3lasagan er saga fj\u00f6lskyldu og umhyggju. Saga Jes\u00fa \u00feegar hann var or\u00f0inn fullor\u00f0inn er saga manns sem \u00e1tti s\u00edna uppruna fj\u00f6lskyldu og marga g\u00f3\u00f0a vini. Hann lif\u00f0i fyrir f\u00f3ki\u00f0 sitt, vini s\u00edna og d\u00f3 fyrir \u00fe\u00e1. En dau\u00f0inn \u00e1tti ekki s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0 yfir honum. Og dau\u00f0inn mun ekki heldur eiga s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0 yfir \u00d3lafi Krist\u00f3fer Gu\u00f0mundssyni. Millinafni\u00f0 hans, Kirst\u00f3fer, er fornt. Einn karl \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi bar \u00fea\u00f0 \u00ed manntalinu 1703. \u00c6ttir \u00d3la koma \u00far Flatey, Hellisandi og Patreksfir\u00f0i og sv\u00e6\u00f0inu \u00fear um kring. Nafni\u00f0 er komi\u00f0 \u00far gr\u00edsku Krist\u00f3phoros og merkir \u201es\u00e1 sem ber Krist\u201c e\u00f0a ber honum vitni. Nafni\u00f0 \u00d3lafur er fornnorr\u00e6nt og merkir \u00ed senn \u201eforfa\u00f0ir\u201c og \u201eafkomandi\u201c og v\u00edsar \u00fear me\u00f0 til \u00feess a\u00f0 vera hlekkur \u00ed ke\u00f0ju \u00e6ttar og fj\u00f6lskyldu. Vi\u00f0 erum \u00f6ll hlekkir \u00ed ke\u00f0ju kynsl\u00f3\u00f0anna og flest erum vi\u00f0 helgu\u00f0 Kristi \u00ed heilagri sk\u00edrn, merkt honum, fr\u00e1tekin handa honum og v\u00edg\u00f0 himni hans og eil\u00edf\u00f0inni sj\u00e1lfri. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 r\u00e6kta me\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00e1 von og tr\u00fa a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 allt \u00ed einu st\u00f3ru samhengi.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 tilheyrum fj\u00f6lskyldu Gu\u00f0s \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Gu\u00f0 er \u00ed senn sem besti fa\u00f0ir og m\u00f3\u00f0ir og Jes\u00fas, hver er hann, hann er \u201eJes\u00fa br\u00f3\u00f0ir besti\u201c. Vi\u00f0 tilheyrum fj\u00f6lskyldu hans \u00ed l\u00edfi og dau\u00f0a. S\u00fa er von okkar og huggun \u00e1 \u00feessari sorgarstundu sem \u00fe\u00f3 er ekki bara sorgarstund heldur um lei\u00f0 \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0 fyrir g\u00f3\u00f0an dreng og skemmtilegan, duglegan og vanda\u00f0an sem vi\u00f0 kve\u00f0jum me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00d3lafs Kirst\u00f3fers Gu\u00f0mundssonar og Gu\u00f0 blessi fj\u00f6lskyldu hans og vini og okkur \u00f6ll sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum. Verum gl\u00f6\u00f0 \u00ed voninni, eins og postulinn sag\u00f0i og \u00feolinm\u00f3\u00f0 \u00ed andstreymi l\u00edfsins. L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram og \u00fea\u00f0 er og ver\u00f0ur \u00ed hendi Gu\u00f0s \u00fev\u00ed vi\u00f0 erum fj\u00f6lskyldan hans.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstakar kve\u00f0jur fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum vinum:<\/p>\n<p>fr\u00e1 \u00d3l\u00f6fu Okt\u00f3sd\u00f3ttur og Einari Kristinssyni, fyrrverandi eigendum Dan\u00f3l og \u00d6lger\u00f0arinnar, me\u00f0 innilegri \u00fe\u00f6kk til \u00d3la fyrir fr\u00e1b\u00e6rt samstarf og vinskap alla t\u00ed\u00f0, en \u00feau eru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum;<\/p>\n<p>fr\u00e1 \u00c1sgeiri Magn\u00fassyni samstarfsf\u00e9laga og fj\u00f6lskyldu hans sem st\u00f6dd er erlendis me\u00f0 k\u00e6rri \u00fe\u00f6kk til \u00d3la fyrir 24 \u00e1ra samstarf og vinskap hj\u00e1 Dan\u00f3l og \u00d6lger\u00f0inni og innilegar sam\u00fa\u00f0ar kve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldunnar allrar me\u00f0 \u00f3sk um a\u00f0 hin h\u00e6sti vaki yfir ykkur \u00f6llum;<\/p>\n<p>einig fr\u00e1 Pete Schyma tengili\u00f0i hj\u00e1 Burtons fyrirt\u00e6kinu sem segir: k\u00e6ra fj\u00f6lskylda innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur, \u00e9g mun sakna \u00d3lafs og minnast hans sem g\u00f3\u00f0s f\u00e9laga og samstarfsmanns s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Andra Steini Gu\u00f0j\u00f3nssyni, fr\u00e6nda hans, sem er \u00ed Kaupmannah\u00f6fn;<\/p>\n<p>og loks fr\u00e1 fr\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu Eyj\u00f3lfsd\u00f3ttur, fr\u00e6nku \u00d3la og Snj\u00f3lfi \u00d3lafssyni manni hennar og fj\u00f6lskyldu \u00feeirra sem eru st\u00f6dd \u00e1 \u00cdtal\u00edu.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>L\u00edkfylgd &#8211; jar\u00f0sett \u00ed K\u00f3pavogskirkjugar\u00f0i.<\/p>\n<p>Erfi \u00e1 Hotel Nordica.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt \u00e1 <a href=\"http:\/\/localhost:8081\">ornbardur.com<\/a><\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/salmaskrab4-guc3b0m-kristc3b3fer-guc3b0m.pdf\">SalmaskraB4 Gu\u00f0m Krist\u00f3fer Gu\u00f0m<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00d3lafur Krist\u00f3fer Gu\u00f0mundsson 1960-2014 framkv\u00e6mdastj\u00f3ri hj\u00e1 \u00d6lger\u00f0inni Lindasm\u00e1ra 4, K\u00f3pavogi \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju f\u00f6studaginn 21. febr\u00faar 2014 kl. 13 \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einhver innskot kunna a\u00f0 vera \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni sem ekki eru \u00ed textanum. S\u00e1lmaskr\u00e1in me\u00f0 myndum er ne\u00f0st.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1143","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1143","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1143"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1143\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1143"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1143"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1143"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}