{"id":1118,"date":"2014-02-07T14:24:21","date_gmt":"2014-02-07T14:24:21","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1118"},"modified":"2014-02-07T14:24:21","modified_gmt":"2014-02-07T14:24:21","slug":"ingibjorg-asgeirsdottir-1957-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1118","title":{"rendered":"Ingibj\u00f6rg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir 1957-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/ingibjorgasgeirsdottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1119\" alt=\"ingibjorgasgeirsdottir\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/ingibjorgasgeirsdottir.png\" width=\"190\" height=\"289\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Ingibj\u00f6rg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>l\u00f6greglukona<\/p>\n<p>1957-2014<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju\u00a0f\u00f6studaginn 7. febr\u00faar 2014 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 og <strong>lesi\u00f0<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0 s\u00e9 me\u00f0 okkur \u00f6llum.<\/p>\n<p><b>Ein<\/b> af erfi\u00f0ari g\u00e1tum l\u00edfsins er \u00e1n efa f\u00f3lgin \u00ed \u00feessari spurningu: Hvers vegna \u00fej\u00e1ist f\u00f3lk? \u00c1 fyrstu s\u00ed\u00f0um Bibl\u00edunnar \u00f6rlar \u00e1 \u00feankagangi tengdum \u00feeirri spurningu \u00ed s\u00f6gunni um falli\u00f0. Sagan um Adam og Evu \u00ed aldingar\u00f0inum er ekki saga fyrstu manna \u00feessa l\u00edfs eins og oft er haldi\u00f0 heldur saga allra manna, saga okkar, m\u00edn og \u00fe\u00edn. H\u00fan er saga um f\u00f3lk sem gl\u00edmir vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0, f\u00f3lk sem lifir hamingjus\u00f6mu l\u00edfi en svo fer allt \u00e1 annan veg en \u00e6tla\u00f0 var. \u00cd s\u00e9rhverri Parad\u00eds l\u00edfsins l\u00e6\u00f0ist inn h\u00f6ggormur sem skemmir hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a og fullkomna. Sagan er \u00ed senn sk\u00fdringar- og t\u00e1knsaga og \u00fear me\u00f0 lykill a\u00f0 skilningi \u00e1 tilveru mannsins \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld gle\u00f0i og sorgar. H\u00fan er um lei\u00f0 sk\u00fdring \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna g\u00e6ta \u00fearf laga og r\u00e9ttar \u00ed ver\u00f6ldinni. Saga um tilgang l\u00f6greglunnar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vont a\u00f0 missa og svo er \u00fea\u00f0 l\u00edka s\u00e1rt. Sorgin gr\u00edpur mann og \u00fea\u00f0 er f\u00e1tt vi\u00f0 henni a\u00f0 gera nema b\u00ed\u00f0a hana af s\u00e9r og \u00fea\u00f0 tekur t\u00edma, langan t\u00edma. En s\u00e9 \u00feeim t\u00edma vari\u00f0 \u00ed leit a\u00f0 tilgangi og merkingu eftir klass\u00edskum lei\u00f0um er unnt a\u00f0 komast af eftir missi og \u00f6\u00f0last um lei\u00f0 d\u00fdrm\u00e6tan \u00e1v\u00f6xt \u00feroska og visku. \u00c9g nefndi klass\u00edskar lei\u00f0ir til a\u00f0 minna \u00e1 a\u00f0 mannkyni\u00f0 hefur um aldir gl\u00edmt vi\u00f0 \u00feennan vanda og til hafa or\u00f0i\u00f0 gimsteinar \u00ed b\u00f3kmenntaarfi heimsins \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 spurninguna sem \u00e9g nefndi \u00ed upphafi. Jobsb\u00f3k \u00ed GT er tilraun til a\u00f0 svara umr\u00e6ddri spurningu.<\/p>\n<p>Gy\u00f0ingur \u00ed New York, rabb\u00edi, rita\u00f0i b\u00f3k \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld \u00ed gl\u00edmunni vi\u00f0 Gu\u00f0 og sj\u00e1lfan sig eftir sonarmissi. B\u00f3kin ber heiti\u00f0 Why Bad Things Happen To Good People og er til \u00ed \u00edslenskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu undir heitinu: Hvers vegna \u00e9g? H\u00fan er g\u00f3\u00f0 lesning \u00feegar fyrstu m\u00e1nu\u00f0ir eftir missi eru a\u00f0 baki.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir f\u00e6ddist \u00ed Hafnarfir\u00f0i 6. n\u00f3vember 1957. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans 3. febr\u00faar s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn. Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin \u00c1sgeir Hj\u00e1lmar Karlsson byggingaverkfr\u00e6\u00f0ingur, f. 13. jan\u00faar 1927, d. 2. apr\u00edl 1980 og Ingibj\u00f6rg Johannesen d\u00f6nskukennari og l\u00f6ggiltur skjala\u00fe\u00fd\u00f0andi, f. 4. okt\u00f3ber 1930, d. 22. jan\u00faar 2010. Systkini Ingibjargar eru<\/p>\n<p>J\u00f3n \u00c1sgr\u00edmur f. 1955, maki Emly Johannesen, f. 1955.<\/p>\n<p>Halld\u00f3ra, f. 1956, maki Birkir \u00c1rnason, f. 1955, d. 2009. B\u00f6rn \u00feeirra eru \u00c1sgeir, f. 1985 og Mar\u00eda Bj\u00f6rk f. 1987.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning foreldra Ingibjarga og m\u00e1gs.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskylda hennar flutti til Danmerkur 1960 og bj\u00f3 \u00fear \u00ed 6 \u00e1r er h\u00fan flutti heim og settist a\u00f0 \u00ed Vesturb\u00e6 Reykjav\u00edkur. H\u00fan gekk \u00ed Melask\u00f3la. S\u00ed\u00f0ar flutti fj\u00f6lskyldan \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 og bj\u00f3 vi\u00f0 Markarfl\u00f6t. Ingibj\u00f6rg gekk \u00ed sk\u00f3la \u00fear og f\u00f3r svo \u00ed Menntask\u00f3lann vi\u00f0 Tj\u00f6rnina sem var\u00f0 a\u00f0 Menntask\u00f3lanum vi\u00f0 Sund. Fj\u00f6lskyldan bj\u00f3 \u00ed eitt \u00e1r vi\u00f0 B\u00farfellsvirkjun 1966-67 er \u00fear vann \u00c1sgeir og segja \u00feau J\u00f3n og Halld\u00f3ra a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 einn besti t\u00edmi \u00e6vi \u00feeirra. \u00dear er v\u00ed\u00f0\u00e1ttan mikil og fj\u00f6llin st\u00f3r, n\u00e1tt\u00faran kr\u00f6ftug og mikilfengleg.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum vi\u00f0 Sund 1978. \u00c1 sk\u00f3la\u00e1runum vann h\u00fan vi\u00f0 verslunarst\u00f6rf og a\u00f0 loknu st\u00fadentspr\u00f3fi var h\u00fan um skei\u00f0 \u00feerna hj\u00e1 R\u00edkisskipum. H\u00fan h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 L\u00f6greglunni \u00ed Reykjav\u00edk 1983 og lauk n\u00e1mi fr\u00e1 L\u00f6greglusk\u00f3la r\u00edkisins 1985. H\u00fan starfa\u00f0i sem almennur l\u00f6gregluma\u00f0ur m.a. \u00e1 Patreksfir\u00f0i \u00ed nokkra m\u00e1nu\u00f0i 1993 en var\u00f0 s\u00ed\u00f0ar ranns\u00f3knarl\u00f6gregluma\u00f0ur 1995 og lauk starfsferli s\u00ednum \u00ed \u00fatlendingadeild L\u00f6greglunnar \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan vann vi\u00f0 fri\u00f0arg\u00e6slust\u00f6rf \u00ed Sarajevo \u00ed Bosn\u00edu, og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Sierra Leone \u00ed Afr\u00edku. H\u00fan gegndi \u00fdmsum f\u00e9lags- og tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum \u00ed L\u00f6gregluf\u00e9lagi Reykjav\u00edkur. Ingibj\u00f6rg stunda\u00f0i skotfimi af kappi og \u00fe\u00f3tti mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur skotma\u00f0ur og var kj\u00f6rin skot\u00ed\u00fer\u00f3ttakona \u00e1rsins 2003. H\u00fan keppti \u00e1 vegum \u00cdSL \u00e1 Nor\u00f0urlanda- og Evr\u00f3pum\u00f3tum og \u00e1 landsm\u00f3tum h\u00e9r heima og vann til ver\u00f0launa. Ingibj\u00f6rg, sem s\u00e6md var silfurmerki \u00cd\u00fer\u00f3ttasambands l\u00f6greglumanna 2012, s\u00f3tti \u00fdmiss n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed tengslum vi\u00f0 starfi\u00f0. H\u00fan sat \u00ed stj\u00f3rn L\u00f6gregluf\u00e9lags Reykjav\u00edkur um t\u00edma og var varaforseti IPA \u00ed tv\u00f6 kj\u00f6rt\u00edmabil. Ingibj\u00f6rg var listunnandi og heims\u00f3tti fj\u00f6lm\u00f6rg l\u00f6nd. Ingibj\u00f6rg hafi sterk tengsl vi\u00f0 F\u00e6reyjar og Danm\u00f6rku, \u00e1tti \u00fear fr\u00e6ndf\u00f3lk sem h\u00fan heims\u00f3tti oft.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg t\u00f3k mj\u00f6g n\u00e6rri s\u00e9r f\u00f6\u00f0urmissinn. H\u00fan ger\u00f0i allt sem \u00ed hennar valdi st\u00f3\u00f0 til a\u00f0 hj\u00fakra f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og standa me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni. H\u00fan gl\u00edmdi mj\u00f6g vi\u00f0 spurninguna sem fyrr var geti\u00f0, gl\u00edmdi vi\u00f0 Gu\u00f0 og \u00e1tti \u00ed fangbr\u00f6g\u00f0um vi\u00f0 hann upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskylduvinur og n\u00e1msf\u00e9lagi \u00c1sgeirs fr\u00e1 \u00e1runum \u00ed Danm\u00f6rku, Hj\u00e1lmar \u00d3lafsson, rita\u00f0i grein \u00ed T\u00edmann sk\u00f6mmu eftir andl\u00e1t \u00c1sgeirs og sag\u00f0i \u00fear m.a.:<\/p>\n<p>\u201eFundum okkar bar of, alltof sjaldan saman eftir a\u00f0 hann kom heim fr\u00e1 n\u00e1mi me\u00f0 ind\u00e6la konu me\u00f0 s\u00e9r, Ingibj\u00f6rgu af f\u00e6reysku bergi. \u00dear var miki\u00f0 jafnr\u00e6\u00f0i me\u00f0 valmennum.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 sjaldan vi\u00f0 fundumst, r\u00e9\u00f0i gle\u00f0in ein ofar hverri kr\u00f6fu. \u00dea\u00f0 voru \u00e1n\u00e6gjustundir sem best er l\u00fdst \u00ed lj\u00f3\u00f0um og s\u00f6ngvum.<\/p>\n<p>Mitt \u00ed \u00feeim s\u00f6ngleik dynur \u00f3l\u00e1ni\u00f0 yfir. \u00c1sgeir missir heilsuna og er vart huga\u00f0 l\u00edf eftir \u00e1falli\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 s\u00fdndi Ingibj\u00f6rg, a\u00f0 h\u00fan kunni margt fleira en dansa f\u00e6reyskan dans betur en flestir. Me\u00f0 hennar hj\u00e1lp og barnanna n\u00e1\u00f0i \u00c1sgeir fur\u00f0u g\u00f3\u00f0um bata. \u00dea\u00f0 var eitt af kraftaverkum mannk\u00e6rleikans, \u00fear r\u00e9\u00f0u \u00farslitum um\u00f6nnum og \u00e1st\u00fa\u00f0 hans n\u00e1nustu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem engum haf\u00f0i komi\u00f0 til hugar kom \u00e1 daginn. \u00c1sgeir var or\u00f0inn vinnuf\u00e6r.<\/p>\n<p>Hann starfa\u00f0i s\u00ed\u00f0an um \u00e1rabil \u00e1 t\u00e6knideild K\u00f3pavogsb\u00e6jar.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 vann st\u00e6rstan sigur s\u00fa sem hef\u00f0i m\u00e1tt eiga meiri stu\u00f0ning okkar hinna \u00e1 stundum.<\/p>\n<p>Um s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ram\u00f3t dr\u00f3 nokku\u00f0 sn\u00f6ggt til t\u00ed\u00f0inda um heilsu \u00c1sgeirs og lauk \u00fev\u00ed str\u00ed\u00f0i n\u00fa r\u00e9tt fyrir p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0ina. Enn sem fyrr st\u00f3\u00f0 Ingibj\u00f6rg sem klettur og b\u00f6rn \u00feeirra.\u201c (Hj\u00e1lmar \u00d3lafsson, \u00cdslendinga\u00fe\u00e6ttir T\u00edmans 10. ma\u00ed 1980)<\/p>\n<p>\u00deessi texti gefur inns\u00fdn \u00ed l\u00edf fj\u00f6lskyldu Ingibjargar, samheldni hennar, bar\u00e1ttu \u00ed erfi\u00f0um a\u00f0st\u00e6\u00f0um og grimm \u00f6rl\u00f6g sem fj\u00f6lskyldan var\u00f0 fyrir.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg Johannesen l\u00e9st fyrir r\u00e9tt r\u00famum 4 \u00e1rum eftir erfi\u00f0 veikindi og haf\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00e1tt g\u00f3\u00f0a og bjarta daga eftir missinn. Reynsla kynsl\u00f3\u00f0anna er sem betur fer s\u00fa a\u00f0 \u00f6ll \u00e9l birtir upp um s\u00ed\u00f0ir.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00f3sanngjarnt a\u00f0 missa \u00e1stvini \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins og \u00fea\u00f0 er s\u00e1rt og erfitt a\u00f0 vinna \u00far erfi\u00f0um missi. En sorgin m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 g\u00f6ngu yfir \u00edslenska h\u00e1lendi\u00f0. \u00dear eru kaldar \u00e1r og br\u00f6tt fj\u00f6ll, j\u00f6klar og sandar, en einnig gr\u00f3nar grundir og bl\u00f3mum skr\u00fdddar brekkur. L\u00edfsgangan er blanda af \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga fer\u00f0 sem tekur \u00e1 f\u00f3tinn og svo ni\u00f0ur \u00ed m\u00f3ti og loks \u00e1 sl\u00e9ttlendi.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 yndni af a\u00f0 fer\u00f0ast. H\u00fan f\u00f3r oft til Danmerku en \u00fear bj\u00f3 m\u00f3\u00f0ursystir hennar og var \u00feeim systkinum besta fr\u00e6nka sem hugsast getur. Leifur m\u00f3\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir \u00feeirra bj\u00f3 l\u00edka \u00ed Kaupmannah\u00f6fn en fr\u00e1 1966 \u00ed F\u00e6reyjum og reyndist \u00feeim g\u00f3\u00f0ur fr\u00e6ndi.<\/p>\n<p>Systurnar \u00e1ttu m\u00f6rg sameiginleg \u00e1hugam\u00e1l m.a. \u00fea\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 handbolta. \u00de\u00e6r f\u00f3ru me\u00f0 \u00edslenska landsli\u00f0inu til Malm\u00f6 fyrir 4 \u00e1rum og nutu \u00feess a\u00f0 hr\u00f3pa og \u00f6skra \u00ed skautlegum b\u00faningum \u00e1 \u00e1horfendabekkjunum. Til st\u00f3\u00f0 a\u00f0 fara til Danmerkur og horfa \u00e1 Evr\u00f3pum\u00f3ti\u00f0 fyrir stuttu en veikindi Ingibjargar komu \u00ed veg fyrir \u00fea\u00f0. H\u00fan horf\u00f0i hins vegar \u00e1 leikina \u00e1 l\u00edknardeildinni og haf\u00f0i \u00f3m\u00e6lda \u00e1n\u00e6gju af.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg eigna\u00f0ist g\u00f3\u00f0a vini \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina en aldrei \u00fer\u00f3a\u00f0ist s\u00fa vin\u00e1tta \u00ed hj\u00f3naband sem h\u00fan \u00fer\u00e1\u00f0i innst inni. \u00deegar vonir hennar brug\u00f0ust sag\u00f0i h\u00fan stundum: \u201eT\u00fdpiskt fyrir mig.\u201c Kannski var \u00ed henni \u00f6gn af forlagatr\u00fa. H\u00fan \u00fer\u00e1\u00f0i l\u00edka a\u00f0 eignast b\u00f6rn en systurb\u00f6rnin, \u00c1sgeir og Mar\u00eda Bj\u00f6rk, ur\u00f0u henni sem hennar eigin. H\u00fan var \u00feeim fr\u00e1b\u00e6r fr\u00e6nka, gjafmild og r\u00e6ktars\u00f6m. H\u00fan \u00e1tti st\u00f3ran vinah\u00f3p, g\u00f3\u00f0ar vinkonur og starfsf\u00e9laga \u00ed l\u00f6greglunni. Einn f\u00e9laga hennar, Sigur\u00f0ur Reynir, er staddur \u00ed Buenos Aires um \u00feessar mundir. Hann bi\u00f0ur fyrir innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur til systkina Ingibjargar og systurbarna. Kve\u00f0ju s\u00edna sendir einnig Kristina Sigur\u00f0ard\u00f3ttir.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg var gestrisin og \u00e1tti myndarlegt heimili. H\u00fan haf\u00f0i mikla \u00e1n\u00e6gju af starfi s\u00ednu og naut \u00feess a\u00f0 eiga g\u00f3\u00f0a starfsf\u00e9lag.<\/p>\n<p>H\u00fan var f\u00e1gu\u00f0 kona me\u00f0 g\u00f3\u00f0an smekk, fagurkeri sem ger\u00f0i allt vel sem h\u00fan t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur. H\u00fan var \u00f3tr\u00falega skemmtileg, heyr\u00f0i \u00e9g sagt, fyndin og or\u00f0heppin. H\u00fan var vinur vina sinna en haf\u00f0i ekki \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f6rf a\u00f0 l\u00e1ta \u00f6llum l\u00edka vel vi\u00f0 sig. S\u00fdnir \u00fea\u00f0 hennar innri styrk.\u00a0 H\u00fan var klettur \u00ed augum fj\u00f6lsklyldunnar og \u00feeim fannst \u00e6t\u00ed\u00f0 gott a\u00f0 leita til hennar \u00fev\u00ed h\u00fan sag\u00f0i \u00e1vallt \u00fea\u00f0 sem m\u00e1li skipti og gaf bestu r\u00e1\u00f0in. H\u00fan var besta manneskja \u00ed heimi til a\u00f0 fa\u00f0ma, sag\u00f0i fj\u00f6lskyldume\u00f0limur. H\u00fan setti sig sjaldan \u00ed fyrsta s\u00e6ti og husa\u00f0i fyrst og s\u00ed\u00f0ast um hag \u00e1stvina sinna og vildi svo gjarnan hl\u00edfa \u00feeim \u00ed erfi\u00f0um a\u00f0st\u00e6\u00f0um og taldi sig n\u00f3gu sterka til a\u00f0 vera \u00ed \u00fev\u00ed hlutverki og \u00fear mat h\u00fan sj\u00e1lfa sig r\u00e9tt.<\/p>\n<p>H\u00fan kunni svo sannarlega a\u00f0 lifa l\u00edfinu &#8211; einn dag \u00ed einu &#8211; jafnvel eftir a\u00f0 h\u00fan veiktist.<\/p>\n<p><i>[Innskot um b\u00edlakaup sem er \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni]<\/i><\/p>\n<p>Margir brandarar flugu \u00e1 milli hennar og \u00e1stvina me\u00f0an h\u00fan dvaldi \u00e1 l\u00edknardeildinni. H\u00fan hl\u00f3 miki\u00f0 og naut hins skemmtilega og h\u00famor\u00edska \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>H\u00fan greindist me\u00f0 krabbamein fyrir r\u00famu \u00e1ri. H\u00fan f\u00e9kk fr\u00e9ttirnar sk\u00f6mmu fyrir j\u00f3lin 2012 en h\u00e9lt \u00fev\u00ed leyndu fyrir fj\u00f6lskyldunni fram yfir h\u00e1t\u00ed\u00f0arnar til a\u00f0 spilla ekki j\u00f3lagle\u00f0inni. H\u00fan f\u00f3r \u00ed veikindaleyfi og gekkst undir lyfjame\u00f0fer\u00f0 og h\u00f3f svo aftur st\u00f6rf \u00ed 75% hlutfalli. H\u00fan var afar seig og sterk \u00ed veikindum s\u00ednum og h\u00e9lt alla t\u00ed\u00f0 fullri reisn. H\u00fan f\u00f3r til Danmerkur me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni \u00ed <i>jolefrokost<\/i> \u00ed desember s.l. H\u00fan vann einn dag milli j\u00f3la og n\u00fd\u00e1rs en f\u00f3r \u00e1 l\u00edknardeildina \u00ed 2. viku jan\u00faar og var \u00fear til hinsta dags og naut g\u00f3\u00f0rar um\u00f6nnunar sem h\u00e9r er \u00feakka\u00f0 fyrir.<\/p>\n<p>H\u00fan h\u00e9lt j\u00f3l og \u00e1ram\u00f3t me\u00f0 systur sinni og fj\u00f6lskylu en J\u00f3n var \u00ed F\u00e6reyjum um j\u00f3l og \u00e1ram\u00f3t og \u00feorrabl\u00f3ti\u00f0 f\u00e9ll ekki ni\u00f0ur en var haldi\u00f0 \u00feetta \u00e1ri\u00f0 hj\u00e1 Halld\u00f3ru.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskyldan var alla t\u00ed\u00f0 \u00ed fyrsta s\u00e6ti \u00ed l\u00edfi hennar. H\u00fan naut samvista vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 sitt og \u00fe\u00e6r systur f\u00f3ru reglulega \u00e1 kaffih\u00fas til a\u00f0 spjalla og nj\u00f3ta samvista, oftast \u00e1 Kaffi M\u00edlan\u00f3.<\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg var hrein og bein, hei\u00f0arleg og s\u00f6nn manneskja, sem \u00e1tti svo margt a\u00f0 gefa \u00feessum heimi. Kraftar hennar n\u00fdtast ekki lengur en minningar um g\u00f3\u00f0a konu munu lifa og hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00feau sem henni unnu.<\/p>\n<p>L\u00edf okkar heldur \u00e1fram \u00ed \u00feessum heimi hamingju og harma. L\u00edfsg\u00e1tan er ekki leyst en kristin tr\u00fa bo\u00f0ar von \u00ed honum sem \u00fej\u00e1\u00f0ist \u00e1 krossi og yfirgaf \u00feetta l\u00edf \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins. Hann sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u00c9g lifi og \u00fe\u00e9r munu\u00f0u lifa.<\/p>\n<p>S\u00fa b\u00e6n hans r\u00e6ttist hina fyrstu kristnu p\u00e1ska og enn horfir f\u00f3lk til birtunnar fr\u00e1 gr\u00f6f hans sem l\u00fdsir okkur \u00ed m\u00f3\u00f0u sorgar og missis. Megi vonin um upprisu og eil\u00edft l\u00edf styrkja ykkur \u00ed sorginni og gefa ykkur tr\u00fa \u00e1 bjartari daga.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Ingibjargar \u00c1sgeirsd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r.<\/p>\n<p>Erfi.<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0.<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri blessun:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Ingibj\u00f6rg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir l\u00f6greglukona 1957-2014 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju\u00a0f\u00f6studaginn 7. febr\u00faar 2014 kl. 13 R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1118","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1118","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1118"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1118\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1118"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1118"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1118"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}