{"id":1127,"date":"2014-02-14T20:18:08","date_gmt":"2014-02-14T20:18:08","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1127"},"modified":"2014-02-14T20:18:08","modified_gmt":"2014-02-14T20:18:08","slug":"karl-gudmundsson-1924-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1127","title":{"rendered":"Karl Gu\u00f0mundsson 1924-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/karlgudmundsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/karlgudmundsson.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-1128\" alt=\"karlgudmundsson\" width=\"150\" height=\"211\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Karl Gu\u00f0mundsson<\/b><\/p>\n<p>verkfr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n<p>1924-2014<\/p>\n<p>Gar\u00f0atorgi 7, Gar\u00f0ab\u00e6<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Fossvogskirkju<\/p>\n<p>f\u00f6studaginn 14. febr\u00faar 2014 kl. 15<\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5\">R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u <\/span><strong style=\"line-height: 1.5\">hlusta\u00f0<\/strong><span style=\"line-height: 1.5\"> \u00e1 og <\/span><strong style=\"line-height: 1.5\">lesi\u00f0<\/strong><span style=\"line-height: 1.5\"> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. <\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5\"><strong>Ritningarlestrar<\/strong><\/span><span style=\"line-height: 1.5\"> og <\/span><span style=\"line-height: 1.5\"><strong>s\u00e1lmaskr\u00e1<\/strong><\/span><span style=\"line-height: 1.5\"> er h\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/span><\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur \u00f6llum.<\/p>\n<p>\u201eErtu a\u00f0 byggja? Viltu breyta? \u00dearftu a\u00f0 b\u00e6ta?\u201c<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um hefur verslun nokkur augl\u00fdst \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00e1ratugum saman.<\/p>\n<p>Og n\u00fa spyr \u00e9g \u00feig: \u201eErtu a\u00f0 byggja? Viltu breyta? \u00dearftu a\u00f0 b\u00e6ta?\u201c<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er ekki kyrrst\u00e6tt. \u00dea\u00f0 kallar \u00e1 uppbyggingu og breytingar. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 beina \u00feessum spurningum til ykkar er \u00e9g a\u00f0 v\u00edsa til \u00feess hvort \u00fei\u00f0 l\u00edti\u00f0 \u00e1 l\u00edfi\u00f0 sem byggingarstarf.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er st\u00f3rkostlegt undur og \u00feakkarefni a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera til, a\u00f0 eiga l\u00edfi\u00f0. L\u00edfi\u00f0 er \u00e1skorun, \u00fea\u00f0 er verkefni, \u00fea\u00f0 er \u00e1 vissan h\u00e1tt verkfr\u00e6\u00f0ilegt \u00farlausnarefni.<\/p>\n<p>\u00deegar liti\u00f0 er yfir \u00e6vi Karls Gu\u00f0mundssonar kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 hann t\u00f3k l\u00edfsverkefni\u00f0 f\u00f6stum t\u00f6kum og skipulega. Hann vann a\u00f0 eflingu og f\u00e1gun eigin s\u00e1lar og vann s\u00edn st\u00f6rf af al\u00fa\u00f0 og vandvirkni alla t\u00ed\u00f0. Hann var gla\u00f0sinna og gamansamur enda \u00fe\u00f3tt hann hafi stundum birst samfer\u00f0am\u00f6nnum s\u00ednum vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn sem alv\u00f6rugefinn ma\u00f0ur. Hann gat veri\u00f0 fastur fyrir og st\u00edfur \u00e1 meiningunni en reyndi eftir megni a\u00f0 setja fram hugmyndir s\u00ednar og \u00e1lit af sanngirni og vir\u00f0ingu fyrir sko\u00f0unum annarra. Stundum gaf hann l\u00edti\u00f0 eftir ef hann var algj\u00f6rlega sannf\u00e6r\u00f0ur um eigin r\u00f6k. Hann haf\u00f0i marga kosti og einn \u00feeirra var s\u00e1 a\u00f0 hann gat sagt \u00feeim, sem f\u00e1ir \u00feor\u00f0u a\u00f0 vera hreinskilnir vi\u00f0, sko\u00f0un s\u00edna og meiningar. \u00dea\u00f0 gaf til kynna sterka sj\u00e1lfsmynd og traust \u00e1 r\u00f6khugsun, \u00feekkingu og menntu\u00f0u inns\u00e6i.<\/p>\n<p>Hann f\u00e6ddist \u00e1 Akranesi 1. september 1924 og var \u00fev\u00ed \u00e1 90. aldurs\u00e1ri er hann l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum \u00ed Fossvogi 7. febr\u00faar s.l.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Gu\u00f0mundur \u00d3lafsson f. 11.2.1885, d. 16.5.1968, kennari \u00e1&nbsp; Akranesi og vi\u00f0 H\u00e9ra\u00f0ssk\u00f3lann \u00e1 Laugarvatni, og \u00d3l\u00f6f Sigur\u00f0ard\u00f3ttir f. 21.4.1890, d. 11.1.1975, h\u00fasfreyja.<\/p>\n<p>Systkini hans eru:<\/p>\n<p>\u00d3lafur f. 2.6.1914, d. 10.12.2004;<\/p>\n<p>Gu\u00f0n\u00fd f. 7.9.1915, d. 16.12.2007;<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur f. 16.5.1917, d. 25.9.2008;<\/p>\n<p>Gu\u00f0bj\u00f6rg f. 11.7 .1920, d. 5.4.1991;<\/p>\n<p>Bj\u00f6rn f. 22.8.1928, d.15.7.2007, og<\/p>\n<p>Ing\u00f3lfur f. 22.11.1930 sem einn lifir systkini s\u00edn.<\/p>\n<p>Karl lauk skyldun\u00e1mi vi\u00f0 H\u00e9ra\u00f0ssk\u00f3lann \u00e1 Laugarvatni.<\/p>\n<p>\u00c1rin \u00fear voru mikilv\u00e6g m\u00f3tunar\u00e1r. Hann bj\u00f3 \u00ed foreldrah\u00fasum \u00e1 sk\u00f3lasta\u00f0 og s\u00e1 marga s\u00e9r eldri nemendur eflast \u00ed sk\u00f3lanum og skynja\u00f0i flj\u00f3tt mikilv\u00e6gi menntunar. A\u00f0 alast upp \u00e1 heimili kennara og \u00e1 sk\u00f3lasta\u00f0 m\u00f3ta\u00f0i hann fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>Fyrstu \u00e1rin hans bj\u00f3 fj\u00f6lskyldan \u00e1 Akranesi. Hann er sag\u00f0ur hafa veri\u00f0 skapg\u00f3\u00f0ur sem drengur, gla\u00f0ur og forvitinn \u00fear sem hann naut frelsis og \u201eflandra\u00f0i um Skagann og l\u00e9k s\u00e9r\u201c eins og br\u00f3\u00f0ir hans or\u00f0ar \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 Laugavatni var hann miki\u00f0 me\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum. \u00deeir fisku\u00f0u \u00ed vatninu, gr\u00f3\u00f0ursettu tr\u00e9 og r\u00e6ktu\u00f0u kart\u00f6flur. \u00c1 vetrum var fari\u00f0 \u00e1 sk\u00ed\u00f0i \u00ed brekkum og skauta\u00f0 \u00e1 vatninu og hann \u00fatbj\u00f3 s\u00e9r sle\u00f0a sem haf\u00f0i skauta undir hverju horni og segl til a\u00f0 beita \u00ed vindinn. \u00deannig gat hann fari\u00f0 greitt \u00e1 \u00edsil\u00f6g\u00f0u vatninu. Hann var \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feetta enginn \u00fativistarkappi sem sl\u00edkur en undi hag s\u00ednum oftast best heima vi\u00f0 gr\u00fask og lestur en gekk s\u00e9r til heilsub\u00f3tar alla t\u00ed\u00f0. Hann stunda\u00f0i \u00fe\u00f3 hj\u00f3lrei\u00f0ar \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum, l\u00e9k blak og synti og keppti \u00ed hvoru tveggja. Hann var n\u00e1mf\u00fas og n\u00e6mur \u00e1 allt sem a\u00f0 sk\u00f3lanum laut. Samnemandi hans tala\u00f0i hann inn \u00e1 a\u00f0 s\u00e6kja um sk\u00f3lavist \u00ed MA \u00fev\u00ed fyrir nor\u00f0an v\u00e6ru svo g\u00f3\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur til sk\u00ed\u00f0ai\u00f0kunar.<\/p>\n<p>Hann f\u00f3r nor\u00f0u og \u00ed Menntask\u00f3lann \u00e1 Akureyri og lauk \u00fea\u00f0an st\u00fadentspr\u00f3fi 1945. \u00dea\u00f0an l\u00e1 lei\u00f0in \u00ed H\u00cd og \u00fear lauk hann fyrri hluta pr\u00f3fi \u00ed verkfr\u00e6\u00f0i 1948. \u00de\u00e1 sigldi hann utan og lauk pr\u00f3fi \u00ed byggingaverkfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 Danmarks Tekniske H\u00f8jskole 1951.<\/p>\n<p>\u00deann 5. \u00e1g\u00fast 1950 kv\u00e6ntist hann R\u00f3su \u00deorgeirsd\u00f3ttur, h\u00fasm\u00e6\u00f0rakennara fr\u00e1 Hlemmiskei\u00f0i \u00e1 Skei\u00f0um. \u00deau voru f\u00e6dd sama \u00e1ri\u00f0. \u00c1stin bl\u00f3mstra\u00f0i og l\u00edfi\u00f0 blasti vi\u00f0 \u00feeim. \u00deau eignu\u00f0ust d\u00f3ttu 9. n\u00f3vember 1951, R\u00f3su, sem er leiksk\u00f3lakennari. En l\u00edfi\u00f0 er aldrei \u00f6ruggt og engin hefur tryggingu fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 l\u00edta n\u00e6sta dag. Hann f\u00f3r til vinnu einn morgunn eins og venja var. \u00deetta var 21. jan\u00faar 1952 og litla d\u00f3ttirin tveggja og h\u00e1lfsm\u00e1na\u00f0ar g\u00f6mul. \u00de\u00e1 dundi \u00e1falli\u00f0 yfir. Eiginkonan unga og gl\u00e6silega var\u00f0 br\u00e1\u00f0kv\u00f6dd (f. 6.2.1924, d. 21.1.1952). H\u00fan haf\u00f0i fari\u00f0 til m\u00f3\u00f0ur sinnar a\u00f0 s\u00fdna henni efni \u00ed sk\u00edrnarkj\u00f3l d\u00f3ttur sinnar og hn\u00e9 \u00f6rend ni\u00f0ur vi\u00f0 dyrnar. Karl st\u00f3\u00f0 uppi einn &nbsp;me\u00f0 barni\u00f0.<\/p>\n<p>Allar g\u00f6tur fr\u00e1 \u00feessum mikla missi lag\u00f0i hann \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 kve\u00f0ja vel, kyssa konuna bless a\u00f0 morgni og fagna henni a\u00f0 kv\u00f6ldi, fa\u00f0ma \u00e1stvini og kve\u00f0ja vel og vandlega. Hann vissi a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0 og enginn \u00e1 morgundaginn v\u00edsan. Allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an var hann \u00f3r\u00f3legur ef f\u00f3lki\u00f0 hans skila\u00f0i s\u00e9r ekki \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma, svo dj\u00fapt\u00e6k var \u00feessi reynsla og harmur sem hann var\u00f0 fyrir. Undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta r\u00e6ddi hann \u00feess reynslu vi\u00f0 \u00e1stvini s\u00edna.<\/p>\n<p>M\u00f3\u00f0ursystir R\u00f3su litlu, Unnur \u00deorgeirsd\u00f3ttir, kennari og ma\u00f0ur hennar Sigur\u00f0ur Eyj\u00f3lfsson, sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00e1 Selfossi t\u00f3ku hana a\u00f0 s\u00e9r og \u00f3lu upp af \u00e1str\u00edki og \u00e1byrg\u00f0. R\u00f3sa er gift John Fenger f. 26.5.1950,&nbsp;vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingi. \u00deau b\u00faa \u00ed Amer\u00edku.<\/p>\n<p>Synir \u00feeirra eru: 1) Hilmar Bragi f. 29.9.1973, k.h. Kerri Lynn, \u00feau eiga \u00ferj\u00fa b\u00f6rn. 2) \u00c1rmann \u00d6rn f. 8.6.1976, hann \u00e1 einn son. 3) Ingi Rafn f. 6.5.1980, k.h. Deven, \u00feau eiga eina d\u00f3ttur. Br\u00e6\u00f0urnir og \u00e1stvinir \u00feeirra senda s\u00ednar bestu kve\u00f0jur til \u00e6ttingja og vina h\u00e9r heima og \u00feakka afa fyrir allt.<\/p>\n<p>Karl vann s\u00edn st\u00f6rf en gl\u00edmdi vi\u00f0 missinn og sorgina. Hann keypti s\u00e9r \u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 12. h\u00e6\u00f0 \u00ed h\u00e1h\u00fdsi efst \u00e1 Laugar\u00e1snum sem var n\u00fdbyggt en \u00e1 4. h\u00e6\u00f0 var \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ed eigu jafn\u00f6ldru hans. \u00cd fyrstunni var engin lyfta \u00ed h\u00fasinu og b\u00fasl\u00f3\u00f0ir voru h\u00edf\u00f0ar me\u00f0 tal\u00edum upp \u00e1 svalir. Karl l\u00e9t sig ekki muna um a\u00f0 hlaupa stigana upp \u00ed s\u00edna \u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 12. h\u00e6\u00f0. Forsj\u00f3nin leiddi \u00feau saman og h\u00fan var\u00f0 seinni kona hans. \u00dea\u00f0 var g\u00e6fa beggja \u00feegar \u00feau gengu \u00ed hj\u00f3naband 3. j\u00fan\u00ed 1960, \u00c1sta Hannesd\u00f3ttir, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og Karl XII nefndur eftir \u00edb\u00fa\u00f0inni sinni.<\/p>\n<p>\u00c1sta er fr\u00e1 Hvammstanga. H\u00fan starfa\u00f0i vi\u00f0 sitt fag \u00ed 30 \u00e1r sem hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og kom \u00feekking hennar og menntun s\u00e9r vel s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin \u00ed l\u00edfi Karls en h\u00fan hj\u00fakra\u00f0i honum af mikilli natni og elsku og hefur l\u00f6ngum lagt upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 vera vel \u00e1 sig komin til a\u00f0 geta hugsa\u00f0 um hann sem allra best.<\/p>\n<p>D\u00f3ttir \u00feeirra er H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur f. 3.6.1963, leiksk\u00f3lakennari, gift Elfari R\u00fanarssyni f. 29.6.1963,&nbsp;l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Anton \u00d6rn f. 16.9.1989, R\u00fanar Karl f. 23.6.1991 og \u00c1sta G\u00edgja f. 8.8.1997.<\/p>\n<p>Litla \u00edb\u00fa\u00f0in vi\u00f0 Austurbr\u00fan 2 var st\u00f3r \u00ed \u00feeim skilningi a\u00f0 \u00fear var n\u00f3g r\u00fdmi handa \u00f6llum og af verkfr\u00e6\u00f0ilegri hugkv\u00e6mni bj\u00f3 hann til l\u00e9tt skilr\u00fam \u00e1 l\u00f6mum sem opnu\u00f0ust \u00fat fr\u00e1 vegg en \u00ed veggnum var r\u00fam sem f\u00e9ll ni\u00f0ur og \u00fe\u00e1 var komi\u00f0 afst\u00faka\u00f0 gestaherbergi \u00ed stofunni. \u201e\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur\u201c, sag\u00f0i Jes\u00fas, n\u00f3g r\u00fam handa \u00f6llum. Seinna bj\u00f3 m\u00f3\u00f0ir hans hj\u00e1 \u00feeim \u00c1stu \u00e1 Bakkafl\u00f6tinni seinustu 10 \u00e1r \u00e6vi sinnar og naut elsku \u00feeirra og h\u00fan gaf sj\u00e1lf af s\u00ednu \u00f6rl\u00e6ti til \u00feeirra og H\u00f3f\u00edar.<\/p>\n<p>Karl var vandvirkur og f\u00e6r verkfr\u00e6\u00f0ingur sem kom a\u00f0 m\u00f6rgum st\u00f3rum verkum og framkv\u00e6mdum eins og s\u00e9st \u00ed texta s\u00e1lmaskr\u00e1rinnar \u00fear sem starfsferill hans er rakinn \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum. (Sj\u00e1 s\u00e1lmaskr\u00e1na ne\u00f0anm\u00e1ls)<\/p>\n<p>Hann vann ekki a\u00f0eins a\u00f0 framkv\u00e6mdum \u00ed timbri og st\u00e1li, steinsteypu og malbiki, heldur var honum alla t\u00ed\u00f0 hugleikin s\u00fa list a\u00f0 r\u00e6kta sinn innri mann.<\/p>\n<p>Karl gekk \u00ed Fr\u00edm\u00farararegluna \u00e1 \u00cdslandi 1955 og gegndi \u00fear margv\u00edslegum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum. Hann hlaut m.a. hei\u00f0ursmerki Fr\u00edm\u00fararareglnanna \u00ed Danm\u00f6rku og Sv\u00ed\u00f0\u00fej\u00f3\u00f0. Hann leit \u00e1 \u00fea\u00f0 sem mikla g\u00e6fu a\u00f0 hafa kynnst \u00feeim g\u00f3\u00f0a f\u00e9lagsskap sem Reglan er. Hann naut \u00feess a\u00f0 gr\u00faska \u00ed fr\u00e6\u00f0um hennar sem ganga \u00fat \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00f3ta menn, efla og f\u00e1ga \u00e1 grundvelli kristinnar tr\u00faar. \u00dear bar hann h\u00f6fu\u00f0 og her\u00f0ar yfir marga br\u00e6\u00f0ur, b\u00f3kstaflega vegna l\u00edkamsbur\u00f0a sinna, en ekki s\u00ed\u00f0ur s\u00f6kum \u00e1huga, \u00e1stundunar og \u00feekkingar \u00e1 inntaki og e\u00f0li Reglunnar. Hann vann \u00f6tullega a\u00f0 \u00fdmsum m\u00e1lum br\u00e6\u00f0ra sinna, \u00fe\u00fdddi erindi og mikilv\u00e6ga texta og gaumg\u00e6f\u00f0i samhengi og heildarhugsun starfsins. Hann var g\u00e6ddur g\u00f3\u00f0u inns\u00e6i og skilningi \u00e1 starfinu, e\u00f0li \u00feess og s\u00fdn \u00e1 veruleikann og innra l\u00edf br\u00e6\u00f0ra. Hann var alla t\u00ed\u00f0 \u00feakkl\u00e1tur R. fyrir a\u00f0 hafa bjarga\u00f0 s\u00e9r \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum \u00ed einkal\u00edfinu \u00feegar hann gl\u00edmdi vi\u00f0 sorg s\u00edna. \u00dear eigna\u00f0ist marga g\u00f3\u00f0a vini. \u00c1hugi hans \u00e1 starfi R. kom m.a. \u00ed lj\u00f3s er hann sag\u00f0i Elfari a\u00f0 hann hlakka\u00f0i til a\u00f0 komast \u00e1 eftirlaun svo hann g\u00e6ti sinnt betur s\u00ednu \u00e6\u00f0sta \u00e1hugam\u00e1li. Hann haf\u00f0i litla skrifstofu \u00ed h\u00fasi R. um t\u00edma og \u00fear vann hann l\u00f6ngum stundum \u00ed \u00fe\u00e1gu hennar og samf\u00e9lags br\u00e6\u00f0ranna. Elfar minnist \u00feess fr\u00e1 fyrstu \u00e1rum s\u00ednum me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni a\u00f0 oft hringdi s\u00edminn heima hj\u00e1 Karli um kv\u00f6ldmatarleyti\u00f0 og hann hvarf inn \u00ed herbergi og tala\u00f0i lengi. Oftar en ekki voru \u00feetta&nbsp; br\u00e6\u00f0ur \u00ed leit a\u00f0 r\u00e1\u00f0um um Regluna e\u00f0a lausn \u00e1 verkefnum \u00e1 l\u00edfsveginum. Alltaf haf\u00f0i hann t\u00edma og oft f\u00f3r hann \u00e1 f\u00e6tur \u00e1rla morguns og vann a\u00f0 m\u00e1lum R. \u00e1\u00f0ur en hann f\u00f3r \u00e1 verkfr\u00e6\u00f0istofuna. Br\u00e6\u00f0ur hans \u00far St. J\u00f3hannesarst\u00fakunni Gimli standa hei\u00f0ursv\u00f6r\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag og f\u00e9lagar \u00far \u00c6\u00f0star\u00e1\u00f0i Reglunnar munu bera kistu hans \u00far kirkju og s\u00fdna \u00fear me\u00f0 vir\u00f0ingu s\u00edna og \u00fe\u00f6kk fyrir einstakan br\u00f3\u00f0ur og velgj\u00f6r\u00f0armann Reglunnar.<\/p>\n<p>Hann \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0beina \u00f6\u00f0rum, var g\u00f3\u00f0ur kennari eins og hann haf\u00f0i \u00e6tt til. Hann var g\u00f3\u00f0ur lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur br\u00e6\u00f0ra \u00ed Reglunni. \u00c9g \u00e1 honum \u00fe\u00f6kk a\u00f0 gjalda fyrir g\u00f3\u00f0a lei\u00f0s\u00f6gn sem beindi m\u00e9r aftur inn \u00ed R. eftir langt hl\u00e9.<\/p>\n<p>Elskusemi br\u00e6\u00f0ra hans, Sigur\u00f0ar og Bj\u00f6rns, kynntist \u00e9g einnig, en \u00e9g jar\u00f0s\u00f6ng \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0a og vel man \u00e9g m\u00f3tt\u00f6kur Ing\u00f3lfs er hann t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r \u00feegar \u00e9g kom n\u00fdv\u00edg\u00f0ur \u00ed heims\u00f3kn \u00e1 Biskupsstofu \u00fear sem hann starfa\u00f0i \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>Me\u00f0an Karl var vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed MA hj\u00e1lpa\u00f0i hann samnemendum s\u00ednu \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ina og me\u00f0an hann var \u00ed verkfr\u00e6\u00f0in\u00e1minu nutu st\u00fadentar \u00e1 Laugavatni a\u00f0sto\u00f0ar hans. Hann kenndi einnig d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00ed H\u00cd \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og \u00fe\u00f3tti \u00feolinm\u00f3\u00f0ur lei\u00f0beinandi.<\/p>\n<p>Hann bj\u00f3 yfir r\u00edkri r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og kom h\u00fan m.a. fram \u00feegar hann var ungur a\u00f0 vinna \u00e1 Raufarh\u00f6fn. \u00dear s\u00e1 hann er eldri ma\u00f0ur var a\u00f0 berja str\u00e1k og ofbau\u00f0 Karli me\u00f0fer\u00f0in og fann til me\u00f0 honum. Hann gekk a\u00f0 ofbeldismanninum, t\u00f3k \u00ed h\u00e1lsm\u00e1li\u00f0 me\u00f0 annarri hendinni og \u00ed buxnastrenginn me\u00f0 hinni og fleyg\u00f0i honum yfir grindverk \u00e1 kolabinginginn. \u00dearna var r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00ed h\u00fafi og \u00fe\u00e1 \u00feurfti&nbsp; a\u00f0 brega\u00f0ast vi\u00f0 af festu, krafti, styrk og karlmennsku. En hann var pr\u00fa\u00f0menni \u00ed grunninn og lj\u00fafur ma\u00f0ur. Hann kom m\u00e9r \u00e6t\u00ed\u00f0 fyrir sj\u00f3nir me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r og glettni \u00ed huga, elskulegur og vingjarnlegur.<\/p>\n<p>Hann var n\u00e6mur fa\u00f0ir og elskur a\u00f0 d\u00e6trum s\u00ednum. Hann r\u00e6kta\u00f0i sambandi\u00f0 vi\u00f0 R\u00f3su alla t\u00ed\u00f0 og H\u00f3f\u00ed anna\u00f0ist hann af mikilli elsku og umhyggju. Eftir a\u00f0 \u00feau hj\u00f3nin bygg\u00f0u h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 Bakkafl\u00f6t 9, \u00ed hraunja\u00f0rinum, sem hann \u00e1tti m\u00f6rg handt\u00f6k \u00ed, naut hann \u00fativeru \u00ed hrauninu. H\u00f3f\u00ed minnist \u00feess er h\u00fan f\u00f3r me\u00f0 pabba \u00e1 vit \u00e6vint\u00fdra \u00ed m\u00f6gnu\u00f0u umhverfi. \u00deau l\u00f6g\u00f0ust \u00ed mosann og horf\u00f0u \u00e1 sk\u00fdin og fuglana \u00feegar s\u00f3lin vermdi hrauni\u00f0. \u00c1lfatj\u00f6rnin var \u00edsil\u00f6g\u00f0 \u00e1 vetrum og pabbi s\u00f3pa\u00f0i hana til a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 renna s\u00e9r \u00e1 skautum. Hann sm\u00ed\u00f0a\u00f0i sle\u00f0a handa H\u00f3f\u00ed og \u00e1 a\u00f0fangadag banka\u00f0i hann \u00e1 \u00fatihur\u00f0ina og hlj\u00f3p s\u00ed\u00f0an \u00e1 bak vi\u00f0 h\u00fas. H\u00f3f\u00ed f\u00f3r til dyra og fann sle\u00f0ann fr\u00e1 j\u00f3lasveininum og s\u00fdndi pabba sem virtist alveg jafnhissa og h\u00fan. Hann f\u00f3r \u00e1 flugdrekan\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 afastr\u00e1kunum, Antoni Erni og R\u00fanari Karli, sm\u00ed\u00f0a\u00f0i boga og \u00f6rvar fyrir \u00fe\u00e1. Efni\u00f0 \u00ed \u00f6rvarnar fann hann \u00e1 n\u00fd\u00e1rsdag er hann f\u00f3r um hverfi\u00f0 og safna\u00f0i rakettuprikum. \u00c1sta G\u00edgja minnist g\u00f3\u00f0ra stunda me\u00f0 afa og \u00feolinm\u00e6\u00f0i hans vi\u00f0 hana og br\u00e6\u00f0urna. \u00deegar afastr\u00e1karnir \u00ed Amer\u00edku komu gaf hann \u00feeim allan sinn t\u00edma, sag\u00f0i \u00feeim s\u00f6gur og fr\u00e6ddi \u00fe\u00e1 um land og s\u00f6gu. Afab\u00f6rnin h\u00e9r heima komu gjarnan vi\u00f0 \u00e1 Bakkfl\u00f6tinni \u00e1 lei\u00f0 \u00far sk\u00f3la og fengu hressingu hj\u00e1 \u00f6mmu og afa, g\u00f3\u00f0ar samr\u00e6\u00f0ur og sm\u00e1 hj\u00e1lp vi\u00f0 heimal\u00e6rd\u00f3minn.<\/p>\n<p>Gar\u00f0urinn \u00feeirra \u00c1stu var\u00f0 fagur og gr\u00f3inn me\u00f0 \u00e1runum og vann til ver\u00f0launa. \u00c1sta var gar\u00f0yrkustj\u00f3rinn og Kalli dyggur vinnuma\u00f0ur \u00ed \u00fej\u00f3nustu hennar. St\u00f3rar hendur hans hentu\u00f0u vel \u00ed gar\u00f0vinnuna en svo var hann um lei\u00f0 svo f\u00ednn \u00ed h\u00f6ndum a\u00f0 hann gat hl\u00fa\u00f0 a\u00f0 sm\u00e1bl\u00f3mum og byggt l\u00edkan af h\u00fasinu \u00feeirra. Hann haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a rith\u00f6nd og svo beitti hann formskrift fagurlega \u00e1 teikningar s\u00ednar.<\/p>\n<p>Verkaskipting \u00feeirra \u00c1stu var \u00e1 hreinu. H\u00fan s\u00e1 um matseld en hann um uppvaski\u00f0 og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 af vandvirkni \u00ed h\u00f6ndum enda \u00fe\u00f3tt upp\u00fevottav\u00e9l v\u00e6ri \u00e1 heimilinu hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin. Honum fannst gott a\u00f0 \u00edhuga vi\u00f0 uppvaski\u00f0.<\/p>\n<p>Hann var gamansamur, sag\u00f0i s\u00f6gur og gat hlegi\u00f0 h\u00e1tt og d\u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00deau \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a daga, \u00c1sta og hann. H\u00fan var hans st\u00f3ra g\u00e6fa og l\u00e1n og \u00e1tti sinn \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 r\u00e6kta sambandi\u00f0 vi\u00f0 R\u00f3su \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n<p>Systurd\u00f3ttir \u00c1stu, H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur Steingr\u00edmsd\u00f3ttir, sem b\u00fasett er \u00ed New York hefur veri\u00f0 fr\u00e6nku sinni mikil sto\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu vikurnar og kve\u00f0ur Karl h\u00e9r \u00ed dag. Fj\u00f6skylda hennar, Curt (Hostetter), \u00c1sta Bennie (Hostetter) og Jakob Hostetter senda innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldunnar.<\/p>\n<p>Einnig sendir vinarf\u00f3lk \u00c1stu og Karls, George og Marty \u00ed New York sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur.<\/p>\n<p>Karl var v\u00ed\u00f0lesinn og fr\u00f3\u00f0ur. Hann naut \u00feess a\u00f0 lesa skemmtilegar b\u00f3kmenntir og dr\u00f3 oft fram G\u00f3\u00f0a d\u00e1tann Svejk og naut \u00feess a\u00f0 lesa.<\/p>\n<p>[Innskot um myndina \u00ed s\u00e1lmaskr\u00e1nni \u00fear sem hann er me\u00f0 b\u00f3kina \u00e1 h\u00f6f\u00f0inu og hl\u00e6r]<\/p>\n<p>Hann var a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 Sturlungu undir lokin en \u00ed s\u00e1lu hans var \u00fe\u00f3 enginn \u00f3fri\u00f0ur eins og \u00e1 \u00feeirri \u00f6ld sem s\u00fa saga l\u00fdsir. Hann var tilb\u00fainn a\u00f0 kve\u00f0ja, \u00e6\u00f0rulaus og \u00f6ruggur \u00ed sinni tr\u00fa um a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00ed hendi Gu\u00f0s \u00ed l\u00edfi og \u00ed dau\u00f0a. Hann vissi a\u00f0 byggingartarf l\u00edfsins ver\u00f0ur ekki unni\u00f0 \u00e1n fulltingis hins h\u00e6sta h\u00f6fu\u00f0smi\u00f0s himins og jar\u00f0ar og \u00feekkti or\u00f0 heilagrar ritningar:<\/p>\n<p>\u201eEf Drottinn byggir ekki h\u00fasi\u00f0 erfi\u00f0a smi\u00f0irnir til \u00f3n\u00fdtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina vakir v\u00f6r\u00f0urinn til \u00f3n\u00fdtis.\u201c (Sl127:1)<\/p>\n<p>Allt er undir hinum h\u00e6sta komi\u00f0.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum \u00f6ll a\u00f0 byggja og \u00feurfum \u00ed senn a\u00f0 breyta og b\u00e6ta. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0. En \u00fe\u00e1 skiptir m\u00e1li a\u00f0 standa r\u00e9tt a\u00f0 m\u00e1lum, a\u00f0 hafa r\u00e9tta reglu \u00e1 \u00f6llu, fara eftir \u00feeim brautum sem mannkyn \u00feekkir best til lausnar \u00e1 verkefnum \u00feeim sem b\u00ed\u00f0a \u00e1 l\u00edfsveginum.<\/p>\n<p>\u00cd lex\u00edu komandi sunnudags \u00far sp\u00e1d\u00f3msb\u00f3k Jerem\u00eda segir:<\/p>\n<p>\u201eSvo segir Drottinn:<br \/>\nHinn vitri hr\u00f3si s\u00e9r ekki af visku sinni,<br \/>\nhinn sterki hr\u00f3si s\u00e9r ekki af afli s\u00ednu<br \/>\nog hinn r\u00edki hr\u00f3si s\u00e9r ekki af au\u00f0i s\u00ednum.<br \/>\nNei, s\u00e1 sem vill hr\u00f3sa s\u00e9r hr\u00f3si s\u00e9r af \u00fev\u00ed<br \/>\na\u00f0 hann s\u00e9 hygginn og \u00feekki mig.<br \/>\n\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, i\u00f0ka miskunnsemi,<br \/>\nr\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni,<br \/>\n\u00e1 \u00fev\u00ed hef \u00e9g vel\u00fe\u00f3knun, segir Drottinn.\u201c (Jerem\u00eda 9.22-23)<\/p>\n<p>H\u00e9r er kjarninn lj\u00f3s og hann er f\u00f3lginn \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feekkja, \u00feekkja hinn eina sanna og fylgja honum. Kristin tr\u00fa er ekki f\u00f3lgin \u00ed reglum e\u00f0a fl\u00f3knum fyrirm\u00e6lum, torr\u00e6\u00f0um kenningum e\u00f0a leyndard\u00f3msfullum g\u00e1tum, heldur er h\u00fan f\u00f3lgin \u00ed vin\u00e1ttusambandi Gu\u00f0s og manns, h\u00fan er br\u00e6\u00f0ra- og systralag, systkinasamband \u00ed k\u00e6rleika og vin\u00e1tta vi\u00f0 allt sem er r\u00e9tt og satt, gott og fagurt.<\/p>\n<p>Kristin tr\u00fa er i\u00f0ku\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga veginn me\u00f0 honum sem er \u201evegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0.\u201c Kristin tr\u00fa er au\u00f0veld eins og \u00e1stin. Leyf\u00f0u \u00feeirri \u00e1st a\u00f0 gr\u00edpa \u00feig og haltu \u00e1fram a\u00f0 byggja, breyta og b\u00e6ta me\u00f0 honum sem er byggingarmeistarinn mesti og \u201eJes\u00fa, br\u00f3\u00f0ir besti\u201c.<\/p>\n<p>Megum vi\u00f0 svo \u00f6ll hverfa \u00ed fyllingu t\u00edmans inn \u00ed \u00fe\u00e1 tilveru \u00fear sem vistarverurnar eru margar og r\u00fdmi\u00f0 n\u00f3g, inn \u00ed \u00fea\u00f0 verkfr\u00e6\u00f0iundur hins h\u00e6sta h\u00f6fu\u00f0smi\u00f0s sem hin himneska borg er, \u00fear sem eil\u00edf\u00f0in r\u00edkir og s\u00f3l og tungl l\u00fdsa ekki lengur um daga og n\u00e6tur en lambi\u00f0 er lampinn sem lj\u00f3mar og l\u00fdsir.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Karl Gu\u00f0mundsson me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans og Gu\u00f0 blessi fj\u00f6lskyldu hans og \u00e1stvini og&nbsp; okkur \u00f6ll sem enn erum a\u00f0 byggja, breyta og b\u00e6ta okkar l\u00edf.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9r Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi, er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/sc3a1lmaskrc3a1-karl-guc3b0mundsson-copy.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 &#8211; Karl Gu\u00f0mundsson copy<\/a><\/p>\n<p>Ritningartextar sem lesnir voru vi\u00f0 ath\u00f6fnina:<\/p>\n<p>I. Korintubr\u00e9f 13. kafli:<\/p>\n<div>K\u00e6rleikurinn mestur<\/div>\n<p><sup>1<\/sup>\u00de\u00f3tt \u00e9g tala\u00f0i tungum manna og engla<br \/>\nen hef\u00f0i ekki k\u00e6rleika<br \/>\nv\u00e6ri \u00e9g hlj\u00f3mandi m\u00e1lmur e\u00f0a hvellandi bjalla.<br \/>\n<sup>2<\/sup>Og \u00fe\u00f3tt \u00e9g hef\u00f0i sp\u00e1d\u00f3msg\u00e1fu<br \/>\nog vissi alla leyndard\u00f3ma og \u00e6tti alla \u00feekking<br \/>\nog \u00fe\u00f3tt \u00e9g hef\u00f0i svo takmarkalausa tr\u00fa a\u00f0 f\u00e6ra m\u00e6tti fj\u00f6ll \u00far sta\u00f0<br \/>\nen hef\u00f0i ekki k\u00e6rleika,<br \/>\nv\u00e6ri \u00e9g ekki neitt.<br \/>\n<sup>3<\/sup>Og \u00fe\u00f3tt \u00e9g deildi \u00fat \u00f6llum eigum m\u00ednum<br \/>\nog \u00fe\u00f3tt \u00e9g framseldi l\u00edkama minn til \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a brenndur<br \/>\nen hef\u00f0i ekki k\u00e6rleika,<br \/>\nv\u00e6ri \u00e9g engu b\u00e6ttari.<br \/>\n<sup>4<\/sup>K\u00e6rleikurinn er langlyndur, hann er g\u00f3\u00f0vilja\u00f0ur. K\u00e6rleikurinn \u00f6fundar ekki.<br \/>\nK\u00e6rleikurinn er ekki raupsamur, hreykir s\u00e9r ekki upp.<br \/>\n<sup>5<\/sup>Hann heg\u00f0ar s\u00e9r ekki \u00f3s\u00e6milega, leitar ekki s\u00edns eigin,<br \/>\nhann rei\u00f0ist ekki, er ekki langr\u00e6kinn.<br \/>\n<sup>6<\/sup>Hann gle\u00f0st ekki yfir \u00f3r\u00e9ttv\u00edsinni en samgle\u00f0st sannleikanum.<br \/>\n<sup>7<\/sup>Hann brei\u00f0ir yfir allt, tr\u00fair \u00f6llu, vonar allt, umber allt.<br \/>\n<sup>8<\/sup>K\u00e6rleikurinn fellur aldrei \u00far gildi.<br \/>\nEn sp\u00e1d\u00f3msg\u00e1fur, \u00fe\u00e6r munu l\u00ed\u00f0a undir lok,<br \/>\nog tungur, \u00fe\u00e6r munu \u00feagna, og \u00feekking, h\u00fan mun l\u00ed\u00f0a undir lok.<br \/>\n<sup>9<\/sup>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feekking vor er \u00ed molum og sp\u00e1d\u00f3mur vor er \u00ed molum.<br \/>\n<sup>10<\/sup>En \u00feegar hi\u00f0 fullkomna kemur l\u00ed\u00f0ur \u00fea\u00f0 undir lok sem er \u00ed molum.<br \/>\n<sup>11<\/sup>\u00deegar \u00e9g var barn tala\u00f0i \u00e9g eins og barn,<br \/>\nhugsa\u00f0i eins og barn og \u00e1lykta\u00f0i eins og barn.<br \/>\nEn \u00feegar \u00e9g var or\u00f0inn fullt\u00ed\u00f0a lag\u00f0i \u00e9g ni\u00f0ur barnaskapinn.<br \/>\n<sup>12<\/sup>N\u00fa sj\u00e1um v\u00e9r svo sem \u00ed skuggsj\u00e1, \u00ed r\u00e1\u00f0g\u00e1tu,<br \/>\nen \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r sj\u00e1 augliti til auglitis.<br \/>\nN\u00fa er \u00feekking m\u00edn \u00ed molum<br \/>\nen \u00fe\u00e1 mun \u00e9g gj\u00f6r\u00feekkja eins og \u00e9g er sj\u00e1lfur gj\u00f6r\u00feekktur or\u00f0inn.<br \/>\n<sup>13<\/sup>En n\u00fa varir tr\u00fa, von og k\u00e6rleikur, \u00feetta \u00ferennt,<br \/>\nen \u00feeirra er k\u00e6rleikurinn mestur.<\/p>\n<p>J\u00f3hannes 14.1-6<\/p>\n<div>Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/div>\n<p><sup>1<\/sup>\u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig.&nbsp;<sup>2<\/sup>\u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0?&nbsp;<sup>3<\/sup>\u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er.&nbsp;<sup>4<\/sup>Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/>\n<sup>5<\/sup>T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<br \/>\n<sup>6<\/sup>Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Karl Gu\u00f0mundsson verkfr\u00e6\u00f0ingur 1924-2014 Gar\u00f0atorgi 7, Gar\u00f0ab\u00e6 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Fossvogskirkju f\u00f6studaginn 14. febr\u00faar 2014 kl. 15 R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Ritningarlestrar og s\u00e1lmaskr\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1127","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1127","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1127"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1127\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1127"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1127"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1127"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}