{"id":1112,"date":"2014-02-06T16:07:02","date_gmt":"2014-02-06T16:07:02","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=1112"},"modified":"2014-02-06T16:07:02","modified_gmt":"2014-02-06T16:07:02","slug":"einar-eggertsson-1930-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=1112","title":{"rendered":"Einar Eggertsson 1930-2014"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/einareggertsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1113\" alt=\"einareggertsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2014\/02\/einareggertsson.png\" width=\"228\" height=\"302\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Einar Eggertsson<\/b><\/p>\n<p>skipstj\u00f3ri<\/p>\n<p>1930-2014<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Langholtskirkju<\/p>\n<p>fimmtudaginn 6. febr\u00faar 2014 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><span style=\"line-height:1.5;\">Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/span><\/p>\n<p>Hva\u00f0 vitum vi\u00f0 um n\u00e6stu skref \u00ed l\u00edfinu?Hvernig ver\u00f0ur \u00feessi dagur? Hva\u00f0 mun gerast \u00e1 morgun?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vitum \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0. En vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram og reynum a\u00f0 feta okkur fram um veg og notum til \u00feess ein og \u00f6nnur mi\u00f0.<\/p>\n<p>Gu\u00f0spjalli\u00f0 sem \u00e9g las tilheyrir \u00feessari viku. \u00deegar Gregor\u00edska t\u00edmatali\u00f0 var teki\u00f0 upp \u00e1ri\u00f0 1700 h\u00f3fst vetrarvert\u00ed\u00f0 fyrsta virkan dag eftir kyndilmessu 2. febr\u00faar og st\u00f3\u00f0 yfir \u00ed 14 vikur. Kirkjan las m\u00f6nnum \u00fe\u00e1 textann um m\u00e1tt Jes\u00fa sem kyrr\u00f0i vind og vatn, gu\u00f0spjalli\u00f0 sem vi\u00f0 heyr\u00f0um r\u00e9tt \u00ed \u00feessu.<\/p>\n<p>\u00cd kirkjunni \u00ed Grindav\u00edk \u00fear sem \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i um t\u00edma \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld er st\u00f3r m\u00f3sa\u00edkmynd ger\u00f0 eftir m\u00e1lverki \u00c1sgr\u00edms J\u00f3nssonar er s\u00fdnir Jes\u00fa me\u00f0 \u00fatr\u00e9tta h\u00f6nd og l\u00e6risveina hans m\u00e6na \u00e1 hann \u00ed forundran. Brimi\u00f0 frey\u00f0ir vi\u00f0 klettastr\u00f6nd. Landslagi\u00f0 er \u00edslenskt. Myndlistarma\u00f0urinn vildi koma \u00fev\u00ed til skila a\u00f0 Jes\u00fas v\u00e6ri h\u00e9r, hann v\u00e6ri me\u00f0 \u00ed f\u00f6r \u00ed siglingum l\u00edsins.<\/p>\n<p>Um allt land eru forn mi\u00f0 sem sj\u00f3menn \u00feekktu og sigldu eftir. N\u00fa erum vi\u00f0 m\u00f6rg me\u00f0 snjalls\u00edma \u00ed vasanum sem tengdur er gervihnetti og getur s\u00fdnt hnattst\u00f6\u00f0u okkar vi\u00f0 hvert f\u00f3tm\u00e1l. \u00deannig var \u00fea\u00f0 ekki for\u00f0um daga og ekki heldur \u00feegar Einar h\u00f3f a\u00f0 s\u00e6kja sj\u00f3. \u00de\u00e1 notu\u00f0u menn komp\u00e1s og sj\u00f3kort og hin g\u00f6mlu mi\u00f0 og \u00fea\u00f0 dug\u00f0i vel.<\/p>\n<p>Duga snjalls\u00edmar n\u00fa til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 r\u00f6tum r\u00e9tta lei\u00f0 \u00ed l\u00edfinu? \u00dea\u00f0 er n\u00fa st\u00f3ra spurningin.<\/p>\n<p>Einar vissi hvert hann stefndi. Hann vissi \u00fea\u00f0 alla t\u00ed\u00f0 enda m\u00f3ta\u00f0ur af menningu og tr\u00fa \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e1r og tr\u00faari\u00f0kun hennar \u00ed h\u00faslestrum, b\u00e6n og s\u00f6ng og \u00feekkti heilr\u00e6\u00f0i \u00far helgum textum.<\/p>\n<p>\u00c9g hitti \u00feau Eggert og Sigurlaugu \u00ed Neskirkju en \u00feanga\u00f0 komu \u00feau \u00e1 helgum d\u00f6gum til messu me\u00f0an \u00feau bjuggu \u00ed Vesturb\u00e6num. \u00deau voru gl\u00e6sileg hj\u00f3n og yfir \u00feeim fri\u00f0ur og g\u00f3\u00f0vild sem geisla\u00f0i af \u00feeim. Og n\u00fa eru \u00feau b\u00e6\u00f0i horfin af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi, farin \u00ed hinstu f\u00f6r me\u00f0 s\u00edn mi\u00f0 \u00ed s\u00e1lu og sinni.<\/p>\n<p>Einar f\u00e6ddist \u00e1 \u00de\u00f3rsh\u00f6fn \u00e1 Langanesi f. 18.6.1930, d. 28.1.2014<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Eggert \u00d3lafur Briem Einarsson, h\u00e9ra\u00f0sl\u00e6knir, f. 1.6.1894 a\u00f0 H\u00e1lsi \u00ed Fnj\u00f3skadal, d. 23.8.1974, og Magnea J\u00f3nsd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja, f. 22.2.1899 \u00ed Stykkish\u00f3lmi, d. 11.10.1975.<\/p>\n<p>Einar var fimmti \u00ed r\u00f6\u00f0 sj\u00f6 systkina sem eru:<\/p>\n<p>J\u00f3hanna Katr\u00edn Kristjana f. 27.9.1924, d. 13.3.1970,<\/p>\n<p>J\u00f3n\u00a0 f. 21.11.1925,<\/p>\n<p>Ester f. 6.4.1927,<\/p>\n<p>Anna Gunnlaug f. 4.7.1928,<\/p>\n<p>Eggert \u00d3lafur f. 26.10.1931,<\/p>\n<p>Halld\u00f3r Gunnlaugur f. 8.10.1936.<\/p>\n<p>Halld\u00f3r b\u00fdr \u00ed borg englanna, Los Angeles, \u00ed Kaliforn\u00edu og sendir kve\u00f0ju s\u00edna hinga\u00f0. Systkini Einars vilja jafnframt koma \u00e1 framf\u00e6ri einl\u00e6gri \u00fe\u00f6kk fyrir l\u00edf elskulegs br\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 flyt \u00e9g ykkur einnig kve\u00f0ju fr\u00e1 Ellen og fj\u00f6lskyldu \u00ed Noregi.<\/p>\n<p>Eggert kv\u00e6ntist Sigurlaugu Kristinsd\u00f3ttir, h\u00fasfreyju, 6. \u00e1g\u00fast 1955. Sigurlaug var f\u00e6dd 5.9.1930, d\u00e1in 2.2.2010. Foreldrar hennar voru J\u00f3n Kristinn \u00c1rnason fr\u00e1 Skei\u00f0i \u00ed Svarfa\u00f0ardal, f. 22.12.1899, d. 1.4.2000, og Unnur Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir fr\u00e1 D\u00e6li \u00ed Fnj\u00f3skadal, f. 8.4.1896, d. 6.1.1967.<\/p>\n<p>Einar og Sigurlaug eignu\u00f0ust 4 b\u00f6rn:<\/p>\n<p>Eggert \u00d3laf, Magneu, Unni og \u00c1slaugu.<\/p>\n<p><b>Eggert \u00d3lafur<\/b>, f. 11.7.1953, myndlistarma\u00f0ur.<\/p>\n<p><b>Magnea<\/b>, f. 11.12.1957, sk\u00f3lastj\u00f3ri, gift \u00deorsteini Sverrissyni, f. 11.12.1955, v\u00e9lfr\u00e6\u00f0ingi. \u00deau eiga 3 d\u00e6tur:<\/p>\n<p><b>Au\u00f0i Ingu,<\/b> f. 26.6.1978, framkv\u00e6mdastj\u00f3ra, gift The\u00f3d\u00f3ri Hjalta Valssyni, f. 29.4.1973, t\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingi. \u00deau eiga 2 b\u00f6rn: Einar \u00d6rn, f. 12.2.2009, og S\u00f6ru Bj\u00f6rk, f. 3.2.2011;<\/p>\n<p><b>Hildi Ingu,<\/b> f. 17.10.1979, verkfr\u00e6\u00f0ing. H\u00fan \u00e1 3 b\u00f6rn: Au\u00f0i Freyju, f. 26.1.2006, H\u00e1kon Frey, f. 26.1.2006 og Steinunni Freyju, f. 27.3.2012;<\/p>\n<p><b>\u00c1su Ingu<\/b>, f. 30.3.1982, fimleika\u00fej\u00e1lfara, \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Ingvari Rafn Hjaltal\u00edn, f. 15.2.1979, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inema. D\u00f3ttir Ingvars heitir Emel\u00eda Kolka, f. 11.3.2001.<\/p>\n<p><b>Unnur<\/b>, f. 25.6.1961, sj\u00fakrali\u00f0i, gift J\u00f3hannesi Helgasyni, f. 16.6.1958, flugstj\u00f3ra. \u00deau eiga 2 syni:<\/p>\n<p><b>Helga<\/b>, f. 18.11.1982, flugmann, \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Freyju Rut Emilsd\u00f3ttur, f. 29.12.1981, kennara. \u00deau eiga 2 d\u00e6tur.<\/p>\n<p>Emmu Katr\u00ednu, f. 13.3.2008, og J\u00fal\u00edu Mar\u00edn, f. 6.10.2011. Elsta d\u00f3ttir Helga heitir Laufey Helga, f. 3.6.2001;<\/p>\n<p><b>Atla<\/b>, f. 15.6.1988, \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e6\u00f0ing, \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Halld\u00f3ru El\u00ednu J\u00f3hannsd\u00f3ttur, f. 24.9.1985, kennara.<\/p>\n<p><b>\u00c1slaug<\/b>, verkefnastj\u00f3ri, f. 14.6.1963, gift Gunnlaugi Helga J\u00f3hanssyni, f. 26.11.1960, m\u00e1larameistara. \u00deau eiga 2 b\u00f6rn; <b>Einar \u00de\u00f3r<\/b>, f. 21.5.1992, h\u00e1sk\u00f3lanema og <b>Helgu Krist\u00ednu<\/b>, f. 27.9.1995, framhaldssk\u00f3lanema.<\/p>\n<p>Einar flutti \u00e1ri\u00f0 1941 fr\u00e1 \u00de\u00f3rsh\u00f6fn \u00ed Borgarnes og \u00e1tti s\u00edn uppvaxtar\u00e1r \u00fear. Heimili\u00f0 var oft mannmargt \u00fev\u00ed systkinah\u00f3purinn var st\u00f3r og l\u00edflegur auk \u00feess sem fa\u00f0ir hans var h\u00e9ra\u00f0sl\u00e6knir. \u00dea\u00f0 var allt \u00ed senn heimili, l\u00e6knisstofa og ap\u00f3tek. Hann gekk \u00ed Menntask\u00f3lann \u00e1 Akureyri og f\u00f3r s\u00ed\u00f0an \u00ed Farmannadeild St\u00fdrimannask\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk. Einar starfa\u00f0i hj\u00e1 Landhelgisg\u00e6slunni \u00e1\u00f0ur en hann settist \u00e1 sk\u00f3labekk \u00ed St\u00fdrimannask\u00f3lanum. Eftir \u00fatskrift sigldi hann \u00e1 skipum S\u00cdS, Hamrafelli og Helgafelli, \u00e1 sandd\u00e6luskipinu Sandey og lengst af \u00e1 ol\u00eduflutningaskipinu Kyndli. Eftir a\u00f0 st\u00f6fum hans\u00a0 \u00e1 sj\u00f3num lauk vann hann \u00ed nokkur \u00e1r hj\u00e1 Skeljungi \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>Einar og Sigurlaug bjuggu alla s\u00edna samb\u00fa\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk lengst af \u00ed \u00c1lfheimum 66. \u00deau voru \u00e1stfangin hj\u00f3n og Einar var \u00e6t\u00ed\u00f0 hrifinn af sinni fallegu og vir\u00f0ulegu konu.<\/p>\n<p>Einar var v\u00ed\u00f0lesinn og haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 alls kyns s\u00f6guefni, \u00e6vis\u00f6gum, gl\u00e6pas\u00f6gum, fr\u00e6\u00f0ib\u00f3kum, sagnfr\u00e6\u00f0i og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega s\u00f6gu seinni heimstyrjaldarinar. \u00c1 st\u00ed\u00f0s\u00e1runum voru breskir hermenn \u00ed Borgarnesi og hann sem ungur drengur fylgdist af \u00e1huga me\u00f0 \u00f6llu sem \u00fev\u00ed tengdist.<\/p>\n<p>Hann vann vi\u00f0 vegavinnu \u00e1 unglings\u00e1runum og \u00feekkti landi\u00f0 vel hvort sem \u00fea\u00f0 var af sj\u00f3 e\u00f0a landi. Einar og Sigurlaug fer\u00f0ust miki\u00f0 um landi\u00f0 \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 hvort, f\u00f3ru b\u00e6\u00f0i \u00ed dagsfer\u00f0ir og lengri fer\u00f0al\u00f6g. \u00de\u00e1 keyr\u00f0i Einar og \u00feau h\u00f6f\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r b\u00e6kur um land og s\u00f6gu sem Sigurlaug las upp \u00far. \u00deannig nutu fer\u00f0arinnar betur og fr\u00e6ddust um sta\u00f0i og f\u00f3lk. Oft voru barnab\u00f6rnin me\u00f0 \u00feegar fari\u00f0 var \u00ed dagsfer\u00f0ir. Einar var n\u00e1tt\u00farunnandi og \u00feekkti vel algengustu fugla \u00ed n\u00e1tt\u00faru \u00cdslands.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um alls kyns hluti og ef hann \u00feekkti ekki m\u00e1lefni\u00f0 \u00fe\u00e1 haf\u00f0i hann \u00feann fr\u00e1b\u00e6ra eiginleika a\u00f0 spyrja. Hann var ekkert a\u00f0 l\u00e1tast og f\u00f3r ekkert leynt me\u00f0 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 hann vissi og hva\u00f0 ekki. \u00deegar fylgst var me\u00f0 spurningakeppnum e\u00f0a keppt \u00ed spilum \u00fe\u00f3tti m\u00f6rgum gott a\u00f0 vera me\u00f0 honum \u00ed li\u00f0i.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i alltaf mikinn \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum og\u00a0 spila\u00f0i me\u00f0 \u00der\u00f3tti. Hann fylgdist me\u00f0 enska boltanum en einnig me\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum vi\u00f0 \u00feeirra \u00ed\u00fer\u00f3ttai\u00f0kun.<\/p>\n<p>\u00c1stvinir hans minnast hans me\u00f0 mikilli gle\u00f0i og \u00fe\u00f6kk. Barnab\u00f6rnin eiga um hann og \u00f6mmu s\u00edna fagrar minningar. \u00deau g\u00e1fu \u00feeim athygli og t\u00edma, l\u00e9ku s\u00e9r me\u00f0 \u00feeim og mi\u00f0lu\u00f0u l\u00edfsvisku og elsku. Einar haf\u00f0i yndi af hvers kyns boltaleikjum og f\u00f3r oft \u00fat me\u00f0 \u00feeim a\u00f0 leika. \u00deau muna hva\u00f0 hann var naskur \u00ed feluleik og gat dulist lengi enda \u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri h\u00e6stur og r\u00famm\u00e1l hans mest. \u00deau g\u00e1tu tala\u00f0 um allt vi\u00f0 afa. B\u00f6rnin \u00ed hverfinu \u00e1ttu \u00ed honum hvert bein og hringdu gjarnan bj\u00f6llunni heima hj\u00e1 Einar og Sigurlaugu og spur\u00f0u um hann og vildu f\u00e1 hann til skrafs og leikja. Hann haf\u00f0i j\u00e1kv\u00e6\u00f0a l\u00edfsafst\u00f6\u00f0u og svo \u00feetta g\u00f3\u00f0lega vi\u00f0m\u00f3t og trausta sem la\u00f0a\u00f0i a\u00f0 s\u00e9r unga sem eldri.<\/p>\n<p>Seinasta \u00e1ri\u00f0 bj\u00f3 hann hj\u00e1 Unni d\u00f3ttur sinni til a\u00f0 l\u00e9tta undir me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni og h\u00fan minnist \u00feess me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti hann opna\u00f0i augu hennar fyrir umhverfinu, fj\u00f6llum og \u00e1ttum. Sj\u00f3mannse\u00f0li\u00f0 var alltaf til sta\u00f0ar me\u00f0 mi\u00f0in og \u00e1ttirnar \u00e1 hreinu. Hann f\u00f3r daglega \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0ir me\u00f0an hann gat og naut \u00feess a\u00f0 hafa fj\u00f6lskylduna me\u00f0 s\u00e9r \u00ed \u00feeim fer\u00f0um. Hann gekk alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og synti \u00ed laugum. B\u00f6rnin segja a\u00f0 hann hafi \u00e1tt vini \u00ed helstu heitum pottum h\u00f6fu\u00f0borgarinnar enda r\u00e6\u00f0inn og skemmtilegur ma\u00f0ur. Oft f\u00f3ru b\u00f6rnin og s\u00ed\u00f0ar barnab\u00f6rnin me\u00f0 honum \u00ed sund. Svo f\u00f3r hann f\u00f3r me\u00f0 \u00feeim ni\u00f0ur a\u00f0 Tj\u00f6rn og haf\u00f0i b\u00e1tinn hans afa Kristins me\u00f0 \u00ed f\u00f6r og kenndi \u00feeim a\u00f0 sigla honum me\u00f0fram bakkanum.<\/p>\n<p>\u00deau segja a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi ekki skipt \u00f6llu m\u00e1li hva\u00f0 \u00feau ger\u00f0u me\u00f0 honum heldur hvernig hann ger\u00f0i hlutina. N\u00e6rvera hans skapa\u00f0i svo g\u00f3\u00f0ar kenndir me\u00f0 \u00feeim, \u00f6ryggi og r\u00f3.<\/p>\n<p>F\u00e1tt er b\u00f6rnum mikilv\u00e6gara \u00ed amstri daganna en athygli spakra \u00e1stvina. Hann haf\u00f0i alltaf t\u00edma fyrir \u00feau \u00ed fr\u00edum og eftir a\u00f0 hann f\u00f3r \u00e1 eftirlaun sinnti hann \u00feeim enn betur en \u00e1\u00f0ur. Hann horf\u00f0i \u00e1 fleiri \u00fe\u00fasund kollhn\u00fdsa um \u00e6vina, badmintonskot, f\u00f3tboltasp\u00f6rk og golfsveiflur.<\/p>\n<p>Stundum hringdi hann a\u00f0 fyrra brag\u00f0i \u00ed b\u00f6rnin s\u00edn og spur\u00f0i hvort ekki k\u00e6mu einhver barnab\u00f6rn til a\u00f0 gista um kv\u00f6ldi\u00f0. Hann s\u00f3ttist eftir vinskap vi\u00f0 \u00feau.<\/p>\n<p>\u00deau fengu l\u00edka a\u00f0 koma um bor\u00f0 hj\u00e1 honum og sigla milli hafna, fengu a\u00f0 \u00fdta \u00e1 mikilv\u00e6ga takka \u00ed br\u00fanni og finna skipi\u00f0 fara \u00e1 skri\u00f0.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i g\u00f3\u00f0an h\u00famor og ger\u00f0i gjarnan gr\u00edn a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r sem er g\u00f3\u00f0ur eiginleiki og ber merki um \u00feroska\u00f0a sj\u00e1lfsmynd. Hann \u00fej\u00e1lfa\u00f0i b\u00f6rnin \u00ed or\u00f0aleikjum og allskyns g\u00e1tum.<\/p>\n<p>Hann var \u00ed grunninn h\u00f3gv\u00e6r ma\u00f0ur en ekki skaplaus, fastur fyrir, en sanngjarn. Hann var s\u00e1ttf\u00fas og m\u00f6rgum \u00fe\u00f3tt gott a\u00f0 leita r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 honum. Hann var laus vi\u00f0 tildur ger\u00f0i gr\u00edn a\u00f0 \u00e6ttarsnobbi og \u00e6ttarn\u00f6fnum og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0 efni \u00e1 \u00fev\u00ed. Hann var velvilja\u00f0ur og m\u00e1tti ekkert aumt sj\u00e1, keypti alla happdr\u00e6ttismi\u00f0a sem honum bu\u00f0ust og b\u00e6\u00f0i hundar og kettir fengu hj\u00e1 honum stroku og klapp.<\/p>\n<p>Hann var \u00e6\u00f0rulaus \u00ed veikindum s\u00ednum og til \u00feess teki\u00f0 af hj\u00fakrunarf\u00f3lki hversu duglegur hann var og seigur. \u00c9g kom til hans nokkrum d\u00f6gum fyrir andl\u00e1ti\u00f0. Vi\u00f0 r\u00e6ddum saman stutta stund og \u00e9g spur\u00f0i hvort \u00e9g m\u00e6tti ekki bi\u00f0ja me\u00f0 honum. Hann t\u00f3k \u00fev\u00ed fagnandi og \u00feegar ameni\u00f0 kom \u00e1 eftir efninu sag\u00f0i hann: Eigum vi\u00f0 ekki a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 einu Fa\u00f0ir vori?<\/p>\n<p>Hann kl\u00e6ddi sig upp tveim d\u00f6gum fyrir andl\u00e1t sitt til a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed barnaafm\u00e6li. Hann gladdist \u00ed h\u00f3pi \u00e1stvina, sat lengi og spjalla\u00f0i.<\/p>\n<p>Tveimur t\u00edmum fyrir andl\u00e1t sitt ger\u00f0i hann a\u00f0 gamni s\u00ednu.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hans, tengdab\u00f6rn og afkomendur voru l\u00f6ngum hj\u00e1 honum \u00ed veikindum hans og studdu hann me\u00f0 \u00f6llum r\u00e1\u00f0um me\u00f0an hann lif\u00f0i. \u00deau hafa misst miki\u00f0.<\/p>\n<p>N\u00fa horfir hann ekki lengur \u00e1 Sjels\u00ed (Chelsea) \u00ed sj\u00f3nvarpinu eins og hann kalla\u00f0i upp\u00e1haldsli\u00f0 Gullu systur sem hann horf\u00f0i \u00e1 me\u00f0 henni og S\u00f6lva tengdasyni hennar. Hann var aftur \u00e1 m\u00f3ti United-ma\u00f0ur og haf\u00f0i veri\u00f0 lengi.<\/p>\n<p>Hann vissi \u00e6t\u00ed\u00f0 hva\u00f0 hann vildi. \u00deekkti s\u00edn mi\u00f0 \u00ed l\u00edfinu og n\u00fa er hann horfin af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi, farin \u00ed s\u00edna hinstu f\u00f6r.<\/p>\n<p>Hann sigldi \u00e1rum saman \u00e1 Kyndli og f\u00e6r\u00f0i f\u00f3lki og fyrirt\u00e6kjum ol\u00edu til lj\u00f3sa, kyndingar og v\u00e9la. Hiti \u00ed h\u00fasum ver\u00f0ur a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0ur \u00ed k\u00f6ldu landi og hj\u00f3l atvinnull\u00edfsins \u00feurfa a\u00f0 sn\u00faast hj\u00e1 fiskvei\u00f0i\u00fej\u00f3\u00f0 og svo \u00feurfa lj\u00f3sin a\u00f0 loga \u00ed h\u00fdb\u00fdlum f\u00f3lks.<\/p>\n<p>Eitt sinn undirbj\u00f3 \u00e9g \u00fatf\u00f6r ungrar konu og r\u00e6ddi vi\u00f0 aldra\u00f0a m\u00f3\u00f0ur hennar og spur\u00f0i hana: Hva\u00f0 hefur \u00fe\u00fa n\u00fa fengist vi\u00f0 um \u00e6vina fyrir utan h\u00fasm\u00f3\u00f0urst\u00f6rfin? \u00c9g vann n\u00fa lengst af vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 setja lj\u00f3s \u00e1 fl\u00f6skur, sag\u00f0i h\u00fan. Lj\u00f3s \u00e1 fl\u00f6skur, hv\u00e1\u00f0i \u00e9g? J\u00e1, \u00e9g vann hj\u00e1 L\u00fdsi h.f.<\/p>\n<p>J\u00e1, lj\u00f3si\u00f0 kemur til okkar me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti. \u00dea\u00f0 sk\u00edn vi\u00f0 okkur \u00ed geislum s\u00f3lar og kemur einnig til okkar \u00ed \u00feeim gula sem dreginn er \u00far dj\u00fapinu og l\u00fdsti upp h\u00fdb\u00fdli f\u00f3lks fyrr \u00e1 \u00f6ldum og n\u00e6r\u00f0i hugsun og heila, sinar og li\u00f0am\u00f3t &#8211; og gerir enn.<\/p>\n<p>Allt sem lifir er af lj\u00f3si komi\u00f0 og a\u00f0 baki \u00f6llum heimsins lj\u00f3sum er lj\u00f3si\u00f0 eina, \u201es\u00f3lnanna s\u00f3l\u201c &#8211; Kristur,\u00a0 sem sag\u00f0ist vera lj\u00f3s heimsins og b\u00e6tti svo vi\u00f0 um fylgjendur s\u00edna og \u00fear me\u00f0 um okkur a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum einnig lj\u00f3s heimsins og a\u00f0 verkin okkar \u00e6ttu a\u00f0 benda til himinsins heim og vera \u00feannig \u00f6\u00f0rum mi\u00f0.<\/p>\n<p>N\u00fa leggur n\u00fdr Kyndill \u00far h\u00f6fn sem siglir undir merkjum lj\u00f3ssins og stefnir \u00e1 himins h\u00f6fn.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 vitum vi\u00f0 um n\u00e6stu skref? Hvernig ver\u00f0ur \u00feessi dagur? Hva\u00f0 mun gerast \u00e1 morgun?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vitum \u00fea\u00f0 ekki en l\u00edfi\u00f0 er \u00ed hendi hans sem var for\u00f0um um bor\u00f0 me\u00f0 l\u00e6risveinum s\u00ednum. Hann er \u00ed kirkjunni, \u00ed kirkjuskipinu og hann ber kyndil k\u00e6rleika og miskunnar \u00ed hendi s\u00e9r, stillir storma l\u00edfsins og st\u00fdrir s\u00ednu fari heilu heim.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum \u00f6rugg um bor\u00f0 me\u00f0 honum \u00ed l\u00edfi og \u00ed dau\u00f0a.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vitum ekki hva\u00f0 l\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir okkur af gle\u00f0i e\u00f0a sorgum en eitt er v\u00edst, vi\u00f0 erum aldrei ein me\u00f0an vi\u00f0 eigum tr\u00fa \u00e1 hann sem b\u00e6\u00f0i vindur og vatn hl\u00fd\u00f0a, honum sem gekk veg \u00fej\u00e1ningar og vann a\u00f0 lokum sigur \u00e1 dau\u00f0anum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 felum Einar Eggertsson \u00fev\u00ed r\u00edki er hann vona\u00f0i \u00e1 og \u00fer\u00e1\u00f0i og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edfi\u00f0 hans og \u00f6ll \u00feau g\u00f3\u00f0u mi\u00f0 sem hann gaf af visku sinni, g\u00f3\u00f0vild og \u00f6rl\u00e6ti.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Einars Eggertssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>Tilkynna jar\u00f0setningu, l\u00edkfylgd, erfi og r\u00e6\u00f0ubirtingu \u00e1 vef.<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri kve\u00f0ju:<\/p>\n<p>Gu\u00f0 vonarinnar fylli y\u00f0ur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Einar Eggertsson skipstj\u00f3ri 1930-2014 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Langholtskirkju fimmtudaginn 6. febr\u00faar 2014 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-1112","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1112","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1112"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1112\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1112"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1112"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1112"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}